13. nóvember 2026 /

Mál nr. 5/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 29. september 2026

í máli nr. 5/2026:

Exton ehf.

gegn

Sveitarfélaginu Hornafirði

 

Lykilorð

Örútboð. Rammasamningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.

Útdráttur

Ágreiningur málsins laut að útboði varnaraðila varðandi kaup á nýju hljóð- og myndkerfi fyrir Sindrabæ á Hornafirði en um var að ræða örútboð sem fór fram innan tiltekins rammasamnings um raftæki. Í rammasamningnum kom fram að sviðsbúnaður og kerfislausnir í hljóð og mynd væru ekki hluti hans. Í úrskurði kærunefndar útboðsmála kom fram að hafna yrði kröfu kæranda, um að fella úr gildi ákvörðun varnaraðila um að viðhafa örútboðið, þar sem bindandi samningur hefði komist á í kjölfar þess, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.  Í úrskurði kærunefndar útboðsmála sagði að af fyrirliggjandi gögnum yrði ekki annað ráðið en að innkaupin hefðu meðal annars lotið að kaupum á sviðsbúnaði og kerfislausnum í hljóð og mynd og að innkaupin hefðu því ekki rúmast innan gildissviðs rammasamningsins í andstöðu við fyrirmæli hans og lög nr. 120/2016. Í samhengi við kröfu kæranda um álit á skaðabótaskyldu kom fram í úrskurðinum að bótaréttur samkvæmt 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 takmarkaðist við kostnað kæranda við að setja fram tilboð eða taka þátt í útboði. Þar sem kærandi hefði ekki orðið fyrir slíkum kostnaði í tengslum við brot varnaraðila gæti nefndin því ekki veitt álit á skaðabótaskyldu. Þá hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda um málskostnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 23. febrúar 2026 kærði Exton ehf. (hér eftir „kærandi“) örútboð Sveitarfélagsins Hornafjarðar (hér eftir „varnaraðili“) auðkennt „Hljóð- og myndkerfi ásamt uppsetningu – Sindrabær“.

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að viðhafa örútboð á grundvelli rammasamnings RK 11.11 vegna hinna kærðu innkaupa verði felld úr gildi. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krafðist kærandi þess að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir.

Kæran var kynnt varnaraðila og honum gefinn kostur á að tjá sig sem og hann gerði með athugasemdum 2. mars 2026. Varnaraðili krefst þess að öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála eða hafnað. Þá krafðist varnaraðili þess að stöðvunarkröfu kæranda yrði hafnað.

Varnaraðili sendi póst til nefndarinnar 11. mars 2026 og upplýsti að tilboð hefðu verið opnuð í örútboðinu á þeim degi. Eitt tilboð hefði borist og í fljótu bragði liti út fyrir að það væri gilt. Eftir staðfestingu á því hygðist varnaraðili gera samning eftir helgina þar sem ekki hefði borist ákvörðun um stöðvun.

Kærandi sendi póst til nefndarinnar degi síðar og upplýsti einnig að tilboð hefðu verið opnuð í örútboðinu. Óskaði kærandi eftir að kærunefnd útboðsmála tæki ákvörðun í málinu við allra fyrsta tækifæri svo komist yrði hjá að varnaraðili tilkynnti ákvörðun um samþykki tilboðs sem útilokaði möguleiga kæranda til að keppast um þessi innkaup.

Kærunefnd útboðsmála sendi póst til varnaraðila 24. mars 2026, vitnaði til fyrrgreinds pósts frá varnaraðila 11. sama mánaðar og óskaði eftir upplýsingum hvort bindandi samningur hefði komist á í kjölfar örútboðsins og, ef svo væri, að varnaraðili afhenti afriti af samningnum eða tilkynningu um töku tilboðs. Varnaraðili svaraði erindinu sama dag og afhenti nefndinni afrit af samningi varnaraðila og Atendi ehf., undirrituðum 17. mars 2026.

Kærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu kæranda með ákvörðun 10. apríl 2026. Engar frekari athugasemdir bárust frá varnaraðila. Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 13. maí 2026.

 

I

Varnaraðili auglýsti upphaflega útboð á kaupum á nýjum hljóð-, ljósa og myndkerfum fyrir Sindrabæ á Hornafirði með útboðsgögnum dagsettum í febrúar 2025 og tók varnaraðili ákvörðun 29. apríl 2025 um að ganga að tilboði Atendi ehf. Útboðið kom til kasta kærunefndar útboðsmála í máli nr. 16/2025 og með úrskurði í málinu 10. nóvember 2025 felldi nefndin úr gildi fyrrgreinda ákvörðun varnaraðila. Þá kom fram í úrskurðinum að þar sem ekkert gilt tilboð hefði borist í útboðinu félli það í hlut varnaraðila að meta innan ramma laga nr. 120/2016 hvernig  hann hygðist haga innkaupunum, sbr. IV. kafli laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Með útboðsgögnum, dagsettum í febrúar 2026, óskaði varnaraðili eftir tilboðum í hinu kærða útboði. Í grein 1.2 kom fram að um væri að ræða örútboð innan B-hluta rammasamnings um raftæki nr. RK.11.11 og að útboðsgögnin hefðu verið send til Ofar, Opinna kerfa, Advania og Atendi.

Í grein 1.3 í útboðsgögnum var að finna lauslegt yfirlit yfir innkaupin en þar sagði meðal annars eftirfarandi:

 

Örútboð þetta felur í sér innkaup á mynd- og hljóðkerfi, fyrir Sindrabæ ásamt uppsetningu. Hljóð- og myndkerfið er fyrir fjölnota sal með svölum sem hægt er að nýta sem sér rými, ásamt anddyri. Ljósakerfi verður keypt utan rammasamnings þessa en gera verður ráð fyrir því við uppsetningu. Fyrir svið í salnum verður hljóðkerfi fyrir lifandi uppákomur, þ.m.t. hljóðmixer, ráarkerfi, myndvarpi og fjarfundarbúnaður. Svalir verður hægt að stúka af og nota sem aðskilinn sal, með aðskildri stýringu fyrir hljóð, myndvarpa, fjarfundarbúnað og annað sem við á. Anddyri verður með aðskildu hljóðkerfi og lýsingu. Þessum kerfum og öðru, eftir sem við á, skal vera hægt að stýra miðlægt með IP tengingum og forritanlegum stjórnskjám. Þar með talið hljóðmixer fyrir svið.

 

Þá kom fram í greininni að verkefnið næði í aðalatriðum til útvegun mynd- og hljóðbúnaðar samkvæmt tæknilýsingu og tilboðsskrá, uppsetningu, tengingu og frágangi á öllum saman búnaði en búið væri að leggja flestar lagnir til og frá búnaðinum, forritun búnaðar þar sem við ætti og kennslu á viðkomandi kerfi.

Á meðal útboðsgagna var verk- og tæknilýsing en þar kom meðal annars fram í grein 1 að seljandi skyldi deilihanna í samræmi við fyrirliggjandi hönnun ásamt þeirri lausn sem boðin væri og uppfyllti kröfur útboðsgagna. Áttu bjóðendur meðal annars að leggja fram flæðrit fyrir hljóð-, ljósa- og myndkerfi, hermun af hönnun fyrir hljóðkerfi og hengimynd, sbr. grein 2.0.1. Á meðal búnaðar sem bjóðendur áttu að útvega var hljóðkerfi fyrir salinn sem átti að nýtast fyrir lifandi uppákomur af ýmsu tagi, fundi og fleira. Aðalkerfi yrði staðsett til hliðar, sitt hvoru megin við sviðsop. Þá kom fram í grein 3.10 að boðinn skyldi 4K laser myndvarpi með linsu ásamt rafrdrifnu sýningartjaldi fyrir bakvörpun. Sýningartjald skyldi henta hvoru tveggja fyrir hefðbundna fundi og myndsýningar en jafnframt gefa kost á að tjaldið nýtist sem bakgrunnur fyrir leiksýningar, tónleika o.fl.

Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að rammasamningsútboð, vegna fyrrgreinds rammasamnings, hafi verið auglýst í maí 2025. Í grein 1.1.2 kom fram að útboðið skiptist í tvo hluta, A og B. Í lýsingu á B-hlutanum kom eftirfarandi fram:

 

Tæki og hugbúnaður fyrir hljóð og mynd; viðtaka, upptaka, myndataka, afspilun o.fl. fyrir heimili, skólastofur, fundarsali, skrifstofurými o.fl., þar með talið búnaður og hugbúnaður fyrir fundarherbergi, heyrnartól, hátalarar, gagnvirkir skjáir.

 

Þá kom fram í grein 1.1.2 að sviðsbúnaður og kerfislausnir í hljóð og mynd væru ekki hluti af rammasamningnum. Í grein 1.5.9 kom fram að í þeim tilfellum sem tæki þörfnuðust uppsetningar skyldi kaupandi fá fjölda vinnutíma við uppsetningu á viðkomandi vöru hjá samþykktu birgjunum áður en vara væri pöntuð og velja hagkvæmasta birgja út frá heildarkostnaði.

Í grein 1.7 kom fram að til hluta B teldust vörur í vöruflokkum nr. 52160000 og 45110000 samkvæmt flokkunarkerfi Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal nokkrir nánar tilgreindir vöruflokkar.

Tilboð í örútboðinu voru opnuð 11. mars 2026 og barst tilboð frá Atendi ehf. að fjárhæð 33.344.908 krónur með virðisaukaskatti. Varnaraðili og Atendi ehf. undirrituðu samning 17. sama mánaðar.

 

II

Kærandi segir að rammasamningurinn sé vörukaupasamningur. Hið kærða örútboð feli á hinn bóginn í sér verulega þætti sem teljist til verks og þjónustu, svo sem hönnun kerfis, uppsetningu, forritun stýrikerfa og samþættingu við önnur kerfi hússins. Í grein 1.3 í örútboðslýsingu sé tekið fram að um sé að ræða vinnu við uppsetningu og tengingu og frágangi á búnaði ásamt vinnu við forritun búnaðar þar sem við á og kennslu á viðkomandi kerfi. Í sömu grein sé auk þess tekið fram að kerfunum skuli vera hægt að stýra miðlægt með IP tengingum og forritanlegum stjórnskjám. Þetta staðfesti að um sé að ræða sérhæfða tæknivinnu og kerfisuppsetningu en ekki einföld vörukaup á hilluvöru. Þegar þjónustu- og verkþáttur sé svo umfangmikill beri að bjóða verkið út sem slíkt, sbr. 4. og 5. gr. laga nr. 120/2016 um blandaða samninga. Að þröngva slíku verkefni inn í rammasamning um kaup á raftækjum skekki samkeppnisstöðuna og útiloki hæfa aðila sem sérhæfi sig í sviðs- og kerfislausnum en séu ekki aðilar að rammasamningi um almenn raftæki.

Varnaraðila sé óheimilt að nýta rammasamninginn fyrir hin umdeildu innkaup. Af 3. mgr. 40. gr. laga nr. 120/2016 leiði að ekki megi kaupa vörur eða þjónustu sem falli utan skilgreinds gildissviðs rammasamnings. Í grein 1.1.2 sé gildissvið rammasamningsins skýrlega afmarkað og tiltekið að hann taki ekki til sviðsbúnaðar og kerfislausna í hljóð og mynd. Í grein 1.3 í örútboðslýsingu komi á hinn bóginn fram að innkaupin nái til hljóðkerfis fyrir svið og lifandi uppákomur, þ.m.t. hljóðmixer og ráarkerfi, miðlægrar stýringar með IP tengingum og forritanlegum stjórnskjám og uppsetningar, forritunar og kennslu á kerfinu.

Af lýsingu örútboðsins sé ljóst að um sé að ræða sviðsbúnað og flókna kerfislausn sem sé beinlínis undanskilin í skilmálum rammasamningsins. Með útboðinu sé varnaraðili að fara gegnum skýrum orðum rammasamningsins. Slíkt háttalag brjóti í bága við 40. gr. laga nr. 120/2016 og meginreglur 15. gr. sömu laga um gagnsæi og jafnræði enda sé verið að kaupa  þjónustu og verk sem bjóðendur á markaði hafi réttilega mátt vænta að yrði boðin út í almennu útboði. Þá bendir kærandi á að hann sé sérhæft fyrirtæki á sviði hljóð- og myndlausna og með því að takmarka útboðið við örfáa aðila í röngum rammasamningi sé kæranda meinað að taka þátt í samkeppni um verkið sem valdi honum fjárhagslegu tjóni.

Með vísan til 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 beri að ógilda ákvörðun varnaraðila um að viðhafa örútboðið enda sé ákvörðunin byggð á rangri lagalegri forsendu, það er að innkaupin rúmist innan rammasamningsins. Þar sem innkaupin séu utan gildissvið rammasamningsins hafi varnaraðila borið skylda til að bjóða þau út í almennu útboði eða öðru lögmætu ferli samkvæmt 23. gr. laganna þar sem verðmæti innkaupanna sé langt yfir viðmiðunarfjárhæðum.

Kærandi bendi á að þetta sé í annað sinn sem varnaraðili reyni að kaupa hljóð- og myndkerfi fyrir Sindrabæ. Í fyrra útboði hafi kærunefnd útboðsmála fellt úr gildi ákvörðun varnaraðila um val á tilboði Atendi ehf., sbr. úrskurð í máli nr. 16/2025. Í stað þess að bjóða verkið út að nýju í almennu útboði, eins og eðlilegt hafi verið að gera í kjölfar ógildingar, velji varnaraðili nú að fara í örútboð innan rammasamnings þar sem Atendi ehf. sé einn af örfáum mögulegum bjóðendum. Þetta veki upp spurningar hvort verið sé að reyna að sniðganga niðurstöðu kærunefndar og tryggja tilteknum aðila samninginn. Slík háttsemi sé í andstöðu við meginreglur laga um opinber innkaup um gagnsæi og jafnræði, sbr. 15. gr. laganna, og dragi úr trausti á innkaupaferlum opinberra aðila.

Í lokaathugasemdum sínum gerir kærandi töluverðar athugasemdir við þann drátt sem hafi orðið á afgreiðslu kærunefndar á kröfu hans um stöðvun á innkaupaferlinu. Varnaraðila hafi verið veittur 8 daga frestur til að tjá sig um kröfuna sem ekki sé í samræmi við 1. mgr. 7. gr. starfsreglna nefndarinnar. Þá hafi nefndin ekki tekið ákvörðun í kjölfarið þrátt fyrir að nefndin hefði verið upplýst skriflega af báðum aðilum 11. mars 2026 um að tilboð hafi verið opnuð og að varnaraðili hygðist ganga frá bindandi samningi innan fárra daga yrði ferlið ekki stöðvað. Þessi óhóflega töf kærunefndar hafi beinlínis leitt til þess að varnaraðila hafi tekist að undirrita samning 17. mars 2026 sem hafi virkjað réttaráhrif 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Slík niðurstaða, þar sem tafir hjá úrskurðaraðila valda réttarspjöllum fyrir kæranda, sé óviðunandi og hafi þessi niðurstaða beinlínis orsakast af því að nefndin hafi ekki fylgt eigin starfsreglum um málshraða.

Kærandi hafni alfarið sjónarmiðum varnaraðila að hann skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Hagsmunir kæranda byggist beinlínis á að innkaupin feli í sér sviðsbúnað og kerfislausnir sem falli alfarið utan gildissvið rammasamningsins. Með því að þröngva innkaupunum með ólögmætum hætti inn í lokað útboð hafi kæranda verið meinað að taka þátt í almennu útboði, sem hefði verið réttmætur farvegur innkaupanna. Kærandi sé leiðandi aðili á umræddum markaði og hafi átt beina hagsmuni af fyrra útboði vegna nákvæmlega sömu innkaupa, sbr. mál nefndarinnar nr. 16/2025.

Varnaraðili rökstyðji heimild sína til örútboðs með almennri tilvísun til UNSPSC vöruflokkunarkerfisins en sú röksemd standist ekki skoðun. Í grein 1.1.2 í útboðsgögnum rammasamningsins sé sviðsbúnaður og kerfislausnir í hljóð og mynd skýrlega undanþegin gildissviði rammasamningsins. Þegar skilmálar taki af allan vafa með þessum hætti sé óheimilt að víkja sér undan þeim með tilvísun í almenna flokkunarstaðla. Kærunefnd útboðsmála hafi áður komist að þeirri niðurstöðu að ef kaupanda skorti heimild í skilmálum rammasamnings til að viðhafa örútboð um tiltekin innkaup þá feli slíkt í sér brot á lögunum, sbr. úrskurð nefndarinnar nr. 8/2015. Jafnframt verði að líta til heildareðlis verkefnisins en um sé að ræða flókna kerfisuppsetningu og sviðsbúnað sem myndi eina órjúfanlega heild. Þessi innkaup verði ekki flokkuð sem innkaup á almennum raftækjum til að fella hana undir rangan samning, sbr. sjónarmið í úrskurði nefndarinnar nr. 2/2022 um að forðast beri ólögmæta uppskiptingu eða samþættingu sem skekki innkaupaferli. Sú staðreynd að aðeins eitt tilboð hafi borist í útboðinu frá Atendi ehf. sé skýr staðfesting á að aðrir seljendur innan þessa almenna rammasamnings selji einfaldlega ekki umræddan sérhæfðan sviðsbúnað.

Jafnframt sé á það bent að ráðgjafi varnaraðila beiti augljósum blekkingum í greinargerð sinni með tilvísun til tölvupóstssamskipta við Fjársýslu ríkisins. Í fyrirspurn ráðgjafans til Fjársýslunnar hafi því verið vandlega sleppt að geta um þá staðreynd að rammasamningurinn undanskilji berum orðum „sviðsbúnað og kerfislausnir“. Með því að afvegaleiða Fjársýsluna með almennri og sértækt klipptri lýsingu hafi svarið sem varnaraðili hafi fengið verið ónothæft sem lagalegur grundvöllur fyrir örútboðinu. Þá gerir kærandi athugasemdir við fyrri úrskurð nefndarinnar í máli nr. 16/2025 og tiltekur meðal annars að sá úrskurður hafi falið í sér ítarlegar leiðbeiningar til varnaraðila um hvernig mætti sníða agnúa af ferlinu, sem varnaraðili nýti sér nú sem skálkaskjól.

Í ljósi þess að varnaraðili hafi nú, í skjóli tafa hjá kærunefndinni, undirritað samning og bundið enda á möguleika á ógildingu samkvæmt 114. gr. laga nr. 120/2016 ítreki kærandi kröfu um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Kærandi hafi borið tjón af því að vera ólögmætt útilokaður frá innkaupunum þar sem þau hafi verið færð í lokað örútboð án lagastoðar, sbr. úrskurð nefndarinnar nr. 50/2020.

 

III

Varnaraðili byggir á að kærandi sé ekki aðili að rammasamningi um raftæki og eigi því ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu örútboðsins.

Varnaraðili tiltekur að hann hafi orðið aðili að skuldbindandi rammasamningi um raftæki sem hafi tekið gildi 4. nóvember 2025. Örútboð varnaraðila innan rammasamnings sé ekki til að koma í veg fyrir að kærandi geti tekið þátt í útboðinu, heldur eingöngu til að uppfylla samningsskyldur sínar enda falli innkaupin að þeim vörunúmerum sem rammasamningurinn nái yfir og lýsingu á efni rammasamningsins að öðru leyti. Varnaraðili hafi fengið staðfestingu frá Fjársýslu ríkisins um að fyrirhuguð innkaup rúmuðust innan rammasamningsins í kjölfar fyrirspurnar varnaraðila þar að lútandi. Það hafi verið mat varnaraðila að hann hafi í raun getað samið við Atendi ehf. eftir að fyrra útboðinu hafi lokið á grundvelli a. liðar 1. mgr. 39. gr. OIL en hann hafi ákveðið að nýta sér ekki það undanþáguákvæði og tryggja samkeppni eins og best hafi verið á kosið.

Varnaraðili hafnar sjónarmiðum kæranda að um verk- eða þjónustusamning sé að ræða og byggir á að innkaupin hafi lotið að gerð vörusamnings samkvæmt 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 5. gr. laga nr. 120/2016 og vísar meðal annars til tilboðs kæranda í fyrra útboði þar sem vinna hafi lítill hluti af heildarkostnaði við verkefnið.

Varnaraðili rekur grein 1.5.9 í rammasamningnum en samkvæmt því ákvæði sé gert ráð fyrir að kaupandi fái meðal annars þjónustu við uppsetningu, kennslu og prófanir á virkni tækja. Rammasamningurinn nái því ekki aðeins til vöru heldur einnig tilfallandi þjónustu. Öll vinna sem gert sé ráð fyrir við uppsetningu og kennslu sé því innan rammasamningsins. Þá hafi varnaraðili sjálfur þegar unnið 90% af allri lagnavinnu sem nauðsynleg sé vegna uppsetningar búnaðarins. Hvað varði sjónarmið kæranda um að forritun á búnaði falli ekki undir rammasamninginn vísi varnaraðili til þess að kostnaðaráætlun kæranda vegna fyrra útboðs hafi gert ráð fyrir að forritunvinna og stilling búnaðar væri 2% af heildarverðinu. Það sé því augljóst að samkvæmt áætlun kæranda sjálfs að forritunarvinna hafi verið smávægilegur hluti af heildarverði búnaðarins. Þessi smávægilega forritunarvinna sé liður í uppsetningu/stillingu á búnaðinum sem sé innifalin samkvæmt rammasamningi.

Varnaraðili fjallar um vöruflokkunarkerfi rammasamningsins og byggir á að allur búnaðurinn sem boðinn hafi verið út með hinu kærða útboði falli undir vöruflokka rammasamningsins. Undir samninginn falli vöruflokkurinn 45110000 sem sé hljóð- og mynd­kynningar­­búnaður og samsetningarbúnaður. Tilvísun til vöruflokks feli í sér að þær vörur sem falli undir flokk, tegund og vöru undir þeim vöruhópi, falli undir rammasamninginn. Undir vöruflokkinn 45110000 falli m.a. tegund 45111700 sem sé hljóðkynningar­búnaður og sam­setningar­búnaður, vélbúnaður og stjórnkerfi. Samkvæmt heiti þessa flokks taki hann beinlínis til hljóðkynningarbúnaðar, samsetningar- og vinnslubúnaðar, vélbúnaðar og stýri- og stjórnkerfa.

Auk framangreinds sé hljóðmixer í eðli sínu hljóðvinnslu- og stýringarbúnaður sem notaður sé til að taka við, vinna og samstilla hljóðmerki í kynningar- og fundarumhverfi. Slíkur búnaður geti flokkast sem hljóðkynningarbúnaður og samsetningarbúnaður, vélbúnaður og stjórnkerfi. Hljóðmixer falli undir númerið 45111704 (Audio Mixing Console). Ráarbúnaður sem stýri virkni hljóðbúnaðar sé jafnframt stjórn- og stýringarbúnaður samkvæmt sama flokki. Af framangreindu leiði að bæði hljóðmixer og ráarkerfi falla efnislega undir 45111700 (Hljóðkynningar­búnaður og samsetningarbúnaður, vélbúnaður og stjórnkerfi) og þar með undir 45110000 hljóð- og myndkynningarbúnaður og samsetningarbúnaður sem rammasamningurinn taki til. Ef einhver vafi sé um ráarbúnaðinn, þá hafi hann verið boðinn út í fyrra útboði ásamt hljóð- og myndbúnaði og hafi tilboð í hann ekki verið hærri en 10 m.kr. ásamt uppsetningu og stjórnbúnaði en það sé langt undir viðmiðunarmörkum um útboðsskyldu sveitarfélags sem sé kr. 32.247.000 kr. Þar að auki sé heimilt skv. kafla 1.5.3. í útboðslýsingu rammasamningsins að hafa auka- og fylgivöru sem tengist hinu boðna sem hluta af örútboði á vörum og búnaði.

Kærandi byggi á því að miðlæg stýring með IP-tengingum og forritanlegum stjórnskjám valdi því að umrædd innkaup falli utan gildissviðs ramma­samningsins. Varnaraðili mótmælir því. Miðlæg stýring sé hluti af samþættum hljóðbúnaði og hafi það hlutverk að stjórna og samræma virkni þess búnaðar sem falli undir örútboðið. Undir UNSPSC 45110000 falli eins og áður segir flokkurinn  45111700 sem er hljóðkynningarbúnaður og samsetningar­búnaður, vélbúnaður og stjórnkerfi. Samkvæmt orðalagi flokksins taki hann beinlínis til stjórn- og stýringarbúnaðar. Miðlæg IP-stýring og forritanlegir stjórnskjáir séu í þessu samhengi ekki sjálfstætt upplýsingatæknikerfi heldur notendaviðmót og stýribúnaður fyrir hljóð- og myndbúnað. Sú staðreynd að búnaðurinn noti IP-tengingar breyti ekki efnislegu eðli hans sem stjórn- og stýringarbúnaðar fyrir hljóð- og myndbúnað, enda séu slík samskipti staðalbúnaður í nútíma hljóð- og myndlausnum. Megintilgangur innkaupanna hafi verið kaup og uppsetning á hljóð- og myndbúnaði. Umrædd stýring hafi verið óaðskiljanlegur hluti þeirrar heildarlausnar og falli því undir sama vörusvið og meginbúnaðurinn. Miðlæg stýring fellur undir  númerið 45111801 (e. media control systems).

Séu einhver vafaatriði varðandi hvort að tiltekinn búnaður hafi fallið undir vöruflokka rammasamnings hafi verið heimilt að kaupa hann inn eftir kafla 1.5.3 þar sem kaupanda hafi meðal annars verið veitt heimild til að kaupa inn auka- og fylgivörur.

Samandregið hafi verið um að ræða kaup á hljóð- og myndbúnaði fyrir fundar- og kynningarumhverfi. Ráarkerfi og miðlægar stýringar með IP tengingum og stjórnskjám séu óaðskiljanlegir og nauðsynlegir þættir þeirrar heildarlausnar auk uppsetningar, forritunar og kennslu á búnaðinn. Ekki sé um að ræða sjálfstætt upplýsingatæknikerfi eða vöruflokk sem sé efnislega aðskilinn frá hljóð- og myndbúnaði. Örútboðið lúti því að búnaði sem falli efnislega og eðlilega undir það vörusvið sem rammasamningurinn skilgreini.

 

IV

A

Mál þetta lýtur að útboði varnaraðila varðandi kaup á nýju hljóð- og myndkerfi fyrir Sindrabæ á Hornafirði en um var að ræða örútboð sem fór fram innan rammasamnings um raftæki nr. RK.11.11.

Varnaraðili byggir á að kæranda skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins þar sem hann sé ekki aðili að umræddum rammasamningi.

Samkvæmt fyrri málslið 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 hafa þau fyrirtæki sem njóta réttinda samkvæmt lögunum og hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn máls, heimild til að skjóta málum til nefndarinnar. Í framkvæmd hefur kærunefnd útboðsmála litið svo á að þau fyrirtæki sem geti haft áhuga á að taka þátt í innkaupaferli hafi heimild til þess að bera kæru undir nefndina. Matið færi þá fyrst og fremst eftir því hvort starfsemi viðkomandi fyrirtækis samrýmdist þeim samningi sem stefnt væri að með innkaupunum sbr. úrskurði í málum nr. 25/2020 og 22/2023.

Málatilbúnaður kæranda lýtur í aðalatriðum að því að varnaraðila hafi verið óheimilt að bjóða innkaupin út innan fyrrgreinds rammasamnings. Þá verður að telja að starfsemi kæranda samrýmist þeim samningi sem stefnt var að með innkaupunum en í þessu samhengi er þess meðal annars að gæta að kærandi tók þátt í fyrra útboði vegna sömu innkaupa, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 16/2025. Samkvæmt þessu verður ekki fallist á með varnaraðila að kæranda skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.

Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 segir að eftir að bindandi samningur hefur komist á samkvæmt lögunum verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Fyrir liggur að varnaraðili og Atendi ehf. gerðu með sér bindandi samning á grundvelli örútboðsins. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að viðhafa örútboðið.

 

B

Samkvæmt framangreindu koma eingöngu til álita kröfur kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og um að varnaraðili greiði honum málskostnað. Um fyrrgreindu kröfuna segir í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna tjóns sem brot á lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboðinu.

Svo sem fyrr greinir lýtur málatilbúnaður kæranda að því að varnaraðila hafi verið óheimilt að bjóða innkaupin út innan fyrrgreinds rammasamnings. Varnaraðili byggir á að innkaupin hafi rúmast innan B-hluta rammasamningsins.

Af ákvæðum laga nr. 120/2016 leiðir að heimild kaupanda til að viðhafa innkaup innan rammasamnings er háð þeirri forsendu að þau rúmist innan skilmála hans, sbr. meðal annars 3. mgr. 40. gr. þar sem fram kemur að við gerð einstakra samninga á grundvelli rammasamnings sé óheimilt að gera verulegar breytingar á skilmálum rammasamnings.

Í grein 1.1.2 í útboðslýsingu rammasamningsútboðsins kom fram að undir B-hlutann féllu tæki og hugbúnaður fyrir hljóð og mynd og var í greininni að finna upptalningu á virkni búnaðar og notkunarrýmum í dæmaskyni. Þá sagði í greininni að „sviðsbúnaður og kerfislausnir í hljóð og mynd“ væru ekki hluti af rammasamningnum.

Í kafla I hér að framan er gerð grein fyrir megininntaki hinna kærðu innkaupa samkvæmt útboðs-, verk- og tæknilýsingu. Að mati kærunefndar útboðsmála verður ekki ráðið annað af fyrirliggjandi gögnum en að innkaupin hafi meðal annars lotið að kaupum á sviðsbúnaði og kerfislausnum í hljóð og mynd. Að þessu gættu og að virtum fyrirliggjandi gögnum að öðru leyti verður fallist á með kæranda að innkaupin samkvæmt örútboðinu hafi ekki rúmast innan gildissviðs rammasamningsins.

Í framangreindu samhengi skal þess getið að það er mat nefndarinnar að hin kærðu innkaup hafi náð viðmiðunarfjárhæð laga nr. 120/2016 sem er 32.247.000 krónur án virðisaukaskatts vegna vöru- og þjónustusamninga sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016 og 3. gr. reglugerðar nr. 360/2022.

Fyrir liggur að bæði kostnaðaráætlun varnaraðila sem og tilboð Atendi ehf. í örútboðinu eru undir framangreindri fjárhæð. Á hinn bóginn liggur fyrir að í fyrra útboði varnaraðila, sem kom til kasta nefndarinnar í máli nr. 16/2025, var einnig óskað eftir tilboðum í ljósakerfi. Í greinargerð varnaraðila er rakið að hann hafi, í kjölfar samskipta við Fjársýslu ríkisins, ákveðið að bjóða aðeins út hljóð- og myndbúnað í örútboðinu og eftir stæði að taka ákvörðun um hvernig staðið yrði að innkaupum á ljósabúnaði. Þá lagði varnaraðili fram kostnaðaráætlun sína vegna innkaupanna en þar kemur fram að áætlaður kostnaður þeirra, að meðtöldu umræddu ljósakerfi, nemi samtals 46.096.087 krónum.

Samkvæmt framangreindu og eins og atvikum er hér nánar háttað verður að mati nefndarinnar að leggja til grundvallar að umrætt ljósakerfi sé hluti af stærri innkaupum og að við mat á verðmæti innkaupanna beri að líta til samanlagðs virði innkaupa á hljóð-, mynd- og ljósakerfinu, sbr. 1. mgr. 29. gr. laga nr. 120/2016. Að þessu og öðru framangreindu gættu verður lagt til grundvallar að varnaraðili hafi, með auglýsingu umrædds örútboðs, brotið gegn ákvæðum rammasamningsins og lögum nr. 120/2016.

 

C

Af lokamálslið 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 leiðir að kærunefnd útboðsmála getur veitt álit á skaðabótaskyldu þegar fyrirtæki hefur tekið þátt í opinberu útboði þar sem brotið hefur verið í bága við lög nr. 120/2016, að nánar tilgreindum skilyrðum uppfylltum. Hér háttar svo til að starfsemi kæranda samrýmist, svo sem fyrr segir, þeim samningi stefnt var að með innkaupunum og verður engu slegið föstu um að kærandi hafi ekki átt raunhæfa möguleika á að verða valinn ef innkaupin hefðu farið fram á réttum lagagrundvelli. Þá er ljóst að kærandi hafði enga möguleika á að taka þátt í örútboðinu þar sem hann var ekki aðili að rammasamningnum og skertust möguleikar hans því við brot varnaraðila.

Samkvæmt framangreindu verður að telja að kærandi geti átt bótarétt samkvæmt 119. gr., sbr. 1. og 2. málslið 1. mgr., en sá réttur takmarkast á hinn bóginn við kostnað kæranda við að setja fram tilboð eða taka þátt í útboðinu, sbr. 3. málslið. Þar sem engum slíkum kostnaði er hér að dreifa í tengslum við það réttarbrot sem lýst er að framan getur nefndin því ekki veitt álit á skaðabótaskyldu, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar í máli nr. 39/2024.

Með hliðsjón af málsúrslitum þessa máls og dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 555/2006 verður að lokum að hafna kröfu kæranda um málskostnað.

 

Úrskurðarorð:

Öllum kröfum kæranda, Exton ehf., í máli þessu er hafnað.

 

Reykjavík, 29. september 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

 

Var efnið hjálplegt?