20. nóvember 2026 /

Mál nr. 19/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 26. október 2026

í máli nr. 19/2026:

Háfell ehf.

gegn

Veitum ohf. og

Jarðvali sf.

 

Lykilorð

Ákvörðun um val tilboðs felld úr gildi. Málskostnaður.

Útdráttur

H kærði ákvörðun V um að hafna tilboði félagsins og velja tilboð J í útboði sem laut að endurgerð gatna og endurnýjun lagna. V upplýsti undir rekstri málsins að mistök hefðu verið gerð við yfirferð tilboða. Hefði V því afturkallað ákvörðun sína um val tilboðs sem og ákvörðun um að hafna tilboði H. Í kjölfar þessa upplýsti H að með afturköllun ákvarðananna hefði H fengið kröfum sínum framgengt í málinu og eina krafan sem stæði eftir að leysa úr væri krafa um málskostnað. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var talið að V hefði í raun fallist á hluta kröfugerðar H, og H hefði jafnframt fallið frá kröfu sinni um að kærunefnd útboðsmála veitti álit sitt á skaðabótaskyldu V. Með vísan til þessa var V gert að greiða H málskostnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. apríl 2026 kærði Háfell ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Veitna ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. VEV-2026-01 auðkennt „Drápuhlíð – Langahlíð – Endurgerð gatna og endurnýjun lagna.“

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila frá 9. apríl 2026, um að velja tilboð Jarðvals sf. og hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði, verði felld úr gildi. Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og málskostnaðar úr hendi varnaraðila vegna kostnaðar við að hafa kæruna uppi.

Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála bréf 28. apríl 2026 og upplýsti að ákveðið hefði verið að draga til baka ákvörðun um val tilboðs sem og ákvörðun um að hafna tilboði kæranda.

Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir upplýsingum frá varnaraðila 29. apríl 2026 um hvort bjóðendum hefði verið tilkynnt um að ákvörðun um val tilboðs hefði verið dregin til baka. Varnaraðili svaraði erindinu þann sama dag og upplýsti um að bjóðendum hefði verið send slík tilkynning. Afrit af tilkynningum til bjóðenda fylgdi með svari varnaraðila.

Með ákvörðun 12. maí 2026 aflétti kærunefnd útboðsmála þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar sem komist hafði á með kæru málsins þar sem varnaraðili hefði afturkallað ákvörðun sína um val tilboðs.

Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 18. maí 2026 og upplýsti að engar frekar athugasemdir yrðu gerðar af hans hálfu í málinu.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 23. júní 2026.

Jarðval sf. hefur ekki látið málið til sín taka.

Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir frekari upplýsingum 11. október 2026 um stöðu útboðsins, þ. á m. um val á tilboðum. Varnaraðili svaraði erindi kærunefndar útboðsmála 13. október 2026 og upplýsti að öllum tilboðum hefði verið hafnað og að verkið hefði ekki verið boðið út að nýju.

 

I

Varnaraðili auglýsti hið kærða útboð í mars 2026. Í grein 1.1.2 í útboðsgögnum kom fram almenn lýsing verksins, sem fælist í aðalatriðum í því að endurgera yfirborð gatna, hjólastíga og gangstétta og endurnýja vatnsmiðla varnaraðila í Drápuhlíð milli Reykjahlíðar og Lönguhlíðar og í Lönguhlíð, milli Eskitorgs og Miklubrautar. Helstu magntölur komu fram í sömu grein. Þá var tekið fram að verkinu skyldi lokið eigi síðar en 1. desember 2027, og að verkinu yrði skipt í fimm verkáfanga.

Í grein 1.1.7.4 í útboðsgögnum voru gerðar kröfur til tæknilegrar og faglegrar getu bjóðanda. Bjóðendur skyldu m.a. hafa reynslu af þremur sambærilegum verkum og voru tilteknar nokkrar kröfur í greininni sem verk þyrfti að uppfylla til að geta talist sambærilegt. Þar á meðal skyldi sambærilegt verk hafa numið 50% af tilboðsfjárhæð bjóðanda í hinu kærða útboði og skyldu bjóðendur leggja fram staðfestingu frá viðkomandi samningsaðilum um hvernig þessum kröfum væri fullnægt. Heimilt væri að taka tillit til reynslu eigenda, stjórnenda, lykilstarfsfólks og undirverktaka af verklegum framkvæmdum og leggja slíka reynslu að jöfnu við reynslu bjóðandans sjálfs.

Valforsendur komu fram í grein 1.3 í útboðsgögnum. Samkvæmt greininni yrði hagkvæmasta tilboði tekið. Verð myndi gilda 80% af lokaeinkunn og umhverfismál 20%. Umhverfismálum væri jafnframt skipt upp í þrjá liði, í fyrsta lagi vottað umhverfisstjórnunarkerfi sem myndi gilda 2%, notkun á umhverfisvænni orku sem myndi gilda 15% og loks umhverfisstaðal tækja sem myndi gilda 3%. Þyrftu fullnægjandi gögn að fylgja með tilboði til þess að fá stig fyrir þessar matskröfur.

Samkvæmt tilkynningu varnaraðila 9. apríl 2026 var tilboði Jarðvals sf. tekið, sem hefði fengið 80 stig fyrir verð og 18 stig fyrir umhverfisþætti, eða alls 98 stig. Tilboð kæranda uppfyllti ekki kröfur um reynslu og var því hafnað.

 

II

Kærandi byggir á því að það sé rangt að hann hafi ekki uppfyllt lágmarksskilyrði útboðsgagna um reynslu, enda sé hann einn reynslumesti verktaki landsins í verkum af því tagi sem hið kærða útboð lýtur að. Enginn vafi sé á um að tvö sambærilegra verka hans uppfylli kröfuna um 50% af tilboðsfjárhæð kæranda í hið kærða verk. Þá séu tvö önnur þeirra verka sem kærandi hafi tilgreint einnig yfir þeirri fjárhæð sé litið til endanlegrar upphæðar. Þau verk hafi farið fram úr áætlun samkvæmt samningi og endanleg fjárhæð hafi náð þessari kröfu hins kærða útboðs. Í útboðsgögnum hafi ekki verið tekið fram að miða ætti við samningsfjárhæð sambærilegra verka og því sé eðlilegt að miða við endanlega heildarupphæð verkanna, enda endurspegli það raunverulegt umfang þeirra. Kærandi byggir einnig á því að varnaraðila hafi verið óheimilt að líta ekki til reynslu lykilstjórnenda sinna í þessu sambandi. Heimild útboðsgagna sé mjög algeng og þekki varnaraðili engin dæmi þess að kaupandi nýti ekki slíka heimild.

Í lokaathugasemdum kæranda er vísað til þess að í kjölfar móttöku kærunnar hafi varnaraðili afturkallað hina kærðu ákvörðun. Í greinargerð varnaraðila sé rakið að misskilningur hefði orðið milli starfsmanna varnaraðila varðandi yfirferð á tilboðsgögnum, og hefði yfirferð þeirra ekki verið lokið þegar tilkynnt hafi verið um val á tilboði. Kærandi líti þannig á að með afturköllun sinni hafi kærandi fengið kröfum sínum framgengt í málinu og að eina krafan sem standi eftir að leysa úr sé krafa kæranda um málskostnað. Kærandi krefst þess að varnaraðili verði úrskurðaður til að greiða kæranda málskostnað í samræmi við 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016, en að mati kæranda verði að líta svo á að varnaraðili hafi með afturkölluninni orðið við veigarmiklum þætti í kröfugerð kæranda. Í þessu sambandi vísar varnaraðili til úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 32/2024, sbr. einnig 2/2026 og 11/2026.

 

III

Varnaraðili upplýsti í greinargerð sinni 28. apríl 2026 að misskilningur hefði orðið innanhúss varðandi yfirferð á tilboðsgögnum. Yfirferð á hæfiskröfum hefði ekki verið lokið þegar val á tilboði hefði verið tilkynnt. Hefði því nú verið ákveðið að draga til baka val á tilboði Jarðvals sf. og að sama skapi draga til baka höfnun á tilboði kæranda. Muni varnaraðili í kjölfarið klára yfirferð á tilboðum sem hafi borist í hinu kærða útboði og taka afstöðu til þeirra á ný.

 

IV

Kröfugerð kæranda lýtur að því að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Jarðvals sf. og um leið hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Að auki krefst kærandi álits kærunefndar útboðsmála á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér vegna umræddra ákvarðana. Líkt og að framan greinir hefur varnaraðili afturkallað ákvörðun sína um val á tilboði Jarðvals sf. og lýsti varnaraðili því yfir að yfirferð á tilboðum yrði kláruð og tekin afstaða til þeirra að nýju. Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir upplýsingum frá varnaraðila um hver staðan á yfirferð tilboða væri þann 11. október 2026, og í svari varnaraðila 13. október 2026 kemur fram að öllum tilboðum hafi verið hafnað og hið kærða verk hafi ekki verið boðið út að nýju.

Samkvæmt framangreindu verður að telja að varnaraðili hafi fallist á þann hluta kröfugerðar kæranda, um að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Jarðvals sf. Þá verður að skilja lokaathugasemdir kæranda sem svo að hann hafi fallið frá þeirri kröfu sinni að felld verði úr gildi sú ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði hans, sem og þeirri kröfu að veitt verði álit á skaðabótaskyldu varnaraðila. Eina krafan sem eftir stendur í máli þessu er því krafa kæranda um greiðslu málskostnaðar úr hendi varnaraðila.

Í 1. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 segir að nefndin geti ákveðið að varnaraðili greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi. Umrætt ákvæði á rætur sínar að rekja til 3. mgr. 81. gr. eldri laga um opinber innkaup nr. 94/2001. Í lögskýringargögnum með því ákvæði kom fram að ákvörðun um málskostnað ætti að jafnaði aðeins að koma til greina ef varnaraðili tapaði máli fyrir nefndinni í öllum verulegum atriðum.

Fyrir liggur að varnaraðili afturkallaði ákvörðun sína um val tilboðs eftir að kæra málsins barst kærunefnd útboðsmála og verður því talið að með því hafi varnaraðili hafi í raun fallist á kröfugerð kæranda að hluta, líkt og að framan greinir. Að þessu gættu verður að telja eðlilegt að varnaraðili greiði kæranda málskostnað, sbr. til hliðsjónar úrskurði kærunefndar útboðsmála nr. 17/2021 og 19/2021, sem þykir hæfilega ákveðinn 500.000 krónur.

 

Úrskurðarorð

Varnaraðili, Veitur ohf., greiði kæranda, Háfelli ehf., 500.000 krónur í málskostnað.

 

Reykjavík, 26. október 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?