13. nóvember 2026 /

Mál nr. 17/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. september 2026

í máli nr. 17/2026:

Öryggismiðstöð Íslands hf.

gegn

Landspítala og

Icepharma hf.

 

Lykilorð

Útboðsskilmáli. Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.

Útdráttur

L auglýsti rammasamningsútboð um afhendingu á hágæða gjörgæslurúmum fyrir Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri. Þrjú tilboð bárust og valdi L tilboð I. Ö kærði þá ákvörðun til kærunefndar útboðsmála og byggði á því að tilboð sitt hefði verið gilt ef Ö hefði haldið sig við þyngdarkröfur í tilteknum útboðsskilmála úr eldra útboði. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var tekið fram að samkvæmt upplýsingum frá L væri kominn á bindandi samningur í kjölfar útboðsins við I, sem ekki yrði felldur úr gildi, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Var kröfu Ö um að fella úr gildi ákvörðun L um val tilboðs, og kröfu Ö um að lagt yrði fyrir L að bjóða út að nýju hin kærðu innkaup, því hafnað. Kæmi því eingöngu til skoðunar krafa Ö um álit á skaðabótaskyldu L. Kærunefndin vísaði til þess að Ö hefði boðið gjörgæslurúm sem ekki hefðu uppfyllt kröfur útboðsgagna, og hefði Ö ekki fært nein haldbær rök fyrir því að tilboð þess hefði náð umræddri kröfu útboðsgagna. Af þeim sökum var ekki talið að brotið hefði verið gegn lögum nr. 120/2016 og var kröfu Ö um álit á skaðabótaskyldu L gagnvart félaginu því hafnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 7. apríl 2026 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. (hér eftir „kærandi“) útboð Landspítalans (hér eftir „varnaraðili“) nr. 35049 auðkennt „ICU Beds for Landspitali Hospital.“

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 27. mars 2026 um að velja tilboð Icepharma hf. til samningsgerðar í hinu kærða útboði, og leggi fyrir varnaraðila að bjóða út að nýju hin kærðu innkaup. Kærandi gerir jafnframt kröfu um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda hæfilegan málskostnað. Kærandi óskar þess jafnframt að kæra málsins verði sameinuð máli kærunefndar útboðsmála nr. 49/2025 og málið verði rekið í einu lagi.

Varnaraðila og Icepharma hf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 21. apríl 2026 að öllum kröfum kæranda verði hafnað.

Icepharma hf. sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 21. apríl 2026 og benti á að kærandi hefði ranglega haldið því fram að félagið hefði boðið fram sömu gerð rúma og í fyrra útboði.

Með ákvörðun 29. apríl 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu varnaraðila um að aflétta þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar sem hafði komist á með kæru málsins.

Icepharma hf. tilkynnti kærunefnd útboðsmála 4. maí 2026 að félagið hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir í málinu.

Varnaraðili tilkynnti kærunefnd útboðsmála 18. maí 2026 að hann hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir í málinu.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar í málinu 11. júní 2026.

Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir upplýsingum 1. september 2026 frá varnaraðila um hvort kominn væri á bindandi samningur við Icepharma hf. Varnaraðili svaraði beiðni kærunefndarinnar síðar þann sama dag og staðfesti að kominn væri á bindandi samningur milli aðila.

Þess skal jafnframt getið að kærandi hafði áður lagt fram kæru vegna sama útboðs. Kæra sú barst kærunefnd útboðsmála 13. október 2025, en með ákvörðun 28. nóvember 2025 í máli nr. 49/2025 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli yrði stöðvað um stundarsakir.

 

I

Í ágúst 2025 felldi kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda í máli þessu, úr gildi fyrra útboð varnaraðila nr. 35017, þar sem skorta þótti fullnægjandi gögn og rökstuðning fyrir því að málefnaleg sjónarmið byggju að baki þeirri kröfu í útboðinu að örugg hleðsluþyngd gjörgæslurúma (SWL) skyldi vera 265 kg og þyngdarmörk rúmanna miðuðust við að þau gætu tekið við sjúklingum sem væru að lágmarki 200 kg. Lá þá fyrir að fáum mánuðum áður hafði varnaraðili auglýst útboð á meðal annars gjörgæslurúmum þar sem krafa var um að örugg hleðsluþyngd skyldi vera 250 kg að lágmarki og að þau gætu tekið við sjúklingum sem væru 185 kg að lágmarki.

Þann 23. september 2025 auglýsti varnaraðili útboð á Evrópska efnahagssvæðinu nr. 35049, auðkennt „ICU Beds for Landspitali Hospital“. Lýtur útboðið að gerð rammasamnings við einn bjóðanda um afhendingu á hágæða gjörgæslurúmum samkvæmt pöntunum til nota á gjörgæslum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Í útboðsskilmálum kemur fram að Landspítalinn hafi yfir að ráða bæði hefðbundnum gjörgæslurúmum og hágæða gjörgæslurúmum og tímabært sé að fjölga þeim síðarnefndu. Hágæða gjörgæslurúm sem notuð séu í dag séu af gerðinni Progressa frá Baxter (Hillrom). Áætluð kaup séu sex til sjö rúm fyrsta árið en ekki liggi fyrir hversu mörg rúm verði keypt eftir það.

Í grein 1.1.1 í útboðslýsingu hins nýja útboðs er rakið að um sé að ræða nýtt innkaupaferli fyrir gjörgæslurúm, þar sem kærunefnd útboðsmála hafi fellt fyrra útboð úr gildi en megin kröfur til boðinna gjörgæslurúma væru þó að mestu óbreyttar. Segir þar að í úrskurði nefndarinnar hafi komið fram að kaupandi gæti ekki breytt kröfum, á grundvelli breyttra aðstæðna, nema tilgreindar væru hlutlægar og málefnalegar ástæður fyrir slíkum breytingum. Í því sambandi hafi komið fram að tilfelli sjúklinga í yfirþyngd væru svo fá að varnaraðili gæti nýtt bariatric gjörgæslurúm. Slík rúm séu aftur á móti ekki og hafi aldrei verið til á Landspítalanum. Þannig séu nú engin gjörgæslurúm fyrir hendi sem henti sjúklingum yfir 200 kg, þrátt fyrir að kaupandi telji brýna þörf fyrir slík rúm. Útboðið sé því nauðsynlegt til að mæta raunverulegri og aðkallandi þörf varnaraðila, sem bein áhrif hafi á öryggi sjúklinga og meðferð. Kröfur um gjörgæslurúm sem geti borið sjúklinga yfir 200 kg byggist á óyggjandi læknisfræðilegum og rekstrarlegum sjónarmiðum. Þau sjónarmið séu í samræmi við markmið laga um opinber innkaup og tryggi almannahagsmuni og veitingu nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Með útboðinu sé brugðist við ófullnægjandi aðstæðum sem uppi séu vegna rangra forsendna í úrskurði kærunefndar útboðsmála og þannig tryggt að innkaupin séu í samræmi við raunverulegar þarfir og lagakröfur.

Tilboð voru opnuð þann 16. janúar 2026 og bárust þrjú tilboð. Tilboð Icepharma hf. nam 29.473.468 krónum en félagið bauð rúm af gerðinni Progressa Pro 585 frá framleiðandanum Hill-Rom. Tilboð kæranda nam 32.849.380 krónum en kærandi bauð rúm af gerðinni Eleganza 5 + Opticare frá framleiðandanum Linet. Eitt annað tilboð barst og var það lægst af þeim þremur tilboðum sem bárust. Varnaraðili tilkynnti 27. mars 2026 að ákveðið hefði verið að velja tilboð Icepharma hf., sem hefði verið metið hagstæðast fyrir varnaraðila samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Hefði tilboðið fengið alls 47 stig af 50 mögulegum fyrir verð og 44 stig af 50 fyrir gæði.

 

II

Kærandi vísar til þess að varnaraðili hafi hinn 27. mars 2026 tilkynnt um val á tilboði Icepharma hf. í hinu kærða útboði, enda hefði það tilboð verið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Engar frekari upplýsingar hafi komið fram í tilkynningunni um á hvaða grundvelli tilboði kæranda hafi verið hafnað, hvort það hafi verið metið gilt og hvort, og þá með hvaða hætti, það hafi verið metið til stiga við yfirferð tilboða. Það telji kærandi vera annmarka á ákvörðun varnaraðila.

Kærandi heldur því fram að kæran sé komin fram innan biðtíma samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016. Biðtími hafi endað á lögboðnum frídegi, 6. apríl 2026, og í slíkum tilfellum endi biðtími við lok síðustu klukkustundar næsta virka dags, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 45/2021.

Þá bendir kærandi á að í upphaflegri kæru vegna sama útboðs, sbr. mál hjá kærunefnd útboðsmála nr. 49/2025, hafi hann ekki haft uppi kröfu um að kærunefnd útboðsmála veitti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, enda hafi ekki verið tímabært fyrir kæranda að hafa uppi slíka kröfu á því stigi málsins. Nú liggi fyrir að kærandi hafi sannanlega tekið þátt í hinu kærða útboði og tilboði hans hafi verið hafnað. Hafi því tjón hans raungerst, sbr. 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 22/2023.

Kærandi byggir á því að varnaraðili hafi brotið gegn lögum nr. 120/2016 í hinu kærða útboði og vísar í þeim efnum til upphaflegrar kæru vegna útboðsins og öðrum athugasemdum sem hann hafi lagt fram í því máli. Kærandi telji að krafa útboðsgagna um hámarksþyngd notenda rúmanna sé að lágmarki 200 kg hafi ekki verið rökstudd af hálfu varnaraðila. Röksemdir varnaraðila hafi verið reistar á því að nauðsyn þess að kaupa rúm sem geti borið sjúklinga yfir 200 kg samrýmist ekki þeim kröfum sem útboðsskilmálar geri. Að mati kæranda sé ljóst að ef kaupandi hefði haldið sig við upphaflegar þyngdarkröfur gjörgæslurúma sem settar hafi verið fram í útboði nr. 35001, í stað þess að hækka þyngdarkröfur með ólögmætum hætti í síðari útboðum, hefði kærandi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn af kaupanda, enda hafi kærandi verið með næstlægsta tilboð gjörgæslurúma í því útboði. Varnaraðili hafi hafnað öllum tilboðum í því útboði vegna þess að enginn bjóðandi hafi uppfyllt kröfur um hliðargrindur, en kærandi hafi hins vegar uppfyllt allar aðrar kröfur þess útboðs og hefði þar af leiðandi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn í endurteknu útboði hefðu þyngdarkröfur ekki verið hertar.

Kærandi telji ljóst að hið kærða útboð hafi farið fram við mjög sérstakar aðstæður og hafi kærandi þurft að gæta réttar síns með tilheyrandi kostnaði í fyrrnefndum útboðum. Við mat á skaðabótaskyldu varnaraðila telji kærandi því að líta beri heildstætt á allt málið og þær kringumstæður sem hafi skapast allt frá fyrsta innkaupaferli kaupanda nr. 35001. Þá bendir kærandi á að í upphaflegu innkaupaferli hafi tilboð verið opnuð og opnunarskýrsla gerð opinber. Icepharma hf. hafi lækkaði tilboð sitt um rúmar 14 milljónir króna fyrir sömu gerð af rúmum, og telji kærandi að þessi mikla verðlækkun kalli á nánar skýringar. Það undirstriki jafnframt þörfina á að varnaraðili byggi síðari útboð sín á skýrum, málefnalegum og lögmætum skilmálum, enda geti endurtekin útboð við slíkar aðstæður raskað jafnræði bjóðenda. Telji kærandi þetta styðja þá niðurstöðu að varnaraðili hafi staðið að hinu kærða útboði, líkt og útboði nr. 35017, með ólögmætum hætti enda hafi jafnræði bjóðenda verið raskað með ómálefnalegum hætti.

Að öllu virtu telji kærandi að hann hafi átt raunhæfa möguleika á að verða fyrir valinu ef kaupandi hefði staðið að þeim útboðum sem hér um ræði, þ.e. hinu kærða útboði nr. 35049 og útboði nr. 35017, með lögmætum hætti og að möguleikar kæranda hafi skerst við brot kaupanda. Ef kaupandi hefði boðið innkaup gjörgæslurúma út að nýju án þess að hækka þyngdarkröfur með ólögmætum hætti, þá hefði kærandi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn, enda hafi hann boðið hágæða gjörgæslurúm sem uppfylli að öðru leyti allar kröfur hins upphaflega útboðs á samkeppnishæfu verði.

Í lokaathugasemdum kæranda er vísað til þess að í úrskurði kærunefndar útboðsmála í málum nr. 5/2025 og 6/2025 hafi eldra útboð varnaraðila verið fellt úr gildi, og hafi nefndin komist að þeirri niðurstöðu að fullnægjandi gögn og rökstuðning hafi skort fyrir því að málefnalegt hefði verið að auka við kröfur um þyngdarmörk gjörgæslurúma milli útboða. Nefndin hafi ekki talið nægjanlega ráðið af minnisblaði varnaraðila 3. apríl 2025, um fjölda innlagna sjúklinga 185 kg eða meira, að málefnalegt hefði verið að auka við kröfur um þyngdarmörk gjörgæslurúma milli útboða. Þá hafi einnig verið tekið fram að varnaraðili hefði engar skýringar gefið á því af hverju ekki væri notast við bariatric gjörgæslurúm í þeim einstöku tilvikum þar sem sjúklingar væru í mikilli yfirþyngd, en slík rúm þyldu mikla þyngd og væru breiðari en hefðbundin gjörgæslurúm. Nú tæpu ári síðar og eftir að enn eitt útboðið, hið kærða útboð, hafi farið fram með sömu þyngdarkröfum, hafi varnaraðili engin frekari gögn lagt fram þessu til stuðnings. Kærandi hafni því að staðhæfingar varnaraðila í grein 1.1.1 í útboðsgögnum sé nægjanlegt í þessu samhengi, enda slíkur rökstuðningur ekki studdur neinum haldbærum gögnum. Þess utan sé rökstuðningur varnaraðila haldlaus og mótsagnakenndur, enda lúti hann fyrst og síðast að því að engin bariatric gjörgæslurúm séu til á Landspítalanum sem henti notendum 200 kg eða þyngri, þrátt fyrir að kröfurnar séu einungis 200 kg og ekki meira.

Í þessu samhengi sé því jafnframt haldið fram í greinargerð varnaraðila 21. apríl 2026 að bariatric sjúkrarúm séu alls ekki það sama og gjörgæslurúm og henti ekki til notkunar á gjörgæsludeildum. Hér sé enn og aftur um að ræða útúrsnúning af hálfu varnaraðila að því er varðar hugtakanotkun, í stað þess að svara því hvers vegna ekki sé unnt að kaupa sérstök bariatric gjörgæslurúm. Hugtakið bariatric vísi til þess að um sé að ræða meðhöndlun á sjúklingum í mikilli yfirþyngd. Slík rúm séu sérstaklega hugsuð fyrir meðhöndlun sjúklinga í mikilli yfirþyngd á gjörgæsludeildum. Á gjörgæsludeildum sjúkrahúsa í löndum í kringum Ísland tíðkist að slík rúm séu notuð fyrir sjúklinga í mikilli yfirþyngd.

Í greinargerð varnaraðila hafi því verið haldið fram að þau gjörgæslurúm sem séu í notkun í dag og þoli hámarksþyngd sjúklings 227 kg séu of fá og því sé brýnt að fjölga þeim rúmum sem þoli þessa þyngd til þess að mæta bráðri og vaxandi þörf. Kærandi árétti í þessu sambandi að kröfur útboðsgagna um að gjörgæslurúmin þoli sjúklinga 200 kg eða meira tryggi alls ekki að rúmin þoli hámarksþyngd sjúklings 227 kg, líkt og haldið sé fram. Lágmarkskrafan sé að rúmin þoli 200 kg og með öllu óvíst hvort þau rúm sem boðin yrðu myndu þola meiri þyngd en það. Kærandi telji að með þessu orðalagi varnaraðila megi leiða líkur að því að hinar auknu þyngdarkröfur hafi í reynd verið sniðnar að þeim rúmum sem Icepharma hf. hafi boðið og hafi þegar verið í notkun.

Kærandi andmæli því ekki að bregðast verði við vaxandi þörf vegna þyngdaraukningar, svo sem varnaraðili hafi borið fyrir sig. Engu að síður séu kaupendur bundnir af meginreglunni um meðalhóf, sem felist í því að viðkomandi aðgerð þurfi að vera til þess fallin að ná því markmiði sem að sé stefnt og ekki megi ganga lengra en nauðsynlegt sé til að ná því markmiði. Sönnunarbyrðin fyrir því að tiltekin aðgerð uppfylli kröfu um meðalhóf hvíli á kaupanda. Kærandi telji ljóst að varnaraðili hafi hvorki sýnt fram á að þær hertu kröfur sem hér sé deilt um hafi verið til þess fallnar að uppfylla markmiðið um öryggi sjúklinga, né að þær hafi verið nauðsynlegar til að ná því markmiði. Til frekari stuðnings því að hinar auknu þyngdarkröfur útboðsgagna uppfylli ekki skilyrðið um að vera til þess fallin að ná því markmiði sem að sé stefnt, árétti kærandi einnig að kröfurnar tryggi ekki að boðin rúm þoli sjúklinga sem vegi meira en 200 kg, en samkvæmt fyrrnefndu minnisblaði varnaraðila hafi sex sjúklingar yfir 200 kg lagst inn á gjörgæslu á árunum 2021 til byrjun apríl 2025. Það sé því lágt hlutfall sjúklinga yfir 185 kg sem hafi lagst inn á gjörgæslu undanfarin ár. Kröfurnar hafi ekki verið nauðsynlegri en svo að þær hafi ekki verið hluti af hinu upphaflega tilboði.

 

III

Varnaraðili byggir á því að tilboði kæranda hafi réttilega verið hafnað þar sem það hafi ekki uppfyllt óundanþæga kröfu í útboðsskilmálum, sbr. lið ac í grein 4.2 í útboðslýsingu þar sem fram kemur að burðarþol rúmanna skuli vera 200 kg að lágmarki. Kærandi hafi boðið rúm þar sem hámarksburðarþol miðaðist við 185 kg sjúklinga, og skiptir þá ekki máli þótt kærandi hafi tekið fram að uppbygging rúmanna geti, við tilteknar aðstæður, borið sjúklinga sem séu 200 kg. Þessi sjónarmið kæranda séu skilyrt og geti því ekki talist uppfylla lágmarkskröfur útboðsgagna að þessu leyti.

Þá byggir varnaraðili á því að kröfur um þyngdargetu rúmanna hafi verið málefnalegar og rökstuddar. Í þessum efnum vísar varnaraðili til ákvörðunar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 49/2025, þar sem ekki hafi verið fallist á kröfu kæranda um að stöðva innkaupaferlið, en kærandi hefði borið fyrir sig að þessar kröfur útboðslýsingar væru ólögmætar. Kærunefndin hafi samþykkt að varnaraðili hafi fært fram málefnalegan rökstuðning fyrir þessari kröfu útboðsgagna og leyft varnaraðila að halda innkaupaferlinu áfram. Þessi þyngdarkrafa útboðslýsingar sé byggð á raunverulegum klínískum þörfum varnaraðila, öryggisstöðlum og rekstrarþörfum. Varnaraðili hafi fært rök fyrir því að bariatric rúm séu ekki gjörgæslurúm, en gjörgæslurúm hafi sérhæfðari eiginleika og stillingar sem séu nauðsuynlegar á gjörgæslum og séu því ólík almennum bariatric rúmum. Varnaraðili hafi einnig fært rök fyrir því að þau gjörgæslurúm sem séu í notkun í dag og þoli hámarksþyngd sjúklings 227 kg séu of fá og yfirleitt alltaf öll í notkun. Brýnt sé að fjölga þeim rúmum sem þoli þessa þyngd til að mæta bráðri og vaxandi þörf. Að auki skapi það hættu fyrir bæði sjúklinga og álag á starfsfólk ef ekki séu nægilega mörg gjörgæslurúm með nægilegri burðargetu, þar sem þá þurfi að flytja sjúklinga í mikilli yfirþyngd á milli rúma ef þeir koma inn. Ennfremur sé vaxandi þörf fyrir fleiri slík rúm vegna þyngdaraukningar almennings. Loks hafi varnaraðili framkvæmt könnun áður en útboðið hafi verið auglýst sem hafi leitt í ljós að minnsta kosti fimm framleiðendur bjóði gjörgæslurúm sem uppfylli 200 kg skilyrðið og fjórir þeirra séu með íslenska byrgja.

Varnaraðili vísar til þess að í tilkynningu hans um val tilboðs hafi varnaraðili áskilið sér 15 daga frest til að veita rökstuðning ef eftir því yrði leita. Kærandi hafi ekki óskað eftir slíkum rökstuðningi innan lögmælts frests og því hafi varnaraðila ekki borið skylda til að senda út ítarlegan rökstuðning fyrir höfnun tilboðs kæranda nema eftir beiðni. Kærandi hafi því ekki nýtt sé rétt sinn sem felist í 4. mgr. 85. gr. laga nr. 120/2016.

Þá bendir varnaraðili á að þótt fyrri úrskurðir kærunefndar útboðsmála geti haft áhrif á framtíðarútboð þá sé hvert útboð sjálfstætt ferli, og hafi varnaraðili rétt til þess að móta skilmála, svo framarlega sem þeir séu málefnalegir og rökstuddir, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 5/2010. Varnaraðili sé því ekki bundinn af forsendum fyrri útboða þegar hann auglýsi ný útboð, og það eigi einnig við um kostnaðaráætlanir og aðra skilmála. Þótt annar bjóðandi hafi lækkað verð sín milli útboða þá sé það ekki á ábyrgð varnaraðila.

Icepharma hf. tekur fram að kærandi hafi ranglega haldið fram að félagið hafi boðið sömu gerð rúma og áður. Hið rétta sé að Icepharma hf. bauð fram aðra gerð af rúmum en áður og það sjáist þegar útboðsgögn séu borin saman.

 

IV

Kröfur kæranda í máli þessu eru í öllum atriðum reistar á því að útboðsskilmáli ac í grein 4.2 í útboðsgögnum sé ólögmætur, og kveður kærandi að allar ákvarðanir varnaraðila á grundvelli útboðsskilmálans, þ. á m. um ákvörðun tilboðs, sé ólögmæt.

Málsástæður kæranda, að svo miklu leyti sem þær varða lögmæti útboðsskilmálans, koma ekki til skoðunar í máli þessu, enda var kærufrestur vegna hans liðinn við móttöku kæru málsins, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verður hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Fyrir liggur í máli þessu að kominn er á bindandi samningur milli varnaraðila og Icepharma hf. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kæranda að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila 27. mars 2026 um að velja tilboð Icepharma hf. og að lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða út að nýju hin kærðu innkaup.

Kemur því eingöngu til skoðunar krafa kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og krafa kæranda um greiðslu málskostnaðar. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið.

Tilboði kæranda í hinu kærða útboði var hafnað sem ógildu, sbr. rökstuðning þess efnis frá varnaraðila til kæranda. Sá rökstuðningur er ódagsettur, en enginn vafi leikur á því að hann eigi við um tilboð kæranda í hinu kærða útboði. Í rökstuðningnum kemur fram að tilboð kæranda hafi ekki uppfyllt óundanþæga kröfu í grein 4.2 um að hámarksburðargeta væri 200 kg eða meiri. Í kæru málsins hefur kærandi engin haldbær rök sett fram fyrir því að tilboð sitt næði umræddri lágmarkskröfu útboðsgagna. Málatilbúnaðurinn hefur fremur snúist um að umræddur útboðsskilmáli sé ólögmætur og að tilboð hans hefði verið gilt hefði varnaraðili haldið sig við upphaflegu þyngdarkröfur í útboði nr. 35001. Svo sem að framan greinir var frestur til að kæra lögmæti skilmálans útrunninn þegar kæra málsins barst, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Þegar af þeirri ástæðu er málatilbúnaði kæranda um að brotið hafi verið gegn lögum nr. 120/2016 hafnað.

Að öllu framangreindu virtu átti kærandi ekki raunhæfa möguleika á að verða valinn af varnaraðila og eru skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 því ekki uppfyllt. Verður kröfu kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila því hafnað.

Með vísan til framangreindra málsúrslita þykir rétt að málskostnaður falli niður.

 

Úrskurðarorð

Öllum kröfum kæranda, Öryggismiðstöðvar Íslands hf., í máli þessu er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 24. september 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?