Úrskurður nr. 480/2026
Hinn 29. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 480/2026
Í stjórnsýslumálum nr. KNU26020021 og KNU26020052
Kæra [...] og
[...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. febrúar 2026 kærði [...], kt. [...], er kveðst vera ríkisfangslaus (hér eftir A), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2026, um að synja umsókn hans um vegabréf fyrir útlending. Hinn 12. febrúar 2026 kærði [...], kt. [...], er einnig kveðst vera ríkisfangslaus (hér eftir B), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. febrúar 2026, um að synja umsókn hennar um vegabréf fyrir útlending. Kærendur eru systkini og byggja á sömu málsástæðum og eru mál þeirra því unnin samhliða hjá kærunefnd.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að gefa út vegabréf fyrir útlendinga þeim til handa.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
A fæddist hér á landi [...] og var honum veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða 18. desember 2018. Þá fæddist B einnig hér á landi [...] og henni veitt dvalarleyfi á sama grundvelli 28. apríl 2021. Kærendum var veitt ótímabundið dvalarleyfi 14. janúar 2025.
Hinn 6. mars 2025 lögðu kærendur fram umsóknir um vegabréf fyrir útlendinga. Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2026 og 6. febrúar 2026, var umsóknunum synjað á grundvelli 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009 með vísan til þess að kærendur hefðu ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefin ferðaskilríki frá heimaríki. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 5. og 12. febrúar 2026. Greinargerðir bárust kærunefnd 25. febrúar 2026.
- Málsástæður og rök kærenda
Í greinargerðum kærenda er aðstæðum þeirra lýst. Fram kemur að kærendur hafi bæði fæðst hér á landi, foreldrar þeirra séu frá Srí Lanka en kærendur hafi dvalið hér á landi samfellt frá fæðingu.
Kærendur byggja á því að þau séu ríkisfangslaus og hafi verið það frá fæðingu. Vísað er í því sambandi til framlagðrar staðfestingar frá stjórnvöldum í Srí Lanka um að þau hafi ekki verið skráð sem ríkisborgarar þar í landi. Þá hafi rökstuðningur Útlendingastofnunar fyrir synjun þeirra verið byggður á misskilningi um lagaskilyrði 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009 varðandi ríkisfangsleysi. Með vísan til ríkisfangsleysis þeirra telja kærendur að skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt, enda sé samkvæmt ákvæðinu annaðhvort gerð krafa um að umsækjanda sé ómögulegt að afla ferðaskilríkis frá heimaríki sínu eða að hann sé ríkisfangslaus. Að mati kærenda sé óviðeigandi að krefjast þess að kærendur sýni fram á að þau geti ekki fengið vegabréf frá heimaríki þegar þau hafi ekkert ríki til að leita til vegna ríkisfangsleysis síns. Kærendur benda jafnframt á að lagðar hafi verið fram umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt á grundvelli 1. gr. a laga nr. 100/1952.
Aukinheldur vísa kærendur til 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og telja að dvalarleyfi þeirra á grundvelli mannúðarsjónarmiða, ásamt ríkisfangsleysi þeirra, feli í sér sérstakar aðstæður sem réttlæti útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga. Kærendur vísa jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 120/2022 og telja að af honum megi ráða að stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á aðstæður umsækjenda og taka tillit til framlagðra gagna við úrlausn umsókna um ferðaskilríki.
Kærendur byggja enn fremur á því að við úrlausn mála þeirra beri að líta til réttinda barna samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Vísa kærendur sérstaklega til 2. gr. samningsins um bann við mismunun, 3. gr. um að hagsmunir barns skuli hafðir í fyrirrúmi og 7. gr. um rétt barns til nafns og ríkisfangs. Þá hafi synjun á ferðaskilríkjum til ríkisfangslauss barns neikvæð áhrif á hagsmuni þess. Það takmarki möguleika þess á að ferðast, fá aðgang að menntun eða heilbrigðisþjónustu erlendis ef þörf krefur, og að eiga samskipti við fjölskyldumeðlimi erlendis. Tilvist ferðaskilríkis sé grundvallaratriði til að tryggja rétt barns til sjálfsmyndar og þátttöku í samfélaginu. Enn fremur vísa kærendur til þess að lífsnauðsynlegt sé fyrir þau að hafa aðgang að ferðaskilríkjum á meðan umsóknarferli þeirra um íslenskan ríkisborgararétt stendur, enda sé ferlið tímafrekt.
Þá byggja kærendur á því að Útlendingastofnun hafi ekki sýnt fram á neinar lögmætar ástæður sem vegi þyngra en hagsmunir kærenda af því að fá útgefin vegabréf fyrir útlendinga.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kærur þessar gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal útlendingur sem hefur eða fær dvalarleyfi hér á landi á grundvelli umsóknar um alþjóðlega vernd, en án þess að vera veitt alþjóðleg vernd, fá vegabréf fyrir útlending til ferða til útlanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur með reglugerð. Þá má og heimila útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga í öðrum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því.
Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga. Í 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út vegabréf fyrir útlendinga, sem ekki geti með öðrum hætti aflað sér vegabréfs eða annars ferðaskilríkis. Vegabréf fyrir útlending verður því aðeins gefið út að umsækjandi sé löglega búsettur hér á landi og geti sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, eða að hann sé ríkisfangslaus, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Gildi vegabréfs fyrir útlending megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt vegabréf út með skemmri gildistíma en mælt sé fyrir um í 1. mgr. 18. gr., sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsóknum kærenda um vegabréf fyrir útlending á grundvelli 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf með vísan til þess að kærendur hefðu ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefin ferðaskilríki frá heimaríki sínu. Af hinum kærðu ákvörðunum verður ráðið að Útlendingastofnun hafi lagt til grundvallar að kærendur séu ríkisborgarar Srí Lanka.
Í umsóknum kærenda um vegabréf fyrir útlendinga kemur fram að ástæða umsókna þeirra sé sú að þau hafi hvorki srílankskan ríkisborgararétt né ferðaskilríki frá öðru ríki. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram skjal, dags. 24. október 2024, frá stjórnvöldum í Srí Lanka. Í skjalinu kemur fram að samkvæmt 2. mgr. 5. gr. srílankskra laga um ríkisborgararétt nr. 18/1948 skuli barn sem fæðist utan ríkisins vera skráð sem srílankskur ríkisborgari, enda hafi að minnsta kosti annað foreldri þess verið ríkisborgari ríkisins við fæðingu barnsins. Í skjalinu er jafnframt staðfest að kærendur séu ekki skráð sem ríkisborgarar Srí Lanka.
Með andmælabréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2025, var þess óskað að kærendur legðu fram skriflega staðfestingu frá srílönkskum yfirvöldum þess efnis að þau geti ekki fengið útgefið vegabréf frá heimaríki, ræðisskrifstofu eða sendiráði. Af samskiptum talsmanns kæranda og stofnunarinnar í kjölfar andmælabréfsins verður séð að Útlendingastofnun hafi upplýst kærendur með tölvubréfi, dags 1. apríl 2025, um að með vísan til svars stjórnvalda í Srí Lanka væri ekki til staðar ómöguleiki fyrir börnin að fá útgefið vegabréf. Báðir foreldrar kærenda séu fæddir í Sri Lanka og geti börnin því skráð sig sem ríkisborgara Srí Lanka og þannig fengið útgefið vegabréf. Af þeim sökum féllst stofnunin ekki á að kærendur geti ekki fengið útgefið vegabréf heimaríkis. Hinn 7. apríl 2025 óskaði talsmaður kærenda eftir fresti til þess að afla gagna og skýringa frá sendiráði Srí Lanka í Stokkhólmi. Sá frestur var veittur og framlengdur ítrekað en engin gögn bárust.
Samkvæmt 21. tölul. 3. gr. laga um útlendinga er ríkisfangslaus einstaklingur sá sem ekkert ríki telur til ríkisborgara sinna samkvæmt landslögum, sbr. samning um réttarstöðu ríkisfangslausra einstaklinga frá árinu 1954. Fyrir liggur að kærendur eru ekki skráðir sem ríkisborgarar Srí Lanka. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum Srí Lanka er unnt að skrá fæðingu barna sem fædd eru erlendis og eiga að minnsta kosti annað foreldri með srílankskan ríkisborgararétt. Þá er einnig unnt að óska eftir slíkri skráningu að liðnu því tímamarki sem almennt er miðað við samkvæmt þarlendum reglum. Kærunefnd áréttar að það eitt að kærendur hafi ekki verið skráð sem ríkisborgarar Srí Lanka leiðir ekki sjálfkrafa til þeirrar niðurstöðu að þau séu ríkisfangslaus í skilningi laga um útlendinga. Í því sambandi verður að líta til þess hvort þeim standi til boða að öðlast ríkisfang. Ljóst er að kærendum stendur til boða að skrá ríkisföng sín í Srí Lanka og liggur því ekki fyrir ómöguleiki fyrir þau til þess að öðlast srílankskt ríkisfang. Af þeim sökum eru kærendur ekki ríkisfangslaus í skilningi laganna.
Þá útilokar skráningarleysi kærenda það ekki að þau geti fengið ríkisfang sitt skráð og í framhaldinu aflað sér vegabréfa frá stjórnvöldum Srí Lanka. Í því sambandi verður að líta til þess að fyrirliggjandi upplýsingar benda til þess að kærendum standi til boða að óska eftir slíkri skráningu og að ekki hafa verið lögð fram gögn um að þeim hafi verið synjað um hana eða að aðrar hindranir standi í vegi fyrir henni. Jafnframt er áréttað að aðgerðarleysi forsjáraðila í þessum efnum getur ekki eitt og sér skapað kærendum ríkari rétt til vegabréfs fyrir útlendinga en leiðir af gildandi réttarreglum. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þeim sé ómögulegt að afla sér ferðaskilríkja frá Srí Lanka. Uppfylla kærendur því ekki skilyrði 2. mgr. 16. gr. reglugerðar nr. 560/2009 um útgáfu vegabréfs til útlendinga.
Kærunefnd telur jafnframt að Útlendingastofnun hefði í hinum kærðu ákvörðunum átt að fjalla sérstaklega um framlagt bréf frá stjórnvöldum Srí Lanka og taka afstöðu til þeirra upplýsinga sem þar komu fram um skráningarleysi kærenda. Að þessu leyti verður að gera athugasemd við rökstuðning hinna kærðu ákvarðana. Kærunefnd hefur bætt úr framangreindum annmarka við málsmeðferð sína og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að sá annmarki hafi ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Að framangreindu virtu verða ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Þorsteinn GunnarssonJóna Aðalheiður Pálmadóttir