20. nóvember 2026 /

Mál nr. 20/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2026

í máli nr. 20/2026:

Fólkvangur ehf.

gegn

Reykjavíkurborg og

Terra einingum ehf.

 

Lykilorð

Bindandi samningur.

Útdráttur

Ágreiningur málsins laut að lögmæti ákvörðunar varnaraðila um að hafna tilboði kæranda og velja tilboð hagsmunaaðila í útboði sem varðaði verkframkvæmdir við tiltekinn leikskóla í Reykjavík. Í úrskurði nefndarinnar kom fram að bindandi samningur hefði komist á milli varnar- og hagsmunaaðila og var því öllum kröfum kæranda hafnað, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 21. apríl 2026 kærir Fólkvangur ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Reykjavíkurborgar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 16269 auðkennt „Leikskólinn Jöfri. Kennslustofur. Hönnun, smíði og lóðafrágangur“.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun varnaraðila, um að taka tilboði annars bjóðanda, verði felld úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að endurmeta tilboð kæranda og annarra bjóðenda í samræmi við útboðsskilmála og lög nr. 120/2016 um opinber innkaup. Til vara krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á því að málsmeðferð varnaraðila hafi verið í andstöðu við lög um opinber innkaup, einkum meginreglur um jafnræði, gagnsæi, meðalhóf og rannsóknarskyldu. Þá krefst kærandi í báðum tilvikum að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað.

Varnaraðila og Terra einingum ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Athugasemdir bárust frá Terra einingum ehf. 30. apríl 2026 og varnaraðila 7. maí 2026.

Varnaraðili krefst þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í útboðinu verði aflétt. Þá krefst varnaraðili þess aðallega að aðalkröfu kæranda um endurmat á tilboði sínu og annarra bjóðenda og varakröfu kæranda verði vísað frá og öllum öðrum kröfum kæranda verði hafnað. Til vara krefst varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Jafnframt krefst varnaraðili þess að kærunefndin úrskurði kæranda til greiðslu málskostnaðar á grundvelli síðari málsliðar 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Terra einingar ehf. krefst þess að kærunni verði hafnað í heild sinni og að staðfest verði réttmæti ákvörðunar varnaraðila um að hafna tilboði kæranda og velja tilboð Terra eininga ehf.

Með ákvörðun 8. maí 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt. Engar frekari athugasemdir bárust frá varnar- og hagsmunaaðila.

Lokaathugasemdir kæranda bárust nefndinni 16. júní 2026.

Kærunefnd útboðsmála sendi erindi til varnaraðila 28. október 2026 og óskaði eftir upplýsingum hvort kominn væri á bindandi samningur í kjölfar útboðsins. Varnaraðili svaraði erindinu samdægurs og tók fram að bindandi samningur væri kominn á.

 

I

Með útboðsgögnum, dagsettum í febrúar 2026, óskaði varnaraðili eftir tilboðum í hinu kærða útboði. Í grein 0.5.2, sem bar yfirskriftina „Kröfur um hæfi vegna fjárhagsstöðu“, kom fram að kröfur um hæfi fjárhagsstöðu til bjóðenda kæmu fram í tilteknu excel-skjali sem fylgdi útboðsgögnum. Í skjalinu kæmi jafnframt fram hverju bjóðendur þyrftu að skila til að sýna fram á hæfi sitt. Uppfylltu bjóðendur ekki framsettar kröfur útboðsgagna um „hæfi vegna starfsréttinda“ yrði tilboðum þeirra hafnað. Þá kom fram í grein 0.6 að öll atriði sem varnaraðili óskaði eftir að fylgdu með tilboði bjóðanda kæmu fram í umræddu excel-skjali. Lögð væri rík áhersla á að bjóðendur skiluðu umbeðnum gögnum með tilboði sínu og gerðu þeir það ekki kynni það að valda ógildingu tilboðs. Þá kom fram í grein 0.3 að bjóðendur gætu sent varnaraðila fyrirspurnir við meðferð útboðsins, meðal annars ef þeir vildu óska eftir nánari upplýsingum eða skýringum á útboðsgögnum

Í framangreindu excel-skjali var meðal annars gerð sú krafa að bjóðandi skyldi vera með jákvætt eigið fé sem næmi 10% af tilboðsfjárhæð og að bjóðandi skyldi skila með tilboði sínu síðast gerðum ársreikningi, eigi eldri en 23 mánaða.

Með tölvupósti 16. apríl 2026 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að hann hefði ákveðið að velja tilboð Terra eininga ehf. Þá kom fram í tölvupóstinum að tilboði kæranda væri hafnað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki fjárhagskröfur í útboðinu þar sem eigið fé hans væri neikvætt.

 

II

Kærandi byggir á að varnaraðila hafi verið óheimilt að hafna tilboði félagsins á þeim grundvelli að eigið fé hans hafi verið neikvætt samkvæmt framlögðum ársreikningi. Kærandi rökstyður sjónarmið sín þessu tengdu í kæru og lokaathugasemdum sínum og byggir meðal annars á að ekki hafi nægjanlega skýrt komið fram í útboðsgögnum að neikvætt eigið fé samkvæmt ársreikningi myndi leiða til útilokunar og að málsmeðferð og rannsókn varnaraðila hafi verið ófullnægjandi.

Varnaraðili krefst þess að tilteknum þáttum í kröfugerð kæranda verði vísað frá þar sem þessi þættir falli ekki undir úrræði kærunefndar útboðsmála samkvæmt lögum nr. 120/2016. Eigi þetta við um aðalkröfu kæranda um að lagt verði fyrir varnaraðila að endurmeta tilboð kæranda og annarra bjóðenda í samræmi við útboðsskilmála og lög um opinber innkaup og varakröfu um að kærunefnd láti í ljós álit sitt á lögmæti málsmeðferðar varnaraðila.

Varnaraðili byggir í meginatriðum á að í útboðsgögnum hafi skýrlega komið fram sú krafa að bjóðandi skyldi vera með jákvætt eigið fé sem næmi 10% af tilboðsfjárhæð og sérstaklega tilgreint að bjóðandi skyldi sýna fram á umrætt hæfi með því að skila með tilboði sínu síðast gerðum ársreikningi eigi eldri en 23 mánaðar. Jafnframt að eigið fé kæranda hafi verið neikvætt samkvæmt framlögðum ársreikningi fyrir árið 2024 og hann hafi því ekki uppfyllt kröfuna.

Hagsmunaaðili mótmælir málatilbúnaði kæranda og byggir í meginatriðum að hæfisskilyrðið hafi verið skýrt og afdráttarlaust og að varnaraðili hafi verið rétt að velja tilboð félagsins sem lægsta gilda tilboðið.

- - -

 

Ekki þykir þörf á að gera nánar grein fyrir málatilbúnaði kæranda, varnaraðila eða hagsmunaaðila, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016. Kærunefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

 

III

Með ákvörðun 8. maí 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboðinu. Í ákvörðuninni var miðað að varnaraðila hefði verið skylt að hafna tilboði kæranda í útboðinu þar sem hann hefði ekki uppfyllt kröfu útboðsgagna um að eigið fé bjóðenda skyldi vera jákvætt um 10% af tilboðsfjárhæð, sbr. 69. og 72. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Auk þess yrði ekki séð að varnaraðili hefði brotið gegn meginreglum útboðsréttar um jafnræði, gagnsæi og meðalhóf við meðferð útboðsins, sbr. 1. mgr. 15. gr. laga nr. 120/2016.

Varnaraðili hefur upplýst kærunefnd útboðsmála að kominn sé á bindandi samningur á grundvelli útboðsins sem deilt er um í málinu og hefur nefndin hefur ekki ástæðu til að draga þær upplýsingar í efa. Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 segir að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þessum ástæðum verður að hafna aðal- og varakröfu kæranda og eftir þessum málsúrslitum verður einnig að hafna kröfu kæranda um málskostnað úr hendi varnaraðila.

Varnaraðili krefst þess að kærandi verði úrskurðaður til að greiða málskostnað í ríkissjóðs samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Þar segir að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa geti nefndin úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem rennur í ríkissjóð. Að mati nefndarinnar verður að telja að skilyrði ákvæðisins séu ekki uppfyllt og verður kröfu varnaraðila því hafnað.

 

Úrskurðarorð:

Öllum kröfum kæranda, Fólkvangs ehf., í máli þessu er hafnað.

Hafnað er kröfu varnaraðila, Reykjavíkurborg, um að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

 

Reykjavík, 10. nóvember 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

 
 
 

Var efnið hjálplegt?