Mál nr. 89/2025 - Álit
ÁLIT
KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA
í máli nr. 89/2025
Leki. Kostnaður vegna viðgerðar. Tjón á séreign.
I. Málsmeðferð kærunefndar
Með álitsbeiðni, dags. 26. júní 2025, beindi A, hér eftir nefndur álitsbeiðandi, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við Húsfélagið B, hér eftir nefnt gagnaðili.
Auk álitsbeiðni voru greinargerð gagnaðila, dags. 28. nóvember 2025, athugasemdir álitsbeiðanda, dags. 22. desember 2025 og athugasemdir gagnaðila, dags. 30. janúar 2026, lagðar fyrir nefndina.
Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 17. nóvember 2026.
II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Um er að ræða annan matshluta af tveimur í fjöleignarhúsinu við C. Umræddur matshluti, sem er D, samanstendur af alls fjórum eignarhlutum. Álitsbeiðandi er eigandi risíbúðar, en gagnaðili er húsfélagsdeild D.
Ágreiningur aðila lýtur að ábyrgð á viðhaldi á þaki hússins, rétti álitsbeiðanda til að láta vinna nauðsynlegar viðgerðir á sameign á kostnað húsfélagsins og bótaskyldu húsfélagsins vegna kostnaðar og tjóns innan risíbúðar álitsbeiðanda vegna langvarandi leka, raka og mygluvaxtar frá þaki og þakglugga í sameign.
Rekja má forsögu málsins til þess að árið 2017 varð vart við leka við þakglugga í sameign við stigagang risíbúðar. Álitsbeiðandi vakti athygli annarra eiganda á lekanum og voru gerðar tilraunir til bráðabirgðaviðgerða. Árið 2019 kom í ljós við skoðun fagmanns að upprunalegt þak hússins þarfnaðist heildarviðhalds. Sumarið 2021 voru frekari umræður meðal eigenda og ákveðið að fara í bráðabirgðaviðgerðir á glugga en fresta heildarviðgerðum. Í nóvember 2021 kom verktaki á vettvang og staðfesti að þakpappír væri ónýtur, þakið ryðgað og búið að leka víða, auk þess sem mygla var komin í loft risíbúðar. Gagnaðili tók tilboði E ehf. um að skipta um bárujárn og pappa á ytra byrði þaksins. Í desember 2021 framkvæmdi F heimilisskoðun og staðfesti verulegan leka, myglu og ófullnægjandi einangrun og rakavörn í þakinu, auk rakaskemmda innandyra. Húsfélagið samþykkti ekki tilboð í nauðsynlegar endurbætur á innra byrði þaks og mygluhreinsun. Lögfræðingur G sendi fyrir hönd álitsbeiðanda formlegar áskoranir, dags. 7. apríl 2022 og 17. maí 2022, þar sem skorað var á húsfélagið að hefjast handa ella yrði ráðist í framkvæmdir á grundvelli 38. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Sumarið 2022 réðst álitsbeiðandi í framkvæmdir til að rífa skemmt efni, þurrísblása og fúaverja sperrur. Í ljós kom að E ehf. hafði ekki klárað frágang á þakplötum við samskeyti C, sem leiddi til áframhaldandi leka þar til verktakar á vegum J löguðu fráganginn. Þann 14. júní 2023 sendi lögmaður álitsbeiðanda enn aðra áskorun á gagnaðila vegna tilboðs H ehf. í endurbyggingu innra byrði þaksins og rakavarnarlags. Þeim framkvæmdum lauk haustið 2023 og viðgerðum á innra byrði risíbúðar lauk í febrúar 2025.
Kröfur álitsbeiðanda eru:
I. Að viðurkennt verði að álitsbeiðanda hafi verið heimilt að ráðast í nauðsynlegar viðgerðir á sameign hússins.
II. Að viðurkennt verði að gagnaðili beri bótaskyldu vegna kostnaðar álitsbeiðanda við nauðsynlegar viðgerðir á sameign og tjóns innan eignarhluta hennar.
Kröfur gagnaðila eru:
I. Aðallega að kröfum álitsbeiðanda verði vísað frá kærunefnd.
II. Til vara að kröfum álitsbeiðanda verði hafnað.
Sjónarmið álitsbeiðanda
Álitsbeiðandi byggir á því að gagnaðili hafi sýnt af sér langvarandi vanrækslu með því að fresta nauðsynlegu heildarviðhaldi á sameign hússins, einkum þaki og þakglugga, allt frá árinu 2017. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar, tilboð verktaka og faglegar skýrslur F og greiningar I hafi gagnaðili dregið að taka nauðsynlegar ákvarðanir um heildstæðar viðgerðir á innra byrði þaksins, einangrun, rakavörn og mygluhreinsun. Vegna aðgerðarleysis gagnaðila, yfirvofandi heilsutjóns og skemmda hafi álitsbeiðanda verið fullkomlega rétt og nauðsynlegt að beita úrræði 38. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 og láta framkvæma nauðsynlegar viðgerðir á sameign á kostnað gagnaðila að undangengnum lögmætum áskorunum. Álitsbeiðandi telur að gagnaðili beri bótaábyrgð samkvæmt 52. gr. laga um fjöleignarhús á öllu tjóni sem varð á séreign álitsbeiðanda vegna leka frá sameign, sem og á útlögðum kostnaði við niðurrif, mygluúrbætur, sérfræðiaðstoð og enduruppbyggingu fasteignarinnar í sama horf.
Sjónarmið gagnaðila
Gagnaðili byggir aðallega á því að vísa beri málinu frá nefndinni samkvæmt 80. gr. laga nr. 26/1994 og reglugerð nr. 1355/2019, þar sem ágreiningur aðila snúist í raun um fjárhagslegt uppgjör og sönnunarmat sem eigi heima fyrir almennum dómstólum en ekki kærunefnd húsamála.
Til vara hafnar gagnaðili bótaskyldu og greiðsluskyldu. Gagnaðili hafi ekki sýnt af sér vanrækslu heldur tekið lögmætar ákvarðanir á húsfundum um forgangsröðun framkvæmda samkvæmt fjárhagsgetu félagsins. Ákveðið hafi verið að klára ytra byrði þaksins fyrst og síðan ráðist í múr- og gluggaviðgerðir í samvinnu við J. Álitsbeiðandi hafi einhliða ráðist í framkvæmdir innan sinnar séreignar án samþykkis gagnaðila og krefjist greiðslu fyrir séreignarútgjöld sem húsfélaginu beri ekki að bera samkvæmt 50. gr. laga nr. 26/1994. Þá hafi álitsbeiðandi um langt skeið verið í vanskilum með sameiginlegan yfirdrátt og húsfélagsgjöld, á meðan allir aðrir íbúar hússins að D hafi staðið í skilum, sem tafið hafi frekari framkvæmdir húsfélagsins og leitt til þess að aðrir íbúar hússins hafa þurft að greiða vexti af yfirdrætti húsfélagsins úr eigin vasa.
III. Forsendur
Samkvæmt 1. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 geta eigendur fjöleignarhúsa leitað til kærunefndar húsamála með ágreining um réttindi sín og skyldur samkvæmt lögunum. Kröfur álitsbeiðanda lúta að því að henni hafi verið heimilt að ráðast í framkvæmdir á grundvelli 38. gr. laganna og að gagnaðili beri bótaábyrgð á tjóni og kostnaði vegna viðhalds sameignar samkvæmt 43. og 52. gr. laganna. Ágreiningur um túlkun og beitingu þessara ákvæða fellur undir valdsvið kærunefndar húsamála. Frávísunarkröfu gagnaðila er af þeim sökum hafnað.
Álitsbeiðandi beinir áðurnefndum kröfum sínum í þessu máli að gagnaðila, Húsfélaginu D, en af gögnum málsins verður ráðið að gagnaðili hefur á undanförnum árum ráðist í framkvæmdir á ytra byrði hússins, þar á meðal þaki þess, án eða með aðkomu Húsfélagsins Melhaga 15. Samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu fyrir D frá 18. september 2003, sem þinglýstir eigendur J samþykktu með undirritun sinni, eru þó húsin sitthvor matshluti sama fjöleignarhússins. Samþykktar teikningar af húsinu bera heldur ekki annað með sér en að C sé eitt hús í merkingu 1. mgr. 3. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Lög nr. 26/1994 eru ófrávíkjanleg um fjöleignarhús með íbúðum eingöngu, eins og á við um framangreint hús, en í því felst meðal annars að eigendum slíkra húsa er almennt óheimilt að skipa málum sínum, réttindum sínum og skyldum á annan veg en mælt er fyrir um í lögunum, sbr. 1. mgr. 2. gr. þeirra.
Af framangreindu leiðir að eigendum C er óheimilt lögum samkvæmt að semja um að önnur kostnaðarskipting gildi milli þeirra en kveðið er á um í lögum nr. 26/1994. Þá leiðir af 1. mgr. 56. gr. laganna að húsfélag er þegar til fyrir C, sem ekki þarf að stofna sérstaklega og formlega, sbr. til dæmis dóm Hæstaréttar 6. febrúar 2014 í máli nr. 583/2013. Í samræmi við 76. gr. laga nr. 26/1994 er eðlilegt að líta svo á að Húsfélag J og gagnaðili, Húsfélag D, séu húsfélagsdeildir innan Húsfélags D. Er þetta áréttað í ljósi þess hvernig staðið hefur verið að rekstri gagnaðila samkvæmt gögnum málsins sem og í ljósi þeirra ákvarðana sem voru teknar á fundi eigenda C samkvæmt fyrirliggjandi fundargerð frá 13. maí 2022. Í ljósi forsögu þessa máls, eins og hún birtist í gögnum málsins, er þó einnig vakin athygli á að kærunefnd hefur talið að þegar húsfélagsdeild hefur staðið að framkvæmdum án annarra deilda kunni að vera svigrúm til að taka tillit til þeirra við skiptingu sameiginlegs kostnaðar í framtíðinni, sbr. til dæmis álit kærunefndar 5. júlí 1995 í máli nr. 14/1995, þar sem eftirfarandi kom fram:
„Við mat á kostnaði vegna eldri viðgerða og þýðingu þeirra nú er ekki við bein lagafyrirmæli að styðjast. Kærunefnd telur hins vegar að eðlisrök leiði til þess að taka beri tillit til þeirra að því marki sem þær leiði til lækkunar á heildarkostnaði þess verks sem til stendur að vinna við húsið. Þetta sjónarmið á sér nokkurn stuðning í 1. mgr. 2. gr. laganna. Rísi ágreiningur um, hvort og með hvaða hætti eldri viðgerðir leiði til sparnaðar, er eðlilegt að úr því sé skorið með mati, en almennt ber sá aðili sönnunarbyrði sem slíku heldur fram.“
Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið og að teknu tilliti til kröfugerðar álitsbeiðanda var honum rétt að beina kröfum sínum að Húsfélagi C en ekki gagnaðila. Þar sem gagnaðili hefur þó ekki gert athugasemdir við aðild málsins og kærunefnd kveður ekki upp bindandi úrskurði á grundvelli laga um fjöleignarhús, heldur gefur álit sitt á ágreiningi aðila, verður framangreindur annmarki á álitsbeiðni ekki talinn standa í veg fyrir því að málið verði tekið til efnisúrlausnar.
Samkvæmt 1. tölul. 8. gr., sbr. 6. gr. laga um fjöleignarhús, telst allt ytra byrði húss, þar á meðal þak, þakgluggar í sameign, útveggir og burðarvirki, til sameignar allra eigenda hússins. Samkvæmt 43. gr. laganna telst kostnaður við nauðsynlegt viðhald og endurnýjun sameignar til sameiginlegs kostnaðar sem skiptist á alla eigendur eftir hlutfallstölum samkvæmt A-lið 1. mgr. 45. gr. laganna. Í 1. mgr. 38. gr. laganna kemur fram að einstökum eiganda er rétt að láta framkvæma nauðsynlegar viðgerðir á sameign á kostnað allra ef hún eða séreignarhlutar liggja undir skemmdum vegna vanrækslu á viðhaldi og húsfélagið eða aðrir eigendur hafa ekki, þrátt fyrir tilmæli og áskoranir, fengist til samvinnu og til að hefjast handa í því efni. Skal eigandi afla sönnunar á nauðsyn viðgerðar, umfangi hennar og kostnaði, og skal kostnaður við undirbúning og framkvæmd vera sameiginlegur kostnaður allra eiganda, sbr. 2. mgr. sömu greinar.
Í málinu liggja fyrir skoðunarskýrslur frá F frá desember 2021 og ágúst 2022, greiningar I á myglu frá júní 2022 og tilboð verktaka, sem sýna að þak hússins hafi verið í slæmu ástandi, einangrun hafi verið skemmd, rakavarnarlag vantað og heilsuspillandi mygla hafi verið til staðar í þakvirki. Fyrir liggur að álitsbeiðandi beindi margítrekuðum áskorunum til gagnaðila, m.a. með formlegum bréfum frá G, dags. 7. apríl 2022 og 17. maí 2022, sem og bréfi lögmanns, dags. 14. júní 2023, þar sem skorað var á gagnaðila að hefjast handa við nauðsynlegar viðgerðir á innra byrði þaks, einangrun og mygluhreinsun. Gagnaðili samþykkti ekki nauðsynlegar viðgerðir og tilboð en bar fyrir sig forgangsröðun viðhaldsverkefna og bága fjárhagsstöðu félagsins.
Gögn málsins staðfesta að bæði sameign og séreign lágu undir skemmdum og að gagnaðili fékkst ekki til samvinnu og til að hefjast handa við viðgerðir þrátt fyrir áskoranir álitsbeiðanda. Skilyrði 1. mgr. 38. gr. laga nr. 26/1994 fyrir að eigandi geti látið framkvæma nauðsynlegar viðgerðir á sameign á kostnað allra er því uppfyllt. Að virtum gögnum málsins, þar á meðal þeim sem fyrr eru nefnd um ástand hússins, verður einnig talið að skilyrði 2. mgr. greinarinnar hafi verið uppfyllt.
Samkvæmt 52. gr. laga um fjöleignarhús ber húsfélag skaðabótaábyrgð gagnvart einstökum eigendum vegna fjártjóns á eignum þeirra sem stafar af vanrækslu á viðhaldi sameignar, mistökum við meðferð hennar eða bilun í sameiginlegum búnaði og nær bótaskyldan einnig til afleidds tjóns. Þá ber jafnframt að koma séreign í samt horf og áður, samkvæmt 5. mgr. 26. gr. laganna, eiganda að kostnaðarlausu, ef raska þarf séreign vegna viðgerða á sameiginlegum byggingarhlutum. Fyrirliggjandi gögn staðfesta að vatnsleki frá þaki og þakglugga, sem fellur undir sameign hússins, hafi með beinum hætti valdið rakaskemmdum og mygluvexti í lofti, veggjum og gólfum í risíbúð álitsbeiðanda. Jafnframt var nauðsynlegt að rífa klæðningar, einangrun og innréttingar innan risíbúðarinnar til að komast að þakvirki sameignar til mygluhreinsunar, fúavarnar og enduruppbyggingar.
Að þessu virtu eru uppfyllt skilyrði 52. gr. laga nr. 26/1994 til að álitsbeiðandi fái bætt það beina tjón sem hann varð fyrir vegna lekans úr sameign og viðgerð á íbúðinni vegna þessa, sem og kostnað vegna sannanlegs afleidds tjóns við að koma íbúðinni aftur í samt horf.
Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.
IV. Niðurstaða
Það er álit kærunefndar að fallast beri á kröfur álitsbeiðanda.
Reykjavík, 17. nóvember 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson