Úrskurður nr. 452/2026
Hinn 15. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 452/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020042
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. febrúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í tólf ár, sbr. f-lið 1. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara er þess krafist að endurkomubann kæranda verði markaður skemmri tími.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um dvalarleyfi fyrir maka Íslendings 29. janúar 2023, sbr. 70. gr. laga um útlendinga. Kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan umsóknin væri til meðferðar, sbr. 51. gr. laganna.
Með dómi héraðsdóms Shkoder í Albaníu nr. 476/2007, dags. 21. desember 2007, var kærandi sakfelldur og dæmdur til 18 ára fangelsisrefsingar, þar af 16 ár fyrir manndráp og 3 ár fyrir vopnalagabrot. Þá var einn þriðji hluti refsingar felldur niður og hlaut kærandi 12 ára refsingu. Í ljósi sakadóms kæranda óskaði Útlendingastofnun eftir umsögn lögreglunnar um hvort kærandi hafi gerst brotlegur hér á landi eða hafi verið til rannsóknar í sakamáli. Samkvæmt umsögn lögreglunnar, dags. 5. júní 2025, sé kærandi skráður sakborningur í fjórum málum í kerfi lögreglunnar sem feli í sér sjö brot í heildina frá árinu 2018. Kærandi hafi á árunum 2018 og 2019 verið grunaður um brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og dvöl án dvalarleyfis. Þá hafi kærandi ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu vegna brotsins árið 2019. Árið 2020 hafi lögreglu borist upplýsingar um að kærandi hafi komið til landsins á meðan hann hafi verið í virku endurkomubanni og því grunaður um brot gegn endurkomubanni. Hann hafi verið handtekinn og fluttur frá landi. Þá hafi kærandi verið stöðvaður við akstur án gildra ökuréttinda árið 2024. Það sé mat lögreglu, þrátt fyrir að kærandi hafi ekki hlotið dóm á Íslandi né verið grunaður um sérstaklega alvarleg brot, að horfa verði til þess að kærandi hafi hlotið dóm í heimaríki fyrir manndráp og vopnaburð. Það sé því mat lögreglu að kærandi sé raunveruleg, yfirvofandi og nægilega alvarleg ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins til að brottvísa honum. Þá liggja fyrir upplýsingar frá lögreglu um að mál sé til rannsóknar er varðar kynferðisbrot gegn barni.
Með vísan til framangreinds var kæranda birt tilkynning Útlendingastofnunar um hugsanlega brottvísun á grundvelli f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Í tilkynningunni vísaði Útlendingastofnun til refsidóms kæranda, umsagnar lögreglu og opins máls hjá lögreglu þar sem kærandi er grunaður um brot gegn barni, sbr. 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga. Tilkynningin var birt fyrir kæranda 5. febrúar 2026 en við birtingu kvaðst kærandi ætla að leggja fram andmæli. Kærandi lagði fram andmæli 9. febrúar 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. febrúar 2026, var kæranda brottvísað og ákveðið endurkomubann til landsins í tólf ár á grundvelli f-liðar 1. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Kæranda var birt ákvörðunin sama dag. Fram kom í ákvörðuninni að frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar væri felldur niður á grundvelli c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 12. febrúar 2026. Kærandi lagði fram fylgigögn samhliða kæru auk beiðni um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda var skipaður talsmaður á grundvelli 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga 13. febrúar 2026 og lagði fram greinargerð 16. febrúar 2026. Kærunefnd féllst á framangreinda beiðni um frestun réttaráhrifa 18. febrúar 2026. Upplýsingar frá lögreglu bárust 30. september 2026 og nánari upplýsingar frá Útlendingastofnun 9. október 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er fjallað um málsatvik og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærandi vísar til þess að hann sé aðstandandi EES-borgara í skilningi 82. gr. laga um útlendinga. Staða hans grundvallist á hjúskap hans með íslenskum ríkisborgara auk þess sem eigi hann barn með henni og fari þau með sameiginlega forsjá. Kærandi vísar til þess að sérreglur XI. kafla laga um útlendinga sé innleiðing á tilskipun 2004/38/EB. Samkvæmt reglunum njóti EES-ríkisborgarar og aðstandendur þeirra ríkari réttarverndar gegn brottvísun og endurkomubanni en ríkisborgarar þriðju ríkja.
Kærandi vísar til þess að honum hafi verið brottvísað á grundvelli mun vægari skilyrða en lög geri ráð fyrir, sem grafi undan þeirri réttarvernd sem hann njóti. Kærandi vísar til þess að skilyrði f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga um nauðsyn vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna sé mun opnara og víðtækara hugtak sem veiti stjórnvöldum marktækt meira svigrúm við mat heldur en 95. gr. laganna. Það geri ekki sömu ströngu kröfur um að ógnin sé yfirvofandi og beinist að grundvallarhagsmunum samfélagsins, og útiloki ekki með jafn afdráttarlausum hætti að byggt sé á almennum forvarnarsjónarmiðum.
Þá hafi endurkomubann á grundvelli 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga mun víðtækari réttaráhrif en endurkomubann samkvæmt 96. gr. sömu laga. Ákvörðun samkvæmt 101. gr. feli í sér skyldu til að yfirgefa allt Schengen-svæðið og leiði að jafnaði til skráningar í Schengen upplýsingakerfið. Aftur á móti takmarkist endurkomubann samkvæmt 96. gr. laga um útlendinga, sem sé sérákvæði fyrir EES-borgara og aðstandendur þeirra, eingöngu við Ísland. Varðandi lengd endurkomubanns byggir kærandi á því að stofnuninni hafi borið að fylgja þeim þrönga ramma sem 96. gr. laga um útlendinga mæli fyrir um, enda sé um að ræða sérákvæði sem gildi um EES-borgara og aðstandendur þeirra. Við mat á lengd endurkomubanns samkvæmt ákvæðinu beri að taka mið af hinu stranga skilyrði 95. gr. laganna um raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn. Af því leiði að lengd bannsins þurfi að vera í réttu hlutfalli við þá ógn sem talin sé stafa af viðkomandi. Með því að beita almennum heimildum 98. gr. og 101. gr. laga um útlendinga í stað þeirra sérreglna sem gildi um kæranda sem aðstandanda EES-borgara, hafi Útlendingastofnun brotið gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Þar sem úr slíkum annmarka verði ekki bætt á kærustigi sé kærunefnd rétt og skylt að fallast á aðalkröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Meginmálatilbúnaður kæranda byggir á því að kærandi njóti réttarverndar XI. kafla laga um útlendinga. Í því samhengi skal áréttað að samkvæmt 2. mgr. 80. gr. laga um útlendinga gilda ákvæði XI. kafla laganna um aðstandendur íslenskra ríkisborgara sem fylgja honum eða koma til íslensks ríkisborgara sem snýr aftur til Íslands eftir að hafa nýtt rétt til frjálsrar farar samkvæmt EES-samningnum. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi og maki hans hafi hafið fjölskyldulíf í öðru ríki innan EES- og EFTA-samstarfsins. Gögn málsins bera ekki annað með sér en að hjúskapur þeirra, og dvalarheimild kæranda, grundvallist eingöngu á íslenskum landsrétti, sbr. einkum 70., sbr. 51. gr. laga um útlendinga. Verður því að hafna beitingu XI. kafla laga um útlendinga í tilviki kæranda.
Samkvæmt f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef það er nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Ekki er fjallað nánar um ákvæðið í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga.
Samkvæmt framangreindu kemur til skoðunar hvort að aðstæður kæranda séu þess eðlis að nauðsynlegt sé að brottvísa honum vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Ákvörðun um brottvísun kæranda á grundvelli f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga byggir á sakadómi kæranda frá heimaríki og gögnum frá lögreglu þar sem kærandi er grunaður um kynferðisbrot gegn barni.
Með dómi héraðsdóms Shkoder í Albaníu nr. 476/2007, dags. 21. desember 2007, var kærandi sakfelldur og dæmdur til 18 ára fangelsisrefsingar, þar af 16 ár fyrir manndráp og 3 ár fyrir vopnalagabrot með því að hafa skotið mann til bana en brotið var framið í samverknaði við aðra einstaklinga. Þá var einn þriðji hluti refsingar kæranda felldur niður og hlaut kærandi 12 ára fangelsisrefsingu. Fyrir liggur að með framangreindum dómi var kærandi sakfelldur fyrir háttsemi sem átti sér stað árið 2004. Samkvæmt dómnum hófst afplánun kæranda frá degi handtöku eða samkvæmt úrskurði um öryggisráðstöfun frá 27. desember 2005. Ekki liggja fyrir gögn frá fangelsismálastofnun Albaníu um tímabil afplánunar kæranda. Af dómnum verður ráðið að kærandi hafi lokið afplánun á árunum 2016-2017. Eru því um níu til tíu ár frá því að kærandi lauk afplánun vegna framangreinds dóms.
Í samhengi við framangreint er m.a. unnt til líta til tímaviðmiða sem löggjafinn hefur sett er varðar brottvísun einstaklinga sem hafa hlotið dóm eða afplánað refsingu erlendis, sbr. c-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að brottvísa útlendingi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur á síðustu fimm árum afplánað refsingu erlendis eða verið dæmdur þar til refsingar fyrir háttsemi sem að íslenskum lögum getur varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði; samsvarandi gildir um sérstakar ráðstafanir sem ákvarðaðar eru vegna slíkrar refsiverðrar háttsemi.
Þegar litið er til framangreinds verður ekki talið að umræddur dómur frá árinu 2007 leiði einn og sér til þess að nauðsynlegt sé að brottvísa kæranda vegna öryggi ríkisins og almannahagsmuna. Leggja verður til grundvallar að fyrirliggjandi gögn málsins sýni með fullnægjandi hætti fram á að kærandi sé ógn við öryggi ríkisins eða almannahagsmuni. Í því samhengi ber að líta til annarra gagna málsins um framferði kæranda hér á landi. Líkt og að framan er rakið hefur kærandi brotið gegn lögum um útlendinga með því að hafa starfað og dvalið hér á landi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Þá hefur kærandi komið hingað til lands þrátt fyrir að vera í virku endurkomubanni. Auk þess hefur kærandi verið stöðvaður við akstur án ökuréttinda. Sú háttsemi er ekki þess eðlis að hún teljist ógn við almannahagsmuni þrátt fyrir að hún sýni fram á ákveðið hegðunarmynstur brota kæranda. Verður því ekki tekið undir það mat lögreglu að kærandi sé ógn við almannahagsmuni einungis þegar litið er til sakadóms kæranda og framangreindra brota hans gegn lögum um útlendinga. Áréttað er að umsögn lögreglu í málinu er dagsett 5. júní 2025 og tekur t.a.m. ekki mið af kynferðisbrotamáli kæranda sem er til meðferðar hjá Héraðssaksóknara. Mat lögreglu tekur því ekki mið af málsatvikum í heild sinni og er ábótavant af þeim sökum.
Fyrir liggja fyrir upplýsingar frá lögreglu um að kærandi sé sakborningur í máli sem sé til rannsóknar er varðar brot gegn barni. Kærunefnd aflaði upplýsinga frá lögreglu hvar málið væri statt en samkvæmt upplýsingum frá embættinu er málið, er snýr að kynferðisbroti gegn barni yngra en 15 ára, til meðferðar hjá Héraðssaksóknara. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að kynferðisbrot geti verið þess eðlis að þau varði almannahagsmuni, sbr. m.a. úrskurð kærunefndar nr. 270/2021. Framangreint kynferðisbrotamál kæranda sem er til rannsóknar hjá Héraðssaksóknara er alvarlegs eðlis og kann að varða grundvallarhagsmuni samfélagsins. Verður þó að líta til þess að sakamál kæranda er á rannsóknarstigi og verður ekki talið að fyrirliggjandi gögn málsins séu fullnægjandi til að unnt sé að fella framferði kæranda undir f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Við það mat er einkum litið til þess að fyrir liggja mjög takmörkuð gögn um skýrslustöku vegna þess máls sem er til meðferðar auk þess sem ekki hefur verið gefin út ákæra eða komin dómsúrlausn í málinu. Þá liggja ekki fyrir gögn frá lögreglu sem gefa til kynna að kærandi sé ógn við almannahagsmuni að öðru leyti. Við beitingu ákvæðisins verður að gera ríkar kröfur og að fyrir liggi rökstutt mat lögreglu og gögn sem sýna fram á umrædda ógn en líkt og að framan hefur verið rakið er mati lögreglu ábótavant í máli kæranda. Með hliðsjón af framangreindu er nauðsynlegt að afla frekari og ítarlegri gagna um mál kæranda áður en unnt er að taka afstöðu til þess hvort háttsemi hans hér á landi get talist ógn við almannahagsmuni. Að framangreindu virtu eru skilyrði brottvísunar samkvæmt f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga ekki uppfyllt í málinu.
Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda felld úr gildi.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir