Úrskurður nr. 488/2026
Hinn 2. nóvember 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 488/2026
Í stjórnsýslumáli nr. KNU26010033
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. janúar 2026 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...], og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. desember 2025, um að synja umsókn hennar um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita henni ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, en í ákvæðinu kemur fram að heimilt sé að kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins móttók kærandi ákvörðun í málinu 22. desember 2025. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun mætti kærandi í afgreiðslu stofnunarinnar 7. janúar 2026 og spurði út í ákvörðun í máli sínu. Kæranda var þá leiðbeint um möguleika þess að óska eftir frestun réttaráhrifa hjá kærunefnd útlendingamála. Kærandi kærði ákvörðunina 12. janúar 2026. Ljóst er að kærufresturinn, sem var til og með 6. janúar 2026, var liðinn þegar kæran barst.
Með tölvubréfi til kæranda, dags. 23. október 2026, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan lögmælts kærufrests. Kæranda var gefinn frestur til 27. október 2026 til að svara. Svar kæranda barst 27. október 2026.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:
„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:
- afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
- veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“
Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.
Í svari sínu til kærunefndar, dags. 27. október 2026, byggir kærandi á því að hún hafi leitað til kærunefndar í desember 2025 í kjölfar ákvörðunar Útlendingastofnunar og verið tjáð að leggja þyrfti fram frekari gögn til staðfestingar á auðkenni hennar. Kærandi hafi skilið þær leiðbeiningar með þeim hætti að það væri nauðsynlegt að fá ný skjöl útgefin sem gætu staðfest auðkenni hennar til þess að leggja fram kæru vegna málsins. Hún hafi því haft samband við sendiráð til að afla umræddra gagna en það hafi tekið lengri tíma en hún hafi gert ráð fyrir. Kærandi hafi því ekki lagt fram formlega kæru vegna málsins fyrr en 12. janúar 2026 vegna misvísandi upplýsinga um nauðsynleg fylgiskjöl með kærunni. Kærandi telur afsakanlegt að kæran hafi borist utan kærufrests þar sem hún hafi ekki fengið fullnægjandi upplýsingar og sé auk þess erlend og ólöglærð.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt. Þá verður ekki annað séð af gögnum málsins en að kærandi hafi fyrst leitað til Útlendingastofnunar 7. janúar 2026 vegna ákvörðunar sinnar en þá hafi kærufrestur þegar verið liðinn. Kærunefnd fær jafnframt ekki séð af málaskrá sinni að kærandi hafi haft samband við nefndina fyrr en í fyrsta lagi 12. janúar 2026, ólíkt því er kærandi hefur haldið fram. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki beri að taka kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.
Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.
Kæranda er leiðbeint um að hún geti lagt fram umsókn um ferðaskírteini að nýju hjá Útlendingastofnun. Með þessum leiðbeiningum er kærunefnd þó ekki að taka afstöðu til þess hvernig slík umsókn verði afgreidd.
Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.
Úrskurðarorð:
Kærunni er vísað frá nefndinni.
The appeal is dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir