13. nóvember 2026 /

Mál nr. 12/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 25. ágúst 2026

í máli nr. 12/2026:

Glerveggir ehf.

gegn

Reykjanesbæ og

All verk ehf.

 

Lykilorð

Lögvarðir hagsmunir. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður.

Útdráttur

Ágreiningur málsins laut að innkaupum á glerkerfi í tengslum við endurnýjun á Ráðhúsi Reykjanesbæjar. Kærandi, G, krafðist þess að felld yrði úr gildi ákvörðun varnaraðila, R, um að hafna tilboði hans og lagt yrði fyrir R að bjóða innkaupin út að nýju með lögmætum hætti. Í úrskurði nefndarinnar var rakið að R hefði ákveðið að bjóða innkaupin út að nýju í samræmi við lög nr. 120/2016 og að G hefði því ekki lögvarða hagsmuni af fyrrgreindri kröfu. Í samhengi við kröfu G, um álit á skaðabótaskyldu R gagnvart honum, vísaði nefndin til þess að af fyrirliggjandi gögnum þætti ljóst að innkaup R á glerkerfinu hefðu ekki farið fram í samræmi við lög nr. 120/2016. Þá var rakið í úrskurðinum að ekki lægi annað fyrir en að innkaupaferlið, sem ekki fór fram á réttum lagagrundvelli, hefði leitt til kostnaðar fyrir kæranda af því að undirbúa tilboð sitt og taka þátt í því. Í ljósi þessa og öðru því sem var rakið í úrskurðinum taldi nefndin að R væri skaðabótaskyldur gagnvart G vegna þessa kostnaðar enda hefði R ekki sýnt fram á með viðhlítandi hætti að afleiðing réttarbrotsins hefði ekki valdið G tjóni. Þá var G einnig úrskurðaður málskostnaður.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. mars 2026 kærði Glerveggir ehf. (hér eftir „kærandi“) framkvæmd innkaupa Reykjanesbæjar (hér eftir „varnaraðili“) og Tjarnargötu 12 ehf. um verkhluta 5 í útboði nr. 202301012 auðkennt „Endurnýjun Ráðhúss Reykjanesbæjar“ og ákvörðun varnaraðila um að hafna tilteknu tilboði kæranda.

Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði hans og lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða innkaupin út að nýju með lögmætum hætti. Þá krefst kærandi að kærunefnd útboðsmála láti upp álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og þeim verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að innkaupaferlið og/eða samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr um kæru.

Varnaraðila og Tjarnargötu 12 ehf. var kynnt kæran og bárust athugasemdir frá þeim 24. mars 2026. Varnaraðili og Tjarnargata 12 ehf. krefjast þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað, þar með talið stöðvunarkröfu hans.

Með erindi 10. apríl 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili afhenti nefndinni afrit af tilteknum útboðsgögnum, tilboði All verk ehf. og verksamningi varnaraðila við félagið auk allra annarra gagna sem gætu varpað nánara ljósi á ágreiningsatriði málsins. Varnaraðili svaraði 13. apríl 2026 og afhenti nefndinni afrit af útboðsgögnum og verksamning varnaraðila við All verk ehf.

Með erindi 14. apríl 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir upplýsingum frá varnaraðila hvar tiltekin heimild samkvæmt verksamningi kæmi fram í afhentum útboðsgögnum. Varnaraðili svaraði erindinu næsta dag og tók fram að eftir nánari yfirferð á gögnum málsins teldi starfsfólk hans að þarna hefði verið vísað í heimildarákvæði í fyrri útgáfu útboðsgagna, sem ekki hefði skilað sér í endanlega útgáfu. Þá kom varnaraðili á framfæri frekari upplýsingum.

Með erindi 13. apríl 2026 kynnti kærunefnd útboðsmála kæruna fyrir All verk ehf. og gaf félaginu kost á að tjá sig um kæruna. Engar athugasemdir bárust frá All verk ehf.

Með ákvörðun 20. apríl 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu kæranda um að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir.

Varnaraðili lagði fram lokaathugasemdir sínar 3. maí 2026. Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 27. sama mánaðar.

 

I

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum auglýsti varnaraðili upphaflega útboð á endurnýjun Ráðhúss Reykjanesbæjar þann 1. júlí 2025. Í greinum 0.1.1 og 0.1.2 í útboðsgögnum kom fram að verkið skiptist í hluta, þ.m.t. hluta 5 sem bar heitið „Innanhússfrágangur”, og að verktaki hefði heimild til að bjóða í einn eða fleiri verkhluta.

Í fimmta kafla útboðsgagna var að finna nánari lýsingu á fyrrgreindum hluta 5. Í grein 5.2.2 , sem bar yfirskriftina „Glerkerfi“, kom meðal annars fram að útlit og útfærsla glerkerfis skyldi vera eins eða sambærilegt og núverandi kerfi úr fyrsta áfanga hússins. Þá kom fram í kafla 5.2.2.1, sem laut að svokölluðu glerveggjakerfi, að leggja skyldi og setja upp glerkerfi úr spónlagðri eik í samræmi við teikningu arkitekta.

Á fundi bæjarráðs varnaraðila, dags. 11. september 2025, var bókað að stjórn Tjarnargötu 12 ehf. samþykkti að taka tilteknum tilboðum í verkhluta 1, 2, 3, 4, 5 og 7 í útboðinu. Tilboð All verks ehf., að fjárhæð 276.410.882 krónur, var tekið í verkhluta 5 sem laut að innanhússfrágangi. Þá var að finna eftirfarandi bókun í fundargerðinni: „Í verkhluta 5, innanhússfrágangi, var undanskilið glerveggjakerfi“. Þann 9. október 2025 var haldinn stjórnarfundur hjá Tjarnargötu 12 ehf. og var þar samþykkt að leita fjármögnunar á framkvæmdum í Ráðhúsi Reykjanesbæjar „á grundvelli tilboðsverð útboðs sem fram hefur farið og samþykkt hefur verið ásamt tilboðsverði á innréttingum sem ekki hefur farið fram […]“.

Kærandi og varnaraðili áttu í töluverðum tölvupóstssamskiptum á tímabilinu frá 27. ágúst 2025 til 2. mars 2026. Ekki þykir þörf á að rekja umrædd samskipti í nákvæmu máli en rétt þykir að geta helstu meginatriða þeirra. Í upphafi samskiptanna tók kærandi fram að hann hefði áhuga á að bjóða sérstaklega í glerveggjakerfi byggingarinnar. Með tölvupósti 21. nóvember 2025 tók varnaraðili fram að hann væri byrjaður að leita að tilboðum og sendi kæranda tilboðsskrá og teikningar. Þá tók varnaraðili fram að fyrirspurnir ættu meðal annars að senda á nafngreindan hönnuð. Í tölvupósti 3. desember 2025 svaraði varnaraðili fyrirspurn frá kæranda varðandi tilteknar hurðir og tók varnaraðili meðal annars fram að aðrar hurðir sem ekki væru hluti af glerveggjakerfi væru „í samþykktu tilboði frá verktaka ( All Verk )“. Með tölvupósti varnaraðila 22. desember 2025 tók hann fram að hann væri spenntur að fá tilboð frá kæranda en eins og kærandi vissi væri hann einnig að leita tilboða sem og verktakinn. Þá liggur fyrir að kærandi afhenti varnaraðila tilboð 26. janúar 2026 í „glerveggjakerfi fyrir Ráðhús Reykjanesbæjar“ en fjárhæð þess tilboðs mun hafa numið 76.254.428 krónum.

Með tölvupósti 25. febrúar 2025 þakkaði varnaraðili fyrir tilboð kæranda í „verðkönnun á glerveggjum fyrir verkefnið T-12“. Þá tók varnaraðili fram að ákveðið hefði verið að vinna málið áfram með þeim verktaka sem bauð í verkefnið samkvæmt útboðinu. Kærandi og varnaraðili áttu í framhaldinu í frekari samskiptum þar sem varnaraðili tók meðal annars fram að glerveggjakerfið hefði ekki verið undanskilið í útboðinu og að varnaraðili væri samningsbundinn All verk ehf. samkvæmt skilmálum. All verk ehf. væri og yrði alltaf kaupandinn og ábyrgðaraðili á glerkerfinu þar sem félagið hefði verið lægstbjóðandi í kafla 5. Jafnframt að tilboð í „Timbur“ hefðu numið 76.254.428 krónum (kærandi) og 78.452.309 krónum (All verk) en tilboð í „Ál“ hefðu numið 54.428.176 krónum (All verk) og 54.655.688 krónum (Martinn gluggar).

 

II

Kærandi byggir á því að varnaraðila hafi verið skylt að bjóða út hin kærðu innkaup á glerkerfinu í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016. Það verklag sem varnaraðili hafi viðhaft við innkaupin hafi þar af leiðandi ekki verið í samræmi við lög, og á því beri varnaraðili ábyrgð.

Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafi glerveggjakerfi verið undanskilið í verkhluta 5 og megi skilja upplýsingarnar sem svo að tilboð All verks ehf. í þennan hluta útboðsins hafi ekki verið tekið. Með hliðsjón af samskiptum kæranda og varnaraðila virðist varnaraðili hafa litið svo á að glerveggjakerfið hafi verið tekið út úr útboðinu og að honum hafi verið heimilt að kaupa það beint eða velja glerveggjakerfið sjálfur en þó í samráði við verktaka. Þá liggi fyrir að varnaraðili hafi leitað eftir tilboðum og boðið kæranda að gera slíkt tilboð.

Þrátt fyrir að varnaraðili hafi þannig talið sig geta leitað tilboða í umræddan verkhluta, og í framhaldinu aflað þeirra, hafi á hinn bóginn kveðið við annan tón eftir að kærandi hafi lagt fram tilboð sitt. Í þeim samskiptum hafi meðal annars komið fram að varnaraðila hafi verið heimilt að skoða aðrar lausnir með verktaka og að varnaraðili hafi helst viljað versla glerkerfið beint af framleiðanda. Þá hafi komið fram í samskiptunum að varnaraðili hafi ákveðið að breyta glerkerfinu úr timbri í ál.

Af fyrirliggjandi samskiptum aðila megi ráða að kærandi hafi lagt fram tilboð sitt á grundvelli forsendna þeirrar verklýsingar sem varnaraðili hafi sent honum. Sú verklýsing hafi falið í sér glerkerfi „spónlagt með ljósri evrópu eik“. Varnaraðili hafi á hinn bóginn valið tilboð sem hafi falið í sér aðra og efnislega ólíka lausn, þ.e. „álkerfi“ án þess að kærandi hafi nokkurn tímann í tilboðsferlinu verið upplýstur um það af hálfu varnaraðila að aðrar lausnir en þær sem fyrirliggjandi og framlögð verklýsing hafi getið um, kæmu til skoðunar. Með slíkri háttsemi hafi varnaraðili því brotið gegn grundvallarreglum útboðsréttar um jafnræði bjóðenda og gagnsæi.

Kærandi telji jafnframt ljóst að umrædd innkaup á glerkerfinu samkvæmt verkhluta 5 hafi verið útboðsskyld, þar sem heildarkostnaður innkaupanna hafi verið langt yfir viðmiðunarfjárhæðum, sbr. VIII. kafla laga nr. 120/2016. Leggi verði til grundvallar að innkaup varnaraðila hafi verið eitt verk_,_ sem hafi verið skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga, og þurfi því að ákveða viðmiðunarfjárhæð þeirra sem samanlagt virði þeirra, sbr. 1. mgr. 29. gr. laganna. Sé samanlagt virði samninganna yfir viðmiðunar­fjárhæðum beri að líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum, sbr. sama ákvæði. Ekki hafi verið heimilt að undanskilja þennan verkþátt og framkvæma innkaupaferli, án útboðs, eins og varnaraðili virðist hafa gert. Varnaraðili hafi auk þess óskað á sama tíma eftir tilboðum í alla verkhluta, á grundvelli sambærilegra gagna, og gert hafi verið ráð fyrir því að framkvæmd verkhlutanna færi fram á sama tímabili. Þá virðist varnaraðili sjálfur hafa litið svo á að öll verkin, þ.e. verkhlutarnir, hafi verið nátengdir bæði í tíma og efni. Jafnvel þótt ekki yrði fallist á að innkaupum hafi verið skipt upp í skilningi 29. gr. laga nr. 120/2016 hafi innkaup á umræddu glerkerfi sem slík í öllu falli verið yfir viðmiðunarfjárhæðum og því útboðsskyld.

Að mati kæranda sé skýrt að varnaraðila hafi borið að bjóða út innkaupin á glerkerfinu, í samræmi við lög nr. 120/2016. Þar sem það hafi ekki verið gert liggi að mati kæranda fyrir að varnaraðili hafi brotið gegn ákvæðum laga nr. 120/2016 við framkvæmd innkaupanna.

Í samhengi við kröfu sína um álit á skaðabótaskyldu bendir kærandi á að hann hafi lagt mikla vinnu við að útbúa tilboð sitt, sem hann hafi lagt fram eftir ítarleg samskipti við varnaraðila, í samræmi við fyrirliggjandi verklýsingu. Þá hafi verið sýnt fram á að brotið hafi verið í bága við ákvæði laga nr. 120/2016, enda hafi innkaupin ekki farið fram á réttum lagagrundvelli, sbr. til dæmis úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 13/2023. Kostnaður kæranda við að undirbúa tilboðið og taka þátt í innkaupaferlinu hafi verið verulegur og telji kærandi að sýnt hafi verið fram á að skilyrðum 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 sé fullnægt.

Í samhengi við kröfu sína um álit á skaðabótaskyldu tekur kærandi fram að hann hafi lagt í mikla vinnu við að útbúa tilboð sitt, sem hann hafi lagt fram eftir ítarleg samskipti við varnaraðila, í samræmi við fyrirliggjandi verklýsingu. Þá telji kærandi að sýnt hafi verið fram á að brotið hafi verið í bága við ákvæði laga nr. 120/2016 enda hafi innkaupin ekki farið fram á réttum lagagrundvelli, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 13/2023. Kostnaður kæranda við að undirbúa tilboðið og taka þátt í innkaupaferlinu hafi verið verulegur og telji kærandi að sýnt hafi verið fram á að skilyrðum 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 hafi verið fullnægt.

Í lokaathugasemdum sínum mótmælir kærandi málavaxtalýsingu varnaraðila og bendir á að af fyrirliggjandi samskiptum megi ráða að All verk ehf. hafi ekki átt aðkomu að samskiptum varnaraðila og kæranda. Ekkert í samskiptum aðila hafi þannig gefið til kynna að verkkaupi hafi verið einhver annar en varnaraðili. Þá hafi ekki legið annað fyrir en að leitað hafi verið að tilboðum í verðkönnun sem varnaraðili hafi verið að framkvæma á grundvelli verklýsingar í upphaflegum útboðsgögnum og hafi All verk ehf. gert tilboð í verðkönnunni. Lýsing varnaraðila á atvikum eftir að tilboði All verk ehf. hafi verið tekið sé því ekki í samræmi við fyrirliggjandi samskipti og að mati kæranda í reynd óskýr um hvaða ferli kærandi hafi tekið þátt í, á vegum hvers og á hvaða grundvelli.

Kærandi getur vissulega fallist á, að með því að bjóða innkaupin út að nýju hafi varnaraðili í reynd viðurkennt að framkvæmd þeirrar verðkönnunar sem varnaraðili hafi gert og kærandi gert tilboð í, hafi ekki verið í samræmi við lög nr. 120/2016. Varnaraðili hafi 4. maí 2026 auglýst útboðið „Tjarnargata 12 – Innanhúss glerveggjakerfi“. Kærandi hafi þannig náð fram þeirri kröfu sem höfð sé uppi í kæru og hafa innkaup á glerveggjum nú verið boðin út.

Kærandi hafni því að hann hafi ekki átt raunhæfa möguleika á því að vera valinn í verðkönnun varnaraðila og telji ljóst að möguleikar hans hafi skerst við brotið. Kærandi hafi átt lægsta tilboð í það glerveggjakerfi sem verðkönnun varnaraðila hafi lotið að og hafi tilboð kæranda tekið mið af þeim gögnum sem varnaraðili hafi afhent honum.

Samskipti aðila beri skýrt með sér að kærandi hafi á engum tímapunkti verið upplýstur um að breytingar hafi verið gerðar á þeim gögnum sem varnaraðili hafi afhent honum. Hvergi í samskiptum aðila hafi þannig komið fram að varnaraðili hafi ekki verið að leita tilboða í glerveggjakerfi úr timbri eða að álkerfi hafi verið það sem varnaraðili hafi í reynd verið að leita eftir. Kærandi hafi ekki með nokkru móti geta verið ljóst að tilboð hans hafi ekki verið í samræmi við óskir og þarfir varnaraðila, enda hafi ekkert gefið slíkt til kynna í samskiptum við varnaraðila, heldur raunar þvert á móti ef eitthvað sé.

Af gögnum málsins megi ráða að kærandi hafi lagt mikla vinnu í að undirbúa tilboð sitt í „glerkerfi með spónlagðri eik“ og hafi átt í nokkrum samskiptum við varnaraðila á meðan á undirbúningi hafi staðið. Fjögur tilboð hafi borist í verðkönnuninni; tvö í glerveggjakerfi með timburlausn og tvö með álkerfi, en All Verk ehf. sem hafi verið með verksamning við varnaraðila eftir útboðið 2025 haft gert tilboð í bæði timbur og ál. Ef litið sé til þeirra gagna sem verðkönnunin hafi byggt á, hafi þannig í reynd aðeins tvö tilboð verið gild, það eru þau sem hafi verið í glerveggjakerfi með timburlausn, þar sem tilboð með álkerfi hafi ekki verið í samræmi við kröfur í útboðslýsingu. Þar hafi kærandi verið með lægra tilboð en All Verk ehf.

Ekkert í þeim gögnum og upplýsingum sem kærandi hafi fengið frá varnaraðila hafi gefið til kynna að verðkönnun hafi einnig tekið til glerveggjakerfis úr áli. Samt hafi varnaraðila borist tvö tilboð einungis í slík kerfi. Því megi velta upp hvort unnt sé að draga þá ályktun að bjóðendur í verðkönnun varnaraðila hafi fengið misvísandi upplýsingar, svo sem að jafnframt hafi verið heimilt eða jafnvel eingöngu heimilt að gera tilboð í glerveggjakerfi úr áli, þar sem ekki blasi við hvað annað geti skýrt slík tilboð. Liggi þannig ekki fyrir á hvaða gögnum þeir bjóðendur hafi byggt tilboð sín á, þar sem fyrirliggjandi útboðslýsing hafi einungis getið um glerveggjakerfi úr timbri.

Af öllu framangreindu sé ljóst að alvarlega misbrestur hafi verið á framkvæmd verðkönnunar af hálfu varnaraðila og að ekki hafi verið gætt að lögum nr. 120/2016 eða grundvallarreglum í útboðsrétti. Ítreki kærandi því kröfu sína um að nefndin veiti álit sitt á því hvort varnaraðili teljist skaðabótaskyldur gagnvart honum.

Kærandi telji sig sannanlega hafa orðið fyrir tjóni. Hann hafi átt lægsta tilboð í glerveggjakerfi úr timbri, sem verðkönnun varnaraðila hafi byggt á og því raunhæfa möguleika á að fá verkið. Hann hafi því orðið fyrir tjóni vegna missis hagnaðar þar sem hann hafi ekki fengið verkið, þrátt fyrir að hafa verið með lægsta tilboðið. Þá hafi kærandi eytt fjölmörgum vinnustundum í að undirbúa tilboð sitt og hafi verið með lægsta tilboðið miðað við þær forsendur sem honum hafi verið gefnar.

Það að kærandi hafi ekki verið upplýstur um grundvallarbreytingar á fyrirliggjandi útboðslýsingu í samskiptum við varnaraðila við gerð tilboðs síns, sé að öllu leyti á ábyrgð varnaraðila. Því sé alfarið hafnað að kærandi hafi sjálfur „skert möguleika“ sína með því að senda ekki líka inn tilboð í álkerfi. Eðli máls samkvæmt sendi kærandi einungis inn tilboð í samræmi við þá útboðslýsingu sem unnið hafi verið eftir og fyrirliggjandi upplýsingar frá varnaraðila. Þá sé mótmælt fullyrðingum varnaraðila um að hann hafi veitt kæranda allar upplýsingar sem hann hafi óskað eftir. Varnaraðili hafi sent kæranda tiltekin gögn sem hann hafi byggt tilboð sitt á, án þess að geta þess á nokkrum tíma að gerðar hafi verið breytingar á þeim kröfum sem fram hafi komið í útboðslýsingu. Af hinu nýja auglýsta útboði varnaraðila verður þannig ekki annað ráðið en að varnaraðili hafi í reynd verið að leita eftir alls ólíkri lausn en þeirri sem fyrri útboðslýsing og þannig verðkönnunin hafi byggt á og kærandi gert tilboð í.

 

III

Varnaraðili tekur fram að á grundvelli samþykkts tilboðs frá All Verk ehf. hafi verið gerður verksamningur milli sveitarfélagsins og fyrirtækisins í september 2025 um verkhlutana aðstöðusköpun, burðavirki, frágangur innanhúss og frágangur utanhúss í tengslum við endurnýjun á ráðhúsi Reykjanesbæjar. Samningurinn hafi tekið gildi í september 2025 og skyldi hann gilda til verkloka þann 30. nóvember 2026. Vinna við verkið hafi þegar hafist við undirritun verksamningsins.

Hluti af heildarfjárhæð verkhlutans sem hafi lotið að frágangi innanhúss sé glerveggjakerfi. Verktaki hafi boðið sérstaklega í þann lið og sé fjárhæðin sundurliðuð og aðgreind frá tilboði verktakans í aðra verkþætti. Í verksamningi aðila sé kveðið á um það að verkkaupi hafi heimild til þess að semja sérstaklega um þann lið við verktaka. Í því felist að sveitarfélagið hafi rétt til þess að koma að innkaupum verktaka á glerveggjum og hafa skoðun á útliti þeirra, efnisvali, gerð og frágangi. Mikil áhersla hafi verið lögð á þetta af hálfu sveitarfélagsins. Sér í lagi á grundvelli þess að glerveggja kerfi sem kveðið sé á um í útboðsgögnum hafi verið sett upp í áfanga 1 sem sé um 120 fermetra skrifstofurými á Tjarnagötu 12. Í ljósi annmarka sem komið hafi í ljós og séu áþreifanlegir í þessum hluta húsnæðisins hafi það verið sett í útboðsgögn að varnaraðili hefði rétt á að leggja til breytingar á þessu í samráði við verktaka.

Á grundvelli verksamningsins hafi verktakinn aflað tilboða og verðkönnunar í glerveggi, samkvæmt útboðsgögnum um frágang innanhús og hafi sú vinna verið unnin í náinni samvinnu verktakans og varnaraðila. Framlögð tölvupóstsamskipti í málinu milli kæranda og sveitarfélagsins og ráðgjafa sveitarfélagsins séu gott dæmi um þau miklu samskipti sem hafi átt sér stað milli verktakans og ýmissa birgja og milli varnaraðila og ýmissa birgja, vegna kaupa verktakans á glerveggja kerfi í ráðhús varnaraðila. Það sé því verktakinn sem sé kaupandi að glerveggjakerfinu og rúmist innkaup verktakans innan verksamnings hans við sveitarfélagið. Bæði sveitarfélagið og verktakinn séu bundin við verksamning aðila og komi það ekki til greina að sveitarfélagið kaupi glerveggjakerfi sjálft og í andstöðu við framangreindar samningsskuldbindingar. Í samskiptum varnaraðila við kæranda hafi honum verið bent á að ræða málið betur við verktakann, sem sé verkkaupi þessa glerveggjakerfis. Kærandi sem að fyrra bragði hafi haft samband við varnaraðila með ósk um að gefa tölu í glerveggjakerfi hafi verið látinn vita að það væri sjálfsagt mál að hann gæfi verð í verkið.

Í samhengi við umfjöllun kæranda um kæruheimild og kærufrest sé athygli vakin á að til umfjöllunar sé útboð sem fram hafi farið í júlí 2025 og hafi verksamningur verið gerður í kjölfar útboðsins í september sama ár. Verðkönnun verktaka varnaraðila hjá birgjum, sem hann framkvæmi innan verksamnings hans við sveitarfélagið, sé ekki hægt að jafna við ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem aðili geti kært á grundvelli framangreindrar lagaheimildar. Í kæru kæranda komi fram að sveitarfélagið hafi þann 25. febrúar 2026 hafnað tilboði kæranda í tiltekinn verkhluta. Af hálfu varnaraðila sé á því byggt að enginn slíkur verkhluti hafi verið boðinn út. Hið rétta sé að verktaki, sem hafi gert verksamning við varnaraðila, meðal annars um innanhúsfrágang í ráðhúsinu, hafi ákveðið að framkvæma verðkönnun í samráði við varnaraðila.

Kærandi krefjist þess að ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda verði felld úr gildi og lagt verði fyrir sveitarfélagið að bjóða innkaupin út að nýju með lögmætum hætti. Engin slík ákvörðun hafi verið tekin og þegar af þeirri ástæðu sé að mati sveitarfélagsins ekki hægt að fallast á kröfu kæranda. Hið rétta sé að samskipti hafi átt sér stað um verð, tegund og gerð á glerkerfi sem verktaki myndi kaupa. Kaupin hafi verið liður í verki sem verktaki sé að vinna samkvæmt verksamningi við varnaraðila. Ákvarðanir um kaup á glerkerfi hafi engin áhrif á samningsskuldbindingar verktakans, sem sé bundinn við verksamning sinn, þ.m.t. um verð á glerkerfi og öðrum innanhúsfrágangi. Fram komin kæra málsins snúi ekki að eiginlegum innkaupum málsins en þau hafi farið fram með útboði sumarið 2025 og verksamningi sem gerður hafi verið á grundvelli þess útboðs.

Kærandi haldi því ranglega fram, á grundvelli túlkunar á orðalagi bókunar hjá stjórn Tjarnagötu 12 ehf., að glerkerfi hafi verið undanskilið í verkhluta 5. Hið rétta sé að engir liðir hafi verið felldir niður, enda séu allar fjárhæðir sem fram komi í umfjöllun stjórnar Tjarnargötu 12 ehf. þær sömu og fram komi í verksamningi varnaraðila við verktaka. Kærandi skilji þetta sem svo að tilboði Allt verks í þennan hluta útboðsins hafi ekki verið tekið. Þetta sé rangt. Tilboðinu hafi verið tekið og hafi þessi hluti verksins verið hluti af verksamningi aðila. Hins vegar sé það rétt að sveitarfélagið hafi, samkvæmt verksamningi við verktaka, heimild til að hafa skoðun á tegund glerkerfis, efnisvali og frágangi. Þetta hafi verið umsamið við verktaka m.a. til að koma í veg fyrir galla sem séu á gluggakerfinu og til að tryggja rétta og ásættanlega útfærslu á glerveggjakerfi.

Kærandi vísi til tölvupósts frá deildarstjóra Eignaumsýslu hjá sveitarfélaginu, þar sem sagði: ,,Takk fyrir tilboðið ykkar í verðkönnun á glerveggjum fyrir verkefnið T12. Ákveðið hefur verið að vinna málið áfram með valinn verktaka sem bauð í verkefnið samkvæmt því útboði sem opnað var 14. ágúst 2025.“ Hér sé vísað til þess sem fram komi hér að framan, að sveitarfélagið hafi gert verksamning við verktakann eftir að hafa samþykkt tilboð hans í útboði sem fram hafi farið sumarið 2025. Kærandi geti ekki hafa tekið þátt í umræddu útboði, enda virðist hann hafa verið stofnaður mánuði eftir opnun tilboða í framangreindu útboði. Í kærunni sé á því byggt að varnaraðila hafi verið skylt að bjóða út hin kærðu innkaup á umræddu glerkerfi í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016. Varnaraðili geti vel fallist á þessi sjónarmið enda hafi útboðið farið fram sumarið 2025.

Kærandi byggi jafnframt á því að með breytingum á efnisvali á glerkerfi hafi komið upp þær aðstæður að bjóða hafi átt út þennan verkþátt aftur. Í gildi sé verksamningur milli varnaraðila og verktaka og samkvæmt verksamningi aðila hafi varnaraðili heimild til að koma að ákvörðun um val á gerð, efnisvali og frágangi glerkerfis. Eins og gefi að skilja sé verktakinn enn bundinn við verksamning sinn við sveitarfélagið, þ.m.t. verðtilboð.

Í kærunni sé byggt á því að innkaupum hafi verið skipt upp, í skilningi 29. gr. laga nr. 120/2016 og jafnvel þó að ekki væri fallist á það, þá hafi innkaupin á glerkerfinu sem slík verið yfir viðmiðunarfjárhæðum og því útboðsskyld. Ljóst sé að glerkerfið hafi verið hluti af verksamningi verktakans við sveitarfélagið. Sú ákvörðun verktakans að framkvæma verðkönnun hjá birgjum, í náinni samvinnu við sveitarfélagið, feli ekki í sér uppskiptingu á innkaupum. Þá feli það heldur ekki í sér að það hafi átt að kljúfa þennan hluta frá upphaflegu verksamningi og bjóða út upp á nýtt – enda séu bæði verktakinn og varnaraðili bundin af skuldbindingum sínum samkvæmt verksamningi aðila.

Til viðbótar framangreindu byggir varnaraðili á að hann hafi þegar gert bindandi verksamning við All Verk ehf. um meðal annars það verk sem fjallað sé um í kæru kæranda. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verði bindandi samningur ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs kunni að hafa verið ólögmæt. Þessu hefur margoft verið slegið föstu í úrskurðum nefndarinnar, sbr. m.a. úrskurð nefndarinnar nr. 34/2024.

Kæranda hafi ekki tekist að uppfylla sönnunarbyrði sína um að verulegar líkur séu leiddar að broti sem geti leitt til ógildingar. Í útboði varnaraðila á endurbótum á ráðhúsi Reykjanesbæjar, sem fram hafi farið sumarið 2025, hafi verið gætt að málefnalegum sjónarmiðum og jafnræðis milli bjóðenda. Að mati varnaraðila lúti kæra kæranda ekki að umræddu útboði. Kæra kæranda lúti að þeirri ákvörðun að verktaki kaupi ekki glerkerfi frá kæranda sem hluta af verki sínu fyrir sveitarfélagið. Þá sé það ljóst að ekkert virkt innkaupaferli sé í gangi.

Varnaraðili byggi jafnframt á því að kærandi hafi ekki verið þátttakandi í umræddu útboði. Raunar hafi kærandi ekki verið stofnaður fyrr en eftir að bindandi verksamningur hafi komist á milli sveitarfélagsins og verktakans. Engin leið sé að líta svo á að samskipti varnaraðila við kæranda, um verð og útfærslu á glerveggjakerfi, sem innkaup í skilningi laga nr. 120/2016. Ef sveitarfélagið hefði litið svo á að um væri að ræða innkaup í skilningi laganna hefði sveitarfélagið sem verkkaupi sett fram kröfur um afhendingartíma tilboða, hæfni bjóðenda og aðra tilboðsskilmála samkvæmt lögum um opinber innkaup. Hið rétta sé að kærandi hafi haft samband við sveitarfélagið af fyrra bragði og óskað eftir því að gefa verð í glerveggjakerfi, sem hafi verið hluti af útboði síðasta sumar og hafi í kjölfarið orðið hluti af bindandi verksamningi varnaraðila við verktaka verksins.

Í lokaathugasemdum sínum tekur varnaraðili fram að í kjölfar ákvörðunar kærunefndar útboðsmála um að stöðva hið kærða innkaupaferli hafi varnaraðili tekið ákvörðun um að bjóða innkaup á glerveggjakerfinu út að nýju í samræmi við lög nr. 120/2016. Vinna við útboðsskilmála standi nú yfir og geri varnaraðila ráð fyrir að auglýsa útboðið á allra næstum dögum á heimasíðu sinni og á tilteknum útboðsvef. Í ljósi þessa krefjist varnaraðili þess að kröfu kæranda, um að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði hans og að lagt verði fyrir varnaraðila að auglýsa innkaupin að nýju, verði vísað frá kærunefnd útboðsmála þar sem kærandi hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni af kröfunni, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 og t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 37/2025. Til vara sé þess krafist að kröfunni verði hafnað.

Varnaraðili krefjist þess jafnframt að kröfu kæranda um álit á skaðabótaskyldu verði hafnað þar sem skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 séu ekki uppfyllt. Kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann hafi átt raunhæfa möguleika á að hafa verið valinn af varnaraðila og möguleikar hans hafi skerst við brotið. Kærandi hafi ekki átt lægsta tilboðið í glerveggjakerfið þegar varnaraðili hafi leitað eftir tilboðum heldur hafi All verk og Martin gluggar bæði verið með lægra verð á álkerfi.

Kærandi hafi haldið því fram að valin lausn hafi ekki verið í samræmi við gefna verklýsingu og þar með hafi kærandi í raun ekki fengið tækifæri til að bjóða í sambærilega lausn og síðan hafi verið ákveðið að velja. Varnaraðili mótmælir þessu sem röngu og byggir á fyrirliggjandi samskipti sýni að það hafi verið kærandi sjálfur sem hafi ekki talið að álkerfið væri æskilegt fyrir verkefnið auk þess sem kærandi hafi einungis sent inn tilboð í timburútfærslu á kerfinu. Möguleikar kæranda til að bjóða í álkerfið hafi því ekki verið skertur af varnaraðila heldur af kæranda sjálfum. Þvert á móti hafi varnaraðili veitt kæranda allar upplýsingar sem hann hafi óskað eftir ásamt því að tengja hann beint við hönnuð og byggingarstjóra eins og tölvupóstssamskipti beri með sér. Þá sé því mótmælt sem ósönnuðu að kærandi hafi orðið fyrir verulegum kostnaði við að undirbúa tilboð sitt og taka þátt í innkaupaferlinu auk þess sem fyrirliggjandi vinna kæranda muni vafalaust nýtast honum ákveði hann að taka þátt í nýju útboði.

Fallist kærunefndin ekki á að hafna kröfunni byggi varnaraðili á því að vísa beri henni frá þar sem ekki sé tímabært að fjalla um kröfuna þar sem útboðið sé enn þá í gangi. Varnaraðili kunni því að taka ákvörðun um val á tilboði annars bjóðanda í framhaldinu og sé ekki hægt að útiloka að tilboð kæranda verði fyrir valinu, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 35/2023. Loks krefst varnaraðili þess að kröfu kæranda um málskostnað verði hafnað eða málskostnaður verði felldur niður. Ákvörðun um málskostnað eigi að jafnaði aðeins að koma til greina ef varnaraðili tapi máli fyrir nefndinni í öllum verulegum atriðum, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 28/2024. Að mati varnaraðila eigi það ekki við í þessu máli.

 

IV

A

Ágreiningur þessa máls lýtur að innkaupum á glerkerfi í tengslum við endurnýjun á Ráðhúsi Reykjanesbæjar.

Kröfum samkvæmt kæru var bæði beint að varnaraðila og félaginu Tjarnagötu 12 ehf. en samkvæmt upplýsingum frá varnaraðila er félagið í fullri eigu hans. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki annað ráðið en að varnaraðili hafi verið kaupandi að glerkerfinu og teljist því einn til varnaraðila málsins í skilningi 1. mgr. 109. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Að mati kærunefndar útboðsmála verður að leggja til grundvallar að kærandi, sem þátttakandi í hinu kærða innkaupaferli, hafi við framlagningu kæru haft lögvarða hagsmuni af úrlausn þeirra krafna sem þar voru settar fram, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016. Þá er jafnframt til þess að líta að málatilbúnaður kæranda lýtur meðal annars að ætluðu broti gegn skyldu til að nota lögákveðið innkaupaferli eða auglýsa innkaup en lögvarðir hagsmunir eru ekki skilyrði kæru í slíkum tilvikum, sbr. 2. mgr. 105. gr. laganna.

Varnaraðili byggir meðal annars á að kæran hafi borist utan fresta 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Þar segir að kæra skuli borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum.

Málatilbúnaður kæranda lýtur í meginatriðum að því að innkaupaferli varnaraðila og ákvörðun hans um að hafna tilboði kæranda hafi farið í bága við lög nr. 120/2016. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi haft takmarkaðar upplýsingar um fyrirkomulag innkaupaferlisins á meðan því stóð. Þá liggur fyrir að varnaraðili tilkynnti kæranda 25. febrúar 2026 um að ákveðið hefði verið að vinna verkið áfram með tilteknum verktaka og svaraði í framhaldinu fyrirspurnum kæranda og veitti honum frekari upplýsingar um ákvörðunina og innkaupaferlið með tölvupóstum 26. og 27. febrúar 2026. Að mati kærunefndar útboðsmála þykir mega miða við að kæranda hafi fyrst í framhaldi af umræddum samskiptum mátt vita um þau atriði sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kæra málsins var móttekin af kærunefnd útboðsmála 17. mars 2026 og því innan kærufrests 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði hans og lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða innkaupin út að nýju með lögmætum hætti. Í lokaathugasemdum sínum lýsti varnaraðili því yfir að hann hefði tekið ákvörðun um að bjóða innkaupin út að nýju í samræmi við lög nr. 120/2016. Samkvæmt upplýsingum frá kæranda mun hið nýja útboð hafa verið auglýst 4. maí 2026 og lagði kærandi fram afrit af útboðsgögnum þess með lokaathugasemdum sínum. Samkvæmt þessu verður lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um framangreinda kröfu og verður henni því hafnað, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016.

 

B

Að framangreindu frágengu þarf að leysa úr kröfum kæranda um að nefndin veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað.

Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði. Ákvæði þetta á rætur að rekja til 84. gr. þágildandi laga nr. 94/2001 um opinber innkaup. Í greinargerð með ákvæðinu kom fram að með því væri sett sú „almenna regla að kaupanda beri að greiða bjóðanda kostnað, sem leitt hefur af þátttöku hans í útboði, nema sýnt sé fram á að réttarbrot hans hafi ekki haft þýðingu um niðurstöðu útboðsins. […] Með ákvæðinu er sönnunarbyrðin um að afleiðing brots hafi ekki valdið bjóðanda tjóni lögð á kaupanda. Með þessu er bjóðanda veitt virkt úrræði til að bregðast við réttarbroti kaupanda og fá þetta tjón sitt bætt með nokkuð auðveldum hætti“. Í 2. mgr. 119. gr. laga um opinber innkaup kemur fram að um skaðabætur vegna brota á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim fari að öðru leyti eftir almennum reglum.

Í málatilbúnaði kæranda er meðal annars á því byggt að kærandi hafi orðið fyrir tjóni vegna missis hagnaðar. Í framkvæmd kærunefndar útboðsmála hefur tíðkast að einskorða álit um skaðabótaskyldu við bætur samkvæmt 1. mgr. 119. gr., þ.e. við vangildisbótagrunn, þannig að veitt sé álit þess efnis að varnaraðili sé skaðabótaskyldur gagnvart kæranda vegna kostnaðar hans af því að undirbúa tilboð sitt og taka þátt í hinu kærða útboði. Það hefur verið rökstutt með vísan til þess að niðurstaða um bætur samkvæmt 2. mgr. 119. gr., eða svonefnda efndabótaskyldu, ráðist af fjölmörgum þáttum sem falli ekki nema að litlu leyti undir verksvið nefndarinnar, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 4/2023. Nefndin telur ekki ástæðu til að víkja frá þeirri grunnreglu hér og því kemur eingöngu til athugunar hvort nefndin telji skilyrðum 1. mgr. 119. gr. vera fullnægt.

Ekki er fallist á með varnaraðila að ótímabært sé að fjalla um kröfu kæranda um álit á skaðabótaskyldu þar sem útboðið sé enn þá í gangi og tilboð kæranda geti orðið fyrir valinu. Varnaraðili ákvað að auglýsa innkaupin að nýju sem fól í sér að fyrra innkaupaferli var fellt niður án niðurstöðu. Verður því hvorki tilboð kæranda né annarra bjóðenda valið á grundvelli hins kærða innkaupaferlis.

Svo sem er rakið í kafla I hér að framan auglýsti varnaraðili upphaflega útboð á endurnýjun Ráðhúss Reykjanesbæjar þann 1. júlí 2025. Í fundargerð bæjarráðs varnaraðila, dags. 11. september 2025, kom meðal annars fram að ákveðið hefði verið að taka tilboði All verk ehf. í verkhluta 5 en að „glerveggjakerfi“ hefði verið undanskilið. Varnaraðili og All verk ehf. gerðu með sér verksamning sem var að fullu undirritaður 2. október 2025.

Í 2. gr. verksamningsins kemur fram að verktaki hafi boðið tiltekna fjárhæð í glerveggjakerfi. Síðan er að finna eftirfarandi texta í greininni: „Eins og kveðið er á í útboðsgögnum hefur verkkaupi heimild til þess að semja sérstaklega um þann lið við verktaka. Verður gerður viðaukasamningur á milli verktaka og verkkaupa þegar ákvörðun liggur fyrir“. Samkvæmt upplýsingum frá varnaraðila kom umrædd heimild ekki fram í útboðsgögnum heildarverksins og hefur varnaraðili ekki haldið því fram að gerður hafi verið viðaukasamningur við All verk ehf. á grundvelli fyrirmæla þessarar greinar.

Að mati kærunefndar útboðsmála verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að varnaraðili hafi í kjölfar útboðsins tekið ákvörðun um að leita sjálfstætt tilboða í þann hluta verksins sem laut að umræddu glerkerfi. Að mati nefndarinnar verður að telja að þessi skilningur finni sér stoð í tölvupóstssamskiptum varnaraðila og kæranda, sem er vikið að í kafla I hér að framan. Í þessu samhengi þykir rétt að nefna að All verk ehf. hafði enga sjáanlega aðkomu að samskiptum kæranda og varnaraðila varðandi tilboðsgerð í glerkerfið.

Að mati nefndarinnar verður að telja að varnaraðila hafi verið skylt að fylgja lögum nr. 120/2016 við innkaup á glerkerfinu. Lítur nefndin í þessu samhengi til þess að sú fjárhæð sem All verk ehf. bauð upphaflega í þennan hluta verksins var töluvert hærri en viðmiðunarfjárhæðir laga nr. 120/2016 auk þess sem glerkerfið var hluti af stærra verki, sbr. 1. mgr. 29. gr. laga nr. 120/2016. Af fyrirliggjandi gögnum þykir ljóst að innkaup varnaraðila á glerkerfinu fóru ekki fram í samræmi við lög nr. 120/2016. Verður þannig að leggja til grundvallar að varnaraðili hafi brotið gegn lögunum við framkvæmd innkaupanna.

Samkvæmt 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 ber fyrirtæki, eins og fyrr segir, að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerts við brotið. Í þeim tilvikum sem innkaup hafa farið fram á röngum lagagrundvelli eða verið haldin öðrum ógildingarannmarka hefur kærunefnd útboðsmála talið þetta skilyrði uppfyllt, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 22/2023 og þá úrskurði sem þar er vísað til.

Í umræddum úrskurðum var í öllum tilvikum vitnað til ummæla í greinargerð með 84. gr. þágildandi laga nr. 94/2001 um opinber innkaup, sem eru nánar rakin hér að framan, og lagt til grundvallar að kaupandi væri skaðabótaskyldur enda hefði hann „ekki sýnt með viðhlítandi hætti fram á að afleiðing réttarbrotsins [hefði] ekki valdið kæranda tjóni“. Helgast þessi framkvæmd af hefðbundnum sjónarmiðum um tilslökun á sönnunarkröfum til tjónþola þegar sýnt hefur verið fram á sök og erfiðleikum við að meta áhrif brots við þessar aðstæður, enda er erfitt að segja til um hver hefði orðið niðurstaða innkaupanna hefðu þau farið fram með réttum hætti.

Ekki liggur annað fyrir en að innkaupaferlið, sem ekki fór fram á réttum lagagrundvelli, hafi leitt til kostnaðar fyrir kæranda af því að undirbúa tilboð sitt og taka þátt í innkaupaferlinu.  Í ljósi þessa og alls framangreinds verður að telja að varnaraðili sé skaðabótaskyldur gagnvart kæranda vegna þessa kostnaðar hans, enda hefur varnaraðili ekki sýnt með viðhlítandi hætti fram á að afleiðing réttarbrotsins hafi ekki valdið kæranda tjóni. Það er því álit nefndarinnar að varnaraðili sé skaðabótaskyldur gagnvart kæranda vegna kostnaðar hans af því að undirbúa tilboð sitt og taka þátt í hinu kærða innkaupaferli í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði.

Svo sem fyrr greinir tók varnaraðili ákvörðun um að bjóða innkaupin út að nýju í samræmi við lög nr. 120/2016 og féllst þar með á veigarmikinn þátt í kröfugerð kæranda. Að þessu gættu og með hliðsjón af niðurstöðu málsins að öðru leyti verður fallist á kröfu kæranda um að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði og er þar tekið tillit til virðisaukaskatts.

 

Úrskurðarorð:

Varnaraðili, Reykjanesbær, er skaðabótaskyldur gagnvart kæranda, Glerveggjum ehf., vegna þátttöku hans í innkaupaferli sem laut að innkaupum á glerkerfi, sem var hluti af verkhluta 5 í útboði varnaraðila nr. 202301012, auðkennt „Endurnýjun Ráðhúss Reykjanesbæjar“.

Varnaraðili greiði kæranda 1.000.000 krónur í málskostnað.

Öðrum kröfum kæranda er hafnað.

 

Reykjavík, 25. ágúst 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?