Mál nr. 151/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 17. nóvember 2026
í máli nr. 151/2025
A
gegn
B hf.
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A
Varnaraðili: B hf.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að greiða honum 1.000.282 kr.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila um miskabætur verði vísað frá kærunefnd en öðrum kröfum hafnað. Til vara krefst varnaraðili þess að kröfur sóknaraðila verði lækkaðar.
Eftirtalin gögn, ásamt fylgiskjölum, voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 5. nóvember 2025.
Greinargerð varnaraðila, dags. 19. nóvember 2025.
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 24. nóvember 2025.
Athugasemdir varnaraðila, dags. 2. desember 2025.
Viðbótarskýringar og gögn sem bárust frá sóknaraðila 17. mars 2026 vegna beiðni kærunefndar.
Viðbótarskýringar sem bárust frá varnaraðila 20. mars 2026 vegna beiðni kærunefndar.
Viðbótarathugasemdir varnaraðila, dags. 9. apríl 2026.
Viðbótarathugasemdir varnaraðila, dags. 9. september 2026.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu sjö tímabundna leigusamninga. Upphaflega tók sóknaraðila á leigu íbúð varnaraðila að C. Meðal gagna málsins liggja fyrir tveir skriflegir samningar vegna þeirrar íbúðar. Sá fyrri vegna tímabilsins 1. september 2017 til 31. ágúst 2019 og sá síðari frá 1. september 2019 til 31. ágúst 2021 en þeim samningi lauk með samkomulagi 16. janúar 2020. Sóknaraðili tók næst á leigu íbúð að Vesturbergi 8 með samningi frá 6. desember 2019 til 31. desember 2020 sem var endurnýjaður í tvígang, fyrst frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2022 og síðan frá 1. janúar 2023 til 31. desember sama ár, en honum lauk 9. mars 2023. Loks gerðu aðilar leigusamning um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila að D frá 9. mars 2023 til 31. mars 2024, sem var síðan endurnýjaður frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2025. Sóknaraðili greiddi orkureikninga vegna C á tímabilinu 16. janúar 2020 til 5. nóvember 2025 þrátt fyrir að leigusamningi aðila um þá íbúð hafi lokið frá fyrrnefndu dagsetningunni. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort sóknaraðili eigi rétt á að varnaraðili greiði honum fjárhæð sem nemur þeim kostnaði sem sóknaraðili greiddi vegna íbúðar að C eftir að leigusamningi aðila um þá íbúð lauk. Þá er deilt um hvort sóknaraðili eigi rétt til miskabóta frá varnaraðila vegna ætlaðs andlegs tjóns og samskiptaleysis.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður varnaraðila ekki vilja endurgreiða henni ofgreiddan kostnað vegna rafmagns-, hita- og vatns sem hún hafi fyrir mistök greitt í fimm ár þar sem hún hafi talið sig vera greiða fyrir eigin notkun. Varnaraðili hafi vísað til þess að um vanrækslu sóknaraðila hafi verið að ræða þar sem það segi í leigusamningi aðila en þetta hafi ekki verið tilgreint í fyrsta leigusamningi sem þau hafi gert fyrir fimm árum síðan. Sóknaraðili hafi greitt orkukostnað vegna íbúðar að C tímabilið 16. janúar 2020 til 5. nóvember 2025, þrátt fyrir að hafa flutt þaðan 16. janúar 2020. Á meðan hún hafi búið í C hafi engin nákvæm útskýring verið um rafmagnsdreifingu eða fyrirspurn um skráningu. Aðrir hafi búið í íbúðinni á téðu tímabili en varnaraðili beri ábyrgð á því að skrá nýja leigutaka.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveður að í eignasafni sínu séu um þúsund íbúðir og leigjendum hans gefist þannig kostur á að færa sig á milli íbúða eða hverfa breytist fjölskylduhagir. Aðilar hafi gert sjö tímabundna leigusamninga um þrjár íbúðir sem hafi að mestu verið samhljóða um réttindi og skyldur. Eitt þeirra atriða sem hafi engum breytingum tekið hafi verið skylda sóknaraðila til að greiða vatns-, rafmagns- og hitunarkostnað. Undantekning frá þessu hafi þó verið fyrsti leigusamningurinn þar sem varnaraðili hafi borið að greiða fyrir notkun vatns- og hitunar en sóknaraðili rafmagnskostnað.
Skylda sóknaraðila til að greiða téðan orkukostnað hafi komið fram í 6. gr. leigusamnings aðila og þar hafi jafnframt komið fram að hún bæri ábyrgð á því að tilkynna viðeigandi veitustofnunum að hún væri nýr notandi. Hafi þar ennfremur veriðsagt að sé sérgreindur heitavatnsmælir fyrir húsið greiði sóknaraðili fyrir notkun á heitu vatni og annan kostnað því tengdu. Loks hafi komið fram að við lok leigutíma skyldi sóknaraðili lesa af vatns- og rafmagnsmælum og tilkynna flutning til viðeigandi veitufyrirtækis. Vanræki hann að tilkynna flutning bæri hann fulla ábyrgð á ógreiddum vatns- og rafmagnsreikningum þar til flutningur hafi verið tilkynntur. Þar sem veitustofnanir innheimti sérstakt gjald fyrir leigu á mælum eða öðrum slíkum búnaði sem þær leggi til skuli sóknaraðili jafnframt greiða það gjald.
Til að fyrirbyggja vandamál við skil íbúða sendi varnaraðili leigjendum sínum sérstaka skilapósta þar sem meðal annars komi fram að þeir skuli lesa af mælum, tilkynna flutning og tilkynna varnaraðila sem greiðanda reiknings. Sóknaraðili hafi fengið slíka tölvupósta við skil á öllum eignunum.
Krafa sóknaraðila um bætur vegna raforkukostnaðar nemi fyrir tímabilið janúar 2020 til október 2025 samtals 245.349 kr. vegna dreifingar og 167.733 kr. vegna notkunar. Reikningar séu greiddir eftir á og miðist framangreindar fjárhæðir því við notkun frá desember 2019 til september 2025. Kröfur sóknaraðila séu því verulega umfram raunverulegan kostnað. Skorað sé á sóknaraðila að leggja fram reikninga til að varpi ljósi á nákvæmar fjárhæðir vegna kröfu hennar.
Kröfur sóknaraðila eigi sér enga stoð í samningum aðila eða húsleigulögum. Leigusamningar aðila hafi verið skýrir um skyldu hennar til að greiða raforkukostnað og ábyrgð hennar á að tilkynna flutning við skil hins leigða. Þessa ábyrgð megi einnig leiða af 23. gr. húsaleigulaga. Þessi skylda hafi jafnframt verið ítrekuð í téðum skilapóstum varnaraðila.
Sóknaraðili hafi greitt alla umrædda raforkureikninga athugasemdalaust og líti út fyrir að hún hafi ekki kynnt sér reikningana fyrr en seint á árinu 2025. Hefði hún gert það fyrr hefði hún mátt sjá að hún væri að greiða reikninga fyrir húsnæði sem hún hafi ekki lengur búið í og þannig getað takmarkað tjón sitt. Það hafi verið rík ástæða fyrir sóknaraðila að kynna sér betur umrædda raforkureikninga, til að mynda hljóti fjárhæð þeirra að hafa gefið tilefni til nánari skoðunar. Sóknaraðili verði sjálf að bera hallann af þessu.
Með vísan til 3. gr. laga nr. 150/2007 séu kröfur frá febrúar 2020 til nóvember 2021 fyrndar. Um sé að ræða kröfur að fjárhæð 124.566 kr. vegna dreifingar og 54.201 kr. vegna notkunar. Tómlæti sóknaraðila leiði þó til sömu niðurstöðu um allar kröfur sóknaraðila. Þá hafi hún í reynd greitt raforkukostnað fyrir aðra leigjendur varnaraðila sem hafi haft íbúðina að C á leigu. Eigi hún einhverja kröfu vegna ofgreidds raforkukostnaðar sé hún samkvæmt almennum reglum kröfuréttar á hendur þessum þriðju aðilum en ekki varnaraðila.
Með vísan til framangreinds beri að hafna kröfum sóknaraðila um skaðabætur vegna raforkukostnaðar. Til vara telur varnaraðili að þær geti að hámarki numið 234.261 kr. vegna fyrningar. Athugasemdalausar greiðslur reikninga og tómlæti af hálfu sóknaraðila skuli þó leiða til þess að lækka betur bætur hennar verulega. Kröfum um miskabætur vegna ætlaðs andlegs tjóns sé hafnað. Um sé að ræða kröfu sem sé ósönnuð og órökstudd. Þá skorti kærunefnd heimild að lögum til að úrskurða um miskabætur.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Í athugasemdum sóknaraðila segir að hún hafi aldrei skráð sig sjálf sem notanda hjá veitustofnun því varnaraðili hafi séð um slíkt og á þeim tíma hafi ekki verið látið vita líkt og gert sé í dag. Þá hafi sóknaraðili ekki skilið íslensku líkt og hún geri í dag. Þess utan hafi verið kveðið á um það í fyrsta samningi að leigusali bæri vatns- og hitunarkostnað, einnig í sameign.
V. Athugasemdir varnaraðila
Í athugasemdum varnaraðila eru fyrri sjónarmið ítrekuð. Einnig segir að deilt sé um kostnað vegna rafmagnsnotkunar- og dreifingar vegna leigu á fyrstu íbúðinni. Þegar sóknaraðili hafi skilað þeirri íbúð hafi hún ekki sinnt þeirri skyldu sinni að tilkynna flutning til viðeigandi veitustofnunar. Líta verði svo á að seinni leigusamningur aðila um þá íbúð liggi til grundvallar ágreiningum en hann hafi verið í gildi þegar hún hafi skilað íbúðinni. Í málatilbúnaði sínum hafi sóknaraðili aftur á móti vísað til fyrri leigusamnings um þá íbúð. Það breyti þó engu þar sem í báðum samningum sé í 6. gr. vísað til þess að leigutaki greiði rafmagnskostnað og önnur orkukaup og beri ábyrgð á að tilkynna flutning.
VI. Niðurstaða
Krafa sóknaraðila er annars vegar reist á því að varnaraðila beri að greiða henni 678.282 kr. vegna vatns-, rafmagns- og hitunarkostnaðar íbúðar að C eftir að leigutíma sóknaraðila lauk og hins vegar 322.000 kr. í miskabætur.
Hlutverk kærunefndar húsamála á grundvelli húsaleigulaga nr. 36/1994 er að kveða upp úrskurð um ágreining aðila leigusamnings um gerð og/eða framkvæmd leigusamnings, sbr. 1. mgr. 85. gr. laganna. Hefur kærunefnd því lagt til grundvallar að ekki sé á valdsviði hennar að fjalla um miskabætur, sbr. til dæmis úrskurð nefndarinnar 11. október 2022 í máli nr. 67/2022. Verður kröfulið sóknaraðila um miskabætur því vísað frá nefndinni.
Grundvöllur fyrri kröfuliðar sóknaraðila er nokkuð á reiki. Í kæru hennar til nefndarinnar kveðst hún hafa greitt reikninga vegna vatns-, rafmagns- og hitunarkostnaðar áðurnefndrar íbúðar eftir að leigutíma lauk 16. janúar 2020 fram til 5. nóvember 2025. Hún hefur þó aðeins lagt fram gögn sem snerta rafmagnskostnað íbúðarinnar. Þá hefur varnaraðili vísað til þess að krafa sóknaraðila sé afmörkuð við slíkan kostnað. Þar sem gögn málsins benda til að sú afstaða sé á rökum reist verður litið svo á að ágreiningsefni málsins sé afmarkað við það hvort sóknaraðili eigi rétt á því að varnaraðili greiði henni þá fjárhæð sem nemur rafmagnskostnaði vegna íbúðar að C á framangreindu tímabili.
Í grein 6.2 í leigusamningi aðila um síðastnefnda íbúð, sem var í gildi þegar leigusambandi aðila lauk um þá íbúð 16. janúar 2020, kom fram að leigjandi greiddi rafmagnskostnað leiguhúsnæðisins. Því næst sagði að leigjandi skyldi tilkynna viðeigandi veitustofnunum að hann væri nýr notandi. Þá var mælt fyrir um að við lok leigutíma skyldi leigjandi lesa af rafmagnsmælum og tilkynna flutning til viðeigandi veitufyrirtækis. Vanrækti hann að tilkynna flutning bæri hann fulla ábyrgð á ógreiddum vatns- og rafmagnsreikningum þar til flutningur hefði verið tilkynntur.
Í 23. gr. a húsaleigulaga nr. 36/1994, sem var lögfest með 18. gr. laga nr. 63/2016 um breytingu á húsaleigulögum (réttarstaða leigjanda og leigusala), kemur fram að leigjandi greiði rafmagnskostnað í hinu leigða húsnæði. Þá segir að leigjandi skuli tilkynna viðeigandi veitustofnunum að hann sé nýr notandi.
Í athugasemdum við 17. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 63/2016, sem vísað er til í athugasemdum við 18. gr. frumvarpsins, kemur fram að reynslan hafi sýnt að oft gleymist að lesa af rafmagnsmælum við afhendingu leiguhúsnæðis auk þess að tilkynna viðeigandi veitustofnunum um nýja notendur. Í ljósi þess að áfram sé gert ráð fyrir að leigjandi greiði kostnað af notkun rafmagns þyki rétt að jafnframt verði mælt fyrir um að leigjanda beri skylda til að tilkynna um nýjan notanda til viðeigandi veitustofnana. Ætti framangreind breyting að vera til þess fallin að síður gleymist að lesa af mælum og tilkynna um nýjan notanda þar sem ljóst liggur fyrir hver ber ábyrgð á því að þessar upplýsingar berist viðkomandi veitustofnun.
Leigutíma sóknaraðila á íbúðinni að C lauk 16. janúar 2020 og fyrir liggur að nýr leigjandi tók íbúðina á leigu af varnaraðila frá 31. þess mánaðar. Eigi að síður hélt sóknaraðili áfram að standa straum af rafmagnskostnaði íbúðarinnar fram á síðari hluta ársins 2025. Sú ályktun verður því dregin af framangreindri atburðarás að nýr leigjandi hafi ekki gætt að þeirri skyldu sinni að tilkynna viðeigandi veitustofnun að hann væri nýr notandi. Í ljósi framangreindra samnings- og lagaákvæða er aftur á móti ekki unnt að líta svo á að sú skylda hvíli almennt á varnaraðila sem leigusala að hlutast til um þessi notendaskipti. Í þessu máli liggur ekki heldur fyrir að varnaraðila hafi gefist sérstakt tilefni til að hlutast til um að koma þessum málum í réttan farveg. Þótt vera kunni að dæmi séu um að hann hafi tilkynnt um notendaskipti verður hann, að virtum framangreindum ákvæðum, ekki talinn hafa fellt á sig ábyrgð með því að gera það ekki í þessu tilviki.
Sóknaraðili bar ábyrgð á að tilkynna flutning til viðeigandi veitufyrirtækis við lok leigutíma á grundvelli greinar 6.2 í áðurnefndum leigusamningi aðila sem var í gildi þegar leigu hennar á íbúðinni að C lauk. Af þeim sökum og með vísan til fyrrnefndra ákvæða 23. gr. a húsaleigulaga verður ábyrgð á því að sóknaraðili greiddi rafmagnskostnað íbúðarinnar í tæplega sex ár eftir lok leigutíma ekki felld á varnaraðila, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 2. júní 2016 í máli nr. 638/2015. Hefur þá einnig verið tekið tillit til þess að sóknaraðili sýndi af sér verulegt tómlæti með því að greiða téðan kostnað um árabil. Verður kröfum sóknaraðila um annað en miskabætur því hafnað. Í niðurstöðu þessari felst engin afstaða til þess hvort sóknaraðili eigi kröfu um endurgreiðslu eða skaðabætur frá þeim sem leigði umrædda íbúð á meðan sóknaraðili stóð straum af rafmagnskostnaði vegna hennar.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður er kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila um miskabætur er vísað frá kærunefnd húsamála.
Öðrum kröfum sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson