Synjun framhaldsskóla á upplýsingabeiðni
Ár 2023, föstudaginn 6. janúar, var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svofelldur
ÚRSKURÐUR
í stjórnsýslumáli nr. MRN22120110
I.
Kæra og kröfur
Mennta- og barnamálaráðuneytinu barst hinn 14. desember, stjórnsýslukæra A, […] (hér eftir nefnd „kærandi“), vegna synjunar Menntaskólans við Sund, á beiðni hans um aðgang að upplýsingum sem tengjast umsókn hans um starf […] við skólann.
Kærandi krefst þess að ákvörðun rektors Menntaskólans við Sund um synjun að gögnum verði felld úr gildi og að kæranda verði veittur aðgangur að öllum umbeðnum gögnum.
II.
Málsatvik
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi umsækjandi um starf […] við Menntaskólann við Sund. Með bréfi, dags. 14. nóvember 2022, var kæranda tilkynnt um að hann yrði ekki ráðinn í starfið.
Af þeim bréfaskiptum sem liggja fyrir í málinu verður ráðið að í tengslum við umsókn kæranda hafi hann fengið aðgang að gögnum málsins. Með erindum til rektors, dags. 18., 22. og 27. nóvember 2022, fór kærandi fram á frekari aðgang að gögnum málsins, nánar tiltekið aðgang að öllum gögnum sem lögð voru til grundvallar við ákvörðunina, þ.m.t. tölvupóstum, minnisblöðum og öðrum gögnum. Erindum kæranda var svarað þann 2. desember 2022 og má ráða af svarinu að skólinn telji að kærandi hafi þegar fengið aðgang að öllum gögnum sem hann hafi rétt til aðgangs að.
Af kæru má ráða að kærandi telji sig ekki hafa fengið aðgang að öllum þeim gögnum sem hann eigi rétt á, þ.e. öllum upplýsingum í skjali frá B, dags. 30. nóvember 2021, tölvupósti þar sem skjalið var sent Menntaskólanum við Sund sem viðhengi og tölvupósti þar sem formleg kvörtun tveggja […] við skólann var send sem viðhengi.
III.
Málsástæður
Kærandi telur þá ákvörðun rektors að afmá tilteknar upplýsingar í skjali frá B, dags. 30. nóvember 2021, með vísan til einkahagsmuna, sbr. 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, andstæða ríkari rétti sínum til umræddra upplýsinga á grundvelli stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Kærandi telur ljóst að ekki hafi farið fram mat á andstæðum hagsmunum og að slíkt sé í ósamræmi við ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsingarétt aðila máls.
Kærandi telur að byggja hefði ákvörðun um aðgang að gögnum málsins á ákvæðum stjórnsýslulaga en ekki á ákvæðum upplýsingalaga. Þannig telur kærandi ákvörðun um takmörkun á aðgangi reista á röngum lagagrundvelli. Jafnframt telur kærandi ákvörðunina skorta rökstuðning, hvort sem litið er til ákvæða upplýsingalaga eða stjórnsýslulaga.
Kærandi telur enn fremur að Menntaskólinn við Sund hafi til viðbótar við skort á rökstuðningi synjunar á grundvelli 19. gr. stjórnsýslulaga ekki sinnt skyldu til að veita leiðbeiningar á grundvelli 20. gr. sömu laga.
IV.
Rökstuðningur niðurstöðu
Fjallað er um upplýsingarétt aðila stjórnsýslumáls í IV. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt 15. gr. laganna á aðili máls rétt á aðgangi að skjölum og gögnum er mál varða. Rétturinn nær eingöngu til þeirra gagna sem tilheyra málinu. Heimilt getur verið að takmarka rétt aðila stjórnsýslumáls að tilteknum gögnum með vísan til mun ríkari hagsmuna annarra, sbr. 17. gr. laganna.
Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. stjórnsýslulaga skal kæra ákvörðun stjórnvalds um synjun að gögnum máls eða takmörkun á aðgangi að gögnum til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Mál þetta lýtur að gögnum stjórnsýslumáls um ráðningu í opinbert starf, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Ákvörðun Menntaskólans við Sund um ráðningu í starf er ekki kæranleg til mennta- og barnamálaráðuneytis, sbr. 49. gr. sömu laga. Þar með er ákvörðun um synjun um aðgang að gögnum sem og ákvörðun um takmörkun á aðgangi að gögnum í málinu ekki kæranleg til ráðuneytisins. Sama á við um þær málsástæður kæranda sem lúta að rökstuðningi ákvörðunar um synjun. Samkvæmt framangreindu er það niðurstaða mennta- og barnamálaráðuneytis að vísa málinu frá.
ÚRSKURÐARORÐ
Kæru vegna ákvörðunar Menntaskólans við Sund um takmörkun og synjun að aðgangi að gögnum er vísað frá.