Mál nr. 5/2026 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 17. nóvember 2026
í máli nr. 5/2026
A
gegn
B ehf.
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B ehf.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að leigusamningi aðila hafi verið réttilega rift en til vara að greiðsluskylda hennar hafi fallið niður vegna verulegra annmarka á hinu leigða húsnæði. Að staðfest verði að sóknaraðila beri ekki að greiða frekari leigu eða kostnað vegna heilmálunar á íbúð. Að staðfest verði að ólögmætt hafi verið að færa ábyrgð varnaraðila á endurleigu yfir á sóknaraðila. Að lokum er gerð krafa um að tryggingarfé verði ekki ráðstafað til greiðslu kröfu varnaraðila nema samkvæmt skýrum skilyrðum húsaleigulaga.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 8. janúar 2026.
Greinargerð varnaraðila, dags. 30. janúar 2026
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 30. janúar 2026.
Athugasemdir varnaraðila, dags. 9. febrúar 2026
Viðbótarupplýsinga aflað frá varnaraðila, dags. 4. ágúst 2026.
Viðbótarupplýsingar sóknaraðila, dags. 13. ágúst 2026
Viðbótarupplýsingar varnaraðila, dags. 18. ágúst 2026
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 3. október 2025 til 31. október 2026 um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila nr. 114 að C. Ágreiningur er um heimild sóknaraðila til að rifta samningnum, skyldu til greiðslu leigu í uppsagnarfresti og hvort varnaraðili eigi kröfu á hendur sóknaraðila um heilmálun íbúðarinnar.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður galla á hinni leigðu eign hafa komið fram eftir afhendingu hennar. Ítrekaðir, alvarlegir og samverkandi ágallar sem varðað hafi öryggi, heilsu, hreinlæti og eðlilega notkun húsnæðisins, sérstaklega í ljósi þess að um heimili barnafjölskyldu væri að ræða. Tilkynningar hér um hafi ítrekað verið sendar varnaraðila áður en riftunar hafi verið óskað á samningnum. Helstu gallar voru endurtekinn þjófnaður og tjón á munum í eigu barns sóknaraðila sem geymdir hafi verið í sameiginlegri hjólageymslu hússins þar sem geymslan hafi endurtekið verið skilin ólæst. Þá hafi útidyrahurð að sameign verið svo stíf og óörugg að barn sóknaraðila klemmdi sig. Loftutúður hafi verið fullar og virkni þeirra lítil sem hafi haft áhrif á loftgæði eignarinnar. Þá hafi gaskúti í eigu sóknaraðila verið stolið úr bakgarði eignarinnar og varnaraðili hafnað einföldum og eðlilegum vörnum. Að lokum hafi sóknaraðili fundið silfurskottu á baðherbergi eignarinnar við flutning úr íbúðinni. Síðast nefndi ágallinn hafi komið í ljós eftir riftun og því hafi varnaraðila ekki verið tilkynnt um hann fyrir riftun en hann styðji þá fullyrðingu sóknaraðila að heildarmat á ástandi eignarinnar staðfesti að hún hafi verið haldin slíkum göllum að riftun varðaði.
Sóknaraðili kveðst ekki treysta sér til að snúa aftur í hina leigðu eign og hafi því um tíma þurft að greiða leigu af tveimur eignum. Í samskiptum sóknaraðila við varnaraðila hafi komið fram að lítil hreyfing væri á leigumarkaði og sóknaraðili hvött til að deila auglýsingu um eignina sjálf til að auka líkur á að nýr leigjandi fyndist. Það sé ólögmætt og ósamrýmanlegt hlutverki sóknaraðila sem sé hvorki starfsmaður varnaraðila né starfi í umboð hans.
Sóknaraðili hafni kröfu um bætur sem nemi kostnaði við heilmálum eignarinnar enda beri varnaraðili sjálfur ábyrgð á að mála eignina auk þess sóknaraðili beri ekki ábyrgð á eðlilegu sliti á eigninni.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveður sóknaraðila ekki gert athugasemdir við ástands hins leigða við afhendingu eignarinnar og ritað undir svonefnda innskoðunarskýrslu því til stuðnings. Þá hafni hann því að hafa ekki brugðist við þjónustubeiðnum sóknaraðila enda virðist sem athugasemdir hafi ekki borist fyrr en sóknaraðili hafi viljað losna undan samningsskuldbindingum sínum í janúar 2026. Þá kveður varnaraðili að sameiginleg hjólageymsla hússins geti ekki verið tilefni riftunar leigusamnings enda séu 43 íbúðir í húsinu og varnaraðili, sem eigandi 20 íbúða, geti ekki borið ábyrgð á því að aðrir eigendur og afnotahafar í húsinu taki hurðina úr lás. Sama eigi við um umgengni annarra í hjólageymslu. Skortur á loftgæðum í eigninni er hafnað og hvað hundaskít á lóð varðar geti varnaraðili ekki borið ábyrgð á honum. Því er hafnað að varnaraðila hafi borið að reisa grindverk í kringum svalareit hinnar leigðu eignar þar sem gaskúti sóknaraðila hafi verið stolið. Að lokum er því hafnað sem röngu og órökstuddu að silfurskottur hafi fundist í eigninni er sóknaraðili hafi verið að rýma hana. Sóknaraðili hafi einhliða ákveðið að rýma eignina áður en uppsagnarfrestur hafi verið liðinn og geti ekki borið fyrir sig að greiðsluskylda hennar hafi fallið niður af því að hún hafi þurft að greiða af tveimur íbúðum samtímis.
Hvað varði kröfu um málun eignarinnar þá hafi sóknaraðili samþykkt að skila íbúðinni nýmálaðri og vísað til 22. gr. húsaleigulaga þar um.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Sóknaraðili kveður innskoðunarskýrsluna, þar sem fram komi að athugasemdir séu ekki gerðar við ástand eignarinnar, ekki fela í sér afsal réttar vegna ágalla sem síðar komi í ljós. Þá rekur hún hvernig ágallar á eigninni og sameign hennar hafi fyrst komið fram við notkun, teljist öryggisbrestir og varði heilnæmi
V. Athugasemdir varnaraðila
Varnaraðili ítrekar fyrri sjónarmið, telur myndir sóknaraðila ekki sanna ágalla á eign og að á sóknaraðili hafi hvílt skylda til að tilkynna um ágalla hafi hún orðið vör við þá.
VI. Viðbótargögn
Varnaraðili lagði fram skýrslu um húsnæðisskoðun frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðarbæjar þar sem fram kemur að eignin sé að mati eftirlitsins fullnægjandi með tilliti til hollustuhátta.
Sóknaraðili gerð athugasemdir við efni skýrslu heilbrigðiseftirlits, umfang skoðunar og sönnunargildi.
Þá lagði varnaraðili, að beiðni kærunefndar, fram yfirlit yfir ógreidda leigu sóknaraðila og kvað íbúðina hafa farið aftur í útleigu 1. júní sl.
Aðilar lögðu fram gögn til stuðnings því hvernær sóknaraðili afhenti varnaraðila umráð eignarinnar, að beiðni nefndarinnar.
VI. Niðurstaða
Samningur aðila var tímabundinn til 31. október 2026 en með tölvupósti 4. desember 2025 sagði sóknaraðili honum upp. Varnaraðili staðfesti móttöku uppsagnar og benti á að þriggja mánaða uppsagnarfresti lyki 31. mars 2026. Þá kom fram að varnaraðili teldi skilyrði riftunar ekki fyrir hendi en bauðst til að auglýsa eignina til leigu þannig að sóknaraðili gæti losnað fyrr undan samningnum ef nýr leigjandi fengist að eigninni. Svaraði sóknaraðili með því að benda á meint brot varnaraðila á samningi aðila, sem hún hafði tilkynnt um skömmu fyrir uppsögn, og að skortur á viðbrögðum fæli í sér verulega vanefnd á skyldum leigusala samkvæmt lögum. Vegna aðstæðna í húsinu hefði sóknaraðili neyðst til að tryggja sér annað leiguhúsnæði til að verja öryggi barna sinna og væri af þeim sökum komin í alvarleg fjárhagsleg vandræði með því að greiða tvöfalda leigu. Með vísan til atvika allra krafðist hún þess að leigusamningi yrði tafarlaust slitið án frekari leigugreiðslna enda væri hún þegar flutt úr hinni leigðu eign og að tryggingarfé yrði endurgreitt að fullu. Óumdeilt er að sóknaraðili afhenti varnaraðila ekki umráð eignarinnar fyrr en 31. mars 2026 þó hún hafi flutt annað í desember samkvæmt tilkynningu til Þjóðskrár Íslands í þeim mánuði.
Sóknaraðili krefst þess að viðurkennt verði að leigusamningi aðila hafi verið réttilega rift. Riftunarheimildir leigjanda eru tæmandi taldar í 60. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, en kærunefnd fær ekki séð að húsnæðið hafi verið haldið verulegum annmörkum í skilningi ákvæðisins, meðal annars með hliðsjón af skýrslu heilbrigðiseftirlits, og riftun sóknaraðila þegar af þeirri ástæðu ólögmæt. Þá er heldur ekki unnt að taka undir með sóknaraðila að húsnæðið hafi verið haldið slíkum annmörkum að greiðsluskylda hennar hafi fallið niður.
Sóknaraðili krefst viðurkenningar á því að henni beri ekki að greiða fyrir heilmálun á íbúðinni, meðal annars vegna þess að það sé hlutverk leigusala að annast um viðhald á eigninni og að hún hafi aðeins búið í henni í rúma tvo mánuði. Varnaraðili byggir kröfu sína hér um á ákvæði í leigusamningi aðila og að leigjanda væri heimilt að taka á sig skyldu til að mála á grundvelli ákvæðis 22. gr. húsaleigulaga.
Ákvæði 22. gr. húsaleigulaga var breytt með 16. gr. laga nr. 63/2016 en þá var fallið frá því skilyrði ákvæðisins að leigugjaldið skyldi lækka að sama skapi. Í lögskýringargögnum með lögum nr. 63/2016 sagði að ástæða þess að skilyrðið væri fellt úr ákvæðinu væri að oft væri erfitt að átta sig á því hve mikil lækkunin skyldi vera. Verði þannig frekar að gera ráð fyrir að þegar leigusali og leigjandi semji um leiguverðið sé tekið tillit til þess sem leigjandi samþykkir að taka að sér í sambandi við viðhald innan íbúðarhúsnæðis sem leigusali hefði að öðrum kosti átt að annast.
Í 3. mgr. 19. gr. húsaleigulaga er mælt fyrir um að leigusali skuli jafnan halda hinu leigða húsnæði í leiguhæfu ástandi, meðal annars með því að láta mála húsnæðið. Þótt áðurnefndar breytingar hafi verið gerðar á 22. gr. húsaleigulaga, með 16. gr. laga nr. 63/2016, verður samkvæmt gildandi orðalagi ákvæðisins og að teknu tilliti til framangreindra sjónarmiða í lögskýringargögnum að gera kröfu til þess að skýrt sé kveðið á um í samningi ef lagt er til grundvallar að leigjandi taki á sig viðhaldsskyldur leigusala þannig að leigjanda sé það ljóst, sbr. úrskurð kærunefndar 11. október 2021 í máli nr. 64/2021. Í leigusamningi málsaðila er ekki sérstaklega tekið fram að varnaraðili sé að taka á sig viðhaldsskyldu sem hvíli samkvæmt húsaleigulögum á sóknaraðila. Af þeim sökum telur kærunefnd að skilyrði 22. gr. húsaleigulaga, sbr. 1. mgr. 2. gr. laganna, sé ekki uppfyllt til að sóknaraðili sé bundin við ákvæði leigusamningsins um að henni beri að afhenda hið leigða nýmálað.
Með hliðsjón af öllu framangreindu er fallist á kröfu sóknaraðila um að viðurkennt sé að henni beri ekki að greiða fyrir heilmálun íbúðarinnar. Áður hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að riftun sóknaraðila á samningi aðila hafi ekki verið lögmæt.
Að lokum gerir sóknaraðili kröfu um að krafa varnaraðila í ábyrgð hennar hjá Leiguskjóli vegna leiguvanskila verði hafnað. Sóknaraðili sagði leigusamningi aðila upp og uppsagnarfrestur var til 31. mars 2026. Jafnvel þó aðilar hafi reynt að koma eigninni aftur í útleigu á uppsagnarfresti gekk það ekki eftir og sóknaraðili afhenti varnaraðila ekki umráð eignarinnar fyrr en við lok uppsagnarfrests. Ekki eru því skilyrði til að fella niður greiðsluskyldu hennar.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Fallist er á kröfu sóknaraðila um að henni beri ekki greiða kostnað vegna málunar á hinni leigðu eign. Öðrum kröfum sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson