13. nóvember 2026 /

Mál nr. 32/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 23. september 2026

í máli nr. 32/2026:

Línuborun ehf.

gegn

Rarik ohf. og

VBT ehf.

 

Lykilorð

Kærufrestur. Reglugerð nr. 340/2017. Valforsendur. Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.

Útdráttur

L kærði útboð R um nánar tilgreinda strenglögn og krafðist þess að ákvörðun R um að velja tilboð V yrði felld úr gildi og R gert að auglýsa útboðið að nýju. Þá krafðist L þess einnig að kærunefnd útboðsmála léti uppi álit á skaðabótaskyldu R. Kröfum L um að felld yrði úr gildi ákvörðun R um að velja tilboð V og auglýsa útboðið að nýju var hafnað með vísan til þess að komist hefði á bindandi samningur, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Kom því einungis til skoðunar krafa um álit kærunefndarinnar á skaðabótaskyldu R gagnvart L. Kæruefni L sem laut að ólögmæti greina 2.5.2 og 4.13 í útboðsgögnum var talið komið fram utan kærufrests sem og kæruefni er laut að frammistöðumati R sem kynnt hafði verið L í ársbyrjun 2025. Eftir stóð sú málsástæða L að annmarkar hefðu verið á málsmeðferð R þar sem mat á hæfi hans hefði ekki farið fram áður en ákvörðun hefði verið tekin um val á tilboði. Kærunefnd útboðsmála féllst ekki á framangreint og taldi nægjanlegt að meta hæfi þess bjóðanda sem hefði sett fram hagstæðasta tilboðið eftir þeim matsviðmiðum sem fælust í útboðsskilmálum. Af því leiddi að þegar ljóst varð að tilboð V hefði verið hagkvæmast við útboðið hefði verið nægjanlegt að framkvæma mat á hæfi þess bjóðanda. Að öðru leyti taldi nefndin L ekki hafa fært fram viðhlítandi rök fyrir því að mat á tilboði V eða hæfi þess hefði verið rangt í einhverjum atriðum sem máli gat skipt. Var kröfu L um að kærunefnd útboðsmála léti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu R því hafnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. maí 2026 kærði Línuborun ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Rarik ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. 26003 „Strenglögn – Vatnshamrar að Ferjubakka – Vesturland“.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila í útboði nr. 26003 „Strenglögn – Vatnshamrar að Ferjubakka – Vesturland“ og hlutist til um að varnaraðila verði óheimilt að ganga til samninga við VBT ehf. þar til endanlegur úrskurður nefndarinnar liggur fyrir í málinu, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Þess er einnig krafist að ákvörðun varnaraðila frá 20. maí 2026 um að velja tilboð VBT ehf. í útboði nr. 26003 verði felld úr gildi og varnaraðila gert að auglýsa það að nýju, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda vegna þess tjóns sem ólögmæt framkvæmd innkaupanna hefur bakað kæranda, sbr. 2. mgr. 111. gr. og 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016. Loks krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað vegna reksturs málsins fyrir nefndinni, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Athugasemdir bárust frá varnaraðila 15. júní 2026 en VBT ehf. hefur ekki látið málið til sín taka.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð 15. júní 2026 að þeim kröfuliðum kæru sem lúta að meintu ólögmæti útboðsskilmála verði vísað frá nefndinni. Til vara að sömu kröfuliðum verði hafnað. Þess er einnig krafist að kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar varnaraðila frá 20. maí 2026 verði hafnað og hin kærða ákvörðun staðfest. Jafnframt að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 2. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 verði þegar í stað aflétt. Þá krefst varnaraðili þess að kröfu kæranda um álit kærunefndar útboðsmála á skaðabótaskyldu verði vísað frá. Loks krefst hann þess að kæranda verði gert að greiða varnaraðila málskostnað vegna reksturs málsins fyrir nefndinni.

Með ákvörðun 7. júlí 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt.

Í kjölfarið var varnaraðila veittur kostur á að skila lokaathugasemdum til nefndarinnar sem og hann gerði 13. júlí 2026. Lokaathugasemdir kæranda bárust nefndinni 14. ágúst 2026.

Þann 30. júlí 2026 var samningur undirritaður milli varnaraðila og VBT ehf.

 

I

Samkvæmt útboðslýsingu laut hið kærða útboð að gerð verksamnings um strenglögn frá Vatnshömrum að Hvítá og frá Ferjubakka að Hvítá.

Í grein 3.8 í útboðslýsingu kemur fram að til mats komi þau tilboð sem uppfylla allar skal kröfur og hæfiskröfur útboðsins. Eftirfarandi valmælikvarði verði lagður til grundvallar við val á samningsaðila: Verð 70% og niðurstöður úr frammistöðumati 30%.

Í grein 2.5.2 í útboðslýsingu er fjallað um frammistöðumat verktaka. Þar kemur meðal annars fram að ákveðið hafi verið að láta frammistöðumat verktaka gilda 30% á móti 70% verði í þeim plægingarverkum sem boðin verði út árið 2026. Frammistöðumatið er þar nánar útskýrt og hvernig mínusstig fyrir verk hafa áhrif á einkunn. Þá segir þar: „Hafi verktaki unnið fleiri en eitt plægingarverk fyrir verkkaupa á síðastu tveimur (2) verður miðað við stigagjöf úr því verkefni sem var með flest mínusstig. Stigagjöf verktaka úr frammistöðumati fyrir hvert og eitt verk gildir í 36 mánuði og verður nýtt til mats á hæfi við úthlutun verkefna á vegum verkkaupa.“

Tilboð voru opnuð 18. maí 2026. Tvö tilboð bárust, annars vegar frá kæranda og hins vegar frá VBT ehf. Tilboð hins fyrrnefnda hlaut 70 stig en tilboð VBT ehf. 90,4 stig. Fyrir liggur að kærandi hlaut 0 stig í frammistöðumati vegna eldra verks nr. 24025 („Flói“) en 70 stig fyrir verð. Varnaraðili tilkynnti um val á tilboði VBT ehf. 20. maí 2026.

 

II

Kærandi byggir að meginstefnu til á því að hæfisskilyrðum og valforsendum hafi verið blandað saman með ólögmætum hætti. Með því að gefa kæranda einkunn fyrir fyrri verk í stað þess að meta reynslu tiltekins starfsfólks sem boðið hafi verið fram og hafi veruleg áhrif á gæði framkvæmdarinnar, sbr. b-lið 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 340/2017, hafi varnaraðili beitt ólögmætri aðferðarfræði við val tilboða.

Þá telur kærandi útfærslu varnaraðila á frammistöðumati fela í sér mismunun milli bjóðenda sem brjóti gegn jafnræðisreglu 40. gr. reglugerðar nr. 340/2017, m.a. vegna þess að nýir bjóðendur á markaði fái sjálfkrafa 30% hámarkseinkunn í frammistöðumati, án nokkurs raunverulegs mats. Slíkt endurspegli ekki raunverulegan mun á tilboðum. Auk þess brjóti grein 2.5.2 í útboðsskilmálum gegn meðalhófsreglu 40. gr. reglugerðarinnar enda geri greinin ráð fyrir að miðað verði við verk sem verktaki fékk flest mínusstig fyrir sem og að stigagjöf verktaka úr frammistöðumati gildi í 36 mánuði.

Einnig hafi verið brotið gegn gagnsæi og eldra frammistöðumati beitt með ólögmætum afturvirkum hætti. Varnaraðili hafi notast við mat á kæranda frá árinu 2024 í tengslum við útboð nr. 24024 („Flói“). Í þeim útboðsgögnum hafi ekki komið fram að stærðfræðilegt vægi matsþátta, skalanleg stigagjöf eða umrætt frammistöðumat myndi gilda sem afgerandi 30% valforsenda í síðari innkaupaferlum í 36 mánuði. Þvert á móti hafi verið kveðið á um það að frammistöðumat verktaka myndi gilda 30% á móti 70% í þeim plægingarverkum sem boðin yrðu árið 2025. Beiting matsins í útboði árið 2026 sé þannig utan yfirlýsts gildissviðs enda takmarkað við árið 2025.

Kærandi byggir jafnframt á því að ýmsir gallar hafi verið á málsmeðferð varnaraðila, einkum að fullnægjandi mat hafi ekki farið fram áður en ákvörðun hafi verið tekin um val á tilboði enda hafi þau verið opnuð 18. maí 2026 og tilkynnt um ákvörðun tveimur dögum síðar. Þá hafi kærandi ekki notið andmælaréttar við gerð frammistöðumats hans sem lagt hafi verið til grundvallar. Varnaraðili hafi skráð einhliða neikvæð atvik sem að óbreyttu muni útiloka kæranda alfarið í 36 mánuði. Í 9. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 sé kveðið á um rétt bjóðenda til að sýna fram á áreiðanleika sinn þrátt fyrir meintar fyrri vanefndir. Með því að refsa kæranda sjálfkrafa um 30% stiga vegna fyrri verka, án þess að gefa kæranda raunhæft tækifæri til andsvara eða sýna fram á úrbætur, hafi varnaraðili raunverulega útilokað kæranda án þess að virða þær formkröfur sem gildi um slíkar íþyngjandi ráðstafanir. Kærandi byggir jafnframt á því að grein 4.13 í útboðsskilmálum, sem fjallar um takmörkun skaðabótaskyldu við vangildisbætur, fari í bága við 119. gr. laga nr. 120/2016.

Í lokaathugasemdum kæranda 14. ágúst 2026 er því mótmælt að kærufrestur sé liðinn. Fram kemur að kæran beinist að ákvörðun varnaraðila frá 20. maí 2026 um val á tilboði VBT ehf. og beitingu frammistöðumats varnaraðila við það val. Kæran sé dagsett 23. maí 2026 og móttekin 29. sama mánaðar eða innan lögboðins 20 daga kærufrests samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Í þessum efnum vísar kærandi til dóms Hæstaréttar 17. október 2013 í máli nr. 366/2013. Hæstiréttur hafi hafnað þeirri málsástæðu kaupanda að kærufrestur vegna valforsendna hefði byrjað að líða við kynningu útboðsgagna og tekið fram að bjóðendum hefði ekki mátt vera ljóst hvernig valforsendum yrði beitt og þar með hvernig endanlega yrði staðið að vali tilboða fyrr en kaupandi hefði tilkynnt um það val og rökstutt ákvörðun sína. Hið sama eigi við í þessu máli. Það hafi fyrst verið með tilkynningu um val tilboðs sem kæranda hafi orðið ljóst hvernig frammistöðumatinu yrði í reynd beitt, þ.e. að kæranda yrðu reiknuð 0 stig á grundvelli tveggja ára gamals mats úr verki nr. 24025.

Að því er varðar þá forsendu að kærufrestur vegna athugasemda við gerð frammistöðumats hafi byrjað að líða þegar matið hafi verið sent kæranda 13. janúar 2025 bendir kærandi á að í matinu sjálfu hafi komið fram að niðurstöður þess giltu í plægingarverkum sem boðin yrðu út árið 2025. Kærandi hafi á þeim tíma með engu móti séð fyrir að matið yrði notað sem afgerandi 30% valforsenda í útboði ársins 2026 undir útvíkkuðu tveggja ára viðmiðunartímabili. Kæruefni málsins sé beiting matsins í hinu kærða útboði og frestur vegna þess hafi byrjað að líða 20. maí 2026, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 366/2013.

 

III

Varnaraðili byggir á því að kærufrestur sé löngu liðinn vegna lögmætis útboðsskilmála, svo sem valforsendur útboðsins, vægi þeirra, skalanlega stigagjöf og tímaviðmið. Málsástæður þar að lútandi séu því of seint fram komnar og beri að vísa frá. Er í þessum efnum m.a. vísað til þess að frammistöðumatið sem kærandi geri nú athugasemdir við hafi verið kynnt í apríl 2024 og hann haft vitneskju frá þeim tíma að það gæti haft áhrif á framtíðarverkefni. Kærandi hafi jafnframt tekið þátt í nokkrum útboðum í kjölfarið og gert formlegar athugasemdir við þetta kerfi á fyrirspurnartíma. Til viðbótar sé til þess að líta að útboðsgögn í fyrirliggjandi útboði hafi verið birt með nákvæmlega sömu skilmálum um frammistöðumat frá árunum 2024 og 2025 þann 14. apríl 2026. Kærufrestur hafi því í síðasta lagi byrjað að líða þá og kæran þurft að berast fyrir 4. maí sama ár. Telji nefndin kæruna að þessu leyti ekki of seint fram komna mótmælir varnaraðili því alfarið að valforsendur séu ólögmætar. Með lögum nr. 120/2016 og reglugerð nr. 340/2017 hafi skýrlega verið lögfest heimild til að meta reynslu og hæfi sem gæðatengda valforsendu en ekki einungis sem lágmarkshæfisskilyrði, sbr. 2. mgr. 29. gr. laga nr. 120/2016 og b. lið 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 340/2017.

Varnaraðili hafnar jafnframt málsástæðum kæranda sem lúta að broti á gagnsæi og beitingu afturvirkni. Engin afturvirkni hafi verið viðhöfð heldur hafi kerfið verið kynnt verktökum með skýrum hætti í apríl 2024, áður en verk sumarsins hafi hafst. Þegar skilmálar hafi verið útfærðir að fullu í öllum útboðs- og samningsskilmálum plægingarverkefna, sem boðin hafi verið út árið 2025, hafi fyrir fram kynntum reglum um frammistöðumat verið beitt. Kærandi byggi að verulegu leyti á því að í tilteknum útboðsgögnum frá árinu 2024 hafi komið fram að frammistöðumatið yrði nýtt við útboð á árinu 2025. Sú tilvísun geti þó ekki haft þá þýðingu sem kærandi leggi í hana. Þegar hið kærða útboð hafi verið auglýst í apríl 2026 hafi legið fyrir ný og sjálfstæð útboðsgögn þar sem með skýrum hætti var kveðið á um að stigagjöf úr frammistöðumati gilti í 36 mánuði og yrði nýtt við mat á tilboðum. Kærandi hafi þannig tekið þátt í útboðinu með fullri vitneskju um þá skilmála og án þess að gera athugasemdir innan kærufrests. Þá telur varnaraðili málsástæðu kæranda um lögmæti greinar 4.13 í útboðsskilmálum einnig of seint fram komna.

Varnaraðili byggir jafnframt á því að frammistöðumatið byggi á fyrir fram skilgreindum og hlutlægum mælikvörðum sem birtir hafi verið öllum bjóðendum. Þá mótmælir varnaraðili því að kæranda hafi ekki verið gefinn kostur á að tjá sig um þau atvik sem lágu til grundvallar frammistöðumati hans. Af dagbókum eftirlitsmanns verði ráðið að kærandi hafi verið upplýstur um viðkomandi atvik en auk þess hafi frammistöðumat vegna verks nr. 24025 verið sent kæranda 13. janúar 2025. Hann hafi í kjölfarið gert athugasemdir við það. Þá hafnar varnaraðili málsástæðum kæranda um að frammistöðumatskerfi hans brjóti í bága við meðalhófs- og jafnræðisreglur. Loks hafnar hann málsástæðum kæranda um að fullnægjandi mat á hæfi kæranda hafi ekki farið fram. Í kjölfar opnun tilboða hafi farið fram hefðbundin yfirferð og samanburður á tilboðum í samræmi við reglugerð nr. 340/2017 og útboðsgögnum. Þegar ljóst hafi verið að tilboð VBT ehf. hafi verið hagkvæmast að teknu tilliti til verðs og frammistöðu hafi farið fram fullnægandi mat á hæfi þess fyrirtækis og sú athugun leitt í ljós að það uppfyllti allar þær kröfur um tæknilegt og fjárhagslegt hæfi sem gerðar hefðu verið í útboðsgögnum. Ákvörðun um val á tilboði hafi ekki verið tekin fyrr en að loknu því mati.

Í lokaathugasemdum sínum 13. júlí 2026 tók varnaraðili fram að hann hefði ekki við neinu að bæta frá fyrri greinargerð.

 

IV

Ekki er um það deilt að hið kærða útboð falli undir gildissvið reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Af 1. mgr. 9. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup leiðir að XI. og XII. kaflar laganna gilda um innkaup eftir reglugerð nr. 340/2017 en að öðru leyti fer um þau eftir ákvæðum reglugerðarinnar.

Í málinu liggur fyrir að komist hefur á bindandi samningur milli varnaraðila og VBT ehf. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður bindandi samningur ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfum kæranda sem lúta að því að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 20. maí 2026 um að velja tilboð VBT ehf. og að varnaraðila verði gert að auglýsa útboðið að nýju.

Kemur því eingöngu til skoðunar krafa kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda sem og krafa hans um málskostnað. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skal miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.

Meginefni kæru kæranda lýtur að ólögmæti greinar 2.5.2 í útboðsskilmálum, þ.e. að frammistöðumat verktaka gildi sem valforsenda með 30% vægi. Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við útfærslu frammistöðumatsins í skilmálanum og telur það brjóta í bága við jafnræðisreglu sem og meðalhófsreglu 40. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Þá gerir hann einnig athugasemdir við það að grein 2.5.2 geri ráð fyrir því að notast sé við frammistöðumat úr útboði frá árinu 2024 og kveði á um að slíkt frammistöðumat skuli gilda í 36 mánuði og þar með í fyrirliggjandi útboði. Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við grein 4.13 í útboðsskilmálum sem fjallar um fyrirvara um óvirkni samnings og bótaskyldu verkkaupa.

Kærandi telur kæru sína og þær málsástæður sem þar er haldið fram hafa komið fram innan kærufrests 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Í þeim efnum vísar hann m.a. til þess að kæran beinist að ákvörðun varnaraðila 20. maí 2026 um val á tilboði VBT ehf. og beitingu frammistöðumats varnaraðila við það val. Kæranda hafi ekki mátt vera ljóst hvernig valforsendum yrði beitt og þar með hvernig endanlega yrði staðið að vali tilboða fyrr en varnaraðili hafi tilkynnt um það val og rökstutt ákvörðun sína, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar í máli nr. 366/2013. Fram að þeim tíma hafi honum þannig ekki mátt vera ljóst hvernig frammistöðumatinu yrði í reynd beitt, þ.e. að hann fengi 0 stig á grundvelli tveggja ára gamals mats úr verki nr. 24025. Að því er varðar kærufrest vegna frammistöðumatsins sjálfs vísar kærandi til þess að hann hafi með engu móti mátt sjá fyrir að matið yrði notað sem afgerandi 30% valforsenda í útboði árið 2026. Kærufrestur vegna beitingar matsins í hinu kærða útboði hafi þannig byrjað að líða við fyrrgreinda ákvörðun varnaraðila 20. maí 2026 en ekki 13. janúar 2025 þegar honum hafi verið kynnt matið af hálfu varnaraðila.

Svo sem rakið er í ákvörðun kærunefndar útboðsmála 7. júlí 2026 í málinu hefur nefndin talið að bjóðendur hafi skamman frest til þess að kynna sér útboðsgögn og þar til kærufrestur vegna útboðsgagna og skilmála þeirra byrjar að líða, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Útboðsgögn í máli þessu voru birt 14. apríl 2026 en fyrirliggjandi kæra barst 29. maí sama ár. Í grein 2.5.2 í útboðslýsingu kemur fram að frammistöðumat verktaka gildi 30% á móti 70% verði og að hafi verktaki unnið fleiri en eitt plægingarverk fyrir verkkaupa á síðustu tveimur árum verði miðað við stigagjöf úr því verkefni sem var með flest mínusstig. Þá kom jafnframt fram í grein 2.5.2 að stigagjöf verktaka úr frammistöðumati fyrir hvert og eitt verk gilti í 36 mánuði.

Með hliðsjón af skýru orðalagi greinar 2.5.2 verður ekki fallist á með kæranda að honum hafi ekki mátt vera ljóst að frammistöðumat hans úr verki nr. 24025 yrði notað fyrr en við ákvörðun varnaraðila 20. maí 2026. Aðstæður í máli þessu eru því frábrugðnar því sem var fyrir hendi í fyrrgreindum dómi Hæstaréttar. Verður því lagt til grundvallar að kærandi hafi mátt vita af umræddu kæruefni við birtingu útboðsgagna og að kærufrestur hafi verið liðinn þegar kæra barst nefndinni 29. maí 2026. Þau kæruefni sem lúta að grein 2.5.2 að öðru leyti, svo sem að hún brjóti gegn jafnræðisreglu og meðalhófsreglu 40. gr. reglugerðar nr. 340/2017, eru sömuleiðis of seint fram komin enda mátti ráða þau öll af orðalagi fyrrgreindrar greinar við birtingu útboðsgagna 14. apríl 2026. Með hliðsjón af sömu rökum og að framan greinir verður einnig talið að kærufrestur vegna greinar 4.13 í útboðsgögnum hafi verið liðinn þegar kæra barst nefndinni. Lögmæti umræddra skilmála kemur því ekki til skoðunar í máli þessu.

Loks eru ekki efni til annars en að líta svo á að kærufrestur vegna frammistöðumatsins sjálfs og málsástæður þar að lútandi, svo sem að andmælaréttur hafi ekki verið virtur við gerð þess, hafi komið fram utan kærufrests sem hafi byrjað að líða í ársbyrjun 2025 er kæranda var fyrst kynnt matið í ársbyrjun 2025.

Eftir stendur málsástæða kæranda um að annmarki hafi verið á málsmeðferð varnaraðila þar sem að mat á hæfi hans hafi ekki farið fram áður en ákvörðun hafi verið tekin um val á tilboði. Á þá málsástæðu verður ekki fallist þar sem af 7. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017 leiðir ekki að framkvæma þurfi mat á öllum bjóðendum áður en ákvörðun er tekin um val tilboðs. Nægjanlegt er að meta hæfi þess bjóðanda sem hefur sett fram hagstæðasta tilboðið eftir þeim matsviðmiðum sem felast í útboðsskilmálum. Af því leiðir að þegar ljóst varð að tilboð VBT ehf. var hagkvæmast við útboðið var nægjanlegt að framkvæma mat á hæfi þess bjóðanda. Ástæðulaust var að framkvæma nánari skoðun á hæfi kæranda líkt og hann byggir á. Að öðru leyti hefur kærandi engin viðhlítandi rök fært fyrir því að mat á tilboði VBT ehf. eða hæfi þess hafi verið rangt í einhverjum atriðum sem máli geta skipt.

Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti er það mat nefndarinnar að varnaraðili hafi ekki brotið gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim í málinu. Verður kröfu kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila því hafnað.

Í ljósi niðurstöðu málsins verður kröfu kæranda um málskostnað hafnað. Varnaraðili hefur uppi kröfu um að kæranda verði gert að greiða sér málskostnað. Í lögum nr. 120/2016 er ekki að finna heimild til handa kærunefnd útboðsmála til þess að úrskurða varnaraðila málskostnað úr hendi kæranda. Verður kröfu varnaraðila að þessu leyti því hafnað.

Rétt þykir að málskostnaður falli niður.

 

Úrskurðarorð

Öllum kröfum kæranda, Línuborun ehf., í máli þessu er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 23. september 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?