Mál nr. 45/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 9. nóvember 2026
í máli nr. 45/2026:
Reykjafell hf.
gegn
Reykjavíkurborg og
Smith & Norland hf.
Lykilorð
Verðfyrirspurn. Umferðarljósabúnaður. Skilmáli. Viðmiðunarfjárhæðir. Valdsvið. Innkaupaferli fellt úr gildi. Lagt fyrir kaupanda að bjóða innkaup út að nýju. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað. Málskostnaður.
Útdráttur
RF og SM voru á meðal fyrirtækja sem R bauð að taka þátt í verðfyrirspurn þar sem auglýst var eftir umferðarljósabúnaði vegna breytinga á nánar tilgreindum gatnamótum í Reykjavík. RF lagði fram kæru til kærunefndar útboðsmála vegna tiltekins skilmála í verðfyrirspurnargögnum. Byggði RF á því að brot R væru tvö og nátengd, þ.e. annars vegar að kaupa mikilvægan búnað án útboðs beint af Yunex Traffic, sem SM hefði umboð fyrir á Íslandi, og hins vegar að umræddur skilmáli væri sniðinn að búnaði og annarri tækni frá sama fyrirtæki. Hélt RF því einnig fram að innkaupin væru hluti af mun stærri heildarinnkaupum R. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var hafnað þeirri málsástæðu R að innkaupin féllu undir reglugerð nr. 340/2017 og að þau væru undir viðmiðunarfjárhæðum reglugerðarinnar, og jafnframt var hafnað sjónarmiðum R að verðfyrirspurnin félli ekki undir valdsvið kærunefndar útboðsmála. Kærunefndin hafnaði kröfum RF sem lutu að óvirkni samninga um kaup á miðlægum stýribúnaði og um uppfærslu hans, þar sem kröfur þess efnis hefðu borist utan kærufrests. Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem R hefði lagt fram undir rekstri málsins um umfang innkaupa á umferðarljósabúnaði á nánar tilgreindum tímabilum var talið að umfang viðskipta síðustu 12 mánuði fyrir útsendingu verðfyrirspurnarinnar hefði verið yfir viðmiðunarfjárhæðum og að skylt hefði verið að auglýsa þau á Evrópska efnahagssvæðinu. Var hið kærða innkaupaferli því fellt úr gildi og lagt fyrir R að bjóða út að nýju innkaup á umferðarljósabúnaði. Þá var kröfu RF um álit á skaðabótaskyldu R gagnvart sér hafnað þar sem ekki var talið að skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup væru uppfyllt. R var jafnframt gert að greiða RF málskostnað.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 23. júlí 2026 kærði Reykjafell hf. (hér eftir „kærandi“) innkaupaferli Reykjavíkurborgar (hér eftir „varnaraðili“) auðkennt „Umferðarljós – Snorrabraut / Hverfisgata og Snorrabraut / Laugavegur.“
Kærandi krefst þess að hið kærða útboðsferli eða samningsgerð verði stöðvað þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála lýsi óvirkan, með eða án annarra viðurlaga, samning milli varnaraðila og Smith & Norland hf. um vélbúnað og hugbúnað auk þjónustusamnings vegna uppfærslu á miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík. Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi hið kærða innkaupaferli og að lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða að nýju út innkaup á miðlægum stýribúnaði umferðarljósa og umferðarljósabúnaði. Til vara krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Í öllum tilvikum er þess krafist að varnaraðili greiði málskostnað kæranda.
Varnaraðila og Smith & Norland hf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 14. ágúst 2026 aðallega að kröfu um stöðvun samningsgerðar verði hafnað og öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefndinni. Til vara krefst varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda í málinu verði hafnað. Að auki krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála úrskurði kæranda til að greiðslu málskostnaðar á grundvelli síðari málsliðar 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Smith & Norland hf. lögðu fram athugasemdir 31. júlí 2026.
Kærunefnd útboðsmála tilkynnti aðilum málsins 29. júlí 2026 að ákveðið hefði verið að kalla Sæmund E. Þorsteinsson, verkfræðing og lektor hjá Háskólanum í Reykjavík, sem sérfræðing til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni í málinu með vísan til heimildar í 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016. Aðilar málsins gerðu ekki athugasemdir við það og var skipunarbréf hans undirritað 5. ágúst 2026.
Kærandi sendi kærunefnd útboðsmála frekari athugasemdir 5. ágúst 2026 vegna aðkomu sérfræðings í málið og veitti kærunefndin varnaraðila og Smith & Norland hf. færi á að tjá sig um þær. Athugasemdir varnaraðila vegna þessa eru meðal athugasemda hans frá 14. ágúst 2026.
Kærandi sendi viðbótarathugasemdir til kærunefndar útboðsmála 31. ágúst 2026 og veitti nefndin varnaraðila og Smith & Norland hf. færi á að tjá sig um þær. Athugasemdir bárust frá varnaraðila 7. september 2026.
Kærunefnd útboðsmála sendi varnaraðila beiðni um frekari upplýsingar 3. september 2026 og óskaði eftir svörum við tilteknum spurningum. Svör varnaraðila bárust 7. september 2026.
Kærunefnd útboðsmála sendi varnaraðila aftur beiðni um frekari upplýsingar 8. september 2026 sem varnaraðili svaraði 11. september 2026.
Með ákvörðun 21. september 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli yrði stöðvað um stundarsakir.
Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 30. september 2026 og kvaðst ekki ætla að leggja fram frekari athugasemdir í málinu.
Smith & Norland hf. sendu kærunefnd útboðsmála tölvupóst 5. október 2026 og upplýsti um að ekki væri talin ástæða til þess að leggja fram frekari athugasemdir í málinu.
Lokaathugasemdir kæranda bárust kærunefnd útboðsmála 20. október 2026.
I
Varnaraðili auglýsti hið kærða innkaupaferli 3. júlí 2026 sem nefnt var lokað innkaupaferli, og bauð tilteknum aðilum að gera tilboð í verkið. Þar á meðal voru kærandi og Smith & Norland hf. Samkvæmt grein 0.1.2 í verðfyrirspurnargögnum fólst í verkinu útvegun og uppsetning á umferðarljósabúnaði vegna breytinga á gatnamótum Snorrabraut og Hverfisgötu annar vegar og Snorrabraut og Laugavegar hins vegar fyrir Borgarlínu, Lotu 1. Gömlum stjórnkassa skyldi skipt út fyrir nýjan ásamt tilheyrandi búnaði, ný ljósker, skynjarar, hnappabox og hljóðgjafar fyrir blindramerki. Þá skyldi setja ný ljósker á núverandi og nýja umferðstólpa við Laugaveg og götuljós.
Í grein 1.1.1.0 í verðfyrirspurnargögnum kom fram að stýrikassinn skyldi vera samsettur og tilbúinn til notkunar. Hann skyldi geta tengst stýritölvu umferðarljósa (MSU) höfuðborgarsvæðisins og skyldi sú tenging fara í gegnum samskiptastaðalinn OCIT-O v3.0 (eða nýrra) eða Canto v1.3 (eða nýrra). Kaupendur skyldu útvega netbeini (e. router) vegna tengingarinnar.
Valforsendur komu fram í grein 0.4.7, þar sem fram kom að kaupandi myndi annað hvort taka hagstæðasta tilboði eða hafna þeim öllum. Með hagstæðasta tilboði væri átt við það tilboð sem væri lægst að fjárhæð og uppfyllir kröfur útboðslýsingar.
II
Kærandi telur að varnaraðili hafi ákveðið að kaupa vörur og þjónustu af Yunex Traffic, sem Smith & Norland hf. hafi umboð fyrir, og eftir að búið sé að ákveða að kaupa vörur af því fyrirtæki og sníða skilyrði að því, hafi varnaraðili farið í málamynda innkaupaferli. Af gögnum málsins sé ljóst að varnaraðili hafi ákveðið að kaupa vörur og þjónustu af fyrirtækinu, og varnaraðili hafi keypt lítinn en mjög mikilvægan hluta af heildarkerfinu beint frá Yunex Traffic án útboðs. Fyrirtækið hafi þannig fengið forskot á aðra bjóðendur nokkrum mánuðum áður en útboð hafi verið auglýst. Þá geri útboðsgögn kröfu um að allar vörur geti tengst búnaði Yunex Traffic sem hafi verið keyptur fyrir nokkrum mánuðum.
Kærandi vísar til forsögu málsins og fyrri sambærilegra brota varnaraðila, en stýribúnaður umferðarljósa varnaraðila hafi um árabil verið keyptur af Yunex Traffic, áður Siemens. Árið 2019 hafi verið síðast tímabært að endurnýja umferðarljósabúnað og hafi varnaraðili þá ákveðið að kaupa mikilvægan búnað beint af fyrirtækinu án innkaupaferlis. Þessi kaup varnaraðila á búnaði, sem sjái um miðlæga stýringu umferðarljósa í heild, hafi farið fram árið 2019 og í október sama árs hafi verið auglýst útboð á öðrum búnaði þar sem áskilið hafi verið að allar vörur skyldu geta tengst þeim miðlæga stýribúnaði sem hafi verið keyptur af Yunex Traffic. Þessi kaup árið 2019 hafi verið borin undir kærunefnd útboðsmála og niðurstaða hennar hafi verið sú að innkaup varnaraðila á miðlægum stýribúnaði hefðu verið ólögmæt og hafi kærunefnd útboðsmála lagt stjórnvaldssekt á varnaraðila.
Að því er varðar hið kærða innkaupaferli þá bendir kærandi á að hann telji að skilyrði þess virðist sniðin að vörum og þjónustu Yunex Traffic. Hafi kærandi því kannað hvort varnaraðili hefði lagt grunn að innkaupunum í samstarfi við Yunex Traffic og sú könnun hafi leitt í ljós að varnaraðili hafi gert það. Í maí 2026 hafi birst frétt á heimasíðu fyrirtækisins þar sem því sé lýst að komist hafi verið að samkomulagi við varnaraðila um að endurnýja umferðarljósakerfi borgarinnar með búnaði og þjónustu fyrirtækisins. Í fréttinni hafi því verið lýst að í september 2025 hafi varnaraðili uppfært miðlægt umferðarstýringarkerfi sitt með búnaði frá Yunex Traffic og á þeim grunni hafi varnaraðili byrjað að innleiða umferðstýringarkerfi frá fyrirtækinu. Þá komi fram í yfirliti varnaraðila að hann hafi keypt búnað sem vísað sé til sem „Umferðarljósastýringar – Uppfærsla frá Scala yfir í Symphony hugbúnað.“ Ekki liggi nákvæmlega fyrir hvenær hafi verið gengið frá samningnum og greitt fyrir búnaðinn. Þá sé fyrirsjáanlegt að ýmis annar kostnaður fylgi kaupunum, þ.e. uppsetning, þjónusta og fleira næstu árin. Um leið sé búið að útiloka alla samkeppni á öllum snjalllausnum og forgangskerfi í Reykjavík.
Í hinu kærða innkaupaferli séu gerðar kröfur um að boðinn búnaður samrýmist þeirri miðlægu stýritölvu sem áður hafi verið keypt af Yunex Traffic. Í öllum meginatriðum séu málavextir því eins og þeir hafi verið árið 2019. Fyrirsjáanleg sé mikil endurnýjun á búnaði og þjónustu vegna umferðarljósastýringa og áður en farið sé í endurnýjunina ákveði varnaraðili að byggja innkaupin á vörum frá Siemens, nú Yunex Traffic. Fleiri fyrirtækjum sé boðið að taka þátt í innkaupaferli, en skilmálarnir séu sniðnir að Yunex Traffic.
Kærandi byggir á því að brot varnaraðila séu tvö og nátengd, þ.e. annars vegar að kaupa mikilvægan búnað án útboðs beint af Yunex Traffic og hins vegar að sníða útboðsgögn í hinni kærðu verðfyrirspurn að þeim búnaði og annarri tækni frá sama fyrirtæki. Brotin stefni þannig saman að því að tryggja að Yunex Traffic verði fyrir valinu sem samningsaðili. Bendi kærandi á að engin heimild sé fyrir því að kaupa þennan eina hlut í heildarkerfi beint af einu fyrirtæki og séu aðstæður í þessu máli því að öllu leyti sambærilegar og í úrskurði kærunefndar útboðsmála nr. 32/2019. Kostnaðurinn við það sem varnaraðili hafi keypt beint af Yunex sé sagður 28.362.189 krónur en búnaðurinn einn og sér sé ekki eini kostnaðurinn. Við þann kostnað bætist kostnaður við hugbúnaðarleyfi, uppsetningu, rekstur, viðhald og þjónustu, auk þess sem kærandi telji að miðlægi stýribúnaðurinn sé einnig hluti af heildarinnkaupum á stýrikerfi umferðarljósa. Stýritölvan sé lítill, en mjög mikilvægur, hluti heildarkerfisins og kostnaður þess sé nokkur hundruð milljónir króna. Varnaraðili beri sönnunarbyrði fyrir því að lögmæt réttlæting hafi verið fyrir því að kaupa þennan eina hluta kerfisins án útboðs. Honum beri einnig að sýna fram á að réttlætanlegt sé að líta á kaupin á miðlæga stýribúnaðinum sem einstök kaup án tenginga við önnur innkaup.
Auk framangreinds bendir kærandi á að varnaraðili hafi kallað innkaupaferlið „lokaða verðfyrirspurn“, en innkaupaferli með því nafni sé ekki til samkvæmt lögum nr. 120/2016. Beri því þrátt fyrir heitið að fara með innkaupaferlið sem lokað útboð í skilningi laganna, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 3/2025. Opinberum aðilum sé ekki heimilt að beita lokuðu útboði nema tiltekin skilyrði séu til staðar, sbr. 35. gr. laga nr. 120/2016 og 9. tölul. 2. gr. sömu laga. Ekki verði séð að hið kærða innkaupaferli uppfylli skilyrði laganna. Kærandi telji jafnframt ljóst að innkaupin séu aðeins hluti af mun stærri heildarinnkaupum varnaraðila, þ.e. endurnýjun alls umferðarljósabúnaðar í Reykjavík. Í gögnum frá varnaraðila sé ekki að finna áætlun á heildarverðmæti innkaupanna, en kærandi telji að varnaraðila beri að auglýsa útboðið á EES-svæðinu.
Kærandi vísar enn fremur til þess að varnaraðili hafi sett skilyrði í útboðsgögn sem séu sniðin að vörum og þjónustu Yunex Traffic og vísar í þeim efnum til þess að stýrikassi skuli geta tengst miðlægri stýritölvu umferðarljósa í gegnum samskiptastaðalinn OCIT-O v3.0 (eða nýrra) eða Canto v1.3 (eða nýrra), sbr. grein 1.1.1.0. Miðlæga stýritölvan hafi verið keypt af Yunex Traffic án útboðs, og sé því ljóst að Yunex Traffic hafi þannig verulegt forskot á aðra bjóðendur. Kaupin á stýribúnaðinum án útboðs séu ólögmæt þótt ekki kunni að vera hægt að óvirkja þau vegna kærufresta eða annars. Ólögmæt innkaup á búnaði geti ekki orðið lögmætur grundvöllur forsendna annarra innkaupa til framtíðar. Því sé skilyrðið um tengingu við miðlægan stýribúnað Yunex Traffic ólögmætt og því beri að ógilda útboðsferlið í heild sinni. Þá sé val tilboða í útboðinu lægsta verð, en allar vörur eigi að tengjast miðlægum tengikassa frá Yunex Traffic. Af því leiði að aðrir bjóðendur þurfi að leggja í viðbótarkostnað við að forrita boðnar vörur þannig að þær geti tengst stýribúnaðinum, og gætu jafnframt aðrir bjóðendur þurft að greiða fyrir aðgang að miðlæga stýribúnaðinum.
Kærandi lagði fram viðbótarathugasemdir 5. ágúst 2026 í kjölfar þess að kærunefnd útboðsmála ákvað að kalla til sérfróðan nefndarmann í málinu, en aðkoma sérfræðings gefi tækifæri til þess að kanna ítarlega hversu mikið forskot einn framleiðandi hafi fengið og um leið hversu mikið varnaraðili hafi útilokað vörur, kerfi og heildarlausnir annarra bjóðenda. Í þessum viðbótarathugasemdum kæranda er vísað til þess að varnaraðili hafi ákveðið að kaupa öll kerfi vegna umferðarstjórnunar beint af Yunex Traffic. Þau kerfi vinni öll saman og því séu kaup á miðlægu stjórnkerfi einungis hluti þess, þ.e. Yutraffic Symphony. Þeim nátengd séu t.d. Yutraffic Stream, Fusion og svo gervigreindarlausnir sem varnaraðili hafi þegar ákveðið að kaupa af Yunex Traffic. Jafnvel þótt litið væri svo á að Yutraffic Symphony útiloki ekki að öllu leyti kaup á strípuðum stýrikössum annarra framleiðenda séu slík innkaup ekki sjálfstæð, heldur tengd innkaupum á kerfinu í heild. Aðrir framleiðendur selji einnig heildarlausnir og með þessu séu búið að útiloka aðra frá því að bjóða sinn hugbúnað, kerfi og heildarlausnir.
Kærandi lagði aftur fram viðbótarathugasemdir 31. ágúst 2026 þar sem vísað er til svars varnaraðila við fyrirspurn á útboðstíma. Fyrirspurnin laut að tengingu búnaðar við STREAM, og í svari varnaraðila hafi verið tekið fram að seljandi þyrfti ekki að sýna fram á að STREAM leyfi sé innbyggt í stýribúnaðinn heldur einungis að búnaðurinn geti tengst STREAM með fullri virkni, Kærandi bendir kærandi á að STREAM sé umferðarljósakerfi frá Yunex Traffic og hafi kærandi ítarlega í kæru sinni fjallað um það hvernig varnaraðili hafi keypt miðlægt umferðarstjórnunarkerfi án útboðs og STREAM sé annað kerfi fyrir almenningssamgöngur og forgangsakstur viðbragðsaðila. STREAM tengist umferðarstjórnunarkerfinu en hvorugt kerfið hafi verið boðið út. Svar varnaraðila við fyrirspurninni styðji enn frekar það sem kærandi hafi haldið fram, þ.e. að varnaraðili hafi ákveðið að notast við kerfi og lausnir frá tilteknum framleiðanda sem grundvöll að öllum umferðarljósastýringum. Sú ólögmæta ákvörðun varnaraðila liti öll eftirfarandi innkaup, einnig þau innkaup þar sem öðrum bjóðendum sé boðin þátttaka. Ljóst sé af svari varnaraðila að allir bjóðendur þurfi að afla leyfa frá Yunex Traffic til þess að uppfylla kröfur varnaraðila. Þetta sýni jafnframt að hin kærðu innkaup séu ekki stök innkaup á nokkrum vörum heldur hluti af heildarinnkaupum á umferðarljósastýringum.
Kærandi bendir auk þess á að kærunefnd útboðsmála hafi ekki leyst úr því áður hvort innkaup á umferðarljósastýringum beri að meta saman eða hvort heimilt sé að skipta þeim upp. Í fyrri málum um umferðarljósastýringar hafi ekki verið fjallað sérstaklega um þetta álitaefni í ljósi þeirra reglna og sjónarmiða sem fram komi í III. kafla laga nr. 120/2016 og verði engar ályktanir dregnar af því að nefndin hafi ekki fjallað um þessi atriði. Nefndin hafi þó leyst úr sambærilegum álitaefnum í öðrum kærumálum og megi hafa sjónarmið sem þar komi fram til hliðsjónar, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 12/2024.
III
Varnaraðili bendir á að kærandi geri afar víðtækar kröfur um óvirkni, viðurlög og ógildingu án þess að fyllilega skýrt megi ráða til hvaða samninga þessi úrræði eigi að taka til. Efni kærunnar varði að mati varnaraðila að minnsta tvö aðskilin mál, annars vegar um kaup á miðlægri stýritölvu og uppfærslu á henni, og hins vegar innkaup á umferðarljósabúnaði þeim sem verðfyrirspurnin laut að.
Kærandi virðist halda fram að leggja eigi saman kaup varnaraðila á uppfærslu miðlægrar stýritölvu umferðarljósabúnaðar árið 2025 við fyrirhuguð innkaup varnaraðila á grundvelli verðfyrirspurnarinnar og að það hafi átt að leiða til þess að annan hvorn eða báða samningana hefði átt að bjóða út á EES-svæðinu. Því hafni varnaraðili og bendi á að af úrskurðum kærunefndar útboðsmála nr. 32/2019 og 41/2020 leiði að uppfærsla á miðlægri stýritölvu umferðarljósa annars vegar og hins vegar kaup á umferðarljósabúnaði teljist ekki einn og sami samningurinn í skilningi laga nr. 120/2016, enda sé um eðlisólík innkaup að ræða. Uppfærsla hugbúnaðar, sem keyptur hafi verið árið 2005, hafi verið þannig að ekki væri unnt að semja við annan framleiðanda en Yunex Traffic. Slíkt uppfærsla teljist þjónustuinnkaup en kaup á umferðarljósabúnaði teljist vörukaup sem ekki þurfi að fara fram samhliða. Að auki sé um að ræða samning og fyrirhugaðan samning sem ekki séu á milli sömu aðila, og slíka samninga beri ekki að leggja saman við mat á útboðsskyldu, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 2. apríl 2025 í máli nr. E-3742/2022. Varnaraðili andmælir einnig fullyrðingum kæranda þess efnis að ýmiss kostnaður muni bætast ofan á kostnað við uppfærsluna, sem ekki hafi verið tilgreindur, og að uppfærslan hafi takmarkað möguleika kæranda í verðfyrirspurninni. Þetta sé órökstutt hjá kæranda.
Varnaraðili andmælir málatilbúnaði kæranda um að grein 1.1.1.0 í verðfyrirspurnargögnum sé sniðin að Yunex Traffic og bendir á að kærandi hafi áður teflt fram sömu málsástæðum, sbr. ákvörðun kærunefndar útboðsmála 1. október 2020 í máli nr. 41/2020, þar sem ekki hafi verið fallist á þessar kröfur kæranda. Ekkert hafi breyst sem nú eigi að leiða til annarrar niðurstöðu í þessu máli. Þá reifar varnaraðili að búnaður Swarco, sem kærandi sé umboðsaðili fyrir á Íslandi, sé meðlimur í OCIT Developer Group og styðjist við OCIT staðalinn varðandi þann hug- og vélbúnað sem hann framleiðir og kærandi selji. Áskilnaður um að umferðarljósabúnaður geti tengst í gegnum OCIT feli því enga hindrun í sér fyrir kæranda, en kærandi hafi ekki rökstutt að hvaða leyti svo eigi að vera nema með mjög almennum hætti. Það sé þvert á móti eitt af meginatriðum OCIT að gera framleiðendum umferðarljósabúnaðar kleift að tengja sinn búnað við miðlægar stýritölvur annarra framleiðanda. Varnaraðili bendir í þessu sambandi á að kærandi hafi m.a. orðið hlutskarpastur í innkaupaferlum þar sem gerður hafi verið sams konar áskilnaður, og engin vandkvæði hafi verið við tengingu umferðarljósabúnað Swarco við miðlæga stýritölvu varnaraðila og Vegagerðarinnar. Fullyrðingum kæranda um að kostnaðarsamara sé fyrir hann og aðra bjóðendur að forrita boðnar vörur beri því að hafna, en um sé að ræða sama kostnað sem allir bjóðendur verði að taka tillit til og innifela í tilboðum sínum.
Þá bendir varnaraðili á að samningur vegna uppfærslu miðlægu stýritölvunnar hafi verið 29.626.885 krónum og því verið undir viðmiðunarfjárhæð 4. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 360/2022 með síðari breytingum. Fjárhæð fyrirhugaðra kaupa á umferðarljósabúnaði á grundvelli verðfyrirspurnarinnar sé einnig undir viðmiðunarfjárhæð reglugerðarinnar, en varnaraðili bendi einnig á að kaupin varði sérstakt samstarfsverkefni varnaraðila og Betri samgangna ohf. sem teljist til flutningsþjónustu í skilningi reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu, þar sem viðmiðunarfjárhæð sé 63.742.000 krónur. Um sé að ræða sitt hvorn samninginn og ekki beri að leggja saman fjárhæðir þeirra við mat á útboðsskyldu. Þá séu bæði innkaupin undir viðmiðunarfjárhæðum og falli því ekki undir úrskurðarvald kærunefndarinnar.
Varnaraðili bendir auk framangreinds á að samningur um uppfærslu á miðlægri stýritölvu, ásamt þjónustusamningi, hafi verið gerður og undirritaður 27. febrúar og 3. mars 2025. Þá hafi samningur um kaup á miðlægu stýritölvunni komist á fyrir rúmlega 20 árum og samningur um fyrri uppfærslu hennar fyrir rúmlega sex árum, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 32/2019. Komi sá samningur ekki aftur til kasta nefndarinnar. Þar sem meira en sex mánuðir séu liðnir frá gerð samninga sé kæra of seint fram komin varðandi óvirkni og önnur viðurlög, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Enn fremur séu meira en 20 dagar liðnir frá því kærandi vissi eða mátti vita um alla áðurnefnda samninga, þ.m.t. uppfærslu á hugbúnaði á miðlægu stýritölvunnar, enda hafi upplýsingar um kaup varnaraðila á uppfærslunni verið birtar á heimasíðu varnaraðila.
Varnaraðili byggir auk þessa á því að honum hafi verið heimilt að uppfæra hugbúnað miðlægu stýritölvunnar með því að gera samning án innkaupaferlis við framleiðanda hans, Yunex Traffic, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 39. gr. laga nr. 120/2016, enda sé ekki unnt að uppfæra hann nema með samningi við framleiðanda. Uppfærslan lúti þannig að fyrirliggjandi hugbúnaði sem þegar sé í eigu varnaraðila en ekki kaup á sjálfstæðu kerfi. Frumkóði kerfisins sé umfangsmikill, flókinn, sérhæfður og þróaður yfir langt tímabil. Aðrir en framleiðendur hans geti ekki gert uppfærslur á honum þar sem hann hafi einn aðgang að frumkóða hans, sbr. úrskurður kærunefndar útboðsmála nr. 8/2021.
Varnaraðili byggir enn fremur á því að verðfyrirspurn sé ekki innkaupferli sem fjallað sé um í lögum nr. 120/2016, sbr. IV. kafli þeirra, og því eigi lögin ekki við um ferlið. Valdsvið kærunefndar útboðsmála nái ekki til kröfugerðar og málatilbúnaðar kæranda og geti kærunefnd útboðsmála því ekki veitt álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila vegna þess, sbr. 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Varnaraðili hafni því leiðandi fullyrðingum kæranda þess efnis að verðfyrirspurn megi jafna við lokað útboð. Að auki liggi ekki fyrir nein ákvörðun um að ganga til samninga á grundvelli verðfyrirspurnarinnar. Kærandi hafi ekki orðið fyrir neinum kostnaði og möguleikar hans á að hljóta samning hafi ekki verið skertir.
Varnaraðili andmælir í greinargerð sinni 7. september 2026 að kærandi sé nú, í annað sinn, að bæta við og breyta kæruefni málsins með viðbótargögnum og stuttum athugasemdum. Engin heimild sé í lögum nr. 120/2016 fyrir kæranda að bæta við og breyta kæruefni málsins umfram kæru. Nú virðist kærandi byggja á því að leggja eigi saman innkaup á umferðarljósabúnaði samkvæmt verðfyrirspurninni við önnur innkaup varnaraðila á umferðarljósabúnaði. Á þessu hafi kærandi ekki byggt í kæru og komi þetta atriði því ekki til skoðunar fyrir kærunefndinni, sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016. Engu að síður andmæli varnaraðili þessum málatilbúnaði kæranda og ítrekar að kaup samkvæmt verðfyrirspurninni séu sérstök kaup og verkefni sem varnaraðili og Betri samgöngur ohf. hafi með sér og falli undir veitutilskipunina. Þá hafi dómstólar talið að ekki beri að leggja saman kaup mismundandi aðila við mat á útboðsskyldu, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 2. apríl 2025 í máli nr. E-3742/2022.
Varnaraðili andmælir einnig fullyrðingu kæranda þess efnis að kærunefnd útboðsmála hafi ekki tekið afstöðu til þess áður hvort innkaup á umferðarljósastýringum beri að meta saman eða hvort heimilt sé að skipta þeim upp. Vísar varnaraðili í þessu efnum til úrskurða kærunefndar útboðsmála nr. 32/2019 og 41/2020.
Í bréfi Smith & Norland hf. er bent á að varnaraðili hafi fullan og óskoraðan rétt til að fyrirskrifa og velja þann búnað sem sérfræðingar varnaraðila hverju sinni telji hagkvæmastan og bestan fyrir vinnuveitanda sinn án íhlutunar félagsins.
IV
A
Varnaraðili heldur því fram að innkaupin falli undir 11. gr. veitureglugerðarinnar nr. 340/2017. Af þeim sökum eigi hinar almennu viðmiðunarfjárhæðir 23. gr. laga nr. 120/2016 ekki við í málinu. Á þetta verður ekki fallist en 11. gr. veitureglugerðarinnar gildir um starfsemi í tengslum við framboð eða starfrækslu á kerfum sem þjóna almenningi á sviði flutninga með járnbrautum, sjálfvirkum kerfum, sporvögnum, strætisvögnum, hópbifreiðum eða togbrautum. Hin kærðu innkaup falla ekki undir þetta. Þau varða stýringu umferðar á gatnamótum sem tilheyra hinu almenna gatnakerfi. Þótt strætisvagnar eigi þar leið um með sama hætti og einkabílar dugar það ekki til þess að umferðarstýring á gatnamótunum teljist svo sértæk og bundin við kerfi strætisvagna að hún geti fallið undir 11. gr. veitureglugerðarinnar. Verður því horft til viðmiðunarfjárhæða 23. gr. laga nr. 120/2016 við úrlausn málsins.
Varnaraðili heldur því einnig fram að hið kærða innkaupaferli falli ekki undir valdsvið kærunefndar útboðsmála, og bendir á að innkaupaferlið hafi verið svokölluð verðfyrirspurn sem ekki sé fjallað um í lögum nr. 120/2016. Í 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að hlutverk kærunefndar útboðsmála er að leysa með skjótum og óhlutdrægum hætti úr kærum fyrirtækja vegna ætlaðra brota á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim, þar á meðal um almenn innkaup opinberra aðila, innkaup á sviði varnar- og öryggismála, innkaup opinberra aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu og gerð sérleyfissamninga. Málsmeðferð kærunefndar takmarkast við það kæruefni sem lagt er fyrir hana.
Af framangreindu ákvæði leiðir að valdsvið kærunefndar útboðsmála tekur til innkaupa sem ná viðmiðunarfjárhæð 23. gr. laga nr. 120/2016, sbr. lið IV.C hér að neðan. Heiti innkaupaferlis getur engu breytt um það vald nefndarinnar og er sjónarmiðum varnaraðila í þessa veru því hafnað.
B
Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans.
Í kæru málsins er krafist óvirkni samninga um kaup á miðlæga stýribúnaðinum og uppfærslu hans. Fyrir liggur að hin miðlæga stýritölva var keypt árið 2005 og munu samningar vegna umræddrar uppfærslu þess búnaðar hafa verið gerðir 27. febrúar og 3. mars 2025. Kæra málsins barst 23. júlí 2026 og er sá hluti aðalkröfu kæranda um óvirkni framangreindra samninga því utan kærufrests 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Kröfu kæranda þess efnis er því hafnað.
C
Með hinni kærðu verðfyrirspurn stefndi varnaraðili að gerð vörusamnings í skilningi 3. mgr. 4. gr. laga nr. 120/2016. Í 1. mgr. 23. gr. sömu laga segir að öll innkaup opinberra aðila á vörum og þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 4. mgr. skal bjóða út og gera í samræmi við þau innkaupferli sem nánar er kveðið á um í IV. kafla. Samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laganna skal ráðherra birta viðmiðunarfjárhæðir fyrir opinber innkaup á Evrópska efnahagssvæðinu í íslenskum krónum í reglugerð í samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Endurskoða skal viðmiðunarfjárhæðir á tveggja ára fresti, í fyrsta sinn 1. janúar 2018. Í 2. gr. reglugerðar nr. 360/2022, sbr. breytingarreglugerð nr. 495/2026 segir að viðmiðunarfjárhæðir sveitarfélaga vegna vörusamninga sé 31.871.000 krónur. Er það því sú fjárhæð sem skylda varnaraðila til að auglýsa innkaupin á Evrópska efnahagssvæðinu miðast við.
Á meðal þess sem kærandi heldur fram í kæru er að innkaupin fari umfram viðmiðunarfjárhæðir á þeirri forsendu að innkaupin séu „aðeins hluti af mun stærri heildarinnkaupum, þ.e. endurnýjun alls umferðarljósabúnaðar Reykjavíkurborgar.“ Í sjálfu sér benda engin gögn til þess að fyrir liggi heildstæð áætlun um endurnýjun alls þessa búnaðar. Á hitt má þó fallast að fram sé komið að á vegum varnaraðila eiga sér iðulega stað endurnýjun á einhverjum hluta þessa búnaðar eftir því sem tilefni telst til á hverjum tíma. Að því leyti er sýnt að hin kærðu innkaup séu áþekk öðrum innkaupum sem eiga sér stað hjá Reykjavíkurborg og varða ýmis önnur gatnamót. Um útreikning virðis innkaupanna gilda því ákvæði 30. gr. laga nr. 120/2016, sbr. til hliðsjónar 11. mgr. 5. gr. tilskipunar nr. 2014/24/EB um samninga gerða „með reglulegu millibili.“ Atvik hér eru önnur en í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3742/2022.
Varnaraðili hefur upplýst að fjárhæð innkaupa umferðarljósabúnaðar á fjárhagsárinu 2025 hafi verið 7.953.448 krónur. Þá hefur hann upplýst að fjárhæð samninga um kaup á umferðarljósabúnaði frá 3. júlí 2025 til 3. júlí 2026 hafi verið 59.117.560 krónur. Eins hefur hann upplýst að ekki liggi fyrir áætlanir um innkaup búnaðar sem þessa sem taki til 12 mánaða tímabils frá 3. júlí 2026 eða sem taki til fjárhagsársins 2026 eins og sér. Hann hefur þó upplýst að á næstu árum sé gert ráð fyrir innkaupum fyrir 19 staðsetningar fyrir „lauslega samanlagt um 76 milljónir króna“ og þar af sé hlutur Reykjavíkurborgar 60 milljónir króna og Vegagerðarinnar 16 milljónir króna. Allar framangreindar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.
Varnaraðili hefur upplýst að hjá honum liggi ekki fyrir skrifleg greining á því hvort beita hafi átt 30. gr. laga nr. 120/2016 við mat á virði innkaupanna. Af upplýsingum frá varnaraðila má þó ráða að fjárhagsárið 2025 getur vart hafa talist lýsandi við mat á umfangi fyrirhugaðra innkaupa, enda er umfang viðskiptanna margfalt meira á 12 mánaða tímabilinu sem lauk 3. júlí 2026 eða á þeim degi sem hin kærða verðfyrirspurn var send út. Áætlanir fyrir fjárhagsárið 2025 og 12 mánaða tímabil frá 3. júlí 2026 munu ekki vera til. Aðeins liggur fyrir áætlun til „margra ára“ líkt og lýst er að framan. Vafi leikur því á um hvert hefði verið réttilega metið umfang viðskiptanna þann 3. júlí 2026 eftir þeim reglum sem mælt er fyrir um í a. og b. lið 30. gr. laga nr. 120/2016. Verður því með hliðsjón af umfangi viðskiptanna 12 mánuði fyrir útsendingu verðfyrirspurnarinnar að ætla að innkaupin hafi farið umfram viðmiðunarfjárhæð og skylt hafi verið að auglýsa þau á Evrópska efnahagssvæðinu.
Með vísan til þessa verður fallist á þann hluta aðalkröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli verði fellt úr gildi og er lagt fyrir varnaraðila að bjóða út að nýju innkaup á umferðarljósabúnaði á Evrópska efnahagssvæðinu.
D
Kærandi krefst jafnframt álits á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér. Í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna tjóns sem brot á lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.
Kæra málsins beinist að skilmála í grein 1.1.1.0 í verðfyrirspurnargögnum sem lýtur að því að boðinn búnaður skuli geta tengst stýritölvu umferðarljósa í gegnum samskiptastaðalinn OCIT-O v3.0 (eða nýrra) eða Canto v1.3 (eða nýrra), en kærandi telur skilmála þennan sniðinn að búnaði og vörum Yunex Traffic. Kaupendur samkvæmt lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup hafa svigrúm til þess að skilgreina kröfur til boðinnar þjónustu í innkaupum sínum svo fremi sem málefnaleg sjónarmið búi að baki þeim, meðalhófs sé gætt og jafnræði bjóðenda sé ekki raskað. Við það mat nýtur varnaraðili nokkurs svigrúms. Líkt og fram kemur í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 5/2025 og 6/2025 verður tilgreining þessara eiginleika í útboðsgögnum þó að byggja á málefnalegum sjónarmiðum auk þess sem gæta verði meginreglna um jafnræði, meðalhóf og gagnsæi, sbr. 1. mgr. 15. gr. og 3. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016.
Sérfræðingur kærunefndar útboðsmála í máli þessu bendir á að evrópskir framleiðendur stjórnbúnaðar fyrir umferð hafi komið sér saman um staðal, sem nefndur er OCIT-O (e. Open Communication Interface for Traffic – Online). Nokkur fjöldi framleiðenda í Evrópu tilheyra hóp þessum og nokkur þeirra hafi jafnframt myndað hóp sem stuðlar að framþróun staðalsins. Markmiðið sé að búnaður eins framleiðanda geti tengst við miðlægan búnað annars framleiðanda til þess að koma í veg fyrir að viðskiptavinir þessara framleiðenda læsist í viðskiptum við einn ákveðinn. Þannig eigi umferðarljós frá Swarco að geta unnið með miðlægum stjórnbúnaði frá Yunex Traffic og öfugt. Þó geti verið í sumum tæknilegum kerfum erfiðara fyrir annan aðila að tengjast við stöðluð sniðtengi (e. interface) en framleiðanda búnaðarins að baki sniðtenginu. Það sé þó ekki algilt.
Samkvæmt því sem varnaraðili hefur haldið fram hefur búnaður frá kæranda verið tengdur við miðlægu stýritölvu varnaraðila án vandkvæða, og hefur kærandi ekki rengt þá fullyrðingu varnaraðila. Af þessum sökum þykir mega miða við, eins og hér stendur sérstaklega á og miðað við þau gögn sem liggja fyrir í máli þessu, að umræddur skilmáli hafi ekki verið sérstaklega sniðinn að búnaði og vörum Yunex Traffic. Þá liggur fyrir að engin tilboð hafa borist í hinu kærða innkaupaferli og þar með verður ekki talið að kærandi hafi orðið fyrir kostnaði við að undirbúa tilboð og taka þátt í innkaupaferlinu. Af þessum sökum er það mat kærunefndar útboðsmála að skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 um álit á skaðabótaskyldu séu ekki uppfyllt og verður kröfu kæranda þar um því hafnað.
Með vísan til framangreindra málsúrslita þykir rétt að varnaraðili greiði kæranda málskostnað, svo sem greinir í úrskurðarorði og er þar tekið tillit til virðisaukaskatts.
Úrskurðarorð
Fellt er úr gildi innkaupaferli varnaraðila, Reykjavíkurborgar, auðkennt „Umferðarljós – Snorrabraut / Hverfisgata og Snorrabraut / Laugavegur.“
Lagt er fyrir Reykjavíkurborg að bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu innkaup á umferðarljósabúnaði.
Kröfu kæranda, Reykjafells ehf., um óvirkni samninga milli Reykjavíkurborgar og Smith & Norland hf., annars vegar um vélbúnað og hugbúnað, og hins vegar um þjónustu vegna uppfærslu á miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík, er hafnað.
Kröfu Reykjafells ehf., um álit á skaðabótaskyldu Reykjavíkurborgar, er hafnað.
Reykjavíkurborg greiði Reykjafelli ehf. 1.000.000 krónur í málskostnað.
Reykjavík, 9. nóvember 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir