Mál nr. 48/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 26. október 2026
í máli nr. 48/2026:
Línuborun ehf.
gegn
Rarik ohf. og
Vökvaþjónustu Kópaskers ehf.
Lykilorð
Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Reglugerð nr. 340/2017. Óeðlilega lágt tilboð. Tæknilegt hæfi.
Útdráttur
R hafnaði tilboði L annars vegar á þeim grundvelli að það hefði falið í sér óheimilt frávik frá bindandi tæknilegum kröfum og hins vegar að L hefði ekki sýnt fram á með viðunandi hætti að lágt tilboðsverð hans stæði undir framkvæmd samnings. L kærði m.a. þá ákvörðun R sem hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar en R krafðist þess að henni yrði aflétt. Kærunefnd útboðsmála taldi ekki unnt að fallast á með R að þær ályktanir yrðu dregnar af skýringum L til R að L hygðist nota búnað við framkvæmd verksins sem fæli í sér óheimilt frávik frá tæknilegum kröfum útboðsins eða að kostnaðar- og afkastaforsendur L byggðust á notkun slíks búnaðar. Þá taldi nefndin, m.a. með hliðsjón af áliti sérfræðings, sem kallaður var til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni á grundvelli 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og gögnum málsins ekki nægjanlega fram komið að tilboð L teldist óeðlilega lágt. Taldi nefndin mega miða við, eins og málið lægi fyrir á þessu stigi, að R hefði ekki sýnt fram á með fullnægjandi rökum hvers vegna framlagðar skýringar og gögn kæranda skýrðu ekki með viðunandi hætti hið lága tilboðsverð. Þegar af þeirri ástæðu yrði að leggja til grundvallar að verulegar líkur hefðu verið leiddar að broti gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim við hið kærða útboð og að þetta brot gæti leitt til ógildingar á ákvörðunum eða öðrum athöfnum R. Kröfu R um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar var því hafnað.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 4. september 2026 kærði Línuborun ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Rarik ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. 26012 auðkennt „Strenglögn Jökuldalur 1. áfangi“.
Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila 28. ágúst 2026 um að hafna tilboði hans í fyrrgreindu útboði verði felld úr gildi. Jafnframt að ógild verði ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. í útboðinu.
Kærandi vísar til þess að kæran hafi í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar en ef ekki er þess krafist að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, sbr. 107. og 110. gr. laga nr. 120/2016.
Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, sbr. 111. gr. laga nr. 120/2016.
Loks gerir kærandi kröfu um málskostnað.
Varnaraðila var í upphafi veittur frestur til að skila athugasemdum til kærunefndar útboðsmála til 18. september 2026 en óskaði tvívegis eftir frekari fresti. Í ljósi þess að varnaraðili hefur forræði á innkaupaferlinu var fallist á þær frestbeiðnir.
Í athugasemdum varnaraðila 25. september 2026 krefst hann þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt og að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Nánar tiltekið að hafnað verði kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar varnaraðila 28. ágúst 2026, ógildingu ákvörðunar varnaraðila um val á tilboði Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. og áliti á skaðabótaskyldu varnaraðila. Þá er þess krafist að kröfu kæranda um málskostnað verði hafnað.
Vökvaþjónusta Kópaskers ehf. hefur ekki látið málið til sín taka.
Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir því við varnaraðila 2. október 2026 að hann afhenti nefndinni kostnaðargreiningu hans vegna verksins sem um ræðir í málinu sem og hann gerði 7. sama mánaðar.
Þann 5. október 2026 tilkynnti kærunefnd útboðsmála aðilum málsins að ákveðið hefði verið að kalla Ásmund Ingvarsson, verkfræðing, sem sérfræðing til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni í málinu með vísan til heimildar 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016. Aðilar málsins gerðu ekki athugasemdir við það og var skipunarbréf hans undirritað 8. sama mánaðar.
Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til fyrrgreindrar kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
I
Samkvæmt útboðslýsingu felst verkið í plægingu strengja og uppsetningu búnaðar á svæðinu frá Fossvallalandi og upp í Skjöldólfsstaði II. Um er að ræða almennt útboð eins og því er lýst í 49. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Útboðsgögn voru birt í maí 2026 og opnunartími tilboða samkvæmt þeim 8. júní 2026 kl. 15:00 en fyrir liggur að opnun tilboða fór ekki fram fyrr en 15. sama mánaðar. Samkvæmt opnunarskýrslu þann dag bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð kæranda lægst að fjárhæð 69.850.192 krónur með virðisaukaskatti. Næsta tilboð var 126.382.617 krónur með virðisaukaskatti og var það tilboð Vökvaþjónustu Kópaskers ehf.
Þann 6. ágúst 2026 óskaði varnaraðili eftir skýringum frá kæranda á grundvelli 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Meðal þess sem óskað var eftir var hver væri meginskýring þess að verulegur verðmunur væri á tilboði kæranda og annarra bjóðenda, ítarlegri og sundurliðaðri kostnaðargreiningu á bak við tilboðsfjárhæðina, upplýsingum um nánar tilgreind einingarverð og þeim atriðum sem vikið er að í a. til d. lið 1. mgr. 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017, svo sem hvort kærandi byggi yfir sérstakri hagkvæmni við framkvæmd verksins eða sértækum tæknilegum lausnum.
Kærandi veitti varnaraðila skýringar með bréfi 13. ágúst 2026. Í því vísaði hann m.a. til þess að ógjörningur væri fyrir hann að draga ályktanir um verðmun milli tilboða, aðra en það að heilt yfir væri einingarverð hans lægra en annarra. Einingarverð hans vegna verksins væri ekki ólíkt þeim sem hann hefði áður boðið í fyrri og sambærilegum verkum varnaraðila sem sá síðarnefndi hefði samþykkt. Hann hefði áður boðið töluvert lægra en aðrir og sú fjárhæð staðist við verklok. Kærandi gerði jafnframt grein fyrir hagkvæmni verkaðferða sinna, tæknilegum lausnum og því að hann byggi yfir miklum og góðum tækjakosti sem væri að mestu skuldlaus, staðþekkingu, aðgangi að efnisnámum, húsnæði og öðrum rekstrarforsendum. Þá lagði hann jafnframt fram kostnaðargreiningu og fjallaði um sértækan búnað sem hann byggi yfir umfram aðra í bréfi sínu, en þó þannig að tekið var fram að varnaraðili heimilaði ekki notkun þess búnaðar.
Varnaraðili óskaði í kjölfarið eftir frekari skýringum frá kæranda með bréfi 17. ágúst 2026. Þar var m.a. óskað eftir nánari skýringum á áætluðum afköstum við plægingu og sundurliðun nánar tilgreinds einingarverðs og því að kærandi gerði grein fyrir skiptingu þess milli launakostnaðar, tækjakostnaðar, eldsneytis og annars beins eða óbeins kostnaðar. Svar kæranda barst varnaraðila 21. sama mánaðar. Þar var m.a. nánari sundurliðun veitt, hvaða tækjakost kærandi hygðist nota við verkið sem og upplýsingar um afkastaforsendur m.v. þann tækjakost og verktilhögun sem kærandi gerði ráð fyrir.
Með bréfi 28. ágúst 2026 tilkynnti varnaraðili kæranda þá ákvörðun sína að hafna tilboði hans. Byggði ákvörðunin á tvenns konar grundvelli, annars vegar þeim að tilboðið fæli í sér óheimilt frávik frá bindandi tæknilegum kröfum og hins vegar að kærandi hefði ekki sýnt fram á með viðunandi hætti að hið lága tilboðsverð stæði undir framkvæmd samningsins. Um hið fyrrnefnda sagði að m.a. kæmi fram í greinum 2.5.5 og 5.2 í útboðslýsingu að notkun á sög eða vél með sög væri óheimil og að tilboðum sem gerðu ráð fyrir slíkum búnaði yrði hafnað. Frávikstilboð væru óheimil samkvæmt greinum 1.3 og 3.7. Í skýringum kæranda frá 13. ágúst 2026 hefði kærandi staðfest að tilboðið og afkastaforsendur þess byggðu á notkun tækjabúnaðar sem varnaraðili bannaði. Tilboð kæranda væri því ógilt, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016, enda ekki í samræmi við útboðsgögn. Þá sagði einnig að jafnvel þótt tilboðið teldist gilt hefði varnaraðili metið sem svo að það væri óeðlilega lágt í skilningi 92. gr. reglugerðar nr. 370/2017. Eftir ítrekað skýringarferli teldi varnaraðili að framlögð gögn skýrðu ekki með viðunandi hætti hvernig verðið gæti staðið undir kröfum útboðsins, sbr. 2. mgr. 92. gr. reglugerðarinnar. Mat varnaraðila hefði einkum lotið að afkastaforsendum og flutningskostnaði en einnig tekið fram að varnaraðili hefði tekið aðrar skýringar kæranda til skoðunar. Að mati varnaraðila hefði kærandi ekki sýnt með viðunandi og sannreynanlegum hætti að tilboðsverðið stæði undir öllum þeim kostnaði sem nauðsynlegur væri til að ljúka verkinu í samræmi við útboðsgögn.
Sama dag tilkynnti varnaraðili um val á tilboði Vökvaþjónustu Kópaskers ehf.
II
Kærandi hafnar því að í tilboði hans felist frávik frá kröfum útboðsgagna og telur ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði sínu og velja annað jafnframt ekki í samræmi við fyrirmæli laga nr. 120/2016, einkum 79., 81. og 82. gr., og 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017.
Um hið fyrrnefnda segir í kæru að þótt fjallaði hafi verið um bannaðan búnað í lið 12 í svari kæranda til varnaraðila 13. ágúst 2026 sé ekki unnt að leggja þann skilning í það að hann hefði í hyggju að nota umræddan búnað við verkið. Í svörum hans sé í þrígang að finna umfjöllun um að varnaraðili heimilaði ekki þessa lausn og ekkert í svarbréfinu feli í sér yfirlýsingu þess efnis að kærandi ætlaði sér að nota hinn bannaða búnað. Þvert á móti hafi verið vikið að þeim tæknilegu lausnum sem kærandi hygðist nota við verkið í fyrri liðum í skýringum hans. Loks hafi kærandi sérstaklega vikið að þeim tækjakosti sem hann hygðist nota við verkið í viðbótarskýringum hans til varnaraðila 21. ágúst 2026. Tilgangur kæranda með umfjöllun um hinn bannaða búnað hafi verið til að upplýsa varnaraðila um tilvist sagarinnar og lýsa tæknilegum kostum hennar.
Til viðbótar vísar kærandi til þess að útboðslýsing varnaraðila geri ráð fyrir að varnaraðili meti boðin tæki og geti hafnað tilteknu tæki af málefnalegum ástæðum. Við þær aðstæður gefist tilboðsgjafa tækifæri til að bæta úr útbúnaði tækisins eða bjóða annað tæki í þess stað. Enn fremur komi þar fram að varnaraðili samþykki tækjalista fyrir undirritun samnings. Þessi ákvæði útboðslýsingar undirstriki að ekki verði án frekari skoðunar jafnað saman umfjöllun um búnað í bréfi kæranda og óheimilu fráviki í upphaflegu tilboði.
Þá hafnar kærandi því að tilboð hans hafi verið óeðlilega lágt í skilningi 82. gr. laga nr. 120/2016 og 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Tilboð kæranda standi sannanlega undir kröfum útboðsins. Við úrlausn málsins beri ekki eingöngu að líta til þess að kærandi hafi lagt fram almenna yfirlýsingu þess efnis að hann gæti unnið verkið fyrir tilboðsverðið heldur hafi hann jafnframt veitt varnaraðila viðbótarskýringar 21. ágúst 2026 þar sem kostnaður hans hafi verið sundurliðaður og sýnt fram á áætlaðan heildarkostnað verksins og framlegð. Varnaraðili hafi ekki hafnað þessum útreikningi kæranda með eigin heildstæðri kostnaðaráætlun. Þess í stað hafi vararaðili dregið út tvo einstaka þætti, annars vegar afköst við plægingu og hins vegar flutningstíma/kostnað, og af þeim dregin sú heildarályktun að verðið standi ekki undir verkefninu. Varnaraðili hafi þannig tekið afkastaforsendur kæranda úr samhengi og talið þær óraunhæfar án eiginlegs rökstuðnings þar að lútandi. Gera verði þær kröfur til varnaraðila að hann tilgreini m.a. hvaða raunafköst hann telji eðlileg. Kærandi hafi veitt varnaraðila skýringar að þessu leyti í bréfi sínu 21. ágúst 2026. Þá hafi varnaraðili fullyrt að sundurliðun kæranda, sem hafi komið fram í skýringum hans, gerði ráð fyrir 138 klukkustundum sem flutningskostnaði og varnaraðili talið hann bersýnilega ófullnægjandi til að standa undir öllum þeim flutningum og þeirri þjónustu sem framkvæmd verksins krefjist. Þessi nálgun eigi sér enga stoð í tilboði kæranda og sé alröng. Umræddar 138 klukkustundir eigi einungis við um tiltekinn hluta verksins, þ.e. plægingarliði þess, enda hafi beiðni varnaraðila um skýringar afmarkast við þann verklið. Um misskilning varnaraðila sé því að ræða.
Kærandi vísar jafnframt til þess að varnaraðili viðurkenni í höfnunarbréfi sínu að eigin og að stórum hluta skuldlaus tækjakostur kæranda, reynsla hans, þekking á staðháttum, aðgangur að efnisnámum og hagstæð aðstaða geti lækkað kostnað. Um sé að ræða dæmigerð atriði sem 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017 geri ráð fyrir að geti skýrt lágt verð, þ.e. hagkvæmni framkvæmdaraðferðar og óvenjulega hagstæðar aðstæður bjóðandans. Þrátt fyrir að kærandi hafi veitt varnaraðila allar nauðsynlegar upplýsingar er viðkemur þessum þætti málsins í bréfi sínu 13. ágúst 2026 líti varnaraðili svo á að kærandi hafi ekki sýnt með fullnægjandi og magnbundnum hætti hvernig framangreind atriði leiði til þess kostnaðarsparnaðar sem þurfi til að styðja við tilboðsverðið. Í þessum efnum er jafnframt vísað til þess að regla um óeðlilegt lágt verð feli ekki í sér skyldu kaupanda til að hafna tilboðum heldur óska eftir skýringum. Engar athugasemdir hafi borist frá varnaraðila um skýringar kæranda. Hafi eitthvað verið óljóst við þær hafi varnaraðila borið að hafa orð á því. Það hafi hann aftur á móti ekki gert og mátti kærandi því líta svo á að skýringar hans teldust fullnægjandi.
Með hliðsjón af framangreindu telur kærandi varnaraðila ekki hafa sýnt fram á að tilboð kæranda hafi verið óheimilt frávikstilboð og varnaraðili jafnframt ekki sýnt fram á með sannreynanlegum hætti að kostnaðargreining kæranda standi ekki undir framkvæmd verksins.
III
Varnaraðili byggir á því að ákvörðun hans frá 28. ágúst 2026 um að hafna tilboði kæranda hafi verið lögmæt, reist á málefnalegum sjónarmiðum og í fullu samræmi við útboðsgögn og lög nr. 120/2016. Ákvörðunin hafi byggst á tveimur sjálfstæðum forsendum sem hvor um sig leiði óhjákvæmilega til höfnunar tilboðsins. Annars vegar hafi það falið í sér óheimilt tæknilegt frávik þar sem kærandi hafi byggt á tæknilegri lausn sem hafi verið óheimil samkvæmt bindandi kröfum útboðsgagna, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016. Hins vegar hafi tilboð kæranda verið óeðlilega lágt og kæranda ekki tekist, þrátt fyrir að hafa fengið raunhæft tækifæri til skýringa, að sýna fram á með viðunandi og sannreynanlegum hætti að tilboðsverðið stæði undir framkvæmd verksins, sbr. 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017 og 81. gr. laga nr. 120/2016.
Um hið fyrrnefnda vísar varnaraðili einkum til þess að hann hafni því að mat hans á skýringum kæranda, einkum fyrrgreindum lið 12 í skýringarbréfi hans 13. ágúst 2026, hafi verið byggt á einangraðri eða samhengislausri túlkun á umræddum lið. Við matið hafi verið litið til þess í hvaða samhengi skýringarnar hafi verið veittar, hvaða upplýsinga varnaraðili hafi óskað eftir og hvernig kærandi hafi lýst tæknilegum lausnum sínum og tækjabúnaði í heild. Kærandi hafi sjálfur lagt sérstaka áherslu á hagkvæmni þeirrar tæknilegu lausnar sem varnaraðili hafi bannað þegar hann hafi verið beðinn um að skýra hið lága tilboðsverð. Þá sé einnig til þess að líta að fyrirspurn varnaraðila hafi sérstaklega lotið að því að kærandi gerði grein fyrir þeim kostnaðar- og framkvæmdarforsendum sem skýrðu hið óeðlilega lága tilboðsverð. Í stað þess að takmarka skýringar sínar við þann tækjabúnað og þær framkvæmdaraðferðir sem heimilar séu samkvæmt útboðsgögnum hafi kærandi kosið að fjalla ítarlega um óheimila strenglagningarvél og hagkvæmni hennar. Skýringarnar hafi gefið varnaraðila réttmætt tilefni til að ætla að notkun hinnar óheimilu strenglagningarvélar væri meðal þeirra forsendna sem lægju að baki verðlagningu tilboðsins. Varnaraðili hafnar jafnframt þeirri málsástæðu kæranda að varnaraðili geti metið boðinn tækjabúnað og gefið bjóðanda kost á að bæta úr honum eða leggja til annan búnað.
Um hið síðarnefnda vísar varnaraðili til þess að tilboð kæranda hafi numið 58,3% lægri fjárhæð en meðaltal annarra tilboða og verið 44,7% lægra en næstlægsta tilboðið. Samanburður á stökum verkliðum sýni jafnframt að tilboð kæranda hafi verið lægra en meðaltalið í 24 af 30 verkliðum. Hinn verulegi verðmunur einskorðist því ekki við staka verkþætti heldur nái hann til fjölmargra verkliða sem feli í sér ólíkar framkvæmdaraðferðir og kostnaðarþætti. Kærandi hafi í skýringum sínum borið fyrir sig hagstæðar rekstraraðstæður, eigin tækjabúnað, reynslu og tæknilegar lausnir en að mati varnaraðila hafi ekki verið sýnt fram á hvernig þessar aðstæður geti leitt til svo verulegs kostnaðarsparnaðar þvert á ólíka verkþætti. Varnaraðili hafi metið svör kæranda og þá kostnaðar- og framkvæmdarforsendur sem hann lagði fram og hvort þær skýrðu hið lága verð með viðunandi hætti miðað við umfang og eðli verksins. Að því mati loknu hafi hann ekki talið kæranda hafa sýnt fram á með viðunandi hætti að hið lága tilboðsverð stæði undir framkvæmd verksins. Kaupandi hafi víðtækt svigrúm til mats til að leggja hlutlægt og atviksbundið mat á framlagðar skýringar.
Í þessum efnum hafnar varnaraðili því að mat hans á afkastaforsendum kæranda hafi byggst á misskilningi og vísar m.a. til þess að við mat á kostnaðaráætlun verði að leggja til grundvallar raunhæf meðalafköst yfir heilan vinnudag m.v. þær krefjandi aðstæður sem lýst sé í útboðsgögnum. Við mat á skýringum kæranda á hinu lága tilboðsverði hafi varnaraðili jafnframt framkvæmt ítarlegan samanburð á tilboðsverði og einingarverðum kæranda og annarra bjóðenda. Líkt og áður sé rakið sýni samanburðurinn að hinn verulegi verðmunur einskorðist ekki við einn eða tvo afmarkaða verkþætti heldur nái hann til fjölmargra verkliða sem feli í sér ólíkar framkvæmdaraðferðir, notkun mismunandi tækjabúnaðar og ólíka kostnaðarþætti. Sérstaka athygli veki verðlagning kæranda á verklið 100, „Plæging á einni lögn“. Kærandi hafi jafnframt ekki sýnt fram á að hann búi yfir sérstökum tæknilegum lausnum eða hagstæðari framkvæmdaraðstæðum sem skýri með viðunandi hætti verulegan verðmun nánar tilgreindra verkþátta. Þvert á móti liggi fyrir að tækjabúnaður hans sé sambærilegur búnaði annarra bjóðenda.
Þá verði m.a. að líta til þess varðandi flutningskostnað að bjóðendur þurfi að gera ráð fyrir sömu grunnforsendum varðandi flutningsvegalengdir strengkefla, bæði frá afhendingarstað á verkstað og við flutning og skil á afgöngum og tómum keflum. Allir bjóðendur þurfi að taka mið af sömu landfræðilegu aðstæðum á lagnaleiðinni. Að þessu leyti séu framkvæmdarforsendur bjóðenda því sambærilegar og kærandi ekki sýnt fram á að hann búi yfir sérstökum hagstæðum aðstæðum við flutning strengkefla sem skýri þann verulega mun sem sé á verðlagningu hans og annarra bjóðenda. Kærandi hafi ekki gert fullnægjandi grein fyrir því hvernig áætluðum flutningum og tilfærslum verði háttað, hvernig verkefnum verði skipt milli flutningstækja sem hann hyggst nota og hvernig áætlaður heildarvélartími og kostnaður vegna þeirra samræmist umfangi flutninga og staðháttum á lagnaleiðinni.
Þótt bjóðanda sé almennt heimilt að ákveða tilboðsverð sitt með hliðsjón af eigin rekstrarlegum forsendum og jafnvel taka að sér verkefni sem skila honum takmörkuðum hagnaði eða tapi, verði kaupanda ekki gert að horfa fram hjá þeirri áhættu sem geti fylgt óeðlilega lágu tilboði þegar ekki hafi verið sýnt fram á að það byggist á raunhæfum kostnaðar- og framkvæmdarforsendum. Tilboð sem byggist á óraunhæfum kostnaðarforsendum geti haft í för með sér aukna áhættu á ágreiningi um samningsbundnar skyldur, kröfum um viðbótargreiðslur, töfum og öðrum erfiðleikum við framkvæmd verksins. Varnaraðili telur einnig sérstaka ástæðu til að líta til þess að kærandi hafi ítrekað gert kröfur um viðbótargreiðslur vegna fyrri verka sinna fyrir varnaraðila, m.a. vegna verka sem hann vísi sérstaklega til að séu dæmi um getu hans til að framkvæma verk á hagstæðu verði svo sem við eigi um verkið Mjóanes. Þetta hafi þýðingu við mat á fullyrðingum kæranda um að fyrri verk hans sýni fram á getu hans til að framkvæma hið kærða verk á verulega lægra verði en aðrir bjóðendur.
Að öllu virtu hafi það verið niðurstaða heildarmats varnaraðila á skýringum kæranda að hann hafi ekki sýnt fram á með viðunandi hætti að hið lága tilboðsverð standi undir framkvæmd verksins í samræmi við kröfur útboðsgagna. Varnaraðila hafi því verið fyllilega heimilt að hafna tilboði kæranda á grundvelli 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017.
IV
Óumdeilt er að hið kærða útboð fór fram á grundvelli reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu en með henni var innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/25/EB frá 26. febrúar 2014. Kæra málsins barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 1. mgr. 95. gr. reglugerðarinnar og hafði því í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, sbr. 1. mgr. 9. gr. laganna.
Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. getur kærunefnd, hvort heldur er að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Ágreiningur aðila í þessum þætti málsins lýtur einkum að því hvort varnaraðila hafi verið heimilt að hafna tilboði kæranda, annars vegar á þeim grundvelli að það fæli í sér óheimilt frávik frá bindandi tæknilegum kröfum og hins vegar að kærandi hefði ekki sýnt fram á með viðunandi hætti að hið lága tilboðsverð stæði undir framkvæmd samningsins.
Um hið fyrrnefnda vísar varnaraðili einkum til skýringarbréfs kæranda til varnaraðila 13. ágúst 2026, einkum liðar 12, þar sem fjallað sé um búnað sem bannaður sé samkvæmt útboðslýsingu, og kveðst hafa metið þær, m.a. með hliðsjón af því í hvaða samhengi kærandi hafi veitt umræddar skýringar og hvaða upplýsinga varnaraðili hafi óskað eftir. Kærandi byggir aftur á móti á því að ekki sé unnt að leggja þann skilning í skýringar hans að hann hefði í hyggju að nota umræddan búnað við verkið.
Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér fyrrgreindar skýringar og önnur gögn sem liggja fyrir hjá nefndinni og telur ekki unnt að fallast á með varnaraðila að þær ályktanir verði dregnar af skýringunum að kærandi hygðist nota hinn umdeilda búnað þannig að tilboð hans hafi falið í sér óheimilt frávik frá tæknilegum kröfum útboðsins. Er í þeim efnum m.a. litið til þess að sérstaklega er tekið fram í skýringum kæranda að honum sé ljóst að varnaraðili heimili ekki notkun búnaðarins. Þá telur nefndin ekki heldur unnt að ganga út frá, líkt og varnaraðili virðist að einhverju leyti gera, að kostnaðar- og afkastaforsendur kæranda byggist á notkun búnaðarins þvert á fullyrðingar kæranda um hið gagnstæða og skýringar hans til varnaraðila á tilboði hans.
Um síðari forsendu varnaraðila fyrir höfnun tilboðs kæranda er til þess að líta að í 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017 er fjallað um óeðlilega lág tilboð. Í 1. mgr. ákvæðisins segir að ef tilboð virðist óeðlilega lágt miðað við verk, vöru eða þjónustu skuli kaupandi óska eftir því að bjóðandi skýri verð eða kostnað sem fram komi í tilboði. Skýringar geti einkum varðað þau atriði sem upp séu talin í a. til f. lið 1. mgr., svo sem hagkvæmni framleiðsluferlis, þjónustu eða byggingaraðferðir, sbr. a. lið, eða tæknilegar lausnir, sem hafa verið valdar, og hvers konar óvenjulega hagstæðar aðstæður bjóðanda við framkvæmd verks, afhendingu vöru eða veitingu þjónustu, sbr. b. lið. Kaupandi skuli meta upplýsingarnar sem lagðar séu fram með viðræðum við bjóðanda. Aðeins megi hafna tilboði á þessum grunni ef sönnunargögnin sem lögð séu fram skýri ekki með viðunandi hætti hið lága verð eða kostnað sem lagður sé til, að teknu tilliti til þeirra atriða sem um geti í 1. mgr., sbr. 2. mgr. 92. gr. reglugerðarinnar. Í 3. mgr. 92. gr. er svo mælt fyrir um að kaupandi skuli hafna tilboði komist hann að þeirri niðurstöðu að tilboð sé óeðlilega lágt vegna þess að það sé ekki í samræmi við skyldur samkvæmt d-lið 1. mgr. 92. gr., en í þeim lið er vísað til þess að skýringar bjóðenda varði samræmi við gildandi ákvæði kjarasamninga og löggjafar um umhverfisvernd, félagsleg réttindi og um vinnuvernd og vinnuskilyrði á staðnum þar sem framkvæmd verks, afhending vöru eða veiting þjónustu fer fram. Samkvæmt 5. mgr. 92. gr. reglugerðarinnar er kaupanda skylt að rökstyðja ákvörðun um að hafna tilboði á þeim grundvelli að það sé óeðlilega lágt.
Hliðstætt ákvæði er að finna í 81. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og hefur það verið skýrt svo í framkvæmd af hálfu kærunefndar útboðsmála að af því verði ráðið að skyldubundið mat sé lagt í hendur kaupanda að kalla eftir skýringum og viðræðum við þann bjóðanda sem bjóði í verk, vöru eða þjónustu sem virðist við fyrstu sýn vera óeðlilega lágt, sbr. m.a. úrskurð kærunefndar útboðsmála 8. mars 2022 í máli nr. 44/2021, og að niðurstaða þessa mats ráðist af atvikum og aðstæðum hverju sinni. Engin föst viðmið gildi um hvenær tilboð telst óeðlilega lágt í skilningi ákvæðisins.
Svo sem rakið er hér að framan óskaði varnaraðili eftir skýringum frá kæranda í samræmi við 92. gr. reglugerðar nr. 340/2017 sem og hann veitti, fyrst með bréfi 13. ágúst 2026 og síðan 21. sama mánaðar í kjölfar frekari bréfaskipta við varnaraðila. Í skýringarbréfum kæranda útskýrði hann m.a. að einingarverð hans vegna verksins væri ekki ólíkt þeim sem hann hefði áður boðið í fyrri og sambærilegum verkum og gerði jafnframt grein fyrir hagkvæmni verkaðferða sinna, tæknilegum lausnum og því að hann byggi yfir miklum og góðum tækjakosti sem væri að mestu skuldlaus. Þá byggi hann yfir staðþekkingu, aðgangi að efnisnámum og húsnæði og gerði grein fyrir öðrum rekstrarforsendum. Loks fylgdi kostnaðargreining svörum hans.
Sérfræðingur kærunefndar útboðsmála hefur yfirfarið gögn málsins og kynnt sér tæknilega hlið tilboðs kæranda. Hans álit er að þær skýringar sem kærandi hefur veitt á tilboðsverði sínu, einkum sérþekking hans á staðháttum, sú takmarkaða ávöxtunarkrafa sem hann gerir, lýsingar á tækjabúnaði hans og að hann sé að mestu skuldlaus sem og svipuð einingarverð hans í fyrri verkum, séu til þess fallnar að styðja við málatilbúnað hans í þá veru að tilboðið, sem við fyrstu sýn kunni að teljast óeðlilega lágt, sé það ekki. Þá bendi ekkert til þess að tilboðið sé ófullnægjandi eða í ósamræmi við útboðsgögn og þykja skýringarnar trúverðugar þótt tilboðið sé töluvert lægra en næstlægsta tilboðið. Að teknu tilliti til þessa og að virtum gögnum málsins sem og þeim meginreglum útboðsréttar að fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið skuli valið hverju sinni og því markmiði opinberra innkaupa að stuðla að hagkvæmni með virkri samkeppni, sbr. til hliðsjónar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 340/2017, þykir kærunefnd útboðsmála ekki nægjanlega fram komið í þeim gögnum sem nú liggja fyrir að tilboð kæranda teljist óeðlilega lágt.
Með hliðsjón af framangreindu þykir að mati nefndarinnar mega miða við, eins og málið liggur fyrir á þessu stigi, að varnaraðili hafi ekki hafa sýnt fram á með fullnægjandi rökum hvers vegna framlagðar skýringar og gögn kæranda skýri ekki með viðunandi hætti hið lága tilboðsverð. Þegar af þessari ástæðu verður að leggja til grundvallar að verulegar líkur hafi verið leiddar að broti gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim við hið kærða útboð og að þetta brot geti leitt til ógildingar á ákvörðunum eða öðrum athöfnum varnaraðila. Verður kröfu varnaraðila um afléttingu þeirrar sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar sem komst á með kæru í málinu því hafnað, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Ákvörðunarorð
Hafnað er kröfu varnaraðila, Rarik ohf., um að aflétt verði banni við samningsgerð milli varnaraðila og Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. í útboði nr. 26012 auðkennt „Strenglögn Jökuldalur 1. áfangi“.
Reykjavík, 26. október 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir