Mál nr. 38/2026 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 17. nóvember 2025
í máli nr. 38/2026
A og B
gegn
C
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A og B.
Varnaraðili: C.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að þeim sé heimilt að ganga að húsaleiguábyrgð varnaraðila að fjárhæð 1.461.000 vegna skemmda sem varnaraðili hafi valdið á hinu leigða á leigutíma.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 12. apríl 2026
Greinargerð varnaraðila, dags. 27. apríl 2026
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 6. maí 2026
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning um leigu varnaraðila á fasteign sóknaraðila að D með gildistíma frá 10. ágúst 2025 til 30. júní 2026. Leigutíma lauk þó með samkomulagi aðila 15. febrúar 2026. Ágreiningur er um skaðabótakröfu sóknaraðila á hendur varnaraðila vegna skemmda á hinu leigða.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðilar kveða varnaraðila valdið skemmdum á eigninni þó leigutími hafi aðeins verið sex mánuðir. Vegna ástands hins leigða hafi sóknaraðilar gert kröfu í ábyrgð varnaraðila hjá Leiguskjóli að fjárhæð 1.461.000 kr. en varnaraðili synjað bótaskyldu:
1. Ný eldhúsinnrétting hafi verið sett í húsið árið 2020 en miklar skemmdir hafi verið á henni eins og sjá megi á framlögðum myndum. Alls sjö framhliðar séu skemmdar og hver framhlið kosti 35.000 kr. í sérsmíði og krafan því 320.000 kr. auk 70.000 kr. vegna uppsetningar. Þá sé borðplata skemmd og vaskur illa farinn. Ný sérsmíðuð borðplata kosti 4-500.000 kr. auk þess sem kaupa þurfi nýjan undirlímdan vaks á um 100.000 kr.
2. Skemmdir séu á sérsmíðuðum fataskápum m.a. vegna þess að varnaraðili hafi sett límband á hurðar. Kostnaður við að lakka skápa sé 100-200.000 kr.
3. Útidyrahurð hafi verið rispuð sem kosti 100-150.000 kr. að bæta úr.
4. Þá þurfi að mála þrjú herbergi og alrými vegna þess að varnaraðili hafi sett upp festingar fyrir sjónvörp í þremur svefnherbergjum sem þurfi að sparsla og mála auk þess sem snagar voru í forstofu og barnaherbergi. Kostnaður við málningu sé 300-700.000 kr.
5. Vatnsskemmd hafi orðið á milli ísskáps og eyju í eldhúsinnréttingu. Kostnaður vegna þessa sé 210.-330.000 kr.
6. Tappa, sem feli skrúfur og festingar, vanti á handklæðaofn, sem sé útlitsgalli. Nýr handklæðaofn kosti 50.000 kr.
7. Smávægilegar skemmdir séu víða á parketi og ekki gerð krafa um bætur vegna þeirra. Á tröppum á fyrstu hæð hússins sé hins vegar stór gólfskemmd þar sem parket hafi brotnað upp og flagnað af. Kostnaður við úrbætur sé að lágmarki 200.000 kr.
8. Skemmd sé á hurðakarmi inni á baði sem kostar um 200.000 kr. að bæta úr.
Tjón sóknaraðila nemi því 2.040.000-2.810.000 kr. þó aðeins sé gerð krafa um það sem ábyrgðartrygging hjá Leiguskjóli hljóðar á um. Lagðar séu fram myndir af öllum skemmdum með skýringum.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveður skemmdir, sem sóknarðilar gera kröfu um skaðabætur vegna, vera afleiðingu eðlilegrar notkunar og að hann geti því ekki borið skaðabótaábyrgð á þeim á grundvelli 63. gr. húsaleigulaga. Þá telji hann kröfu sóknaraaðila ósannaðar. Sóknaraðilar byggi aðeins á eigin kostnaðaráætlun og engar viðgerðir hafi átt sér stað. Þá hafi engin formleg úttekt verið gerð á ástandi hússis við upphaf leigutíma á grundvelli 69. gr. laganna sem hafi áhrif á sönnunarstöðu sóknaraðila. Ekki sé þannig til sönnun á ástandi hússins við upphaf leigutíma auk þess sem tjón falli að mestu undir eðlilegt slit.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Sóknaraðilar kveða að samkvæmt 69. gr. húsaleigulaga sé ekki skylt að fá óháðan úttektaraðila til að gera úttekt, heldur sé leigjendum og leigusölum heimilt að gera sameiginlega úttekt og skrá niðurstöður og athugasemdir í leigusamning aðila. Við afhendingu á eigninni hafi aðilar farið yfir eignina og ástand hennar rætt ítarlega. Sóknaraðilar hafi tekið myndir af ástandi hússins og séu þær myndir til sönnunar um ástand þess við afhendingu eignarinnar við upphaf leigusambands. Ekki hafi þótt ástæða til að gera skriflegar athugasemdir við ástand eignarinnar umfram þann almenna texta sem hafi verið settur í leigusamninginn um ástand eignarinnar.
Við lok leigutíma hafi verið að mikilvægt að flýta afhendingu hússins eins og unnt var þar sem nýir leigjendur voru að taka við því vegna þess að varnaraðili hafi óskað að losna fyrr undan ellefu mánaða leigusamningi aðila. Sóknaraðili hafi þó ekki gert kröfu um óháðan úttektaraðila heldur hafi aðilar hist stuttlega í húsnæðinu og sóknaraðilar tekið myndir sem þau telji úttekt í skilningi 69. gr. laganna. Þá hafi varnaraðilar ekki óskað eftir formlegri úttekt úttektaraðila. Sóknaraðilar telji því að skilyrði 1. mgr. 69. gr. húsaleigulaga hafi verið uppfyllt þar sem ítarleg úttekt á húsinu við afhendingu eignarinnar fór fram og til séu myndir sem sýni ástanda húsnæðisins fyrir og eftir leigutíma aðila. Viðhlítandi sönnun fyrir tjóni sé því til staðar.
Þá rekja sóknaraðilar hvernig skemmdirnar geti ekki talist falla undir eðlilegt slit húsnæðis auk þess að leggja fram reikninga til stuðnings fjárkröfum sínum en verðtilboð sem þau öfluðu hljóða upp á 1.462.685 kr.
VI. Niðurstaða
Deila málsaðila lýtur að því hvort sóknaraðilar eigi rétt á að ganga að húsaleiguábyrgð að fjárhæð 1.461.000 kr. sem varnaraðili lagði fram við upphaf leigutíma í ágúst 2025 vegna skemmda sem leigjendur hafi valdið á hinni leigðu eign. Sem fyrr greinir lauk leigutíma aðila 15. febrúar 2026. Fyrir liggur að sóknaraðilar gerðu kröfu í ábyrgðina 3. mars þess árs, sem varnaraðili hafnaði 18. sama mánaðar. Ágreiningi aðila vísuðu sóknaraðilar til kærunefndar húsamála innan þess fjögurra vikna frests sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994.
Krafa sóknaraðila um skaðabætur vegna viðskilnaðar byggir á 63. gr. húsaleigulaga þar sem kveðið er á um að leigjandi skuli að leigutíma loknum skila húsnæðinu í hendur leigusala í sama ástandi auk þess sem hann beri óskerta bótaábyrgð á allri rýrnun húsnæðisins eða spjöllum á því að svo miklu leyti sem slíkt telst ekki eðlileg afleiðing venjulegrar eða umsaminnar notkunar húsnæðisins eða stafar af atvikum sem eru leigjanda óviðkomandi.
Um úttekt leiguhúsnæðis er fjallað í XIV. kafla húsaleigulaga. Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laganna, eins og hún hljóðar eftir að henni var breytt með 7. gr. laga nr. 121/2022, kemur fram að leigjandi og leigusali eða umboðsmenn þeirra skulu gera úttekt á ástandi hins leigða húsnæðis, þar með talið á brunavörnum, samhliða gerð leigusamnings og við lok leigutíma. Þá segir að niðurstöður úttektar sem fer fram við gerð leigusamnings skulu skráðar í sérstakan úttektarkafla í leigusamningi. Óháður úttektaraðili skuli annast úttektina óski annar aðili þess og skiptist kostnaðurinn við úttektina þá að jöfnu milli þeirra. Í niðurlagi 72. gr. húsaleigulaga kemur fram að úttekt skuli leggja til grundvallar ef ágreiningur verður um bótaskyldu leigjanda við skil húsnæðisins.
Sóknaraðilar byggja á því að úttekt á ástandi hins leigða húsnæðis hafi farið fram við upphaf leigutíma með því að aðilar hafi hist í húsnæðinu, rætt ítarlega um ástand þess og sóknaraðilar tekið ljósmyndir af því. Í ljósi framangreindra ákvæða 69. gr. húsaleigulaga er ekki unnt að fallast á þá afstöðu þegar af þeirri ástæðu að niðurstöður þessa samtals voru ekki skráðar í sérstakan úttektarkafla í leigusamningi aðila. Umrætt samtal sem og ljósmyndir sóknaraðila uppfylla því ekki þær kröfur sem gerðar eru til úttektar við upphaf leigutíma. Af sömu ástæðum verður ekki fallist á að úttekt á ástandi húsnæðisins hafi farið fram við lok leigutíma.
Samkvæmt framangreindu vanræktu aðilar skyldu sína til að gera úttekt á ástandi hins leigða húsnæðis við upphaf og lok leigutíma. Þar sem sóknaraðilar bera sönnunarbyrði fyrir þeim staðhæfingum sínum að leigjendur hafi valdið skaðabótaskyldu tjóni á hinu leigða húsnæði verða þau að bera hallann af því að úttekt var ekki gerð. Gegn mótmælum varnaraðila verður því ekki fallist á með sóknaraðilum að bótaskylda hafi verið sönnuð með téðum ljósmyndum, sbr. niðurlag 72. gr. húsaleigulaga.
Í tilefni af kröfu sóknaraðila um bætur vegna gata á veggjum, sem leigjendur virðast hafa borað án samþykkis sóknaraðila í andstöðu við 28. gr. húsaleigulaga, skal þess sérstaklega getið að samkvæmt gögnum málsins ætluðu leigjendur að gera við umrædda veggi í aðdraganda leiguloka en fengu þá þau svör að sóknaraðilar myndu annast um þetta verk þegar þau flyttu aftur inn í íbúðina. Sóknaraðilar geta því ekki nú krafist skaðabóta vegna kostnaðar af því verki.
Samkvæmt framangreindu verður kröfu sóknaraðila hafnað.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson