Mál nr. 136/2025 - Álit
ÁLIT
KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA
í máli nr. 136/2025
Sambyggður bílskúr. Breytingar á þaki.
I. Málsmeðferð kærunefndar
Með álitsbeiðni, dags. 10. október 2025, beindu A og B, hér eftir nefnd álitsbeiðendur, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við C og D, hér eftir nefnd gagnaðilar.
Auk álitsbeiðni var greinargerð gagnaðila, dags. 30. október 2025, athugasemdir álitsbeiðenda, dags. 17. nóvember 2025 og athugasemdir gagnaðila, dags. 1. desember 2025, lagðar fyrir nefndina.
Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 17. nóvember 2026.
II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Um er að ræða fjöleignarhúsið að E. Samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu frá 10. janúar 2008 skiptist húsið í tvo matshluta, annars vegar íbúðarhúsnæði og hins vegar bílskúr. Íbúðarhúsnæðið er þríbýli og bílskúrinn skiptist í tvær einingar. Álitsbeiðendur eru eigendur íbúðar í húsinu og bílskúrs, líkt og gagnaðilar.
Endanlegar kröfur álitsbeiðenda eru:
I. Að viðurkennt verði að gagnaðilar hafi brotið gegn lögum nr. 26/1994 um fjöleignarhús með því að breyta sameiginlegu þaki án samþykkis álitsbeiðanda.
II. Að gagnaðilum verði gert að fjarlægja loftunartúðurnar og koma þakinu í fyrra horf á sinn kostnað.
III. Að viðurkennt verði að álitsbeiðendur eigi rétt á endurgreiðslu kostnaðar eða skaðabótum vegna þeirrar röskunar sem framkvæmdin hefur valdið.
Kröfur gagnaðila eru:
I. Að málinu verði vísað frá kærunefnd húsamála.
II. Að öllum kröfum álitsbeiðanda verði hafnað.
Sjónarmið álitsbeiðenda
Í álitsbeiðni er rakið að aðilar hafi á árinu 2023 endurnýjað þak bílskúrsins og skipt kostnaðinum af þeim framkvæmdum að jöfnu. Verktaki hafi lagt sérstaka áherslu á hönnun þaksins þannig að vatn ætti sem greiðasta leið af þakfletinum. Á húsfundi 29. mars 2025 hafi gagnaðilar kynnt hugmyndir um að breyta bílskúr sínum í íbúðarhæft húsnæði, sem aðrir eigendur hafi samþykkt munnlega. Framkvæmdir hafi hafist í ágúst 2025 en í tengslum við þær hafi gagnaðilar látið setja sex loftunartúður á þak bílskúrsins, eina á hvert sperrubil, án þess að leita eftir formlegu samþykki álitsbeiðenda eða húsfundar. Túðurnar séu staðsettar á þakhelmingi gagnaðila en eins nálægt þakhelmingi álitsbeiðenda og hægt sé og á sameiginlegu þaksvæði. Auk ásýndarbreytinga og samráðsleysis við uppsetningu túðanna telja álitsbeiðendur frágang þeirra mögulega ófullnægjandi, sem geti valdið leka og skemmdum á þakinu.
Álitsbeiðendur byggja á því að þak bílskúranna sé sameign samkvæmt 2. mgr. 6. gr. og 1. tölul. 8. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994, enda sé um eitt samhangandi bárujárnsklætt timburþak á sameiginlegu burðarvirki að ræða sem hylji báða eignarhluta. Ytra byrði bílskúrsins, þar á meðal hið samfellda þak, sé í óskiptri sameign eigenda samkvæmt 6., 8. og 9. gr. laga nr. 26/1994. Framkvæmdin feli í sér breytingu á útliti og sameign sem óheimilt hafi verið að ráðast í án lögmæts samþykkis allra eigenda samkvæmt 1. mgr. 30. gr. laga nr. 26/1994 1, auk þess sem brotið hafi verið gegn rétti álitsbeiðenda til þátttöku í ákvarðanatöku samkvæmt 1. mgr. 39. gr. sömu laga.
Álitsbeiðendur telji gagnaðila hafi brotið alvarlega gegn þessum meginreglum með því að taka einhliða ákvörðun um að láta setja sex loftunartúður á sameiginlegt þakið í tengslum við breytingar á bílskúr sínum í íbúðarhúsnæði, án þess að boða til húsfundar eða leita eftir samþykki álitsbeiðenda fyrirfram. Framkvæmdin hafi falið í sér verulegt inngrip í nýlegt þak mannvirkisins. Álitsbeiðendur telji fráganginn ófullnægjandi og hættulegan, þar sem óhreinindi og vatn safnist fyrir aftan við túðurnar og beinist að þakhelmingi álitsbeiðenda, sem auki verulega líkur á leka, tæringu og skemmdum. Álitsbeiðendur hafni því að um neyðaraðgerðir hafi verið að ræða í skilningi 37. eða 38. gr. laganna og krefjist þess að gagnaðilum verði gert að fjarlægja túðurnar og koma þakinu í fyrra horf á eigin kostnað, auk þess að svara fyrir þá röskun sem hlaust af framkvæmdinni. Loks mótmæli álitsbeiðendur frávísunarkröfum gagnaðila.
Sjónarmið gagnaðila
Gagnaðilar byggja frávísunarkröfu sína á þremur þáttum. Í fyrsta lagi kveða þeir skort á samaðild, þar sem málinu hafi aðeins verið beint að öðrum gagnaðilanum en ekki þeim báðum en þau séu meðeigendur og beri óskipta ábyrgð sem krefjist óskiptrar aðildar. Í öðru vísi þeir til 2. mgr. 8. gr. reglugerðar um kærunefnd húsamála nr. 1355/2019, þar sem kveðið sé á um að mál skuli að jafnaði hafa hlotið afgreiðslu innan húsfélags áður en nefndin taki það fyrir, en álitsbeiðendur hafi aldrei boðað til húsfundar vegna málsins. Í þriðja lagi séu kröfur álitsbeiðenda óskýrar og settar fram sem lögfræðilegar vangaveltur en ekki raunhæfar kröfur um tiltekna niðurstöðu í skilningi 3. mgr. 8. gr. sömu reglugerðar.
Efnislega mótmæli gagnaðilar því ekki að þakið sé í sameign en bendi á að uppsetning loftunartúðanna hafi verið nauðsynlegt viðhald til að verja eignina gegn rakaskemmdum. Fagaðili hafi metið að loftræsting sem þegar var í þakinu hafi skort sperrubil sem gæti valdið myglu og fúa. Samkvæmt D-lið 1. mgr. 41. gr. og 3. mgr. 30. gr. laga nr. 26/1994 nægi samþykki einfalds meirihluta til venjulegs viðhalds og smávægilegra breytinga. Þá vísa gagnaðilar til 37. og 38. gr. laganna um heimild eiganda til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón þegar eign liggur undir skemmdum.
Gagnaðiliar árétti að framkvæmdin hafi verið unnin af fagmönnum samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012, þau hafi sjálf greitt allan kostnað og engin krafa verið gerð um kostnaðarþátttöku álitsbeiðenda. Gagnaðilar telji að krafa álitsbeiðenda um að fjarlægja túðurnar feli í sér gríðarlega sóun á verðmætum, enda þyrfti að koma sambærilegri loftun fyrir að nýju til að koma í veg fyrir skemmdir. Að lokum hafni gagnaðilar skaðabótakröfu álitsbeiðenda alfarið þar sem ekkert fjártjón liggi fyrir í málinu.
III. Forsendur
Álitsbeiðni er engum annmörkum háð sem getur valdið því að máli þessu verði vísað frá kærunefnd í heild sinni, enda varðar beiðnin afmarkaðan ágreining milli eigenda fjöleignarhúss um réttindi og skyldur þeirra á grundvelli laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús.
Líkt og leiðir af þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu fyrir E frá 10. janúar 2008 er umræddur bílskúr sameign aðila þessa máls á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Í samræmi við það er þak bílskúrsins sameign þeirra í merkingu 6. gr., sbr. 1. tölul. 8. gr. laganna. Álitsbeiðendur áttu því rétt á því að taka þátt í ákvörðun um framkvæmdir gagnaðila um bílskúrsþakið, sbr. 39. gr. sömu laga. Þótt gagnaðilar hafi fengið ráðleggingar um að nauðsynlegt væri að koma fyrir umræddum loftunartúðum bera gögn málsins ekki með sér að skilyrði 37. eða 38. gr. laganna hafi verið uppfyllt til að þau gætu staðið að téðum framkvæmdum án samþykkis álitsbeiðenda. Af framangreindum ástæðum verður fallist á I. kröfulið álitsbeiðenda.
Í 40. gr. laga nr. 26/1994 er fjallað um úrræði eiganda sé hann ekki hafður með í ráðum. Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar getur hann krafist þess að sameiginleg framkvæmd verði stöðvuð eða neitað að greiða hlutdeild í kostnaði vegna hennar þar til lögleg ákvörðun hefur verið tekin. Í þessu máli liggur á hinn bóginn fyrir að framkvæmdirnar eru um garð gengnar og að gagnaðilar stóðu straum af kostnaði við þær.
Litið hefur verið svo á að eigandi fjöleignarhúss geti átt rétt á að undið verði ofan af ólögmætum framkvæmdum annarra eigenda við húsið. Við mat á því hvort slík skylda hvíli á gagnaðilum telur kærunefnd að taka verði tillit til þess að aðrir eigendur fjöleignarhússins höfðu samþykkt að íbúð yrði útbúin í téðum bílskúr sem og að fyrir liggja gögn um að gagnaðilum hafi verið ráðlagt af húsasmíðameistara að koma fyrir loftunartúðum til að bæta loftun bílskúrsþaksins og koma í veg fyrir skemmdir á því, sbr. einkum tölvubréf ráðgjafa þeirra til álitsbeiðenda 8. október 2025. Þótt þessi sjónarmið breyti engu um að framkvæmdirnar voru ólögmætar hafa þær þýðingu fyrir framhald málsins. Er þá haft í huga að ef fallist yrði á kröfu álitsbeiðenda um að gagnaðilum verði gert að fjarlægja loftunartúðurnar og koma þakinu í fyrra horf er ekki ljóst hvort aftur þyrfti að ráðast í framkvæmdir á þakinu til að bregðast við téðum ráðleggingum um loftun þaksins. Eins og atvikum málsins er háttað og þar sem ekki verður séð að umrædd krafa eða ástand bílskúrsþaksins til framtíðar litið hafi verið tekið fyrir á húsfundi verður II. kröfulið álitsbeiðenda vísað frá nefndinni, sbr. 2. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 1355/2019 um kærunefnd húsamála.
Skilja verður fyrri lið III. kröfuliðar álitsbeiðenda á þá vegu að krafist sé endurgreiðslu kostnaðar vegna þeirra framkvæmda sem aðilar réðust í á bílskúrsþakinu á árinu 2023. Sú framkvæmd var óháð þeirri sem gagnaðilar framkvæmdu á árinu 2025 og deilt er um í þessu máli. Verður því ekki fallist á að álitsbeiðendur eigi rétt á endurgreiðslu kostnaðar. Eins og málið liggur fyrir verður ekki heldur fallist á að álitsbeiðendur eigi rétt á skaðabótum þegar af þeirri ástæðu að ekkert liggur fyrir um að þeir hafi orðið fyrir tjóni vegna framkvæmda gagnaðila. Verður III. kröfulið álitsbeiðenda því hafnað.
IV. Niðurstaða
Það er álit kærunefndar að II. kröfulið álitsbeiðenda beri að vísa frá nefndinni.
Það er álit kærunefndar að fallast beri á I. kröfulið álitsbeiðenda en hafna beri III. kröfulið þeirra.
Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson