Mál nr. 34/2026 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 17. nóvember 2026
í máli nr. 34/2026
A
gegn
B hf.
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A
Varnaraðili: B hf.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt sé að ákvörðun varnaraðila um að krefja hann um milliflutning og rýmingu íbúðar sé ógild, að lagt verði fyrir varnaraðila að framkvæma óháða skoðun á ástandi eignarinnar áður en frekari ákvörðun er tekin, að sóknaraðila verði heimiluð áframhaldandi búseta í íbúð sinni á meðan málið er til meðferðar og tekið verði mið af einstaklingsbundnum aðstæðum sóknaraðila og réttindum hans samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Varnaraðili krefst krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 7. apríl 2026.
Greinargerð varnaraðila, dags. 13. apríl 2026
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 19. apríl 2026.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Hinn 23. nóvember 2011 gerðu aðilar málsins ótímabundinn húsaleigusamning um íbúð varnaraðila í fjöleignarhúsinu að C frá 1. desember þess árs. Réttur sóknaraðila til íbúðarinnar byggðist á ákvörðun D um að úthluta honum félagslegu leiguhúsnæði. Í framhaldi af því að eldsvoði varð í íbúðinni 25. janúar 2026 fór varnaraðili fram á að sóknaraðili rýmdi íbúðina og flytti i aðra íbúð á hans vegum til að unnt væri að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir á henni. Deila aðilar um hvort sú krafa varnaraðila hafi verið réttmæt.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Í kæru sóknaraðila er það rakið að óumdeilt sé að eldsvoði hafi átt sér stað í íbúðinni 25. janúar 2026 vegna gáleysis af hans hálfu. Degi síðar hafi varnaraðili sagt að íbúðin væri óíbúðarhæf og farið fram á að hann skilaði henni, án þess að fyrir lægi formlegt mat eða rökstudd stjórnvaldsákvörðun. Tveir aðilar á vegum varnaraðila hafi þá verið búnir að koma í íbúðina.
Hinn 3. febrúar 2026 hafi varnaraðili krafist þess í samtali við félagsráðgjafa D að sóknaraðili skrifaði undir milliflutning fyrir 5. þess mánaðar, án þess að fyrir lægi fullnægjandi rannsókn málsins. Hinn 6. þess mánaðar hafi félagsráðgjafinn beðið varnaraðila um endurmat og lagt fram úttektarvottorð frá byggingatæknifræðingi og rafiðnaðarmanni sem benti til þess að íbúðin væri íbúðarhæf eða nálægt því. Sama dag hafi sóknaraðila borist bréf frá varnaraðila þar sem því var haldið fram að hann hefði brotið ótilgreindar húsreglur og húsaleigusamning, án tilvísunar í tiltekin ákvæði, og jafnframt vísað almennt til húsaleigulaga nr. 36/1994. Sóknaraðila hafi verið kveðinn frestur til 10. febrúar 2026 til að sækja um milliflutning ella yrði send lokaviðvörun.
Þrátt fyrir andmæli 9. febrúar 2026 hafi sóknaraðili skrifað undir umsókn um milliflutning, undir verulegum þrýstingi og án þess að tekin hefði verið afstaða til athugasemda hans. Sama dag hafi komið fram af hálfu varnaraðila að ekki yrði fallist á sjónarmið sóknaraðila og íbúðin yrði kölluð inn þar sem um tryggingatjón væri að ræða og greiðsla trygginga væri háð því að íbúðin væri tóm. Beiðni 23. febrúar 2026 um endurmat hafi verið hafnað 25. þess mánaðar.
Sóknaraðili telur að varnaraðili hafi brotið gegn ýmsum ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hafi lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 80/2025.
III. Sjónarmið varnaraðila
Í greinargerð varnaraðila er vísað til þess að bruni hafi orðið í hinni leigðu íbúð 25. janúar 2026 þegar sóknaraðili hafi sett mótor úr mótorhjóli í gang inni í íbúðinni með þeim afleiðingum að kviknaði í. Sóknaraðila hafi í kjölfarið verið send aðvörun vegna háttseminnar og honum jafnframt veittur frestur til að leggja fram umsókn um milliflutning, svo unnt væri fyrir tryggingafélag að hefja nauðsynlegar úrbætur vegna tjónsins.
Framangreind háttsemi sóknaraðila brjóti gegn 7. gr. leigusamningsins, þar sem kveðið sé á um að óheimilt sé að nota húsnæðið á annan hátt en um er samið, sbr. einnig 1. málslið 27. gr. húsaleigulaga. Þá beri sóknaraðila samkvæmt samningi og lögum að fara vel með húsnæðið og gæta að reglum um öryggi, hreinlæti og heilbrigði, sbr. m.a. 29. og 30. gr. sömu laga. Háttsemi sóknaraðila hafi jafnframt skapað verulega hættu fyrir eign og aðra.
Óumdeilt sé að brunatjón hafi orðið og að ráðast þurfi í umfangsmiklar viðgerðir á íbúðinni. Til þess að unnt sé að framkvæma slíkar endurbætur sé nauðsynlegt að varnaraðili hafi ótakmörkuð yfirráð yfir fasteigninni á framkvæmdatíma og sé það ekki matsatriði, heldur nauðsynlegt skilyrði framkvæmda. Slík yfirráð séu forsenda þess að tryggingafélag geti ráðist í úrbætur, enda hafi það ekki heimild til að hefja viðgerðir á meðan búseta standi yfir eða munir séu til staðar í húsnæðinu. Af því leiði að rýming íbúðarinnar sé óhjákvæmileg.
Til þess að tryggja leigutaka annað húsnæðis á meðan á framkvæmdatíma standi hafi honum verið leiðbeint um að óska eftir milliflutningi. Það sé það úrræði sem standi leigutökum til boða við slíkar aðstæður, en hann sé ávallt háður umsókn viðkomandi. Sóknaraðili hafi hins vegar kosið að nýta ekki það úrræði sem honum stóð til boða. Sú staðreynd breyti þó ekki því að úrræðið var forsenda þess að unnt væri að tryggja honum annað húsnæði.
Varnaraðili árétti að með framangreindu sé ekki verið að afturkalla rétt leigutaka til félagslegs leiguhúsnæðis. Þvert á móti hafi honum verið leiðbeint um að sækja um milliflutning, þar sem hann myndi njóta forgangs við úthlutun og þannig tryggja áframhaldandi rétt sinn til félagslegs húsnæðis. Um það vísar varnaraðili til reglna D um félagslegt húsnæði.
Við mat á nauðsyn rýmingar vísar varnaraðili einnig til almennra sjónarmiða í húsaleigulögum. Samkvæmt 7. tölulið 2. mgr. 51. gr. laganna geti forgangsréttur leigutaka fallið niður ef viðgerðir eða endurbætur séu þess eðlis að húsnæðið sé óíbúðarhæft í lengri tíma en tvo mánuði. Þótt ákvæðið eigi ekki beint við í máli þessu endurspegli það skýrt það mat löggjafans að umfangsmiklar og langvarandi framkvæmdir fari almennt ekki saman við áframhaldandi búsetu. Í fyrirliggjandi máli sé gert ráð fyrir að framkvæmdir taki að minnsta kosti þrjá mánuði, sem styðji enn frekar nauðsyn rýmingar.
Varnaraðili framkvæmdi úttekt á ástandi húsnæðisins og liggi fyrir ljósmyndir sem staðfesti að ástand íbúðarinnar sé ábótavant í heild, auk þess sem brunatjónið eitt og sér kalli á umfangsmiklar viðgerðir. Sóknaraðili hafi lagt fram úttekt frá verktaka sem hann aflaði sjálfur og kveðst hafa framkvæmt endurbætur á eigin vegum. Sóknaraðila hafi hins vegar skýrlega verið tilkynnt að honum væri óheimilt að ráðast sjálfur í slíkar framkvæmdir. Varnaraðili getir því ekki byggt ákvarðanir á slíkum gögnum né á ætluðum endurbótum sem framkvæmdar hafi verið án heimildar.
Varnaraðili telji sig hafa fullnægt rannsóknarskyldu sinni, enda liggi fyrir bæði úttekt og ljósmyndagögn sem staðfesti ástand eignarinnar. Þá sé ljóst að tryggingafélag hafi ekki heimild til að hefja viðgerðir á meðan húsnæðið hafi ekki verið rýmt. Jafnframt beri að líta til þess að réttur til bóta samkvæmt vátryggingu geti fallið niður að fjórum árum liðnum frá tjónsatburði, sem undirstriki mikilvægi þess að tafir verði ekki á framkvæmdum.
Varnaraðili leggi áherslu á að gætt hafi verið meðalhófs. Sóknaraðila standi þannig til boða vægara úrræði en uppsögn, það er milliflutningur í annað húsnæði, sem hefði tryggt honum áframhaldandi búsetu innan félagslegs kerfis. Með hliðsjón af brunatjóni, ástandi eignarinnar, nauðsyn rýmingar og öryggissjónarmiðum hafi það verið mat varnaraðila að ekki væru tiltæk vægari úrræði sem fullnægðu lögmætum hagsmunum hans.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Í athugasemdum sóknaraðila leggur hann áherslu á að ástand íbúðarinnar sé ekki jafn slæmt og varnaraðili staðhæfi. Leggur hann fram myndir því til stuðnings, sem sýni ástand íbúðarinnar eftir að hann og aðstandendur hans tóku til og þrifu hana. Raunverulegt tjón á gólfefni hafi verið afmarkað og það hafi verið lagfært.
Sjónarmiðum sóknaraðila er nánar lýst í athugasemdum hans og hefur kærunefnd haft hliðsjón af þeim.
V. Niðurstaða
Ágreiningsefni málsins lúta að því hvort varnaraðila hafi verið heimilt að krefjast þess af sóknaraðila að hann rýmdi hina leigðu íbúð að C eftir að eldsvoði varð í henni 25. janúar 2026. Samskipti aðila litast töluvert af því að réttur sóknaraðila til íbúðarinnar byggist á ákvörðun D um að úthluta honum félagslegu leiguhúsnæði. Um slíka ákvörðun, líkt og ýmsar aðrar ákvarðanir sem varða rétt manna til félagslegs húsnæðis, gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993, sbr. til dæmis álit umboðsmanns Alþingis 13. júní 2016 í máli nr. 5544/2008 og 31. maí 2021 í máli nr. 10899/2021. Húsaleigulög nr. 36/1994 gilda aftur á móti um framkvæmd þess leigusamnings sem gerður er eftir að félagslegu húsnæði hefur verið úthlutað. Verður því litið svo á kærunefnd húsamála sé bær til að fjalla um ágreiningsefni málsins að því marki sem þau varða framkvæmd húsaleigusamnings aðila, sbr. 1. mgr. 85. gr. húsaleigulaga.
Húsaleigusamningur aðila var sem fyrr segir gerður á árinu 2011 og ekki verður ráðið af gögnum málsins að þeir hafi síðar samið um að yngri lög, sem hafa breytt húsaleigulögum undanfarinn áratug, gildi um leigusamning þeirra. Verður því við úrlausn þessa máls litið til ákvæða húsaleigulaga eins og þau voru úr garði gerð áður en lögunum var breytt með lögum nr. 63/2016 og síðari lagabreytingum.
Ljóst má vera að sóknaraðili braut gegn skyldu sinni samkvæmt 18. gr. húsaleigulaga til að fara vel með hið leigða húsnæði og í samræmi við umsamin afnot þess þegar hann stóð að viðgerð á mótor inni í íbúðinni 25. janúar 2026, sbr. einnig 27. gr. laganna. Eftir eldsvoðann þann dag var ástand íbúðarinnar afar bágborið að mati varnaraðila og fær það stoð í myndum af íbúðinni frá þeim tíma. Við þær aðstæður átti varnaraðili samkvæmt 3. mgr. 18. gr. húsaleigulaga rétt til aðgangs að húsnæðinu til að sinna viðgerðar- og viðhaldsskyldu sinni, sbr. 19. gr. laganna. Þótt sóknaraðili hafi lagt fram myndir af íbúðinni sem bera með sér að ástand hennar sé betra en það var breytir það engu um framangreint, enda var honum óheimilt að ráðast í framkvæmdir á íbúðinni án samþykkis varnaraðila, sbr. 28. gr. laganna, en slíkt samþykki liggur ekki fyrir.
Í 21. gr. húsaleigulaga er gert ráð fyrir að sú staða geti komið upp að viðgerðar- og viðhaldsvinna leigusala, sem hann skal þó láta vinna fljótt og vel svo að sem minnstri röskun valdi fyrir leigjanda, leiði til þess að leigjandi geti ekki haft afnot af hinu leigða húsnæði um einhvern tíma, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Að mati kærunefndar styður þetta ákvæði bæði við afstöðu varnaraðila um að sóknaraðili rými íbúðina, ef þörf er á því til að koma við nauðsynlegum framkvæmdum, og afstöðu sóknaraðila um að ekki sé nauðsynlegt að hann sæki um svokallaðan milliflutning með þeim áhrifum að hann glati leiguhúsnæðinu sem hann hefur búið í undanfarin fimmtán ár, heldur geti hann snúið til baka í íbúðina að framkvæmdum loknum. Gögn málsins bera enda ekki með sér að varnaraðili hafi fylgt eftir ætluðum riftunarástæðum, sbr. 2. mgr. 61. gr. húsaleigulaga.
Þótt hér að framan hafi að hluta verið tekið undir afstöðu sóknaraðila í málinu verður kröfum hans hafnað enda eiga þær sér ekki næga stoð í húsaleigulögum.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfum sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson