Stjórnvaldssekt vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti
Föstudaginn, 30. október 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Með bréfi dags 17. febrúar 2026 bar [A] fram kæru vegna stjórnvaldssektar vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti [B] fyrir almanaksárið 2023.
Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga og barst innan kærufrests.
Kröfur
Í kæru er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Málsatvik og ágreiningsefni málsins
Líkt og nánar greinir í gögnum málsins samþykkti sýslumaður skráningu heimagistingar kæranda að [B] fyrir almanaksárið 2023.
Samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal leyfishafi við lok hvers almanaksárs skila til sýslumanns yfirliti yfir þá daga sem húsnæðið var leigt út ásamt upplýsingum um leigutekjur. Sýslumanni er heimilt að leggja sjórnvaldssekt á hvern þann sem skilar ekki inn nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 22. gr. a. áðurnefndra laga nr. 85/2007.
Líkt og nánar greinir í gögnum málsins fékk kærandi senda þrjá pósta frá sýslumanni þar sem hann var hvattur til að skila inn nýtingaryfirliti vegna almanaksársins 2023.
Með bréfi dags 21. nóvember 2025 var kæranda tilkynnt um fyrirhugaða stjórnvaldssekt. Vakti sýslumaður þar athygli kæranda á því að ef hann skilaði nýtingaryfirliti innan 14 daga yrði stjórnvaldssektin lækkuð í 50.000 kr.
Með bréfi dags. 29. janúar 2026 tilkynnti sýslumaður kæranda um ákvörðun sýslumanns að leggja stjórnvaldssekt á kæranda að fjárhæð 100.000 kr. vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti vegna skráningar heimagistingar að [B].
Þann 17. febrúar 2026 barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra þar sem kærð var ákvörðun sýslumanns um að leggja stjórnvaldssekt á kæranda vegna vanskila á nýtingaryfirliti vegna heimagistingar á almanaksárinu 2023.
Með bréfi dags. 3. júlí 2026 óskaði ráðuneytið eftir því að sýslumaður veitti umsögn um kæruna.
Umsögn sýslumanns ásamt málsgögnum barst ráðuneytinu með tölvupósti dags. 16. júlí 2026.
Merð bréfi dags. 16. júlí 2026 óskaði ráðuneytið eftir andmælum kæranda við umsögn sýslumanns.
Engin andmæli bárust ráðuneytinu.
Málið hefur hlotið umsagnarmeðferð, gagnaöflun er lokið og málið er tekið til úrskurðar.
Sjónarmið kæranda
Í kæru gerir kærandi þá kröfu að ákvörðun sýslumanns verði felld úr gildi.
Kærandi byggir á því að honum hafi láðst að fylgjast náið með Ísland.is. Þá vísar kærandi til persónulegra aðstæðna sem hafa valdið því að hann hafi ekki verið með heimilisfang á Íslandi frá því síðsumars 2025. Nýir eigendur fasteignarinnar hafi þá ekki látið hann vita ef að póstur hefur komið á fyrra heimilisfang hans.
Kæranda var ekki ljóst að honum hafi verið skylt að skila inn nýtingaryfirliti vegna almanaksársins 2023 heldur taldi hann það nóg að skila inn skattaskýrslu fyrir það ár og viðurkennir þau mistök sín.
Þá vísar kærandi til þess að honum hafi ekki verið ljóst að hann hafi misst af einhverju fyrr en hann fékk stjórnvaldssekt í heimabanka. Kærandi greiddi sektina strax og veitti sýslumanni upplýsingar um útleigu húsnæðisins almanaksárið 2023.
Sjónarmið sýslumanns
Í umsögn sinni áréttar sýslumaður að samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skuli aðili við lok hvers almanaksárs skila til sýslumanns yfirliti yfir þá daga sem húsnæði var leigt út ásamt upplýsingum um leigutekjur.
Sýslumaður áréttar sömuleiðis að honum sé heimilt að leggja stjórnvaldssekt á hvern þann sem skilar ekki inn nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 22. gr. áðurnefndra laga nr. 85/2007. Sú heimild gildir óháð því hvort að brotin hafi verið framin af ásetningi eða gáleysi, sbr. 6. mgr. 22. gr. a. laganna.
Vegna athugasemda kæranda um að henni hafi hvorki borist póstur frá embættinu, þar sem kærandi bjó ekki á Íslandi á umræddu tímabili né höfðu nýir eigendur upplýst hann um póst sem hefði komið á fyrra heimilisfang, vakti sýslumaður athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 105/2021 um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda er stofnunum skylt að birta gögn í stafrænu pósthólfi. Gögnin teljast því birt viðtakanda þegar þau eru aðgengileg í pósthólfinu, sbr. 1. mgr. 7. gr. sömu laga. Sýslumaður fór því eftir settum lögum við birtingu erindanna.
Varðandi beiðni kæranda um að umrædd stjórnvaldsákvörðun yrði endurskoðuð og stjórnvaldssekt endurgreidd í ljósi þess að réttum upplýsingum hafi nú verið skilað sem og óvenjulegra aðstæðna kæranda á umræddu tímabili, vill sýslumaður vekja athygli á erindi embættisins til kæranda, þann 15. júlí 2026. Í erindinu var ákvæði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 reifað og kærandi upplýstur um að með vísan til framangreinds ákvæðis væri það mat embættisins að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Umræddri beiðni um endurupptöku máls og endurskoðun á umræddri ákvörðun embætti sýslumanns var því hafnað.
Það er mat sýslumanns að meðferð málsins hafi verið í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar og að hún hafi verið í samræmi við góða og vandaða stjórnsýsluhætti.
Forsendur og niðurstaða
Samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal aðili fyrir lok hvers almanaksárs skila til sýslumanns yfirliti yfir þá daga sem húsnæði var leigt út ásamt upplýsingum um leigutekjur.
Sýslumanni er heimilt að leggja stjórnvaldssekt á hvern þann sem skilar ekki inn nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 22. gr. a. áðurnefndra laga.
Í samræmi við 13. og 22. gr. a. laga nr. 85/2007 tilkynnti sýslumaður kæranda að fyrirhugað væri að leggja á hann stjórnvaldssekt að fjárhæð 100.000 kr. með bréfi dags. 21. nóvember 2025. Kæranda var veittur frestur til að koma á framfæri andmælum eða öðrum athugasemdum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt bréfinu var fyrirhuguð sektarfjárhæð 100.000 kr. en sérstaklega var tekið fram að kærandi gæti lækkað sektarfjárhæðina í 50.000 kr. með því að skila nýtingaryfirliti innan tiltekins frests.
Samkvæmt 4. mgr. 22. gr. a. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald geta stjórnvaldssektir vegna brota á lögunum numið frá 10.000 kr. til 1.000.000 kr. fyrir hvert brot. Við ákvörðun sektar skal tekið tillit til alvarleika brots, svo sem umfangs þess. Eftirlit sýslumanns, sbr. 3. mgr. 21. gr. laganna, byggist á því að aðilar sinni skyldu sinni til upplýsingagjafar og skili nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laganna og 38. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Vanskil á nýtingaryfirliti koma í veg fyrir að sýslumaður geti sannreynt hvort leiga hafi farið fram innan lögmætra marka og grefur þannig undan því eftirlitskerfi sem lögin mæla fyrir um. Brotið er því að eðli til alvarlegt og takmarkar möguleika stjórnvalda til að meta raunverulegt umfang starfseminnar.
Með hliðsjón af framangreindu er það mat ráðuneytisins að sýslumaður hafi gætt meðalhófs við ákvörðun sektarfjárhæðar í samræmi við 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um meðalhóf. Þá verður ekki annað séð en að meðferð málsins hjá sýslumanni hafi verið í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar og góða og vandaða stjórnsýsluhætti.
Telur ráðuneytið því rétt að sekt sýslumanns að fjárhæð 100.000 kr. verði staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 29. janúar 2026 um stjórnvaldssekt að fjárhæð 100.000 kr. vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti vegna skráningar heimagistingar að [B] vegna almanaksársins 2023 er staðfest.