Mál nr. 61/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 26. október 2026
í máli nr. 61/2025:
HealthCo ehf.
gegn
Landspítala og
Icepharma hf.
Lykilorð
Bindandi samningur. Kærufrestur. Rökstuðningur. Matsnefnd. Einkunnagjöf. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.
Útdráttur
H kærði ákvörðun L um að velja tilboð I í rammasamningsútboði um kaup á tölvusneiðmyndatæki. Í útboðsgögnum kom m.a. fram að val tilboðs myndi grundvallast á þremur þáttum sem hefðu mismikið vægi. Í fyrsta lagi verð, í öðru lagi klínískar og tæknilegar kröfur, og í þriðja lagi klínískt mat og gæðamat. Þá kom fram að matsnefnd á vegum L myndi leggja mat á boðnar vörur samkvæmt fyrirmælum útboðsgagna. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var tekið fram að kominn væri á bindandi samningur milli L og I sem ekki yrði felldur úr gildi, og því kæmi aðeins til skoðunar krafa H um álit á skaðabótaskyldu L. Kærunefndin vísaði til þess að sjónarmið H um framkvæmd klíníska matsins og gæðamatsins hefðu borist utan kærufrests og kæmu því ekki til frekari skoðunar. Þá vísaði kærunefndin til þess að af matsblöðum matsnefndarinnar yrði ekki annað ráðið en að rökstuðningur hennar hafi endurspeglast með réttum hætti í einkunnagjöf hennar, og mat hennar hefði ekki verið áfátt eða ófullnægjandi. Þá taldi kærunefndin að L hefði verið heimilt með vísan til 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup að óska eftir því við I að senda aftur tilteknar myndir, sem hefðu fylgt tilboði félagsins, þar sem fyrir lægi að tæknileg vandræði hjá L hefðu komið í veg fyrir að hægt væri að hlaða þeim niður í tölvukerfi L. Þá var ekki fallist sjónarmið H um að í tilkynningu L um val á tilboði hefði skort á rökstuðning. Með vísan til þessa og annars sem rakið var í úrskurðinum var öllum kröfum H hafnað.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 8. desember 2025 kærði HealthCo ehf. (hér eftir „kærandi“) þá ákvörðun Landspítalans (hér eftir „varnaraðili“) um að velja tilboð Icepharma hf. í útboði nr. 35010 auðkenndu „CT scanners for Landspítali University Hospital“.
Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði og að felld verði úr gildi ákvörðun um að velja tilboð Icepharma hf. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Kærandi krefst þess einnig að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað auk þess sem kærandi krefst endurgreiðslu kærugjalds.
Varnaraðila og Icepharma hf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 17. desember 2025 að öllum kröfum kæranda verði hafnað og að kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar verði hafnað. Að auki krefst varnaraðili þess að kæranda verði gert að greiða varnaraðila hæfilegan málskostnað.
Icepharma hf. krefst þess í greinargerð sinni 16. desember 2025 að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt hið fyrsta og að öllum kröfum kæranda verði vísað annað hvort vísað frá eða hafnað.
Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir frekari gögnum frá varnaraðila, þ. á m. tilboðum kæranda og Icepharma hf. með tölvupósti 18. desember 2025. Varnaraðili lagði fram umbeðin gögn degi síðar.
Með ákvörðun 20. febrúar 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu varnaraðila um að aflétta þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar sem hafði komist á með kæru málsins.
Varnaraðili upplýsti kærunefnd útboðsmála 26. febrúar 2026 um að hann hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir vegna kærunnar, og hið sama gerði Icepharma hf. 4. mars 2026.
Með beiðni hinn 26. febrúar 2026 óskaði kærandi eftir aðgangi að tilteknum gögnum málsins, þ. á m. matsblöðum faghóps vegna tækja kæranda. Kærunefnd útboðsmála veitti varnaraðila og Icepharma hf. færi að tjá sig um þá beiðni kæranda, og bárust athugasemdir frá varnaraðila 6. mars 2026 og frá Icepharma hf. 11. mars 2026. Með ákvörðun 20. apríl 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á að veita kæranda aðgang að tilteknum gögnum.
Kærandi lagði fram frekari athugasemdir 7. maí 2026.
Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir upplýsingum 2. júlí 2026 frá varnaraðila um hvort kominn væri á bindandi samningur milli varnaraðila og Icepharma hf. Varnaraðili svaraði degi síðar og staðfesti að kominn væri á bindandi samningur þar sem varnaraðili hefði samþykkt tilboðið, en það ætti enn eftir að skrifa undir samninginn.
Kærunefnd útboðsmála veitti varnaraðila og Icepharma hf. færi á að koma fram sjónarmiðum sínum vegna athugasemda kæranda frá 7. maí 2026. Athugasemdir bárust frá báðum aðilum 7. ágúst 2026. Kærandi lagði í kjölfarið fram endanlegar athugasemdir sínar 17. ágúst 2026.
I
Hinn 22. maí 2025 auglýsti varnaraðili hið kærða útboð. Samkvæmt grein 1.1 í í útboðsgögnum óskaði varnaraðili eftir því að kaupa tölvusneiðmyndatæki (e. Computed Tomography Scanner). Samkvæmt kafla 4 í útboðsgögnum var um að ræða þriggja ára rammasamningsútboð, sem heimilt væri að framlengja um eitt ár, til að útvega tvenns konar tölvusneiðmyndatæki (Type 1 og Type 2). Í kaflanum komu fram ítarlegar klínískar og tæknilegar kröfur til beggja gerða tækjanna.
Frestur til þess að leggja fram tilboð var til 26. júní 2025 samkvæmt grein 1.2, en á útboðstíma var fresturinn framlengdur til 3. júlí 2025. Valforsendur komu fram í grein 2.2 og í grein 2.2.2 komu fram þau viðmið sem myndu gilda um val á hagstæðasta tilboði. Í síðastnefndu greininni kom fram að val á tilboði myndi grundvallast á þremur þáttum sem hefðu mismikið vægi. Fyrsti þátturinn væri verð, sem myndi gilda 30% af lokaeinkunn. Annar þátturinn væri klínískar og tæknilegar kröfur (e. Clinical and Technical Requirements), sem myndi gilda 20% af lokaeinkunn. Þriðji þátturinn væri klínískt mat og gæðamat (e. Clinical/Quality Evaluation), sem myndi gilda 50% af lokaeinkunn.
Í töflu í grein 2.2.2 komu fram frekari skýringar á framangreindum þáttum. Að því er varðar verð var tekið fram að sá bjóðandi sem byði lægsta verð fengi hæstu einkunn fyrir fyrsta þáttinn. Í öðrum þætti myndi matsnefnd leggja mat á klínískar og tæknilegar kröfur, og myndi sá bjóðandi sem fengi hæstu einkunn frá matsnefndinni fá 20% fyrir þennan þátt. Kröfum til klínískra og tæknilegra eiginleika var lýst með ítarlegum hætti í 4. kafla og undirgreinum hans í útboðsgögnum. Kom þar meðal annars fram að bjóðendur skyldu skila öllum gögnum með tilboði til kaupanda á minnislykli (USB) í grein 4.5.4. Þriðja þættinum yrði skipt upp í tvo hluta, A-hluta sem fæli í sér mat á gæðum mynda (e. image quality) og myndi gilda 20% af einkunn fyrir þennan þátt, og B-hluta sem fæli í sér prófun á búnaðinum (e. functionality and workflow performed outside Landspitali) og myndi gilda 30% af einkunn fyrir þennan þátt.
Í viðhengi 3 (e. Attachment 3) með útboðsgögnum voru matsblöð fyrir sérfræðinga sem skipaðir voru í matsnefnd vegna þriðja þáttar valforsenda. Þar kom fram að matið í A-hluta, sem varðaði gæði mynda, skiptist í þrjá liði. Í fyrsta lagi upplausn, geislunarskammtur og myndgæði (e. Resolution, radiation dose and image quality), en sá liður myndi gilda 6% af einkunn í þessum hluta. Í öðru lagi blóðflæði í hjarta og heila (e. Cardiac and Brain Perfusion Performance), sem myndi gilda 6% af einkunn í þessum hluta. Loks í þriðja lagi litrófsmyndir (e. Spectral images), sem myndi gilda 8% í þessum hluta. Að því er varðar B-hluta, um prófun á búnaðinum, þá myndi sá hluti einnig skiptast í þrjá liði. Í fyrsta lagi vinnuflæði við undirbúning og skönnun (e. Preparation and scanning workflow), sem myndi gilda 10% af einkunn í þessum hluta. Í öðru lagi sjálfvirkni / eftirvinnsla í tæki (e. Automation / post-processing at concole), sem myndi gilda 5% af einkunn í þessum hluta. Loks í þriðja lagi vinnustöð (e. Workstation) sem myndi gilda 15% af einkunn í þessum hluta. Samkvæmt matsblöðunum skyldu sérfræðingar gefa einkunn 1 (undir væntingum (e. Below expected)), 3 (gott (e. Good)), og 5 (mjög gott (e. very good)). Að auki skyldu sérfræðingar gefa nánari rökstuðning fyrir sinni einkunn. Undir hverjum matslið komu fram lýsingar á þeim atriðum sem mat yrði lagt á.
Tilboð voru opnuð 3. júlí 2025 og bárust fjögur tilboð. Kærandi átti lægsta tilboðið sem nam 442.831.000 krónum. Icepharma hf. átti næst lægsta tilboðið sem nam 499.955.368 krónum.
Tilkynning varnaraðila um val tilboðs er ódagsett, en hún mun samkvæmt því sem kemur fram í kæru málsins hafa verið send bjóðendum 1. desember 2025. Í henni kemur fram að varnaraðili hafi ákveðið að velja tilboð Icepharma hf., en það hafi verið metið hagstæðast fyrir varnaraðila samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Var upplýst um að tilboðið hefði fengið 26,6 stig af 30 mögulegum fyrir verð, og 56,4 stig af 70 mögulegum fyrir gæði, eða samtals 83 stig.
Hinn 1. desember 2025 sendi kærandi beiðni til varnaraðila um rökstuðning fyrir höfnun á tilboði hans. Rökstuðningur varnaraðila er ódagsettur, en hann mun hafa verið sendur kæranda 3. desember 2025. Þann sama dag óskaði kærandi eftir því að fá afhentar niðurstöður hvers matsþáttar í mati á klínískum og tæknilegum valforsendum (þáttur 2) og klínísku mati (þáttur 3), og þar með talið stigagjöf hvers liðar fyrir kæranda og Icepharma hf. Viðbótar rökstuðningur varnaraðila er ódagsettur, en mun samkvæmt greinargerð varnaraðila hafa verið sendur til kæranda 8. desember 2025.
II
Kærandi bendir á að hann hafi átt lægsta tilboðið í hinu kærða útboði, en tilboð Icepharma hf. hafi verið næstlægst. Í tilkynningu frá varnaraðila um val tilboðs hafi ekki fylgt neinar upplýsingar um einkunnir kæranda og hafi kærandi því óskað eftir rökstuðningi. Í rökstuðningi varnaraðila hafi komið fram að tilboð kæranda hafi hlotið alls 49 stig af 50 mögulegum fyrir verð og klínískar og tæknilegar kröfur, en Icepharma hf. hafi hlotið 46,1 stig. Í matskennda hlutanum hafi kærandi hlotið 27,6 stig af 50 mögulegum, en Icepharma hf. hafi hlotið 36,9 stig. Varnaraðili hafi ekki fært fram frekari rökstuðning vegna þessarar einkunnar kæranda og enga sundurgreiningu sé að finna á 50% matshluta á klínísku mati og gæðamati þrátt fyrir að slíkt mat hafi átt að fara fram.
Kærandi bendir á að samkvæmt c. lið 4. mgr. 85. gr. laga nr. 120/2016 og meginreglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi varnaraðila borið að veita kæranda rökstuðning þar sem meðal annars væri upplýst um eiginleika og kosti þess tilboðs sem kaupandi hafi valið. Í stjórnsýslurétti hafi verið lagt til grundvallar að í rökstuðningi skuli ávallt koma fram tilvísun til réttarheimilda sem ákvörðun sé byggð á, meginsjónarmið sem hafi verið ráðandi við mat, að því marki sem ákvörðun hafi byggst á mati, og loks þau málsatvik sem hafi haft verulega þýðingu við úrlausn málsins. Af fyrirliggjandi rökstuðningi varnaraðila sé kæranda einungis unnt að átta sig á útreikningi einkunnar í verðþætti sem hafi byggst á verðtilboðum. Ekki sé mögulegt að átta sig á því hvaða þátt hafi vantað upp á hjá aðilum varðandi tæknikröfur þótt svo báðir aðilar uppfylli þann þátt að mestu. Þá sé útilokað að átta sig á einkunn fyrir gæði og klínískt mat þrátt fyrir að í útboðsgögnum hafi átt að fara fram ítarlegt og sundurliðað mat á þessum þáttum auk umsagna einstakra sérfræðinga. Eðlilegt hefði verið að greina frá því hvaða atriði hafi verið ráðandi við þetta mat og hvað hafi komið fram við skoðun sem hafi lækkað einkunn kæranda svo verulega.
Kærandi telur að mat varnaraðila á boðnum tækjum hans í samanburði við boðin tæki Icepharma hf. geti ekki staðist. Vegna skorts á rökstuðningi hafi kærandi ekki nákvæmar upplýsingar um það hvaða þættir klínísks mats og gæðamats hafi ráðið úrslitum um val á tilboði. Samkvæmt heildareinkunnagjöf hafi kærandi fengið 27,6 stig af 50 mögulegum fyrir matið en Icepharma hf. hafi fengið 36,9 stig. Kærandi telji að slíkur munur geti ekki staðist við hlutlægan samanburður á gæðum tækjanna og geti kærandi vísað til fjölda aðila sem hafi keypt umrædd tæki kæranda vegna gæða og vegna þess að gæði þeirra væri betri en boðin tæki Icepharma hf. Telji kærandi að ekki sé slíkur gæðamunur á tækjum kæranda og Icepharma hf. að slíkt hafi getað leitt til þess að tilboð Icepharma hf. sé metið fjárhagslega hagkvæmara en tilboð kæranda samkvæmt valforsendum útboðsins.
Kærandi óski eftir því að kærunefnd útboðsmála krefjist þess að varnaraðili leggi fram nákvæma sundurliðun einkunnagjafar í samræmi við viðhengi 3, þ.m.t. stigagjöf hvers liðar kæranda og Icepharma hf. og einkunnagjafir hvers og eins matsaðila auk umsagna. Áskilji kærandi sér jafnframt rétt til að gera nánari grein fyrir og setja fram frekari röksemdir um mat á gæðum þegar slíkar upplýsingar liggi fyrir. Þar sem upplýsingar um gæðamat liggi ekki fyrir sé vandasamt, á þessu stigi, að gera nákvæma grein fyrir því að hvaða leyti mat varnaraðila sé rangt.
Þá bendir kærandi á að samkvæmt útboðsgögnum og fyrirliggjandi upplýsingum hafi mat á lið 3, þ.e. klínískt mat og gæðamat, farið fram eftir opnun verðtilboða. Kærandi telji að slíkt matsferli sé afar óheppilegt enda kunni upplýsingar um verðtilboð, og þar með fyrirliggjandi stigagjöf á grundvelli verðs, að hafa áhrif á einkunnagjöf við matsferlið. Nánar tiltekið hafi matsaðilarnir upplýsingar um fyrirliggjandi stigagjöf og hversu mörg stig þurfi til að breyta niðurstöðu útboðsins.
Kærandi bendir að auki á að hluti matsins varði mat á myndum sem lagðar hafi verið fram á USB minnislykli áður en formlegum verðtilboðum hafi verið skilað. Þessi gögn mynda síðan 20% einkunnar, sbr. A hluta í viðhengi 3. Þessar myndir séu mjög sérhæfðar og í útboðinu hafi verið krafist óvenju mikils magns sérhæfðra mynda. Öflun slíkra mynda sé afar tímafrek þar sem gæði slíkra mynda sé misjafnt eftir aðstæðum hverju sinni. Þannig hafi ýmis líffræðileg atriði hvers sjúklings áhrif á það hvernig mynd líti út og hversu nákvæm hún sé. Það geri samanburð á milli mynda ónákvæman en bjóðendur vilji eðli málsins samkvæmt leitast við að finna myndir sem sýni viðföngin sem best. Öflun sem bestra mynda útheimti því bæði tíma og mikla vinnu. Þá sé hugbúnaður og uppfærslur í búnaði í stöðugri þróun sem geri það að verkum að meiri tími til undirbúnings geti búið til samkeppnisforskot. Tilboðsfrestur í hinu kærða útboði hafi verið afar skammur og hafi kæranda ekki gefist rúmur tími til að afla sérhæfðra mynda, en hann hafi þó lagt fram myndir samkvæmt útboðsgögnum á USB minnislykli til kaupanda innan skilafrests tilboða.
Kærandi leggi áherslu á að kærunefnd útboðsmála fái upplýsingar um það frá kaupanda hvort hann hafi átt í samskiptum við Icepharma hf. frá því verðtilboð voru opnuð og þar til niðurstaða um val tilboðs hafi legið fyrir, og hvort aflað hafi verið frekari gagna á tímabilinu frá Icepharma hf., þ.m.t. mynda eða annarra upplýsinga. Kærandi leggi áherslu á að honum hafi ekki verið veittur kostur á þessu tímabili til að koma að nýjum myndum. Hafi Icepharma hf. verið gefinn kostur á að koma að nýjum myndum eða öðrum gögnum eftir opnun tilboða, þegar aðilum hafi verið ljóst hvaða munur væri á tilboðum, feli slíkt í sér skýra mismunun á milli bjóðenda og hefði kaupanda verið óheimilt að líta til slíkra gagna. Það sé meginregla útboðsréttar að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hafi verið breytt eða þau skýrð nánar við meðferð útboðsins. Kærandi bendi á að hafi komið fram ný gögn eftir opnun verðtilboða séu slík gögn, einkum nýjar myndir, líkleg til að raska samkeppni í andstöðu við 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016, sbr. einnig úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 24/2013.
Í athugasemdum sínum 7. maí 2026 telur kærandi af þeim gögnum sem nú hafi verið lögð fram í málinu sé ljóst að Icepharma hf. hafi skilað myndunum löngu eftir að skilatími tilboða rann út og ekki á því formi eða uppsetningu sem krafist hafi verið í F. lið greinar 4.5.4 í útboðsgögnum. Þeim gögnum sem Icepharma hf. hafi skilað hafi ekki haft að geyma DICOM skrár heldur einungis skrár sem tölvukerfi búa til til að búa til pláss. Það sé því ekki um að ræða vandamál við að opna skrár eða að þær hafi ekki virkað, heldur hafi myndirnar ekki verið sendar inn. Þar sem engar myndaskrár hafi verið sendar varnaraðila sé ómögulegt að ráða hvort um sömu skrár sé að ræða, og á því beri bjóðandi ábyrgð. Að auki bendir kærandi á að af tölvupóstsamskiptum varnaraðila við Siemens verði ráðið að margar myndirnar hafi verið lagðar fram á ZIP skrársniði. Þá beri skjámyndirnar sem hafi fylgt með tölvupóstsamskiptunum með sér að átt hafi verið við myndirnar bæði fyrir og eftir lok tilboðsfrests.
Kærandi byggir jafnframt á því að mati á tilboðum hafi verið ábótavant, en verulegur ágalli sé á umsögnum og einkunnum matsaðila. Telji kærandi að mat matsmanna uppfylli ekki kröfur c. liðar 4. mgr. 85. gr. laga nr. 120/2016 og meginreglur stjórnsýslulaga um fullnægjandi rökstuðning. Telji kærandi að mat hafi ekki farið fram samkvæmt valforsendum og því ekki í samræmi við 66. gr. laga nr. 120/2016 og á grundvelli forsendna í samræmi við 79. gr. laganna. Í þessum efnum vísar kærandi til þess að í umsögnum flestra matsmanna sé ekki gerður greinarmunur á tegundum tækja sem verið sé að meta og því bendi matið ekki til þess að fram hafi farið sjálfstætt mat á tegund 1 og tegund 2. Þá sé ekki farið með samræmdum eða skipulegum hætti yfir virkni tækjanna eða einstakra þátta út frá lýsingu á þeim kröfum sem gerðar hafi verið í útboðsgögnum. Þá gerir kærandi athugasemdir við umsagnir einstakra prófanda og telur að þeim hafi verið ábótavant. Vísar kærandi m.a. til þess að allar umsagnir matsaðila í annarri spurningu hafi verið jákvæðar og ekkert neikvætt hafi komið fram, en þrátt fyrir það hafi allir gefið tæki kæranda 3 í einkunn. Icepharma hf. hafi fengið 5 í einkunn fyrir sama þátt.
Í lokaathugasemdum sínum 17. ágúst 2026 ítrekar kærandi fram komnar athugasemdir sínar.
III
Varnaraðili andmælir því að skortur hafi verið á rökstuðningi og vísar til þess að niðurstaða hins kærða útboðs hafi verið tilkynnt í gegnum útboðskerfi 1. desember 2025 þar sem fram hafi komið hvaða tilboð hafi verið valið, boðið verð og stigafjöldi fyrir verð, tæknilegar kröfur og klínískt mat. Í kjölfar beiðni kæranda hafi honum verið sendur rökstuðningur 3. desember 2025, þar sem fram hafi komið stigafjöldi úr hverjum þætti fyrir sig, bæði fyrir tilboð kæranda og tilboð Icepharma hf. í samræmi við framsetningu í útboðsgögnum. Telji varnaraðili að rökstuðningur sinn hafi verið í samræmi við ákvæði 85. gr. laga nr. 120/2016, þar sem upplýsingar um eiginleika og kosti þess tilboðs sem hafi orðið fyrir valinu hafi komið fram. Þann sama dag hafi kærandi óskað að fá afhentar niðurstöður hvers matsþáttar í mati á klínískum og tæknilegum forsendum og klínísku mati, þ.m.t. stigagjöf hvers liðar hjá kæranda og Icepharma hf., auk aðgangs að öllum gögnum sem varnaraðili hafi búið til eða aflað vegna mats samkvæmt grein 4.5.5 í útboðsgögnum. Í ljósi mikils magns gagna sem óskað væri eftir, auk nauðsynjar þess fyrir varnaraðila að meta heimildir til afhendingar gagnanna, hafi varnaraðila ekki verið fært að svara beiðninni strax. Viðbótarrökstuðningur hafi verið sendur kæranda 8. desember 2025, þar sem sundurliðun á klíníska matinu, hlutum A og B, hafi komið fram. Þar hafi einnig komið fram niðurbrot á einkunn kæranda í klíníska matinu. Að þessu virtu telji varnaraðili að rökstuðningur hans hafi verið í fullu samræmi við þær upplýsingar sem unnt hafi verið að veita og í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016.
Varnaraðili hafni því alfarið að samanburður á klínísku mati og gæðum hafi ekki verið lögmætur né fullnægjandi af hans hálfu, líkt og kærandi haldi fram. Varnaraðili vísi til þess að fyrri kaup á landsvísu séu þessu máli óviðkomandi og vísi að auki á að varnaraðili sé háskólasjúkrahús sem þurfi að geta sinnt allri þjóðinni og öllum þeim mismunandi tilfellum sem upp komi, sem séu ekki endilega sambærilegt og hjá öðrum kaupendum. Því sé ekki ólíklegt að ólíkar kröfur og þarfir séu á milli staða. Einnig sé val annarra kaupenda á markaði á tækjabúnaði kæranda óviðkomandi vali varnaraðila.
Varnaraðili vísar jafnframt til þess að í matsblöðum faghóps komi fram ítarlegar einkunnir og rökstuðningur hvers matsaðila, þar á meðal læknisfræðilegum eðlisfræðingi og þremur röntgenlæknum. Kærandi hafi þegar fengið aðgang að eigin einkunnum sem gefnar hafi verið. Varnaraðili óski hins vegar sérstaklega eftir því að kæranda verði ekki veittur aðgangur að þeim faglegu umsögnum sem fylgi einkunnagjöfinni sem fram komi í umræddu skjali, sem lagt er fram í máli og merkt trúnaðarmál. Varnaraðili vísi til þess að um sé að ræða viðkvæmar upplýsingar sem tengist nákvæmum forsendum matsins, tæknilegum lausnum og þeim matsþáttum sem séu hluti af samkeppnisgrundvelli bjóðenda. Í umsögnunum sé að finna ítarlega greiningu faghópsins á styrkleikum og veikleikum tiltekinna tæknilausna og útfærslum tilboða, sem hafi lagt grundvöll að stigagjöfinni. Þessar upplýsingar teljist til viðkvæmra viðskiptaleyndarmála og falli undir trúnaðarskyldu kaupanda, sbr. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 120/2016. Aðgangur kæranda að slíkum umsögnum myndi veita honum óeðlilega mikla innsýn inn í matsaðferðarfræði varnaraðila og þau viðmið sem lögð hafi verið til grundvallar mati á tilboðum, sem gæti skaðað samkeppnisstöðu annarra bjóðenda og varnaraðila með því að afhjúpa viðkvæm viðskiptaleyndarmál og raska jafnræði á markaði í framtíðar útboðum.
Beiðni varnaraðila um trúnað yfir umræddum gögnum er byggð á 17. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en samkvæmt ákvæðinu sé stjórnvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef hagsmunir hans af því að notfæra sér vitneskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum. Kærunefnd útboðsmála hefur áður fallist á slíkar beiðnir, sérstaklega þar sem ítarlegar upplýsingar gætu veitt samkeppnisaðila óeðlilegt forskot, sbr. t.d. úrskurði nefndarinnar í málum nr. 12/2023 og 8/2021.
Þá bendir varnaraðili á að í lögum nr. 120/2016 sé ekki kveðið á um sérstaka röð í mati á tilboðum, svo sem að hæfismat og gæðamat skuli ávallt fara fram á undan verðmati. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda á fyrirspurnartíma varðandi framsetningu og tilhögun á mati tilboða, né uppsetningu fyrirspurnarfrests. Með því að taka þátt í hinu kærða útboði hafi bjóðendur því samþykkt uppsetningu útboðsins. Því verði ekki annað séð en að kærandi hafi talið útboðsgögn og matsferli fullnægjandi og skýr á þeim tíma, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 21/2006. Varnaraðili telji jafnframt að framsetning hans og tilhögun á klínísku gæðamati í útboðum hans á hátæknibúnaði sé algeng og ekki hafi komið fram athugasemdir við hana áður, og bendir varnaraðili m.a. á að kærandi sé afar reyndur bjóðandi á þessum markaði og hafi um árabil tekið virkan þátt í útboðum varnaraðila.
Að því er varðar athugasemdir kæranda um að skila hafi þurft sérhæfðum myndum á USB minnislykli, þá vísar varnaraðili til þess að ástæða fyrir því fyrirkomulagi hafi verið sú að umrætt gagnamagn hafi verið of mikið til að hægt sé að hlaða því upp í tilboðskerfið. Það hafi því verið nauðsynleg ráðstöfun til að tryggja að öll nauðsynleg gögn bærust til mats. Þá hafi engar athugasemdir borist á fyrirspurnartíma vegna þessa, hvorki frá kæranda né öðrum, og hafi bjóðendur sem tekið hafi þátt í útboðinu því samþykkt þetta fyrirkomulag eins og auglýst hafi verið. Varnaraðili sé sammála því að gæði mynda geti verið misjöfn, sem sé ein ástæða þess að beðið hafi verið um ákveðið magn mynda og að í öllum tilfellum, fyrir utan eitt, hafi verið óskað eftir myndum úr sömu rannsókn fyrir fleiri en einn sjúkling. Þá hafi skoðunar- og matsferðir verið nýttar til að skoða myndir, til að staðfesta að innsendar myndir gæfu eins raunverulega mynd og hægt væri. Það hafi ekki verið nein undantekning í skoðunarferð með kæranda. Varnaraðili andmæli því að um samkeppnisforskot hafi verið að ræða, enda hafi allir bjóðendur fengið sama tíma til að afla allra gagna sem óskað væri eftir, þ.m.t. mynda, og því ætti enginn bjóðandi að hafa fengið meira forskot en annar.
Varnaraðili kveður að engin samskipti hafi átt sér stað við Icepharma hf. önnur en þau sem nauðsynleg hafi verið vegna klínískrar matsferðar erlendis. Hafi þeim samskiptum verið eins háttað og hjá öllum öðrum bjóðendum. Þó hafi verið óskað eftir því að félagið myndi senda aftur innsendar myndir þar sem nokkrar myndaseríur, sem hafi verið skilað á USB minnislykli, hafi ekki virkað þegar þeim hafi verið hlaðið niður í úrlestrarkerfi varnaraðila. Þetta hafi verið talið nauðsynlegt til að hægt væri að meta myndirnar samkvæmt matslíkani hins kærða útboðs. Myndirnar hafi því verið sendar aftur frá félaginu og þá í gegnum hlekk í stað USB minniskubbs til að fækka skrefum í niðurhali þeirra. Við það hafi allar myndirnar virkað og hægt hafi verið að hala þeim niður og hefja matið. Ekki hafi verið um að ræða nýjar myndir heldur sömu myndir og félagið hafi áður skilað sem ekki hafi virkað. Því hafi ekki verið óskað eftir frekari upplýsingum.
Rétt sé hjá kæranda að honum hafi ekki verið veittur kostur á að koma með nýjar myndir, enda hafi ekki verið talin þörf á því né hafi kærandi óskað eftir því. Enginn bjóðandi hafi fengið slíkt tækifæri. Eins og fram hafi komið hafi myndirnar einnig verið skoðaðar í matsferð sem hafi verið farið í og því hafi ekki verið þörf á að fá nýjar myndir. Varnaraðili telji þessa framkvæmd ekki stangast á við 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016, þar sem í henni hafi falist að tryggja að gögn sem þegar hafi verið lögð fram væru aðgengileg til mats.
Í greinargerð varnaraðila 7. ágúst 2026 er því hafnað að Icepharma hf. hafi skilað myndum löngu eftir tilboðsfrest. Hið rétta sé að félagið hafi skilað myndum á tilsettum tíma á USB lykli og á áskildu sniði samkvæmt útboðsgögnum. Komið hafi upp tæknilegur vandi í úrlestrarkerfi eða niðurhalsbúnaði varnaraðila, sem hafi gert það að verkum að varnaraðila hafi ekki tekist að hlaða öllum myndunum í úrlestrarforritið. Tímabundnar skrár með tiltekinni endingu hafi birst í Sharepoint-möppu varnaraðila innan tilboðsfrests og slíkar skrár verði eingöngu til þegar afritun eða niðurhali stórra gagna ljúki ekki að fullu vegna truflana í net- eða tölvubúnaði móttakanda. Vandinn hafi því legið hjá varnaraðila, en ekki hjá Icepharma hf. Varnaraðili hafi því óskað eftir því að fá myndirnar sendar að nýju og Icepharma hf. og Siemens hafi þegar í stað hafist handa við að safna sömu myndum saman á ný. Þær innihaldi viðkvæmar persónuupplýsingar og sjúklingagögn, og sú vinna taki tíma. Því hafi Icepharma hf. ekki fengið neitt óeðlilega rúman frest til úrbóta. Varnaraðili telji beiðni sína til Icepharma hf. samræmast fyllilega innan 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Þá andmælir varnaraðili því að tilboð Icepharma hf. hafi verið ógilt þar sem uppsetning skráa sem óskaði hafi verið eftir að yrðu lögð fram að nýju væru í ZIP-möppum en ekki á DICOM skráarsniði. Varnaraðili bendir á að kröfur um hvernig skrár séu vistaðar eða merktar séu hagnýtar leiðbeiningar til hægðarauka við yfirferð gagna, en feli ekki í sér efnislegar tæknikröfur til tækjanna sjálfra. Í samræmi við meðalhófsreglu verði því að telja að það hefði farið í bága við lög ef kaupandi hefði útilokað heilt hátæknilegt tilboð á þeim grundvelli einum að flokkun gagna á USB lykli viki lítillega frá hagnýtum frágangsleiðbeiningum útboðsgagna.
Þá bendir varnaraðili á að samkvæmt útboðsgögnum hafi átt að gefa eina samanlagða einkunn fyrir báðar týpur tækja í senn, þ.e. í A-hluta matsins og ein sameiginleg einkunn fyrir báðar týpur í B-hluta matsins. Hvergi í útboðsgögnum hafi verið gerð krafa um að matsaðili skyldi skila aðskildu mati fyrir hvora týpu. Auk þess hafi hvergi verið gerð krafa um að matsaðilar hafi átt að tilgreina sérstaklega í athugasemdum sínum hvort mat tæki til tækis af týpu 1 eða týpu 2. Matið hafi verið heildstætt og hafi fylgt nákvæmlega birtri aðferðarfræði hins kærða útboðs. Þá andmælir varnaraðili sjónarmiðum kæranda þess efnis að einkunnagjöf hafi verið ábótavant, en skýrt hafi verið kveðið á um að tæki skyldu fá 5 í einkunn ef matsaðili teldi frammistöðu eða eiginleika mjög góða, 3 stig ef hann teldi hana góða og 1 stig ef hann teldi hana vera undir því sem búast mætti við. Þá endurspegli umsagnir og einkunnagjöf raunverulega upplifun og faglegt mat sérfræðinganna á vinnuflæði og virkni búnaðarins m.a. á vettvangi. Matsferðir hafi ekki verið ætlaðar til að kenna matsaðilum á búnaðinn eða sýna þeim virkni sem ekki sé kynnt eða undirbúin af hálfu bjóðanda, heldur hafi hlutverk matsaðila að skoða búnaðinn við þær aðstæður sem bjóðandi kysi að sýna hana, fylgjast með notkun hans og vinnuflæði og leggja mat á þá þætti sem kæmu fram.
IV
Icepharma hf. bendir á að valforsendur samkvæmt grein 2.2.2 í útboðsgögnum hafi skipst í verð, klínískar og tæknilegar kröfur og klínískt mat og gæðamat. Kæra málsins lúti að þriðja hluta valforsendna, þ.e. klíníska matinu og gæðamati, sem hafi vegið 50% af lokaeinkunn, og byggi kærandi á því að mat varnaraðila á boðnum tækjum hans og boðnum tækjum Icepharma hf. standist ekki.
Kærunefnd útboðsmála hafi fallist á að eðli og notkunarsvið vara geti heimilað að eiginleikar þeirra séu metnir með faglegu mati þeirra sérfræðinga sem eigi að nýta vöruna við störf sín. Það geti m.a. átt við um kaup á myndgreiningartækjum á borð við það sem fyrirliggjandi innkaup lúti að, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 34/2020. Icepharma hf. vísi til þess að skýrt hafi komið fram í útboðsgögnum hvaða eiginleika hafi átt að meta með þessum hætti og lýsing þeirra aðferða sem leggja ætti til grundvallar við matið. Þátttakendum í hinu kærða útboði hafi þannig mátt vera ljóst hvaða þættir yrðu metnir og hvaða forsendur yrðu lagðar til grundvallar við val á samningsaðila. Því hafi klínískt mat og gæðamat verið framkvæmt með lögmætum hætti og í samræmi við sjónarmið sem áður hafi verið notast við. Þá sé ekkert komið fram sem bendi til þess að einkunnagjöf varnaraðila hafi verið byggð á öðru en lögmætum og málefnalegum sjónarmiðum. Auk þessa hafi legið fyrir frá birtingu útboðsgagna hvaða matsforsendur yrðu lagðar til grundvallar, hvernig þær yrðu metnar og tilhögun á mati faghópsins. Allar athugasemdir kæranda sem byggist á því að þessi atriði séu ólögmæt hefðu því átt að koma fram mun fyrr og sé kærufrestur vegna þeirra liðinn. Þá hafi kærandi í raun ekki fært fram rök fyrir öðru, enda virðist kæra hans ekki lúta að matinu sem slíku heldur skorti á rökstuðningi. Slíkur skortur leiði ekki til þess að mat eða val varnaraðila á tilboði hafi verið ólögmætt.
Icepharma hf. andmælir fullyrðingu kæranda þess efnis að ekki sé slíkur gæðamunur á boðnum tækjum kæranda og Icepharma hf. sem hafi getað leitt til þess að tilboð þess síðarnefnda sé metið hagkvæmara en tilboð kæranda samkvæmt valforsendum. Fullyrðing kæranda í þessa veru sé með öllu órökstudd og röng. Samkvæmt útboðsgögnum hafi val tilboðs miðast við besta hlutfall á milli verðs og gæða. Val á tilboði Icepharma hf. hafi verið í fullkomnu samræmi við það, enda hafi félagið fengið fleiri stig fyrir gæðamat og fleiri heildarstig en kærandi, þrátt fyrir að kærandi hafi boðið lægra verð.
Þá fái Icepharma hf. ekki séð hvaða þýðingu það hafi að gæðamat hafi farið fram eftir opnun verðtilboða, en um hefðbundið verklag sé að ræða. Ekkert bendi til þess að þeir fagmenn sem hafi metið tækin hafi vitað af verðtilboðum eða látið þau hafa áhrif á faglegt mat sitt. Í öllu falli hafi fyrirkomulagið legið fyrir í útboðsgögnum og hafi kæranda borið þar af leiðandi að gera athugasemdir innan kærufrests teldi hann verklagið háð annmörkum. Icepharma hf. fái heldur ekki séð hvernig röksemdir kæranda, um að tilboðsfrestur hafi verið afar skammur og kæranda hafi ekki gefist rúmur tími til þess að afla sérhæfðra mynda, styðji við kröfur kæranda. Sami tilboðsfrestur hafi gilt fyrir alla þátttakendur útboðsins og bjóðendur beri ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna. Hafi kæranda ekki tekist að skila fullnægjandi myndum innan þess tilboðsfrests sem hafi verið veittur, verði kærandi sjálfur að bera hallann af því. Að auki hafi tilboðsfrestur legið fyrir frá upphafi og kærufrestur vegna hans sé því löngu liðinn.
Umfjöllun kæranda sé jafnframt að einhverju leyti óbein viðurkenning á því að tilboð hans hafi ekki sýnt fram á mikil gæði þeirra tækja sem hann hafi boðið. Kærandi geri athugasemdir um meintan skamman tíma til að sýna fram á sérhæfðar myndir og nefni sérstaklega að það hafi reynst erfitt að útbúa myndir í góðum gæðum, sem bendi til þess að kærandi hafi ekki lagt fram myndir í miklum gæðum. Þessi atriði hafi hvorki haft áhrif á gæði mynda þess tækis sem Icepharma hf. hafi boðið né tilboð fyrirtækisins að öðru leyti.
Icepharma hf. taki sérstaklega fram að félagið hafi ekki verið í samskiptum við varnaraðila eftir opnun tilboða, öðrum en þeim sem hafi verið nauðsynleg vegna heimsóknar varnaraðila til Svíþjóðar til að framkvæma klínískt mat og gæðamat á boðnum tækjum. Slík samskipti hafi einnig verið á milli kæranda og varnaraðila. Icepharma hf. hafi ekki veitt varnaraðila neinar viðbótarupplýsingar eftir opnun tilboða. Loks árétti Icepharma hf. að skortur á rökstuðningi sé formannmarki sem leiði almennt ekki til ógildingar ákvörðunar, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 34/2020.
Í greinargerð sinni 7. ágúst 2026 hafnar Icepharma hf. fullyrðingum kæranda þess efnis að félagið hafi skilað gögnum löngu eftir að skilatíma tilboða hafi lokið og ekki á því formi eða þeirri uppsetningu sem útboðsgögn hafi áskilið. Öllum myndum hafi verið skilað með tilboði félagsins, innan tilboðsfrests og á því formi sem óskaði hafi verið eftir, þ.e. í samræmi við kröfur útboðsins. Varnaraðili hafi ekki getað hlaðið niður gögnum í úrlausnarkerfi sitt, þ.e. DICOM skrárnar. Þær hafi verið sóttar frá Þýskalandi í gegnum Svíþjóð og þaðan fluttar til Íslands, þar sem þær hafi verið vistaðar á USB-minnislykli. Hinn hluti myndanna, phantom-myndirnar, hafi hins vegar verið afhentar beint frá Svíþjóð og hafi skilað sér réttilega til varnaraðila eftir fullkomið niðurhal. Líklegt sé að DICOM myndirnar hafi annað hvort skemmst við flutning eða niðurhal frá Þýskalandi til Svíþjóðar, þó ekki sé hægt að vita það með vissu. Varnaraðili hafi því óskað eftir að fá myndirnar sendar aftur með öðrum hætti eða á öðru formi. Hafi varnaraðili því fengið beinan niðurhalshlekk frá Þýskalandi (Siemens), sem hafi leyst vandamálið og gert varnaraðila kleift að hala niður myndunum í úrlestrarkerfi sitt. Engar breytingar hafi verið gerðar á myndunum á neinu stigi málsins, heldur hafi aðeins verið um að ræða lagfæringu á formi sem hafi þann eina tilgang að gera tiltekin gögn málsins kaupanda aðgengileg.
Þá furðar Icepharma hf. sig á fullyrðingum og ályktunum kæranda um að skrárnar sem hafi fylgt með tilboði félagsins hafi ekki verið DICOM skrár og í raun hafi þær aldrei verið sendar inn. Það sé ljóst af tölvupóstsamskiptum, sem kærandi byggi ályktanir sínar á, að varnaraðili hafi verið í vandræðum með að opna tiltekinn hluta gagnanna. Í tölvupósti sé skjáskot af Sharepoint-svæði varnaraðila sem sýni að þegar varnaraðili hafi hafið niðurhal á gögnum af USB-minnislyklinum hafi orðið til tímabundnar skrár sem sjálfkrafa séu búnar til á meðan niðurhal skráa standi yfir. Slíkt sé eðlilegt og slíkar skrár fái jafnan skráarheitið „Unconfirmed […],crdownload“. Það sé tímabundin skráarending sem skjöl sem hlaðast ekki fullkomlega niður fá þar til niðurhalinu sé lokið að fullu. Fullyrðingar kæranda í aðra veru séu undarlegar og beri í raun merki þess að kærandi þekki lítið til virkni Sharepoint.
Icepharma hf. andmælir einnig fullyrðingu og ályktun kæranda um að uppsetning skjala með tilboði félagsins hafi ekki verið í samræmi við áskilnað útboðsgagna. Icepharma hf. bendir á að í umræddum tölvupósti, þar sem varnaraðili hafi óskað eftir að fá myndirnar aftur sendar, hafi verið áréttað að þau þyrftu að uppfylla áskilnað útboðsgagna um uppsetningu. Þá andmælir Icepharma hf. fullyrðingu kæranda þess efnis að af tölvupóstum 15. og 16. september 2025 verði ráðið að eingöngu hafi verið sendar myndir vegna tegundar 2 (Type 2). Icepharma hf. árétti í þessu sambandi að kærandi geti ekki vitað hvaða gögn hafi nákvæmlega verið vistuð á USB-minnislyklinum, þar sem skjáskot af tölvupóstssamskiptum frá 22. ágúst 2025, sem kærandi vísi til, sé skjáskot af Sharepoint-svæði varnaraðila. Icepharma hf. ítreki að félagið skilaði öllum umbeðnum gögnum, þ.m.t. myndum af tegundum 1 og 2, á umbeðnu formi með tilboði félagsins.
V
A
Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kærunefnd útboðsmála hefur litið svo á að bjóðendur hafi skamman frest til að kynna sér útboðsgögn eftir að þau hafa verið gerð aðgengileg og þar til kærufrestur vegna athugasemda sem varða efni þeirra byrji að líða, sbr. úrskurðir kærunefndar útboðsmála í málum nr. 21/2020 og 41/2020. Telji bjóðandi í opinberum innkaupum tiltekinn skilmála útboðsgagna ólögmætan verður hann að beina kæru til nefndarinnar innan kærufrests og getur ekki borið því við eftir að sá frestur er útrunninn að skilmálinn sé ógildur eða honum beri að víkja til hliðar, sbr. úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 7/2021.
Í útboðslýsingu kemur fram að klínískt mat og gæðamat vegna innkaupanna fari fram eftir opnun tilboða og birtingu upplýsinga um boðin verð. Skilja verður kæru málsins svo að í henni sé kvartað undan þessu fyrirkomulagi á þeirri forsendu að vitneskja um verð kynni að hafa áhrif á einkunnagjöf við matsferlið. Því er ekki haldið fram berum orðum að slíkra áhrifa hafi gætt né að því leidd sérstök rök eða lögð fram gögn um slíkt. Hið kærða útboð var auglýst 22. maí 2025. Tilboðsfrestur var upphaflega til 26. júní 2025, en hann mun hafa verið framlengdur til 3. júlí 2025 og voru tilboð opnuð þann sama dag. Kæra málsins barst 8. desember 2025 og er kvörtun kæranda vegna þessa fyrirkomulags því fram komin utan kærufrests 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 og kemur hún því ekki til frekari skoðunar hvað þetta varðar. Hið sama á við um þau sjónarmið kæranda um að hvernig og innan hvaða fresta skyldi leggja fram myndir sem teknar yrðu til mats, sem kærandi telur að hafi verið úr hófi skammur. Kemur lögmæti útboðsins um þetta atriði ekki til frekari skoðunar.
B
Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verður hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Samkvæmt upplýsingum frá varnaraðila frá 3. júlí 2026 hefur komist á bindandi samningur við Icepharma hf. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kæranda um að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila um að hafna tilboði kæranda og að velja tilboð Icepharma hf.
Kemur því eingöngu til álita krafa kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum. Í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna tjóns sem brot á lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.
Samkvæmt c. lið 1. mgr. 69. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kaupanda heimilt að setja skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja á grundvelli tæknilegrar og faglegrar getu. Í 1. mgr. 72. gr. segir að tæknileg og fagleg geta fyrirtækis skuli vera það trygg að það geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart kaupanda. Í því skyni sé kaupanda heimilt að setja skilyrði um að fyrirtæki hafi nauðsynlegan mannauð, tækniúrræði og reynslu til að framkvæma samning í samræmi við viðeigandi gæðastaðal. Þá segir í 2. mgr. 72. gr. að kaupandi geti krafist þess að fyrirtæki hafi nægilega reynslu og sýni fram á það með viðeigandi gögnum í tengslum við samninga sem fyrirtækið hafi áður framkvæmt.
Við ákveðnar aðstæður hefur kærunefnd útboðsmála þó fallist á að eðli og notkunarsvið umbeðinna vara heimili að eiginleikar þeirra séu metnir með hliðsjón af huglægri afstöðu þeirra sem vöruna eiga að nýta við störf sín. Ber kaupanda þá að sýna fram á að eðli innkaupa réttlæti að huglægri afstöðu sé gefið vægi við val tilboða. Í slíkum tilvikum verður að koma fram í útboðsgögnum um hvaða eiginleika er að ræða sem meta á með þessum hætti og lýsing á þeirri aðferð sem leggja á til grundvallar við mat. Hefur kærunefnd útboðsmála gert ríkar kröfur til þess að huglæg afstaða sé könnuð með aðferð sem tryggi að aðilum sé ekki mismunað og málefnaleg sjónarmið ráði ferðinni við matið, sbr. t.d. úrskurði 17. febrúar 2015 í máli nr. 18/2014 og 9. mars 2017 í máli nr. 18/2016.
Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér gögn málsins, þ. á m. tilboð kæranda og Icepharma hf. og matsblöð matsnefndar varnaraðila. Samkvæmt matsblöðum og einkunnagjöf matsnefndar þá fékk kærandi hærri einkunn fyrir A hluta, um gæði mynda, en Icepharma hf. Ber rökstuðningur matsmanna jafnframt með sér að tæki beggja bjóðenda hafi verið viðunandi (e. adequate, satifactory) og virkað sem skyldi. Hvorugur bjóðanda fékk þó hæstu mögulegu einkunn fyrir þennan hluta. Í B hluta, um prófun á búnaði, verður ráðið að matsmenn hafi almennt talið tæki kæranda fullnægjandi en athugasemdir þeirra lutu einkum að notkun tækisins, t.d. við að staðsetja sjúkling, og vinnuflæði (e. workflow). Að því er varðar tæki Icepharma hf. í þessum hluta þá fékk félagið hæstu einkunn fyrir spurningar 2 og 3, og af rökstuðningi matsmanna verður ráðið að þeir hefðu engar sérstakar athugasemdir eða ábendingar um tækin.
Af matsblöðum matsnefndar verður ekki annað ráðið en að rökstuðningur matsnefndarmanna hafi endurspeglast með réttum hætti í einkunnagjöf þeirra. Ekki verður séð að framkvæmd matsins hafi falið í sér mismunun á milli aðila eða að mat matsnefndar hafi verið áfátt eða ófullnægjandi. Er sjónarmiðum kæranda í þá veru því hafnað.
Kærandi heldur því jafnframt fram að tilboð Icepharma hf. hafi verið ógilt þar sem ekki hafi fylgt með því myndir í samræmi við f. lið greinar 4.5.4 í útboðsgögnum og að þeim myndum hafi verið skilað löngu eftir að skilatíma tilboða hafi lokið og á ekki á því formi sem krafist var í útboðsgögnum.
Í 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að þegar upplýsingar eða gögn sem bjóðandi leggi fram virðast vera ófullkomin eða innihalda villur eða ef tiltekin skjöl vantar geti kaupandi farið fram á að bjóðandi leggi fram, bæti við, skýri eða fullgeri upplýsingar eða gögn innan hæfilegs frests. Slíkar skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar megi þó ekki fela í sér breytingar á grundvallarþáttum tilboðs eða vera líkleg til að raska samkeppni eða ýta undir mismunun. Í framkvæmd hefur 5. mgr. 66. gr. verið skýrð með þeim hætti að töluvert svigrúm sé til þess að útskýra og bæta við gögnum um staðreyndir sem ekki verður breytt eftir opnun tilboða.
Í tölvupósti frá varnaraðila til Icepharma hf. 22. ágúst 2025 upplýsti varnaraðili að ekki væri hægt að opna eða hlaða niður myndum sem hafi fylgt með tilboði félagsins. Í tölvupóstinum er skjáskot af möppu sem mun sýna hvert vandamálið virtist vera. Af þessum tölvupósti verður ekki annað ráðið en að Icepharma hf. hafi sannanlega látið fylgja með tilboði sínu umræddar myndir, en augljóst er að ekki hafi tekist að hlaða myndunum niður í tölvukerfi varnaraðila. Varnaraðili óskaði eftir því við Icepharma hf. að myndirnar yrðu sendar aftur. Þá skal þess jafnframt getið að Icepharma hf. svaraði tölvupósti varnaraðila og spurði hvort allar myndirnar væru skemmdar eða ekki hægt að opna þær, og svaraði varnaraðili því til að hægt væri að opna „fantom“ myndirnar en ekki aðrar. Siemens sendi svo fyrir hönd Icepharma hf. myndirnar að nýju með tölvupóstum dagsettum 15. september 2025.
Samkvæmt þessu voru tæknilegir erfiðleikar sem urðu þess valdandi að varnaraðili gat ekki opnað eða hlaðið niður tilteknum myndum sem fylgdu með tilboði Icepharma hf. Innihéldu myndirnar villu sem Icepharma hf. verður ekki kennt um, enda verður ekki annað séð en að Icepharma hf. hafi lagt fram tilboð sitt í samræmi við kröfur útboðsgagna og í góðri trú um að varnaraðili gæti opnað þær myndir sem fylgdu með tilboðinu. Við þessar aðstæður var varnaraðila rétt að grípa til úrræða í því skyni að leggja mat á tilboð Icepharma hf., og óska eftir að fá myndirnar aftur. Eins og mál þetta er vaxið verður að telja að slíkt rúmist innan heimildar 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Þá bendir ekkert til annars en að Icepharma hf. hafi brugðist við beiðni varnaraðila innan hæfilegs frests og lagt fram sömu myndir og höfðu áður fylgt með tilboði félagsins. Í þessum efnum verður jafnframt að telja, eins og mál þetta er liggur fyrir, að varnaraðili hafi ákveðið svigrúm til þess að fá myndirnar sendar á því sniði sem myndi ekki leiða til frekari erfiðleika við að opna eða hlaða þeim niður.
Samkvæmt þessu verður ekki fallist á þá málsástæðu kæranda að tilboð Icepharma hf. hafi verið ógilt þar sem myndir hefðu ekki fylgt með því, og þá verður ekki heldur fallist á að þau sjónarmið kæranda að varnaraðila hafi verið óheimilt að beita heimild 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 og kalla eftir þeim myndum sem ekki hafi tekist að opna eða hlaða niður í úrlestrarforrit varnaraðila.
Að því er varðar þær athugasemdir kæranda um að í tilkynningu varnaraðila hafi skort á rökstuðning fyrir vali á tilboði Icepharma hf. skal tekið fram að samkvæmt 2. mgr. 85. gr. laga nr. 120/2016 skal í tilkynningu um val tilboðs m.a. koma fram upplýsingar um eiginleika og kosti þess tilboðs sem kaupandi valdi með hliðsjón af valforsendum útboðsgagna ásamt yfirlýsingu um nákvæman biðtíma samningsgerðar skv. 86. gr. Í tilkynningu varnaraðila um val tilboðs, sem er raunar ódagsett, kemur fram að ákveðið hafi verið að velja tilboð Icepharma hf. Þar kemur einnig fram stigagjöf tilboðsins. Þá var bjóðendum leiðbeint um biðtíma og heimild til þess að óska eftir frekari rökstuðningi. Að mati kærunefndar útboðsmála verður ekki talið að tilkynning varnaraðila um val tilboðs hafi brotið gegn 2. mgr. 85. laga nr. 120/2016. Auk þess liggur fyrir að kærandi óskaði eftir frekari rökstuðningi varnaraðila fyrir vali tilboðs, dags. 3. og 5. desember 2025, og ástæðum þess að tilboði kæranda var hafnað. Varnaraðili svaraði beiðni kæranda 8. desember 2025.
Að öllu framangreindu virtu verður því lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki átt raunhæfa möguleika á að verða valinn af varnaraðila og eru skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 því ekki uppfyllt. Verður kröfu kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila því hafnað.
Varnaraðili krefst þess að að kæranda verði gert að greiða sér hæfilegan málskostnað. Í lögum nr. 120/2016 er ekki að finna heimild til þess að úrskurða kæranda til að greiða varnaraðila málskostnað. Í 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 er aftur á móti mælt fyrir um það að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa geti kærunefnd úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem renni í ríkissjóð. Þótt kröfum kæranda í máli þessu hafi verið hafnað verður ekki litið svo á að kæra í málinu hafi verið bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa. Með vísan til þessa þykir rétt að málskostnaður falli niður.
Úrskurðarorð
Öllum kröfum kæranda, HealthCo ehf, í máli þessu er hafnað.
Málskostnaður fellur niður.
Reykjavík, 26. október 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir