20. nóvember 2026 /

Mál nr. 41/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 21. október 2026

í máli nr. 41/2026:

Línuborun ehf.

gegn

Rarik ohf. og

Vökvaþjónustu Kópaskers ehf.

 

Lykilorð

Kærufrestur. Reglugerð nr. 340/2017. Valforsendur. Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.

Útdráttur

L kærði útboð R um nánar tilgreinda strenglögn og krafðist þess að ákvörðun R um að velja tilboð V yrði felld úr gildi og R gert að auglýsa útboðið að nýju. Þá krafðist L þess einnig að kærunefnd útboðsmála léti uppi álit á skaðabótaskyldu R. Kröfum L um að felld yrði úr gildi ákvörðun R um að velja tilboð V og auglýsa útboðið að nýju var hafnað með vísan til þess að komist hefði á bindandi samningur, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Kom því einungis til skoðunar krafa um álit kærunefndarinnar á skaðabótaskyldu R gagnvart L. Nefndin féllst ekki á með L að honum hefði ekki mátt vera ljóst að nánar tilgreint frammistöðumat hans úr fyrra verki fyrir R yrði notað, hvernig skilmálum útboðsins yrði að öðru leyti beitt og staðið að vali tilboða fyrr en tilkynnt hefði verið um ákvörðun varnaraðila. Var því lagt til grundvallar að L hefði mátt vita af framangreindum kæruefnum við birtingu útboðsgagna 8. maí 2026 og kærufrestur hafi því verið liðinn þegar kæra barst nefndinni 2. júlí sama ár, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Hið sama ætti við um það kæruefni að frammistöðumatskerfi varnaraðila væri ólögmætt sem valforsenda. Þá voru ekki efni til annars en að líta svo á að kærufrestur vegna fyrrgreinds frammistöðumats hefði einnig verið liðinn þegar kæra í málinu barst nefndinni. Loks var ekki fallist á með L að útboðsskilmálum hefði ekki verið fylgt við hina kærðu ákvörðun og talið að L hefði að öðru leyti engin viðhlítandi rök fært fyrir því að mat á tilboði V eða hæfi þess hefði verið rangt í einhverjum atriðum sem máli gæti skipt. Var kröfu L um að kærunefnd útboðsmála léti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu R því hafnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 2. júlí 2026 kærði Línuborun ehf. (hér eftir „kærandi“) innkaupaferli Rarik ohf. (hér eftir „varnaraðili“) vegna útboðs nr. 26013 auðkennt sem „Strenglögn – Jökuldalur 2 Austurland“ og ákvörðun varnaraðila 22. júní sama ár um að velja tilboð Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. í útboðinu.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila í útboði nr. 26013 „Strenglögn – Jökuldalur 2 Austurland“, og hlutist til um að varnaraðila verði óheimilt að ganga til samninga við Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. þar til endanlegur úrskurður nefndarinnar liggur fyrir í málinu, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Kærandi krefst þess einnig að ákvörðun varnaraðila 22. júní 2026 um að velja tilboð Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. í útboði nr. 26013 verði felld úr gildi og varnaraðila gert að auglýsa það að nýju, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda vegna þess tjóns sem ólögmæt framkvæmd innkaupanna hefur bakað kæranda, sbr. 2. mgr. 111. gr. og 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016.

Loks krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað vegna reksturs málsins fyrir nefndinni, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Varnar- og hagsmunaaðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Athugasemdir bárust frá varnaraðila 15. júlí 2026 en hagsmunaaðili lét málið ekki til sín taka.

Varnaraðili krefst þess að kröfu kæranda um sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, svo og krafa um stöðvun innkaupaferlis um stundarsakir samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 verði hafnað og allri stöðvun þegar í stað aflétt. Þá krefst hann þess að þeim kröfuliðum og málsástæðum sem lúta að meintu ólögmæti útboðsskilmála, valforsendna og frammistöðumatskerfis varnaraðila verði vísað frá nefndinni sem of seint fram komnum.

Til vara krefst varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda um ógildingu ákvörðunar, endurútboð og álit á skaðabótaskyldu verði hafnað efnislega. Loks krefst varnaraðili þess að kæranda verði gert að greiða sér málskostnað vegna reksturs málsins fyrir kærunefndinni, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Með ákvörðun 20. júlí 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt. Í kjölfarið var varnar- og hagsmunaaðilum veittur kostur á að skila lokaathugasemdum til nefndarinnar. Af hálfu varnaraðila var upplýst 7. ágúst 2026 að ekki yrðu lagðar fram frekari athugasemdir í málinu en engin svör bárust frá hagsmunaaðila.

Þann 13. ágúst 2026 var samningur undirritaður milli varnaraðila og Vökvaþjónustu Kópaskers ehf.

Lokaathugasemdir kæranda bárust nefndinni 21. ágúst 2026.

 

I

Þann 8. maí 2026 birti varnaraðili útboð nr. 26013 vegna verksins „Strenglögn – Jökuldalur 2, Austurland“. Samkvæmt útboðslýsingu laut hið kærða útboð að plægingarverkefni, ásamt uppsetningu jarðspennistöðva og strengskápa frá Gauksstöðum (á móti Skjöldólfsstöðum) í Grund í Jökuldal.

Í grein 2.5.2 í útboðsskilmálum var kveðið á um frammistöðumat verktaka. Þar kom fram að ákveðið hefði verið að láta frammistöðumat verktaka gilda 30% á móti 70% verði í þeim plægingarverkum sem boðin yrðu út árið 2026. Verktaki sem ekki hefði unnið plægingarverk fyrir verkkaupa á síðasta ári fengi fullt hús stiga, eða 0 mínusstig. Slíkt samsvaraði 30% við mat á tilboðum. Hefði verktaki sem unnið hefði verk fyrir verkkaupa á síðasta ári fengið fleiri en fimm mínusstig myndi einkunn hans lækka hlutfallslega á móti með nánar tilgreindum hætti. Hefði verktaki unnið fleiri en eitt plægingarverk fyrir verkkaupa „á síðustu tveimur (2)“ yrði miðað við stigagjöf úr því verkefni sem hefði verið með flest mínusstig. Stigagjöf verktaka úr frammistöðumati fyrir hvert og eitt verk gilti í 36 mánuði og yrði nýtt til mats á hæfi við úthlutun verkefna á vegum verkkaupa.

Í grein 3.8 var kveðið á um valforsendur. Þar kom fram að til mats kæmu þau tilboð sem uppfylltu allar „skal“ kröfur og hæfiskröfur útboðsins. Eftirfarandi valmælikvarði yrði lagður til grundvallar við val á samningsaðila: Verð 70% og niðurstöður úr frammistöðumati 30%. Verkkaupi áskildi sér jafnframt rétt til að hafna öllum tilboðum.

Tilboð voru opnuð 15. júní 2026. Fimm tilboð bárust, m.a. frá kæranda. Tilboð Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. hlaut 77,5 stig en tilboð kæranda og annars bjóðanda voru jöfn þar á eftir og hlutu 70 stig. Tilkynnt var um val á tilboði Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. 22. júní 2026 á þeim grundvelli að það teldist hagkvæmasta tilboðið samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Stigagjöf kæranda var með þeim hætti að hann var með lægsta verðið og hlaut 70 stig fyrir það en 0 fyrir frammistöðumat sem byggt var á eldra verki nr. 24025 („Flói“) frá árinu 2024.

 

II

Kærandi byggir á því að einkunnagjöf endurspegli ekki raunverulegan mun tilboða og tryggi ekki að hagkvæmasta tilboðið verði valið, sbr. kröfur 40. og 90. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Beiting varnaraðila á valforsendum útboðsins við hina kærðu ákvörðun hafi þannig verið ólögmæt. Einkunnagjöf vegna frammistöðumats hafi þurrkað út gríðarlegan raunverulegan verðmun og ein ráðið úrslitum um niðurstöðu útboðsins. Þá vísar kærandi einnig til þess að Vökvaþjónusta Kópaskers ehf. hafi fengið „fulla einkunn“ í frammistöðumati. Hann dragi því í efa að atvikaskráning varnaraðila hvíli á samræmdum og hlutlægum mælikvarða sem sé beitt með sama hætti gagnvart öllum verktökum. Kærandi tekur sérstaklega fram að hann telur framangreinda málsástæðu beinast að hinni kærðu ákvörðun og beitingu valforsendna við hana, ekki að útboðsskilmálum sem slíkum, og vísar í þessu samhengi til dóms Hæstaréttar 17. október 2013 í máli nr. 366/2013. Kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 vegna hennar hafi því hafist þegar kæranda var tilkynnt um val tilboðs enda hafi kærandi þá fyrst vitað hvernig matið yrði framkvæmt í reynd, þ.m.t. að valinn bjóðandi hlyti fulla einkunn án raunverulegs mats og að matið sneri við röð tilboða þrátt fyrir mikinn verðmun.

Þá byggir kærandi á því að frammistöðumatskerfi varnaraðila sé ólögmætt sem valforsenda. Matið lúti að almennu mati á tæknilegri og faglegri getu bjóðanda á grundvelli eldri samninga en slík atriði heyri undir hæfiskröfur samkvæmt 83. gr. reglugerðar nr. 340/2017 sem beri að halda aðskildum frá valforsendum samkvæmt 90. gr. sömu reglugerðar. Í kæru er sérstaklega vísað til þess að málsástæður kæranda beinist að hinni kærðu ákvörðun og beitingu valforsendna við hana sem og annmörkum á málsmeðferð. Kærufrestur vegna þeirra hafi fyrst hafist við tilkynningu um val tilboðs og þær því bornar fram innan kærufrests.

Kærandi byggir jafnframt á því að ákvörðun varnaraðila sé reist á ólögmætu frammistöðumati í verki nr. 24025 frá árinu 2024. Gerð þess hafi verið haldið verulegum annmörkum, einkum vegna þess að varnaraðili hafi skráð einhliða neikvæð atvik á framkvæmdatíma án samræmdra og skráðra sönnunarkrafna og án þess að veita kæranda færi á að andmæla einstökum skráningum. Matið hafi jafnframt ekki verið leiðrétt eða endurskoðað í kjölfar mótmæla kæranda. Veikleiki matskerfisins liggi auk þess í því að ekkert í kerfinu tryggi að sambærileg atvik séu skráð með sama hætti af ólíkum eftirlitsmönnum á mismunandi verkstöðum. Slík tilhögun fullnægi ekki kröfum um jafnræði og gagnsæi samkvæmt 40. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Þegar frammistaða kæranda í verki nr. 24025 hafi verið skráð á árinu 2024 hafi auk þess ekki legið fyrir stærðfræðilegt vægi einstakra matsþátta, skalanleg stigagjöf eða að matið myndi gilda sem 30% valforsenda í síðari innkaupaferlum í 36 mánuði. Þá leiði af 9. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 að bjóðandi eigi rétt á að sýna fram á áreiðanleika sinn þrátt fyrir meintar fyrri vanefndir.

Þá byggir kærandi á því að frammistöðumatskerfi varnaraðila sé ólögmætt sem valforsenda. Matið lúti að almennu mati á tæknilegri og faglegri getu bjóðanda á grundvelli eldri samninga en slík atriði heyri undir hæfiskröfur samkvæmt 83. gr. reglugerðar nr. 340/2017 sem beri að halda aðskildum frá valforsendum samkvæmt 90. gr. sömu reglugerðar. Í kæru er sérstaklega vísað til þess að málsástæður kæranda beinist að hinni kærðu ákvörðun og beitingu valforsendna við hana sem og annmörkum á málsmeðferð. Kærufrestur vegna þeirra hafi fyrst hafist við tilkynningu um val tilboðs og þær því bornar fram innan kærufrests.

Í lokaathugasemdum sínum vísar kærandi til þess að hvergi í greinargerð varnaraðila sé gerð grein fyrir því hvernig frammistöðueinkunnir einstakra bjóðenda í hinu kærða útboði urðu til, hvers vegna miðað hafi verið við tiltekið eldra verk kæranda eða hvernig hinir fjórir bjóðendurnir hlutu fulla einkunn. Kæran beinist að þessari ákvörðun og beitingu valforsendna við hana. Þá sé verulegur hluti málsástæðna kæranda ósvarað af hálfu varnaraðila.

Kærandi ítrekar tilvísun sína í dóm Hæstaréttar í máli nr. 366/2013. Hæstiréttur hafi þar hafnað þeirri málsástæðu kaupanda að kærufrestur vegna valforsendna hefði byrjað að líða við kynningu útboðsgagna og rétturinn tekið fram að bjóðendum hefði ekki mátt vera ljóst hvernig valforsendum yrði beitt og þar með hvernig yrði endanlega staðið að vali tilboða fyrr en tilkynnt hafi verið um valið og ákvörðunin rökstudd. Í fyrirliggjandi ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur með tilkynningu um val á tilboði 22. júní 2026. Ekki hafi verið vikið að stigagjöf, sundurliðun eða skýringum, m.a. á hvaða verki einkunn hans hafi verið byggð eða hvernig einkunnir annarra urðu til. Það hafi fyrst verið með greinargerð varnaraðila 15. júlí 2026 sem kærandi hafi getað áttað sig á hvaða verk kæranda yrði metið til einkunnar að þessu leyti. Kærufrestur vegna beitingarinnar hafi því ekki getað liðið fyrr en hún var kæranda kunn. Þannig lúti málsástæður kæranda í máli þessu að því hvernig birtum skilmálum var beitt.

Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við ákvörðun kærunefndar útboðsmála 20. júlí 2026 og vísar til þess að meginmálsástæða hans feli í sér að útboðsskilmálunum sjálfum hafi ekki verið fylgt við hina kærðu ákvörðun. Þá ítrekar hann að frammistöðumat úr verki nr. 24025 (Flói) frá árinu 2024 sé ótækur grundvöllur einkunnar, m.a. vegna þess að samtal hafi ekki farið fram á milli verktaka og verkkaupa um það samkvæmt grein 2.5.1 í útboðslýsingu þess verks. Án þess leiði regla greinar 2.5.2 í fyrirliggjandi útboði sjálf til þess að kærandi hefði orðið hlutskarpastur í útboðinu. Kærandi vísar jafnframt til þess að samkvæmt grein 2.5.2 fái verktaki sem ekkert plægingarverk vann fyrir verkkaupa á síðasta ári sjálfkrafa fulla einkunn. Hafi hann unnið fleiri en eitt verk á síðustu tveimur árum ráði það verk sem flest mínusstig hafi hlotið. Af þessu leiði að verktaki sem unnið hafi Flóaverkið eitt, með 46 mínusstig, en ekkert verk árið 2025 hefði fengið fulla einkunn í hinu kærða útboði. Kærandi sem hafi unnið verk fyrir varnaraðila 2025 með 13 mínusstigum hafi á hinn bóginn hlotið 0 stig því vinna hans á næstliðnu ári hafi virkjað lækkunarregluna og eldra verk þá dregið inn. Verktaki standi þannig verr að vígi fyrir að hafa unnið vel fyrir verkkaupa á næstliðnu ári en ef hann hefði ekkert unnið. Slík einkunnagjöf endurspegli ekki raunverulegan mun tilboða.

Viðmiðunartímabil reglunnar hafi jafnframt verið víkkað út milli ára og í útboðsgögnum ársins 2026 verið miðað við verk tvö ár aftur í tímann en ekki einungis eitt eins og í skilmálum plægingarútboða árið 2025. Matinu sé þannig breytt afturvirkt með íþyngjandi hætti sem kærandi gat hvorki séð fyrir né kært fyrr en áhrifin raungerðust. Telji nefndin málsástæður kæranda komnar fram utan kærufrests hafi þær engu að síður þýðingu við mat á skaðabótaskyldu.

 

III

Varnaraðili byggir á því að kærufrestur vegna lögmætis útboðsskilmála og frammistöðumats sé liðinn. Kærunefnd útboðsmála hafi þegar leyst úr samskonar málsástæðum kæranda í ákvörðun sinni 7. júlí 2026 í máli nr. 32/2026 en fara beri með fyrirliggjandi mál með samskonar hætti. Kæra málsins hafi borist 2. júlí 2026 en útboðsgögn verið birt 8. maí sama ár. Vísa beri kröfum kæranda frá sem of seint fram komnum. Þá er því mótmælt að kæranda hafi ekki verið unnt að sjá fyrir með hvaða hætti frammistöðumatinu yrði beitt enda hafi í öllum plægingarútboðum varnaraðila á árunum 2025 og 2026 gilt sömu valforsendur, þar sem verð hafi vegið 70% og frammistöðumat 30%. Kærandi hafi sjálfur tekið þátt í fjölda útboða varnaraðila á þessu tímabili.  Að öðru leyti hafnar varnaraðili málsástæðum kæranda efnislega.

 

IV

Óumdeilt er að hið kærða útboð fellur undir gildissvið reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu.  Af 1. mgr. 9. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup leiðir að XI. og XII. kaflar laganna gilda um innkaup eftir reglugerð nr. 340/2017 en að öðru leyti fer um þau eftir ákvæðum reglugerðarinnar.

Í málinu liggur fyrir að komist hefur á bindandi samningur milli varnaraðila og Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður bindandi samningur ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfum kæranda sem lúta að því að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 22. júní 2026 um að velja tilboð Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. og að varnaraðila verði gert að auglýsa útboðið að nýju.

Kemur því eingöngu til skoðunar krafa kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda sem og krafa hans um málskostnað. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skal miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.

Kærunefnd útboðsmála hefur áður fjallað um kæru sama kæranda er laut að öðru útboði hjá varnaraðila í máli nr. 32/2026 og lauk því með úrskurði 23. september 2026. Meginefni þeirrar kæru er sambærilegt því sem við á í fyrirliggjandi máli. Þannig gerir kærandi einkum athugasemdir við að sú einkunnagjöf sem kveðið er á um í greinum 2.5.2 og 3.8 í útboðsskilmálum endurspegli ekki raunverulegan mun tilboða og tryggi ekki að hagkvæmasta tilboðið verði valið. Kærandi telur málsástæður sínar að þessu leyti beinast að hinni kærðu ákvörðun sem tekin var 22. júní 2026 og beitingu valforsendna en ekki að útboðsskilmálanum sem slíkum og vísar í þessu samhengi til dóms Hæstaréttar 17. október 2013 í máli nr. 366/2013. Kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 hafi fyrst byrjað að líða þegar tilkynnt var um ákvörðunina enda hafi hann þá fyrst vitað hvernig matið yrði framkvæmt í reynd. Hið sama eigi við um frammistöðumatskerfi varnaraðila sem kærandi telur vera ólögmætt sem valforsenda.

Með hliðsjón af skýru orðalagi greina 2.5.2 og 3.8 verður ekki fallist á með kæranda að honum hafi ekki mátt vera ljóst að frammistöðumat hans úr verki nr. 24025 yrði notað, hvernig skilmálunum yrði að öðru leyti beitt og staðið að vali tilboða fyrr en tilkynnt hafi verið um ákvörðun varnaraðila 22. júní 2026. Aðstæður í fyrirliggjandi máli eru því frábrugðnar því sem fyrir hendi var í fyrrgreindum dómi Hæstaréttar, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar í máli nr. 32/2026. Verður því lagt til grundvallar að kærandi hafi mátt vita af framangreindum kæruefnum við birtingu útboðsgagna 8. maí 2026 og að kærufrestur hafi verið liðinn þegar kæra barst nefndinni 2. júlí sama ár, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Hið sama á við um það kæruefni að frammistöðumatskerfi varnaraðila sé ólögmætt sem valforsenda. Þá eru ekki efni til annars en að líta svo á að kærufrestur vegna frammistöðumats í verki nr. 24025 frá árinu 2024 og gerð þess, sem kynnt var kæranda í ársbyrjun 2025, hafi einnig verið liðinn þegar kæra í máli þessu barst kærunefnd útboðsmála.

Kærandi vísar til þess í lokaathugasemdum sínum að meginmálsástæða hans feli í sér að útboðsskilmálunum sjálfum hafi ekki verið fylgt við hina kærðu ákvörðun. Á þetta er ekki unnt að fallast enda leiðir af grein 2.5.2 í útboðsskilmálum og því að kærandi hefur unnið fleiri en eitt plægingarverk fyrir varnaraðila á síðustu tveimur árum að miða beri við stigagjöf úr því verki sem hlaut flest mínusstig, sem í tilviki kæranda er verk nr. 24025. Að öðru leyti þykir ekki sýnt fram á að útboðsskilmálunum hafi ekki verið fylgt við hina kærðu ákvörðun. Þá hefur kærandi engin viðhlítandi rök fært fyrir því að mat á tilboði Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. eða hæfi þess hafi verið rangt í einhverjum atriðum sem máli geta skipt. Í þessum efnum stoðar kæranda ekki að vísa til þess hver niðurstaða útboðsins hefði verið ef einkunn kæranda hefði ekki verið reist á frammistöðumati hans úr verki nr. 24025.

Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti er það mat nefndarinnar að varnaraðili hafi ekki brotið gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim í málinu. Þegar af þeirri ástæðu verður kröfu kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila hafnað.

Í ljósi niðurstöðu málsins verður kröfu kæranda um málskostnað hafnað. Varnaraðili hefur uppi kröfu um að kæranda verði gert að greiða sér málskostnað. Í lögum nr. 120/2016 er ekki að finna heimild til handa kærunefnd útboðsmála til þess að úrskurða varnaraðila málskostnað úr hendi kæranda. Verður kröfu varnaraðila því hafnað. Rétt þykir að málskostnaður falli niður.

 

Úrskurðarorð

Öllum kröfum kæranda, Línuborunar ehf., í máli þessu er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 21. október 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?