Úrskurður nr. 455/2026
Hinn 15. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 455/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020050
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. febrúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í þrjú ár, sbr. b-lið 1. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að endurkomubann hans verði fellt niður eða að því verði markaður skemmri tími.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Í skýrslu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24. janúar 2026, kemur fram að lögreglan hafi stöðvað kæranda við almennt eftirlit. Kærandi hafi framvísað bresku ökuskírteini og greint frá því að vegabréf hans væri staðsett á hóteli þar sem hann dveldi. Kærandi hafi farið í bifreið lögreglu og keyrt hafi verið með hann að hótelinu. Kærandi hafi greint frá herbergisnúmeri en hafi ekki verið með lykil. Við nánari athugun hafi ekkert herbergi verið skráð á kæranda. Hann hafi þá breytt framburði sínum og greint frá því að kærasta hans hafi leigt herbergi á hótelinu. Það hafi ekki reynst vera rétt. Þar sem kærandi hafi ekki gefið upp réttan dvalarstað eða framvísað vegabréfi hafi hann verið fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku. Kæranda hafi verið kynnt réttarstaða sakbornings auk þess sem kærandi var í sambandi við lögmann sinn við meðferð málsins. Samkvæmt upplýsingum í kerfum lögreglunnar hafi kæranda verið frávísað í tvígang en ákvarðanir lögreglu hafi verið felldar úr gildi. Þá hafi kærandi í fimmtán skipti verið myndaður með sömu hraðamyndavélinni við of hraðan akstur. Kærandi hafi greint frá því að hafa ekki verið meðvitaður um framangreint. Í samantekt úr skýrslutöku hjá lögreglu, dags. 24. janúar 2026, kemur m.a. fram að kærandi hafi hvorki viljað tjá sig frekar um dvalarstað sinn né hvar vegabréf hans væri niðurkomið. Kærandi hafi greint frá því að hann héldi að hann hafi dvalið á landinu í sex vikur.
Í ljósi framangreinds hafi lögregla birt kæranda tilkynningu um hugsanlega brottvísun með vísan til b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, dags. 24. janúar 2026. Í tilkynningunni komu fram þær athugasemdir lögreglu að kærandi hafi ekki framvísað ferðaskilríkjum, hafi reynt að villa um fyrir lögreglu um dvalarstað og gefið rangar upplýsingar um tilgang dvalar. Samhliða því var kæranda gert að sæta tilkynningarskyldu, sbr. 114. gr. laga um útlendinga. Kæranda var veittur frestur til að leggja fram andmæli vegna málsins. Andmæli voru lögð fram 26. janúar 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. febrúar 2026, var kæranda brottvísað og ákvarðað endurkomubann til landsins í þrjú ár á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Fram kom í ákvörðuninni að frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar væri felldur niður á grundvelli e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt fyrir kæranda sama dag. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 12. febrúar 2026. Kærandi lagði fram greinargerð og fylgigögn vegna málsins 26. mars 2026. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun var kærandi fluttur úr landi með heimferðar- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 17. mars 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð er vísað til málsatvika og málsmeðferðar hjá lögreglu og Útlendingastofnun. Kærandi vísar til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar sé ólögmæt og stangist á við grundvallarreglu stjórnsýsluréttar og mannréttindalög. Kærandi vísar til þess að hann hafi verið í lögmætri dvöl þegar lögregla hafi haft afskipti af honum og að Útlendingastofnun hafi ekki sýnt fram á hið gagnstæða með trúverðugum hætti. Kærandi hafi sýnt fram á auðkenni sitt með því að framvísa bresku skilríki. Kærandi vísar einnig til framlagðra gagna á kærustigi sem feli í sér afrit af vegabréfi hans með komustimpli á Schengen-svæðið 12. nóvember 2025 og flugbókun sem sýni komu hans til Íslands 16. nóvember 2025. Kærandi hafi dvalið í 74 daga á Schengen-svæðinu þegar lögregla hafi haft afskipti af honum og dvöl hans því lögmæt. Kærandi telur að ákvörðun um brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi haft staðfestan flugmiða til Lundúna, Bretlandi, dags. 10. febrúar 2026. Þar sem meginmarkmið brottvísunar sé að tryggja að útlendingur yfirgefi landið sé engin þörf á að beita svo íþyngjandi ráðstöfun þegar viðkomandi hafi sýnt fram á vilja og getu til brottfarar af landinu. Ákvörðun um að fella niður frest brjóti gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Kærandi vísar einnig til heilsufarskvilla sem hann glími við og telur mikilvægt að þeir séu vegnir við mat samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga umútlendinga, sbr. einnig 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá telur kærandi að ákvörðun um endurkomubann sé óhófleg en hann hafi gert ráðstafanir til að fara frá landinu og sé með dvalarleyfi í Bretlandi. Endurkomubanni skuli aðeins beita í tilvikum þar sem þau séu nauðsynleg og í samræmi við meðalhófsregluna. Kærandi telur að umferðarlagabrot kæranda geti ekki réttlætt þriggja ára endurkomubann á Schengen-svæðið þrátt fyrir alvarleika þeirra.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingi sé skylt að kröfu lögreglu að sýna skilríki og veita upplýsingar, ef þörf er á, svo að ljóst sé hver hann er og hvort dvöl hans í landinu sé lögmæt.
Í 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga kemur fram að útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu er ekki heimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Öðrum útlendingum er óheimilt án sérstaks leyfis að dveljast hér lengur en 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki, sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu, telst jafngilda dvöl hér á landi. Samkvæmt 1. mgr. 50. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem hyggst dveljast hér á landi lengur en honum er heimilt skv. 49. gr. að hafa dvalarleyfi.
Samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna, hefur af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum eða kemur sér hjá því að hlíta ákvörðun sem felur í sér að hann skuli yfirgefa landið. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að í b-lið felist heimild til að vísa útlendingi brott ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna. Hér undir myndu sem fyrr geta fallið fleiri en eitt brot gegn lögunum sem hvert fyrir sig teldist ekki alvarlegt. Í öðru lagi sé heimilt að vísa útlendingi brott sem af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi hafi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum. Þessi heimild sé nýmæli en sambærilegt ákvæði sé í norsku útlendingalögunum og sé það ákvæði haft sem fyrirmynd. Þyki rétt að lögfesta heimild til að bregðast við því þegar útlendingur hafi veitt rangar eða villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum. Slík upplýsingagjöf sé jafnframt refsiverð skv. b-lið 1. mgr. 116. gr. laganna.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stöðvaður við almennt eftirlit lögreglu. Hann hafi ekki framvísað vegabréfi við lögreglu en hafi framvísað bresku ökuskírteini til sýna fram á hver hann væri. Kærandi fór í fylgd með lögreglu á uppgefinn dvalarstað, sem reyndist svo ekki vera dvalarstaður hans. Kærandi breytti þá framburði sínum og kvað framangreindan dvalarstað vera dvalarstað kærustu sinnar, sem hafi einnig reynst vera rangt. Hann hafi því ekki veitt réttar upplýsingar um dvalarstað auk þess sem hann hafi ekki viljað greina frá hvar vegabréf hans væri niðurkomið. Í skýrslutöku hjá lögreglu hafi kærandi ennfremur hvorki viljað tjá sig um framangreint né tilgang dvalar sinnar. Kærandi greindi þó frá því að hafa í fórum sínum vegabréf sem hann hafi framvísað við komuna til Íslands. Framburðarskýrsla kæranda hjá lögreglu ber með sér að framburður hans hafi verið á reiki, hann hafi ekki að fullu verið samvinnuþýður við að veita lögreglu umbeðnar upplýsingar eða svarað spurningum lögreglu með fullnægjandi hætti. Auk þess kvaðst kærandi ekki kannast við þær 16 hraðaksturssektir, á tímabilinu 26. desember 2025 til 7. janúar 2026, sem kærandi hefur hlotið og lögregla bar undir hann í skýrslutöku.
Kærandi vísar til þess að hann hafi verið í lögmætri dvöl þegar lögregla hafi haft afskipti af honum. Að virtum ákvæðum laga um útlendinga er ljóst að kærandi ber ábyrgð á lögmæti eigin dvalar og ber honum að geta sýnt fram á lögmæti hennar, sbr. 14. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt 13. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017 skal miða við dagsetningu er fram kemur á komustimpli í ferðaskilríkjum við mat á lengd dvalar útlendings, sem hvorki er EES- eða EFTA-borgari, á Schengen-svæðinu. Nú hafa ferðaskilríki hans ekki að geyma komustimpil og skal þá miðað við að handhafi þeirra hafi ekki gætt skilyrða um lengd dvalar og er heimilt að vísa honum brott í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og reglugerðar um útlendinga. Ákvæði 1. mgr. gildir þó ekki ef útlendingur leggur fram gögn sem með trúverðugum hætti sýna fram á að hann hafi virt skilyrði um lengd dvalar. Samkvæmt framangreindu hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann hafi virt skilyrði um lengd dvalar á Schengen-svæðinu. Á kærustigi lagði kærandi fram flugbókun til Ítalíu, dags. 16. nóvember 2025 og til Íslands, dags. 21. nóvember 2026, auk afrits af einni blaðsíðu úr vegabréfi sem inniheldur komustimpil á Schengen-svæðið, dags. 12. nóvember 2025. Flugbókanir sem kærandi lagði fram eru ekki til þess fallnar að sýna fram á lögmæti dvalar hans einar og sér. Þá voru ekki lögð fram afrit af vegabréfinu í heild sinni til að sýna fram á lögmæti dvalar og eiganda vegabréfsins. Framlögð gögn sýna því ekki fram á lögmæti dvalar kæranda.
Með hliðsjón af því sem að framan hefur verið rakið gaf kærandi upp rangar eða villandi upplýsingar um dvalarstað sinn og hvar vegabréf hans væri niðurkomið. Þá var kærandi ekki að fullu samvinnuþýður við meðferð málsins við að veita lögreglu umbeðnar upplýsingar. Var því t.a.m. ekki unnt að sannreyna lögmæti dvalar kæranda. Verður af þeim sökum talið að hann hafi af ásetningi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögum um útlendinga. Eru skilyrði til brottvísunar samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Í niðurstöðu Útlendingastofnunar er m.a. byggt á því að kæranda hafi verið í tvígang frávísað á landamærunum af hálfu lögreglunnar þar sem kærandi hafi ekki getað gert grein fyrir tilgangi ferðar sinnar. Fyrir liggur þó að báðar ákvarðanirnar voru felldar úr gildi með úrskurðum kærunefndar. Verður ekki fallist á að ákvarðanir lögreglu um frávísun kæranda á landamærunum komi til skoðunar við matið.
Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Kærandi byggir á því að heilsufarskvillar hans skuli vegnir við mat á ósanngjarnri ráðstöfun samkvæmt framangreindu ákvæði. Ekkert í gögnum málsins eða málatilbúnaði kæranda bendir til þess að 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga standi í vegi fyrir brottvísun kæranda. Kærandi greindi frá því við meðferð málsins að hann ætti rúmenska kærustu. Hann hefur þó ekki lagt fram gögn við meðferð málsins um framangreint samband eða að hann sé aðstandandi EES-borgara. Þá verður ekki fallist á að heilsufarsaðstæður kæranda séu svo alvarlegar að ákvæðið komi til skoðunar af þeim sökum.
Í 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga kemur fram að endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó geti endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skuli litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda gert að sæta endurkomubanni til þriggja ára. Að teknu tilliti til úrskurðaframkvæmdar kærunefndar verður fallist á varakröfu kæranda og honum gert að sæta tveggja ára endurkomubanni.
Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt e-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar útlendingi er vísað úr landi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til málsatvika er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að ákvörðun um að kærandi skuli sæta brottvísun og endurkomubanni og frestur til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður, sé óhófleg og brjóti gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga enda hafi kærandi þegar keypt sér flugmiða úr landi. Í gögnum málsins liggur fyrir bókun á flugmiða úr landi, dags. 11. febrúar 2026. Í skýrslutöku lögreglunnar var kærandi hvorki samvinnufús við að veita upplýsingar um lögmæti dvalar né hvenær hann hafði áform um að fara úr landi. Auk þess kemur fram að kærandi hafi greint frá því í skýrslutöku 24. janúar 2026 að eiga ekki flug frá landinu en hann hygðist kaupa slíkan eftir að skýrslutöku lyki. Ekki verður ráðið af gögnum málsins að kærandi hafi verið búinn að bóka flugmiða úr landi þegar lögregla hafði afskipti af honum. Með vísan til þess verður ekki talið að hin kærða ákvörðun sé óhófleg ráðstöfun. Með vísan til þess er málsástæðu kæranda hafnað.
Að teknu tilliti til 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hófst endurkomubann kæranda þegar hann var færður úr landi 17. mars 2026.
Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun staðfest. Endurkomubann kæranda er stytt í tvö ár.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda er stytt í tvö ár.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant‘s entry ban is shortened to two years.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir