13. nóvember 2026 /

Mál nr. 47/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 14. september 2026

í máli nr. 47/2026:

I.D. Electronic ehf.

gegn

Fjársýslu ríkisins og

Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi ohf.

 

Lykilorð

Stöðvun innkaupaferils.

Útdráttur

Kærunefnd útboðsmála taldi að skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup væru uppfyllt og féllst á kröfu kæranda um að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 28. ágúst 2026 kærði I.D. Electronic ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 22212a auðkennt „Audio System for Harpa Concert Hall & Conference Centre“.

Kærandi krefst þess meðal annars að „felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila, sem birtist í opinberum svörum 13. ágúst 2026, um að viðhalda eftirfarandi skilmálum:

·         MR-GO2, að því marki sem áskilið er sem lágmarksskilyrði að framleiðandi sýni fram á víðtæka notkun í stærstu alþjóðlegu tónleikaferðalögum og viðurkenningu í tæknilýsingum listamanna, en reynsla af sambærilegum föstum uppsetningum í tónlistar- og ráðstefnuhúsum er fyrirfram talin ófullnægjandi, óháð umfangi, tæknilegum gæðum og getu til að efna samninginn.

·         MR-G03, að því marki sem skilmálinn útilokar kerfi þar sem Milan-samskiptastaðall er notaður sem meginflutningslag en hljóðmerki er fært áfram til magnara með öðru óþjöppuðu stafrænu sniði, þótt boðin lausn uppfylli allar mælanlegar kröfur um hljómgæði, samstillingu, rekstraröryggi, vöktun og stjórnun.

·         MR-G08, að því marki sem áskilið er að hátalarar, magnarar og kerfisvinnsla séu hönnuð, þróuð og framleidd undir einu og sama vörumerki eða af einum framleiðanda og lausnir frá tengdum vörumerkjum innan sama fyrirtækjasamstæðu eru útilokaðar án mats á jafngildi.

·         Gæðaviðmiði í grein 2.4.2 útboðslýsingar, sbr. MR-E06, að því marki sem 15 gæðastig fást aðeins ef cardioid-stefnuvirkni er eðlislægur eiginleiki hvers einstaks hátalarakassa, en sannreynd jafngild eða betri bakdeyfing sem næst með annarri tæknilegri útfærslu fær engin stig“.

Auk framangreinds krefst kærandi þess að lagt verði fyrir varnaraðila að fella niður umrædda skilmála, hluta þeirra eða „endursemja þá þannig að hæfi framleiðenda verði metið eftir skilyrðum sem tengjast efni samningsins og eru í hæfilegu hlutfalli við það, tæknilega jafngildar lausnir sæti hlutlægu mati á grundvelli mælanlegrar virkni og frammistöðu og öllum rammasamningshöfum sem boðið var þátttaka verði veittur nýr og hæfilegur frestur til að skila tilboði“. Þá krefst kærandi einnig að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað.

Loks krefst kærandi þess að innkaupaferli útboðsins verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kærunni.

Með erindi 1. september 2026 tilkynnti kærunefnd útboðsmála aðilum að til stæði að kalla til Halldór K. Júlíusson, hljóðverkfræðing, til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni með vísan til heimildar 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Aðilar gerðu ekki athugasemdir við þessi áform. Formaður kærunefndar útboðsmála kallaði sérfræðinginn formlega til starfa með bréfi undirrituðu 2. september 2026.

Athugasemdir bárust frá varnaraðilum 7. september 2026. Varnaraðilar krefjast þess að kærunefnd útboðsmála hafni stöðvunarkröfu kæranda og hafni öllum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði. Þá gera varnaraðilar kröfu um málskostnað eftir 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Í ákvörðun þessari verður tekin afstaða til stöðvunarkröfu kæranda er málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.

 

I

Hið kærða útboð er örútboð innan rammasamnings nr. 23145 sem lýtur að innkaupum á sviðsbúnaði. Fjórum aðilum var boðið að taka þátt í örútboðinu, þar á meðal kæranda. Í grein 2.2.1 í útboðslýsingu örútboðsins kom fram að lágmarkskröfur væru settar fram í viðauka 1. Í umræddum viðauka var kröfum MR-GO2, MR-G03 og MR-G08 lýst með eftirfarandi hætti:

 

MR-G02

The manufacturer shall demonstrate established international touring adoption, including support of ≥100 touring acts, deployment on stadium- or arena-scale productions. The manufacturer should have supported one or more of the Pollstar Top 10 international tours (2024–2025).

 

MR-G03

All DSP processors, amplifiers, and loudspeaker control systems shall use Milan protocol as the primary system-wide audio distribution layer. Milan compliance shall be implemented natively within the manufacturer's current-generation hardware — either directly in the amplification and processing hardware, or via a manufacturer-developed and Milan-certified DSP and control platform that forms a non-optional, integral component of the supplied system architecture. The implementation shall provide transmission and reception of Milan-compliant streams, network-based control, monitoring, and diagnostics across all system components. Third-party protocol converters, bridges, or adapters not developed by the loudspeaker system manufacturer shall not be used as the basis for claiming Milan compliance. All system components shall support AES70 (OCA) or equivalent open IP control architecture enabling third-party integration.

 

MR-G08

All loudspeaker systems, amplification, and system processing shall be designed, developed, and manufactured by a single manufacturer as a unified and integrated product ecosystem. Systems that require amplification or DSP hardware from a separate product line — including products from affiliated companies within the same corporate group — shall not be considered

 

Kærandi sendi fyrirspurn 6. ágúst 2026 til varnaraðila við meðferð útboðsins og gerði meðal annars athugasemdir við framangreindar kröfur. Varnaraðili svaraði fyrirspurninni 13. sama mánaðar. Hér að neðan er fyrirspurn kæranda og svör varnaraðila varðandi umræddar kröfur:

 

MR-G02

Fyrirspurn kæranda:

Will the Buyer clarify the non-technical 'Pollstar Top 10' guidance and confirm that established tier-one global manufacturers with proven fixed installation references in premier concert halls and performing arts centers fully satisfy MR-G02?

 

Svar varnaraðila:

MR-G02 is a minimum requirement for demonstrating top-tier international touring adoption and rider acceptance. The Pollstar Top 10 reference is the benchmark evidence of that adoption: documented support of one or more Pollstar Top 10 tours (2024–2025) satisfies MR-G02. Where a tenderer cannot cite a Pollstar Top 10 credit, equivalent documented evidence of comparable major international touring deployment and acceptance on international artist technical riders will also be accepted. Fixed-installation references in concert halls or performing-arts centers, however strong, do not by themselves satisfy MR-G02, as the requirement concerns touring adoption and rider acceptance rather than installation pedigree or electroacoustic performance.

 

MR-G03

Fyrirspurn kæranda:

What technical justification exists for restricting the use of Milan-certified devices from other manufacturers when those devices have passed the Avnu Alliance certification process and are designed for multi-vendor interoperability? Will the Buyer amend MR-G03 to permit any appropriately certified Milan device that meets the specified technical and operational requirements?

 

Svar varnaraðila:

MR-G03 does not restrict multi-vendor Milan interoperability — it relies on it. Any Milan-certified source may feed the system at its input. The single-manufacturer requirement applies only within the loudspeaker system, where Milan must be the distribution layer in whatever topology is native to the manufacturer's design. Excluded is any system where Milan terminates partway and another protocol carries audio onward to amplification — leaving Milan an input format, not the distribution layer the requirement demands.

 

MR-G08

Fyrirspurn kæranda:

Will the Buyer confirm that corporate multi-brand groups (Such as Harman Pro) operating under a single parent corporation—utilizing shared R&D, native software/control integration, and backed by a single local primary partner delivering single-point warranty and support, fully satisfy the requirements of MR-G08?

 

Svar varnaraðila:

No. A common parent company, shared research and development, or single-point local support does not, in itself, satisfy the requirements of MR-G08. As stated in the clause, the loudspeaker systems, amplification, and system processing must be designed, developed, and manufactured by the same manufacturer as a unified and integrated product ecosystem. A combination of separate product lines, including product lines marketed under different brands within the same corporate group, does not constitute such a product ecosystem and therefore does not meet the requirement. MR-G08 remains unchanged.

 

Fyrir liggur að varnaraðili gerði breytingar á grein 2.4.2 með upplýsingaskilaboðum 7. september 2026 til þátttakenda. Breytingarnar fólu í sér að texti greinarinnar var felldur niður og annarri valforsendu bætt við í staðinn.

Kærandi byggir í meginatriðum á að umræddir skilmálar brjóti í bága við lög nr. 120/2016 um opinber innkaup, þá einkum 15. gr., 49. gr. og 69. gr. laganna. Varnaraðili mótmælir sjónarmiðum kæranda og byggir á að skilmálar MR-G02, MR-G03 og MR-G08 uppfylli kröfur laganna. Þá vísar varnaraðili til þess að kröfum greinar 2.4.2 hafi verið breytt.

 

II

A

Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli eða samningsgerð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Svo sem fyrr greinir breyttu varnaraðilar fyrirmælum greinar 2.4.2 í útboðslýsingu örútboðsins eftir móttöku kæru. Að virtu efni þessara breytinga þykir á þessu stigi málsins mega miða við að kærandi hafi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um lögmæti greinarinnar eins og hún birtist upphaflega í útboðslýsingunni, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016.

Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við lögmæti skilmála MR-G02, MR-G03 og MR-G08.  Í samhengi við skilmála MG-G02 þykir rétt að nefna að varnaraðilar veittu þær skýringar við meðferð útboðsins að reynsla framleiðanda af „Pollstar Top 10 international tours“ væri viðmið og jafnframt yrðu teknar til greina viðurkenningar frá tónleikaframleiðendum alþjóðlegra listamanna og skjalfest gögn um notkun í stórum alþjóðlegum tónleikaferðum.

Sérfræðingur kærunefndar útboðsmála, Halldór Júlíusson, hljóðverkfræðingur, veitti kærunefnd útboðsmála ráðgjöf við meðferð málsins. Sérfræðingur hefur bent á að skilmáli MR-G02 eins og varnaraðili hefur skýrt hann sé eðlilegur með tilliti til andlags innkaupanna en markmið kröfunnar sé að tryggja að framboðin búnaður uppfylli þarfir tækni- og tónlistarfólks.  Hvað varðar skilmála MG-G03 hefur sérfræðingurinn bent á að Milan (e. Media-Intergrated Local Area Network) sé samskiptakerfi sem sendir starfrænt merki milli tækja. Kerfinu sé ætlað að tryggja að sama form sé á hljóðupplýsingum frá upphafi til enda og þar með stuðla að áreiðanleika hljóðkerfisins.

Með hliðsjón af skýringum sérfræðingsins og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila þykir á þessu stigi málsins mega miða við að skilmálar MR-G02, eins og varnaraðili hefur skýrt ákvæðið, og MR-G03 séu málefnalegir, tengist efni fyrirhugaðs samnings og séu að öðru leyti í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016.  Þá verður ekki séð að skilmálarnir séu í ósamræmi við ákvæði fyrirliggjandi rammasamnings.

Samkvæmt skilmála MR-G08 skulu hátalarakerfi, mögnun og kerfisvinnsla vera hönnuð, þróuð og framleidd af einum og sama framleiðanda sem eitt sameinað og samþætt vörukerfi. Varnaraðilar hafa meðal annars útskýrt að tæknilegt markmið skilmálans sé að tryggja heildstætt rafhljóðakerfi sem hafi verið prófað og staðfest af framleiðanda sem ein heild. Með því sé leitast við að tryggja samræmda merkjavinnslu og vernd hátalara, samræmda uppsetningu og vöktun kerfisins, stýrða samhæfni fastbúnaðar og forstillinga og skýra ábyrgð framleiðanda á virkni og afköstum kerfisins frá upphafi til enda í gegnum merkjaleiðina. Þá hafa varnaraðilar bent á að þótt kerfi úr vörum fleiri framleiðanda geti verið tæknilega samþættanleg leiði sú staðreynd ekki sjálfkrafa til þess að kerfið hafi verið þróað og staðfest sem ein heild með sama hætti. Krafan um sama framleiðanda helgist af þeim tæknilega eiginleika sem ætlunin sé að tryggja, þ.e. heildarkerfi staðfestu af framleiðanda og samræmdri ábyrgð á virkni þess.

Af ákvæðum laga nr. 120/2016 leiðir að kaupandi þarf að gæta meðalhófs við opinber innkaup auk þess sem óheimilt er að takmarka samkeppni með óeðlilegum hætti, sbr. 1. mgr. 15. gr. laganna. Þá kemur fram í 3. mgr. 49. gr. að tæknilýsingar skuli veita fyrirtækjum jöfn tækifæri og þær megi ekki leiða til ómálefnalegra hindrana á samkeppni við opinber innkaup.

Að mati kærunefndar útboðsmála verður að telja að rökstuðningur varnaraðila um nauðsyn kröfunnar, um að sami framleiðandi hanni, þrói og framleiði allar umræddrar vörur, sé ekki nægjanlegur á þessu stigi máls. Í rammasamningi þeim, sem örútboðið byggir á, kemur fram í ákvæði 1.3.7 að aðilar hans skuli hafa aðstöðu og getu til að sinna ábyrgðar- og viðgerðarþjónustu með tilskildum réttindum á höfuðborgarsvæðinu. Þá þurfa aðilar hans að geta boðið sérstaka þjónustusamninga fyrir allar tegundir vara í viðkomandi hluta samningsins sem þeir bjóða í. Varnaraðili hefur ekki útskýrt ástæður þess að ábyrgð bjóðenda í samræmi við þetta, að teknu tilliti til viðbótarkrafna í örútboðsgögnum, teljist ekki nægjanleg varðandi þau innkaup sem hér um ræðir, en ætla verður á þessu stigi máls að bjóðendur í örútboðinu teljist almennt búa yfir því tæknilega og faglega hæfi sem þarf til að takast á hendur ábyrgð á virkni þess heildarkerfis sem þeir bjóða fram. Að því er varðar kröfur um tæknilega eiginleika heildarkerfisins virðist mega ná þeim markmiðum með öðru og vægara móti, svo sem með því að krefjast staðfestingar eða annarra viðeigandi sönnunargagna frá tilteknum framleiðanda eða fleiri framleiðendum um að framboðnar vörur virki sem ein heild. Þykir því mega miða við að umræddur skilmáli fari í bága við ákvæði laga um opinber innkaup.

Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti þykir mega miða við, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að leiddar hafi verið verulegar líkur að broti gegn lögum nr. 120/2016 sem leitt geti til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila, sbr. 1. mgr. 110. gr. laganna. Verður því fallist á stöðvunarkröfu kæranda.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar þeir hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sinum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

 

Ákvörðunarorð:

Örútboð varnaraðila, Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf., nr. 22212a auðkennt „Audio System for Harpa Concert Hall & Conference Centre“, er stöðvað um stundarsakir.

 

Reykjavík, 14. september 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?