13. nóvember 2026 /

Mál nr. 35/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 7. september 2026

í máli nr. 35/2026:

GTS ehf.

gegn

Fjársýslu ríkisins,

Sveitarfélaginu Árborg og

Icelandbus ehf.

 

Lykilorð

Málskostnaður.

Útdráttur

Kærandi, G, krafðist þess meðal annars að ákvörðun varnaraðila, F og S, um að velja tilboð I í hinu kærða útboði yrði felld úr gildi. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála hafnaði nefndin að aflétta stöðvun samningsgerðar, sem komst á með kæru G, og tóku F og S í kjölfarið ákvörðun um að afturkalla fyrrgreinda ákvörðun sína. G upplýsti nefndina þá um að hann liti svo á að hann hefði fengið kröfum sínum framgengt í málinu og að eina krafan sem stæði eftir að leysa úr væri krafa hans um málskostnað. Í úrskurði kærunefndar útboðsmála var litið svo á að F og S hefðu fallist á málatilbúnað kæranda í málinu og hann þannig fengið aðalkröfu sinni framgengt. Varnaraðilum var því gert að greiða G málskostnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 4. júní 2026 kærði GTS ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 23266, auðkennt „Skólaakstur fyrir Árborg“.

Upphaflegar kröfur kæranda voru aðallega að felld yrði úr gildi ákvörðun varnaraðila 26. maí 2026 um að velja tilboð Icelandbus ehf. í hinu kærða útboði. Til vara að kærunefnd útboðsmála veitti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum. Þá krafðist hann málskostnaðar úr hendi varnaraðila.

Varnaraðilar kröfðust þess í greinargerð sinni 8. júní 2026 að kærunefnd útboðsmála aflétti stöðvun samningsgerðar og hafnaði öllum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði.

Icelandbus ehf. krafðist þess í greinargerð sinni frá 17. júní 2026 að öllum kröfum kæranda yrði hafnað og banni við samningsgerð aflétt. Þá krafðist hann málskostnaðar úr hendi kæranda á grundvelli 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 25. júní 2026 var hafnað kröfu um að stöðvun samningsgerðar yrði aflétt.

Fyrir liggur að varnaraðilar tóku í kjölfarið ákvörðun 1. júlí 2026 um að velja tilboð GTS ehf. og afturkalla þannig fyrrgreinda ákvörðun frá 26. maí sama ár. Í kjölfarið beindi Icelandbus ehf. kæru til nefndarinnar 10. júlí 2026 og er það mál rekið fyrir nefndinni undir málsnúmerinu 44/2026. Kæran hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 sem aflétt var með ákvörðun nefndarinnar 29. júlí 2026.

Icelandbus ehf. skilaði lokaathugasemdum til nefndarinnar í fyrirliggjandi máli 7. júlí 2026 þar sem fyrrgreindar kröfur voru ítrekaðar.

Með tölvubréfi 13. júlí 2026 upplýstu varnaraðilar nefndina um að þeir myndu ekki legja fram frekari athugasemdir.

Kærandi skilaði lokaathugasemdum til nefndarinnar 14. ágúst 2026. Þar kemur meðal annars fram að hann telji ljóst að varnaraðilar hafi orðið við aðalkröfu hans með fyrrgreindri afturköllun á ákvörðun um val á tilboði Icelandbus ehf. Kærandi líti svo á að hann hafi fengið kröfum sínum framgengt í málinu og að eina krafan sem standi eftir að leysa úr sé krafa hans um málskostnað úr hendi varnaraðila.

Í ljósi framangreinds lítur kærunefnd útboðsmála svo á að kærandi hafi fallið frá öllum kröfum sínum í málinu að undanskilinni kröfu um málskostnað.

Um málsatvik, ágreiningsefni og málsástæður aðila vísast einkum til ákvörðunar nefndarinnar í málinu frá 25. júní 2026. Ekki þykir þörf á að gera nánar grein fyrir málatilbúnaði kæranda, varnaraðila eða hagsmunaaðila, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016. Kærunefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

 

Niðurstaða

Í málinu krafðist kærandi þess aðallega að ákvörðun varnaraðila 26. maí 2026 um að velja tilboð Icelandbus ehf. í hinu kærða útboði yrði felld úr gildi. Svo sem rakið er hér að framan afturkölluðu varnaraðilar þessa ákvörðun sína 1. júlí 2026 í kjölfar þess að kærunefnd útboðsmála hafnaði að aflétta stöðvun samningsgerðar með ákvörðun 25. júní sama ár. Með hliðsjón af atvikum málsins sem og sjónarmiðum varnaraðila um grundvöll afturköllunar, sem nánar eru rakin í ákvörðun kærunefndar útboðsmála 29. júlí 2026 í máli nr. 44/2026, verður litið svo á að varnaraðilar hafi fallist á málatilbúnað kæranda í málinu og hann þannig fengið aðalkröfu sinni framgengt. Verður varnaraðilum því gert að greiða kæranda málskostnað í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði.

Hvað málskostnaðarkröfu Icelandbus ehf. varðar er til þess að líta að ekki stendur lagaheimild til þess að úrskurða honum málskostnað úr hendi kæranda. Kröfunni er því hafnað.

 

Úrskurðarorð

Varnaraðilar, Fjársýsla ríkisins og Sveitarfélagið Árborg, greiði kæranda, GTS ehf., óskipt 750.000 krónur í málskostnað.

Kröfu Icelandbus ehf. um málskostnað er hafnað.

 

Reykjavík, 7. september 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?