Mál nr. 161/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 17. nóvember 2026
í máli nr. 161/2025
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B.
Endanleg krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að honum sé heimilt að ganga að tryggingu varnaraðila vegna leiguvanskila fyrir nóvember 2025 að fjárhæð 250.000 kr. auk dráttarvaxta og vegna skaðabóta að fjárhæð 247.388 kr. vegna ástands hins leigða við lok leigutíma.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kærur sóknaraðila, dags. 3. og 28 desember 2025.
Greinargerðir varnaraðila, dags. 16. febrúar og 12. apríl 2026.
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 15. apríl 2026.
Athugasemdir varnaraðila, dags. 28. apríl 2026.
Viðbótargögn frá sóknaraðila, dags. 18. október 2026.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. desember 2024 til 30. nóvember 2025 um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að C. Ágreiningur er um kröfu sóknaraðila í tryggingu varnaraðila vegna leiguvanskila og tjóns á hinu leigða við lok leigutíma.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður varnaraðila hafa kvartað yfir útbungun á útvegg í svefnherbergi og mögulegri myglu í júlí 2025 og hafi tengt það við heilsufarsvanda sinn. Sóknaraðili hafi brugðist skjótt við, fengið verktaka til að mæla raka og framkvæma aðgerð á glugga og vegg. Viðgerð hafi verið framkvæmd á vatnsbretti glugga að utanverðu ofan við bunguna. Verktaki hafi ráðlagt að bíða í nokkra mánuði eftir fullnaðarviðgerð eða þar til veggur yrði nægilega þurr til að mögulegt væri að meta hvort frekari viðgerðir væru nauðsynlegar. Varnaraðili hafi verið upplýst um þetta.
Þann 16. ágúst 2025 hafi varnaraðili tilkynnt að hún myndi flytja út 1. janúar 2026 en samkomulag hafi svo náðst með aðilum að hún myndi flytja út 1. desember 2025 í samræmi við samning aðila.
Þann 27. október 2025 hafi varnaraðili tilkynnt að hún hafi ekki ætlað sér að greiða leigu vegna nóvember með vísan til ráðlegginga læknis og lögfræðings. Þá hafi hún ekki heldur ætlað að rýma eignina strax samkvæmt ráðgjöf lögfræðings. Sóknaraðili hafi svarað degi síðar, ítrekað að leigusamningur gilti til 1. desember og að varnaraðili yrði að greiða leigu fyrir nóvember. Þá hafi hann bent á að ekki væri ásættanlegt að hún greiddi ekki leigu en nýtti íbúðina allt að einu áfram undir geymslu undir húsgögn sín.
Þar sem varnaraðili hafi ekki greitt leigu vegna nóvember 2025 og ekki verið lögð fram nein gögn sem leitt geta til þess að greiðsluskylda hennar falli niður beri að heimila sóknaraðila að fá leiguna greidda úr tryggingu varnaraðila.
Við lok leigutíma hafi íbúðin verið óþrifin og ekki búið að tæma hana. Í eigninni hafi til dæmis verið kæliskápur með illa lyktandi matvöru, munir í sameiginlegri geymslu og sameign, þar á meðal rúm, kommóða, hlaupahjól og fleira. Þá hafi verið áberandi skemmdir á parketi íbúðar, en það hafi verið slípað og lakkað fyrir upphaf leigutíma.
Sóknaraðili geri kröfu um 97.999 kr. vegna kostnaðar við að tæma íbúðina og farga húsgögnum, 90.000 kr. vegna þrifa á íbúð og 164.000 kr. vegna viðgerðar á gólfi, eldhúsinnréttingu og hurð. Samanlagt nemi krafa vegna tjóns 351.999 kr.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveður sóknaraðila hafa brugðist við kvörtun sinni í júlí 2025 með því að láta framkvæma viðgerð á leka í útvegg eignarinnar. Hins vegar staðfesti framvinda mála og niðurstöður heilbrigðiseftirlits að viðgerðin hafi ekki reynst fullnægjandi og leiguhúsnæðið ekki íbúðarhæft í kjölfarið. Brottflutningur hennar hafi því verið nauðsynlegur af heilsufarsástæðum en hún hafi flutt út og inn á vinafólk sitt 31. október 2025 eftir heimsókn á Læknavaktina.
Heilbrigðiseftirlit hafi gert skýrslu 17. nóvember og metið svefnherbergi óíbúðarhæft og þann dag hafi vararnaðili einnig verið orðin laus við einkenni í lungum og hætt að þurfa púst og stera.
Varnaraðili hafi ekki tekið búslóð sína er hún flutti út því grunur hafi verið um að hún væri menguð af myglu enda hafi verulegur raki verið til staðar í íbúðinni. Þá hafi varnaraðili lagt fram læknisvottorð sem staðfesti heilsufarsvandamál sem hún tengi við aðstæður í íbúðinni. Hafi hún því skilið búslóðina eftir af varúðarástæðum. Varnaraðili viðurkenni þannig að munir hafi verið eftir í íbúðinni en hún mótmæli umkröfðum kostnaði, 97.999 kr. og bendi á að aðeins ein kvittun hafi verið lögð fram að fjárhæð 16.990 fyrir flutningabílnum. Hafni hún kröfunni að því leyti sem hún byggi á áætlun sóknaraðila.
Varnaraðili geri ráð fyrri að þrif hafi verið nauðsynlegt að einhverju leyti en uppkrafin fjárhæð, 90.000 kr. er ekki studd reikningi. Varnaraðili óski þess að fá staðfestan kostnað áður en hún geti fallist á hann.
Varnaraðili hafni kröfu um 164.000 vegna meintra skemmda. Gólfið hafi verið í sama ástandi við upphaf og lok leigutíma og engin gögn verið lögð fram um meint tjón á hurðum eða læsingum. Án fullnægjandi sönnunargagna sé ekki hægt að fallast á þessa kröfu.
Þó viðurkenni varnaraðila að hafa brotið tvo hnappa á eldhússkápum og er reiðubúin til að bæta það tjón gegn framlagðri kvittun eða raunhæfri kostnaðaráætlun.
Þá geri varnaraðili athugasemd við að krafa hafi ekki verið send Leiguskjóli fyrr en um tveimur mánuðum eftir að hún hafi flutt út úr íbúðinni.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Sóknaraðili kveður rangt að íbúðin hafi verið heilsuspillandi eða óíbúðarhæf enda segi þvert á móti í skýrslu heilbrigðiseftirlits að fulltrúar eftirlitsins hafi ekki fundið lykt sem gæti tengst raka né sýnileg ummerki og myglu þar sem rakaskemmdir voru og töldu að húsgögnin væru ekki menguð af myglu. Eftirlitið hafi aðeins staðfest raka í vegg sem sé algengt eftir viðgerðir og þarfnist þurrkunar.
Þá hafi varnaraðili viljandi skilið búslóð sína eftir og ekki hirt um að fjarlægja hana þó henni hafi verið send áskorun og henni gefin frestur til 11. desember 2025 til þess.
Í ljósi athugasemda varnaraðila við fjárhæð kröfu sóknaraðila lækki hann þær og notast nú við tímakaup sem fengið er af heimasíðu starfsgreinasambands Íslands.
Kostnaður við að tæma íbúðina sé 16.990 sem greiddar voru fyrir flutningabíl og 33.199 fyrir vinnu. Þá er gerð krafa sömu fjárhæðar vegna vinnu við þrif, 33.199 kr.
V. Athugasemdir varnaraðila
Varnaraðili ítrekar fyrri athugasemdir en bendir á að reikningur fyrir slípun á parketi fyrir upphaf leigutíma staðfesti ekki að slípunar hafi aftur verið þörf við lok leigutíma eða meint lélegt ástand parkets og auk þess ekkert lagt fram því til stuðnings að sóknaraðili hafi í raun farið í framkvæmdir á parketi.
VI. Niðurstaða
Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði varnaraðili fram 500.000 kr. ábyrgðartryggingu. Sóknaraðili gerir kröfu um að varnaraðili greiði sér ógreidda leigu vegna nóvember 2025 og skaðabætur vegna ástands hins leigða í lok leigutíma. Leigusamningur aðila gilti til 30. nóvember 2025. Samkvæmt gögnum málsins kveðst varnaraðili hafa rift samningnum 31. október þess árs með vísan til ástands hins leigða. Samkvæmt 3. tölulið 1. mgr. 60. gr. húsaleigulaga er leigjanda heimilt að rifta leigusamningi ef húsnæðið spillist svo á leigutímanum af ástæðum sem ekki verða raktar til leigjanda að það nýtist eigi lengur til fyrirhugaðra nota eða teljist heilsuspillandi að mati heilbrigðisyfirvalda. Kærunefnd telur að gögn málsins, þar á meðal skýrsla Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur 17. nóvember 2025, sýni ekki fram á að ástand hins leigða hafi verið á þá vegu að varnaraðila hafi verið heimilt að rifta leigusamningnum. Þar fyrir utan liggur fyrir að varnaraðili rýmdi ekki íbúðina fyrir lok samningsbundins leigutíma. Af framangreindum sökum bar varnaraðila að greiða leigu vegna nóvember 2025 að fjárhæð 250.000 kr. og er sóknaraðila heimilt að ganga að tryggingu varnaraðila vegna þessa.
Krafa sóknaraðila um skaðabætur vegna viðskilnaðar byggir á 63. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 þar sem kveðið er á um að leigjandi skuli, að leigutíma loknum, skila húsnæðinu í hendur leigusala í sama ástandi auk þess sem hann beri óskerta bótaábyrgð á allri rýrnun húsnæðisins eða spjöllum á því að svo miklu leyti sem slíkt telst ekki eðlileg afleiðing venjulegrar eða umsaminnar notkunar húsnæðisins eða stafar af atvikum sem eru leigjanda óviðkomandi.
Hvorki var gerð úttekt við upphaf né lok leigutíma í samræmi við ákvæði 69. gr. húsaleigulaga og verður sóknaraðili að bera hallann af því. Hvað varðar kröfu um bætur vegna vinnu við viðgerð á parketi, eldhúsinnréttingu og hurð liggur ekki fyrir hvert ástand þeirra var við upphaf leigutíma og heldur ekki gögn sem staðfesta skemmdir. Verður því ekki fallist á kröfu sóknaraðila hér um.
Öðru gegnir þó um kröfu sóknaraðila vegna förgunar og flutningi á búslóð varnaraðila og vegna þrifa þar sem óumdeilt er að varnaraðili þreif eignina ekki við lok leigutíma og skildi hluta búslóðar sinnar eftir. Endanleg krafa sóknaraðila vegna þessa er 50.189 kr. vegna búslóðar og 33.199 kr. vegna þrifa. Umræddar fjárhæðir eru sundurliðaðar þannig að krafist er bóta að fjárhæð 16.990 kr. vegna útlagðs flutningskostnaðar, sem styðst við fyrirliggjandi reikning, en fjárhæðin sem eftir stendur er áætluð vegna vinnu sóknaraðila og aðstandenda hans. Í því ljósi telur kærunefnd hæfilegar bætur vegna framangreindra kröfuliða nema 50.000 kr. og fellst á að sóknaraðila sé heimilt að ganga að tryggingu varnaraðila vegna þessa.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Sóknaraðila er heimilt að fá greidda úr tryggingu varnaraðila 300.000 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 250.000 kr. frá 1. nóvember 2025 til greiðsludags.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson