13. nóvember 2026 /

Mál nr. 47/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. september 2026

í máli nr. 47/2025:

Keyrt og mokað ehf. og

Búaðstoð ehf.

gegn

Bolungarvíkurkaupstað,

Þotunni ehf. og

Sigurgeiri Jóhannssyni ehf.

 

Lykilorð

Sveitarfélag. Bindandi samningur. Fjárhagslegt hæfi. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað. Óvirkni samnings. Viðmiðunarfjárhæðir.

Útdráttur

K og B kærðu ákvörðun BK um að velja tilboð Þ í útboði um gatnagerð, frágang lagna og göngustíga í nánar tilgreindu hverfi og kröfðust þess að hún yrði felld úr gildi. Þá gerðu þeir jafnframt kröfu um að kærunefnd útboðsmála veitti álit sitt á skaðabótaskyldu BK. Í ljósi þess að komist hefði á bindandi samningur milli BK og Þ kom seinni krafan einungis til skoðunar. Aðilar deildu aðallega um hvort K og B uppfylltu kröfur útboðsins um fjárhagslegt hæfi, einkum um að þeir skyldu vera í skilum með opinber gjöld þegar þeir skiluðu inn tilboði sínu, sem og hvort þeir hefðu lagt fram verktryggingu í samræmi við útboðsskilmála. Óumdeilt var að K og B lögðu fram með tilboði sínu yfirlit sem sýndi að B væri ekki í skilum með opinber gjöld en K og B byggðu á því að yfirlitið, sem hefði verið afhent af sýslumanni, hefði ekki sýnt rétta stöðu mála. Kærunefnd útboðsmála vísaði til þess að það væri á ábyrgð K og B að gæta þess að gögn sem vörpuðu réttu ljósi á stöðu þeirra væru lögð fram með tilboði þeirra. Þá féllst nefndin ekki á með K og B að BK hefði borið að afla frekari skýringa á þessu atriði eða líta svo á að um væri að ræða minni háttar vöntun eða formannmarka á fylgigögnum. Nefndin féllst einnig á með BK að K og B hefðu ekki lagt fram verktryggingu í samræmi við útboðsskilmála enda hefði hún ekki verið án skilyrða. Taldi nefndin því BK rétt að telja tilboð K og B ógilt. Kröfu K og B um álit á skaðabótaskyldu BK var því hafnað. K og B gerðu einnig þær kröfur í málinu að allir samningar BK um jarðvinnu og snjómokstur, sem ekki hefðu verið boðnir út, yrðu gerðir óvirkir og að BK yrði gert skylt að bjóða út þau verkefni sem ekki hefðu verið boðin út þrátt fyrir lagaskyldu. Kærunefnd útboðsmála komst að þeirri niðurstöðu að umrædd innkaup hefðu ekki verið útboðsskyld á þeim grundvelli að þau náðu ekki viðmiðunarfjárhæðum. Kröfum K og B var því að þessu leyti vísað frá nefndinni.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 30. september 2025 kærðu Keyrt og mokað ehf. og Búaðstoð ehf. (hér eftir „kærendur“) þá ákvörðun Bolungarvíkurkaupstaðar (hér eftir „varnaraðili“) 16. september 2025 að velja tilboð Þotunnar ehf. í útboði varnaraðila auðkenndu „Lundahverfi, Gatnagerð og lagnir.“

Kærendur krefjast stöðvunar innkaupaferlis eða samningsgerðar um stundarsakir samkvæmt 110. gr. laga nr. 120/2016. Þá krefjast þeir þess að ákvörðun varnaraðila, um val á tilboði, verði felld úr gildi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærendur gera jafnframt kröfu um að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, sbr. 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 119. gr. sömu laga, hafi varnaraðili þegar gert samning eða ef varnaraðili ákveður að hætta ekki við samningsgerð.

Kærendur krefjast þess jafnframt að „allir samningar varnaraðila um jarðvinnu og snjómokstur, sem ekki hafa verið boðnir út, verði gerðir óvirkir“, sbr. 115. gr. laga nr. 120/2016 eða að öðrum úrræðum verði beitt samkvæmt 118. gr. sömu laga. Til viðbótar við  framangreindar kröfur gera kærendur einnig kröfu um að kærunefnd útboðsmála kalli eftir öllum gögnum og upplýsingum um hið kærða útboð á grundvelli 4. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016, þ. á m. afriti af upphaflegu tilboði Þotunnar ehf.; upplýsingar um hvaða gögnum hafi verið kallað eftir hjá Þotunni ehf. eftir opnun tilboða og gögnum og samskiptum vegna þessa; afriti af minnisblaði nánar tilgreindrar lögmannsstofu um tilboð Þotunnar ehf.; upplýsingar frá Eflu um mat á tilboðum Þotunnar ehf. og kærenda; og allar aðrar upplýsingar sem varða mat á tilboðum. Að auki krefjast kærendur þess að kærunefnd útboðsmála kalli eftir upplýsingum um samninga sem varnaraðili hafi gert við Þotuna ehf. og fyrirtæki sömu fjölskyldu um jarðvinnu og snjómokstur síðustu fjögur ár og fjárhæð þeirra. Komi í ljós að verkefni hafi ekki verið boðin út þrátt fyrir lagaskyldu þar að lútandi er þess jafnframt krafist að kærunefnd útboðsmála leggi fyrir varnaraðila að bjóða þau viðskipti út samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Loks gera kærendur kröfu um málskostnað, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir.

Varnaraðili krefst þess að öllum kröfum kærenda verði hafnað.

Þotan ehf. hefur ekki látið málið til sín taka.

Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. desember 2025 var kröfu um stöðvun samningsgerðar hafnað. Aðilum var í kjölfarið veittur frestur til að skila inn lokaathugasemdum.

Varnaraðili lagði fram lokaathugasemdir sínar 13. janúar 2026 en kærendur 27. sama mánaðar. Þotan ehf. lét málið ekki til sín taka.

Á síðari stigum málsins, og með hliðsjón af fyrrgreindum kröfum kærenda um óvirkni, taldi kærunefnd útboðsmála rétt að veita fyrirtækinu Sigurgeiri Jóhannssyni ehf. einnig færi á að koma á framfæri athugasemdum við nefndina og var það gert með tölvubréfi 6. ágúst 2026. Fyrirtækið lét málið ekki til sín taka.

Með tölvubréfi 12. ágúst 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir nánari upplýsingum frá varnaraðila. Svarbréf barst nefndinni frá varnaraðila 1. september 2026.

 

I

Varnaraðili auglýsti hið kærða útboð 2. júlí 2025. Samkvæmt grein 0.1 í útboðsgögnum var óskað eftir tilboðum í gatnagerð, frágang lagna og göngustíga í Lundahverfi í Bolungarvík. Fram kom að um væri að ræða gatnagerð heils hverfis. Heildarlengd gatna væri um 800 metrar, með gangstétt beggja megin við götuna nema í botnlöngum, um 840 metrar. Skyldi verktaki grafa út götustæði, fylla burðarhæfu efni í götustæði, þjappa og koma fyrir vatns- og fráveitulögnum og gatnalýsingu. Einnig væru innifaldar lagnir veitufyrirtækja og þá skyldu gangstéttar hellulagðar og götur undirbúnar undir malbikun.

Samkvæmt grein 0.4.3 skyldu bjóðendur skila undirrituðu tilboðsblaði og tilboðsskrá á pappírsformi og rafrænni tilboðsskrá í afgreiðslu bæjarskrifstofu varnaraðila í lokuðu umslagi sem væri greinlega merkt bjóðanda. Í grein 0.1.3.2 komu fram lágmarkskröfur um fjárhagslega stöðu bjóðenda. Á meðal krafna undir þessum lið var að bjóðandi skyldi vera í skilum með opinber gjöld þegar hann skilaði inn tilboði. Í grein 0.4.2 kom fram að ekki yrði gengið til samninga við bjóðanda ef hann skuldaði opinber gjöld. Að auki skyldi bjóðandi vera í skilum með lífeyrissjóðsiðgjöld starfsmanna sinna þegar hann skilaði inn tilboði, sbr. einkum grein 0.1.3.2.

Í grein 0.1.3.5 kom fram að eftir opnun og yfirferð tilboða skyldu þeir bjóðendur sem kæmu til greina sem viðsemjendur láta í té innan viku m.a. yfirlýsingu frá banka/tryggingarfélagi um að bjóðandi muni fá verktryggingu vegna verksins, án skilyrða, væri þess óskað. Þá sagði í grein 0.4.6 að verkkaupi áskildi sér rétt til að láta minni háttar vöntun eða formannmarka á fylgigögnum með tilboði ekki hafa áhrif á gildi tilboða, enda hefði vöntunin eða annmarkinn að mati verkkaupa ekki áhrif á tölulega niðurstöðu tilboðs, jafnræði bjóðenda væri ekki raskað og ógildi tilboðs fæli í sér strangari ákvörðun en nauðsynlegt væri vegna eðlis og umfangs annmarkans.

Hinn 17. júlí 2025 voru tilboð opnuð og bárust þrjú tilboð. Kostnaðaráætlun varnaraðila nam 314.551.607 krónum. Í opnunarskýrslunni kom fram að tilboð kærenda hefði numið 88% af kostnaðaráætlun en tilboð Þotunnar ehf. 92% af kostnaðaráætlun.

Bæjarráð varnaraðila tók málið fyrir á fundi 19. ágúst 2025. Í fundargerð var fært til bókar að bæjarstjóri hefði lagt fram tölvupóst frá bæjarlögmanni sem hefði lagt mat á tilboð og meðfylgjandi gögn lægstbjóðanda, þ.e. kærenda. Í tölvupóstinum kæmi fram að eftir mat á tilboðinu og miðað við þau gögn sem varnaraðili hefði undir höndum fengist ekki séð að kærendur uppfylltu kröfur útboðsins. Fól bæjarráð því bæjarstjóra að hafna tilboði þeirra á þessum forsendum og hefja viðræður við næstlægstbjóðanda, þ.e. Þotuna ehf. Bréf þessa efnis var sent til kærenda 20. ágúst 2025. Kærendur svöruðu bréfi varnaraðila degi síðar þar sem m.a. var óskað eftir rökstuðningi.

Hinn 22. ágúst 2025 svaraði varnaraðili erindi kærenda frá deginum áður með tölvupósti. Í svari varnaraðila var tekið fram að við yfirferð á tilboði kærenda hefði komið í ljós að annar kærenda, Búaðstoð ehf., væri í vanskilum með opinber gjöld samkvæmt þeim gögnum sem hefðu verið lögð fram með tilboðinu. Í ljós hefði komið að samkvæmt yfirliti yfir stöðu félagsins hjá innheimtumanni, miðað við 17. júlí 2025, væru tiltekin gjöld fallin á eindaga og teldust þar með í vanskilum. Þá var vísað til annarra athugasemda um hæfi kærenda sem fram kæmu í tölvupósti frá lögmanni varnaraðila frá 18. ágúst 2025. Meðal þeirra voru að framlögð yfirlýsing um verktryggingu kærandans Keyrðs og mokaðs ehf. hefði ekki verið án skilyrða líkt og útboðsskilmálar gerðu ráð fyrir.

Kærendur svöruðu framangreindum tölvupósti varnaraðila  22. ágúst 2025 og færðu fram frekari skýringar og lögðu fram gögn til staðfestingar á greiðslu á opinberum gjöldum. Þá lögðu kærendur fram verkábyrgð 25. ágúst 2025 fyrir Búaðstoð ehf. með tölvupósti og staðfestingu til lögmanns varnaraðila. Kærendur skiluðu einnig vottorði um skil á lífeyrissjóðsskuldbindingum.

Hinn 11. september 2025 sendu kærendur erindi til varnaraðila og óskuðu eftir upplýsingum um stöðu hins kærða útboðs. Auk þess var óskað eftir upplýsingum um hvort tilboði þeirra hefði verið hafnað og, ef svo væri, rökstuðningi fyrir því.

Varnaraðili tilkynnti um töku tilboðs Þotunnar ehf. 16. september 2025. Var bjóðendum jafnframt leiðbeint um fimm daga biðtíma samningsgerðar „frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.“

Kærendur ítrekuðu fyrrgreint erindi sitt 17. september 2025 og gerðu jafnframt athugasemd við orðalag í tilkynningu varnaraðila um biðtíma samningsgerðar.

Erindi kærenda var svarað með bréfi varnaraðila dagsettu 19. september 2025.

Hinn 22. september 2025 ítrekuðu kærendur erindi sitt og óskuðu jafnframt eftir aðgangi að nánar tilgreindum gögnum.

Kæra barst kærunefnd útboðsmála 30. september 2025 líkt og áður greinir.

 

II

Kærendur vísa til þess að hið kærða útboð hafi ekki verið í samræmi við skýr fyrirmæli 22. gr. laga nr. 120/2016 í ljósi þess að tilboði skyldi skila í lokuðu umslagi samkvæmt grein 0.4.3 í útboðsgögnum. Það sé þó ekki kæruefni út af fyrir sig en það geri kærendum erfitt að sýna fram á framgang útboðsins og hvernig gagnaöflun hafi farið fram, sem hafi áhrif á möguleika kærenda til að sýna fram á dagsetningar og samskipti. Allan vafa beri að skýra kærendum í hag. Vísa kærendur í þessu sambandi til þess að framsetning útboðsins, sem hafi ekki verið í rafrænu útboðskerfi, hafi boðið upp á ógagnsæ samskipti milli bjóðenda og kaupanda á tilboðsfresti, sbr. einnig kröfur 13. gr. reglugerðar nr. 955/2016. Framkvæmd útboðsins að þessu leyti hafi verið í andstöðu við 22. gr. laga nr. 120/2016 og einnig meginreglu 15. gr. sömu laga, en samskipti um skil á gögnum hafi farið fram bæði með tölvupóstum og í símtölum.

Þá vísa kærendur einnig til þess að bæjarráð varnaraðila hafi bókað 19. ágúst 2025 um að bæjarstjóra væri falið að hafna tilboði kærenda, sem lægstbjóðanda, á forsendum minnisblaðs bæjarlögmanns og „hefja viðræður við næstlægstbjóðanda“, þ.e. Þotuna ehf. Á þessum tíma hafi kærendum ekki verið tilkynnt formlega um val tilboðs og ekki verið búið að meta hæfi Þotunnar ehf. Það sé andstætt meginreglum 15. gr. laga nr. 120/2016 að „ræða við bjóðendur um þeirra tilboð í almennu útboði“. Kærendur telji að bæjarráð hafi með bókun sinni verið þegar búið að ákveða að semja við Þotuna ehf. enda enginn fyrirvari gerður um hæfi fyrirtækisins.

Þá vísa kærendur til þess að upplýsingar um ákvörðun bæjarráðs hafi verið tilkynnt þeim frá tæknideild varnaraðila 20. ágúst 2025. Sú tilkynning hafi gefið kærendum tækifæri til að leiðrétta þann misskilning um að annar kærenda hefði verið í vanskilum með opinber gjöld. Kærendur hafi leiðrétt það um leið og þeir hafi fengið upplýsingar um ástæðu höfnunar tilboðs þeirra. Þá hafi varnaraðila mátt gruna að kærendur færu ekki að hafa fyrir því að leggja fram tilboð sem augljóslega væri ógilt af þessum sökum. Hefði varnaraðili haft fyrir því að spyrja um þetta við mat á tilboðum hefði hið rétta komið í ljós. Annar kærenda, Búaðstoð ehf., hafi sótt vottorð hjá sýslumanni um skil á opinberum gjöldum sama dag og tilboð hafi verið opnuð. Hann hafi ekki grunað að vottorðið gæfi ekki rétta mynd af því að hann væri þegar búinn að greiða opinberu gjöldin. Þessi villa hafi ekki verið honum að kenna.

Varnaraðila hafi verið kunnugt um mistökin sem hefðu orðið varðandi vottorð um opinber gjöld Búastoðar ehf. 21. ágúst 2025. Næstum mánuði síðar hafi varnaraðili tilkynnt um val á tilboði Þotunnar ehf. Allan þann tíma hafi varnaraðila verið heimilt að falla frá þessari meginástæðu fyrir höfnun tilboðs kærenda. Það sé í andstöðu við 15. gr. laga nr. 120/2016 að láta þennan annmarka valda ógildi tilboðsins, sbr. 5. mgr. 66. gr. laganna, og einnig áskilnað í grein 0.4.6 þar sem verkkaupi áskildi sér rétt til að láta minni háttar vöntun eða formannmarka á fylgigögnum með tilboði ekki hafa áhrif á gildi tilboða.

Þá vísa kærendur til þess að upphaflega hafi tilboði þeirra verið hafnað vegna vanskila á opinberum gjöldum. Ekki hafi verið minnst á galla á yfirlýsingu um verkábyrgð í tilkynningu um höfnun tilboðs heldur það komið fram síðar. Kærendur hafni sjónarmiðum varnaraðila viðvíkjandi verkábyrgð þeirri sem skilað var inn með tilboðinu og benda á að engin verkábyrgð sé gefin út skilyrðislaust fyrr en að viðkomandi fyrirtæki fái tiltekið verk. Þá andmæla kærendur því að verkábyrgðin hafi eingöngu átt við um hlut annars kærenda, þ.e. Keyrðs og mokaðs ehf., heldur gilti hún um verkið í heild, auk þess sem þeir byggi á fjárhagslegu og tæknilegu hæfi hvors annars, sbr. 76. gr. laga nr. 120/2016. Kærendur hafi í tölvubréfi til varnaraðila 25. ágúst 2025 auk þess skilað yfirlýsingu frá Íslandsbanka þar sem m.a. hafi komið fram að bankinn væri „tilbúinn  að veita Búaðstoð nauðsynlega verkábyrgð gagnvart Bolungarvíkurkaupstað vegna Lundarhverfis“. Þá hafi varnaraðili getað nýtt heimild 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 til að kalla eftir frekari upplýsingum um hina umdeildu verkábyrgð.

Kærendur andmæla einnig sjónarmiðum varnaraðila þess efnis að þeir hafi ekki lagt fram öryggis- og heilbrigðisáætlun. Benda kærendur á að þeir starfi samkvæmt slíkri áætlun, enda sé gerð krafa um það í verkum sem þeir hafi unnið fyrir Vegagerðina. Þá séu útboðsgögn misvísandi um það hvenær hafi átt að skila öryggisáætlun. Að auki hafi í rökstuðningi varnaraðila komið fram að áhöld væru um hvort tilboð kærenda hefði uppfyllti kröfu útboðsgagna um að stjórnendur hefðu unnið með gæðastjórnunarkerfi í a.m.k. tveimur verkum. Kærendur hafi hins vegar lagt fram með tilboði sínu upplýsingar um sín gæðastjórnunarkerfi og upplýsingar um fyrri verk. Með því að leggja fram tilboð og framangreind gögn hafi þeir staðfest að þeir hefðu unnið með gæðastjórnunarkerfi í a.m.k. tveimur verkum. Þetta hafi þeir staðfest við Eflu. Enn fremur andmæli kærendur þeim sjónarmiðum í minnisblaði lögmanns varnaraðila um að ekki hafi fylgt með tilboði þeirra uppfært vottorð frá lífeyrissjóðum um skil á iðgjöldum. Í útboðsgögnum hafi ekki komið fram hversu gömul slík vottorð skyldu vera, en kærendur hafi lagt fram sama vottorð og í fyrra útboði þar sem tilboð voru opnuð 26. júní 2025 enda hafi stuttur tími verið milli útboða. Vegna athugasemda hafi kærendur sent frekari staðfestingu á skilum á lífeyrissjóðsgjöldum með tölvupósti til varnaraðila 25. ágúst 2025.

Kærendur byggja einnig á því að tilboð Þotunnar ehf. hafi ekki uppfyllt kröfu útboðsgagna um tæknilegt hæfi, sbr. grein 0.1.3.1. Þá sé ekkert gagnsæi í því hvernig tilboð hafi verið lögð fram þannig að kærendur geti séð á hvaða tímapunkti upplýsingar hafi verið lagðar fram og hvaða skýringar Þotunni ehf. hafi verið heimilt að leggja fram sem og hvort óskað hafi verið sérstaklega eftir þeim. Því óska kærendur eftir því að nefndin kalli eftir afriti af tilboði Þotunnar ehf. og öllum upplýsingum um mat á tilboði félagsins sem og hvenær gögn voru lögð fram og hvort og hvenær kallað var eftir viðbótarskýringum ef um það var að ræða.

Í framhaldi af framlagningu kæru til kærunefndar útboðsmála sendu kærendur tölvupóst til kærunefndarinnar. Með honum voru áframsend samskipti við Skattinn, þar sem kærendur óskuðu staðfestingar á greiðslu á opinberum gjöldum. Þau samskipti voru einnig send til varnaraðila en í samskiptunum kemur fram staðfesting þess efnis að Búaðstoð ehf. hafi ekki verið í vanskilum með staðgreiðslu og tryggingagjald 17. júlí 2025. Krafa hafi verið greidd í heimabanka 16. júlí 2025 og greiðslan hafi verið bókuð inn í kerfið 18. sama mánaðar.

Með hliðsjón af framangreindu telja kærendur ljóst að þeir áttu raunhæfa möguleika á að verða valdir af kaupanda í útboði varnaraðila auðkenndu „Lundahverfi, Gatnagerð og lagnir“ og möguleikar þeirra skerst vegna framangreindra brota varnaraðila.

Kærendur telja jafnframt að varnaraðili semji við Þotuna ehf. og fyrirtæki í eigu sömu fjölskyldu um alls kyns verkefni sem kærendur hafi ekki haft möguleika á að keppa við á jafnréttisgrundvelli. Kærendur hafi til að mynda ekki orðið varir við að varnaraðili hafi boðið út vetrarþjónustu í mörg ár eða jarðvinnu af ýmsu tagi. Sem dæmi nefna kærendur að árið 2019 hafi kostnaður við snjómokstur numið 37.000.000 krónum sem sé yfir viðmiðunarfjárhæð um útboðsskyldu. Kærendur telji að slík þjónusta sé útboðsskyld og af þessum sökum varði kæran einnig stöðug innkaup varnaraðila á þjónustu Þotunnar ehf. og tengds fyrirtækis vegna snjómoksturs og jarðvinnu án útboða. Gera þeir í þessum efnum kröfu um óvirkni „allra samninga varnaraðila um jarðvinnu og snjómokstur“ og að verkin verði boðin út.

Um þessa kröfu kærenda segir nánar í lokaathugasemdum þeirra 27. janúar 2026 að kærufrestur vegna þessara krafna sé ekki liðinn, m.a. vegna þess að þeir hafi engar upplýsingar haft um fjárhæðir og samninga sem varnaraðili hafi gert að þessu leyti. Nú fyrst liggi fyrir samningur frá 2013 um nánar tiltekið verk. Á þessum samningi hafi verið byggt undanfarin 10 ár þótt hann sé löngu fallinn úr gildi og engin ákvæði í honum um heimild til framlengingar. Kærendur hafi fyrst fengið upplýsingar um samninginn 14. janúar 2026 í kjölfar þess að varnaraðili upplýsti um hann í lokaathugasemdum sínum til nefndarinnar. Þá telja kærendur ljóst að innkaup varnaraðila á snjómokstri, jarðvinnu og tengdum verkefnum, a.m.k. aftur til ársins 2013, séu útboðsskyld enda beri að reikna virði þeirra á grundvelli b. liðar 2. mgr. 28. gr. laga nr. 120/2016. Varnaraðili hafi litið á þessi verkefni sem eina heild og boðið þau þannig út.

 

III

Varnaraðili mótmælir öllum málsástæðum kærenda. Hann vísar til þess að við yfirferð á tilboði kærenda hafi komið í ljós að annar þeirra, Búaðstoð ehf., væri í vanskilum með opinber gjöld, sbr. yfirlit frá innheimtumanni ríkissjóðs 17. júlí 2025. Samkvæmt grein 0.1.3.2 í útboðsgögnum hafi verið gerð krafa um að bjóðendur skyldu vera í skilum með opinber gjöld þegar þeir skili tilboði. Í kafla 0.4.2 komi fram að bjóðandi skuli skila inn með tilboði staðfestingu frá viðkomandi yfirvöldum um að hann skuldi ekki opinber gjöld. Í sama kafla komi fram að skuldi bjóðandi opinber gjöld verði ekki gengið til samninga við hann. Óhjákvæmilegt hafi því verið að líta svo á að tilboð kærenda hafi ekki uppfyllt þetta skilyrði útboðsgagna og hafi þegar af þeirri ástæðu verið ógilt. Ekki hafi verið um að ræða minni háttar vöntun eða formannmarka í skilningi kafla 0.4.6 í útboðsgögnum eða atriði sem kaupanda hafi borið að afla nánari upplýsinga um.

Þrátt fyrir skýringar kærenda um að Búaðstoð ehf. hafi ekki verið í vanskilum og frekari gögn þar að lútandi, sem hafi komið fram fimm vikum eftir opnun tilboða, hafi það verið mat varnaraðila að tilboð kærenda gæti ekki talist hafa uppfyllt kröfur útboðsgagna og því ekki ástæða eða heimild til að endurskoða eða afturkalla höfnun á tilboði kærenda. Í því sambandi hafi varnaraðili horft til þess að bjóðendur í opinberum innkaupum beri ábyrgð á þeim gögnum og upplýsingum sem þeir leggi fram með tilboði sínu, og að kaupanda sé þröngur stakkur sniðinn við að taka til greina síðar tilkomin gögn, upplýsingar eða skýringar, sem breyti grundvallarþáttum tilboðs. Þá hafi einnig verið horft til þess að þrátt fyrir að síðari skýringar kærenda yrðu teknar til greina stæðu önnur atriði því í vegi að tilboð kærenda teldist uppfylla skilyrði útboðsgagna. Í þeim efnum vísar varnaraðili m.a. til yfirlýsingar viðskiptabanka kærenda um verkábyrgð, sem ekki uppfyllti kröfur útboðsgagna um að vera án skilyrða, en að auki hafi yfirlýsingin aðeins tekið til annars kærenda, þ.e. Keyrðs og mokaðs ehf. Síðar tilkomin yfirlýsing frá útibússtjóra viðskiptabanka hins kæranda, Búaðstoðar ehf., hafi ekki getað bætt úr þessum annmarka. Yfirlýsingin hafi að auki verið of seint fram komin.

Varnaraðili tekur sérstaklega fram að ekkert hafi gefið honum tilefni til að ætla að tilvísuð gögn um opinber gjöld og verkábyrgð, sem voru fyrirvaralaust lögð fram af hálfu kærenda, væru ófullkomin eða innihéldu villur, svo sem kærendur haldi fram. Honum hafi hvorki verið rétt né skylt að fara fram á skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar frá kærendum um þessi atriði. Honum hafi ekki heldur verið heimilt eða skylt að taka til greina síðari skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar frá kærendum. Slíkt hefði verið til þess fallið að heimila kærendum að breyta grundvallarþáttum tilboðs síns og líklegt til að raska samkeppni og ýta undir mismunun. Varnaraðila hafi verið rétt að miða við framlögð gögn kærenda og þeim í lófa lagið að yfirfara sérstaklega gögn áður en þau væru lögð fram með tilboði.

Þá vísar varnaraðili sérstaklega til þess að í kæru sé vikið að öðrum atriðum í tilboði kærenda sem gerðar hafi verið athugasemdir við. Svo sem ráða megi af samantekt til bæjarstjóra 18. ágúst 2025 hafi einungis verið vakin athygli á þessu án þess að sérstök afstaða hafi verið tekin til þeirra atriða, umfram vanskil opinberra gjalda sem og hinnar ófullnægjandi yfirlýsingar um verkábyrgð. Að mati varnaraðila hafi þessi atriði því ekki sérstaka þýðingu í málinu.

Í kjölfar þess að höfnun tilboðs kærenda hafi legið fyrir, hafi farið fram mat á tilboði Þotunnar ehf. Niðurstaða þess mats hafi verið kynnt á fundi bæjarráðs 15. september 2025 og á þeim fundi hafi verið ákveðið að velja það tilboð. Bjóðendum hafi verið tilkynnt um þá niðurstöðu degi síðar. Biðtími hafi liðið 22. september 2025 og á fundi bæjarráðs varnaraðila 30. september 2025 hafi bæjarstjóra verið falið að undirrita verksamning við Þotuna ehf., sem undirritaður hafi verið degi síðar. Um athugasemdir kærenda varðandi tilboð Þotunnar ehf. hafi það verið mat varnaraðila að það uppfyllti kröfur útboðsgagna, þ. á m. þær sem kærendur vísa sérstaklega til. Tilboðsgögn hans, sem lögð hafi verið fyrir nefndina, sýni framangreint.

Með vísan til framangreinds byggir varnaraðili á að framkvæmd umrædds útboðs hafi verið í samræmi við lög nr. 120/2016 og ákvarðanir í því lögmætar. Hafna beri því öllum kröfum kærenda, m.a. um skaðabótaskyldu á grundvelli 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016. Vísast í þeim efnum einkum til þess sem fram hefur komið um vanskil á opinberum gjöldum samkvæmt framlögðum gögnum og hinnar ófullnægjandi yfirlýsingar um verkábyrgð.

Loks vísar varnaraðili til þess að krafa kærenda um að allir samningar varnaraðila um jarðvinnu og snjómokstur verði gerðir óvirkir samkvæmt 115. gr. laga nr. 120/2016, eða öðrum úrræðum 118. gr. laganna beitt, eigi ekki við rök að styðjast. Í þeim efnum er m.a. vísað til þess að ekki fáist séð hvernig kröfugerð og málatilbúnaður kærenda að þessu leyti fái varðað meginumfjöllunarefni kærunnar, þ.e. framangreint útboð vegna Lundahverfis eða hvaða hagsmuni kærendur hafi að þessu leyti. Þá sé í kæru ekki vikið að eða rökstutt hvernig kærufrestur samkvæmt 106. gr. laganna telst virtur. Samningar varnaraðila um jarðvinnu og snjómokstur, sem ekki hafi verið boðnir út undanfarin ár, séu jafnframt ekki yfir viðmiðunarfjárhæðum þannig að til greina komi að beita úrræðum fyrrgreindra ákvæða. Af málatilbúnaði varnaraðila verður ráðið að hann telji að reikna beri virði þeirra verkefna sem um ræði á ársgrundvelli.

 

IV

A

Í fyrstu verður tekin afstaða til krafna kærenda er lúta að útboði varnaraðila auðkenndu „Lundahverfi, Gatnagerð og lagnir“. Kærendur krefjast þess að ákvörðun varnaraðila 16. september 2025 um val á tilboði Þotunnar ehf. verði felld úr gildi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærendur gera jafnframt kröfu um að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, sbr. 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 119. gr. sömu laga, hafi varnaraðili þegar gert samning eða ef varnaraðili ákveður að hætta ekki við samningsgerð.

Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 segir að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Fyrir liggur í máli þessu að bindandi samningur komst á milli varnaraðila og Þotunnar ehf. 1. október 2025. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kærenda um að fella úr gildi ákvörðun varnaraðila 16. september 2025 um val á tilboði Þotunnar ehf.

Kemur þá til skoðunar krafa kærenda um að nefndin láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart þeim. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim hafi í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.

Aðilar deila aðallega um hvort kærendur hafi uppfyllt grein 0.1.3.2 um fjárhagslegt hæfi, einkum um að þeir skyldu vera í skilum með opinber gjöld þegar þeir skiluðu inn tilboði sínu, sbr. einnig til hliðsjónar grein 0.4.2, og hvort þeir hafi uppfyllt grein 0.1.3.5 um verktryggingu vegna verksins án skilyrða.

Óumdeilt er að kærendur lögðu fram með tilboði sínu yfirlit sem sýndi að einn kærenda, Búaðstoð ehf., uppfyllti ekki grein 0.1.3.2 um að vera í skilum með opinber gjöld. Kærendur hafa m.a. borið því við að um misskilning hafi verið að ræða sem hafi verið leiðréttur í kjölfar opnun tilboða. Þessi kærandi hafi sótt umrætt yfirlit til sýslumanns sama dag og tilboð hafi verið opnuð og hann ekki grunað að það gæfi ekki rétta mynd af því að hann væri þegar búinn að greiða viðkomandi gjöld. Þessi villa hafi ekki verið honum að kenna. Þá vísa kærendur til þess að varnaraðila hafi borið að afla frekari skýringa að þessu leyti á grundvelli 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Honum hafi í öllu falli verið heimilt að líta til síðar tilkominna skýringa kærenda um þetta atriði á grundvelli ákvæðisins sem og greinar 0.4.6 í útboðsskilmálum. Varnaraðili hefur aftur á móti mótmælt því að honum hafi verið rétt eða skylt að fara fram á skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar frá kærendum um þetta atriði eða að honum hafi verið heimilt að taka til greina síðari skýringar kærenda, hvorki á grundvelli 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 né greinar 0.4.6, enda hafi verið um að ræða atriði sem breyttu grundvallarþáttum tilboðsins, væru líkleg til að raska samkeppni og ýta undir mismunun. Auk þess sem ekki hafi verið um að ræða minni háttar vöntun eða formannmarka.

Það er meginregla útboðsréttar að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hefur verið breytt eða þau nánar skýrð við meðferð útboðsins, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála 20. september 2022 í máli nr. 15/2022. Það var því á ábyrgð kærenda að gæta þess að gögn sem vörpuðu réttu ljósi á stöðu þeirra yrðu lögð fram með tilboði þeirra.

Samkvæmt 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 er kaupanda þó heimilt að fara fram á að bjóðandi leggi fram, bæti við, skýri eða fullgeri upplýsingar eða gögn innan hæfilegs frests þegar upplýsingar eða gögn, sem bjóðandi leggur fram, virðast vera ófullkomin eða innihalda villur eða ef tiltekin skjöl vantar. Slíkar skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar mega þó ekki fela í sér breytingar á grundvallarþáttum tilboðs eða vera líklegar til að raska samkeppni eða ýta undir mismunun. Verður kaupandi því að horfa til þess hvort skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar kunni að leiða til efnislegra breytinga á fyrirliggjandi tilboði þannig að hlutaðeigandi bjóðanda sé í reynd veitt forskot gagnvart öðrum bjóðendum að þessu leyti.

Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér tilboð kærenda og önnur gögn málsins. Að mati nefndarinnar verður ekki séð að ákvæði 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 eigi við um þá stöðu sem hér um ræðir enda ekki unnt að líta svo á að hið umdeilda gagn um vanskil eins kærenda á opinberum gjöldum hafi virst vera ófullkomið eða innihalda villur þannig að varnaraðili hafi haft tilefni til og jafnframt heimild samkvæmt ákvæðinu til að kalla eftir frekari upplýsingum frá kærendum um þetta atriði. Þá getur nefndin ekki fallist á að varnaraðila hafi borið að beita grein 0.4.6 og líta svo á að einungis hafi verið um minni háttar vöntun eða formannmarka að ræða í skilningi greinarinnar. Þvert á móti voru þau gögn sem kærendur lögðu fram eftir opnun tilboða um skil kærandans Búaðstoðar ehf. á opinberum gjöldum til þess fallin að fela í sér breytingu á grundvallarþáttum tilboðsins. Með hliðsjón af framangreindu verður því að leggja til grundvallar að tilboð kærenda hafi ekki uppfyllt grein 0.1.3.2 í útboðsskilmálum við opnun tilboða. Þessu til viðbótar er fallist á málatilbúnað varnaraðila um að kærendur hafi ekki uppfyllt skilyrði greinar 0.1.3.5 um verktryggingu án skilyrða enda ljóst að sú verktrygging sem kærendur lögðu fram bar með sér að verkábyrgð verksins yrði veitt „að uppfylltum skilyrðum“. Samkvæmt framangreindu var varnaraðila rétt að telja tilboð kærenda ógilt.

Líkt og að framan greinir er það skilyrði í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 um álit á skaðabótaskyldu að fyrirtæki sanni að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Þar sem fyrir liggur að tilboð kærenda var ógilt verður að telja að kærendur hafi ekki átt raunhæfa möguleika á að verða valdir af varnaraðila í hinu kærða útboði. Af þessum sökum verður að hafna kröfu kærenda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna útboðsins varnaraðila sem auðkenndu „Lundahverfi, Gatnagerð og lagnir.“

 

B

Eftir stendur að taka afstöðu til kröfu kærenda um að „allir samningar varnaraðila um jarðvinnu og snjómokstur, sem ekki hafa verið boðnir út, verði gerðir óvirkir“, sbr. 115. gr. laga nr. 120/2016 eða að öðrum úrræðum verði beitt samkvæmt 118. gr. sömu laga. Jafnframt þeirrar kröfu að leggja fyrir varnaraðila að bjóða verkefni út sem ekki hafi verið boðin út þrátt fyrir lagaskyldu, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Í lokaathugasemdum sínum vísa kærendur til þess að kæra þeirra varði snjómokstur, jarðvinnu og ,,öll þau verkefni sem talin eru í samningi varnaraðila við Sigurgeir Jóhannsson ehf. frá 2013”. Í þessum efnum liggur fyrir samningur varnaraðila við fyrrgreint félag sem gerður var í kjölfar útboðs varnaraðila, auðkennt „Þjónusta áhaldahúss 2013-2015“ og var boðið út með útboðs- og verklýsingu 13. apríl 2013. Samkvæmt gögnum málsins var samningur þessi undirritaður 30. júlí 2013 og var í gildi frá 1. júní 2013 til og með 31. desember 2015. Samningurinn varðaði „snjómokstur gatna, almenna vélavinnu við tilfallandi verk áhaldahússins, slátt opinna svæða og urðun óbrennanlegs sorps í Hólsnámu“. Óumdeilt er að frá þeim tíma hafa þessi verkefni ekki verið boðin út af hálfu varnaraðila.

Af málatilbúnaði kærenda verður ráðið að þeir hafi, í kjölfar upplýsinga um samninginn frá varnaraðila, fyrst talið sig hafa tilefni til að útvíkka kröfu sína með fyrrgreindum hætti. Til þess er að líta að málsmeðferð kærunefndar útboðsmála takmarkast við það kæruefni sem lagt er fyrir hana, sbr. lokamálslið 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016. Málatilbúnaður sem lagður er fyrir kærunefndina með skriflegri kæru markar þannig að meginstefnu til umfjöllunarefni nefndarinnar og úrlausn og kærendur geta að jafnaði ekki bætt síðar við kröfur sínar vegna sjónarmiða og gagna frá kærða. Með hliðsjón af því og atvikum öllum verður miðað við að kröfur kærenda í þessum þætti málsins lúti að samningum um snjómokstur og jarðvinnu, þ.e. grasslátt.

Kærendur telja innkaup þessi útboðsskyld og að reikna beri virði þeirra sem eina heild með hliðsjón af b. lið 2. mgr. 28. gr. laga nr. 120/2016 og þannig miða við heildargreiðslur í 48 mánuði. Varnaraðili hefur á hinn bóginn vísað til þess að samningar að þessu leyti nái ekki viðmiðunarfjárhæðum og að reikna beri út virði þeirra á ársgrundvelli. Ekki komi því til greina að beita 115. eða 118. gr. laga nr. 120/2016. Þá er einnig ágreiningur meðal aðila um það hvort kærufrestur samkvæmt lögum nr. 120/2016 sé að þessu leyti liðinn.

Eins og málið liggur fyrir verður fyrst tekin afstaða til þess hvort umrædd innkaup séu útboðsskyld á grundvelli laga nr. 120/2016 enda leiðir af 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016 að það er hlutverk nefndarinnar að leysa úr kærum fyrirtækja vegna ætlaðra brota á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim. Séu innkaupin ekki útboðsskyld falla þau utan gildissviðs laga nr. 120/2016 og þar með valdsviðs kærunefndar útboðsmála.

Með tölvubréfi 12. ágúst 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir nánari upplýsingum frá varnaraðila líkt og áður er rakið. Óskað var eftir upplýsingum um hvers vegna varnaraðili teldi nánar tiltekin verk, m.a. snjómokstur og slátt opinna svæða, ekki útboðsskyld þrátt fyrir að á árinu 2013 hafi þau verið boðin út í sameiningu. Þá var óskað eftir sjónarmiðum varnaraðila viðvíkjandi því hvernig framangreint horfi við 4. mgr. 25. gr. laga nr. 120/2016 og jafnframt hvort og þá hvaða verk hann teldi eitt og hið sama í skilningi ákvæðisins. Jafnframt var óskað eftir fyllri upplýsingum og gögnum um fyrrgreind verk, einkum hvaða fyrirtæki hefði sinnt hverju og einu þeirra síðustu ár, umfangi greiðslna til hvers og eins þeirra, hvaða aðilar stæðu að baki þessum fyrirtækjum og hvort og þá hvaða tengsl þau hefðu við hvert annað. Þá var einnig óskað eftir frekari sjónarmiðum varnaraðila um óvirkni og beitingu stjórnvaldssektar samkvæmt XI. kafla laga nr. 120/2016, einkum með hliðsjón af sjónarmiðum um reglulega endurnýjað samningssamband við þá aðila sem sinnt hefðu fyrrgreindum verkum undanfarin ár.

Svarbréf barst kærunefnd útboðsmála frá varnaraðila 1. september 2026. Þar kom m.a. fram að fyrirkomulag innkaupa um þau verk tengd áhaldahúsi, sem felld hafi verið undir fyrrgreint útboð árið 2013, hafi verið endurskoðað reglulega í kjölfar lok samnings árið 2015 með tilliti til þess hvort þörf væri á að stofna til útboðs, m.a. að teknu tilliti til viðmiðunarfjárhæða laga nr. 120/2016 og annarra skilyrða. Af hálfu varnaraðila hafi verið litið svo á að útboðsskylda samkvæmt lögum nr. 120/2016 hafi ekki verið fyrir hendi.

Þau verkefni sem felld hafi verið undir útboðið 2013 séu ekki eitt og hið sama í skilningi laga nr. 120/2016. Fyrirkomulag innkaupa að þessu leyti feli því ekki í sér skiptingu innkaupa í því skyni að vera undir viðmiðunarfjárhæðum, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga nr. 120/2016. Um sé að ræða ólík og árstíðarbundin þjónustuverkefni með ólíkan tilgang. Ætla verði að nægilegt efnislegt samband þurfi að vera milli verkefna svo þau teljist eitt og hið sama í þessum skilningi. Ekki sé nægilegt að horfa eingöngu til þess að um sé að ræða verkefni sem falli undir verksvið áhaldahúss varnaraðila eða að brugðið hafi verið á það ráð árið 2013 að bjóða verkefnin út í einu lagi. Hvert þeirra verkefna sem um ræði krefjist sérþekkingar og sérstakra tækja og tóla og misjafnt sé hvort einn og sami aðilinn sé í stakk búinn til þess að sinna þeim öllum. Það hafi verið reynsla varnaraðila, þ. á m. af útboðinu 2013. Þetta megi m.a. sjá af yfirliti varnaraðila um þessi verkefni sem beri með sér að ekki einungis einn og sami aðilinn hafi sinnt öllum þessum verkefnum undanfarin ár. Ákveðið hagræði hafi verið talið fólgið í því að bjóða umrædd verkefni út í einu lagi á sínum tíma þar sem reynsla varnaraðila hafi sýnt að þátttaka í einstaka útboðum hafi verið lítil og því reynt að auka umfang útboðsins í því augnamiði að laða bjóðendur að. Sú tilraun hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Til þess verði að líta að það hafi ekki verið ætlun varnaraðila að koma með þessu á framkvæmd sem ekki yrði vikið frá. Fjárhæð allra verkefna verði ekki lögð saman með hliðsjón af framangreindu heldur beri að líta svo á að innkaup vegna hvers verkefnis hafi verið undir viðmiðunarfjárhæðum laga nr. 120/2016. Snjómokstur hafi t.a.m. almennt ekki náð viðmiðunarfjárhæðum laga nr. 120/2016. Vegna mismunandi tíðarfars og snjóþyngsla ár frá ári sé þó vandasamt að áætla til lengri tíma kostnað vegna snjómoksturs. Loks áréttaði varnaraðili sjónarmið sín um óvirkni og beitingu stjórnvaldssektar.

Samkvæmt 4. mgr. 25. gr. laga nr. 120/2016 er óheimilt að skipta upp verki eða innkaupum á vöru og/eða þjónustu í því skyni að innkaup verði undir viðmiðunarfjárhæðum, nema slíkt sé réttlætanlegt á grundvelli hlutlægra ástæðna. Í 1. mgr. 29. gr. laganna segir að þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu sé skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skuli miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama eigi við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skuli líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum. Í 2. mgr. 29. gr. kemur fram að þegar heildarvirði samninga sem greini í 1. mgr. ákvæðisins sé yfir viðmiðunarfjárhæðum sé þó heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta.

Mat þess hvort innkaupum hefur verið skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga ber að framkvæma á hlutlægum grundvelli. Hafi innkaupum verið skipt upp í röð samninga um þau beri að leggja saman virði allra samninga í röðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Evrópudómstólsins í máli nr. C-574/10. Í tilvitnuðum dómi lagði Evrópudómstóllinn til grundvallar að lytu samningar að innkaupum sem hefðu sameiginleg einkenni og mættu sömu fjárhagslegu og tæknilegu þörfum bæri að leggja saman virði þeirra, sbr. mgr. 41, og var í því samhengi byggt á aðferðarfræði í eldri dómi réttarins í máli nr. C-16/98.

Varnaraðili hefur, líkt og áður greinir, m.a. byggt á því að um sé að ræða ólík og árstíðarbundin þjónustuverkefni með ólíkan tilgang. Hvert þeirra verkefna sem fallið hafi undir útboðið árið 2013, m.a. snjómokstur og grassláttur, krefjist sérþekkingar og sérstakra tækja og tóla og misjafnt sé hvort einn og sami aðilinn sé í stakk búinn til að sinna þeim öllum. Kærendur hafa á hinn bóginn vísað til þess að verkefnin myndi eina heild, einkum vegna þess að þau hafi verið boðin út saman áður.

Með hliðsjón af ólíku eðli þeirra verkefna sem um ræðir, snjómoksturs annars vegar og grassláttar hins vegar, og atvikum að öðru leyti telur kærunefnd útboðsmála ekki unnt að líta svo á að um sé að ræða sömu innkaupin sem hafi verið skipt upp í skilningi framangreindra lagaákvæða þannig að rétt sé að leggja virði allra innkaupa um snjómokstur og grasslátt saman við útreikning viðmiðunarfjárhæða. Skiptir þar engu þó varnaraðili hafi ákveðið að bjóða þessi verkefni út saman árið 2013.

Samkvæmt 1. málslið 1. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016 skal bjóða út öll innkaup opinberra aðila á vörum og þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum samkvæmt 4. mgr. og verkum yfir 49.000.000 kr. og gera í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í IV. kafla laganna. Í 1. málslið 4. mgr. 23. gr. laganna segir að ráðherra skuli birta viðmiðunarfjárhæðir fyrir opinber innkaup á Evrópska efnahagssvæðinu í íslenskum krónum í reglugerð í samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Í þessu skyni hefur ráðherra sett reglugerð nr. 360/2022 og er kveðið á um viðkomandi viðmiðunarfjárhæðir í 3. gr. hennar. Þar er kveðið á um að viðmiðunarfjárhæðir sveitarfélaga fyrir þjónustusamninga séu 32.247.000 krónur.

Í 28. gr. laga nr. 120/2016 er fjallað um útreikning virðis þjónustusamninga. Þar er gert ráð fyrir reiknireglum í þeim tilvikum þar sem um er að ræða samninga þar sem heildarfjárhæð er ótilgreind, sbr. 2. mgr. Samkvæmt b. lið 2. mgr. skal miða við heildargreiðslur samkvæmt samningi í 48 mánuði þegar um er að ræða samning sem er ótímabundinn eða óvíst er hver samningstíminn verður. Þessi reikniregla samsvarar b. lið 14. mgr. 5. gr. tilskipunar nr. 2014/24/EB. Í 30. gr. laga nr. 120/2016 er fjallað um útreikning virðis viðvarandi eða endurnýjanlegra vöru- og þjónustusamninga. Þar segir í 1. mgr. að þegar um er að ræða viðvarandi samninga eða samninga sem endurnýja á innan tiltekins tíma skuli reikna áætlað virði út annaðhvort með hliðsjón af heildarfjárhæð áþekkra samninga á undangengnu fjárhagsári eða síðustu 12 mánuðum, að teknu tilliti til breytinga á magni og verði fyrir næstkomandi 12 mánuði, sbr. a. lið, eða með hliðsjón af áætluðum kostnaði fyrir næstu 12 mánuði, eða lengra tímabil ef því er að skipta, frá því að vara eða þjónusta er fyrst innt af hendi, sbr. b. lið. Ákvæði 30. gr. laga nr. 120/2016 sækir fyrirmynd sína í 11. mgr. 5. gr. fyrrgreindrar tilskipunar.

Fyrir nefndina hefur varnaraðili lagt fram yfirlit yfir samanlagðar fjárhæðir innkaupa vegna snjómoksturs og grassláttar síðastliðin ár. Af þeim verður ráðið að þörfin fyrir slík innkaup hafi verið breytileg og að hvoru þessara verkefna um sig hafi verið sinnt af fleiri en einum aðila ár hvert. Þá verður ekki séð að til staðar hafi verið samningur sem unnið hafi verið samkvæmt eða sem hafi markað verkefnunum ramma. Með hliðsjón af framangreindu og atvikum að öðru leyti telur kærunefnd útboðsmála nærtækara að líta svo á að líta beri til reiknireglu a. liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 120/2016 við útreikning virðis þessara innkaupa enda á hún m.a. við um gerð margra sjálfstæðra samninga um ákveðna þjónustu sem kaupandi hefur viðvarandi þörf fyrir. Miðað við það verður ráðið af gögnum málsins að þessi innkaup hafi síðustu ár almennt ekki náð viðmiðunarfjárhæðum samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 360/2022. Var því ekki skylt að bjóða út umrædd innkaup í samræmi við innkaupaferli laga nr. 120/2016.

Svo sem áður greinir er það hlutverk kærunefndar útboðsmála að leysa úr kærum fyrirtækja vegna ætlaðra brota á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016. Fellur þetta mál því ekki undir valdsvið kærunefndar útboðsmála. Verður kröfum kærenda í þessum þætti málsins því vísað frá nefndinni.

Rétt þykir að málskostnaður falli niður.

 

Úrskurðarorð

Kröfum kærenda, Keyrt og mokað ehf. og Búaðstoðar ehf., um að „allir samningar varnaraðila um jarðvinnu og snjómokstur, sem ekki hafa verið boðnir út, verði gerðir óvirkir“, sbr. 115. gr. laga nr. 120/2016 eða að öðrum úrræðum verði beitt samkvæmt 118. gr. sömu laga, er vísað frá.

Kröfu kærenda um að lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða út verkefni sem ekki hafi verið boðin út þrátt fyrir lagaskyldu, sbr. 1. mgr. 111. mgr. laga nr. 120/2016, er vísað frá.

Öðrum kröfum kærenda er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 24. september 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?