20. nóvember 2026 /

Mál nr. 38/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála, aðgangur að gögnum.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 26. október 2026

í máli nr. 38/2026:

Ístak hf.

gegn

Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum,

Þjóðarhöllinni ehf. og

Íslenskum aðalverktökum hf.

 

Lykilorð

Aðgangur að gögnum.

Útdráttur

ÍS krafðist aðgangs að þremur nánar tilgreindum skjölum sem vörðuðu útreikning á kolefnisspori sem fylgt hefðu tilboði ÍA vegna samkeppnisútboðs F og Þ. Í ákvörðun kærunefndar útboðsmála var fallist á að aflétta trúnaði einu skjali en þó þannig að afmáðar yrðu viðkvæmar viðskiptaupplýsingar úr því. Hafnað var kröfu um að aflétta trúnaði yfir öðrum skjölum.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. júní 2206 kærði Ístak hf. (hér eftir „kærandi“) samkeppnisútboð Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og Þjóðarhallarinnar ehf. (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 22169 auðkennt „Samkeppnisútboð um byggingu Þjóðarhallar.“

Varnaraðilar lögðu fram greinargerð sína 2. júlí 2026 ásamt fylgigögnum á minnislykli, þ. á m. tilboðsgögn kæranda og Íslenskra aðalverktaka hf. Á meðal fylgiskjala tilboðs Íslenskra aðalverktaka hf. voru upplýsingar um mat á kolefnisspori, sbr. fylgiskjal C, merkt 1.l., og var tekið fram að þessi hluti fylgiskjala væri háður trúnaði gagnvart kæranda.

Með ákvörðun 10. júlí 2026 aflétti kærunefnd útboðsmála þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar sem hafði komist á með kæru málsins.

Kærandi sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 12. ágúst 2026 og andmælti því að tilboðsgögn Íslenskra aðalverktaka hf. teldist í heild sinni trúnaðargagn og krafðist þess að fá aðgang að þeim hluta tilboðsins sem varða útreikning á kolefnisspori.

Kærunefnd útboðsmála veitti varnaraðilum og Íslenskum aðalverktökum hf. andmælarétt vegna þessarar beiðni kæranda. Með tölvupósti 17. ágúst 2026 andmæltu Íslenskir aðalverktakar hf. kröfu kæranda og benti á að samkeppnishagsmunir stæðu í vegi fyrir afhendingu þessara upplýsinga, auk þess sem í því væri að finna afar viðkvæmar viðskiptaupplýsingar um framleiðslu- og byggingaraðferðir félagsins, upplýsingar um birgja og efnisnotkun, sem eðlilegt væri að leynt færi samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Í tölvupósti varnaraðila 17. ágúst 2026 er talið að til greina gæti komið að afhenda almennar upplýsingar sem koma fram á blaðsíðum 1-5 í hluta 1 í hinum umþrættu gögnum, en að öðru leyti telja varnaraðilar að gögnin hafi að geyma upplýsingar sem falli undir 1. mgr. 17. gr. laga nr. 120/2016, þ.e. um rekstur, sértækar lausnir og aðrar upplýsingar sem gætu skaða hagsmuni Íslenskra aðalverktaka hf. ef kæranda væri veittur aðgangur að þeim.

 

Niðurstaða

Umbeðin gögn teljast til málsgagna í því stjórnsýslumáli sem rekið er fyrir kærunefnd útboðsmála á milli kæranda og varnaraðila. Um meðferð kærumála fyrir nefndinni gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993, sbr. 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Ber því við úrlausn um aðgang að gögnunum að fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga sem ganga framar ákvæðum upplýsingalaga nr. 140/2012, sbr. 2. mgr. 4. gr. síðarnefndu laganna.

Samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Hefur óheftur aðgangur að gögnum máls verið talinn nauðsynlegur til að tryggja að réttur aðila til að koma að skýringum og leiðrétta fyrirliggjandi gögn nýtist að fullu. Gerðar eru undantekningar frá þessari grunnreglu í 16. og 17. gr. laganna, en að mati nefndarinnar er ljóst að einungis 17. gr. laganna getur komið til álita um þau gögn sem kærandi krefst aðgangs að. Samkvæmt þeirri grein er stjórnvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef hagsmunir hans af því að notfæra sér vitneskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum. Við mat á þessum skilyrðum ákvæðisins verður meðal annars að horfa til þess að ákvæði 17. gr. laganna er undantekning frá þeirri meginreglu að málsaðili eigi rétt á því að kynna sér málsgögn auk þess sem líta ber til þeirra hagsmuna sem reglum um opinber innkaup er ætlað að þjóna, þar á meðal hvort afhending upplýsinga getur raskað jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup.

Þau gögn sem hér um ræðir eru fylgiskjöl með tilboði Íslenskra aðalverktaka hf., sem fylgdu með greinargerð varnaraðila til kærunefndar útboðsmála 2. júlí 2026, sbr. fylgiskjal C, merkt 1.l., og eru auðkennd:

 

„i. (k) ÞH 15151 Áætlað kolefnisspor – Partur 1 af 3.pdf.“

„i. (k) ÞH 15151 Áætlað kolefnisspor _ Partur 2 af 3.pdf.“

„i. (k) ÞH 15151 Áætlað kolefnisspor _ Partur 3 af 3.pdf.“

 

Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér umrædd tilboðsgögn Íslenskra aðalverktaka hf. Fyrsti hluti skjalanna er greinargerð félagsins um kolefnisspor verkefnisins. Á fyrstu blaðsíðum greinargerðarinnar eru almennar upplýsingar þar sem aðferðarfræðinni er lýst og umfangi útreikninga að baki kolefnisspori. Að auki eru þar upplýsingar um þau gögn og forsendur sem liggja að baki útreikningunum, þ. á m. losunarstuðla fyrir helstu efni sem lögð voru til grundvallar útreikningi í tilboði Íslenskra aðalverktaka hf. Að mati kærunefndar útboðsmála verður ekki talið að þessar almennu upplýsingar í greinargerð Íslenskra aðalverktaka hf. um útreikning á kolefnisspori mannvirkisins séu þess eðlis að rétt sé að trúnaður skuli ríkja yfir þeim, enda verður ekkert talið í þeim sem lýtur beinlínis að viðskiptaupplýsingum sem keppinautar á markaði geta nýtt sér í öðrum verkefnum.

Í greinargerð Íslenskra aðalverktaka hf. er jafnframt að finna sértækar og tæknilegar upplýsingar, þ. á m. niðurstöðu úr rannsókn í One Click LCA, þar sem helstu gögn sem útreikningar byggja á eru tilteknir sérstaklega, sbr. annar og þriðji hluti skjalanna. Að auki er þar einnig lýsing Íslenskra aðalverktaka hf. á því hvaða leiðir fyrirtækið sér fyrir sér að geta dregið enn frekar úr kolefnisspori mannvirkisins. Að mati kærunefndar útboðsmála verður að talið að þessar sértæku og tæknilegu upplýsingar í greinargerð Íslenskra aðalverktaka hf. séu viðkvæmar viðskiptaupplýsingar sem rétt þykir að leynt fari. Verða þær upplýsingar því afmáðar áður en þær eru afhentar kæranda í máli þessu, en trúnaði verður ekki aflétt yfir niðurstöðu rannsókna úr One Click LCA, sbr. annar og þriðji hluti skjalanna.

Samkvæmt framangreindu verður fallist á að aflétta trúnaði yfir fyrsta hluta framangreindra skjala, en þó þannig að afmáðar verða tilteknar upplýsingar sem að mati kærunefndar útboðsmála teljast til viðkvæmra viðskiptaleyndarmála. Trúnaði verður ekki aflétt af öðrum og þriðja hluta framangreindra skjala.

 

Ákvörðunarorð

Ístaki ehf. er veittur aðgangur að eftirfarandi skjali, sem fylgdi tilboði Íslenskra aðalverktaka hf., en þó þannig að afmáðar eru tilteknar upplýsingar sem varða viðskiptahagsmuni Íslenskra aðalverktaka hf.

„i. (k) ÞH 15151 Áætlað kolefnisspor – Partur 1 af 3.pdf.“

 

Hafnað er að aflétta trúnaði yfir eftirfarandi skjölum:

„i. (k) ÞH 15151 Áætlað kolefnisspor _ Partur 2 af 3.pdf.“

„i. (k) ÞH 15151 Áætlað kolefnisspor _ Partur 3 af 3.pdf.“

 

Reykjavík, 26. október 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?