2/2026 A gegn Háskóla Íslands

Ár 2026, þann 30. október, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og formaður nefndarinnar, Eva Halldórsdóttir lögmaður og Arnaldur Starri Stefánsson lögfræðingur máli nr. 2/2026:

 

A

gegn

Háskóla Íslands

með svohljóðandi

ÚRSKURÐI

 

I.      Málsmeðferð

Með kæru, dags. 26. júní 2026, skaut A, hér eftir nefnd kærandi, til áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema ákvörðun sviðsstjóra kennslusviðs Háskóla Íslands, hér eftir nefndur háskólinn, dags. 10. júní 2026, um að synja henni um þátttöku í inntökuprófi í tannlæknisfræði árið 2026. Byggðist synjunin á því að próftökugjald hefði ekki verið greitt fyrir auglýst tímamark, kl. 16:00 hinn 1. júní 2026.

Kærandi gerir þá aðalkröfu að ákvörðunin verði felld úr gildi og að Háskóla Íslands verði gert að heimila henni að þreyta sérstakt próf sem jafngildi inntökuprófi ársins 2026. Til vara krefst hún þess að niðurstöður inntökuprófs hennar frá júní 2025 verði teknar gildar eða að háskólanum verði gert að finna aðra sambærilega lausn á námsferli hennar.

Með erindi áfrýjunarnefndar, dags. 12. ágúst 2026, var óskað umsagnar Háskóla Íslands um kæruna. Var jafnframt óskað upplýsinga um hvort aðrir umsækjendur hefði ekki greitt próftökugjald og ef svo væri, hver meðferð háskólans hefði verið á þeirra málum. Þá óskaði nefndin eftir upplýsingum frá háskólanum um framkvæmd sambærilegra tímamarka innan háskólans. Umsögn Háskóla Íslands barst nefndinni þann 17. ágúst 2026 og var þar farið fram á að hin kærða ákvörðun yrði staðfest.

Kæranda var með erindi, dags. 13. september 2026 gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn háskólans. Sá kostur var ítrekaður með erindi til lögmanns kæranda, dags. 27. september 2026. Engin viðbrögð bárust frá kæranda við þessum erindum. Kæranda var jafnframt með erindi, dags. 15. október 2026, boðið að mæta á fund nefndarinnar vegna málsins, en kærandi svaraði ekki því erindi. Fundaði nefndin í kjölfarið og var málið tekið til úrskurðar.

 
 

II.    Málsatvik

Kærandi skráði sig í inntökupróf í tannlæknisfræði við Háskóla Íslands, áður en skráningu lauk á miðnætti þann 20. maí 2026. Var skráðum umsækjendum sendur tölvupóstur þann 22. maí s.á. þess efnis að umsókn væri móttekin og að greiða skyldi 35 þúsund króna próftökugjald fyrir kl. 16, mánudaginn 1. júní s.á. Þá voru upplýsingar um greiðslufrest próftökugjalds jafnframt birtar á heimasíðu tannlæknadeildar. Í upplýsingum sem bárust umsækjendum frá tannlæknadeild kom fram að engar undantekningar yrðu gerðar frá greiðslufrestinum. Þann 29. maí s.á. var sendur sérstakur áminningarpóstur á umsækjendur þar sem fresturinn var ítrekaður og tekið fram að próftökuréttur væri háður greiðslu fyrir tilgreint tímamark.

Óumdeilt er að kærandi greiddi ekki gjaldið fyrir kl. 16:00 þann 1. júní 2026. Kveðst kærandi hafa skráð greiðsludaginn hjá sér í rafrænt áminningarkerfi, en að sér hafi láðst að tilgreina að greiðsla yrði að vera innt af hendi fyrir klukkan 16. Þegar kærandi áttaði sig á mistökunum, um tveimur tímum eftir lokun greiðslugáttar, kveðst hún strax hafa sett sig í samband við háskólann í þeirri von að fá að greiða próftökugjaldið. Í erindi lögmanns kæranda, dags. 8. júní 2026, er samskiptum kæranda og föður hennar við starfsmenn háskólans lýst. Kemur þar fram að erindinu hafi verið vel tekið, þar sem um augljós mannleg mistök hafi verið að ræða, að sögn vegna misræmis sem gilti annars vegar fyrir skráningu í inntökuprófið, sem er á miðnætti, og greiðslu próftökugjalds hins vegar sem er kl. 16. Hafi kærandi því ítrekað gert reka að því að fá að greiða próftökugjaldið upp frá þessu. Því hafi það komið kæranda á óvart þegar synjun á próftökurétti barst frá deildarforseta tannlæknadeildar þann 4. júní 2026.

Með erindi lögmanns kæranda til forseta Heilbrigðisvísindasviðs dags. 8. júní 2026 var þess farið á leit við háskólann að kæranda yrði heimiluð þátttaka í prófinu, sem átti að hefjast 11. júní 2026. Til vara var þess óskað að kærandi fengi að þreyta prófið með fyrirvara um endanlega niðurstöðu málsins, ef ákvörðun yrði ekki tekin fyrir prófdag.

Erindið var framsent sviðsstjóra kennslusviðs til afgreiðslu með vísan til ákvæðis 7. mgr. 47. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun óskaði sviðsstjórinn eftir umsögn deildarforseta tannlæknadeildar hinn 8. júní 2026. Ítrekaði deildarforseti fyrri afstöðu sína samdægurs og kvað ekki vera forsendur fyrir undanþágu frá auglýstum greiðslufresti eða því að veita undanþágu frá þeim réttaráhrifum sem reglur nr. 155/2011 um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands mæla fyrir um. Þá var jafnframt vísað til upplýsingagjafar um greiðslufrest og nauðsyn þess að viðhafa samræmda framkvæmd við inntökupróf. Jafnframt var í erindinu fjallað um sjónarmið kæranda um jafnræði og meðalhóf. Þar sem ákvörðun var tekin fyrir prófdag taldi háskólinn forsendur varakröfu kæranda um þátttöku með fyrirvara ekki lengur til staðar. Kæranda var leiðbeint um kæruheimild til áfrýjunarnefndarinnar.

Háskóla Íslands var boðið að bregðast við framkominni kæru kæranda. Í umsögn háskólans var þeim spurningum sem áfrýjunarnefndin bar fram svarað á þá leið að einn nemandi til viðbótar, sem greitt hafði próftökugjald eftir greiðslufrest, hefði lagt fram formlega beiðni um að fá að þreyta prófið en því hafi verið synjað. Þá hafi Læknadeild borist nokkrar fyrirspurnir símleiðis frá einstaklingum sem ekki hefðu greitt gjaldið innan frests. Kvaðst háskólinn ekki hafa á reiðum höndum nákvæman fjölda þeirra nemenda sem greitt hefðu próftökugjaldið of seint, en staðfesti að engum hafi verið veitt undanþága. Þá spurði áfrýjunarnefnd hvort sama fyrirkomulag á greiðslufresti próftökugjalds, að miða við miðjan dag en ekki miðnætti, þekktist í öðrum deildum og var því svarað á þá leið að inntökupróf í tannlæknadeild og Læknadeild ættu sér ekki hliðstæðu innan háskólans, þ.e. að engar aðrar deildir haldi próf þar sem umsækjendur keppa með sama hætti um inntökurétt í tiltekið nám.

Þá spurði nefndin hvort viðlíka tímafrestir væru einnig viðhafðir varðandi staðfestingu nemanda á að hann þiggi sæti að lokinni próftöku, og var þeirri spurningu svarað með sambærilegum hætti, þannig að það séu ekki sambærileg próf í öðrum deildum og því lægju ekki fyrir slíkar upplýsingar. Lauk umsögn háskólans á því að staðfesta fyrri ákvörðun, þess efnis að kærandi hafi fyrirgert rétti sínum til próftöku þar sem próftökugjald barst ekki fyrir greiðslufrest.

 

III.  Málsástæður

Málsástæður kæranda

Kærandi byggir mál sitt á því að ákvörðun Háskóla Íslands hafi ekki samrýmst jafnræðisreglu og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins, sbr. 11. og 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi viðurkennir að greiðslutímamarkið hafi verið tilgreint og að henni hafi orðið á mistök. Um hafi þó verið að ræða mannleg mistök en ekki skeytingarleysi. Mismunandi tímamörk innan sama umsóknarferlis þar sem skráning þarf annars vegar að eiga sér stað fyrir miðnætti, en greiðsla próftökugjalds fyrir klukkan 16 hafi verið til þess fallin að valda misskilningi. Kærandi hafi freistað þess að leiðrétta mistökin samdægurs, skömmu eftir að fresturinn rann út.

Kærandi byggir á því að þótt jafnræði eigi að gilda um framkvæmd prófsins, þá sé það ekki brot á jafnræði að taka tillit til þess, ef mannleg mistök verða á greiðslu próftökugjalds skömmu eftir gjaldfrest. Eftir sem áður muni þátttakendur standa jafnfætis þegar komi að prófinu sjálfu. Kveður kærandi að við matið verði einnig að líta til jafns tækifæris til að taka þátt í samkeppnisferli sem ætlað sé að meta hæfni umsækjenda. Greiðslutímamarkið sé formsatriði sem tengist ekki þeirri hæfni og ekki verði séð að þátttaka hennar hefði raskað framkvæmd prófsins eða réttarstöðu annarra. Kærandi hafi ekki farið fram á sérreglu fyrir sig heldur að sambærileg sjónarmið gildi um alla í sömu stöðu, þannig að allir þeir sem lent hafi í svipaðri stöðu fái sama tækifæri til próftöku. Ekki sé verið að útiloka aðra með því að heimila þeim, sem sannanlega ætluðu sér í prófið og reyndu greiðslu, að taka prófið. Það að fleiri umsækjendur hafi gert sambærileg mistök gefi jafnframt tilefni til að skoða hvort framkvæmdin hafi aukið líkur á misskilningi.

 

Þá telur kærandi að sjálfstætt mat á meðalhófi hafi skort við ákvörðun um að synja henni um próftökurétt. Synjunin hafi verulega íþyngjandi afleiðingar, tefji námsframvindu hennar um að minnsta kosti eitt ár og geri að engu mikinn undirbúning hennar, sem tvívegis áður hafi staðist inntökupróf í tannlæknadeild með góðum árangri og þar með tryggt sér inngöngu á fyrstu önn námsins. Að lokinni haustönn hafi hún svo verið meðal þeirra nemenda sem hafi náð bestum árangri og hafi verið nálægt því að tryggja sér eitt af þeim átta sætum sem bjóðast til áframhaldandi náms í tannlæknadeild. Það misræmi sem er í framkvæmd á skráningu annars vegar og greiðslu próftökugjalds hins vegar hafi átt að kalla á sjálfstætt mat á því hvort útilokun frá prófi væri hófleg afleiðing í ljósi afleiðinga þess að vera synjað um próftökurétt.

Loks byggir kærandi á því að ef markmið samkeppnisprófs sé að velja hæfustu einstaklingana á jafnræðisgrundvelli sé ekki augljóst hvernig því markmiði verði náð með að útiloka umsækjendur um próftöku á grundvelli formsatriðis en ekki vegna hæfni, sér í lagi þegar reynt er að leiðrétta mistök eins fljótt og mögulegt er.

Málsástæður Háskóla Íslands

Háskóli Íslands byggir á því að synjunin hafi verið lögmæt og í samræmi við reglur nr. 155/2011 um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands, reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, lög nr. 63/2009 um háskóla, lög, nr. 85/2008 um opinbera háskóla og stjórnsýslulög nr. 37/1993.

Háskólinn vísar til þess að í reglum um inntökuprófið sé mælt fyrir um að birta skuli hvenær greiðslu próftökugjalds skuli lokið og að réttur til að þreyta prófið falli niður ef greiðsla hafi ekki borist fyrir það tímamark. Greiðslufresturinn hafi verið birtur á vef tannlæknadeildar og kynntur skráðum umsækjendum með tölvupósti dags. 22. maí og ítrekaður 29. maí 2026. Upplýsingagjöfin hafi því verið skýr og fullnægjandi.

Háskólinn byggir á því að inntökuprófið sé samkeppnispróf um takmarkaðan fjölda námsplássa. Við þær aðstæður sé mikilvægt að fyrirfram kynntum skilyrðum sé beitt samræmt. Greiðsla innan frests hafi verið hlutlægt skilyrði sem gildi jafnt um alla umsækjendur og að öðrum umsækjendum, sem ekki hafi greitt próftökugjaldið innan frests, hafi einnig verið synjað um þátttöku í prófinu.  Engar undanþágur hafi verið veittar.

Háskólinn kveðst gera sér grein fyrir að niðurstaðan sé íþyngjandi en telur hana ekki ganga lengra en nauðsynlegt sé til að tryggja jafnræði, fyrirsjáanleika og samræmda framkvæmd. Að heimila greiðslu eftir frest hefði falið í sér frávik frá reglunum og framkvæmdinni gagnvart öðrum umsækjendum í sambærilegri stöðu. Fyrri námsárangur og undirbúningur kæranda geti ekki leyst hana undan almennu skilyrði fyrir próftökurétti.

 
 
 

IV.  Niðurstaða

Samkvæmt 2. mgr. 20. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla verður máli ekki skotið til áfrýjunar­nefndarinnar nema fyrir liggi endanleg ákvörðun háskóla um rétt eða skyldu nemanda. Hin kærða ákvörðun bindur enda á afgreiðslu Háskóla Íslands á beiðni kæranda um þátttöku í prófinu. Kæra ásamt fylgiskjölum barst innan kærufrests og er málið því tekið til efnislegrar meðferðar.

Mál þetta varðar lögmæti ákvörðunar sviðsstjóra kennslusviðs Háskóla Íslands frá 10. júní 2026 um að synja kæranda um þátttöku í inntökuprófi í tannlæknisfræði vegna þess að próftökugjald hafði ekki verið greitt innan auglýsts frests. Ágreiningur lýtur einkum að því hvort synjunin hafi samrýmst jafnræðisreglu og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins og hvort aðstæður kæranda og sýndur greiðsluvilji hafi gefið tilefni til annarrar niðurstöðu.

Við meðferð málsins hjá nefndinni hefur kæranda tvívegis verið gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við umsögn Háskóla Íslands frá 17. ágúst 2026. Engin viðbrögð bárust við þeim erindum. Kæranda var einnig boðið að mæta á fund nefndarinnar en hún svaraði ekki því boði. Telur nefndin að kæranda hafi með þessu verið veitt fullnægjandi færi á að tjá sig um umsögnina, sbr. 13. gr., sbr. 30. gr. stjórnsýslulaga. Úrlausn málsins fyrir nefndinni byggist þannig á kæru hennar og þeim rökum sem þar koma fram sem og öðrum gögnum málsins.

Samkvæmt 3. mgr. 19. gr. laga um háskóla nr. 63/2006 er heimilt að ákveða sérstök inntökuskilyrði, þar á meðal inntökupróf. Í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla er mælt fyrir um reglusetningu háskólaráðs um inntökupróf og fjöldatakmarkanir. Þá er í b-lið 2. mgr. 24. gr. síðarnefndu laganna heimilað að innheimta gjöld til að standa undir gerð, fyrirlögn og yfirferð inntökuprófa.

Á þessum grundvelli hafa verið settar reglur nr. 155/2011 um val nemenda til náms í læknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands, með síðari breytingum. Í 3. gr. reglnanna kemur fram að heimilt sé, á grundvelli áðurnefndrar 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla, að innheimta próftökugjald til að kosta gerð, fyrirlögn og yfirferð inntökuprófa. Fyrir liggur að háskólinn hefur nýtt þessa heimild til töku próftökugjalds og sett þá hlutlægu reglu að skilyrði fyrir próftöku sé að framangreint gjald hafi verið greitt fyrir eindaga sem auglýstur er á heimasíðu tannlæknadeildar. Reglurnar gera þannig ráð fyrir að skráning og greiðsla séu sjálfstæðir þættir í því að öðlast próftökurétt.

Óumdeilt er að kærandi skráði sig til prófsins innan frests en greiddi ekki próftökugjaldið fyrir kl. 16:00 hinn 1. júní 2026 líkt og auglýst hafði verið í samræmi við 3. gr. reglna nr. 155/2011. Þá er óumdeilt að vegna þessa tók háskólinn þá ákvörðun að heimila kæranda ekki að taka prófið.

Kærandi staðfestir í kæru sinni að tímasetning greiðslufrestsins hafi verið tilgreind og ítrekuð og að mistök hennar hafi ekki stafað af því að þær upplýsingar vantaði. Með hliðsjón af því og upplýsingum um kynningu frestsins fellst nefndin ekki á þær málsástæður kæranda að það eitt, að skráningarfresti hafi lokið á miðnætti en greiðslufrestur hafi verið til kl. 16:00, hafi gert greiðslutímamarkið óskýrt. Upplýsingar um annan frest innan sama ferlis gátu ekki einar og sér vikið til hliðar sérstaklega kynntu tímamarki greiðslu próftökugjalds.

Samkvæmt 11. gr. stjórnsýslulaga skulu stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti. Við matið ber að líta til þess hvaða aðstæður hafa lögmæta þýðingu fyrir þá ákvörðun sem um ræðir og er hér því til úrlausnar hvort skilyrði fyrir rétti til að þreyta inntökupróf hafi verið uppfyllt.

Kærandi hefur bent á að hún fari ekki fram á að sérregla gildi um sig heldur að allir sem hafi gert sambærileg mistök njóti sömu úrlausnar. Það sjónarmið er því tekið til skoðunar hvort það að gera kröfu um greiðslu fyrir ákveðinn frest geti falið í sér brot á jafnræði.

Að mati áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema var synjun Háskóla Íslands, á beiðni kæranda um að taka inntökupróf til náms í tannlæknadeild Háskóla Íslands, í samræmi við gildandi reglur um prófið sem höfðu verið auglýstar. Þegar litið er til þess að öðrum umsækjanda, sem ekki hafði greitt próftökugjald innan frests, var synjað með formlegum hætti um próftökurétt, auk þess sem fram kemur í svörum háskólans að fleiri í svipaðri stöðu hafi hringt á skrifstofu háskólans vegna greiðsludráttar og ekki fengið próftökurétt, telur nefndin liggja fyrir að háskólinn hafi hagað málum þannig að fulls jafnræðis hafi verið gætt með líkum. Þótt nákvæmur fjöldi þeirra liggi ekki fyrir verður ráðið af þessum upplýsingum að við kæranda hafi þurft að sæta sama greiðsluskilyrði og aðrir umsækjendur í sambærilegri stöðu.

Þá er tekið til skoðunar hvort ákvörðun um greiðslu próftökugjalds innan tímafrests samrýmist meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Reglurnar tengja próftökurétt við greiðslu gjalds sem ætlað er að standa undir gerð, fyrirlögn og yfirferð prófsins og afmarkar þann hóp sem fær rétt til að þreyta prófið. Nefndin hefur horft til þess við matið að kærandi freistaði þess að greiða gjaldið samdægurs og sýndi þannig ásetning til að þreyta prófið. Jafnframt er litið til undirbúnings hennar, fyrri námsárangurs og þeirra verulegu hagsmuna sem hún hefur af því að geta haldið áfram námi. Synjunin er þannig íþyngjandi og getur haft þýðingu við meðalhófsmatið.

Á móti kemur að kærandi hafði fengið upplýsingar um greiðslutímamarkið með góðum fyrirvara og höfðu upplýsingar í tvígang verið sendar kæranda með tölvupósti. Engin tæknileg mistök áttu sér stað, heldur var einfaldlega ekki gerð sú ráðstöfun að greiðsla bærist innan greiðslufrests.  Nefndin dregur ekki í efa að um mistök hafi verið að ræða en telur þau ekki, með tilliti til jafnræðisreglunnar og skýrra fyrirmæla í 3. gr. reglna nr. 155/2011 um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands, geta vikið frá skýru skilyrði um próftökurétt.

Það vægara úrræði sem kærandi hefur einkum bent á, að tekið yrði við greiðslu eftir lok frests og henni heimiluð próftaka, hefði að mati nefndarinnar búið til fordæmi til framtíðar sem hefði skapað meira ójafnræði, þar sem með því væri verið að raska þeirri formföstu reglu að próftökurétt fái þeir sem skrá sig í prófið og greiða próftökugjald innan frests. Að heimila greiðslu eingöngu vegna misskilnings af því tagi sem hér er lýst hefði því í reynd falið í sér að ekki væri lengur miðað við hinn sérstaklega kynnta lokafrest í slíkum tilvikum. Að mati nefndarinnar fór synjunin, við þessar tilteknu aðstæður, ekki í bága við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga.

Til hliðsjónar hefur nefndin litið til úrskurðar áfrýjunarnefndarinnar frá 30. ágúst 2019 í máli nr. 4/2019. Þar var hafnað kröfu um að fella úr gildi synjun Háskóla Íslands um próftöku í Læknadeild vegna þess að próftökugjald hafði ekki verið greitt fyrir auglýstan eindaga.

Ekki verður heldur fallist á að fyrri árangur kæranda í inntökuprófi veiti henni rétt til að taka þátt í inntökuprófi ársins 2026 án þess að uppfylla skilyrði þess árs. Samkvæmt ákvæðum um inntökupróf sem bætt var við reglur nr. 155/2011 með reglum nr. 124/2023 er réttur til náms á grundvelli prófsins tengdur næsta haustmisseri eftir það próf. Fyrri árangur kæranda, sem samkvæmt eigin lýsingu leiddi þegar til náms á haustmisseri, felur því ekki í sér sjálfstæðan rétt til nýrrar inntöku árið 2026.

Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á annmarka sem leiðir til þess að fella beri hina kærðu synjun úr gildi eru ekki forsendur í þessu kærumáli til að leggja fyrir háskólann að halda sérstakt inntökupróf fyrir kæranda eða taka prófárangur frá árinu 2025 gildan í stað próftöku árið 2026. Er þeim kröfum hafnað sem og þeirri kröfu að háskólanum verði gert að finna aðra sambærilega lausn á námsferli kæranda.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er kveðinn upp eftirfarandi úrskurður:

 
 

ÚRSKURÐARORÐ

Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun sviðsstjóra kennslusviðs Háskóla Íslands, dags. 10. júní 2026, um að synja kæranda um þátttöku í inntökuprófi í tannlæknisfræði árið 2026.

Þá er hafnað kröfum kæranda um að Háskóla Íslands verði gert að heimila henni að þreyta sérstakt próf sem jafngildi inntökuprófi ársins 2026, taka niðurstöður inntökuprófs hennar frá árinu 2025 gildar eða finna aðra sambærilega lausn á námsferli hennar á þeim grundvelli sem var til úrlausnar í málinu.


Helga Vala Helgadóttir 
Eva Halldórsdóttir
Arnaldur Starri Stefánsson

Var efnið hjálplegt?