Úrskurður nr. 414/2026
Hinn 15. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 414/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26050037
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. maí 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Spánar (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. apríl 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í sjö ár.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi. Til vara gerir kærandi kröfu um að endurkomubann hans verði fellt úr gildi eða stytt.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, EES-samningurinn, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna , auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Hinn 31. mars 2020 skráði kærandi dvöl sína hér á landi. Gögn málsins benda þó til þess að kærandi hafi byrjað að starfa hér síðla árs 2019. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi hlotið tvo dóma hér á landi, dags. 21. ágúst 2025 og 20. janúar 2026, vegna brota gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940 og umferðalögum nr. 77/2019. Þá hefur kærandi fengið fjórar sektargerðir og verið sviptur ökurétti bæði tímabundið og ævilangt vegna brota gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Hinn 11. mars 2026 sendi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Útlendingastofnun beiðni um að taka til skoðunar að brottvísa kæranda vegna brotaferils hans. Í umsögn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, dags. 30. mars 2026, kemur fram að lögregla hafi haft ítrekuð afskipti af kæranda frá því að hann kom til landsins en hann hafi verið skráður sakborningur í 33 málum sem feli í sér 65 brot í heildina. Kærandi hafi ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna og án tilskilinna réttinda. Kærandi eigi ýmis ofbeldisbrot, þar af heimilisbrot, kynferðisbrot og líkamsárás. Hann eigi einnig ítrekuð þjófnaðarbrot og fíkniefnalagabrot. Nánar er fjallað um brotaferil kæranda í kafla IV.
Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 30. mars 2026, var kæranda tilkynnt að til skoðunar væri að brottvísa honum og ákvarða endurkomubann með vísan til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis, sbr. 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Í bréfinu vísaði Útlendingastofnun til dóma kæranda auk sektargerða og umsagnar lögreglu vegna ítrekaðra brota kæranda m.a. gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Það sé mat lögreglu að kærandi muni halda brotaferli sínum áfram hér á landi og ógna grundvallarhagsmunum samfélagsins. Einnig voru raktar upplýsingar m.a. frá Skattinum og velferðarþjónustu sveitarfélaga. Með bréfinu var kæranda veittur sjö daga frestur til að leggja fram greinargerð vegna málsins. Bréfið var birt fyrir kæranda sama dag. Við birtingu kvaðst kærandi ætla að leggja fram andmæli vegna málsins og lagði kærandi fram andmæli 7. apríl 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. apríl 2026, var kæranda vísað brott frá Íslandi á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og honum ákvarðað endurkomubann til landsins í sjö ár, sbr. 1. mgr. 96. gr. sömu laga.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um brotaferil kæranda hér á landi og umsögn lögreglu sem fjallar um ítrekuð afskipti lögreglu af kæranda vegna margvíslegra brota. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að kærandi nyti réttar til ótímabundinnar dvalar hér á landi og yrði honum ekki brottvísað nema alvarlegar ástæður skv. a-lið 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga ættu við. Var það mat Útlendingastofnunar að þau brot sem kærandi sé grunaður um séu þess eðlis að þau nái því alvarleikastigi sem fjallað sé um í a-lið 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga. Komst stofnunin jafnframt að þeirri niðurstöðu að 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga stæði ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 28. apríl 2026.
Hinn 12. maí 2026 var ákvörðunin kærð til kærunefndar útlendingamála. Kærandi lagði fram greinargerð og fylgigögn 24. júní 2026. Gögn málsins og viðbótargögn bárust frá Útlendingastofnun 13. maí og 11. september 2026. Þá bárust gögn frá kæranda 12. október 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð vísar kærandi til þess að hann hafi verið búsettur hér á landi og starfað frá 12. október 2019. Kærandi vísar til þess að hann hafi komið að veitingarekstri hér á landi og hafi einnig starfað sem leikari og komið að listrænu stafi. Kærandi eigi unnustu hér og stefni þau að því að giftast. Kærandi eigi sögu um notkun vímuefna og hafi komist í kast við lögin. Sá vítahringur hafi versnað er hann hafi lent í slysi 29. nóvember 2022. Kærandi hafi fengið bætur og sé að klára mál sitt gagnvart Sjúkratryggingum Íslands. Slysið hafi leitt til tekjumissis og hann hafi því þegið fjárhagsaðstoð. Kærandi vísar til þess að eftir að hann hafi byrjað að afplána fangelsisrefsingu hafi hann tekið viðsnúning í lífinu og aflað sér aðstoðar til þess að snúa frá fyrra lífi, innan veggja fangelsisins. Kærandi reyni nú að afla gagna til staðfestingar á því að hann sé hættur að nota vímuefni en það taki sinn tíma og hann telji mikilvægt að kærunefnd gæti að því að málið sé upplýst að fullu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kærandi gerir athugasemd við að ákvörðun Útlendingastofnunar byggi á brotum sem kærandi hafi ekki verið dæmdur fyrir. Kærandi áréttar að hann teljist saklaus af öllum sakargiftum uns möguleg sekt hans teljist sönnuð, ýmist með því að hann gangist við meintu broti eða að hann hljóti dóm. Kærandi áréttar að í þeim málum sem hann hafi verið fundinn sekur um eða gengist undir greiðslu sektar hafi hann aðeins gerst sekur um brot gegn umferðarlögum, vörslu neysluskammta og eitt þjófnaðarbrot. Kærandi vísar til þess að hann hafi ekki fundið dæmi þess að einstaklingur með jafn smávægileg brot og hans hafi verið brottvísað frá Íslandi. Kærandi vísar til dóms Landsréttar nr. 419/2022 máli sínu til stuðnings þar sem málsaðili hafi verið fundinn sekur um ýmis alvarleg brot. Stjórnvöld verði að gæta meðalhófs, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga.
Kærandi telur að brot hans, þ.e. þau brot sem hann hafi sannanlega framið sýni ekki fram á raunverulega, yfirvofandi eða nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum íslensks samfélags. Samkvæmt leiðbeiningum með 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga sé óheimilt að horfa aðeins til fyrri refsilagabrota heldur verði að líta til þess hvort viðkomandi einstaklingur sem til skoðunar sé að brottvísa sé líklegur til að fremja refsiverð brot á ný. Það eigi ekki við um mál hans en hann hafi nú fyrst verið látinn sæta fangelsisrefsingu auk þess sem hann hafi hætt að nota ávana- og fíkniefni. Kærandi telur einnig að alvarleikaþröskuldi a-liðar 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga hafi ekki verið náð í máli kæranda. Stjórnvöld verði að gæta að því að gengisfella ekki hugtök eins og allsherjarreglu og almannaöryggi í ákafa sínum við að koma erlendum ríkisborgurum frá landinu.
Að lokum vísar kærandi til þess að hann hafi verið búsettur hér í langa tíð og hafi byggt upp líf og sterk tengsl. Hann hafi náð félagslegri og menningarlegri aðlögun til viðbótar við fjölskyldutengsl. Kærandi sé búsettur með unnustu sinni og stefni þau á hjónaband. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann muni brjóta gegn 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ekki sé hægt að gera þá kröfu að hún fylgi honum frá landinu, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu nr. 54273/00, í máli Boultif gegn Sviss.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í samræmi við 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, hefur tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna verið tekin upp í íslenskan rétt, sbr. m.a. XI. kafla laga um útlendinga sem felur í sér sérreglur um útlendinga sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
Í 95. gr. laga um útlendinga er fjallað um brottvísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans. Samkvæmt 1. mgr. greinarinnar er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans úr landi ef það er nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Í 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga segir að brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. sé heimil ef framferði viðkomandi feli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins. Ákvörðun um brottvísun skuli ekki eingöngu byggjast á almennum forvarnaforsendum. Ef viðkomandi hafi verið dæmdur til refsingar eða sérstakar ráðstafanir ákvarðaðar, sé brottvísun af þessari ástæðu því aðeins heimil, að um sé að ræða háttsemi sem geti gefið til kynna að viðkomandi muni fremja refsivert brot á ný. Fyrri refsilagabrot nægi ekki ein og sér til þess að brottvísun sé beitt.
Líkt og fram kemur í málsatvikalýsingu skráði kærandi dvöl sína hér á landi 31. mars 2020 en gögn málsins bera með sér að kærandi hafi byrjað að starfa hér síðla árs 2019. Kærandi hefur fjórum sinnum gengist undir lögreglustjórasátt, dags. 1. mars 2021, 23. febrúar 2023, 24. janúar 2024 og 13. janúar 2025, fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, fyrir akstur sviptur ökurétti og hraðakstur og einnig fyrir vörslu fíkniefna. Kærandi var sviptur ökurétti tímabundið. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra nr. S-209/2025 frá 21. ágúst 2025 var kærandi dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisrefsingar og sviptur ökurétti ævilangt. Í dóminum var kærandi sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot, sbr. 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga. Kærandi var einnig sakfelldur vegna þriggja atvika fyrir umferðarlagabrot, sbr. 5. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga, fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og hraðakstur auk 37. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðalaga fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti undir áhrifum ávana- og fíkniefna í tvígang auk hraðaksturs í eitt skipti. Kæranda var ákveðin hegningarauki með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga og við ákvörðun refsingar var litið til þess að um ítrekuð umferðarlagabrot væri að ræða. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur nr. S-600/2025 frá 20. janúar 2026 var kærandi dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar og sviptur ökurétti ævilangt. Kærandi var sakfelldur fyrir að hafa í tvígang, 10. ágúst og 23. september 2025, ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sbr. 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga. Kæranda var dæmdur hegningarauki með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga.
Fyrir liggur umsögn frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna afskipta lögreglu af kæranda, dags. 30. mars 2026. Í umsögninni kemur fram að lögreglan hafi haft ítrekuð afskipti af kæranda frá því að hann kom til landsins en frá 2. júlí 2020 hafi kærandi verið skráður sakborningur í 33 málum sem feli í sér 65 brot í heildina. Kærandi eigi 12 opin mál í lögreglukerfinu sem feli í sér 25 brot í heildina. Kærandi hafi ítrekað ekið ökutæki undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann hafi ekið ökutæki án réttinda. Kærandi eigi einnig ýmist ofbeldisbrot, þar af heimilisbrot, kynferðisbrot og líkamsárás. Kærandi eigi einnig ítrekuð þjófnaðar- og fíkniefnalagabrot. Lögregla telji að kærandi hafi sýnt í verki að ástæða væri til að óttast að hann komi til með að valda eða stuðla að brotum gegn mikilsverðum hagsmunum einstaklinga eða lögaðila sem njóti réttarverndar. Háttsemi kæranda gefi til kynna að hann ógni allsherjarreglu eða almannahagsmunum. Þá feli framferði hans í sér raunverulega, yfirvofandi og nægjanlega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins. Vegna fjölda afskipta lögreglu af kæranda sé það mat lögreglu að hann sé líklegur til að halda brotastarfseminni sinni hér á landi áfram og því sé brottvísun nauðsynleg með vísan til allsherjarreglu og/eða almannahagsmuna. Meðfylgjandi umsögn lögreglunnar er listi yfir opin mál sem eru til meðferðar hjá lögreglu sem fela í sér margvísleg brot einkum þjófnaðar- og fjárkúgunarbrot, akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna og fíkniefnainnflutningur. Þá kemur fram að kærandi hafi komið við sögu lögreglu sem sakborningur vegna heimilisofbeldis, líkamsárásar og kynferðisbrots.
Við mat á því hvort framferði kæranda sé þess eðlis að skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt, sbr. 27. gr. Sambandsborgaratilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38, verður einkum að líta til þess að samkvæmt gögnum frá lögreglu hófst brotaferill kæranda hér á landi árið 2020, stuttu eftir að hann skráði dvöl sína hér. Samkvæmt gögnum málsins hefur lögreglan hér á landi haft ítrekuð afskipti af kæranda vegna margvíslegra brota. Stór hluti brota kæranda hafa verið umferðalagabrot, en kærandi hefur ítrekað verið sakfelldur eða gengist undir lögreglustjórasátt vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna, aksturs eftir sviptingu ökuréttar og hraðaksturs. Kærandi eigi einnig ítrekuð þjófnaðar- og fíkniefnalagabrot, þar af eitt þar sem hann er grunaður um fíkniefnainnflutning.
Akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna eru almannahættubrot. Sérstök hætta er af slíkum brotum, sem eru ítrekuð og yfir langt tímabil, enda felst í háttseminni mikið skeytingarleysi og hætta gegn lífi og velferð annarra. Þá er til þess litið að löggjafinn hér á landi hefur tekið skýra afstöðu gegn sölu og dreifingu fíkniefna með lögum um ávana- og fíkniefni auk almennra hegningarlaga. Af gögnum málsins og umsögn lögreglu verður ráðið að kærandi hafi frá árinu 2020 endurtekið komið við sögu lögreglu hér á landi og að brotahegðun hans hafi stigmagnast. Kærandi hefur ekki látið af framferði sínu þrátt fyrir sektargerðir og sakfellingu fyrir brot sín en eftir að kærandi var sakfelldur með framangreindum dómum frá 21. ágúst 2025 og 20. janúar 2026 hefur kærandi ítrekað brotið af sér og er nýjasta brot kæranda skráð 30. mars 2026. Með vísan til ítrekaðra afskipta lögreglu af kæranda vegna framangreindra brota yfir langt tímabil og opinna rannsókna áhendur kæranda vegna margvíslegra brota benda framangreind gögn eindregið til þess að kærandi muni halda áfram brotahegðun sinni.
Í greinargerð vísar kærandi m.a. til þess að brot hans séu hvorki alvarleg ógn við almannaöryggi né allsherjarreglu auk þess sem hann ber fyrir sig að það brjóti gegn grundvallarrétti hans, að teljast saklaus uns sekt sé sönnuð, að horfa til ólokinna mála sem séu til meðferðar hjá lögreglu. Áréttað er að einstök refsiverð afbrot fela ekki sjálfkrafa í sér alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins, sbr. til hliðsjónar niðurlag 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Þvert á móti þarf mat stjórnvalda á 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga að endurspegla háttsemi og brotastarfsemi málsaðila í víðara samhengi. Í því ber m.a. að líta til tíðni brota og lengdar brotaferils til samræmis við dvalarleyfi. Að auki hefur, í úrskurðaframkvæmd kærunefndar, verið litið til málaskrár lögreglu sem vísbendingu um hegðunarmynstur brotamanna, til viðbótar við önnur gögn, sbr. til hliðsjónar dóm Landsréttar nr. 419/2022, dags. 1. desember 2023. Þá hefur einkum verið litið til þess hvort að hegðun og framferði viðkomandi sé með þeim hætti að lögregla hafi þurft að hafa ítrekuð afskipti af þeim.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að framferði kæranda feli í sér raunverulega og yfirvofandi ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins í skilningi 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og er skilyrðum fyrir brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga fullnægt. Háttsemi kæranda gefur til kynna að hann muni fremja refsiverð afbrot á ný, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt skráningu í Þjóðskrá skráði kærandi dvöl sína hér á landi 31. mars 2020 og hefði að skilyrðum uppfylltum notið ótímabundins dvalarréttar, sbr. 87. gr. laga um útlendinga, 31. mars 2025. Frá því tímamarki hefði kærandi því notið aukinnar verndar gegn brottvísun, sbr. a-lið 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga. Í hinni kærðu ákvörðun komst Útlendingastofnun að því að kærandi hafi öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar, sbr. 87. gr. laganna, en með vísan til a-liðar 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga stæði ákvæðið ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda. Kærunefnd telur þó að framangreint mat Útlendingastofnunar hafi ekki byggt á fullnægjandi upplýsingum og mati á stöðu kæranda hér á landi. Með tölvubréfi kærunefndar til kæranda, dags. 7. október 2026, var honum leiðbeint um að leggja fram gögn er sýni fram á að dvöl hans hafi verið lögleg síðastliðin fimm ár. Kærandi lagði fram gögn 12. október 2026. Með framangreindu var bætt úr þeim annmarka sem var á málsmeðferð Útlendingastofnunar varðandi mat samkvæmt 87. gr. laga um útlendinga. Því er beint til Útlendingastofnunar að gæta að framangreindu við meðferð sambærilegra mála.
Til að öðlast ótímabundinn dvalarrétt á grundvelli 87. gr. laga um útlendinga þarf kærandi að hafa dvalist löglega á landinu í minnst fimm ár, en í því felst skírskotun til 1. mgr. 84. gr. laga um útlendinga, sem áskilur að rétthafar séu launþegar eða sjálfstætt starfandi hér á landi, sbr. a-lið ákvæðisins, ætli að veita eða njóta þjónustu hér á landi, sbr. b-lið ákvæðisins, hafi nægilegt fé fyrir sig og aðstandendur sína til að verða ekki byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar á meðan á dvöl standi, sbr. c-lið ákvæðisins, eða sé innritaður í viðurkennda námsstofnun með það að meginmarkmiði að öðlast þar menntun eða starfsþjálfun, sbr. d-lið ákvæðisins. Í dómi héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-5059/2025 frá 9. júlí 2026 var fjallað um mat Útlendingastofnunar og kærunefndar hvað varðar ótímabundinn rétt EES-borgara samkvæmt 87. gr. laga um útlendinga og verður það haft til hliðsjónar við neðangreint mat.
Líkt og að framan er rakið skráði kærandi dvöl sína hér á landi 31. mars 2020 en kom hingað til lands og byrjaði að starfa síðla árs 2019. Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins greiddi kærandi staðgreiðslu af launum í þrjá mánuði árið 2019 og jafnframt þrjá mánuði árið 2020. Hann greiddi staðgreiðslu af launum fjóra mánuði árið 2021. Árið 2022 greiddi hann staðgreiðslu af launum í þrjá mánuði og árið 2023 greiddi hann staðgreiðslu af launum í fimm mánuði. Árið 2020 fékk kærandi greiddar atvinnuleysisbætur í sjö mánuði, í þrjá mánuði árið 2021 og í fjóra mánuði árið 2022. Kærandi fékk fjárhagsaðstoð sveitarfélaga í fjóra mánuði árið 2021, í fjóra mánuði árið 2022, í þrjá mánuði árið 2023 auk tveggja greiðslna frá stéttarfélagi og einnar greiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands það árið. Þá fékk kærandi fjárhagsaðstoð sveitarfélaga allt árið 2024 og fjóra mánuði árið 2025. Ekki liggja fyrir gögn vegna staðgreiðslu kæranda árið 2026.
Samkvæmt framangreindu hefur kærandi greitt nokkra staðgreiðslu af launum einkum fyrri hluta dvalar sinnar hér á landi en dvöl hans hefur að miklum hluta verið fjármögnuð með aðstoð hins opinbera, ýmist þar sem kærandi hefur fengið atvinnuleysisbætur og fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. Kærandi fékk einvörðungu fjárhagsaðstoð sveitarfélaga árið 2024 og fyrstu fjóra mánuði ársins 2025. Ekki verður ráðið af gögnum málsins hvernig framfærslu kæranda var háttað seinni hluta þess árs. Með vísan til framangreinds verður talið að kærandi uppfylli ekki skilyrði a-liðar 1. mgr. 84. gr. laga um útlendinga en þrátt fyrir að kærandi hafi verið launþegi um nokkurra mánaða tímabil á árunum 2019 til 2023 er ljóst að frá árinu 2020 til 2022 fékk kærandi árlega greiddar atvinnuleysisbætur um nokkurra mánaða skeið og hið sama má segja um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga frá árinu 2021 til ársins 2025. Auk þess sem kærandi fékk einungis greidda fjárhagsaðstoð árin 2024 og fjóra mánuði árið 2025.
Í 3. mgr. 84. gr. laga um útlendinga kemur fram að EES- eða EFTA borgari sem dvelst á landinu, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðisins en hættir að vera launþegi eða sjálfstætt starfandi einstaklingur heldur stöðu sinni sem slíkur við þær aðstæður sem kveðið er á um í a – d-liðum 3. mgr. 84. gr. laganna. Kærandi vísar til þess í greinargerð að hann hafi lent í slysi 29. nóvember 2022 og hefur lagt fram gögn vegna umrædds slyss, s.s. örorkumat þar sem kærandi er metinn til 5% varanlegrar örorku. Kærandi vísar til þess að hann hafi orðið óvinnufær eftir slysið og hafi því þurft að óska eftir fjárhagsaðstoð. Ekki verður talið að aðstæður kæranda eigi undir a-lið 3. mgr. 84. gr. laga um útlendinga þar sem ekki er um tímabundna óvinnufærni að ræða í skilningi framangreinds ákvæðis en t.a.m. liggur fyrir að algjört brotthvarf kæranda af vinnumarkaði hefur varað frá upphafi árs 2024. Þá naut kærandi fjárhagsaðstoðar fyrir umrætt slys líkt og sjá má í framangreindu yfirliti um þá fjárhagsaðstoð sem kærandi hefur fengið. Þegar gögn málsins eru virt í heild sinni verður ekki talið að b- og c-liður 3. mgr. 84. gr. laga um útlendinga eigi við um aðstæður kæranda. Fyrir liggur að atvinnuferill kæranda hefur verið stopull og hefur hann margoft fengið atvinnuleysisbætur yfir ákveðið tímabil auk fjárhagsaðstoðar. Auk þess, líkt og að framan er rakið, hefur hann verið alveg fjarverandi af vinnumarkaði frá upphafi árs 2024. Hann hefur auk þess ekki lagt fram gögn um að hann hafi orðið atvinnulaus án eigin atbeina eða að hann hafi verið í virkri atvinnuleit á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar þann tíma sem hann fékk atvinnuleysisbætur. Samkvæmt vottorði frá Fangelsismálastofnun Íslands, dags. 7. október 2026, hefur kærandi verið í fangelsi frá 29. apríl 2026. Í gögnum málsins byggir kærandi á því að hann hafi loforð um atvinnu að lokinni afplánun. Þegar gögn málsins eru virt í heild sinni verður ekki talið að ákvæði a - d-liða 3. mgr. 84 gr. laga um útlendinga eigi við um aðstæður kæranda.
Ekki verður talið að skilyrði c-liðar 1. mgr. 84. gr. laganna séu uppfyllt í máli kæranda. Hann hefur ekki lagt fram gögn um að hann hafi nægt fé fyrir sig í skilningi ákvæðisins. Þá hefur hann frá árinu 2021 fengið fjárhagsaðstoð sveitarfélaga ýmist hluta árs eða allt árið og hefur þar með verið byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar. Verður af þeim sökum ekki talið að kærandi hafi nægt fé fyrir sig í skilningi framangreinds ákvæðis. Þá hefur ekkert komið fram í málinu sem gefur til kynna að skilyrði b- og d-liða 1. mgr. 84. gr. laga um útlendinga eigi við um kæranda. Með vísan til framangreinds er ljóst að skilyrði a - d-liða 1 mgr. 84. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt í máli kæranda.
Samkvæmt framangreindu hefur kærandi ekki öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar samkvæmt 87. gr. laga um útlendinga. Verður því ekki fallist á það mat Útlendingastofnunar að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 87. gr. laga um útlendinga.
Í 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga koma fram takmarkanir á heimild til brottvísunar samkvæmt 95. gr. laganna. Í ákvæðinu segir að brottvísun skuli ekki ákveða ef það, með hliðsjón af málsatvikum og tengslum EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans við landið, myndi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart viðkomandi eða nánustu aðstandendum hans. Við matið skuli m.a. taka mið af lengd dvalar á landinu, aldri, heilsufari, félagslegri og menningarlegri aðlögun, fjölskyldu og fjárhagsaðstæðum og tengslum viðkomandi við heimaland sitt, sbr. 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga.
Við mat á ósanngjarnri ráðstöfun gagnvart málsaðila eða nánustu aðstandendum í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Í dómaframkvæmd hefur Mannréttindadómstóll Evrópu vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Þá hefur dómstóllinn lagt til grundvallar að aðildarríki mannréttindasáttmálans hafi vald til þess að brottvísa útlendingi sem hefur hlotið dóma fyrir refsiverð afbrot enda sé það nauðsynlegt með tilliti til allsherjarreglu, svo sem í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Þó verði að horfa til þess hvort ákvörðunin skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um, stefna að lögmætu markmiði, og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóllinn hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar-, og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra brota með vísan til almannaöryggis þótt aðili hafi fjölskyldutengsl, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.
Í greinargerð byggir kærandi á því að hann eigi kærustu hér á landi og að þau stefni á að gifta sig. Kærandi hafi komið að veitingarekstri hér á landi og hafi einnig starfað sem leikari og komið að listrænu stafi. Kærandi byggir á því að hann hafi lent í slysi 29. nóvember 2022 og hafi eftir það þurft að reiða sig á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. Þá byggir kærandi á því að frá því að hann hóf afplánun hafi líf hans tekið viðsnúning og hann sé hættur að neyta áfengis og vímuefna. Kærandi hyggist leggja fram gögn þess efnis.
Samkvæmt skráningu í Þjóðskrá er kærandi ekki skráður í sambúð. Engin gögn liggja fyrir um samband kæranda og meintrar kærustu.
Atvinnusaga kæranda hér á landi hefur þegar verið rakin með ítarlegum hætti. Með vísan til þeirra upplýsinga verður talið að aðlögun kæranda að íslensku samfélagi með tilliti til atvinnu sé lítil. Þá er einnig litið til þess að réttur til frjálsrar farar og dvalar grundvallast á sjónarmiðum um efnahagslega virkni. Kærandi byggir á því að hafa þurft að reiða sig á aðstoð sveitarfélaga eftir að hafa lent í slysi í nóvember 2022. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi naut fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga og fékk greiddar atvinnuleysisbætur í miklum mæli áður en hann varð fyrir umræddu slysi. Þá hefur lögregla haft ítrekuð afskipti af kæranda frá árinu 2020, líkt og þegar hefur verið rakið, og er brotahegðun kæranda til marks um lítinn ásetning til félags- og menningarlegrar aðlögunar að íslensku samfélagi.
Samkvæmt framangreindu eru tengsl kæranda við landið ekki slík að í brottvísun hans felist ósanngjörn ráðstöfun gagnvart honum eða nánustu aðstandendum hans í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi lítur nefndin einnig til þess að í ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu felst ekki skilyrðislaus réttur til fjölskyldulífs á Íslandi, heldur er stjórnvöldum heimilt að mæla fyrir um takmarkanir á réttinum, sbr. áðurnefndan dóm Üner gegn Hollandi. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi og meint kærasta hans geti ekki sameinast í heimaríki kæranda.
Að framangreindu virtu stendur 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda frá landinu. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun því staðfest.
Samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga um útlendinga felur brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. í sér bann við komu til landsins síðar. Í sama ákvæði er kveðið á um að endurkomubann geti verið varanlegt eða tímabundið en þó ekki styttra en tvö ár. Við mat á því skuli sérstaklega litið til atriða sem talin eru upp í 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda bönnuð endurkoma til Íslands í sjö ár. Að málsatvikum virtum og með hliðsjón af tíðni ítrekaðra brota kæranda og lítilli aðlögun að íslensku samfélagi verður endurkomubannið staðfest. Er því ekki fallist á varakröfu kæranda um að fella endurkomubann kæranda úr gildi eða marka honum skemmra endurkomubann. Athygli er vakin á því að samkvæmt 2. mgr. 96. gr. laga um útlendinga er heimilt að fella endurkomubann úr gildi ef nýjar aðstæður mæla með því og rökstutt er að orðið hafi verulegar breytingar á þeim aðstæðum sem réttlættu ákvörðun um endurkomubann. Endurkomubann kæranda tekur gildi þegar hann verður fluttur úr landi, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt c-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar slíkt telst nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Að teknu tilliti til málsatvika og þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að brottvísa beri kæranda á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir