Stjórnvaldssekt vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti
Þriðjudaginn, 3. nóvember 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Með bréfi dags. 5. júní 2025 bar [A] fram kæru vegna stjórnvaldssektar vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti vegna heimagistingar að [B] almanaksárið 2022.
Stjórnsýslukæran er byggð á 7. mgr. 22. gr. a. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. einnig 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga. Kæran barst innan kærufrests.
Kröfur
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Málsatvik og ágreiningsefni málsins
Líkt og nánar greinir í gögnum málsins samþykkti sýslumaður skráningu heimagistingar kæranda að [B] fyrir almanaksárið 2022 þann 25. júlí það ár. Í tilkynningu um skráninguna var vakin athygli á heimild sýslumanns til að leggja stjórnvaldssekt á hvern þann sem skilaði ekki nýtingaryfirliti.
Samkvæmt upplýsingum sýslumanns voru kæranda sendar tvær almennar áminningar um skil á nýtingaryfirliti áður en sektarmeðferð hófst.
Með bréfi, dags. 4. apríl 2025, tilkynnti sýslumaður kæranda um fyrirhugaða 100.000 kr. stjórnvaldssekt vegna vanskilanna og gaf honum kost á að koma að andmælum. Í bréfinu kom fram að sektin yrði lækkuð í 50.000 kr. ef nýtingaryfirliti yrði skilað innan 14 daga frests.
Hinn 28. apríl sendi kærandi sýslumanni erindi þar sem hann kvaðst hafa séð skilaboð vegna málsins á Ísland.is fyrir tilviljun. Hann hefði ekki orðið var við fyrri skilaboð en sæi nú að þau hefðu verið aðgengileg þar. Hann hefði talið leigutekjur fram til skatts og greitt viðeigandi opinber gjöld. Kærandi mótmælti fyrirhugaðri sekt og kvaðst hafa brugðist þegar við ef hann hefði orðið var við skilaboðin fyrr.
Hinn 29. apríl 2025 skilaði kærandi nýtingaryfirliti vegna ársins 2022.
Með ákvörðun, dags. 30. maí 2025, lagði sýslumaður á kæranda 50.000 kr. stjórnvaldssekt. Við ákvörðun fjárhæðarinnar vísaði sýslumaður til þess að kærandi hefði skilað yfirlitinu eftir boðun fyrirhugaðrar sektar en áður en endanleg ákvörðun var tekin.
Þann 5. júní 2025 barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra þar sem kærð var ákvörðun sýslumanns um að leggja stjórnvaldssekt á hann að fjárhæð 50.000 kr. vegna vanskila á nýtingaryfirliti vegna heimagistingar á almanaksárinu 2022.
Með bréfi dags. 27. maí 2026 óskaði ráðuneytið eftir því að sýslumaður veitti umsögn um kæruna.
Umsögn sýslumanns ásamt málsgögnum barst ráðuneytinu með bréfi dags. 16. júlí 2026.
Með bréfi dags. 16. júlí 2026 óskaði ráðuneytið eftir andmælum kæranda við umsögn sýslumanns.
Andmæli kæranda bárust ráðuneytinu með bréfi dags. 27. júlí 2026. Í andmælum kæranda kom fram að rangt fylgiskjal hafi fylgt umsögn sýslumanns og óskaði kærandi eftir réttu fylgigagni. Með bréfi dags. 4. ágúst 2026 óskaði ráðuneytið eftir réttu fylgigagni frá sýslumanni sem barst ráðuneytinu með bréfi dags. 20. ágúst 2026. Með bréfi dags. 21. ágúst 2026 voru fylgigögnin send kæranda og honum veittur frestur til 4. september 2026 til þess að koma frekari andmælum á framfæri við ráðuneytið. Engin frekari andmæli bárust ráðuneytinu.
Málið hefur hlotið umsagnarmeðferð, gagnaöflun er lokið og málið er tekið til úrskurðar.
Sjónarmið kæranda
Kærandi byggir á því að heimild til álagningar stjórnvaldssektar sé matskennd. Sýslumanni hafi því borið að meta sérstaklega hvort tilefni væri til sektar og, ef svo væri, fjárhæð hennar með hliðsjón af 4. mgr. 22. gr. a. laga nr. 85/2007 og 12. gr. stjórnsýslulaga. Hvorki hin kærða ákvörðun né umsögn sýslumanns beri með sér slíkt mat.
Kærandi telur rannsókn málsins ófullnægjandi, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Ekki hafi verið aflað fullnægjandi upplýsinga um umfang útleigunnar, ávinning af vanskilum eða fyrri brot. Að hans sögn hafi verið um eina útleigu að ræða á meðan hann dvaldi erlendis. Tekjurnar hafa verið taldar fram til skatts og opinber gjöld greidd. Hann hafi engan fjárhagslegan ávinning haft af vanskilunum og ekkert liggi fyrir um fyrri sambærileg brot. Þá hafi hann skilað nýtingaryfirlitinu þegar honum varð kunnugt um málið.
Loks telur kærandi rökstuðning sektarfjárhæðarinnar ófullnægjandi, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Ekki sé skýrt hvers vegna upphaflega hafi verið miðað við 100.000 kr. eða hvers vegna 50.000 kr. hafi verið taldar hæfilegar eftir skil yfirlitsins. Lækkun samkvæmt almennu fyrirkomulagi komi ekki í stað einstaklingsbundins mats. Ekki hafi verið skýrt hvers vegna ekki mætti falla frá sekt eða ákveða hana nær lögbundnu lágmarki.
Sjónarmið sýslumanns
Í umsögn sinni áréttar sýslumaður að samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skuli aðili við lok hvers almanaksárs skila til sýslumanns yfirliti yfir þá daga sem húsnæði var leigt út ásamt upplýsingum um leigutekjur.
Sýslumaður áréttar sömuleiðis og honum sé heimilt að leggja stjórnvaldssekt á hvern þann sem skilar ekki inn nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 22. gr. a. áðurnefndra laga nr. 85/2007. Sú heimild gildir óháð því hvort að brotin hafi verið framin af ásetningi eða gáleysi, sbr. 6. mgr. 22. gr. a. laganna.
Vegna athugasemda kæranda varðandi það að auðveldlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir stjórnvaldssektina ef rannsóknar- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga hefði verið fylgt er vert að árétta að sýslumaður sendi tvo fjöldapósta áður en bréf um fyrirhugaða stjórnvaldssekt var send aðila. Þá kom skýrt fram í samþykktri skráningu heimagistingarinnar, dags. 25. júlí 2022, að sýslumanni væri heimilt að leggja stjórnvaldssektir á hvern þann sem skilar ekki nýtingaryfirliti til sýslumanns. Enn fremur er vert að árétta að sýslumaður lækkaði stjórnvaldssektina eftir að kærandi skilaði nýtingaryfirliti áður en kom að bréfi sýslumanns um stjórnvaldssekt.
Forsendur og niðurstaða
Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal aðili fyrir lok hvers almanaksárs skila til sýslumanns yfirliti yfir þá daga sem húsnæði var leigt út ásamt upplýsingum um leigutekjur. Upplýsingagjöfin er liður í eftirliti sýslumanns með skráðri og skráningarskyldri starfsemi samkvæmt 2. mgr. 21. gr. laganna.
Í 2. mgr. 22. gr. a. laganna er sýslumanni veitt heimild til að leggja stjórnvaldssekt á þann sem skilar ekki nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 13. gr. Samkvæmt 4. mgr. 22. gr. a. geta sektir numið frá 10.000 kr. til 1.000.000 kr. fyrir hvert brot. Við ákvörðun sektar skal tekið tillit til alvarleika brots, svo sem umfangs, ætlaðs ávinnings, ítrekunaráhrifa og þess hvort um rekstrarleyfis- eða skráningarskylda starfsemi sé að ræða. Samkvæmt 6. mgr. greinarinnar má beita stjórnvaldssektum hvort sem brot er framið af ásetningi eða gáleysi.
Óumdeilt er að kærandi hafði skráð heimagistingu vegna ársins 2022 en ekki skilað nýtingaryfirliti vegna þess árs fyrr en 29. apríl 2025. Eftirlit sýslumanns, sbr. 21. mgr. 21. gr. laganna, byggist á því að aðilar sinni skyldu sinni til upplýsingagjafar og skili nýtingaryfirliti samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laganna og 38. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Vanskil á nýtingaryfirliti koma í veg fyrir að sýslumaður geti sannreynt hvort leiga hafi farið fram innan lögmætra marka og grefur þannig undan því eftirlitskerfi sem lögin mæla fyrir um. Brotið er því að eðli til alvarlegt og takmarkar möguleika stjórnvalda til að meta raunverulegt umfang starfseminnar.
Samkvæmt 7. gr. laga nr. 105/2021 um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda teljast gögn birt þegar þau eru aðgengileg í pósthólfinu. Tilkynningar til kæranda töldust því birtar þegar þær voru gerðar aðgengilegar í pósthólfi hans á Ísland.is.
Með hliðsjón af framangreindu er það mat ráðuneytisins að sýslumaður hafi gætt meðalhófs við ákvörðun sektarfjárhæðar í samræmi við 12. gr. stjórnsýslulag nr. 37/1993 um meðalhóf. Þá verður ekki annað séð en að meðferð málsins hjá sýslumanni hafi verið í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar og góða og vandaða stjórnsýsluhætti.
Ráðuneytið telur því rétt að sekt sýslumanns að fjárhæð 50.000 kr. verði staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 30. maí 2025 um stjórnvaldssekt að fjárhæð 50.000 kr. vegna skorts á skilum á nýtingaryfirliti vegna skráningar heimagistingar að [B] almanaksárið 2022 er staðfest.