28. nóvember 2026 /

Mál nr. 142/2025 - Álit

ÁLIT

KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA

í máli nr. 142/2025

 

Húsreglur. Vinnuframlag. Fésekt. Öryggismyndavél.

I. Málsmeðferð kærunefndar

Með álitsbeiðni, dags. 29. október 2025, beindi A, hér eftir nefnd álitsbeiðandi, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við Húsfélagið B, hér eftir nefnt gagnaðili.

Auk álitsbeiðni var greinargerð gagnaðila, dags. 12. nóvember 2025, athugasemdir álitsbeiðanda, dags. 20. nóvember 2025 og athugasemdir gagnaðila, dags. 24. nóvember 2025, lagðar fyrir nefndina.

Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 17. nóvember 2026.

II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Um er að ræða fjöleignarhúsið að C. Álitsbeiðandi er eigandi íbúðar í fjöleignarhúsinu en gagnaðili er húsfélagið.

Ágreiningur aðila lýtur einkum að lögmæti tiltekinna ákvæða í samþykktum húsreglum húsfélagsins, einkum 6. gr. þeirra um skyldubundin þrif á sorptunnum og sorpgeymslu. Þá er ágreiningur um mögulegan kostnað ef slík vinna er ekki innt af hendi, álagningu gjalds vegna vanrækslu á að mæta ávinnudaga húsfélags og skyldur húsfélagsins í tengslum við fyrirhugaða uppsetningu öryggismyndavéla í sameign hússins.

Á húsfundi þann 14. nóvember 2024 var samþykkt breyting á húsreglum húsfélagsins á 6. gr. reglnanna um þrif á sorpgeymslu og sorptunnur samkvæmt tilteknu vaktaplani, nánar tiltekið að þvo skyldi lífrænu tunnuna eftir hverja tæmingu en svörtu tunnurnar eftir þörfum. Á húsfundi hinn 30. september 2025 voru gerðar  breytingar á húsreglunum sem varða ekki þann ágreining sem borinn var undir kærunefndina.

Kröfur álitsbeiðanda eru:

1.     Að viðurkennt verði að ólögmætt sé að skylda eigendur og íbúa til persónulegs líkamlegs vinnuframlags við þrif á lífrænum sorptunnum og sorpgeymslu samkvæmt 6. gr. húsreglna.

2.     Að viðurkennt verði að gagnaðila sé óheimilt að gera kröfu um 30.000 kr. gjald  vegna fjarveru á sameiginlegum tiltektardögum.

3.     Að viðurkennt verði að gagnaðila beri að kaupa ræstiþjónustu fyrir sameign og sorpgeymslu sem sameiginlegan kostnað fari svo að ekki náist samkomulag um sjálfviljugt vinnuframlag.

4.     Að gagnaðila sé óheimilt að koma fyrir öryggismyndavélum í sameign nema gætt sé lögmæts tilgangs og ákvæða persónuverndarlaga.

Kröfur gagnaðila eru:

1.      Gagnaðili krefst þess að öllum kröfum álitsbeiðanda verði hafnað og viðurkennt verði að samþykktir húsfundar og gildandi húsreglur séu lögmætar og bindandi fyrir alla eigendur hússins.

Sjónarmið álitsbeiðanda

Álitsbeiðandi bendir á að samkvæmt meginreglum laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 hvíli ábyrgð eigenda á sameign í fjárhagslegri þátttöku í sameiginlegum kostnaði en ekki í skyldu til persónulegs líkamlegs vinnuframlags. Húsreglur geti ekki gengið svo langt að skylda einstaklinga til vinnu gegn vilja þeirra, enda geti heilsufar, aldur eða aðrar persónulegar aðstæður komið í veg fyrir slíkt. Þá skorti húsfélagið lagaheimild til að beita félagsmenn fésektum, en slík viðurlög eigi sér enga stoð í lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994. Varðandi öryggismyndavélar sé óljóst hvaða svæði eigi að vakta, hvernig myndefnið verði varðveitt og hverjir hafi aðgang að því, sem brjóti í bága við friðhelgi einkalífs íbúa.

Sjónarmið gagnaðila

Gagnaðili byggir á að húsreglurnar hafi verið samþykktar á lögmætum húsfundum með tilskildum meirihluta atkvæða í samræmi við lög um fjöleignarhús nr. 26/1994. Íbúum beri skylda til þess að taka eðlilegt og sanngjarnt tillit til annarra eigenda við hagnýtingu séreignar. Enginn íbúi sé þvingaður líkamlega til verksins, heldur sé hverjum eiganda frjálst að fá annan aðila eða verktaka á sinn kostnað til að sinna sínum hluta verksins geti hann ekki sinnt því sjálfur. Ákvörðun um tiltektardaga hafi verið tekin til að tryggja sanngirni svo allir leggi sitt af mörkum. Uppsetning öryggismyndavéla hafi verið samþykkt á húsfundi til að tryggja öryggi og eignavörslu í húsinu í kjölfar óæskilegrar umgengni.

III. Forsendur

Stjórnun, rekstur og viðhald sameignar fjöleignarhúss fellur undir valdsvið húsfélagsins, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994. Samkvæmt 1. og 4. tölul. 3. mgr. 74. gr. sömu laga skal í húsreglum m.a. kveðið á um umgengni um sameign og hvernig þrifum sameignar skuli háttað og hverjar séu skyldur eigenda í því efni.

Ákvæði 74. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 veita húsfélagi heimild til að skipuleggja tilhögun sameiginlegra verka, svo sem að hvetja til samvinnu íbúa eða skipta verkefnum á milli þeirra. Er því ekki unnt að fallast á kröfu álitsbeiðanda um að húsfélagi sé óheimilt í húsfélagsreglum að kveða á um skyldu eigenda og íbúa til þrifa á sorptunnum og sorpgeymslu samkvæmt 6. gr. húsreglna. Þá skal ákvörðun um kaup á ræstiþjónustu fyrir sameign og sorpgeymslu tekin á húsfundi og ekki á valdi kærunefndar að kveða á um skyldu húsfélags til að kaupa slíka þjónustu.

Kærunefnd getur hins vegar ekki fallist á að fjöleignarhúsalög veiti húsfélögum heimild til að innheimta gjöld af einstaka eigendum á þeirri forsendu að þeir sinni ekki þrifum á sameign eða að þrifum sé ekki sinnt með fullnægjandi hætti. Er því fallist á kröfu álitsbeiðanda um viðurkenningu á að gagnaðila sé óheimilt að krefja eigendur um gjald vegna vanrækslu á þrifum sameignar eða vegna þess að eigendur mæti ekki á tiltektardaga.

Kærunefndin hefur áður fjallað um kröfu álitsbeiðanda um að viðurkennt verði að ákvörðun húsfundar um uppsetningu á öryggismyndavélum í húsinu sé ólögmæt, sbr. álit nefndarinnar í máli nr. 132/2024, þar sem umræddri kröfu var hafnað. Í fyrrnefndu áliti benti nefndin á að vöktunin þurfi að vera í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.

IV. Niðurstaða

Það er álit kærunefndar húsamála að fallast beri á kröfu álitsbeiðanda í lið II um  viðurkenningu á að gagnaðila sé óheimilt að gera kröfu um innheimtu gjalds vegna fjarveru íbúa á sameiginlegum tiltektardögum. Öðrum kröfum álitsbeiðanda er hafnað.

 
 

Reykjavík, 17. nóvember 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 
 

Snædís Björt Agnarsdóttir                                                      Eyþór Rafn Þórhallsson

 

Var efnið hjálplegt?