Mál nr. 42/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála, aðgangur að gögnum.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 4. september 2026
í máli nr. 42/2026:
Rafmiðlun hf.
gegn
Nýjum Landspítala ohf.
Fagtækni hf.
Raftákn ehf. og
Víkingbátar ehf.
Lykilorð
Aðgangur að gögnum.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála lagði til grundvallar að kærandi ætti rétt til aðgangs að tilteknum gögnum sem varnaraðili hafði lagt fram við meðferð málsins þó með þeim hætti að tilteknar upplýsingar skyldu afmáðar úr einu skjali fyrir afhendingu þess til kæranda.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 9. júlí 2026 kærði Rafmiðlun hf. (hér eftir „kærandi“) útboð Nýs Landspítala ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. I4084 auðkennt „Rafkerfi fyrir meðferðarkjarna K2 til 4. hæð“.
Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Varnaraðili lagði fram athugasemdir 17. júlí 2026 og hagsmunaaðilar 22. sama mánaðar.
Með ákvörðun 29. júlí 2026 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfum varnar- og hagsmunaaðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboðinu. Hagsmunaaðilar lögðu fram lokaathugasemdir sínar 19. ágúst 2026 og varnaraðili degi síðar.
Með tölvupósti 21. ágúst 2026 krafðist kærandi þess að fá aðgang að tilteknum fylgiskjölum með athugasemdum varnaraðila en varnaraðili hafði krafist þess að gætt yrði trúnaðar um skjölin við meðferð málsins. Nefndin leitaði eftir afstöðu varnar- og hagsmunaaðila og lögðust hagsmunaaðilar gegn afhendingu gagnanna með svari 27. ágúst 2026. Athugasemdir bárust frá varnaraðila 1. september 2026.
Á fylgiskjalalista með athugasemdum varnaraðila 17. júlí 2026 voru tilgreind tvö gögn sem voru merkt sem trúnaðarmál. Varnaraðili lagði á hinn bóginn fram ellefu skjöl með athugasemdunum, sbr. eftirfarandi gögn:
1. Útfyllt eyðublað með upplýsingum um Fagtækni hf.
2. Útfyllt eyðublað með upplýsingum um Raftákn ehf.
3. Útfyllt eyðublað með upplýsingum um Víkingbáta ehf.
4. Útfyllt eyðublað með lýsingu á aðild að tilboði og skipulagi.
5. Skjal með upplýsingum um verkefni Fagtækni hf.
6. Skjal með upplýsingum um verkefni Raftákns ehf.
7. Útfyllt eyðublað um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Hjúkrunarheimili Boðaþing 11-13“.
8. Útfyllt eyðublað um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Skúlagata 4 ráðuneytisbygging“.
9. Útfyllt eyðublað um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Úlfarsárdalur 4 og 5 áfangi bókasafn, menningarmiðstöð og sundlaug fullnaðarfrágangur“.
10. Útfyllt eyðublað um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Kársnesskóli – Nýtt skólahúsnæði við Skólagerði Útboð 21323“.
11. Samstarfssamningur Fagtækni hf., Raftákn ehf. og Víkingbáta ehf.
Þá er í öðru lagi deilt um aðgang að hluta þeirra fylgiskjala sem varnaraðili lagði fram með viðbótarathugasemdum sínum 20. ágúst 2026, sbr. eftirfarandi gögn.
12. Skjal með leiðréttum upplýsingum um tæknilega og faglega getu Fagtækni hf.
13. Tölvupóstssamskipti milli Fagtækni hf. og varnaraðila, dags. 22. og 24. júní 2026.
14. Útfyllt eyðublað um fyrra verk kæranda, sbr. verkið „RVK – Edition“.
Rétt þykir að geta þess að fyrrgreind tölvupóstssamskipti eru ekki tilgreind á fylgiskjalalistanum sem var að finna í athugasemdum varnaraðila.
Kærandi bendir á að nauðsynlegt sé fyrir hann að fá aðgang að umbeðnum gögnum. Þá sé búið að upplýsa um efni skjalanna í greinargerð og rökstuðningi varnaraðila í ákvörðun sinni og því geti ekki verið um trúnaðarmál að ræða.
Hagsmunaaðilar segja að gögnin hafi að geyma viðkvæmar upplýsingar um viðskipti félaganna, tæknilega getu og innra samstarfsfyrirkomulag sem sé eðlilegt að haldið sé frá samkeppnisaðila. Í þessu sambandi er vísað til 17. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 17. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Gögn um tæknilega og faglega getu Fagtækni hf. og Raftákns ehf. hafi m.a. að geyma upplýsingar um reynslu, viðskiptavini og sérhæfða tæknileg getu félaganna. Samstarfssamningur félaganna lýsi jafnframt innbyrðis verkaskiptingu, ábyrgð og öðrum forsendum samstarfsins. Afhending slíkra upplýsinga til samkeppnisaðila geti skaðað viðskiptahagsmuni félaganna. Þá hafi varnaraðili þegar gert grein fyrir efni og megininntaki þeirra upplýsinga úr umræddum gögnum sem hafi þýðingu fyrir ágreiningsefni málsins. Að mati hagsmunaaðila hafi kærandi því þegar fengið þær upplýsingar sem nauðsynlegar séu til að hann geti gætt hagsmuna sinna. Telji kærunefndin engu að síður að veita beri kæranda aðgang að gögnunum að einhverju leyti sé þess krafist að viðkvæmar upplýsingar verði afmáðar áður en gögnin eru afhent. Er þá einkum átt við upplýsingar um nöfn viðskiptavina og aðrar auðkennanlegar upplýsingar á kynningarblöðum hagsmunaaðila, sem og þá hluta samstarfssamnings aðila sem lýsi innbyrðis verkaskiptingu, ábyrgð, tæknilegu fyrirkomulagi og öðrum viðskipta- og samstarfsforsendum félaganna.
Varnaraðili segir að hann hafi skuldbundið sig til að halda trúnaði um viðkvæmar upplýsingar frá bjóðendum, sbr. meðal annars greinar 1.5.10 og 1.2.20 í útboðsskilmálum og 17. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í því ljósi hafi varnaraðili almennt stigið varlega til jarðar áður en upplýsingar um viðskipti einstakra bjóðenda séu afhentar öðrum óháð því hvort þær séu auðkenndar sérstaklega sem trúnaðargögn. Umbeðin gögn hafi að geyma upplýsingar um viðskipti einstakra bjóðenda en einnig fjárhagsmálefni og tæknilausnir, upp að vissu marki. Þar sem skjölin hafi einnig að geyma upplýsingar sem hafi þýðingu fyrir kæruefnið hafi varnaraðili talið rétt að afhenda kærunefndinni skjölin sem trúnaðargögn og lýsa að auki meginefni þeirra (því sem á við í málinu) í athugasemdum sínum. Að mati varnaraðila sé megininntaki skjalanna lýst með fullnægjandi hætti í öðrum fyrirliggjandi skjölum. Jafnframt bendir varnaraðili á að eitt þeirra skjala sem hafi verið trúnaðarmerkt varði kæranda og sé trúnaðarmerking þess skjals ekki ætluð kæranda heldur öðrum málsaðilum.
Í ákvörðun þessari verður leyst úr kröfu kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum en málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.
Niðurstaða:
Umbeðin gögn teljast til málsgagna í því stjórnsýslumáli sem rekið er fyrir kærunefnd útboðsmála á milli málsaðila, en um meðferð kærumála fyrir nefndinni gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993, sbr. 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Hefur óheftur aðgangur að gögnum máls verið talinn nauðsynlegur til að tryggja að réttur aðila til að koma að skýringum og leiðrétta fyrirliggjandi gögn nýtist að fullu. Gerðar eru undantekningar frá þessari grunnreglu í 16. og 17. gr. laganna, en að mati nefndarinnar er ljóst að einungis 17. gr. laganna getur komið til álita um þau gögn sem kærandi krefst aðgangs að. Samkvæmt þeirri grein er stjórnvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef hagsmunir hans af því að notfæra sér vitneskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum. Við mat á þessum skilyrðum ákvæðisins verður meðal annars að horfa til þess að ákvæði 17. gr. laganna er undantekning frá þeirri meginreglu að málsaðili eigi rétt á því að kynna sér málsgögn auk þess sem líta ber til þeirra hagsmuna sem reglum um opinber innkaup er ætlað að þjóna, þ. á m. hvort afhending upplýsinga getur raskað jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup.
Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér umbeðin gögn en þau eru nánar listuð upp hér að framan. Skjal nr. 14 hefur einungis að geyma upplýsingar sem varða kæranda og útskýrði varnaraðili í svari sínu til nefndarinnar að trúnaðarmerking skjalsins hafi ekki verið ætlað að standa í vegi fyrir afhendingu þess til kæranda. Verður því fallist á kröfu kæranda um aðgang að því skjali.
Á meðal umbeðinna gagna er samstarfssamningur Fagtækni hf., Raftákn ehf. og Víkingbáta ehf., sbr. skjal nr. 11 hér að framan. Í skjalinu er að finna nokkuð ítarlega upplýsingar um fyrirhugaða verk- og ábyrgðaskiptingu milli umræddra félaga við framkvæmd verksins. Að mati kærunefndar útboðsmála verður að telja að þessar upplýsingar varði einkahagsmuni félaganna. Í ljósi fyrirliggjandi gagna verður ekki séð á þessu stigi málsins að umræddar upplýsingar hafi slíka þýðingu fyrir kæruefni málsins að hagsmunir kæranda af afhendingu þessa hluta skjalsins vegi þyngra en hagsmunir viðkomandi félaga af því að gætt verði trúnaðar um efni hans. Verður því að telja að umræddir einkahagsmunir séu mun ríkari en hagsmunir kæranda af aðgangi að umræddum upplýsingum, sbr. 17. gr. stjórnsýslulaga. Ekki verður séð að skjalið hafi að öðru leyti að geyma viðkvæmar upplýsingar. Að þessu gættu verður kæranda veittur aðgangur að skjalinu með þeim hætti að tilteknar upplýsingar skulu afmáðar úr því, sbr. nánar það sem greinir í ákvörðunarorði.
Að öðru leyti en greinir hér að framan verður að telja að þær upplýsingar sem koma fram í umbeðnum gögnum séu fyrst og fremst almenns eðlis. Verður þannig ekki séð að í gögnunum komi fram upplýsingar um viðkvæm viðskiptaleg málefni Fagtækni hf., Raftákn ehf. eða Víkingbáta ehf. eða aðrar upplýsingar sem er eðlilegt að leynt fari með tilliti til hagsmuna félaganna. Í þessu samhengi er þess að gæta að röksemdir sem varnar- og hagsmunaaðilar hafa teflt fram fyrir undanþágu gagnanna eru almenns eðlis. Jafnframt er það mat kærunefndar útboðsmála að eðlilegt sé með hliðsjón af kæruefninu að veita kæranda tækifæri til að tjá sig um þessi skjöl og að ekki skipti máli þótt kærandi kunni að hafa aðgang að öðrum gögnum sem varpi ljósi á meginefni umbeðinna gagna.
Samkvæmt framangreindu verður að telja að öll umbeðin gögn, að undanskildum hluta skjals nr. 11, varði ekki mun ríkari einkahagsmuni Fagtækni hf., Raftákns ehf. eða Víkingbáta ehf. í skilningi 17. gr. stjórnsýslulaga. Verður kæranda því veittur aðgangur að skjölunum, sbr. nánar það sem greinir í ákvörðunarorði:
Ákvörðunarorð:
Kæranda, Rafmiðlun hf., er veittur aðgangur að eftirfarandi fylgiskjölum með athugasemdum varnaraðila, Nýs Landspítala ohf., dags. 17. júlí 2026 og 20. ágúst 2026:
1. Útfylltu eyðublaði með upplýsingum um Fagtækni hf.
2. Útfylltu eyðublaði með upplýsingum um Raftákn ehf.
3. Útfylltu eyðublaði með upplýsingum um Víkingbáta ehf.
4. Útfylltu eyðublaði með lýsingu á aðild að tilboði og skipulagi.
5. Skjali með upplýsingum um verkefni Fagtækni hf.
6. Skjali með upplýsingum um verkefni Raftákns ehf.
7. Útfylltu eyðublaði um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Hjúkrunarheimili Boðaþing 11-13“.
8. Útfylltu eyðublaði um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Skúlagata 4 ráðuneytisbygging“.
9. Útfylltu eyðublaði um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Úlfarsárdalur 4 og 5 áfangi bókasafn, menningarmiðstöð og sundlaug fullnaðarfrágangur“.
10. Útfylltu eyðublaði um fyrra verk Fagtækni hf., sbr. verkið „Kársnesskóli – Nýtt skólahúsnæði við Skólagerði Útboð 21323“.
11. Samstarfssamningi Fagtækni hf., Raftákn ehf. og Víkingbáta ehf., þó með þeim hætti að afmá skal allar upplýsingar í 2. gr. og 3. gr. skjalsins.
12. Skjali með leiðréttum upplýsingum um tæknilega og faglega getu Fagtækni hf.
13. Tölvupóstssamskiptum milli Fagtækni hf. og varnaraðila, dags. 22. og 24. júní 2026.
14. Útfylltu eyðublaði um fyrra verk kæranda, sbr. verkið „RVK – Edition“.
Að öðru leyti er kröfu kæranda hafnað.
Reykjavík, 4. september 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir