Mál nr. 57/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 16. nóvember 2026
í máli nr. 57/2025:
YES-EU ehf.
gegn
Strætó bs.
Lykilorð
Reglugerð nr. 340/2017. Samkeppnisútboð. Fjárhagslegt hæfi. Sönnun. Ákvörðun um að hafna tilboði felld úr gildi. Málskostnaður.
Útdráttur
S hafnaði tilboði Y í samkeppnisútboði um lausnir varðandi rafhleðslustöðvar fyrir rafmagnsvagna. Fyrir lá að Y sendi S erindi eftir að tilboð hefðu verið opnuð og kvað að fyrir mistök hefði skuldleysisvottorð ekki fylgt með tilboði félagsins. Lagði Y því fram skuldleysisvottorð sem dagsett var sex dögum eftir opnun tilboða. S svaraði erindi Y og benti á að samkvæmt útboðsgögnum skyldu skuldleysisvottorð dagsett innan 90 daga fyrir opnun tilboða, og var Y veittur frestur til þess að bæta úr þessum annmarka. Y upplýsti S í kjölfarið um að Skatturinn gæfi ekki út skuldleysisvottorð aftur í tímann og lagði Y því fram hreyfingayfirlit frá Skattinum sem sýndu skuldleysi Y þann 31. ágúst 2025. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var hafnað þeirri málástæðu S að hreyfingayfirlit gætu ekki talist vottorð um þau atriði sem fram kæmu í 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340//2017. Af hreyfingayfirlitunum yrði ráðið að Y hefði verið í skilum með þau opinberu gjöld og skatta sem yfirlitin næðu til, og þau væru því fullnægjandi eins lagt og þau næðu. S hélt því einnig fram að hreyfingaryfirlitin næðu ekki til allra skatta, svo sem virðisaukaskatts. Kærunefnd útboðsmála vísaði í þessu sambandi til þess að S hefði ekki byggt ákvörðun sína, um að hafna tilboði Y, á þessari málsástæðu. Y hefði verið í góðri trú um að hreyfingayfirlitin hafi verið fullnægjandi og hefði S því verið rétt, með vísan til 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017, að veita Y stuttan frest til þess að bæta úr þessum annmarka. Með vísan til þessa og annars sem rakið var í úrskurðinum var fallist á kröfu Y um að felld yrði úr gildi ákvörðun S um að hafna tilboði félagsins. Þá var S gert að greiða Y málskostnað.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 2. desember 2025 kærði YES-EU ehf. (hér eftir „kærandi“) samkeppnisútboð Strætó bs. (hér eftir „varnaraðili“) nr. 16152 auðkennt „Charging-as-a-Service (CaaS) solution for electric bus fleet“. Kærð er ákvörðun varnaraðila 14. nóvember 2025 um að hafna tilboði kæranda.
Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila 14. nóvember 2025 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Til vara krefst hann þess að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda.
Í báðum tilvikum krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað við að hafa kæruna uppi.
Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 16. desember 2025 að öllum kröfum kæranda verði hafnað.
Lokaathugasemdir kæranda bárust nefndinni 26. janúar 2026.
I
Með hinu kærða samkeppnisútboði var óskað eftir tilboðum í lausn varðandi rafhleðslustöðvar fyrir rafmagnsvagna og fór útboðið fram á grundvelli reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu, sbr. grein 0.1 í útboðsgögnum.
Í grein 0.4.2 í útboðsgögnum var fjallað um fjárhagslegt hæfi. Þar var m.a. mælt fyrir um að hafnað yrði tilboðum frá bjóðendum sem væru í vanskilum með opinbera skatta eða gjöld. Í grein 0.5 var fjallað um gögn sem fylgja ættu tilboðum. Í b-lið greinarinnar var mælt fyrir um tiltekin gögn sem skyldu fylgja með tilboði bjóðenda til staðfestingar á skilyrðum greinar 0.4.2. Á meðal þess sem óskað var eftir var staðfesting frá viðkomandi yfirvaldi (e. confirmation from the relevant authority) um að bjóðandi væri ekki í vanskilum með opinbera skatta eða gjöld. Staðfestingin skyldi dagsett innan 90 daga fyrir opnun tilboða.
Tilboð voru opnuð 4. september 2025 og bárust sex tilboð, þ. á m. frá kæranda en fyrirtækin Raflagnaþjónusta Selfoss ehf. og YES-EU Oy stóðu að tilboðinu með kæranda en þó þannig að tilboðið var formlega í nafni kæranda. Fimm tilboðanna voru metin ógild og eitt óaðgengilegt.
Þann 29. september 2025 hafði kærandi samband við varnaraðila og kvaðst hafa gleymt að skila skuldleysisvottorði. Var skuldleysisvottorð frá Skattinum, sem dagsett var 10. september 2026, látið fylgja með.
Með tölvubréfi 7. október 2025 benti varnaraðili kæranda á að skuldleysisvottorðið væri dagsett eftir opnun tilboða og því væri ekki hægt að taka skjalið gilt. Jafnframt var óskað eftir því að kærandi legði fram skuldleysisvottorð sem dagsett væri innan 90 daga fyrir opnun tilboða. Þess var óskað að vottorðinu yrði skilað eigi síðar en klukkan 12 þann 9. október 2025.
Samkvæmt lýsingu kæranda og gögnum málsins hafði fulltrúi hans í kjölfarið samband við Skattinn með tölvubréfi 8. október 2025 og fékk þær upplýsingar að ekki væri unnt að fá skuldleysisvottorð aftur í tímann. Á hinn bóginn væri hægt að fá hreyfingaryfirlit miðað við 31. ágúst 2025 sem sýndi stöðuna 0. Þetta hreyfingaryfirlit hafi kærandi sent varnaraðila með tölvubréfi 8. október 2025 auk þess sem hann hafi upplýst varnaraðila um að hann hafi fengið það staðfest frá Skattinum að stofnunin gæfi ekki út skuldleysisvottorð aftur í tímann.
Með tölvubréfi 14. nóvember 2025 tilkynnti varnaraðili að hann hefði ákveðið að hafna tilboði kæranda. Í bréfinu var vísað til greinar 0.5. Skjal, sem skilað hefði verið vegna staðfestingar á skilum opinberra gjalda, væri dagsett eftir opnun tilboða og teldist tilboð kæranda því ógilt enda uppfyllti hann ekki kröfur um fjárhagslegt hæfi við skil tilboðs.
II
Kærandi vísar til þess að höfnun varnaraðila á tilboði hans hafi byggst á þeirri einu ástæðu að gögn sem hann lagði fram varðandi skil á opinberum gjöldum hefðu verið dagsett eftir opnun tilboða. Kærandi telur ákvörðun varnaraðila ólögmæta enda hafi kærandi sýnt fram á með framlögðum gögnum að hann hafi verið í skilum með opinber gjöld fyrir opnunardag tilboða.
Varnaraðili hafi með grein 0.4.2 í útboðsgögnum nýtt sér heimild 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 sem sé samhljóða 4. mgr. 68. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Af b-lið 2. mgr. 88. gr. reglugerðarinnar, sem sé samhljóða b-lið 2. mgr. 74. gr. laga nr. 120/2016, leiði að vottorð sem gefið sé út af þar til bæru stjórnvaldi í viðkomandi ríki sé fullnægjandi til sönnunar um að 4. mgr. 79. gr. eigi ekki við um fyrirtæki. Kærunefnd útboðsmála hafi lagt til grundvallar í úrskurði sínum í máli nr. 31/2024 að ekki sé krafa samkvæmt b-lið 2. mgr. 74. gr. laga nr. 120/2016 að fyrirtæki leggi fram skuldleysisvottorð heldur sé nægjanlegt að leggja fram vottorð, útgefið af þar til bæru stjórnvaldi í viðkomandi ríki, sem sýni að opinber gjöld séu á opnunardegi tilboða fallin í gjalddaga en eindagi þeirra ekki kominn. Kærandi hafi, við meðferð útboðsins, lagt fram hreyfingaryfirlit frá Skattinum sem sýndu að félagið hafi verið í skilum með öll opinber gjöld 31. ágúst 2025 eða fjórum dögum fyrir opnun tilboða. Umrædd hreyfingaryfirlit teljist vera vottorð þar til bærs stjórnvalds í skilningi b-liðar 2. mgr. 88. gr. reglugerðar nr. 340/2017, sbr. einnig orðalagið „confirmation document“ í skilningi greinar 0.5 í útboðsgögnum. Skilyrðið hafi augljóslega verið sett til að tryggja að umrædd gögn sýndu stöðu bjóðanda fyrir opnunardag tilboða. Þau gögn sem kærandi afhenti varnaraðila séu dagsett 8. október 2025 en skýrlega komi fram í öllum gögnum að útprentun miðist við gildisdaginn 31. ágúst 2025. Þannig sýni þau að kærandi hafi verði í fullum skilum með öll opinber gjöld fyrir opnunardag tilboða í samræmi við tilgang skilyrðisins.
Kærandi telur varnaraðila óheimilt að útiloka hann á þeim eina grundvelli að skjölin hafi verið dagsett eftir opnun tilboða en sú dagsetning sé væntanlega sjálfvirk skráning á því hvenær gögn hafi verið sótt í gagnagrunn Skattsins af hálfu starfsmanns þess. Að mati kæranda byggist ákvörðun varnaraðila á algjöru smáatriði í afar umfangsmiklu og flóknu útboði. Þessi annmarki á gögnum, ef annmarka megi kalla, sé þess eðlis að ólögmætt sé að útiloka kæranda á grundvelli hans. Í þessu samhengi vísar kærandi til meginreglu opinberra innkaupa um að gæta skuli meðalhófs við opinber innkaup, sbr. 1. mgr. 40. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Þá er einnig vísað til þess að af samskiptum við Skattinn virðist mega ráða að umrædd gögn séu einu gögnin sem unnt sé að afla eftir opnun tilboða til að sýna fram á skuldleysi fyrir opnunardag.
Til viðbótar framangreindu liggi fyrir að kærandi hafi sýnt fram á að hann hafi verið í fullum skilum með opinber gjöld innan þess tímabils sem tilgreint sé í útboðsgögnum. Skorti þannig það grunnskilyrði fyrir útilokun eftir 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 að kærandi hafi brotið gegn skyldum um greiðslu opinberra gjalda, lífeyrissjóðsiðgjalda eða annarra lögákveðinna gjalda en kaupandi beri sönnunarbyrði fyrir því, sbr. athugasemdir um 68. gr. með frumvarpi því er varð að lögum nr. 120/2016. Auk framangreinds vísar kærandi til þess að afhending framangreindra gagna hafi rúmast innan 4. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Umrædd gögn sýni stöðu kæranda fyrir opnunardag tilboða í útboðinu. Þau feli þannig hvorki í sér breytingar á tilboði né stöðu kæranda eftir opnunardag tilboða. Ekki verði séð með hvaða hætti framlagning gagnanna hafi getað raskað jafnræði bjóðenda í útboðinu.
Í lokaathugasemdum kæranda til kærunefndar útboðsmála 26. janúar 2026 kemur fram að í tilefni af athugasemdum varnaraðila 16. desember 2025 í málinu um að fyrirliggjandi gögn staðfestu ekki að kærandi hefði verið skuldlaus við ríkissjóð, m.a. vegna þess að hreyfingaryfirlit vegna virðisaukaskatts hafi vantað, hafi kærandi haft samband við Skattinn og fengið afrit af hreyfingaryfirliti vegna virðisaukaskatts miðað við gildisdaginn 31. ágúst 2025. Var það yfirlit í kjölfarið lagt fram í málinu. Starfsmaður Skattsins hafi jafnframt staðfest að kærandi hefði verið í skilum með öll opinber gjöld og skatta miðað við 31. ágúst 2025. Ljóst sé að kærandi hafi verið skuldlaus fyrir opnun tilboða í útboðinu og hann þannig uppfyllt skilyrði útboðsgagna um að vera ekki í vanskilum með opinbera skatta og gjöld.
Kærandi vísar jafnframt til þess að framlagning gagna af hans hálfu hafi hvorki falið í sér breytingar á tilboði né stöðu kæranda eftir opnunardag tilboða. Ekki verði því séð með hvaða hætti framlagning gagnanna hafi getað raskað jafnræði bjóðenda í útboðinu í andstöðu við 4. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Þá ítrekar kærandi að hann hafi sýnt fram á að hann hafi ekki verið í vanskilum með opinber gjöld og skatta og að varnaraðili beri sönnunarbyrði fyrir öðru, sbr. orðalag 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 og úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 16/2025. Þannig skorti grunnskilyrði fyrir útilokun samkvæmt 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 og rétt að fella ákvörðun varnaraðila úr gildi í samræmi við aðalkröfu kæranda.
Kærandi hafnar jafnframt því sem fram kemur í athugasemdum varnaraðila um varakröfu hans varðandi það að hann hafi ekki átt raunhæfa möguleika til að vera valinn í útboðinu á þeim grundvelli að tilboð hans hafi ekki uppfyllt tæknilegar kröfur þess. Í þessum efnum vísar kærandi til þess að þau atriði sem varnaraðili tefli fram um tilboð kæranda hefðu ekki leitt til ógildingar á upphaflegu tilboði kæranda samkvæmt fyrirmælum útboðsgagna. Útboðsgögn bendi til þess að um samkeppnisútboð hafi verið að ræða sem sé þó ekki eitt af þeim innkaupaferlum sem mælt sé fyrir um í reglugerð nr. 340/2017. Það innkaupaferli sem svipi mest til uppsetningar útboðsgagna varnaraðila séu samkeppnisviðræður samkvæmt 51. gr. reglugerðarinnar. Samkeppnisútboð og samkeppnisviðræður séu almennt nýttar þegar um flókin innkaup sé að ræða og eitt meginmarkmið þeirra að opna á viðræður milli kaupanda og bjóðenda til að aðlaga tilboð að þörfum kaupanda, þ.m.t. varðandi tæknilegar lausnir. Í útboðsgögnum hafi verið mælt fyrir um þrepaskiptingu innkaupanna í grein 0.1.4 og gert ráð fyrir því í 2. þrepi að rætt yrði við þá bjóðendur sem ekki hefðu verið útilokaðir í 1. þrepi. Markmið viðræðnanna hafi verið að aðlaga tilboð bjóðenda að þörfum varnaraðila. Þá hafi jafnframt komið fram að í þessu þrepi væri bjóðendum heimilt að leggja fram ný og uppfærð tilboð og hafi framlagning endurskoðaðs tilboðs verið skilyrði í 3. þrepi. Kærandi telur útboðsgögn jafnframt skýr um að upphaflegum tilboðum yrði ekki hafnað með vísan til tæknilýsingar útboðsgagna. Að öðrum kosti sé vandséð hvaða ástæða hafi legið að baki því að hafa útboðið í formi samkeppnisútboðs/samkeppnisviðræðna.
Af framangreindum ástæðum telur kærandi að hann hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn af varnaraðila í útboðinu þrátt fyrir þá annmarka sem varnaraðili telji hafa verið á tæknilegum þáttum tilboðsins, sem kærandi sé ósammála. Í þeim efnum bendir kærandi m.a. á að sumar þær kröfur sem varnaraðili vísi til hafi ekki verið fortakslausar en aðrar hafi bjóðendur haft heimildir til að koma á framfæri nákvæmari upplýsingum um síðar í innkaupaferlinu samkvæmt fyrirmælum útboðsgagna.
III
Varnaraðili vísar til þess að óumdeilt sé að kærandi skilaði ekki staðfestingu á skuldleysi frá Skattinum fyrir opnun tilboða. Hinn 29. september 2025 hafi hann aftur á móti skilað skuldleysisvottorði sem hafi verið dagsett 10. september 2026 eða sex dögum eftir opnun tilboða. Eftir að hafa verið veitt færi á að bæta úr og skila skuldleysisvottorði sem dagsett væri innan 90 daga fyrir opnun tilboða hafi kærandi skilað inn þeim hreyfingaryfirlitum sem liggi fyrir í málinu.
Varnaraðili hafnar því að hreyfingaryfirlitin geti talist staðfesting eða yfirlýsing í lagalegum skilningi enda ekki um að ræða nokkurs konar staðfestingu þar til bærs stjórnvalds. Þá séu hreyfingaryfirlitin ekki dagsett innan 90 daga fyrir opnun tilboða eins og áskilið hafi verið í útboðsgögnum, jafnvel þó þar komi fram að útprentun á þeim miðist við gildisdaginn 31. ágúst 2025. Þess utan sé hvergi tekið fram í hreyfingaryfirlitunum að kærandi hafi ekki verið í vanskilum með opinbera skatta eða gjöld auk þess sem varnaraðili hafnar því að unnt sé að leiða slíkt af efni þeirra. Loks vísar varnaraðili til þess að hreyfingaryfirlitin varði mismunandi tegundir skatta og gjalda, þ.e. þing- og sveitasjóðsgjöld, bifreiðagjöld, kílómetragjald, tryggingagjald, staðgreiðslu og greiðslufrest á tolli. Ekkert hafi hins vegar verið lagt fram um t.d. stöðu á greiðslu virðisaukaskatts. Hreyfingaryfirlitin staðfesti því ekki að kærandi hafi með öllu verið skuldlaus við ríkissjóð.
Þá vísar varnaraðili til þess að tölvupóstssamskipti kæranda við starfsmann Skattsins sem kærandi hafi lagt fram í máli þessu hafi ekki verið afhent varnaraðila og þau því ekki legið fyrir við mat á tilboði hans. Þar fyrir utan er því hafnað að samskiptin staðfesti skuldleysi kæranda fyrir opnun tilboða enda geri hreyfingaryfirlitin sem þar sé vísað til það ekki heldur. Varnaraðili byggir jafnframt á því að það sé meginregla útboðsréttar að bjóðendur beri ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðs, sbr. einnig a-lið 1. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Það hafi því alfarið verið á ábyrgð kæranda að skila fullnægjandi gögnum með tilboði sínu. Kærandi beri hallann af því að hafa ekki skilað staðfestingu á skuldleysi frá Skattinum sem dagsett sé innan 90 daga fyrir opnun tilboða.
Í samræmi við heimild 4. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017 hafi varnaraðili gefið kæranda færi á að bæta úr þeim annmarka að skuldleysisvottorð dagsett fyrir opnun tilboða hafi vantað. Kærandi hafi ekki geta orðið við þeirri beiðni enda virðist sem slíks skjals hafi ekki verið aflað fyrir opnun tilboða. Varnaraðila hafi aftur á móti ekki verið heimilt að víkja frá skýlausri kröfu útboðsgagna um að fyrir lægi staðfesting á skuldleysi frá Skattinum dagsett innan 90 daga fyrir opnun tilboða. Í því samhengi verði að hafa í huga að skuldastöðu fyrirtækja við ríkissjóð sé unnt að breyta eftir opnun tilboða. Kaupendur verði því almennt að sýna varfærni í því að taka við gögnum um skuldastöðu við ríkissjóð sem lögð séu fram eftir opnun tilboða. Í öllu falli verði slík gögn að hafa legið fyrir áður en tilboðsfrestur rennur út en það eigi ekki við um þau gögn sem kærandi lagði fram eftir opnun tilboða.
Þá vísar varnaraðili til þess að hann telji sig hvorki hafa haft ástæðu né heimild til að kalla eftir frekari gögnum eða skýringum frá kæranda enda hafi á þeim tímapunkti legið fyrir að kærandi myndi ekki leggja fram gögn í samræmi við kröfur útboðsgagna. Varnaraðili geti því ekki talist hafa gerst brotlegur við meginregluna um meðalhóf. Varnaraðili hafi þvert á móti teygt sig í þeirri viðleitni að gefa kæranda færi á að bæta úr þeim annmörkum sem væru á tilboði hans en einnig hafi hann verið bundinn af meginreglunni um jafnræði bjóðenda. Honum hafi þannig borið að fylgja skýlausri kröfu útboðsgagna um að fyrir lægi staðfesting á skuldleysi við ríkissjóð dagsett fyrir opnun tilboða jafnt gagnvart öllum bjóðendum.
Varnaraðili telur jafnframt að aðstæður í málinu séu ekki sambærilegar þeim sem voru uppi í máli nr. 31/2024 fyrir kærunefnd útboðsmála heldur fremur máli nr. 16/2025. Í báðum tilvikum hafi verið lögð fram skuldleysisvottorð frá Skattinum sem dagsett hafi verið eftir opnun tilboða án þess að byggt hafi verið á því að um skuld og vanskil hafi í raun verið að ræða. Þrátt fyrir að hreyfingaryfirlit hafi ekki verið lögð fram í máli nr. 16/2025 bendir varnaraðili á að kærunefndin virðist leggja sönnunarbyrðina á þann bjóðanda sem hafi verið valinn í innkaupaferlinu að sýna fram á að ekki hafi verið um vanskil að ræða á opnunardegi tilboða. Þar sem ekki lægju fyrir upplýsingar um það hefði verið uppi vafi um hvort varnaraðila hefði verið rétt að velja tilboð félagsins og því talið að verulegar líkur hefðu verið leiddar að broti gegn lögum nr. 120/2016. Með vísan til framangreinds sé ljóst að kærandi hafi ekki lagt fram neitt skjal eða vottorð í málinu sem uppfylli kröfur útboðsgagna og sem staðfesti með óyggjandi hætti að kærandi hafi verið skuldlaus við ríkissjóð við opnun tilboða. Varnaraðila hafi því verið óheimilt að taka tilboði kæranda sem gildu. Samkvæmt því beri að hafna aðalkröfu kæranda.
Taki kærunefndin varakröfu kæranda um álit á skaðabótaskyldu varnaraðila til skoðunar er vísað til þess að kærandi hafi á engan hátt sýnt fram á að hann hafi átt raunhæfan möguleika á að verða valinn af varnaraðila í útboðinu. Ekki hafi farið fram endanlegt mat á öllum þáttum tilboðs kæranda áður en tilboðum var hafnað enda ljóst á þeim tíma að tilboðinu yrði hafnað sem ógildu á þeim grundvelli að staðfesting á skuldleysi við ríkissjóð hefði ekki legið fyrir við opnun tilboða. Frummat á tilboðinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna hafi á hinn bóginn bent til þess að ekki væru allar tæknilegar kröfur útboðsins uppfylltar og óvíst um aðrar. Vísar varnaraðili m.a. til f-liðar greinar 0.5 í útboðsgögnum sem og greinar 2.2.2. um tæknilegar kröfur til hinna boðnu hleðslustöðva. Þá hafi ekki legið fyrir að kærandi uppfyllti kröfur greinar 2.3 í útboðsgögnum.
IV
Óumdeilt er að hið kærða útboð fór fram á grundvelli reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu en með henni var innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/25/EB frá 26. febrúar 2014.
Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila 14. nóvember 2025 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Svo sem rakið er hér að framan kom fram í tölvubréfi varnaraðila 14. nóvember 2025 til kæranda að samkvæmt grein 0.5 bæri bjóðendum að skila staðfestingu frá viðkomandi yfirvaldi um að bjóðandi væri ekki í vanskilum með opinbera skatta eða gjöld og að sú staðfesting skyldi dagsett innan 90 daga fyrir opnun tilboða. Skjal, sem skilað hefði verið vegna staðfestingar á skilum opinberra gjalda, væri dagsett eftir opnun tilboða og teldist tilboð kæranda því ógilt enda uppfyllti hann ekki kröfur um fjárhagslegt hæfi við skil tilboðs. Má af útboðsgögnum ráða að þar hafi verið átt við grein 0.4.2 þar sem mælt er fyrir um að tilboðum frá bjóðendum sem séu í vanskilum með opinbera skatta eða gjöld verði hafnað. Að mati kærunefndar útboðsmála er ljóst að með grein 0.4.2 var varnaraðili að nýta sér heimild 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017, sbr. til hliðsjónar 4. mgr. 68. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Í 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 segir að heimilt sé að útiloka þátttakanda eða bjóðanda frá þátttöku í innkaupaferli þegar kaupandi getur sýnt fram á með viðeigandi hætti að þátttakandi eða bjóðandi hafi brotið gegn skyldum um greiðslu opinberra gjalda, lífeyrissjóðsiðgjalda eða annarra lögákveðinna gjalda. Hafi þátttakandi eða bjóðandi uppfyllt skyldur sínar með því að greiða upp vanskil fyrir opnunardag tilboða á opinberum gjöldum eða gert samning um greiðslu þeirra, þ.m.t. vexti eða sektir, skal hann ekki útilokaður samkvæmt þessari málsgrein. Í 1. málslið 1. mgr. 88. gr. reglugerðarinnar kemur m.a. fram að kaupandi geti krafist þess að lögð séu fram vottorð, yfirlýsingar og önnur gögn til sönnunar á því að ekki séu fyrir hendi ástæður til útilokunar samkvæmt 79. gr. Krefjist kaupandi sönnunar um þau atriði sem greinir í 4. mgr. 79. gr. skuli vottorð, gefið út af þar til bæru stjórnvaldi í viðkomandi ríki, teljast fullnægjandi sönnun, sbr. b-lið 2. mgr. 88. gr. reglugerðarinnar. Í b-lið 2. mgr. 74. gr. laga nr. 120/2016 er að finna samsvarandi ákvæði og hefur í framkvæmd kærunefndar útboðsmála verið lagt til grundvallar að ákvæðið feli ekki í sér að bjóðandi eða þátttakandi þurfi að leggja fram skuldleysisvottorð frá Skattinum, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar í máli nr. 31/2024.
Fyrir liggur að varnaraðili mat skuldleysisvottorð það sem kærandi lagði fram, dags. 10. september 2025 sem ófullnægjandi til að leggja mat á tilvist þeirrar útilokunarástæðu sem lýst er í 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Þá óskaði varnaraðili eftir því að kærandi bætti úr. Þetta leitaðist kærandi við að gera með afhendingu á hreyfingaryfirlitum yfir nánar tiltekin opinber gjöld sem dagsett voru 8. október 2025 en báru með sér að útprentun miðaðist við gildisdaginn 31. ágúst 2025. Þeim hreyfingaryfirlitum fylgdi sú skýring frá kæranda að Skatturinn gæfi ekki út skuldleysisvottorð aftur í tímann.
Í rökstuðningi varnaraðila fyrir höfnun á tilboði kæranda 14. nóvember 2025 er einungis að finna afstöðu til skuldleysisvottorðsins dagsett 10. september 2025. Virðist málatilbúnaður varnaraðila jafnframt ganga út á það að honum hafi einungis verið heimilt að taka við skuldleysisvottorði frá Skattinum til sönnunar á því að grein 0.4.2 í útboðsgögnum hafi verið uppfyllt og útilokunarástæða 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 ekki fyrir hendi.
Kærunefnd útboðsmála telur ekki unnt að fallast á málatilbúnað varnaraðila að þessu leyti enda leiðir hvorki af greinum 0.4.2 og 0.5 í útboðsgögnum né b-lið 2. mgr. 88. gr. reglugerðar nr. 340/2017 að skuldleysisvottorð Skattsins verði eitt tekið gilt sem sönnun um þau atriði sem fram koma í 4. mgr. 79. gr. reglugerðarinnar, en hreyfingaryfirlit Skattsins geta talist „vottorð“ í þessum skilningi, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndar í máli nr. 31/2024 Varnaraðila var því rétt að taka mið af þeim yfirlitum eins langt og þau náðu. Af framlögðum hreyfingaryfirlitum kæranda má ráða að kærandi hafi verið í skilum með þau opinberu gjöld og skatta sem þau fjalla um og miðast þau við stöðuna 31. ágúst 2025 eða innan 90 daga fyrir opnun tilboða. Þá eru ekki bornar brigður á að þau stafi frá Skattinum. Þau eru því fullnægjandi eins langt og þau ná.
Varnaraðili heldur því fram í athugasemdum sínum að hreyfingayfirlit kæranda hafi varðað mismunandi tegundir skatta og gjalda, þ.e. þing- og sveitasjóðsgjöld, bifreiðagjöld, kílómetragjald, tryggingagjald, staðgreiðslu og greiðslufrest á tolli, en þau hafi ekki náð til allra skatta, svo sem virðisaukaskatts. Þau geti því ekki staðfest að kærandi hafi með öllu verið skuldlaus við ríkissjóð. Af þessu tilefni skal tekið fram að ákvörðun varnaraðila um útilokun kæranda byggði ekki á þessum grundvelli heldur var þessu fyrst hreyft í greinargerð varnaraðila til nefndarinnar. Þá háttar svo til að samkvæmt fyrrnefndu ákvæði 4. mgr. 79. gr. reglugerðar nr. 340/2017 hvílir sönnunarbyrðin á kaupanda í opinberum innkaupum um að útilokunarástæður ákvæðisins eigi við. Af gögnum málsins má ætla að kærandi hafi verið í góðri trú um að hreyfingayfirlitin, sem hann aflaði frá Skattinum, hafi verið fullnægjandi. Varnaraðila var því rétt, sbr. 4. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017, að veita kæranda stuttan frest til að bæta úr með öflun frekari hreyfingaryfirlita. Er þá bæði horft til þess að hér reynir á sérstaka útilokunarástæðu auk þess sem hreyfingaryfirlit Skattsins sýna tilvist hlutlægra staðreynda.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði felld úr gildi. Kemur þá í hlut varnaraðila að veita kæranda stuttan frest til að leggja fram nánari upplýsingar um stöðu opinberra gjalda og leggja svo mat á þær upplýsingar. Á þeim grundvelli getur varnaraðili svo tekið ákvarðanir um framhald útboðsins.
Í ljósi málsúrslita verður varnaraðila gert að greiða kæranda málskostnað, svo sem greinir í úrskurðarorði og er þar tekið tillit til virðisaukaskatts.
Úrskurðarorð
Felld er úr gildi ákvörðun varnaraðila, Strætó bs., um að hafna tilboði kæranda, YES-EU, í útboði nr. 16152 auðkennt „Charging-as-a-Service (Caas) solution for electric bus fleet“.
Varnaraðili greiði kæranda 750.000 krónur í málskostnað.
Reykjavík, 16. nóvember 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir