1376/2026. Úrskurður frá 11. ágúst 2026
Hinn 11. ágúst 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1376/2026 í máli ÚNU 26050021.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 27. maí 2026, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Útlendingastofnunar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi til Útlendingastofnunar, dags. 22. mars 2026, óskaði kærandi eftir upplýsingum og gögnum. Í beiðni hans sagði svo:
Beiðandi óskar eftir eftirtöldum gögnum sem afmörkuð eru við tilgreind ár og snúa að greiningu og mati á sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.
Hversu margir umsækjendur um alþjóðlega vernd voru metnir í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tl. 3. gr. laga nr. 80/2016?
Hversu margir umsækjendur um alþjóðlega vernd tjáðu Útlendingastofnun að þeir hefðu sætt pyndingum á tilgreindum árum?
[…]
Hversu margir umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa sætt greiningu, skv. 3. málslið 1. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, þar sem byggt er á handbók um rannsókn og skráningu pyndinga og annarrar grimmilegrar, ómannlegrar eða vanvirðandi meðferðar eða refsingar (Istanbúlsamningurinn)?
Í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar tilgreinir kærandi sérstaklega að hann óski eftir að nefndin leggi fyrir Útlendingastofnun að svara 1., 2. og 4. lið í upplýsingabeiðninnar. Í kærunni tilgreinir hann einnig að ekki sé ágreiningur um þriðja lið fyrirspurnarinnar.
Útlendingastofnun svaraði erindinu þann 4. maí 2026 þar sem fram kemur að stofnunin haldi ekki sérstaka skráningu um umrædd atriði. Þannig sé ekki til sérstök skrá yfir þá umsækjendur sem metnir hafi verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þá sem tjáð hafi stofnuninni að þeir hafi orðið fyrir pyndingum eða þá sem hafi sætt greiningu samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. 25. gr. útlendingalaga. Gögnin séu því ekki fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga og muni stofnunin ekki útbúa ný skjöl eða gögn í því skyni að verða við beiðninni.
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar tekur kærandi sérstaklega fram að hann telji að þau mál sem falli undir fyrsta liðinn í upplýsingabeiðni hans séu stjórnsýslumál og að ákvarðanir um að umsækjandi um alþjóðlega vernd sé í viðkvæmri stöðu séu stjórnvaldsákvarðanir. Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. upplýsingalaga beri Útlendingastofnun að vinna markvisst að því að gera skrár yfir mál, lista yfir málsgögn og gögnin sjálf aðgengileg með rafrænum hætti. Þannig sé það mat kæranda að gögnin sem þessi liður upplýsingabeiðni hans tekur til ættu að vera fyrirliggjandi, óháð því hvort svo sé í raun.
Varðandi annan og fjórða lið beiðninnar mótmælir kærandi þeirri afstöðu Útlendingastofnunar að umbeðnar upplýsingar séu ekki fyrirliggjandi. Byggir kærandi í fyrsta lagi á því að Útlendingastofnun beri skylda til að gera ráðstafanir í því skyni að bera kennsl á og skrá möguleg einkenni og ummerki um pyndingar eða ofbeldi og vísar hann því til stuðnings til athugasemda við 25. gr. útlendingalaga. Í öðru lagi byggir kærandi á því að úrskurðarframkvæmd úrskurðarnefndar um upplýsingamál sé þess efnis að gögn í gagnagrunnum teljist fyrirliggjandi ef afhending þeirra krefjist óverulegrar fyrirhafnar svo sem með einföldum útdrætti eða vistun gagna í þeirri mynd sem þau liggja fyrir í viðkomandi kerfum. Kærandi áréttar að spurning hans sé afar afmörkuð og varði sérhæfðar greiningar á sviði réttarlækninga sem stofnuninni beri að ráðast í. Útlendingastofnun hljóti því að eiga auðvelt með að veita afdráttarlaus svör.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Útlendingastofnun með erindi, dags. 2. júní 2026, og stofnuninni gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Útlendingastofnun afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar. Umsögn Útlendingastofnunar barst úrskurðarnefndinni 16. júní 2026.
Útlendingastofnun byggir á því að umbeðin gögn séu ekki til og að stofnuninni sé ekki skylt að útbúa ný gögn eða skjöl, sbr. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Vísar stofnunin til þess að þær upplýsingar sem kærandi óski eftir séu metnar í hverju máli fyrir sig, skráðar beint á mál viðkomandi umsækjanda í málavinnslukerfi stofnunarinnar og nýttar við einstaklingsbundið heildarmat á högum viðkomandi, þar á meðal við mat á aðstæðum hans í heimaríki eða viðtökuríki. Umbeðnar upplýsingarnar séu hins vegar ekki skráðar sem tölfræðilegar breytur sem hægt sé að kalla fram með sjálfvirkum hætti enda sé hvorki gerð krafa í lögum, reglugerðum né verklagi um að haldin sé sérstök skrá um slík tilvik. Að því er varðar þá kröfu til stjórnvalda að gerðar séu ráðstafanir til að bera kennsl á og skrá ummerki um pyndingar eða annað alvarlegt líkamlegt og andlegt ofbeldi, sem vikið sé að í athugasemdum við 25. gr. útlendingalaga, sé það afstaða stofnunarinnar að þeirri kröfu sé fullnægt þegar slíkt sé skráð á mál viðkomandi í málaskrá, líkt og lýst hefur verið hér að framan. Til þess að fá yfirlit yfir tölfræði þá sem kærandi krefjist svara við væri óhjákvæmilegt að fara handvirkt yfir allar þær 7.848 umsóknir um alþjóðlega vernd sem hafi verið til umfjöllunar hjá stofnuninni á umræddu tímabili sem jafngildi því að útbúa nýtt gagn sem ekki sé þegar fyrir hendi. Áætli stofnunin að slík vinna gæti tekið marga mánuði.
Umsögn Útlendingastofnunar var kynnt kæranda með erindi, dags. 16. júní 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda þann 2. júlí 2026.
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
Mál þetta varðar beiðni kæranda til Útlendingastofnunar um tölfræðiupplýsingar um umsækjendur um alþjóðlega vernd. Útlendingastofnun kveður að ekki liggi fyrir gögn með umbeðnum upplýsingum og að ekki sé hægt að kalla umbeðnar upplýsingar fram með einföldum skipunum í gagnagrunnum stofnunarinnar heldur myndi það útheimta umfangsmikla handvirka vinnu að útbúa gögn í þeirri mynd sem kærandi óskar eftir.
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að upplýsingaréttur almennings nái til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. er ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna þar sem mælt er fyrir um að ef ákvæði 6.–10. gr. laganna eigi aðeins við um hluta gagns skuli veita aðgang að öðrum hlutum þess. Í athugasemdum við 5. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að skilyrði þess að gagn sé undirorpið upplýsingarétti sé að það liggi fyrir hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Þá segir enn fremur að réttur til aðgangs að gögnum nái þannig aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma.
Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að gögn með umbeðnum upplýsingum séu ekki fyrirliggjandi hjá stofnuninni. Í umsögn stofnunarinnar kemur fram að upplýsingarnar sé að finna í málaskrám einstakra umsækjenda í þeim tilvikum sem þær aðstæður sem spurt sé um eigi við. Þannig þyrfti að fara handvirkt yfir hvert og eitt mál til að kanna hvort aðstæðurnar væru fyrir hendi. Jafnvel þótt allar nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir í kerfum Útlendingastofnunar, til þess að unnt væri að útbúa umbeðna samantekt, er ljóst að það yrði ekki gert með tiltölulega einföldum hætti, svo sem með nokkrum einföldum skipunum í gagnagrunni, heldur þyrfti að ráðast í umfangsmikla handavinnu.
Í athugasemdum kæranda, dags. 2. júlí 2026, kemur fram að hann telji Útlendingastofnun breiða yfir vanrækslu á lögboðnum skyldum sínum á sviði skjalavörslu með því að halda því fram að gögnin séu ekki fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Telur kærandi jafnframt að stofnunin hafi brugðist tilteknum skyldum sínum samkvæmt útlendingalögum. Í þessu sambandi hefur kærandi sérstaklega vísað til þess að Útlendingastofnun beri að skrá mál sem falli undir upplýsingabeiðni hans.
Hvað þennan þátt í röksemdum kæranda varðar tekur úrskurðarnefndin fram að gögn málsins bera ekki með sér að upplýsingar sem kærandi óskar eftir hafi ekki verið skráðar í málaskrá Útlendingastofnunar. Á hinn bóginn hefur komið fram að þær séu skráðar í hverju máli fyrir sig og að það kalli á tilgreinda úrvinnslu að sækja þær skráningar og útbúa gögn með þeim upplýsingum sem kærandi hefur óskað eftir. Þegar svo háttar til að umbeðið gagn er ekki fyrirliggjandi hjá stjórnvaldi er ekki um að ræða synjun á aðgangi að gögnum í skilningi upplýsingalaga.
Vegna framangreindra röksemda kæranda er einnig rétt að taka fram að valdsvið úrskurðarnefndar um upplýsingamál er afmarkað í 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga og lýtur að því að skera úr um réttmæti synjunar á beiðni um aðgang að gögnum í vörslu stjórnvalda. Það fellur því utan úrskurðarvalds nefndarinnar að leggja mat á hvort Útlendingastofnun hafi brugðist almennum skyldum sínum við meðferð mála, skráningu upplýsinga eða vistun gagna.
Samkvæmt framangreindu verður lagt til grundvallar að umbeðin gögn séu ekki fyrirliggjandi hjá Útlendingastofnun í skilningi upplýsingalaga. Enn fremur fellst úrskurðarnefndin á að stofnuninni sé ekki unnt að kalla fram samantekt sem kærandi hefur óskað með tiltölulega einföldum hætti, svo sem með nokkrum einföldum skipunum í gagnagrunni, heldur þyrfti að ráðast í umfangsmikla handavinnu. Að framangreindu virtu og með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga telur úrskurðarnefndin að Útlendingastofnun sé ekki skylt að verða við beiðni kæranda.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga er heimilt að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Hið sama gildir um synjun á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Því liggur ekki fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga og verður því staðfest afgreiðsla Útlendingastofnunar.
Úrskurðarorð
Staðfest er afgreiðsla Útlendingastofnunar, dags. 4. maí 2026, á beiðni kæranda, […], um aðgang að tölfræðiupplýsingum um umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir