20. nóvember 2026 /

Mál nr. 15/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 19. október 2026

í máli nr. 15/2026:

Modulbyggingar ehf.

gegn

Landsvirkjun og

Stólpum Gámum ehf.

 

Lykilorð

Ákvörðun um val tilboðs afturkölluð. Málskostnaður.

Útdráttur

M kærði ákvörðun L um að velja tilboð S í útboði vegna vinnubúða við stækkun Sigöldustöðvar. Undir rekstri málsins afturkallaði L hina kærðu ákvörðun og hafnaði öllum tilboðum. M féll frá öllum kröfum sínum í málinu í kjölfarið að undanskilinni málskostnaðarkröfu sinni. Kærunefnd útboðsmála taldi að L hefði í raun fallist á aðalkröfu M í málinu með því að afturkalla hina kærðu ákvörðun sína og var L því gert að greiða M málskostnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. apríl 2026 kærði Modulbyggingar ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Landsvirkjunar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 2025-20 auðkennt „Stækkun Sigöldustöðvar – SIG02 Vinnubúðir.“

Kærandi krafðist þess aðallega að felld yrði úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 27. mars 2026 um að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. í hinu kærða útboði. Til vara krafðist kærandi þess að kærunefnd útboðsmála léti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þess var að auki krafist að kærunefnd útboðsmála myndi stöðva innkaupaferlið og samningsgerð um stundarsakir þar til endanlega hefði verið skorið úr kærunni. Kærandi krafðist enn fremur málskostnaðar úr hendi varnaraðila að mati kærunefndarinnar.

Varnaraðila og Stólpa Gámum ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 16. apríl 2026 og upplýsti að ákveðið hefði verið að afturkalla ákvörðun um val tilboðs og jafnframt að öllum tilboðum hefði verið hafnað.

Stólpi Gámar ehf. lögðu fram athugasemdir vegna kærunnar 20. apríl 2026 og krefjast þess að öllum kröfum kæranda verði vísað frá, en til vara að kröfum kæranda verði hafnað og að banni við samningsgerð verði aflétt. Í báðum tilvikum krefst Stólpi Gámar ehf. þess að kæranda verði gert að greiða þeim málskostnað.

Kærandi sendi kærunefnd útboðsmála erindi 28. apríl 2026 og upplýsti að varnaraðili hefði tilkynnt um að ákveðið hafi verið að afturkalla ákvörðun sína um val á tilboði. Ítrekaði kærandi því málskostnaðarkröfu sína.

Með ákvörðun 29. apríl 2026 aflétti kærunefnd útboðsmála þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar sem hafði komist á með kæru málsins.

Varnaraðili lagði fram frekari athugasemdir 22. maí 2026 og krefst þar aðallega að öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála en til vara að öllum kröfum kæranda verði hafnað.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 3. júní 2026, þar sem ítrekað var að kærandi félli frá öllum kröfum sínum í málinu að undanskilinni málskostnaðarkröfu sinni.

 

I

Varnaraðili auglýsti hið kærða útboð í október 2025. Í grein 1.1.1 kom fram að óskað væri eftir tilboðum í uppbyggingu vinnubúða með gistirými fyrir allt að 56 starfsmenn, skrifstofurými og heilsurækt vegna stækkunar Sigöldustöðvar í Rangárþingi Ytra. Um væri að ræða almennt útboð samkvæmt 49. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um aðila sem annist vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Þá kom fram að varnaraðili hygðist velja fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið á grundvelli besta hlutfalls milli verðs og gæða þeirrar vöru sem varnaraðili óskaði eftir.

Valforsendur komu fram í grein 1.10.5. Þar var tekið fram að það tilboð sem hefur flest samanlögð stig fyrir tilboðsverð annars vegar og gæði vinnubúða hins vegar væri hagstæðasta tilboðið. Lægsta tilboðið fengi 80 stig fyrir verð og þá yrðu gefin mest 20 stig fyrir gæði vinnubúðaeininga, sbr. valforsendur í grein 1.10.5.1. Stig bjóðenda yrðu svo reiknuð út eftir formúlu sem kom fram í grein 1.10.5, þannig að samanlögð stig fyrir verð og gæði vinnubúða yrðu heildarstig bjóðenda.

Tilboð voru opnuð 13. febrúar 2026 og bárust alls fjögur tilboð. Stólpi Gámar ehf. fengu 85 stig samkvæmt valforsendum útboðsgagna, en kærandi fékk 83 stig. Þá fékk Sjammi ehf. 80 stig.

Með tilkynningu sem send var bjóðendum 27. mars 2026, upplýsti varnaraðili um að ákveðið hefði verið að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. Bjóðendum var leiðbeint um biðtíma samningsgerðar og tekið fram að varnaraðili hygðist gera samning við Stólpa Gáma ehf. 8. apríl 2026. Kæra málsins barst kærunefnd útboðsmála 6. apríl 2026.

Varnaraðili sendi bjóðendum í gegnum útboðskerfið tilkynningu 16. apríl 2026 þar sem tekið var fram að komið hafi í ljós annmarkar á yfirferð tilboða í hinu kærða útboði, og eftir ítarlegri yfirferð tilboða hafi varnaraðili ákveðið að afturkalla ákvörðun sína um að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. Jafnframt væri ljóst að engin gild tilboð hefðu borist í hinu kærða útboði og hefði því öllum tilboðum verið hafnað.

 

II

Kærandi byggir á því í kæru sinni að tilboð Stólpa Gáma ehf. hafi ekki uppfyllt lágmarkskröfur útboðsgagna, annars vegar að þær geti ekki talist færanlegar í skilningi greinar 1.2 í útboðslýsingu, og hins vegar telji kærandi að varnaraðila hafi borið að rannsaka nánar hvort tilboð Stólpa Gáma ehf. hafi verið óeðlilega lágt, þ.m.t. hvort verðlagning þess byggi á því að ekki sé farið að gildandi ákvæðum kjarasamninga við launagreiðslur til starfsmanna.

Í erindi kæranda 28. apríl 2026, sem jafnframt er ítrekað í lokaathugasemdum hans 3. júní 2026, féll kærandi frá öllum kröfum sínum í málinu fyrir utan kröfu um greiðslu málskostnaðar. Telji kærandi ljóst að varnaraðili hafi afturkallað ákvörðun sína um val tilboðs í beinu framhaldi af framlagningu kærunnar og þeim ágöllum á útboðsferlinu sem þar hafi verið lýst. Að því er varðar málskostnaðarkröfu þá vísar kærandi til þess að samkvæmt úrskurðarframkvæmd kærunefndar útboðsmála eigi kærandi rétt á málskostnaði úr hendi kaupanda í þeim tilvikum þegar kaupandi breytir eða afturkalli hina kærðu ákvörðun eftir að kæra hafi verið lögð fram, sbr. m.a. úrskurði kærunefndarinnar í málum nr. 17/2021, 2/2025 og 20/2025.

Kærandi andmælir sjónarmiðum varnaraðila þess efnis að málskostnaður eigi að falla niður þar sem tilboð kæranda hafi ekki verið gilt. Bendir kærandi á að í úrskurði 14/2021, sem varnaraðili hafi vísað til máli sínu til stuðnings, hafi kröfu um álit á skaðabótaskyldu verið haldið til streitu og kærunefndin hafi því verið knúin til að leggja efnislegt mat á gildi tilboðsins. Kærandi hefur hér hins vegar dregið til baka allar kröfur sínar, þ. á m. kröfu um álit á skaðabótaskyldu varnaraðila. Kærandi bendir jafnframt á að í máli nr. 14/2021 hafi kaupandi tilkynnt kæranda að tilboð hans hafi ekki uppfyllt lágmarkskröfur og að sú ákvörðun varnaraðila hafi verið grundvöllur kærunnar í því máli. Þessu sé öfugt farið nú, þar sem varnaraðili hafi ekki tilkynnt kæranda um meint ógildi tilboðs hans fyrr en að framkominni kæru. Varnaraðili hafi engu að síður á fyrri stigum metið tilboð kæranda gilt og gefið því einkunn í matsferli.

Kærandi andmælir jafnframt málskostnaðarkröfu Stólpa Gáma ehf. og bendir í þeim efnum á að í lögum nr. 120/2016 sé ekki að finna heimild fyrir því að kæranda verði gert að greiða hagsmunaaðilum eða varnaraðilum málskostnað. Kærunefnd útboðsmála geti aðeins úrskurðað varnaraðila til að greiða málskostnað eða úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað í ríkissjóðs samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

 

III

Varnaraðili andmælir öllum kröfum kæranda og bendir á að í kjölfar ábendingar frá öðrum bjóðanda hafi verið rétt að fara í ítarlegri yfirferð á þeim tilboðum sem hafi borist í hinu kærða útboði. Þá hafi komið í ljós að öll tilboð hafi verið ógild og þeim hafi því verið hafnað. Varnaraðili telur að kærandi hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins samkvæmt 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016, þar sem varnaraðili hafi afturkallað ákvörðun sína um val tilboðs og jafnframt hafi öllum tilboðum verið hafnað og hið kærða innkaupaferli sé því lokið. Því beri að vísa kröfum kæranda frá. Í þessum efnum vísar varnaraðili til úrskurða kærunefndar útboðsmála nr. 27/2024 og 53/2025.

Til vara krefst varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda verið hafnað, en af a-lið 1. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017, sbr. einnig 5. mgr. sömu greinar, leiði að kaupanda sé skylt að hafna tilboði sem ekki uppfylli kröfur útboðsgagna. Kaupandi verði að geta brugðist við verði hann þess var, áður en endanlegur samningur kemst á, að tilboð séu ekki í samræmi við útboðsgögn eða uppfylli ekki skilmála innkaupaferlisins. Þá hafi kærunefnd útboðsmála staðfest að kaupendum sé heimilt að afturkalla ákvörðun um val á tilboði ef afar veigamiklar ástæður liggi að baki, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 33/2022.

Að því er varðar kröfu kæranda um greiðslu málskostnaðar þá andmælir varnaraðili því að kærandi eigi tilkall til málskostnaðar, og vísar til þess að kærunefnd útboðsmála hafi ítrekað slegið því föstu að þegar kærandi eigi ekki raunhæfa möguleika á að verða valinn vegna þess að tilboð uppfylli ekki kröfur útboðsgagna, skuli málskostnaður falla niður, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 14/2021. Þegar bjóðandi leggi fram ógilt tilboð geti hann ekki krafist þess að kaupandi gerði honum málskostnað við að reyna að knýja fram rétt sem hann hafi aldrei átt til að bera. Því sé fullt tilefni til að málskostnaður verði látinn niður falla.

Stólpi Gámar ehf. telja að vísa beri kærunni frá kærunefnd útboðsmála vegna afturköllunar varnaraðila á vali tilboðs, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016, enda séu ekki lengur lögvarðir hagsmunir fyrir því að fá afstöðu nefndarinnar til kæruefnisins, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndarinnar í máli nr. 37/2025. Verði kærunni ekki vísað frá, krefst Stólpi Gámar ehf. þess að kröfum kæranda verði hafnað og andmælir sjónarmiðum kæranda um meint ógildi tilboðs félagsins sem röngum. Telji Stólpi Gámar ehf. tilboð sitt hafa verið í samræmi við kröfur útboðsgagna. Að auki krefjist Stólpi Gámar ehf. þess að kæranda verði gert að greiða sér málskostnað fyrir nefndinni.

 

IV

Líkt og greinir hér að framan hefur kærandi fallið frá öllum kröfum sínum í málinu að undanskilinni málskostnaðarkröfu sinni. Er því eina krafan til úrlausnar í máli þessu krafa kæranda um að varnaraðili greiði sér málskostnað.

Í 1. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 segir að nefndin geti ákveðið að varnaraðili greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi. Umrætt ákvæði á rætur sínar að rekja til 3. mgr. 81. gr. eldri laga um opinber innkaup nr. 94/2001. Í lögskýringargögnum með því ákvæði kom fram að ákvörðun um málskostnað ætti að jafnaði aðeins að koma til greina ef varnaraðili tapaði máli fyrir nefndinni í öllum verulegum atriðum.

Fyrir liggur að varnaraðili afturkallaði ákvörðun sína um val tilboðs eftir að kæra málsins barst kærunefnd útboðsmála og verður því að telja að með því hafi varnaraðili í raun fallist á aðalkröfu kæranda, sem laut að því að felld yrði úr gildi ákvörðun varnaraðila um val tilboðs Stólpa Gáma ehf. Að þessu gættu og eins og mál þetta er vaxið verður að telja að eðlilegt að varnaraðili greiði kæranda málskostnað, sem þykir hæfilega ákveðinn 500.000 krónur, sbr. til hliðsjónar úrskurði kærunefndar útboðsmála nr. 17/2021 og 19/2021.

Í greinargerð Stólpa Gáma ehf. er gerð krafa um að kæranda verði gert að greiða félaginu málskostnað. Í lögum nr. 120/2016 er ekki mælt fyrir um heimild til  handa kærunefnd útboðsmála til þess að úrskurða varnaraðila eða hagsmunaaðila málskostnað úr hendi kæranda, sbr. úrskurð nefndarinnar 7. mars 2022 í máli nr. 47/2022. Í 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 er þó mælt fyrir um að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa geti kærunefnd úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem renni í ríkissjóð. Þótt kærandi hafi í máli þessu fallið frá öllum efnislegum kröfum sínum þá verður ekki talið að skilyrðum ákvæðisins sé fullnægt. Er kröfu Stólpa Gáma ehf. um greiðslu málskostnaðar úr hendi kæranda því hafnað.

 

Úrskurðarorð

Varnaraðili, Landsvirkjun, greiði kæranda, Modulbyggingum ehf., 500.000 krónur í málskostnað.

Kröfu Stólpa Gáma ehf., um greiðslu málskostnaðar úr hendi kæranda, er hafnað.

 

Reykjavík, 19. október 2026

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

 

Sigurður Snædal Júlíusson

Var efnið hjálplegt?