Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir félags- og húsnæðismálaráðuneytisins

Úrskurður félags- og húsnæðismálaráðuneytis 17/2025

Miðvikudaginn 9. júlí 2025 var í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 14. maí 2025, kærði […], fyrir hönd DH veitinga ehf., kt. 570315-1290, og […], sem er kínverskur ríkisborgari, fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. janúar 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá DH veitingum ehf.

 

Málsatvik og málsástæður

Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er kínverskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá DH veitingum ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu umrædds atvinnuleyfis með vísan til 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

 

Fyrrnefndri ákvörðun Vinnumálastofnunar vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með erindi til ráðuneytisins, dags. 14. maí 2025.

Með bréfi ráðuneytisins til kærenda, dags. 3. júní 2025, óskaði ráðuneytið meðal annars eftir upplýsingum um ástæður þess að umrætt erindi hafi borist ráðuneytinu að loknum lögbundnum kærufresti.

Í svarbréfi kærenda til ráðuneytisins, dags. 4. júní 2025, kemur meðal annars fram að kærendur hafi verið í áframhaldandi samskiptum við Vinnumálastofnun í kjölfar þess að hin kærða ákvörðun var tekin af stofnuninni en þrátt fyrir það hafi ekki fengist fullnægjandi niðurstaða í málið að mati kærenda. Þá kemur fram að það sé mat kærenda að leiðbeiningar Vinnumálastofnunar um kæruheimild hafi ekki verið fullnægjandi og hafi kærendur af þeim sökum frestað því að vísa málinu til ráðuneytisins.

 

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra til ráðuneytisins ákvarðanir Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna og er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning barst um ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. 2. mgr. sama ákvæðis.

 

Fram kemur í gögnum málsins að ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á veitingu umrædds atvinnuleyfis hafi verið send skráðum umboðsmanni kærenda með tölvubréfi sama dag og stofnunin hafi tekið umrædda ákvörðun eða þann 15. janúar 2025. Að mati ráðuneytisins verður því ekki annað séð af gögnum málsins en að upplýsingar um ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi borist kærendum með hefðbundum og sannanlegum hætti strax í kjölfar þess að ákvörðunin lá fyrir.

Í ljósi framangreinds er það mat ráðuneytisins að kærufrestur í máli þessu hafi byrjað að líða þann 15. janúar 2025 þegar tilkynning barst til skráðs umboðsmanns kærenda um umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar og að kærufresturinn hafi runnið út fjórum vikum síðar, sbr. 2. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. einnig 8. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem kveðið er á um útreikning kærufrests. Var lögbundinn kærufrestur því að mati ráðuneytisins runninn út í máli þessu áður en ráðuneytinu barst umrætt erindi kærenda, dags. 14. maí 2025.

Þrátt fyrir ákvæði 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, fer um stjórnsýslukæru að öðru leyti samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 5. mgr. ákvæðisins. Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ber að vísa stjórnsýslukæru frá berist hún að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Að mati ráðuneytisins verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að með umræddri ákvörðun Vinnumálastofnunar, þegar hún var birt umboðsmanni kærenda, hafi fylgt upplýsingar um þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt þannig að unnt sé að óska eftir að málið verði tekið til meðferðar hjá stofnuninni að nýju á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga sem og leiðbeiningar til kærenda hvað varðar kæruleið til ráðuneytisins. Þá kemur fram í gögnum málsins að kærendum hafi ítrekað verið leiðbeint um kæruleið til ráðuneytisins í kjölfar þess að umrædd ákvörðun var tekin. Í ljósi framangreinds lítur ráðuneytið svo á að hin kærða ákvörðun hafi verið birt með fullnægjandi hætti af hálfu Vinnumálastofnunar og að kærendur hafi ekki sýnt fram á að afsakanlegar ástæður í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, séu fyrir því að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti.

Að mati ráðuneytisins verður því ekki annað ráðið af gögnum málsins en að kærendur hafi getað kært umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar til ráðuneytisins innan lögbundins kærufrests hafi þeir talið slíka ráðstöfun þjóna hagsmunum sínum. Þá verður að mati ráðuneytisins ekki ráðið af fyrirliggjandi gögnum í málinu að hagsmunir kærenda séu annars eðlis en almennt á við í sambærilegum málum og því verður að mati ráðuneytisins ekki talið að veigamiklar ástæður mæli með því að stjórnsýslukæran verði tekin til efnislegrar meðferðar hjá ráðuneytinu, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Með vísan til alls framangreinds er stjórnsýslukæru kærenda, dags. 14. maí 2025, vísað frá ráðuneytinu.

 

Úrskurðarorð

Stjórnsýslukæru, DH veitinga ehf. og […], dags. 14. maí 2025, vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar, dags. 15. janúar 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá DH veitingum ehf., er vísað frá ráðuneytinu.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta