20. nóvember 2026 /

Mál nr. 47/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 2. nóvember 2026

í máli nr. 47/2026:

ID Electronic ehf.

gegn

Fjársýslu ríkisins og

Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi ohf.

 

Lykilorð

Útboðsskilmálar. Sérfræðingur. Tæknilýsingar. Skilmáli felldur niður. Málskostnaður.

Útdráttur

Ágreiningur málsins varðaði örútboð varnaraðila þar sem óskað var eftir tilboðum í endurnýjun á hljóðkerfum í Hörpunni. Aðilar deildu um lögmæti tiltekinna útboðsskilmála og naut kærunefnd útboðsmála aðstoð sérfræðings við úrlausn málsins. Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfum kæranda varðandi alla skilmála útboðsins nema MR-G08. Í þeim skilmála var gerð krafa um að hátalakerfi, mögnun og kerfisvinnsla væru hönnuð, þróuð og framleidd af einum og sama framleiðanda sem eitt sameinað og samþætt vörukerfi. Í úrskurði nefndarinnar var lagt til grundvallar að skilmálinn fæli í sér tilvísun til framleiðslu í skilningi 5. mgr. 49. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016, og hefði í för með sér að fyrirtækjum væri mismunað eða ákveðin fyrirtæki væru útilokuð frá þátttöku samkvæmt ákvæðinu. Þá var það niðurstaða nefndarinnar að skilmálinn væri ekki í samræmi við 5. mgr. 49. gr. laganna. Í samræmi við kröfugerð kæranda var með úrskurðinum fallist á kröfu hans um niðurfellingu skilmálans að hluta auk þess sem varnaraðilum var gert að greiða honum málskostnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 28. ágúst 2026 kærði ID Electronic ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 22212a auðkennt „Audio System for Harpa Concert Hall & Conference Centre“.

Kærandi krefst þess meðal annars að „felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila, sem birtist í opinberum svörum 13. ágúst 2026, um að viðhalda eftirfarandi skilmálum:

·         MR-GO2, að því marki sem áskilið er sem lágmarksskilyrði að framleiðandi sýni fram á víðtæka notkun í stærstu alþjóðlegu tónleikaferðalögum og viðurkenningu í tæknilýsingum listamanna, en reynsla af sambærilegum föstum uppsetningum í tónlistar- og ráðstefnuhúsum er fyrirfram talin ófullnægjandi, óháð umfangi, tæknilegum gæðum og getu til að efna samninginn.

·         MR-G03, að því marki sem skilmálinn útilokar kerfi þar sem Milan-samskiptastaðall er notaður sem meginflutningslag en hljóðmerki er fært áfram til magnara með öðru óþjöppuðu stafrænu sniði, þótt boðin lausn uppfylli allar mælanlegar kröfur um hljómgæði, samstillingu, rekstraröryggi, vöktun og stjórnun.

·         MR-G08, að því marki sem áskilið er að hátalarar, magnarar og kerfisvinnsla séu hönnuð, þróuð og framleidd undir einu og sama vörumerki eða af einum framleiðanda og lausnir frá tengdum vörumerkjum innan sama fyrirtækjasamstæðu eru útilokaðar án mats á jafngildi.

·         Gæðaviðmiði í grein 2.4.2 útboðslýsingar, sbr. MR-E06, að því marki sem 15 gæðastig fást aðeins ef cardioid-stefnuvirkni er eðlislægur eiginleiki hvers einstaks hátalarakassa, en sannreynd jafngild eða betri bakdeyfing sem næst með annarri tæknilegri útfærslu fær engin stig“.

Auk framangreinds krefst kærandi þess að lagt verði fyrir varnaraðila að fella niður framangreinda ólögmæta hluta skilmálanna  eða „endursemja þá þannig að hæfi framleiðenda verði metið eftir skilyrðum sem tengjast efni samningsins og eru í hæfilegu hlutfalli við það, tæknilega jafngildar lausnir sæti hlutlægu mati á grundvelli mælanlegrar virkni og frammistöðu og öllum rammasamningshöfum sem boðið var þátttaka verði veittur nýr og hæfilegur frestur til að skila tilboði“. Þá krefst kærandi einnig að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað.

Loks krefst kærandi þess að innkaupaferli útboðsins verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kærunni.

Með erindi 1. september 2026 tilkynnti kærunefnd útboðsmála aðilum að til stæði að kalla til Halldór K. Júlíusson, hljóðverkfræðing, til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni með vísan til heimildar 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Aðilar gerðu ekki athugasemdir við þessi áform. Formaður kærunefndar útboðsmála kallaði sérfræðinginn formlega til starfa með bréfi undirrituðu 2. september 2026.

Athugasemdir bárust frá varnaraðilum 7. september 2026. Varnaraðilar krefjast þess að kærunefnd útboðsmála hafni stöðvunarkröfu kæranda og hafni öllum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði. Þá gera varnaraðilar kröfu um málskostnað eftir 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Með ákvörðun 14. september 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á stöðvunarkröfu kæranda. Varnaraðilar lögðu fram frekari athugasemdir 24. sama mánaðar. Lokaathugasemdir kæranda bárust nefndinni 7. október 2026.

 

I

Hið kærða útboð er örútboð innan rammasamnings nr. 23145 sem lýtur að innkaupum á sviðsbúnaði. Fjórum aðilum var boðið að taka þátt í örútboðinu, þar á meðal kæranda, og afhentu varnaraðilar þátttakendum útboðsgögnin 15. júlí 2026. Í grein 2.1 í útboðslýsingu örútboðsins kom fram að innkaupin lytu að endurnýjun á hljóðkerfum í fjórum meginsölum Hörpunnar og öðrum tilgreindum svæðum.

Í grein 2.2.1 í útboðslýsingunni sagði að lágmarkskröfur væru settar fram í viðauka 1. Í umræddum viðauka var kröfum MR-GO2, MR-G03 og MR-G08 lýst með eftirfarandi hætti:

 

MR-G02

The manufacturer shall demonstrate established international touring adoption, including support of ≥100 touring acts, deployment on stadium- or arena-scale productions. The manufacturer should have supported one or more of the Pollstar Top 10 international tours (2024–2025).

MR-G03

All DSP processors, amplifiers, and loudspeaker control systems shall use Milan protocol as the primary system-wide audio distribution layer. Milan compliance shall be implemented natively within the manufacturer's current-generation hardware — either directly in the amplification and processing hardware, or via a manufacturer-developed and Milan-certified DSP and control platform that forms a non-optional, integral component of the supplied system architecture. The implementation shall provide transmission and reception of Milan-compliant streams, network-based control, monitoring, and diagnostics across all system components. Third-party protocol converters, bridges, or adapters not developed by the loudspeaker system manufacturer shall not be used as the basis for claiming Milan compliance. All system components shall support AES70 (OCA) or equivalent open IP control architecture enabling third-party integration.

MR-G08

All loudspeaker systems, amplification, and system processing shall be designed, developed, and manufactured by a single manufacturer as a unified and integrated product ecosystem. Systems that require amplification or DSP hardware from a separate product line — including products from affiliated companies within the same corporate group — shall not be considered

 

Kærandi sendi fyrirspurn 6. ágúst 2026 til varnaraðila við meðferð útboðsins og gerði meðal annars athugasemdir við framangreindar kröfur. Varnaraðili svaraði fyrirspurninni 13. sama mánaðar. Hér að neðan er fyrirspurn kæranda og svör varnaraðila varðandi umræddar kröfur:

 

MR-G02

Fyrirspurn kæranda:

Will the Buyer clarify the non-technical 'Pollstar Top 10' guidance and confirm that established tier-one global manufacturers with proven fixed installation references in premier concert halls and performing arts centers fully satisfy MR-G02?

Svar varnaraðila:

MR-G02 is a minimum requirement for demonstrating top-tier international touring adoption and rider acceptance. The Pollstar Top 10 reference is the benchmark evidence of that adoption: documented support of one or more Pollstar Top 10 tours (2024–2025) satisfies MR-G02. Where a tenderer cannot cite a Pollstar Top 10 credit, equivalent documented evidence of comparable major international touring deployment and acceptance on international artist technical riders will also be accepted. Fixed-installation references in concert halls or performing-arts centers, however strong, do not by themselves satisfy MR-G02, as the requirement concerns touring adoption and rider acceptance rather than installation pedigree or electroacoustic performance.

 

MR-G03

Fyrirspurn kæranda:

What technical justification exists for restricting the use of Milan-certified devices from other manufacturers when those devices have passed the Avnu Alliance certification process and are designed for multi-vendor interoperability? Will the Buyer amend MR-G03 to permit any appropriately certified Milan device that meets the specified technical and operational requirements?

Svar varnaraðila:

MR-G03 does not restrict multi-vendor Milan interoperability — it relies on it. Any Milan-certified source may feed the system at its input. The single-manufacturer requirement applies only within the loudspeaker system, where Milan must be the distribution layer in whatever topology is native to the manufacturer's design. Excluded is any system where Milan terminates partway and another protocol carries audio onward to amplification — leaving Milan an input format, not the distribution layer the requirement demands.

 

MR-G08

Fyrirspurn kæranda:

Will the Buyer confirm that corporate multi-brand groups (Such as Harman Pro) operating under a single parent corporation—utilizing shared R&D, native software/control integration, and backed by a single local primary partner delivering single-point warranty and support, fully satisfy the requirements of MR-G08?

Svar varnaraðila:

No. A common parent company, shared research and development, or single-point local support does not, in itself, satisfy the requirements of MR-G08. As stated in the clause, the loudspeaker systems, amplification, and system processing must be designed, developed, and manufactured by the same manufacturer as a unified and integrated product ecosystem. A combination of separate product lines, including product lines marketed under different brands within the same corporate group, does not constitute such a product ecosystem and therefore does not meet the requirement. MR-G08 remains unchanged.

 

Fyrir liggur að varnaraðili gerði breytingar á grein 2.4.2 með upplýsingaskilaboðum 7. september 2026 til þátttakenda. Breytingarnar fólu í sér að texti greinarinnar var felldur niður og annarri valforsendu bætt við í staðinn.

 

II

Kærandi byggir á að hann hafi lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins og að kæran sé lögð fram innan kærufresta, sbr. 105. og 106. gr. laga nr. 120/2016. Þá rekur kærandi fyrirmæli 15., 69. og 49. gr. laga nr. 120/2016 og tekur fram að kaupandi hafi svigrúm til að skilgreina þarfir sínar en svigrúmið sé ekki ótakmarkað, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 27/2022.

Í samhengi við skilmála MR-G02 tiltekur kærandi að viðurkenning hljóðkerfis í tæknilýsingum alþjóðlegra listamanna geti haft rekstrarlegt gildi fyrir tónleikahús á borð við Hörpu. Það réttlæti þó ekki að slík markaðsviðurkenning sé gerð að sjálfstæðu lágmarksskilyrði og að sambærilegar eða umfangsmeiri fastar uppsetningar séu fyrirfram taldar ófullnægjandi. Innkaupin varði hönnun, afhendingu, uppsetningu, gangsetningu og langtímaþjónustu fasta hljóðkerfa í fjórum sölum Hörpu en ekki leigu- eða rekstrarþjónustu vegna alþjóðlegra tónleikaferðalaga.

Samkvæmt tæknilegri greinargerð Harman, sem sé framleiðandi framboðins búnaðar kæranda, endurspegli Pollstar-listar fyrst og fremst fjárhagslegan árangur tónleikaferðalaga og markaðurinn sé mjög samþjappaður hjá einstökum þjónustuaðilum en sama PA-fyrirtæki þjónusti níu af tíu efstu listamönnum ársins 2025. Framleiðendur komi þar almennt lítið að flutningum, varahlutum og daglegri kerfishönnun. Harman vísi á hinn bóginn til viðamikilla JBL-uppsetninga í stórum tónleikahúsum og leikvöngum og til meira en 20 ára samstarfs JBL og HljóðX um staðbundna þjónustu og stuðning á Íslandi. Þótt varnaraðili taki við öðrum gögnum en Pollstar-listum leysi það ekki vandann enda verði öll samþykkt gögn eftir sem áður að varða alþjóðleg tónleikaferðalög en ekki þá föstu uppsetningar- og þjónustugetu sem samningurinn krefjist. Skilyrði geri því markaðshlutdeild og aðgang að afmörkuðum alþjóðlegum ferðamarkaði að staðgengli fyrir tæknilega og faglega getu. Markmiði varnaraðila verði náð með vægari og málefnalegri leiðum, svo sem með tilvísunum í sambærileg tónlistar- og ráðstefnuhús, skjalfestri reynslu af hönnun, gangsetningu og þjónustu fastra kerfa og gögnum um samhæfni við tæknilýsingar listamanna sem einum af fleiri matsþáttum. Skilmáli MR-G02 sé því hvorki nægilega tengdur efni samningsins né í réttu hlutfalli við hann og brjóti gegn 15. gr. og 2. mgr. 69. gr. laga nr. 120/2016.

Í samhengi við skilmála MR-G03 tekur kærandi fram að fyrirhuguð lausn hans taki við Milan-samhæfu merki og noti Milan við dreifingu en færi merkið yfir í læst AES-stafrænt merki við DPS magnaranna. Milan og AES flytji óþjappað línulegt PCM-hljóðmerki. Slík bein stafræn yfirfærsla feli hvorki í sér D/A- né A/D-umbreytingu og kærandi hyggist sýna fram á að hún skerði hvorki hljómgæði, samstillingu, greiningu né rekstraröryggi. Jafnframt geri útboðsgögn ráð fyrir tengingu við fyrirliggjandi QSC-kerfi, sem kalli á samskipti við Dante-snið. Varnaraðili hafi vísað almennt til kerfissamþættingar til stuðnings kröfunni en ekki tilgreint mælanlegan eiginlega sem tapist við framangreinda útfærslu eða hvers vegna markmiðum um gæði, vöktun, vara-leiðir og rekstraröryggi verði ekki náð með jafngildri lausn. Krafan skilgreini þannig eina leið að markmiðinu í stað þess að skilgreina markmiðið sjálft og útiloki lausn sem unnt sé að sannreyna á hlutlægum mælikvörðum. Hún gangi lengra en nauðsynlegt er og brjóti gegn 15. gr. og 1., 3. og 5. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016.

Í samhengi við skilmála MR-G08 sé krafan ekki orðuð sem hlutlausn krafa um virkni, samhæfni, eina ábyrgð, þjónustustig, rekjanleika bilana eða sameiginlegt stjórnunarkerfi. Hún geri þess í stað formlegt auðkenni framleiðanda eða vörumerkis að úrslitaatriði. Hún útiloki því fyrirfram JBL-hátalara, BSS-kerfisvinnslu og Crown-magnara, þótt öll vörumerkin tilheyri Harman, þróunarteymi þeirra starfi saman og kærandi taki að sér eina heildstæða ábyrgð og þjónustu. Varnaraðili hafi ekki sýnt fram á að sama rekstrarlega niðurstaða verði ekki tryggð með kröfum um skjalfesta samhæfni, sameiginlegt eftirlit, einn þjónustu- og ábyrgðaraðila, skilgreindan viðbragðstíma og prófanir fyrir afhendingu. MR-G08 byggi því á uppruna og skipulagi vörunnar fremur en mælanlegri frammistöðu. Hún hafi samskonar útilokunaráhrif og óheimil vörumerkjatilvísun án raunhæfs jafngildis og brjóti gegn 15. gr. og 1., 3. og 5. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016. Þá gerir kærandi einnig grein fyrir sjónarmiðum sínum í tengslum við lögmæti greinar 2.4.2 og skilmála MR-E06.

Við mat á lögmæti skilmálanna verði að líta til samanlagðra áhrif krafna útboðsins. Saman þrengi skilmálarnir raunhæfa samkeppni milli þeirra fjögurra rammasamningshafa sem hafi verið boðið að taka þátt án þess að varnaraðili hafi tengt útilokunina skýrum og sannreynanlegum kröfum um árangur. Þá telur kærandi að hugsanlegt sé að skilmálarnir fari í bága við 3. og 5. mgr. 40. gr. laga nr. 120/2016.

Í lokaathugasemdum sínum bendir kærandi á að varnaraðilar leggi nú megináherslu á að MR-G08 varði svokallað „framleiðandastaðfest heildarkerfi“ en ekki sameiginlegt vörumerki. Orðalagið sé þeirra eigin eftiráskýring. Í skilmálanum standi einfaldlega að hátalarar, mögnun og kerfisvinnsla skuli hönnuð, þróuð og framleidd af einum og sama framleiðanda. Auk þess sé sérstaklega tekið fram að aðskildar vörulínur, þar á meðal vörur tengdra félaga innan sömu fyrirtækjasamstæðu, komi ekki til greina.

Þetta sé ekki hlutlaus lýsing á virkni, afköstum eða samþættingu. Þetta sé krafa um uppruna og skipulag framleiðslu. Engin aðferð sé tilgreind til að meta hvort kerfi sé í raun „framleiðandastaðfest“, engin prófun sem það þurfi að standast og engin gögn sem leggja skuli fram um samþættingu, uppfærslur eða rekstrarsamhæfni. Niðurstaða verði ekki að tæknilegum eiginleika við það eitt að hún sé endurtekin á ensku innan sviga. Ef raunveruleg þörf varnaraðila Hörpu sé staðfest samþætting, samræmd vöktun, rekjanleiki bilana, samhæfðar uppfærslur og skýr ábyrgð beri að lýsa þeim eiginleikum og þeim gögnum sem sýna eigi fram á þá. Ef þörfin sé á hinn bóginn sú að allur búnaður komi frá einum formlegum framleiðanda sé það einmitt sú uppruna- og framleiðendakrafa sem lögin setji sérstakar skorður. Varnaraðilar geti ekki komist hjá þeirri einföldu staðreynd með því að gefa skilmálanum nýtt og tæknilegra hljómandi heiti.

Viðbótarathugasemdir varnaraðila beri öll einkenni eftiráskýringar. Vísað sé almennt til fimmtán ára rekstrarreynslu Hörpu, mögulegs flækjustigs, fastbúnaðar, vöktunar, bilanagreiningar og framtíðarsamhæfni. Ekki sé þó lýst einu tilviki úr þessari fimmtán ára reynslu þar sem fjölframleiðendakerfi olli þeim vanda sem nú sé teflt fram. Engar bilanaskýrslur, samanburðarprófanir, áhættugreiningar eða tæknilegar álitsgerðir hafi fylgt. Tilvísun til langrar reynslu geti vitaskuld verið upphaf rökstuðnings, en hún sé ekki töfraorð sem leysi kaupanda undan því að sýna fram á nauðsyn og meðalhóf útilokandi skilmála. Ef reynslan sé jafn afgerandi og haldið sé fram, hafi átt að vera auðvelt að leggja fram a.m.k. einhver gögn um hana. Það sé ekki gert. Það sé því erfitt að líta á viðbótarathugasemdirnar öðruvísi en sem nokkuð gagnsæjan fyrirslátt: nýr merkimiði, fleiri lýsingarorð, en engin ný sönnun. Framsetningin virðist fremur ætluð til að kasta ryki í augu nefndarinnar en að svara því atriði sem hafi ráðið stöðvun málsins, þ.e. hvers vegna hlutlæg og sannreynanleg gögn um raunverulega samþættingu hafi ekki dugað.

Varnaraðili leggi mikla áherslu á að enginn framleiðandi eða vörumerki sé nefnt í MR-G08. Það svari ekki kæruefninu. Bann 5. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016 ráðist af efni og áhrifum tæknilýsingar, en ekki því hvort nafn eða merki framleiðandans sé prentað í útboðsgögnin. Annars sé auðvelt að sniðganga ákvæðið, sleppa mætti nafninu en lýsa vörulista viðkomandi framleiðanda svo nákvæmlega að allir aðrir myndu falla á brott. MR-G08 geri skipulag framleiðslu og vörulína að ófrávíkjanlegri lágmarkskröfu og útiloki jafnvel samþættar vörur tengdra félaga innan sömu samstæðu. Þegar skilmálinn sé lesinn með öðrum sértækum kröfum útboðsins verði til tæknilegt fingrafar sem þrengi hóp gjaldgengra kerfa að fyrirfram fyrirsjáanlegum framleiðendum og veiti þeim rammasamningshöfum sem hafa aðgang að vörulínum þeirra augljóst forskot. Kærandi gerir nánar grein fyrir sjónarmiðum þessu tengdu og tekur fram að draga megi þá ályktun að skilmálarnir hafi verið sérsniðnir út frá fyrirfram þekktum lausnum fremur en hlutlægri þarfalýsingu. Hvort það hafi beinlínis verið ætlunin að hygla tilteknum aðilum skipti þó ekki úrslitum. Lögin banna einnig tæknilýsingar sem hafi slík áhrif. Hér séu áhrifin þau að ákveðnum framleiðendum og þeim birgjum sem bjóða vörur þeirra sé veitt forskot án þess að sýnt hafi verið fram á tæknilega nauðsyn þess.

Varnaraðilar segja rammasamningshöfum sé frjálst að leita til annarra birgja og framleiðenda eftir kerfi sem uppfylli MR-G08. Þetta sé ekki svar við samkeppnisröskuninni heldur lýsing á henni. Kærandi hafi verið einn fjögurra aðila sem valdir hafi verið til þátttöku í rammasamningnum og boðið sérstaklega að taka þátt í örútboðinu. Hæfi hans, sérþekking, varahlutahald, þjónustukerfi og verðlagning byggist á löngum tengslum við Harman og vörumerki samstæðunnar. Það sé hvorki raunhæf né hlutlaus samkeppni að segja slíkum rammasamningshafa að hann geti vissulega tekið þátt, svo fremi sem hann yfirgefi þann framleiðendagrunn sem hæfi hans og þjónustugeta byggist á og afli sér nýrrar vörulínu sérstaklega fyrir þetta örútboð. Fræðilegur möguleiki á að finna nýjan framleiðanda jafngildi ekki raunhæfum aðgangi að samkeppni, sér í lagi þegar ekkert liggi fyrir um umboð, afhendingargetu, verð, tæknilega þjálfun eða þjónusturéttindi innan hins skamma tilboðsfrests.

Sú staðhæfing varnaraðila að rammasamningsaðilar geti einfaldlega „leitað annað“ staðfestir þannig fremur en hrekur að skilmálarnir færi viðskipti að þeim framleiðendum sem þeir hafi verið sniðnir að og þeim birgjum sem þegar ráði yfir aðgangi að þeim.

Málatilbúnaður varnaraðila gangi út frá ósannaðri forsendu, það er að einn framleiðandi tryggi sameiginlega þróun, prófun, uppfærslur og stuðning en fleiri framleiðendur geri það ekki. Sama nafn á framleiðanda sé ekki sjálfstæð tæknileg trygging fyrir neinu af þessu. Stórir framleiðendur geti rekið sjálfstæðar vörulínur, hugbúnað, þróunarteymi og uppfærsluferla. Eignarhald, skipulag og vörulínur geti jafnframt breyst á líftíma kerfisins. MR-G08 innihaldi ekkert loforð um að slíkt gerist ekki og enga sjálfstæða kröfu um stuðning eða samhæfni til framtíðar.

Sama vörumerki tryggi heldur ekki að allir íhlutir kerfisins séu hannaðir eða framleiddir af sama aðila. Íhlutir í hátölurum, mögnurum og kerfisvinnslu geti komið frá sjálfstæðum undirverktökum eða OEM-framleiðendum án þess að það sjáist á fullbúinni vöru. Á hinn bóginn geti vörur með mismunandi, sögulega mótuð vörumerki verið hannaðar og prófaðar undir sameiginlegu tæknilegu og gæðalegu eftirliti. MR-G08 greini ekki þar á milli heldur umbunar tiltekinni vörumerkja- og félagaskipan. Formið, en ekki tæknilega inntakið, ráði úrslitum. Harman hafi upplýst að meginhlutar VTX-kerfisins séu hannaðir og framleiddir á starfsstöðvum í eigu samstæðunnar undir sameiginlegu eftirliti með forskrift og gæðum. Vörumerkin JBL, Crown og BSS stafi af sögulegri markaðssetningu en ekki tæknilegum aðskilnaði lausnarinnar. Telji varnaraðilar þetta ekki fullnægjandi verði þeir að skilgreina hvaða tæknilega eiginleika skorti og heimila kæranda að sanna þá. Þeir geti ekki látið vörumerkin ráða niðurstöðunni og kallað það síðan mat á samþættingu.

Að sama skapi geta vörur undir mismunandi vörumerkjum verið hannaðar, prófaðar og studdar sem ein heild. Fyrirhuguð lausn kæranda byggist á JBL-hátölurum, BSS-kerfisvinnslu og Crown-mögnurum innan Harman-samstæðunnar, sameiginlegri tæknilegri þróun og einni staðbundinni ábyrgðar- og þjónustuleið. Varnaraðilar hafi ekki lagt fram tæknilegt mat á þessari tilteknu lausn. Hún sé einfaldlega dæmd ógild fyrirfram vegna formlegs auðkennis vörulínanna.

Varnaraðilar viðurkenni raunar að fjölframleiðendakerfi geti verið tæknilega gott og að unnt sé að sýna fram á samþættingu, prófun, rekstrarsamhæfni, stuðning og ábyrgð með fullnægjandi gögnum. Mótrök þeirra séu í reynd þau að þá þyrfti að skilgreina gögnin og meta þau fyrir hverja boðna samsetningu. Það sé venjulegt hlutverk kaupanda í tæknilegu útboði, ekki lögmæt ástæða til að sleppa matinu og útiloka samkeppnishæfar lausnir fyrirfram. Stjórnsýslulegt hagræði við að þurfa ekki að meta jafngildi réttlætir ekki samkeppnishamlandi upprunakröfu.

Kærunefnd útboðsmála hafi þegar bent á raunhæfa vægari leið. Varnaraðilar geti krafist staðfestingar fyrir þeirri tilteknu samsetningu sem boðin sé, meðal annars um prófun heildarkerfis, sameiginlegt stjórnunarkerfi, merkjaleið, vöktun og bilanagreiningu, samhæfni hugbúnaðar og fastbúnaðar, ferli vegna uppfærslna, ábyrgð, þjónustustig og stuðning yfir líftíma kerfisins. Þeir geti krafist prófunarskýrslna, staðfestinga framleiðenda, samþykkisprófana fyrir afhendingu og einnar samningslegrar ábyrgðar bjóðanda á heildarlausninni. Slíkar kröfur væru tengdar þeim árangri sem varnaraðili Harpa segist sækjast eftir og sannreynanlegar með hlutlægum hætti. MR-G08 geri ekkert af þessu. Skilmálinn meti ekki hvort boðið kerfi sé í raun samþætt, prófað eða stutt sem ein heild. Hann meti aðeins hvort kerfishlutarnir falli undir sama formlega framleiðanda. Form framleiðsluskipulags sé þannig látið koma í stað tæknilegrar sönnunar.

Samkvæmt 15. gr. laga nr. 120/2016 beri að gæta jafnræðis, meðalhófs og gagnsæis og óheimilt er að takmarka samkeppni með óeðlilegum hætti. Samkvæmt 1. og 3. mgr. 49. gr. þurfa tæknikröfur að tengjast efni samnings, vera í réttu hlutfalli við verðgildi hans og markmið, veita fyrirtækjum jöfn tækifæri og mega ekki leiða til ómálefnalegra hindrana á samkeppni. Í 5. mgr. sömu greinar sé sérstaklega lagt bann við tilvísun til framleiðanda, sérstakrar vinnslu, uppruna eða framleiðslu með útilokunaráhrifum nema slíkt leiði beinlínis af efni samnings og jafngildi sé heimilað. Þá geri 51. gr. beinlínis ráð fyrir prófunarskýrslum, vottorðum og öðrum viðeigandi sönnunargögnum. Lögin geri með öðrum orðum ráð fyrir þeirri sönnunarleið sem varnaraðilar lýsa nú sem of flókinni.     Þá rekur kærandi að þeir dómar og úrskurði sem varnaraðili vísi til eigi ekki við í málinu.

Varnaraðilar byggja á því að breyting á gæðaviðmiði greinar 2.4.2 hafi ekki verið gerð vegna kæru kæranda heldur vegna fyrirspurnar Exton ehf. 14. ágúst 2026. Sú skýring sé heldur einkennileg vörn gegn málskostnaðarkröfunni. Að annar rammasamningshafi hafi gert efnislega sömu athugasemd staðfestir að viðmiðið hafi ekki verið hlutlaust og að athugasemd kæranda hafi verið réttmæt. Það sé ekki varnaraðilum til málsbóta að fleiri en kærandi hafi séð sama annmarka. Kærandi hafi þegar 6. ágúst 2026 spurt hvort jafngild eða betri tæknileg niðurstaða yrði metin. Varnaraðilar hafi svarað 13. ágúst afdráttarlaust neitandi og staðfestu að aðeins ein tiltekin hönnunaraðferð fengi öll 15 gæðastigin. Breytingin hafi síðan ekki verið birt fyrr en 7. september 2026, eftir að kæran hafi borist og sama dag og greinargerð varnaraðila hafi skilað. Kærunefnd útboðsmála hafi raunar tekið sjálf fram í ákvörðun sinni að ákvæðinu hafi verið breytt eftir móttöku kæru.

Fram að breytingunni hafi hið umdeilda viðmið verið hluti útboðsgagna. Kærandi hafi ekki geta treyst því að það yrði einhvern tíma leiðrétt, enda hafi beiðni hans beinlínis verið hafnað. Honum hafi því verið nauðsynleg að kæra áður en tilboð yrðu opnuð. Málskostnaðarákvörðun samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 ráðist ekki af því hvaða innanhússástæðu varnaraðilar kjósi eftir á að nefna fyrir breytingunni. Horfa beri til þess að kæran var málefnaleg og nauðsynleg, að stöðvunarkrafa kæranda náði fram að ganga og að varnaraðilar hafi breytt einu hinna kærðu viðmiða undir rekstri málsins. Ítrekar kærandi því kröfu sína um málskostnað og um að ákvörðun um að viðhalda MR-G08 verði felld úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að fella skilmálann niður eða endursemja hann með tilteknum hætti.

 

III

Varnaraðilar hafnar sjónarmiðum kæranda um að samspil hinna kærðu krafna feli í sér verulega breytingu á skilmálum rammasamnings nr. 23145 og fari því í bága við 3. og 5. mgr. 40. gr. laga nr. 120/2016.

Rammasamningur nr. 23145 taki sérstaklega til hljóðbúnaðar fyrir svið í hluta A. Í kafla 1.5.3 rammasamningsins sé kveðið á um að þegar gerðar eru ríkari kröfur til boðinnar vöru eða einstök kaup fara yfir 12.000.000 krónur með virðisaukaskatti skuli fara fram örútboð milli þeirra samningsaðila sem efnt geti samninginn. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að kaupendum sé heimilt að efna til örútboðs þegar vörur rammasamningsins uppfylli ekki þær ítarlegu kröfur sem kaupendur vilja gera til hennar. Enn fremur komi fram að kaupendum sé í örútboðum heimilt að ítra kröfur til boðinnar vöru eða þjónustu umfram lágmarksskilyrði rammasamningsútboðsins og að hið sama gildi um áskilnað um aukið hæfi bjóðenda til fullnustu vöru og þjónustu. Rammasamningurinn geri því beinlínis ráð fyrir því að nánari og ríkari tæknikröfur verði ákveðnar í einstökum örútboðum með hliðsjón af þörfum þess kaupanda og verkefnis sem um ræði.

Hinar kærðu lágmarkskröfur feli ekki í sér nýjan vöruflokk eða annars konar innkaup en rammasamningurinn nái til. Þær lúti allar að hljóðbúnaði og heildstæðu hljóðkerfi sem falli undir hluta A rammasamningsins. Að mati varnaraðila sé því ekki um að ræða verulega breytingu á eðli eða skilmálum rammasamningsins heldur nánari útfærslu tæknilegra þarfa sem rammasamningurinn geri beinlínis ráð fyrir að fari fram með örútboði. Sama eigi við um það gæðaviðmið sem kærandi geri athugasemdir við en það falli beint undir þá tegund valforsendu sem hafi verið tilgreind í skilmálum rammasamningsins og vægi þess sé innan þeirra marka sem þar hafi verið ákveðin.

Af framangreindu leiði að hvorki hinar kærðu lágmarkskröfur né gæðaviðmiðið fari út fyrir þær heimildir sem rammasamningurinn veiti við örútboð. Ágreiningurinn lúti því í reynd að því hvort kröfurnar sjálfar séu málefnalegar, tengdar efni samningsins og í hæfilegu hlutfalli við markmið kaupanda.

Varnaraðilar rekja fyrirmæli 15. gr., 49. og 79. gr. laga nr. 120/2016 og benda á að það falli í hlut kaupanda að skilgreina þarfir sínar, hvernig þær verði best uppfylltar og hvaða eiginleikum boðin vara eða lausn skuli búa yfir í því skyni. Við það mat njóti kaupandi nokkurs svigrúms, enda séu þær kröfur sem gerðar séu málefnalegar, tengdar efni samningsins, gagnsæjar og ekki meira íþyngjandi en nauðsynlegt er. Kærunefnd útboðsmála hafi áréttað þetta svigrúm kaupanda, m.a. í úrskurðum nefndarinnar nr. 49/2025 og 53/2025. Svigrúmið takmarkist þannig af meginreglum opinberra innkaupa og verði að meta hverja kröfu í ljósi efnis og markmiða viðkomandi samnings.

Í máli þessu hafi kröfurnar birtar fyrirfram, þær giltu með sama hætti gagnvart öllum rammasamningshöfum og bjóðendum hafi verið gefinn kostur á að gera athugasemdir og óska skýringa. Varnaraðilar hafa tekið efnislega afstöðu til athugasemda kæranda, skýrt einstök atriði og breytt skilmálum þar sem talið var rétt að gera það. Þannig hafi meðal annars verið fallist á að breyta tilteknum kröfum og þessar breytingar hafi allar verið gerðar áður en kærandi hafi borið fram kæru sína og séu því ekki hluti af hinu kærða ferli. Sú málsmeðferð styðji þannig ekki þá mynd sem kærandi dragi upp um að skilmálarnir hafi verið fyrirfram ákveðnir með það að markmiði að útiloka tiltekinn framleiðanda.

Í samhengi við athugasemdir kæranda við MR-G02 hafna varnaraðila því að skilmálinn feli í sér kröfu um að framleiðandi hafi sérstaklega verið tengdur við einn tiltekinn lista eða tiltekin fyrirtæki. Í svari varnaraðila 13. ágúst 2026 hafi skýrt verið tekið fram að Pollstar Top 10 sé viðmið um alþjóðlega tónleikaferðareynslu og viðurkenningu í tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. rider recognition), en að bjóðandi sem geti ekki vísað til Pollstar Top 10 geti jafnframt sýnt fram á sambærilega reynslu með skjalfestum gögnum um stórar alþjóðlegar tónleikaferðir og viðurkenningu í tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. technical riders). Krafan hafi því ekki verið bundin við eitt tiltekið sönnunargagn eða lokaðan lista framleiðenda.

Útboðsgögnin geri jafnframt sjálfstæða kröfu um reynslu framleiðanda af hönnun, afhendingu og gangsetningu faglegra hljóðkerfa af sambærilegri stærð og flækjustigi. MR-G02 þjóni öðru markmiði en sú almenna reynslukrafa. Reynslutilvísanir vegna fastra uppsetninga sýna getu framleiðanda til að hanna og afhenda slík kerfi, en MR-G02 lúti sérstaklega að raunverulegri notkun og viðurkenningu kerfanna í alþjóðlegu tónleikaferðaumhverfi og í tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. technical riders).

Harpa taki reglulega á móti alþjóðlegum listamönnum og tónleikaferðum þar sem tækniteymi hússins vinni eftir fyrirfram skilgreindum tæknikröfum og tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. technical riders). Slíkum verkefnum fylgi gjarnan eigin hljóðmenn og tækniteymi sem þekki ekki aðstæður í húsinu og hafi takmarkaðan tíma til undirbúnings. Fyrir starfsemi Hörpu hafi því sjálfstætt rekstrarlegt gildi að uppsett hljóðkerfi sé frá framleiðanda sem njóti viðurkenningar í þessu umhverfi og búnaður hans komi reglulega fyrir á tæknikröfum alþjóðlegra gestaframleiðslna. Slík viðurkenning auðveldi undirbúning og framkvæmd á tónleikadögum og auki líkur á að tækniteymi gestaframleiðslna geti treyst húsbúnaði Hörpu án umfangsmikillar aðlögunar.

Tilgangur MR-G02 sé því hvorki að meta viðskiptalegt orðspor framleiðanda né að gera fjárhagslegan árangur á Pollstar-listum að sjálfstæðu hæfisskilyrði. Pollstar-viðmiðið hafi verið notað sem eitt sannreynanlegt viðmið um alþjóðlega notkun í tónleikaferðaumhverfi (e. touring adoption) og viðurkenningu í tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. rider recognition) og, eins og skýrt hafi verið í svari varnaraðila 13. ágúst 2026, hafi mátt sýna fram á sama atriði með öðrum sambærilegum gögnum. Umfjöllun kæranda um langvarandi samband við staðbundinn þjónustuaðila og reynslu af föstum uppsetningum svari því ekki því sérstaka rekstrarlega markmiði sem MR-G02 sé ætlað að tryggja.

Tilvísanir kæranda til reynslu af föstum uppsetningum sýni því ekki fram á það sjálfstæða atriði sem MR-G02 lúti að, þ.e. raunverulegri notkun og viðurkenningu kerfa framleiðanda í alþjóðlegu tónleikaferðaumhverfi og í tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. technical riders). Krafan tengist með beinum hætti starfsemi Hörpu og þeim aðstæðum sem hið nýja kerfi þurfi að þjóna. Þá sé krafan hvorki bundin við tiltekinn framleiðanda né Pollstar Top 10, enda megi sýna fram á sambærilega alþjóðlega notkun og viðurkenningu í tæknikröfum listamanna og tónleikaframleiðenda (e. rider recognition) með öðrum skjalfestum hætti.

Í samhengi við athugasemdir kæranda við MR-G03 benda varnaraðila á að skilmálinn lúti ekki að hljóðgæðum einum og sér heldur að arkitektúr og rekstri kerfisins í heild. Samkvæmt orðalagi kröfunnar skuli Milan vera aðalhljóðdreifilag kerfisins í heild (e. primary system-wide audio distribution layer) og skuli innleiðingin jafnframt styðja nettengda stjórnun, vöktun og bilanagreiningu allra kerfishluta (e. network-based control, monitoring and diagnostics across all system components). Í svari varnaraðila 13. ágúst 2026 hafi jafnframt verið áréttað að Milan-samhæf uppspretta frá öðrum framleiðanda mætti tengjast kerfinu, en að Milan skyldi vera raunverulegt dreifilag innan hátalarakerfisins.

Ekki sé ágreiningur um að rétt útfærð stafræn umbreyting úr Milan yfir í AES3 eða annað stafrænt snið þurfi ein og sér ekki að hafa áhrif á hljóðgæði. Það atriði svarar á hinn bóginn ekki þeim kerfislegu og rekstrarlegu markmiðum sem MR-G03 sé ætlað að tryggja. Með því að halda Milan sem sameiginlegu dreifilagi eins nálægt endapunktum magnara og raunhæft sé fáist samræmdur rammi fyrir flutning hljóðmerkja, klukkusamstillingu, uppgötvun tækja, stjórnun tenginga, vöktun og tvöföldun netkerfis. Ef merkinu sé umbreytt yfir í AES3 eða annað snið fyrr í merkjaleiðinni ljúki þeirri virkni við umbreytingarbúnaðinn og sá hluti kerfisins sem á eftir kemur þurfi að reiða sig á aðskilda lausn fyrir samsvarandi virkni. Munurinn á lausnunum felist því ekki í því hvort hljóðmerkið rýrni við umbreytingu heldur í heildararkitektúr kerfisins, samræmdri stjórnun og vöktun og rekstraröryggi þess.

Sérstaklega sé mótmælt þeirri fullyrðingu kæranda að útboðsgögnin geri ráð fyrir umbreytingu hljóðmerkis í Dante vegna tengingar við QSC-kerfi sem fyrir sé í húsinu og að í því felist innri mótsögn við MR-G03. Enginn flutningur hljóðmerkis fari fram um þá tengingu. Um sé að ræða stýriviðmót vegna brunaboðs þar sem stýrieining tekur við þurrtengi frá brunaviðvörunarkerfi hússins og sendir netskipun til DSP hljóðkerfisins um að þagga kerfið. Teikningar útboðsgagna sýni eldri AMX NI-700 einingu en samsvarandi virkni sé nú sinnt af QSC Core 110. Tengingin varði því ekki dreifilag hljóðs, kalli ekki á Dante-flutning hljóðmerkis og sé ekki í mótsögn við MR-G03.

MR-G03 vísi hvorki til tiltekins framleiðanda né vörumerkis heldur skilgreini þá kerfisarkitektúr sem boðin lausn skuli byggjast á. Við mat á tæknilegu jafngildi verði því að líta til þeirra eiginleika sem krafan sé ætlað að tryggja í heild, en ekki eingöngu þess hvort hljóðmerki haldi gæðum sínum við umbreytingu milli stafrænna samskiptastaðla. Sú staðreynd að fyrirhuguð lausn kæranda varðveiti hljóðgæði við umbreytingu sýni því ekki ein og sér fram á tæknilegt jafngildi við þá útfærslu sem MR-G03 áskilji. Að mati varnaraðila byggi krafan á málefnalegum tæknilegum og rekstrarlegum sjónarmiðum, tengist beint efni samningsins og sé í samræmi við 15. og 49. gr. laga nr. 120/2016.

Samkvæmt MR-G08 skuli hátalarakerfi, mögnun og kerfisvinnsla vera hönnuð, þróuð og framleidd af einum og sama framleiðanda sem eitt sameinað og samþætt vörukerfi. Rétt sé að árétta að krafan sé ekki krafa um að allir hlutar kerfisins beri sama vörumerki. Vörumerki sé markaðslegt auðkenni, en MR-G08 lúti að því hver beri ábyrgð á hönnun, þróun, framleiðslu og staðfestingu kjarnahluta kerfisins sem einnar tæknilegrar heildar.

Kærandi vísi til þess að JBL, Crown og BSS tilheyri öll Harman-samstæðunni, að þróunarteymi þeirra starfi saman og að lausnin sé studd af einum staðbundnum þjónustuaðila. Varnaraðilar dragi ekki í efa að vörur frá þessum vörumerkjum geti verið samþættanlegar eða að samstarf geti verið milli þróunarteyma. Það sýni á hinn bóginn ekki eitt og sér að þeir tilteknu kjarnahlutar sem boðnir séu hafi verið þróaðir, prófaðir, staðfestir, vaktaðir og studdir af sama framleiðanda sem eitt heildstætt kerfi.

Ágreiningurinn snúist því ekki um það hvort Harman geti boðið faglegt eða öflugt kerfi heldur hvort kaupanda hafi verið heimilt að leggja sérstakt gildi á það að kjarnahlutar hátalarakerfisins séu framleiðandastaðfest ein kerfisheild. Að mati varnaraðila sé það tæknilegur og rekstrarlegur eiginleiki sem tengist efni samningsins með beinum hætti.

Tæknilegt markmið MR-G08 sé að tryggja heildstætt rafhljóðkerfi (e. electroacoustic system) sem hafi verið prófað og staðfest af framleiðanda sem ein heild. Með því sé leitast við að tryggja samræmda merkjavinnslu og vernd hátalara, samræmda uppsetningu og vöktun kerfisins, stýrða samhæfni fastbúnaðar (e. firmware) og forstillinga (e. presets) og skýra ábyrgð framleiðanda á virkni og afköstum kerfisins frá upphafi til enda í gegnum merkjaleiðina. Þótt kerfi úr vörum fleiri framleiðenda geti verið tæknilega samþættanleg leiði sú staðreynd ekki sjálfkrafa til þess að kerfið hafi verið þróað og staðfest sem ein heild með sama hætti.

Sameiginlegt eignarhald sé heldur ekki tæknilegur mælikvarði á þetta atriði. Fyrirtækjasamstæður geti náð yfir fjölmargar sjálfstæðar framleiðslueiningar og vörulínur og eignarhald geti breyst án þess að hönnun, prófun, fastbúnaðarþróun eða kerfisábyrgð tiltekinna vara breytist. Ef sameiginlegt eignarhald eitt og sér eigi að ráða því hvað teljist „sami framleiðandi“ sé jafnframt óljóst á hvaða stigi samstæðu eigi að draga mörkin. MR-G08 byggi því ekki á fyrirtækjaréttarlegu eignarhaldi heldur á því hvort hinir tilteknu kerfishlutar séu í raun hannaðir, þróaðir, framleiddir og staðfestir sem eitt kerfi af sama framleiðanda. Af sömu ástæðu jafngildi einn staðbundinn þjónustuaðili eða ein samningsbundin ábyrgðarleið ekki þeirri framleiðendaábyrgð sem krafan lúti að. Slíkt fyrirkomulag geti tryggt einn tengilið gagnvart kaupanda, en sýni ekki að framleiðandinn sjálfur hafi prófað og tekið ábyrgð á samspili merkjavinnslu, magnara og hátalara sem einnar kerfisheildar.

Varnaraðilar leggi áherslu á að MR-G08 nefni ekki eða vísi til tiltekins framleiðanda. Hún gildi með sama hætti um alla rammasamningshafa og allar lausnir sem þeir kunni að bjóða. Sú staðreynd að fyrirhuguð lausn kæranda byggi á aðskildum vörulínum innan sömu fyrirtækjasamstæðu og falli því ekki að kröfunni sýni ekki að krafan sé sett í þágu eða gegn tilteknum framleiðanda. Krafan um sama framleiðanda helgist af þeim tæknilega eiginleika sem ætlunin sé að tryggja, þ.e. framleiðandastaðfestu heildarkerfi og samræmdri ábyrgð á virkni þess. Að mati varnaraðila sé hún því málefnalega réttlætt af efni samningsins og brjóti hvorki gegn 15. gr. né 1., 3. eða 5. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016.

Varnaraðilar vísa til þess að þeir hafi breytt gæðaviðmiði 2.4.2 með þeim hætti að fyrra orðalag greinarinnar var fellt niður í heild og tekið upp nýtt viðmið sem byggist á mælanlegri hljóðfræðilegri niðurstöðu en ekki tiltekinni tækni, hönnun eða aðferð. Breyting þessi hafi ekki verið gerð vegna þeirrar kæru sem hér er til meðferðar, heldur í kjölfar þeirrar efnislegu athugasemdar sem hafi borist á fyrirspurnarstigi útboðsins frá öðrum þátttakanda en kæranda. Varnaraðilar fallist ekki á að fyrra orðalag gæðaviðmiðsins hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup og í breytingunni fólst engin viðurkenning á slíku. Um hafi verið að ræða eðlilegan þátt í framkvæmd flókins tæknilegs útboðs, þar sem kaupanda beri að taka málefnalegar athugasemdir bjóðenda til skoðunar og geti verið rétt að aðlaga eða skýra útboðsskilmála þegar slíkar athugasemdir gefi tilefni til þess. Slíkur sveigjanleiki stuðli að vandaðri kröfugerð og virkri samkeppni og verði ekki jafnaður til viðurkenningar á því að fyrri útfærsla skilmála hafi verið ólögmæt. Þá rekja varnaraðila nánar efni hins nýja skilmála og taka fram að sá hluti málatilbúnaðar kæranda sem beinist að fyrra orðalagi viðmiðsins eigi ekki lengur við um gildandi útboðsskilmála.

Loks hafna varnaraðilar sjónarmiðum kæranda um að samspil hinna kærðu krafna þrengi samkeppni með þeim hætti að einungis fáir framleiðendur geti staðið jafnfætis að vígi. Varnaraðilar hafna þeirri málsástæðu. Rammasamningurinn geri beinlínis ráð fyrir örútboðum „milli þeirra samningsaðila sem efnt geta samninginn“ og heimili að gerðar séu ríkari kröfur vegna einstakra verkefna, sbr. kafli 1.5.3. Aðild að rammasamningi feli því ekki í sér tryggingu þess að hver rammasamningshafi geti boðið lausn sem uppfylli kröfur sérhvers örútboðs. Eins og rakið hafi verið byggist hver hinna kærðu krafna á sjálfstæðum tæknilegum eða rekstrarlegum þörfum Hörpu. Það að tiltekin vörulína kæranda uppfylli þær ekki leiði ekki eitt og sér til þess að kröfurnar séu ómálefnalegar eða takmarki samkeppni með óeðlilegum hætti. Þá hafi kærandi ekki sýnt fram á að samspil hinna kærðu krafna takmarki mögulega framleiðendur með þeim hætti sem haldið er fram í kæru. Jafnframt sýni samskipti á tilboðstíma að varnaraðila hafi endurskoðað þegar efnisleg rök hafi staðið til þess og hafi nokkrar kröfur verið felldar niður eða mildaðar. Sú framkvæmd styðji ekki þá málsástæðu kæranda að skilmálarnir hafi verið mótaðir eða þeim viðhaldið í því skyni að útiloka fyrirhugaða lausn kæranda.

Í lokaathugasemdum varnaraðila 24. september 2026 árétta varnaraðilar að tilgangur MR-G08 sé ekki að áskilja sameiginlegt vörumerki sem slíkt. Markmiðið sé að Harpa fái framleiðandastaðfest rafhljóðkerfi (e. manufacturer-validated electroacoustic system), þar sem viðkomandi kerfishlutar hafi verið hannaðir frá upphafi og prófaðir til að starfa saman sem ein heildarlausn.

Tæknilega markmiðið felist í samræmdri virkni kerfisins, stýrðri samhæfni og skýrri tæknilegri ábyrgð. Þegar hátalarar, mögnun og kerfisvinnsla séu hluti af sama samþætta kerfisumhverfi hafi framleiðandinn sjálfur hannað og prófað samspil þessara þátta sem eina fyrirfram skilgreinda heild. Harpa sé þá ekki eingöngu að treysta á að einstök tæki geti tengst hvert öðru eða að kerfissamþættir hafi tekist að láta þau starfa saman. Þessi þörf byggist á þeirri rekstrarreynslu sem safnast hafi upp á 15 ára starfstíma Hörpu og mati á þeim kröfum sem geri þurfi til kerfisins til framtíðar. Krafan um MR-G08 sé því sett fram til að mæta skilgreindri tæknilegri og rekstrarlegri þörf Hörpu en ekki í því skyni að hygla tilteknu vörumerki eða framleiðanda.

Við mat á meðalhófi kröfunnar verði jafnframt að hafa í huga hvernig samkeppni innan rammasamningsins sé háttað. Krafan vísi ekki til tiltekins framleiðanda, vörumerkis eða vörulínu heldur skilgreini eiginleika þeirrar heildarlausnar sem Harpa óski eftir. Rammasamningshafar séu ekki bundnir við eina fyrirfram ákveðna vörulínu í öllum örútboðum, heldur geti þeir leitað til birgja sinna og framleiðenda og aflað lausnar sem uppfylli þær kröfur sem gerðar séu í hverju einstöku örútboði.

Aðild að rammasamningi feli þannig ekki í sér að tæknilegar kröfur síðari örútboða þurfi að miðast við það vöruframboð sem hver rammasamningshafi hafi þegar til ráðstöfunar eða þá tilteknu lausn sem hann helst ljósi að bjóða. Sú staðreynd að tiltekinn rammasamningshafi hyggist bjóða kerfi sem byggi á vörum fleiri framleiðenda leiði ekki ein og sér til þess að kaupanda beri að breyta kröfum sínum þannig að sú lausn verði gjaldgeng. Rammasamningshafa sé þess í stað unnt að kanna hjá birgjum sínum og framleiðendum hvort honum standi til boða heildarkerfi sem uppfylli hans kröfur.

Rammasamningur nr. 23145 geri jafnframt ráð fyrir því að í örútboðum megi gera ríkari kröfur til boðinnar vöru og þjónustu en lágmarksskilyrði rammasamningsins sjálfs. Aðild að rammasamningi geti því ekki skapað væntingar um að tæknikröfur sérhvers örútboðs verði miðaðar við lægsta sameiginlega getustig eða núverandi vöruframboð allra rammasamningshafa. Slík nálgun myndi í reynd færa skilgreiningu þarfa kaupanda yfir á vöruframboð rammasamningshafa fremur en þær tæknilegu og rekstrarlegu þarfir sem viðkomandi verkefni kalli á. Það sem skipti máli sé hvort krafan sjálf sé málefnaleg, tengd efni samningsins og í samræmi við þær skorður sem 15. og 49. gr. laga nr. 120/2016 setja.

Varnaraðilar rekja fyrirmæli 15. og 49. gr. laga nr. 120/2016 og taka fram að af reglunum leiði að kaupandi njóti svigrúms til að skilgreina hvaða tæknilegu eiginleikum hin keypta lausn skuli búa yfir, en svigrúmið sé takmarkað af jafnræðis- og meðalhófsreglum, sbr. dóm Evrópudómstólsins í máli C-413/17. Þar hafi dómstóllinn tekið fram að 42. gr. tilskipunar 2014/24/ESB setji ekki stigveldi milli þeirra aðferða sem heimilt sé að nota við mótun tæknilýsinga og útiloki ekki að kaupandi geri kröfur um einstaka rekstrar- og notkunareiginleika hins keypta búnaðar. Jafnframt hafi verið áréttað að kaupandi hafi víðtækt svigrúm við mótun tæknikrafna, enda sé hann best í stakk búinn til að meta eigin þarfir og hvaða kröfur séu nauðsynlegar til að ná þeim árangri sem stefnt er að.

Af dóminum leiðir jafnframt að ekki verði lagt til grundvallar að tæknilegir eiginleikar vöru eða kerfis verði almennt að víkja fyrir kröfum sem eingöngu lýsa virkni eða lokaafköstum. Á hinn bóginn verði ítarleiki tæknikröfu að samræmast meðalhófsreglu og vera nauðsynlegur til að ná þeim markmiðum sem kaupandi hefur skilgreint. Eftir því sem tæknikrafa sé nákvæmari og meira takmarkandi þeim mun ríkari þörf er því á að unnt sé að réttlæta hana með vísan til raunverulegra þarfa hins fyrirhugaða samnings.

Við mat á kröfu MR-G08 skipti því ekki eingöngu máli hvort unnt sé að hugsa sér vægara eða minna takmarkandi skilyrði. Meta verði hvort slíkt skilyrði tryggi í raun þann sama tæknilega og rekstrarlega eiginleika og MR-G08 sé ætlað að tryggja. Vægari krafa sé ekki af þeirri ástæðu einni tæknilega jafngild ef hún tryggi aðeins að vörur geti starfað saman en ekki þá framleiðandastaðfestu samþættingu sem Harpa hafi skilgreint sem eiginleika hins keypta kerfis. Varnaraðilar byggja í þessu sambandi á því að krafa MR-G08 sé ekki sett fram með tilvísun til nafngreinds framleiðanda eða vörumerkis heldur lýsi þeirri uppbyggingu og samþættingu heildarkerfis sem Harpa sækist eftir.

Kerfið sem hér um ræði sé langtímafjárfesting sem tæknifólk Hörpu þurfi að reka, vakta, uppfæra og bilanagreina um langt árabil. Samþætt kerfi veiti eitt sameiginlegt umhverfi fyrir uppsetningu og stillingar, vöktun, bilanagreiningu og bilanaleit. Lausn sem byggi á mörgum vörukerfum geti hins vegar kallað á mismunandi hugbúnað eftir framleiðendum, mismunandi stillingarskrár, ferla vegna fastbúnaðar (e. firmware) og þjónustuleiðir og þannig aukið rekstrarlegt flækjustig og þörf fyrir að sannreyna áframhaldandi samhæfni kerfishluta yfir líftíma kerfisins.

Þá skipti máli að uppfærslur einstakra kerfishluta þurfi að haldast samhæfðar yfir líftíma kerfisins. Þegar lykilhlutar þess tilheyri sama framleiðendavistkerfi sé samhæfni þeirra og þróun undir einni tæknilegri stjórn. Í fjölframleiðendakerfi geti hins vegar komið upp sú staða að einn hluti kerfisins fái hugbúnaðar- eða fastbúnaðaruppfærslu án þess að samsvarandi uppfærsla eða staðfesting liggi fyrir aðra hluta þess. Slíkt geti skapað ófyrirséða tæknilega erfiðleika og kallað á sérstaka sannprófun á áframhaldandi samhæfni kerfishluta. MR-G08 miði því einnig að því að draga úr þeirri rekstrarlegu óvissu sem getur skapast þegar þróun og uppfærslur einstakra lykilhluta kerfisins eru á forræði fleiri sjálfstæðra framleiðenda. Þessi munur hafi því ekki eingöngu þýðingu við uppsetningu og afhendingu kerfisins. Hann geti einnig skipt máli við daglegan rekstur, bilanagreiningu, viðhald, uppfærslur og breytingar yfir líftíma kerfisins. Það sé þessi heildstæða rekstrarlega nálgun sem Harpa leitast við að tryggja með MR-G08.

Kjarni kröfu MR-G08 sé að greina á milli almennrar samhæfni (e. compatibility) og staðfestrar samþættingar (e. validated integration). Vörur frá mismunandi framleiðendum geti vissulega tengst og starfað saman og myndað tæknilega góða lausn. Sú staðreynd ein sýni hins vegar ekki að viðkomandi vörur hafi verið hannaðar, þróaðar, prófaðar og staðfestar sem eitt heildarkerfi. Sama eigi við þótt vörumerki séu undir sama móðurfélagi. Sameiginlegt eignarhald geti auðveldað samþættingu og vörur kunna að vera samhæfar, en það staðfesti ekki eitt og sér að tilteknar vörulínur hafi verið sameiginlega þróaðar, prófaðar, sannreyndar og studdar sem eitt heildarkerfi frá upphafi til enda. Af þeim sökum geti sameiginlegt eignarhald, sameiginleg rannsóknar- og þróunarstarfsemi eða einn staðbundinn þjónustuaðili ekki eitt og sér talist sönnun þess eiginleika sem MR-G08 lúti að.

Sama eigi við þótt boðin lausn nái sambærilegri mælanlegri hljóðframmistöðu. EASE-hermun, sem notuð sé í útboðinu sem framleiðendaóháður grundvöllur til að bera saman hljóðdreifingu og afköst kerfanna, sýni ekki ein og sér alla þá kerfishluta sem liggi að baki niðurstöðunni, svo sem mögnun, vinnslu, stillingar og dreifikerfi. Góð niðurstaða úr slíkri hermun sýni því ekki án frekari gagna að samspil lykilhluta kerfisins hafi verið hannað, prófað og staðfest sem ein tæknileg heild.

Við mat á lögmæti kröfu MR-G08 telja varnaraðilar rétt að hafa hliðsjón af úrskurði kærunefndar útboðsmála í máli nr. 4/2014. Þar hafi verið gerð krafa um að tiltekinn samþættur búnaður kæmi frá sama framleiðanda og byggði kaupandi kröfuna meðal annars á sjónarmiðum um aukið samræmi, einsleitni og einfaldara rekstrarumhverfi. Kærunefnd hafi lagt áherslu á að það væri að meginstefnu í höndum kaupanda að ákveða hvernig þörfum hans yrði best fullnægt og hvaða eiginleikum boðin vara skyldi búa yfir, innan þeirra marka sem reglur um opinber innkaup setja. Þá tók nefndin sérstaklega fram að þótt þeir kostir sem kaupandi sóttist eftir væru ekki að fullu tryggðir með því einu að búnaður kæmi frá sama framleiðanda gæfi það engu að síður „ákveðnar líkur“ á að þeim markmiðum yrði náð.

Varnaraðilar telja framangreind sjónarmið eigi skýra samsvörun við kröfu MR-G08. Tilgangur kröfunnar sé ekki að áskilja tiltekið vörumerki eða byggja á því að búnaður frá einum framleiðanda sé almennt betri en búnaður frá fleiri framleiðendum. Markmiðið sé að Harpa fái heildstætt hljóðkerfi staðfest af framleiðanda, þar sem samspil lykilhluta hafi verið hannað og prófað sem ein heildarlausn. Með því sé leitast við að tryggja samræmda virkni kerfisins, stýrða samhæfni og skýra tæknilega ábyrgð.

Þetta hafi beina þýðingu við mat á þeirri afstöðu sem komi fram í ákvörðun kærunefndar 14. september 2026 um að markmiðum MR-G08 kunni að vera hægt að ná með vægara móti, svo sem með staðfestingu eins eða fleiri framleiðenda á því að vörur þeirra virki saman. Við meðalhófsmatið verði ekki eingöngu litið til þess hvort unnt sé að orða vægara skilyrði, heldur hvort slíkt skilyrði tryggi í raun þann sama eiginleika og kaupandi sækist eftir. Almenn staðfesting á að vörur geti starfað saman sé því ekki án frekara mats jafngild staðfestingu á því að kerfið hafi verið hannað og prófað sem ein tæknileg heild. Ef fjölframleiðendakerfi ætti að teljast jafngilt að þessu leyti þurfi að liggja fyrir fullnægjandi og sannreynanleg sönnun um sambærilega samþættingu, prófun, rekstrarsamhæfni, stuðning og ábyrgð.

Að mati varnaraðila styðji úrskurðurinn í máli nr. 4/2014 því þá nálgun að krafa um sama framleiðanda geti verið málefnalegt viðmið til að tryggja tiltekna kerfislega eiginleika, þótt hún veiti ekki algilda tryggingu fyrir þeim. Það sem skipti máli sé hvort krafan tengist raunverulegum þörfum kaupanda og hvort það vægara úrræði sem bent sé á veiti sambærilega tryggingu fyrir þeim eiginleikum sem kaupandi hafi ákveðið að hið keypta kerfi skuli búa yfir.

Í ákvörðun kærunefndar 14. september 2026 hafi verið vísað til þess að samkvæmt ákvæði 1.3.7 rammasamningsins skyldu rammasamningshafar hafa aðstöðu og getu til að sinna ábyrgðar- og viðgerðarþjónustu og geta boðið sérstaka þjónustusamninga. Þá taldi nefndin að ætla yrði, á því stigi málsins, að bjóðendur í örútboðinu byggju almennt yfir því tæknilega og faglega hæfi sem þyrfti til að takast á hendur ábyrgð á virkni þess heildarkerfis sem þeir bjóða fram. Varnaraðilar telja nauðsynlegt að aðgreina það atriði frá þeim eiginleika sem kröfu MR-G08 sé ætlað að tryggja.

Söluaðili geti haft fullnægjandi þjónustuaðstöðu, réttindi, varahluti og hæft starfsfólk og tekið samningslega ábyrgð á afhendingu og þjónustu kerfis. Það sé hins vegar annars eðlis en að framleiðandi hafi sjálfur hannað, prófað og staðfest samspil hátalara, mögnunar og kerfisvinnslu sem eina heild. Annars vegar sé um að ræða getu samningsaðila til að þjónusta og gera við búnað og standa skil á samningsskyldum sínum. Hins vegar sé um að ræða staðfesta samþættingu framleiðanda og tæknilega ábyrgð á hönnun og hegðun heildarkerfisins. Ákvæði rammasamningsins um þjónustu- og ábyrgðargetu leysi því ekki sjálfkrafa af hólmi þann tæknilega eiginleika sem krafa MR-G08 lúti að. Það að bjóðandi geti tekið samningslega ábyrgð á lausn sýni ekki eitt og sér að kerfishlutar fleiri framleiðenda hafi verið hannaðir og staðfestir sem ein tæknileg heild.

Kærunefnd hafi bent á að markmiðum kröfu MR-G08 kunni að mega ná með vægara móti, svo sem með staðfestingu eða öðrum viðeigandi sönnunargögnum frá einum eða fleiri framleiðendum um að boðnar vörur virki sem ein heild. Varnaraðilar telji að við það mat verði fyrst að afmarka hvað slík staðfesting eigi að sanna. Almenn yfirlýsing um að vörur séu samhæfar sé ekki eitt og sér sönnun um sama eiginleika og kröfu MR-G08 er ætlað að tryggja.

Ef heimila eigi fjölframleiðendakerfi á grundvelli sönnunar á jafngildri samþættingu þurfi að skilgreina nánar hvaða gögn væru fullnægjandi um hönnun og prófun kerfisins, samþættingu, samhæfni hugbúnaðar og fastbúnaðar, vöktun, stuðning og ábyrgð yfir líftíma kerfisins. Þá þurfi kaupandi að meta slík gögn fyrir þá tilteknu samsetningu sem boðin sé. Slík leið sé því ekki einfaldlega sami eiginleiki settur fram með vægara orðalagi, heldur annað og flóknara sönnunar- og matsfyrirkomulag.

Hér hafi úrskurðarframkvæmd kærunefndar á sviði hljóðkerfisinnkaupa jafnframt leiðbeiningargildi. Í máli nr. 11/2024, sem laut að hljóðkerfi fyrir tónleikasalinn Hamraborg í Hofi, hafi ákvörðun um val tilboðs verið felld úr gildi þar sem ekki hafi verið unnt að sannreyna af fyrirliggjandi tæknigögnum að kerfið hafi uppfyllt tiltekna lágmarkskröfu. Það að kerfið hafi kunnað að uppfylla kröfuna hafi ekki verið talið nægilegt. Úrskurðurinn undirstriki mikilvægi þess að kaupandi geti sannreynt tæknilega eiginleika boðinnar heildarlausnar á grundvelli fullnægjandi gagna.

Sama sjónarmið komi fram með öðrum hætti í úrskurði kærunefndar í máli nr. 16/2025 um hljóð-, ljósa- og myndkerfi í Sindrabæ. Þar hafi fyrirfram skilgreind lágmarkskrafa um dreifingu hátalakerfis verið talin bindandi og val tilboðs fellt úr gildi þar sem boðinn búnaður hafi ekki uppfyllt hana. Nefndin hafi jafnframt bent á, með vísan til álits sérfræðings, að til væru hátalarar frá öðrum framleiðendum sem hafi uppfyllt kröfuna og taldi af þeirri ástæðu ekki séð að framfylgd hennar leiddi til ómálefnalegra hindrana á samkeppni. Það sjónarmið eigi sér samsvörun hér að því leyti að MR-G08 afmarki innkaupin ekki við tiltekinn framleiðanda eða vörumerki. Rammasamningshafar geti leitað til birgja sinna og framleiðenda og aflað heildarkerfis sem uppfyllir þær tæknilegu kröfur sem gerðar séu í örútboðinu.

Varnaraðili telja að þær viðbótarskýringar sem nú liggi fyrir sýni með skýrari hætti en áður hvert markmið kröfu MR-G08 sé og hvernig það tengist efni hins fyrirhugaða samnings. Krafan lúti að framleiðandastaðfestu heildarkerfi en ekki sameiginlegu vörumerki. Hún byggi á rekstrarreynslu Hörpu og hafi þýðingu fyrir daglegan rekstur, vöktun, bilanagreiningu, uppfærslur og samhæfni kerfishluta yfir líftíma kerfisins.

Þá sé ekki tækt að leggja að jöfnu annars vegar samningslega þjónustuábyrgð bjóðanda eða almenna staðfestingu á samhæfni einstakra vara og hins vegar þann eiginleika að kerfishlutar hafi verið hannaðir og prófaðir sem ein framleiðandastaðfest heild. Ef fjölframleiðendakerfi eigi að teljast jafngilt þurfi að sýna fram á sambærilega samþættingu, prófun, rekstrarsamhæfni, stuðning og ábyrgð með fullnægjandi og sannreynanlegum gögnum. Jafnframt þurfi að liggja fyrir hvernig uppfærslur einstakra kerfishluta yrðu samræmdar og framkvæmdar með þeim hætti að áframhaldandi samhæfni heildarkerfisins sé tryggð yfir líftíma þess. Þegar þróun og uppfærslur einstakra kerfishluta séu á forræði fleiri sjálfstæðra framleiðenda sé slík langtímasamhæfni hins vegar ekki undir einni tæknilegri stjórn og verði því ekki tryggð eða staðfest með sama hætti langt fram í tímann.

Með vísan til alls framangreinds telja varnaraðilar að MR-G08 fari hvorki gegn 15. gr. né 49. gr. laga nr. 120/2016 og beri því að hafna kröfum kæranda sem að skilmálanum lúta.

Að lokum rekja varnaraðila nánar ástæðu breytingar á grein 2.4.2 og telja að sú breyting eigi ekki að hafa í för með sér að kæranda verði úrskurðaður málskostnaður.

 

- - -

 

Ekki þykir þörf á að gera nánar grein fyrir málatilbúnaði kæranda og varnaraðila, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016. Kærunefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

 

IV

A

Mál þetta lýtur að útboði varnaraðila þar sem óskað var eftir tilboðum í endurnýjun á hljóðkerfum í Hörpunni. Um er að ræða örútboð innan rammasamnings nr. 23145 en rammasamningurinn varðar kaup á sviðsbúnaði.

Samkvæmt fyrri málslið 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup hafa þau fyrirtæki sem njóta réttinda samkvæmt lögunum og hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn máls, heimild til að skjóta málum til nefndarinnar. Í framkvæmd hefur kærunefnd útboðsmála litið svo á að þau fyrirtæki sem gætu haft áhuga á að taka þátt í innkaupaferli hafi heimild til þess að bera kæru undir nefndina. Matið færi þá fyrst og fremst eftir því hvort starfsemi viðkomandi fyrirtækis samrýmdist þeim samningi sem stefnt væri að með innkaupunum, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli 5/2026 og þeir úrskurðir sem þar er vísað til.

Svo sem fyrr greinir gerðu varnaraðilar veigamiklar breytingar á fyrirmælum greinar 2.4.2 í útboðslýsingu örútboðsins eftir móttöku kæru. Að virtu efni þessara breytinga verður lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um lögmæti greinarinnar eins og hún birtist upphaflega í útboðslýsingunni og verður því að hafna þeim kröfum kæranda sem varða umrædda grein. Að öðru leyti verður að telja að kærandi hafi lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins enda verður ekki annað séð en að starfsemi hans samrýmist þeim samningi sem að er stefnt og verður ekki séð að aðilar deili sérstaklega um þetta atriði.

Hið kærða útboð var auglýst 15. júlí 2026. Kærandi gerði athugasemdir við hina umdeildu skilmála með fyrirspurn 6. ágúst 2026 sem varnaraðili svaraði 13. sama mánaðar með ítarlegum hætti þar sem ýmis atriði skilmálanna voru skýrð nánar. Eins og atvikum er háttað í þessu máli verður að líta svo á að það hafi ekki verið fyrr en þau svör varnaraðila voru birt sem kærufrestur byrjaði að líða enda varð kæranda þá endanlega ljós afstaða varnaraðila hvað varðar þau atriði sem kæran byggir á, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar í máli nr. 25/2020. Kæran, sem var móttekin hjá kærunefnd útboðsmála 28. ágúst 2026, var þannig borin undir nefndina innan kærufrests, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Kærandi krefst þess meðal annars að varnaraðila verði gert að endursemja hinna kærðu skilmála og að öllum þeim sem var boðin þátttaka verði veittur nýr og hæfilegur frestur til að skila tilboðum. Þessi krafa fellur utan þeirra úrræða sem kærunefnd útboðsmála hefur samkvæmt 111. gr. laga nr. 120/2016 og verður henni því hafnað.

 

B

Að framangreindu frágengnu lýtur ágreiningur málsins að lögmæti skilmála MR-G02, MR-G03 og MR-G08 en gerð er grein fyrir efni skilmálana í kafla I hér að framan. Í samhengi við skilmála MG-G02 veittu varnaraðila þær skýringar við meðferð útboðsins að reynsla framleiðanda af „Pollstar Top 10 international tours“ væri viðmið og jafnframt yrðu teknar til greina viðurkenningar frá tónleikaframleiðendum alþjóðlegra listamanna og skjalfest gögn um notkun í stórum alþjóðlegum tónleikaferðum.

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 120/2016 eru markmið laganna að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu. Í 1. mgr. 15. gr. laganna eru markmiðin sett fram sem meginreglur sem kveða á um að gæta skuli jafnræðis, meðalhófs og gagnsæis við opinber innkaup. Þá er tekið fram að óheimilt sé að mismuna fyrirtækjum á grundvelli þjóðernis eða takmarka samkeppni með óeðlilegum hætti. Þessar meginreglur eru svo útfærðar nánar í lögunum, meðal annars í 49. gr. laganna sem fjallar um tæknilýsingar.

Í 1. mgr. 49. gr. segir meðal annars að í tæknilýsingu skuli koma fram hvaða eiginleika verk, vara eða þjónusta þurfi að uppfylla. Þessir eiginleikar geta vísað til sérstaks ferlis eða aðferðar við framleiðslu eða afhendingu viðkomandi verka, vara eða þjónustu. Í 3. mgr. 49. gr. segir að tæknilýsingar skuli veita fyrirtækjum jöfn tækifæri og þær megi ekki leiða til ómálefnalegra hindrana á samkeppni við opinber innkaup. Í 5. mgr. 49. gr. segir svo að tæknilýsingar skuli ekki vísa til sérstakrar gerðar, framleiðanda, sérstakrar vinnslu, vörumerkja, einkaleyfa, tegundar, uppruna eða framleiðslu með þeim afleiðingum að fyrirtækjum sé mismunað eða ákveðin fyrirtæki verði útilokuð frá þátttöku í opinberum innkaupum, enda helgist slík tilvísun ekki beinlínis af efni samnings. Í undantekningartilvikum er tilvísun sem þessi heimil þegar lýsing á efni samnings er ekki möguleg skv. 4. mgr., enda fylgi slíkri tilvísun orðalagið „eða jafngildur“ eða sambærilegt orðalag.

Sérfræðingur kærunefndar útboðsmála, Halldór Júlíusson, hljóðverkfræðingur, veitti kærunefnd útboðsmála ráðgjöf við meðferð málsins. Sérfræðingur hefur bent á að skilmáli MR-G02, eins og varnaraðilar hafa skýrt hann, sé eðlilegur með tilliti til andlags innkaupanna en markmið kröfunnar sé að tryggja að framboðin búnaður uppfylli þarfir tækni- og tónlistarfólks.  Hvað varðar skilmála MG-G03 hefur sérfræðingurinn bent á að Milan (e. Media-Intergrated Local Area Network) sé samskiptakerfi sem sendir stafrænt merki milli tækja. Kerfinu sé ætlað að tryggja samfelldar hljóðupplýsingar frá upphafi til enda og þar með stuðla að áreiðanleika hljóðkerfisins.

Með hliðsjón af skýringum sérfræðingsins og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila verður lagt til grundvallar að skilmálar MR-G02, eins og varnaraðilar hafa skýrt hann, og MR-G03 séu málefnalegir, tengist efni fyrirhugaðs samnings og séu að öðru leyti í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016.  Þá verður að leggja til grundvallar að skilmálarnir séu ekki í ósamræmi við ákvæði fyrirliggjandi rammasamnings. Verður því að hafna þeim eftirstandandi kröfum kæranda sem lúta að þessum skilmálum.

 

C

Samkvæmt framangreindu stendur eftir að leysa úr kröfum kæranda í tengslum við skilmála MR-G08 en samkvæmt honum skulu hátalarakerfi, mögnun og kerfisvinnsla vera hönnuð, þróuð og framleidd af einum og sama framleiðanda sem eitt sameinað og samþætt vörukerfi. Til staðfestingar kröfunni áttu þátttakendur að leggja fram skjöl frá framleiðanda.

Varnaraðilar hafa meðal annars útskýrt að tæknilegt markmið skilmálans sé að tryggja heildstætt rafhljóðakerfi sem hafi verið prófað og staðfest af framleiðanda sem ein heild. Með því sé leitast við að tryggja samræmda merkjavinnslu og vernd hátalara, samræmda uppsetningu og vöktun kerfisins, stýrða samhæfni fastbúnaðar og forstillinga og skýra ábyrgð framleiðanda á virkni og afköstum kerfisins frá upphafi til enda í gegnum merkjaleiðina. Þá hafa varnaraðilar bent á að þótt kerfi úr vörum fleiri framleiðanda geti verið tæknilega samþættanleg leiði sú staðreynd ekki sjálfkrafa til þess að kerfið hafi verið þróað og staðfest sem ein heild með sama hætti. Krafan um sama framleiðanda helgist af þeim tæknilega eiginleika sem ætlunin sé að tryggja, þ.e. heildarkerfi staðfestu af framleiðanda og samræmdri ábyrgð á virkni þess.

Að mati kærunefndar útboðsmála verður að telja að krafa skilmálans um að vörurnar séu framleiddar af sama framleiðanda feli í sér tilvísun til framleiðslu í skilningi 5. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016. Í málatilbúnaði kæranda er rakið að hann hafi unnið að undirbúningi tilboðs með búnaði og tæknilausn frá Harma Professional, einkum JBL-hátölurum, BSS-kerfisvinnslu og Crown-mögnurum. Þá hefur kærandi tiltekið að krafan útiloki þessa lausn þótt öll vörumerki tilheyri Harma Professional, þróunarteymi þeirra starfi saman og kærandi taki að sér eina heildstæða ábyrgð og þjónustu. Kærunefnd útboðsmála hefur ekki sérstaka ástæðu til að draga umræddar staðhæfingar kæranda í efa og þykir því mega leggja til grundvallar að skilmálinn hafi í för með sér að fyrirtækjum sé mismunað eða ákveðin fyrirtæki séu útilokuð frá þátttöku í opinberum innkaupum í skilningi 5. mgr. 49. gr.

Sérfræðingur kærunefndarinnar hefur bent á að kröfunni, um að hátalarakerfi, mögnun og kerfisvinnsla feli í sér eitt sameinað og samþætt vörukerfi, sé ætlað að tryggja áreiðanleika og rekstraröryggi kerfisins og að krafan sé í sjálfu sér eðlileg. Varnaraðilum kann samkvæmt því að hafa verið heimilt að setja fram kröfu um eitt sameinað og samþætt vörukerfi.

Krafan gengur á hinn bóginn að vissu marki lengra en þetta að því leytinu til að hún felur í sér að vörurnar séu framleiddar af sama framleiðanda. Þá felur krafan í sér útilokun framleiðenda innan sömu samstæðunnar sem framleiða vörur undir mismunandi vörumerkjum án þess að gefið sé tækifæri til að sýna fram á að slíkar vörur mæti þeim efnislegu kröfum um áreiðanleika og rekstraröryggi sem skilmálanum er ætlað að tryggja. Að þessu leytinu til gengur krafan lengra en rök standa til og samrýmist hún því ekki 5. mgr. 49. gr. laga nr. 120/2016.

Í kröfugerð kæranda er þess krafist að ákvörðun varnaraðila 13. ágúst 2026, um að viðhalda skilmálanum, verði felld úr gildi að því marki sem áskilið sé að hátalara, magnara og kerfisvinnsla séu hönnuð, þróuð og framleidd undir einu og sama vörumerki eða af einum framleiðanda, og lausnir frá tengdum vörumerkjum innan sömu fyrirtækjasamstæðu séu útilokaðar án mats á jafngildi. Þá krefst kærandi þess að lagt verði fyrir varnaraðila að fella niður „framangreinda ólögmæta hluta skilmálanna“. Að virtri þessari kröfugerð verður lagt fyrir varnaraðila að fella niður hluta skilmálans og jafnframt fallist á kröfu kæranda um að ákvörðun varnaraðila 13. ágúst 2026 varðandi skilmálann verði felld úr gildi, sbr. nánar það sem greinir í úrskurðarorði.

Í ljósi málsúrslita verður fallist á kröfu kæranda um að varnaraðilum verði gert að greiða honum málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði og hefur þar verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Þá er hafnað kröfu varnaraðila um að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð eftir 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

 

Úrskurðarorð:

Lagt er fyrir varnaraðila, Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf., að fella niður svohljóðandi texta úr skilmála MR-G08 í örútboði varnaraðila nr. 22212a auðkennt „Audio System for Harpa Concert Hall & Conference Centre“.

 

1.      „[…] by a single manufacturer […]“.

2.      „Systems that require amplification or DSP hardware from a separate product line — including products from affiliated companies within the same corporate group — shall not be considered“.

 

Þá er felld úr gildi ákvörðun varnaraðila, sem birtist í svari þeirra 13. ágúst 2026 við fyrirspurn kæranda, ID Electronic ehf., 6. sama mánaðar, að því marki sem svarið varðaði skilmála MR-G08.

Varnaraðilar greiði kæranda óskipt 1.000.000 krónur í málskostnað. Öðrum kröfum kæranda er hafnað.

Hafnað er kröfu varnaraðila um að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

 

Reykjavík, 2. nóvember 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

 
 

Var efnið hjálplegt?