Úrskurður nr. 495/2026
Hinn 5. nóvember 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 495/2026
Í stjórnsýslumáli nr. KNU26010110
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 27. janúar 2026 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. janúar 2026, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita honum ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2022, var kæranda veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fram kemur í ákvörðuninni að kærandi hafi við meðferð verndarmálsins lagt fram afganskt kennivottorð, frumrit af námskírteini og afrit af afgönsku ökuskírteini. Hinn 9. september 2020 var kennivottorð kæranda sent til áreiðanleikakönnunar hjá lögreglunni á Suðurnesjum og komst hún að þeirri niðurstöðu að kennivottorð kæranda væri falsað. Með hliðsjón af niðurstöðum tungumála- og staðháttaprófs auk frásagnar kæranda var lagt til grundvallar að kærandi væri afganskur ríkisborgari, þó ekki yrði unnt að staðfesta auðkenni hans nánar.
Hinn 27. janúar 2025 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með andmælabréfi Útlendingastofnunar, dags. 5. maí 2025, var kæranda veittur frestur til þess að leggja fram gögn sem gætu leitt líkur að auðkenni hans en kærandi lagði engin gögn fram innan þess frests. Hinn 11. maí 2025 upplýsti kærandi Útlendingastofnun um að hann gæti ekki aflað opinberra gagna svo sem vegabréfs eða persónuskilríkja að svo stöddu þar sem afgönsk sendiráð séu ekki virk í mörgum Evrópuríkjum, til dæmis í Noregi. Hann óskaði jafnframt leiðbeininga um hvort aðrar leiðir væru tækar til þess að staðfesta auðkenni hans, svo sem tungumálapróf. Þá vísaði kærandi til þess að margir einstaklingar hafi verið í sömu stöðu og fengið umsókn sína um ferðaskírteini fyrir flóttamenn samþykkta. Hinn 26. maí 2025 óskaði stofnunin eftir nánari skýringum frá kæranda varðandi kennivottorð hans og ástæður þess að fæðingarstaður hans væri tilgreindur sem [...] í gögnum frá þýskum stjórnvöldum, þar sem hann hafi áður sótt um alþjóðlega vernd, þvert á framburð hans hér á landi en kærandi kvaðst vera fæddur í [...]. Samkvæmt svörum kæranda er bárust samdægurs væri vottorðið frumrit en hann hafi ekki getað aflað sér rafræns lífkenniskorts vegna þess að hann hafi ekki verið persónulega staddur í Afganistan. Fjölskylda kæranda hafi því sent kæranda frumritið sem væri óformlegra en rafræna útgáfan. Þá kvaðst kærandi vera fæddur í [...] en vegna slæmra aðstæðna hafi fjölskylda hans flutt skömmu síðar til [...] sem hafi leitt til misskilnings í umsóknarferlinu í Þýskalandi sem hafi að öllum líkindum leitt til þess að fæðingarstaður hans hafi verið skráður sem [...]. Hinn 16. júní 2025 óskaði Útlendingastofnun eftir skýringum kæranda varðandi skjal er barst frá þýskum stjórnvöldum. Þar kemur fram að kærandi sé einnig þekktur þar undir nafninu [...] og sé fæddur [...]. Í svari kæranda, dags. 9. september 2025, kvaðst kærandi hafa sótt um hæli í Þýskalandi í nóvember 2015 undir sama nafni og fæðingardegi og hann lagði fram þegar hann sótti um vernd hér á landi. Hann kvaðst hvorki hafa lagt fram gögn né haldið því fram að hafa verið danskur ríkisborgari. Þá kvaðst kærandi telja misskilninginn mögulega stafa frá þeirri staðreynd að hann hafi fengið breytifalsað danskt vegabréf frá smyglara sem hann hafi notað til að komast til Þýskalands og síðar til þess að ferðast frá Þýskalandi til Íslands. Kærandi hafi jafnframt fengið fyrirmæli um að eyðileggja umrætt vegabréf við komu hans hér á landi, sem hann hafi og gert. Kærandi kvaðst ekki muna nafnið sem fram kom á vegabréfinu en hann muni þó að það hafi verið danskt.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. janúar 2026, var umsókn kæranda um ferðaskírteini synjað á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að kærandi hefði ekki sannað á sér deili með fullnægjandi hætti og engin gögn lægju fyrir sem sýndu fram á að honum væri ómögulegt að afla gagna um auðkenni sitt. Hinn 26. janúar 2026 upplýsti kærandi Útlendingastofnun með tölvubréfi um að frumrit fæðingarvottorðs hans væri á leið með bréfpósti til landsins og afhending væri áætluð eftir sjö til tíu daga. Með tölvubréfinu fylgdi afrit af umræddu fæðingarvottorði og óskaði kærandi þess að honum yrði veittur frestur til þess að leggja fram frumrit þess þegar hann fengi það afhent. Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, sama dag, var kærandi upplýstur um að mál hans yrði ekki endurupptekið þar sem ákvörðun lægi þegar fyrir. Þá var honum leiðbeint um möguleika hans um að leggja fram nýja umsókn eða kæra ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála innan lögbundins frests.
Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 27. janúar 2026. Viðbótargögn bárust kærunefnd 2. og 16. október 2026 er kærandi lagði fram afrit af afgönsku sakavottorði, dags. 9. apríl 2025, og frumrit fæðingarvottorðs, dags. 24. janúar 2026.
- Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar þær aðstæður eru fyrir hendi sem kveðið er á um í a-d-liðum ákvæðisins nánar tiltekið; aðstæður sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf, sbr. a-lið ákvæðisins; foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. 5. mgr. 28. gr. a barnalaga, sbr. b-lið ákvæðisins; aðstæður sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna eru fyrir hendi, sbr. c-lið ákvæðisins; þegar útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu, sbr. d-lið ákvæðisins; ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er, sbr. e-lið ákvæðisins; ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því, sbr. f-lið ákvæðisins.
Í athugasemdum við 1. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni sé að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að vafi leiki á um auðkenni kæranda. Að mati Útlendingastofnunar lágu ekki fyrir gögn sem leiddu nægar líkur að auðkenni kæranda, né heldur sýndu fram á að honum væri ómögulegt að afla gagna um auðkenni sitt. Í ákvörðuninni vísar Útlendingastofnun m.a. til þess að kennivottorð kæranda hafi verið metið falsað af lögreglu og að misræmi væri í persónuupplýsingum hans samkvæmt gögnum frá þýskum stjórnvöldum.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram gögn sem hann kveður vera frumrit afgansks fæðingarvottorðs síns, dags. 24. janúar 2026, og afrit af afgönsku sakavottorði sínu, dags. 9. apríl 2025. Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir ný gögn í máli kæranda sem áhrif geta haft á niðurstöðu málsins er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á hin nýju gögn.
Kærunefnd bendir jafnframt á að efni tölvubréfs kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 26. janúar 2026, ber með sér að kærandi sé þar að óska eftir endurupptöku á grundvelli nýrra gagna. Þrátt fyrir það var kæranda tilkynnt að mál hans yrði ekki endurupptekið þar sem ákvörðun lægi þegar fyrir og honum þess í stað leiðbeint um að leggja fram nýja umsókn eða kæru til kærunefndar. Að mati kærunefndar bar stofnuninni að taka afstöðu til þess hvort erindi kæranda gæfi tilefni til endurupptöku málsins skv. 24. gr. stjórnsýslulaga, enda verður beiðni um endurupptöku ekki hafnað á þeim grundvelli einum að ákvörðun hafi þegar verið tekin í málinu.
Af framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.
Jóna Aðalheiður PálmadóttirVera Dögg Guðmundsdóttir