Mál nr. 33/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2026
í máli nr. 33/2026:
GeoForm ehf.
gegn
Reykjavíkurborg
Lykilorð
Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.
Útdráttur
Ágreiningur málsins varðaði rammasamningsútboð varnaraðila þar sem óskað var eftir tilboðum í sérfræðiráðgjöf á sviði bygginga-, samgöngu, umhverfis- og skipulagsmála. Aðilar deildu um lögmæti ákvörðunar varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í útboðinu á þeim grundvelli að eigið fé hans hefði verið neikvætt. Kærandi krafðist þess aðallega að ákvörðunin yrði felld úr gildi en til vara að kærunefnd útboðsmála léti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Í úrskurði kærunefndar útboðsmála var rakið að bindandi samningur hefði komist á í útboðinu og því yrði að hafna kröfu kæranda um að ákvörðun varnaraðila yrði felld úr gildi, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þá lagði nefndin til grundvallar að varnaraðila hefði verið skylt að hafna tilboði kæranda þar sem hann hefði ekki uppfyllt skilyrði útboðsgagna um jákvætt eigið fé, sbr. 1. mgr. 66. og 82. gr. laga nr. 120/2016. Af þessum sökum taldi nefndin að skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 væru ekki uppfyllt og hafnaði kröfu kæranda um að nefndin myndi veita álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 1. júní 2026 kærir GeoForm ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Reykjavíkurborgar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 16251 auðkennt „Rammasamningur um sérfræðiþjónustu umhverfis- og skipulagssviðs“.
Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila 13. maí 2026 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Til vara krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum. Í báðum tilvikum krefst kærandi málskostnaðar úr hendi varnaraðilar.
Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum sem og hann gerði 15. júní 2026. Varnaraðili krefst þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað og að hann verði úrskurðaður til að greiða málskostnað í ríkissjóð.
Kærandi upplýsti nefndina með tölvupósti 10. júlí 2026 að hann hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir.
I
Varnaraðili auglýsti hið kærða útboð í febrúar 2026 en um var að ræða rammasamningsútboð þar sem varnaraðili óskaði eftir tilboðum í sérfræðiráðgjöf á sviði bygginga-, samgöngu-, umhverfis- og skipulagsmála.
Í grein 0.5.2 í útboðsgögnum, sem bar yfirskriftina „Kröfur um hæfi vegna fjárhagsstöðu“, kom fram að kröfur til fjárhagsstöðu bjóðenda kæmu fram í tilteknu excel-skjali sem fylgdi útboðsgögnum. Í skjalinu kæmi jafnframt fram hverju bjóðendur þyrftu að skila til að sýna fram á hæfi sitt. Uppfylltu bjóðendur ekki framsettar kröfur útboðsgagna um „hæfi vegna starfsréttinda“ yrði tilboðum þeirra hafnað. Þá kom fram í grein 0.6 að öll atriði sem varnaraðili óskaði eftir að fylgdu með tilboði bjóðanda kæmu fram í umræddu excel-skjali. Lögð væri rík áhersla á að bjóðendur skiluðu umbeðnum gögnum með tilboði sínu og gerðu þeir það ekki kynni það að valda ógildingu tilboðs. Þá kom fram í grein 0.3 að bjóðendur gætu sent varnaraðila fyrirspurnir við meðferð útboðsins, meðal annars ef þeir vildu óska eftir nánari upplýsingum eða skýringum á útboðsgögnum
Í framangreindu excel-skjali var meðal annars gerð sú krafa að bjóðandi skyldi vera með jákvætt eigið fé og að bjóðandi skyldi skila með tilboði sínu síðast gerðum ársreikningi, eigi eldri en 23 mánaða.
Við meðferð útboðsins barst fyrirspurn þar sem bjóðandi spurði hvort krafan um að skila ársreikningi félli niður ef um væri að ræða fyrirtæki sem væri nýstofnað og hefði ekki skilað inn ársreikningi. Varnaraðili svaraði fyrirspurninni og tiltók að krafan félli ekki sjálfkrafa niður við þessar aðstæður. Ef bjóðandi hefði ekki skilað ársreikningi þar sem hann væri nýstofnaður þyrfti hann eftir sem áður að leggja fram skýringu á því og önnur gögn sem sýndu með sambærilegum hætti fram á fjárhagsstöðu fyrirtækisins og að lágmarkskröfur um fjárhagslegt hæfi væru uppfylltar.
Tilboð í útboðinu voru opnuð 31. mars 2026 og bárust tilboð frá 126 bjóðendum, þar á meðal kæranda.
Með tölvupósti 13. maí 2026 tilkynnti varnaraðili að tilboði kæranda hefði verið hafnað þar sem hann uppfyllti ekki kröfur um fjárhagslegt hæfi samkvæmt útboðsgögnum. Á sama degi tilkynnti varnaraðili um val á tilboði 115 bjóðenda í útboðinu. Varnaraðili sendi tilkynningu 27. maí 2026 þar sem fram kom að tilboð umræddra bjóðenda væru endanlega samþykkt og því kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna og tilboðanna, sbr. 3. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
II
Kærandi byggir á að varnaraðili hafi beitt hæfiskröfum útboðsins með ósveigjanlegum, óhóflegum og íþyngjandi hætti án efnislegs mats á raunverulegri fjárhagsstöðu kæranda. Kærandi sé nýstofnað félag og hafi árið 2024 verið fyrsta rekstrarár þess. Neikvætt eigið fé í lok þess árs verði því ekki metið með sama hætti og þegar um rótgróin félög með langa rekstrarsögu sé að ræða.
Skilafrestur ársreikninga sé í síðasta lagi 31. ágúst ár hvert og í samræmi við það hafi staðið yfir vinna hjá kæranda við að ljúka ársreikningi og skattuppgjöri ársins 2025. Samkvæmt fyrirliggjandi ársreikningi 2025 hafi verið tiltekinn hagnaður hjá félaginu og fjárhagsstaða félagsins þannig snúist við. Markmið fjárhagslegra hæfiskrafna samkvæmt lögum um opinber innkaup sé að tryggja að samningsaðili hafi fjárhagslega getu til að efna skuldbindingar sínar samkvæmt samningi. Engin gögn málsins bendi til annars en að kærandi hafi verið fyllilega fær um að efna skuldbindingar sínar samkvæmt rammasamningnum.
Auk framangreinds byggir kærandi á að niðurstaða varnaraðila feli í sér brot gegn meðalhófsreglu þar sem varnaraðili hafi samkvæmt útboðsgögnum meðal annars haft verulegt svigrúm til mats á bjóðendum og til að kalla eftir frekari gögnum og skýringum. Jafnframt hafi varnaraðili brotið gegn rannsóknarreglu með því að hafna tilboði kæranda án frekari rannsóknar á fjárhagslegri stöðu hans og ranglega metið það sem svo að fjárhagsupplýsingar í ársreikningi teljist grundvallarþáttur tilboðs sem óheimilt hafi verið að breyta eftir opnun tilboða.
Varnaraðili tiltekur að í útboðsgögnum hafi þess skýrlega verið krafist að bjóðandi skyldi vera með jákvætt eigið fé og skyldi sýna fram á umrætt hæfi með því að skila með tilboði sínu síðast gerðum ársreikningi, eigi eldri en 23 mánaða. Krafan sé í samræmi við lög nr. 120/2016 og hafi kærandi ekki lagt fram frekari gögn en ársreikning ársins 2024. Sá ársreikningur hafi sýnt neikvæða eiginfjárstöðu og því ekki uppfyllt kröfu útboðsins um fjárhagslegt hæfi. Tilboð kæranda hafi því verið ógilt samkvæmt 1. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016. Þau gögn sem kærandi hafi lagt fram með tilboði sínu hafi ekki uppfyllt skýra og málefnalega kröfu útboðsgagna um fjárhagslegt hæfi. Þá hafi gögnin ekki gefið varnaraðila tilefni til þess að óska eftir frekari skýringum og gögnum og hafi varnaraðila í öllu falli verið það óskylt.
- - -
Ekki þykir þörf á að gera nánar grein fyrir málatilbúnaði kæranda og varnaraðila, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016. Kærunefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
III
A
Ágreiningur þessa máls lýtur að rammasamningsútboði varnaraðila þar sem óskað var eftir tilboðum í sérfræðiráðgjöf á sviði bygginga-, samgöngu-, umhverfis- og skipulagsmála. Aðilar deila um lögmæti ákvörðunar varnaraðila 13. maí 2026 þar sem varnaraðili hafnaði tilboði kæranda með vísan til þess að hann uppfyllti ekki kröfur útboðsgagna til fjárhagsstöðu bjóðenda.
Með tilkynningu 27. maí 2026 um töku tilboða samþykkti varnaraðili endanlega tilboð tiltekinna bjóðenda í útboðinu. Tilkynningin hafði þau réttaráhrif að bindandi samningar komust á milli varnaraðila og umræddra bjóðenda, sbr. 3. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 segir að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þessum ástæðum verður að hafna kröfu kæranda um að felld verði úr gildi fyrrnefnd ákvörðun varnaraðila.
B
Að framangreindu frágengu þarf að leysa úr kröfum kæranda um að kærunefnd útboðsmála veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og kröfu hans um málskostnað. Í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið.
Í útboðinu var skýrlega gerð krafa um að eigið fé bjóðenda skyldi vera jákvætt, líkt og er heimilt samkvæmt 69. og 72. gr. laga nr. 120/2016. Jafnframt að til staðfestingar á þeirri kröfu skyldu bjóðendur leggja fram síðast gerðan ársreikning sem skyldi ekki vera eldri en 23 mánaða.
Meginregla útboðsréttar er sú að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hefur verið breytt eða þau nánar skýrð við meðferð útboðsins, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála 20. september 2022 í máli nr. 15/2022. Frá þessari meginreglu gildir sú undantekning samkvæmt 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 að kaupanda er heimilt, þegar upplýsingar eða gögn sem bjóðandi leggur fram virðast vera ófullkomin eða innihalda villur eða ef tiltekin skjöl vantar, að fara fram á að bjóðandi leggi fram, bæti við, skýri eða fullgeri upplýsingar eða gögn innan hæfilegs frests. Slíkar skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar mega þó ekki fela í sér breytingar á grundvallarþáttum tilboðs eða vera líkleg til að raska samkeppni eða ýta undir mismunun. Þar sem um undantekningu er að ræða frá meginreglunni um ábyrgð bjóðanda á tilboðum sínum verður að beita henni af varfærni.
Á meðal tilboðsgagna kæranda var ársreikningur félagsins fyrir árið 2024 og er óumdeilt að eigið fé kæranda var neikvætt samkvæmt ársreikningnum. Að mati kærunefndar útboðsmála var ekkert í tilboðsgögnum kæranda sem benti til þess að upplýsingar eða gögn væru ófullkomin, innihéldu villur eða að tiltekin skjöl vantaði með þeim afleiðingum að til álita hafi komið fyrir varnaraðila að beita 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Að þessu og öðru framangreindu gættu verður lagt til grundvallar að varnaraðila hafi verið skylt að hafna tilboði kæranda í útboðinu, sbr. 1. mgr. 66. gr. og 82. gr. laga nr. 120/2016. Eru því skilyrði ekki uppfyllt til þess að veita álit á skaðabótaskyldu varnaraðila, sbr. 1. mgr. 119. gr. laganna, og verður kröfu kæranda þess efnis því hafnað. Eftir þessum málsúrslitum verður einnig að hafna kröfu kæranda um málskostnað úr hendi varnaraðila.
Varnaraðili krefst þess að kærandi verði úrskurðaður til að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Þar segir að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa geti nefndin úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem rennur í ríkissjóð. Að mati nefndarinnar verður að telja að skilyrði ákvæðisins séu ekki uppfyllt og verður þessari kröfu varnaraðila því hafnað.
Úrskurðarorð:
Öllum kröfum kæranda, GeoForm ehf., í máli þessu er hafnað.
Hafnað er kröfu varnaraðila, Reykjavíkurborg, um að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.
Reykjavík, 10. nóvember 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir