18. nóvember 2026 /
Mál nr. 117/2026 Úrskurður 18. nóvember 2026
Mál nr. 117/2026 Aðlögun kenninafns: Mikaelsson
Hinn 18. nóvember 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 117/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 17. nóvember 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX um að kenna sig við föður sinn, Michel, þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hans verði Mikaelsson.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Mikaelsson.