28. nóvember 2026 /

Mál nr. 108/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 17. nóvember 2026

í máli nr. 108/2025

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að honum sé heimilt að ganga að tryggingu varnaraðila að fjárhæð 600.000 kr. vegna viðskilnaðar hennar við hið leigða við lok leigutíma.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 11. ágúst 2025.

Greinargerð varnaraðila, dags. 18. september 2025.

Athugasemdir sóknaraðila, dags. 26. september 2025.

Athugasemdir varnaraðila, dags.  21. október 2025.

Viðbótarathugasemdir sóknaraðila, dags. 22. október 2025.

Viðbótarupplýsingar varnaraðila sem bárust 9. febrúar 2026 vegna beiðni kærunefndar.

Viðbótarupplýsingar sóknaraðila sem bárust 6. apríl og 10. október 2026 vegna beiðni kærunefndar.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 15. október 2023 til 15. október 2025 um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að C. Ágreiningur er um hvort skemmdir hafi orðið á hinu leigða á leigutíma þannig að sóknaraðila sé heimilt að ganga að tryggingu varnaraðila.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður húsið hafa verið stórskemmt eftir leigutíma varnaraðila. Varnaraðili og samleigjandi hennar hafi neitað því að hafa valdið skemmdum og kveðið húsið hafa verið orðið gamalt. Sóknaraðili hafi byggt húsið og búið þar alla tíð. Ætlunin hafi verið að selja húsið en það hafi ekki verið hægt vegna hækkana á stýrivöxtum sem hafi verið settar á daginn eftir að húsið hafi verið sett á sölu. Því hafi húsið verið leigt á meðan hann hafi dvalið erlendis.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili kveður bakaraofninn hafi verið gamlan og með tímanum hafi hann slappast eins og önnur heimilistæki. Eðlileg rýrnun húsnæðisins sé ekki á hennar ábyrgð. Vegna veggja þá hafi sóknaraðili séð um sparslvinnu fyrir leigutíma og sé að marka áferðina á veggjunum sé hún þannig hluti af því tjóni sem hann geri kröfu um bætur vegna. Myndir af „bólstruðum púðum“ sem séu úr þeirri skoðunarskýrslu sem sóknaraðili hafi lagt fram beri vott um þetta. Þá sé málningar- og sparslvinna hluti af eðlilegu viðhaldi og slíkt sé á ábyrgð sóknaraðila.

Gerð sé himinhá krafa vegna lagfæringa á innréttingum og hurðum. Krafan beri þess keim að sóknaraðili hyggist endurnýja innréttingar hússins, en þær séu um 20 ára gamlar og hafi, eins og annað innbú, rýrnað með tímanum. Varnaraðili eigi ekki að bera kostnað við það, enda yrði sóknaraðili þannig mun betur settur en hann hafi verið fyrir meint tjón. Sama sé að segja um kröfu vegna lagfæringa á gólfefnum og flísum en gólf og flísar hafi slitnað með eðlilegum umgangi manna í rúm 20 ár. Krafan sé yfirdrifið há og þá sé óumdeilt að gólfefni hafi verið komið til ára sinna eins og fyrri skýrsla hafi borið vott um.

Vegna þeirra úttekta sem sóknaraðili hafi lagt til grundvallar sé rétt að taka fram að um tvær gjörólíkar úttektir sé að ræða, en upphafleg úttekt sem eigi að vera til samanburðar sé mjög almenn. Teknar hafi verið myndir af herbergjum hússins og þeim lýst í grófum dráttum. Þær séu í raun ekki samanburðarhæfar, enda önnur talsvert nákvæmari en hin og hljóti sóknaraðili að þurfa að bera hallann af því að fyrri skýrslan sé ekki vel til samanburðar fallin. Í þokkabót sé fyrri úttektin óvönduð. Þar hafi rispur á gólfi verið sýnilegar en því hafi samt verið lýst „í góðu ástandi“ og sjáanlegt hafi verið að pallur hússins hafi ekki fengið viðhald en hann hafi samt fengið góða einkunn og sagður olíuborinn, þótt grámi hafi greinilega sést og mosaslykja. Veggjum og gluggum hafi verið lýst úr fjarlægð sem góðum, en ekki hafi verið haft fyrir því að mynda þá. Í öðru lagi hafi varnaraðili ekki fengið tækifæri til að gera athugasemd við skoðunarmann eða fá eigin aðila til að framkvæma skoðun, en rétt sé að taka fram að sonur sóknaraðila hafi séð um báðar skoðanir. Varnaraðili hafi ekki fengið að vera viðstödd lokaúttektina.

IV. Athugasemdir sóknaraðila

Í athugasemdum sóknaraðila segir að það sé engin ástæða til að fara illa með húsið þótt það sé gamalt. Sóknaraðili hafi byggt húsið og búið í því í 23 ár og hafi það verið í góðu standi við upphaf leigutíma. Bakaraofninn sé gamall en það þýði ekki að það þurfi að ganga illa um hann. Sóknaraðili hafi ekki verið upplýstur um að hann væri bilaður eða að glerhurð á eldhússkáp væri brotin. Í ljósi afstöðu varnaraðila til kröfu sóknaraðila vegna málunar sé til þess vísað að í upphafi leigutíma hafi húsið verið í góðu standi samkvæmt skýrslu sem varnaraðili hafi samþykkt. Höfuðgafl hafi ekki verið límdur á vegg með leyfi sóknaraðila, né heldur svartir límborðar á öll þrep á stiga. Brotnar flísar í eldhúsi falli ekki undir eðlileg slit og við upphaf leigutíma hafi hurðir og innréttingar verið í góðu ástandi. Mikið rusl hafi verið skilið eftir, en fara hafi þurft fjórar ferðir með það. Varnaraðili hafi samþykkt fyrri úttektina og seinni úttektin hafi verið gerð af öðrum skoðunarmanni. Myndirnar beri vott um slæma umgengni. Vegna sólpallsins þá hafi hann verið þveginn með sápu á hverju ári og verið olíuborinn.

V. Athugasemdir varnaraðila

Í athugasemdum varnaraðila segir að sóknaraðili hafi fært takmarkaðar sönnur fyrir réttmæti kröfu sinnar vegna bakaraofnsins, en hann hafi verið gamall. Draga megi þá ályktun að verði fallist á kröfu vegna hurðalama sem hafi gefið sig sé hann mun betur settur en áður en lamirnar hafi gefið sig. Ástæða þess að sóknaraðili hafi ekki verið upplýstur um bilun ofnsins sé sú að slest hafði upp á samskipti aðila og varnaraðila þótt útséð að hægt yrði að ræða þessi mál með eðlilegum hætti. Varnaraðili hafi fest nokkra höfuðpúða við vegginn með þar til gerðum límborðum. Við skil húsnæðisins hafi verið mikill handagangur í öskjunni og hún aðeins haft tíma til að fjarlægja einn þeirra af veggnum, enda mikil áhersla lögð á að hún flýtti sér út. Þrátt fyrir þetta hafi hún með betri árangri fjarlægt höfuðpúðana og af því megi sjá að sóknaraðili hafi sjálfur valdið tjóninu. Þess utan hafi sóknaraðili vitað af höfuðpúðunum og ekki gert athugasemdir vegna þeirra fyrr en nú. Sömu sögu sé að segja af límborðunum sem hafi verið settir upp sem nauðsynleg varúðarráðstöfun eftir að varnaraðili og börn hennar höfðu næstum slasað sig í tröppunum. Sonur sóknaraðila hafi séð borðana og hrósað varnaraðila fyrir góða lausn á vandamálinu. Þá sé krafa þessi ekki studd fullnægjandi gögnum, en henni fylgi einungis fjárhæð. Við upphaf leigutíma hafi innréttingar verið í ágætis ásigkomulagi, en engu að síður verið komnar til ára sinna. Um hafi verið að ræða eðlilega rýrnun en þess utan sé krafa sóknaraðila ekki nægilega rökstudd til þess að unnt sé að fallast á hana með öllu. Flísar í borðstofu hafi verið brotnar við upphaf leigutíma og parketið langt frá því að vera í góðu ásigkomulagi. Sóknaraðili hafi sagt að það þyrfti reglulega að þrýsta því niður og í nokkur skipti hafi það verið límt niður. Þess utan hafi sóknaraðilar ekki sýnt fram á raunverulegt tjón, heldur aðeins fleygt fram upphæð.

Fyrri úttektin sé of almenn til að unnt sé að leggja hana til grundvallar. Hún bjóði ekki upp á góðan samanburð, enda sýni hún aðeins í nokkrum tilfellum sömu atriði og seinni skýrslan. Í fyrri úttektinni séu að mestu leyti yfirlitsmyndir og almennar staðhæfingar, en sú seinni sýni nærmyndir af meintum skemmdum. Þá geti skoðunaraðili ekki talist hlutlaus þar sem hann og sonur sóknaraðila séu þeir einu sem starfi hjá því fyrirtæki sem hafi annast úttektina. Þá hafi viðhald á sólpalli ekki verið á ábyrgð varnaraðila. Varnaraðili hafi farið fram á að fara um húsið til þess að taka myndir en því hafi sóknaraðili neitað.

VI. Niðurstaða

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði varnaraðili fram ábyrgðartryggingu að fjárhæð 600.000 kr. sem hún keypti hjá D ehf. við upphaf leigutíma. Sóknaraðili gerir kröfu um að ganga að henni allri vegna skemmda sem hafi orðið á bakaraofni, málunar á íbúðinni  sem og vegna lagfæringa sem þörf hafi verið á á innréttingum, hurðum, gólfi og flísum.

Leigutíma samkvæmt skriflegum leigusamningi átti að ljúka 15. október 2025, en af gögnum málsins verður ráðið að varnaraðili hafi skilað hinu leigða 2. júní 2025, eftir uppsögn á leigutímanum. Sóknaraðili gerði bótakröfu í tryggingu varnaraðila 23. sama mánaðar með tölvupósti til Leiguskjóls. Samtals nam krafan 3.529.498 kr. en trygging varnaraðila hjá Leiguskjóli nemur 600.000 kr. Með tölvupósti D 29. júlí 2025 var sóknaraðili upplýstur um að varnaraðili hefði hafnað kröfunni og barst kæra sóknaraðila kærunefnd 11. ágúst sama ár og þar með innan frests, sbr. 8. mgr. 40. gr. húsaleigulaga.

Krafa sóknaraðila, samtals að fjárhæð 3.529.498 kr., sundurliðast með eftirfarandi hætti:

1.     Viðgerð á bakaraofni......................................................... 50.000 kr.

2.     Sparsl og málun....................................................... 350.000 kr.

3.     Lagfæring á innréttingum/hurðum.................................................... 2.238.998 kr.

4.     Lagfæring á gólfefnum og flísum....................................................... 890.500 kr.

Að beiðni sóknaraðila gerði E úttekt á hinu leigða fyrir upphaf leigutíma eða 9. október 2023 en í skoðunarblaði fyrirtækisins segir að báðir aðilar fái afrit af skýrslunni. Sama fyrirtæki gerði úttekt við lok leigutíma að beiðni sóknaraðila og var jafnframt tekið fram í þeirri skýrslu að báðir aðilar fái afrit af henni. Varnaraðili kveðst hvorki hafa fengið tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri við skoðunarmann né framkvæma eigin skoðun. Samkvæmt framangreindu skoðaði téður úttektaraðili húsnæðið einhliða við upphaf og lok leigutíma, þ.e. án þess að varnaraðila hafi verið gefinn kostur á að vera viðstödd. Kærunefnd telur að úttektirnar uppfylli því hvorki skilyrði 1. mgr. 69. gr. húsaleigulaga um sameiginlegar úttektir né 3. mgr. sama ákvæðis um að leigjandi og leigusali skuli koma sér saman um úttektaraðila. Þess utan kveður varnaraðili að sonur sóknaraðila sé einn af tveimur starfsmönnum hjá téðu fyrirtæki og hefur sóknaraðili ekki mótmælt því. Í því ljósi er ekki unnt að telja að um óháðan úttektaraðila hafi verið að ræða. Telur nefndin að framangreint rýri þegar nokkuð sönnunargildi þeirra úttekta sem sóknaraðili byggir málatilbúnað sinn á, en þó liggur fyrir að varnaraðili samþykkti fyrri úttektarskýrsluna.

Í úttektarskýrslu Fasteignaskoðunar.is frá 3. júní 2025 var heildarkostnaður vegna framkvæmdatillagna áætlaður 4.180.478 kr. með eftirfarandi verkþáttum:

Viðgerð á bakaraofni......................................... 50.000 kr.

Málun innandyra og sparslvinna....................... 350.000 kr.

Málning úti á m² húss........................................ 40.000 kr.

Lagfæring á innréttingum/hurðum.................... 2.238.998 kr.

Lagfæring á gólfefnum/flísum.......................... 890.500 kr.

Endurnýja gler í handriði í stiga........................ 125.980 kr.

Gelarinn (gelpúði á stigahandrið)     40.000 kr.

Endurnýjun á granítborðplötu     350.000 kr.

Ruslaferðir     95.000 kr.

Magntöluskrá (öll verð eru með vsk.)     4.180.478 kr.

Sóknaraðili gerði hins vegar einungis kröfu í tryggingu varnaraðila vegna fyrstu fjögurra framangreindra liða, samtals að fjárhæð 3.529.498 kr. Að beiðni kærunefndar lagði sóknaraðili fram frekari sundurliðun á liðnum „lagfæring á innréttingum/hurðum“ samtals 2.238.998 kr. sem sundurliðast:

Niðurrif     186.500 kr.

Smíði og viðgerð á innréttingu     428.000 kr.

Efni í innréttingu (plötur, festingar o.fl.)     356.800 kr.

Viðgerð og/eða endurnýjun á hurðum     298.000 kr.

Lamir, skrár, handföng o.fl.     124.500 kr.

Slípun, spörslun, málun og/eða lökkun     264.900 kr.

Flutningur, förgun og tiltekt     76.500 kr.

Uppsetning og lokafrágangur     214.700 kr.

Smáefni og viðgerðarkostnaður     80.298 kr.

Ófyrirséð     208.800 kr.

Vegna kröfu um viðgerð á bakaraofni byggir varnaraðili á því að ofninn hafi verið gamall og rýrnun hans eðlileg. Fellst hún þó á að lamir hafi brotnað og segir í athugasemdum hennar að hún hafi ekki látið vita af bilun ofnsins vegna samskiptaörðugleika aðila. Kærunefnd telur að þar sem viðurkennt er með þessu að skemmdir hafi orðið á bakaraofni á leigutíma og engin gögn liggja því til stuðnings að það sé einungis að rekja til aldurs ofnsins verði að fallast á að varnaraðili bæti tjón þetta. Er sóknaraðila því heimilt að fá greiddar 50.000 kr. úr tryggingu varnaraðila vegna þessa.

Krafa vegna spörslunar og málunar byggir á því að veggir hafi verið illa sparslaðir og göt verið í veggjum við lok leigutíma. Þá hafi verið skemmdir eftir rúmgafl sem hafi verið límdur á vegg í einu herberginu. Varnaraðili kveðst hafa fest rúmgaflinn á vegginn en aðeins náð að fjarlægja einn hluta hans vegna kröfu sóknaraðila um að hún flýtti sér út. Kærunefnd telur að hafa beri hliðsjón af því við úrlausn þessarar að kröfu að það fellur undir hefðbundna notkun á húsnæði að bora göt í veggi til að hengja upp muni og myndir, sem getur þó krafist samþykkis leigusala, og þá liggur jafnframt fyrir að búið var að sparsla veggina, að minnsta kosti að hluta til, við lok leigutíma. Burtséð frá því hvort sóknaraðilar meti þá vinnu ófullnægjandi eða ekki liggur fyrir að varnaraðila var ekki gefinn kostur á úrbótum í þessu tilliti, sbr. 2. mgr. 71. gr. húsaleigulaga. Þá fellur það undir viðhaldshlutverk leigusala að halda hinu leigða í leiguhæfu ástandi, meðal annars með því að láta mála það með hæfilegu millibili. Að framangreindu virtu fellst kærunefnd ekki á þessa kröfu sóknaraðila.

Krafa sóknaraðila vegna lagfæringa á innréttingum/hurðum byggir á fyrrnefndum úttektarskýrslum. Undir þennan kröfulið fellir sóknaraðili meðal annars brotið gler í eldhúsinnréttingu og brot úr borðplötu á baðherbergi. Kærunefnd telur að þar sem varnaraðili samþykkti fyrri úttektina og af henni má ráða að þessar skemmdir hafi þá ekki verið til staðar verður að fallast á að varnaraðili greiði bætur vegna þessa. Hvað varðar aðra hluta þessarar kröfu þá sýnir seinni úttektin nærmynd af spónplötu í eldhúsi en ekki eru til samanburðar myndir úr fyrri úttekt hér um, sama á við um nærmyndir sem teknar voru af þéttilista við útihurð, hurðum, hurðarkörmum og fleira. Engar nærmyndir voru teknar við úttektina við upphaf leigutíma en þess utan sýna téðar nærmyndir jafnframt ummerki sem má að minnsta kosti að nokkru leyti fella undir hefðbundin slit. Verður jafnframt að líta til þess sem að framan greinir um takmarkað sönnunargildi lokaúttektarinnar, sem og skorts á sameiginlegri úttekt bæði við upphaf og lok leigutíma. Telur nefndin því að meta verði bætur að álitum hér vegna brots á gleri í eldhúsinnréttingu og gelarin, þ.e. gelpúði fyrir glerið í stigahandriðinu, sem virðist hafa verið fjarlægt af vegg við lok leigutíma þrátt fyrir að fyrri úttektarskýrsla hafi kveðið á um að það yrði skilið eftir að leigutíma loknum. Telur nefndin að hóflegt sé að miða bætur vegna alls þessa við 40.000 kr.

Einnig byggir krafa sóknaraðila vegna gólfefna og flísa á téðum úttektum. Í lokaúttekt segir að rakaskemmdir séu á gólfefni í svefnherbergi og flís brotin. Kærunefnd telur að sömu sjónarmið eigi við hér um sönnunargildi lokaúttektarinnar, sem og skort á sameiginlegri úttekt. Þá telur nefndin að þau gögn sem sóknaraðili hefur teflt fram, sem eru eingöngu téðar úttektir, geti ekki  réttlætt bótakröfu sem nemi 3.529.498 kr. í þessu tilliti. Allt að einu er óumdeilt að varnaraðili setti límborða á tröppur en ummerki eru á parketinu eftir að þeir voru fjarlægðir. Þykir því rétt að meta bætur að álitum vegna þess. Verður hæfileg bótafjárhæð talin 50.000 kr.

Samkvæmt framangreindu er sóknaraðila heimilt að fá greiddar samtals 140.000 kr. úr tryggingu varnaraðila, þ.e. 50.000 kr. vegna bakaraofns, 40.000 kr. vegna skemmda á innréttingu og gelara og 50.000 kr. vegna ummerkja á parketi eftir límborða. Að öðru leyti er bótakröfu sóknaraðila hafnað.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

ÚRSKURÐARORÐ:

Sóknaraðila er heimilt að fá greiddar 140.000 kr. úr tryggingu varnaraðila.

 
 
 

Reykjavík, 17. nóvember 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 
 

Þorvaldur Hauksson                                 Eyþór Rafn Þórhallsson

 
 
 

Var efnið hjálplegt?