1395/2026. Úrskurður frá 29. október 2026

Hinn 29. október 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1395/2026 í máli ÚNU 26030015.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 25. mars 2026, kærði […], f.h. […], til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun lög­reglu­stjór­ans […] að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnum.

Með erindi, dags. 9. mars 2026, óskaði kærandi eftir aðgangi að upptökum frá […] 2024 úr tiltekinni lög­reglu­bif­reið. Ef upptaka væri ekki til var jafnframt óskað eftir útskýringum á því. Í samskiptum við lög­reglu­stjór­ann […] kom fram að beiðnin varðaði atvik í máli hjá lögreglu, sem varðaði afskipti lögreglu og heil­brigð­is­yf­ir­valda af kæranda þann dag.

Kæranda var tjáð hinn 12. mars 2026 að myndavélin í lög­reglu­bif­reið­inni hefði verið biluð þegar atvikið varð og að því væru ekki til upptökur innan úr bifreiðinni. Lög­reglu­maður hefði sett upptöku í gang en vegna bilunar hefði það ekki gengið.

Af hálfu kæranda var brugðist við samdægurs og óskað eftir afriti af bil­un­ar­grein­ingu á mynda­vél­inni og upp­lýs­ingum um tegund búnaðar. Æskilegt væri að fá kóða eða skip­un­ar­yf­ir­lit sem sýndi að reynt hefði verið að kveikja á myndavél, eða a.m.k. þau gögn sem notuð hefðu verið til að staðfesta að reynt hefði verið að kveikja á upptöku. Sömuleiðis væri æskilegt að fá afrit af verkbeiðni eða tilkynningu um að upp­töku­bún­aður væri í ólagi eða eftir atvikum tölvu­póst­sam­skiptum um stað­fest­ingu á bilun búnaðarins.

Daginn eftir, 13. mars 2026, var beiðninni hafnað. Svar lög­reglu­stjór­ans […] var svohljóð­andi:

„Lögreglan […] staðfestir eft­ir­far­andi, eins og að neðan greinir;

1. Upptaka úr myndavél í lög­reglu­bif­reið […] er til í kerfinu.

2. Ekki er til myndupptaka inni í lög­reglu­bif­reið­inni vegna bilunar í búnaði.

3. Myndupp­takan, sem til er, vísar fram fyrir lög­reglu­bif­reið­ina.

4. Vegna bilunar í búnaði eru hljóðgæði á upptökunni þannig að ómögulegt er að greina samtöl eða nokkuð annað og upptakan telst því ónothæf.

Skv. framansögðu var bilun í búnaði og upptakan er því ekki gagn í málinu enda ónothæf.

[…] Afrit af mynd- og hljóð­upp­tökum eru ekki afhent en aðila máls er heimilt að horfa á myndupp­tök­una. Sé eftir því óskað er þess vin­sam­leg­ast óskað að máls­aðili sendi beiðni og tillögu að tíma á netfang þessa pósts.

Frekari gögn varðandi tækið, bil­ana­grein­ingu og annað því tengdu verða ekki afhent máls­aðila sbr. 6., 8. og 10. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og 16. og 17. gr. stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993.“

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt lög­reglu­stjór­anum […] 30. mars 2026 og embættinu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að embættið afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn barst úrskurð­ar­nefnd­inni hinn 24. apríl 2026. Í henni kemur fram að hluti þeirra gagna sem óskað hafi verið eftir sé ekki til. Nánar tiltekið liggi ekki fyrir bil­ana­grein­ing upp­töku­bún­aðar lög­reglu­bif­reið­ar­innar, skjal um hvort og hvenær mynda­véla­bún­að­ur­inn hafi verið lagfærður og afrit af verkbeiðni eða tilkynning um að upp­töku­bún­aður hafi verið í ólagi.

Á hinn bóginn liggi fyrir skip­un­ar­yf­ir­lit upp­töku­bún­aðar lög­reglu­bif­reið­ar­innar frá […] 2024. Þau vinnu­gögn sýni annars vegar skip­un­ar­yf­ir­lit fyrir myndavél 1, sem hafi vísað fram fyrir bifreiðina, og hins vegar skip­un­ar­yf­ir­lit fyrir myndavél 2, sem hafi snúið inn í bifreiðina. Yfirlitið fyrir myndavél 1 innihaldi upp­lýs­ingar um notkun mynda­vél­ar­innar en yfirlit fyrir myndavél 2 innihaldi engar upp­lýs­ingar þar sem upptaka sé ekki til vegna bilunar.

Að mati lög­reglu­stjór­ans […] sé skip­un­ar­yf­ir­lit upp­töku­bún­aðar lög­reglu­bif­reiða vinnugagn í skilningi upp­lýs­inga­laga og stjórn­sýslu­laga. Gagnið sé til eigin nota lögreglu við stjórnun og rekstur upp­töku­bún­að­ar­ins, sé aðeins til notkunar innanhúss og aðrir en þjón­ustu­að­ilar búnaðarins hafi ekki aðgang að honum.

Í umsögninni kemur fram að embættið hafi metið sérstaklega hvort gögnin féllu undir skilyrði sem kveði á um skyldu til afhendingar vinnugagna, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 16. gr. stjórn­sýslu­laga og 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga. Það sé mat embættisins að upp­lýs­ingar í umræddu skip­un­ar­yf­ir­liti fullnægi ekki þeim skilyrðum. Gögnin hafi ekki að geyma endanlega ákvörðun um afgreiðslu máls heldur skráningu á notkun og stöðu búnaðar. Þá hafi þau ekki að geyma upp­lýs­ingar sem ekki verði aflað annars staðar frá. Kærandi hafi þegar verið upplýstur um að upptökur hafi verið settar af stað, upptakan sem til er vísi fram fyrir lög­reglu­bif­reið­ina sem um ræði, að vegna bilunar séu ekki til upptökur innan úr bifreiðinni og vegna bilunar í búnaði sé hljóðgæðum verulega áfátt. Umræddar upp­lýs­ingar hafi því þegar verið veittar kæranda með full­nægj­andi hætti að mati embættisins.

Umsögn lög­reglu­stjór­ans […] var kynnt umboðsmanni kæranda 29. apríl 2026 og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Þær bárust samdægurs.

Úrskurð­ar­nefndin sendi fyrirspurn til lög­reglu­stjór­ans […], 29. maí 2026. Þar kom fram að meðal þeirra þátta sem nefndin þyrfti að taka afstöðu til væri hvort þau gögn sem kæran lyti að féllu innan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga. Því óskaði nefndin eftir svörum við tilteknum spurningum þar að lútandi.

Svar við fyr­ir­spurn­inni barst hinn 5. júní 2026. Í svarinu kemur fram að það sé nú afstaða embættisins að gögnin sem málið varðar falli utan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga þar sem þau tilheyri sakamáli, sbr. 1. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga. Ef úrskurð­ar­nefndin telji á hinn bóginn að upp­lýs­inga­lög eigi við um gögnin þá telji embættið að þau séu undanþegin aðgangi sem vinnu­gögn.

Til nánari rök­stuðn­ings þess að um sé að ræða gögn sem tilheyri sakamáli og falli utan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga bendir embættið á að afskipti lögreglu á vettvangi hinn […] 2024 hafi í upphafi verið á grundvelli almenns aðstoðar- og örygg­is­hlut­verks samkvæmt lög­reglu­lögum, nr. 90/1996, vegna til­kynn­ingar um að kærandi […]. Sjúkra­flutn­inga­menn sem þegar hefðu verið mættir á vettvang hefðu óskað eftir aðstoð lögreglu. Þegar lög­reglu­menn hefðu nálgast kæranda hefði ástandið stigmagnast […]. Því hefði þurft að handtaka kæranda til að tryggja líkamlegt öryggi hans og flytja hann til aðhlynn­ingar á sjúkrahús. Með háttsemi kæranda hefði eðli afskiptanna breyst og rannsókn sakamáls hafist vegna gruns um brot gegn 106. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, nr. 19/1940 (ofbeldi gegn opin­berum starfs­manni). Afskipti lögreglu sem málið varðaði tengdust því almennri aðstoð lögreglu, sem svo hefði orðið að rannsókn sakamáls.

Skip­un­ar­yf­ir­lit upp­töku­bún­aðar lög­reglu­bif­reið­ar­innar hafi orðið til í tengslum við fram­an­greint mál, sem sé sakamál. Málið hafi verið sent til hér­aðs­sak­sókn­ara til rannsóknar og ákvörðunar um saksókn, en hér­aðs­sak­sókn­ari hafi síðar tekið ákvörðun um að hætta rannsókn málsins á grundvelli laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Í umsögninni er jafnframt tiltekið að umrædd skip­un­ar­yf­ir­lit séu að mati embættisins ekki hluti af máli sem hafi lokið eða komið til greina að ljúka með stjórn­valds­ákvörðun í skilningi stjórn­sýslu­laga. Lög­reglu­að­gerðin hafi verið íhlutun á vettvangi lög­reglu­laga til að vernda líf og heilsu kæranda en hafi að auki þróast yfir í rannsókn sakamáls. Engin stjórn­valds­ákvörðun hafi verið tekin eða undirbúin.

Úrskurð­ar­nefndin sendi embættinu aðra fyrirspurn 20. ágúst 2026 um hvort skip­un­ar­yf­ir­litin hefðu verið skráð á meðal gagna sakamálsins. Í svari embættisins, dags. 10. september 2026, kemur fram að þau hafi ekki verið á meðal skráðra gagna málsins. Skip­un­ar­yf­ir­lit upptaka séu ekki send á milli embætta sem hluti af gögnum mála þó þau verði til við vinnslu mála.

Samskipti úrskurð­ar­nefnd­ar­innar og lög­reglu­stjór­ans […] voru kynnt umboðsmanni kæranda með erindi, dags. 11. september 2026. Athuga­semdir bárust frá honum hinn 18. september 2026.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

1.

Mál þetta varðar beiðni um aðgang að gögnum í vörslu lög­reglu­stjór­ans […] sem tengjast myndupp­töku­bún­aði í tiltekinni lög­reglu­bif­reið vegna atviks hinn […] 2024 sem varði kæranda.

Beiðnin var lögð fram í kjölfar þess að lög­reglu­emb­ættið upplýsti kæranda um að vegna bilunar í búnaðinum væri ekki til myndupptaka innan úr bifreiðinni. Ákvörðun embættisins að hafna beiðni kæranda byggðist á 6., 8. og 10. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, auk 16. og 17. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Embættið telur enn fremur að gögnin falli utan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga samkvæmt 1. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga.

Í umsögn lög­reglu­stjór­ans […] til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar kemur fram að hluti þeirra gagna sem kærandi hafi óskað aðgangs að liggi ekki fyrir í vörslu embættisins, svo sem bil­ana­grein­ing á upp­töku­bún­að­inum og skjal um hvort og hvenær hann hafi verið lagfærður. Úrskurð­ar­nefndin hefur ekki forsendur til að draga þessar skýringar í efa. Réttur til aðgangs að gögnum samkvæmt upp­lýs­inga­lögum tekur aðeins til fyr­ir­liggj­andi gagna, sbr. 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 14. gr. laganna. Verður hin kærða ákvörðun því staðfest að því er varðar aðgang að fram­an­greindum gögnum.

Eins og málið liggur fyrir nefndinni lýtur ágrein­ingur í málinu að öðru leyti að aðgangi að svonefndum skip­un­ar­yf­ir­litum vegna notkunar upp­töku­bún­aðar lög­reglu­bif­reið­ar­innar hinn […] 2024, annars vegar fyrir myndavél 1, sem vísaði fram fyrir bifreiðina, og hins vegar myndavél 2, sem sneri inn í hana.

2.

Úrskurð­ar­nefndin tekur fyrst til athugunar hvort skip­un­ar­yf­ir­litin falli innan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga.

Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga gilda lögin ekki um rannsókn sakamáls eða saksókn. Í úrskurð­ar­fram­kvæmd nefnd­ar­innar hefur verið lagt til grundvallar að ákvæðið beri að túlka þröngt. Til að gögn falli utan gild­is­sviðs laganna á þessum grundvelli þurfa þau að tilheyra máli sem er eða hefur verið til rannsóknar eða saksóknar á grundvelli laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Við það mat hefur meðal annars þótt skipta máli hvort gögnin hafi verið tekin til skoðunar eða verði að öllum líkindum til skoðunar við rannsókn lögreglu eða annars handhafa ákæruvalds á ætlaðri refsiverðri háttsemi.

Lögreglan byggir á því að skip­un­ar­yf­ir­litin hafi orðið til við meðferð þess sakamáls sem hófst í kjölfar háttsemi kæranda hinn […] 2024 og tilheyri því máli. Fyrir liggur að hér­aðs­sak­sókn­ari hóf rannsókn en hætti henni síðan á grundvelli laga um meðferð sakamála.

Skip­un­ar­yf­ir­litin hafa að geyma skráningar í tímaröð úr upp­töku­kerfi bif­reið­ar­innar, sem lúta bæði að sjálfu upp­töku­kerf­inu en einnig að öðrum búnaði í bifreiðinni. Lögreglan hefur lýst yfirlitunum sem skráningu á notkun og stöðu búnaðar, til eigin nota við stjórnun og rekstur hans.

Lögreglan hefur staðfest að yfirlitin hafi ekki verið meðal skráðra gagna sakamálsins og ekki verið send til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rannsóknar þess embættis. Þá hefur komið fram að skip­un­ar­yf­ir­lit séu ekki send á milli embætta sem hluti af gögnum mála þótt þau verði til við vinnslu þeirra. Ekki hefur komið fram í máli þessu að yfirlitin hafi verið notuð við rannsókn sakamálsins eða að þeirra hafi verið aflað sérstaklega í þágu rann­sókn­ar­innar.

Úrskurð­ar­nefndin telur að þótt umrædd yfirlit hafi orðið til og geymi skráningar á notkun mynda­véla­bún­aðar í lög­reglu­bif­reið sem sýni að hluta notkun þessa búnaðar sem átt hafi sér stað á sama tíma og atvik urðu í máli kæranda, sem síðan leiddu til þess að stofnað var sakamál í málaskrá lög­regl­unnar, þá sé einnig ljóst að þessar tilteknu upp­lýs­ingar hafi ekki verið taldar lúta að rannsókn eða saksókn málsins. Af því leiðir, eins og atvikum er hér háttað, að þessi gögn teljast ekki til rannsóknar sakamáls eða saksóknar í skilningi 1. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga.

Þá telur nefndin jafnframt að umrædd gögn séu ekki hluti stjórn­sýslu­máls í skilningi stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993, nánar tiltekið að umrædd gögn verði ekki talin meðal málsgagna í máli sem varðar rétt eða skyldu kæranda sjálfs, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993. Af því leiðir að aðgangur kæranda að yfirlitunum fer ekki eftir reglum stjórn­sýslu­laga um upp­lýs­inga­rétt aðila máls, sbr. fyrri málslið 2. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga. Verður samkvæmt þessu leyst úr beiðni kæranda á grundvelli upp­lýs­inga­laga.

3.

Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga er skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum ef þau hafa að geyma upp­lýs­ingar um hann sjálfan. Í athuga­semdum um 14. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, kemur fram að með orðalaginu að gagn skuli geyma „upp­lýs­ingar um hann sjálfan“ sé vísað til þess að upp­lýs­ingar þurfi að varða viðkomandi aðila sérstaklega og verulega umfram aðra. Við það mat geti þurft að líta til ástæðna þess að aðili óskar upp­lýs­ing­anna.

Kærandi lagði fram beiðni um gögnin sem málið lýtur að í framhaldi af upp­lýs­ingum um að myndupp­töku­bún­aður í lög­reglu­bif­reið, sem kærandi var samkvæmt gögnum málsins fluttur í til aðhlynn­ingar á sjúkrahúsi, hefði ekki farið í gang meðan á bílferðinni stóð. Úrskurð­ar­nefndin telur að kærandi hafi hags­muni af því að geta kynnt sér þær skráningar sem liggja fyrir um notkun upp­töku­bún­að­ar­ins hinn […] 2024. Þótt yfirlitin séu ekki beinlínis um kæranda, þá telur úrskurð­ar­nefndin hins vegar, eins og mál þetta er vaxið, að þau varði kæranda með þeim hætti að réttur hans til aðgangs að þeim skuli byggjast á 14. gr. upp­lýs­inga­laga, fremur en 5. gr. laganna um upp­lýs­inga­rétt almennings.

4.

Lögreglan […] vísar til þess að skip­un­ar­yf­ir­litin séu vinnu­gögn samkvæmt upp­lýs­inga­lögum. Samkvæmt 5. tölul. 6. gr. upp­lýs­inga­laga tekur réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til vinnugagna. Sú takmörkun á einnig við um aðgang aðila að upp­lýs­ingum um hann sjálfan, sbr. fyrri tölulið 2. mgr. 14. gr. laganna. Hugtakið vinnugagn er skilgreint í 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga en samkvæmt máls­grein­inni eru vinnu­gögn þau gögn sem stjórn­völd eða aðrir aðilar samkvæmt I. kafla laganna hafa ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Í síðari málslið máls­grein­ar­innar er tekið fram að gögn teljist ekki lengur til vinnugagna hafi þau verið afhent öðrum, nema afhending hafi verið til eft­ir­lits­að­ila á grundvelli laga­skyldu.

Í athuga­semdum um 8. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, segir um 1. mgr. að stjórn­völdum sé falið að taka ýmsar matskenndar ákvarðanir og móta tillögur um áætlanir eða aðrar aðgerðir. Eins geti verið að stjórn­völd þurfi að undirbúa ýmsar aðrar ákvarðanir, svo sem um samninga við einkaaðila. Oft geymi lög ekki að öllu leyti þau skilyrði sem þurfi að fullnægja svo slíkar ákvarðanir verði teknar, eða þau sjónarmið eða markmið sem að skuli stefnt. Þegar stjórn­völd standi frammi fyrir slíkum verkefnum verði þau iðulega að vega og meta ólík sjónarmið og velja svo á hvaða grundvelli úr málinu skuli leyst. Af því leiði að það taki einatt einhvern tíma að móta afstöðu til fyr­ir­liggj­andi mála og á því tímabili kunni ólík sjónarmið að hafa mismunandi vægi og breytast, t.d. ef fram komi nýjar upp­lýs­ingar. Í athuga­semd­unum er tekið fram að gögn sem til verði í slíku ferli þurfi ekki að endurspegla réttilega að hvaða niður­stöðu sé stefnt. Því sé eðlilegt að stjórn­völdum sé heimilt að hafna aðgangi að þeim þótt stjórn­völdum sé einnig á grundvelli reglunnar um aukinn aðgang að gögnum heimilt að afhenda slík gögn, standi reglur um þagn­ar­skyldu því ekki í vegi.

Í athuga­semdum um 8. gr. kemur enn fremur fram að til þess að skjal teljist vinnu­skjal þurfi þremur skilyrðum að vera fullnægt: Gagn þurfi að vera und­ir­bún­ings­gagn í reynd, það skuli hafa verið útbúið eða ritað af starfs­mönnum stjórn­valds­ins sjálfs og það megi ekki hafa verið afhent öðrum.

5.

Úrskurð­ar­nefndin hefur farið yfir gögnin sem deilt er um aðgang að í málinu. Gögnin samanstanda af tveimur skjölum, sem bæði bera heitið „Eyewitness Data Vault Timeline Report“. Eyewitness Data Vault er hug­bún­að­ar­lausn um meðhöndlun stafrænna sönn­un­ar­gagna. Gögnin bera með sér að hafa verið flutt út úr þeirri lausn til varðveislu hjá lög­reglu­stjór­anum […].

Í báðum skjölum koma fram upp­lýs­ingar um númer lög­reglu­bif­reiðar, skráarheiti, hvenær myndupptaka hafi hafist og hvenær henni hafi lokið. Yfirlit fyrir myndavél 1 hefur svo að geyma skráningar í tímaröð úr upp­töku­kerfi bif­reið­ar­innar, sem lúta bæði að sjálfu upp­töku­kerf­inu en einnig að öðrum búnaði í bifreiðinni. Yfirlit fyrir myndavél 2 hefur ekki að geyma neinar skráningar, sem er í samræmi við útskýringar lög­reglu­stjór­ans […] um að búnaðurinn hafi verið í ólagi.

Embættið hefur lýst skip­un­ar­yf­ir­lit­unum sem skráningu á notkun og stöðu upp­töku­bún­að­ar­ins. Þau séu til eigin nota við stjórnun og rekstur búnaðarins, eingöngu notuð innanhúss og aðgangur að hug­bún­að­ar­lausn­inni sé takmarkaður. Þá byggir embættið á því að yfirlitin hafi ekki að geyma endanlega ákvörðun um afgreiðslu máls og að kæranda hafi þegar verið veittar upp­lýs­ingar um notkun og bilun búnaðarins.

Af yfirlitunum eða öðrum gögnum málsins verður ekki ráðið að yfirlitin hafi verið útbúin í tengslum við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls hjá embættinu, svo sem vegna rannsóknar sakamálsins eða athugunar á virkni upp­töku­bún­að­ar­ins. Gögnin hafa að geyma, líkt og fyrr hefur verið rakið, upp­lýs­ingar um færslur úr hug­bún­að­ar­lausn­inni Eyewitness Data Vault um notkun og stöðu upp­töku­bún­aðar í tiltekinni lög­reglu­bif­reið. Ekki verður annað séð en að um sé að ræða sjálfvirkar skráningar. Þótt ekki sé ástæða til að útiloka alfarið að slík gögn geti talist vinnu­gögn í skilningi 1. mgr. 8. gr. telur nefndin að sú staða sé ekki uppi í þessu máli þar sem ekki liggur fyrir hvaða úrlausn gögnunum hafi verið ætlað að undirbúa eða með hvaða hætti þau kæmu til með að nýtast við slíkan undirbúning.

Að fram­an­greindu virtu telur úrskurð­ar­nefndin að skip­un­ar­yf­ir­litin uppfylli ekki það skilyrði 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga að vera und­ir­bún­ings­gögn í reynd. Röksemdir lög­reglu­stjór­ans […] um að yfirlitin hafi ekki að geyma endanlega ákvörðun og að upp­lýs­ingar hafi þegar verið veittar kæranda breyta ekki þeirri niður­stöðu, þar sem slík sjónarmið lúta að skyldu til afhendingar gagna sem á annað borð teljast vinnu­gögn, sbr. 3. mgr. 8. gr. laganna, en ekki því hvort skilyrði 1. mgr. laga­grein­ar­innar séu uppfyllt.

6.

Í ákvörðun sinni frá 13. mars 2026 vísaði lög­reglu­stjór­inn […] m.a. til 10. gr. upp­lýs­inga­laga. Samkvæmt 1. og 5. tölulið þess laga­ákvæðis er m.a. heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almanna­hags­munir krefjast, enda hafi þau að geyma upp­lýs­ingar um öryggi ríkisins eða varnarmál eða ef um er að ræða fyr­ir­hug­aðar ráðstafanir á vegum hins opin­bera ef þau yrðu þýð­ing­ar­laus eða skiluðu ekki tilætluðum árangri væru þau á almanna­vit­orði.

Í umsögnum lög­reglu­stjór­ans til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, dags. 24. apríl og 5. júní 2026 er ekki vísað til 10. gr. upp­lýs­inga­laga til nánari rök­stuðn­ings fyrir synjun á aðgangi að umbeðnum gögnum.

Úrskurð­ar­nefndin fær ekki séð að umrædd skip­un­ar­yf­ir­lit geymi neinar upp­lýs­ingar sem geti fallið undir mikilvæga almanna­hags­muni í skilningi 10. gr. upp­lýs­inga­laga. Embættið hefur heldur engin sjónarmið fært fram til stuðnings slíkri niður­stöðu í málinu. Þá verður ekki séð að aðrar takmarkanir upp­lýs­inga­laga eða annarra laga standi í vegi fyrir aðgangi kæranda að skip­un­ar­yf­ir­lit­unum. Ber lög­reglu­stjór­anum […] því að veita kæranda aðgang að þeim.

Úrskurð­ar­orð

Lög­reglu­stjór­anum […] ber að veita kæranda, […], aðgang að tveimur skip­un­ar­yf­ir­litum úr upp­töku­bún­aði lög­reglu­bif­reiðar nr. […] frá […] 2024, annars vegar fyrir myndavél 1, sem vísaði fram fyrir bifreiðina, og hins vegar fyrir myndavél 2, sem sneri inn í hana.

Ákvörðun lög­reglu­stjór­ans […], dags. 13. mars 2026, er að öðru leyti staðfest.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson

Var efnið hjálplegt?