1393/2026. Úrskurður frá 29. október 2026

Hinn 29. október 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1393/2026 í máli ÚNU 25120010.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 17. desember 2025, kærði […], fréttamaður á fréttastofu Rík­is­út­varps­ins, til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um að synja beiðni hans um aðgang að gögnum. Með erindi til nefnd­ar­innar 9. apríl 2026 tilkynnti kærandi úrskurð­ar­nefnd­inni að úrskurð í málinu skyldi senda á frétta­stjóra hjá fréttastofu Rík­is­út­varps­ins.

Með erindi til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, dags. 13. október 2025, óskaði kærandi eftir aðgangi að mann­afla­áætlun lögreglu. Beiðninni var synjað þann 17. desember 2025 á grundvelli þess að umbeðið gagn hefði að geyma upp­lýs­ingar um öryggi ríkisins, sbr. 10. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt dóms­mála­ráðu­neyt­inu með erindi, dags. 17. desember 2025, og ráðu­neyt­inu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Þá var þess óskað að ráðu­neytið afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins barst úrskurð­ar­nefnd­inni 23. janúar 2026. Í umsögninni kemur fram að ráðu­neytið telji mikilvæga almanna­hags­muni krefjast þess að takmarka aðgang að gagninu sem hafi að geyma upp­lýs­ingar um öryggi ríkisins. Gagnið sé skýrsla unnin af rík­is­lög­reglu­stjóra og þar komi fram viðkvæmar upp­lýs­ingar um veikleika mannafla lög­regl­unnar, vaktkerfi og öryggisstig í einstaka lög­reglu­um­dæmum. Birting upp­lýs­ing­anna myndi veita innsýn í veikleika lög­regl­unnar sem kynni að nýtast þeim sem hefðu í hyggju að raska öryggi ríkisins eða fremja afbrot. Þá telur ráðu­neytið skýrsluna mynda eina sjálfstæða heild þar sem hver kafli hafi að geyma upp­lýs­ingar sem ekki eigi erindi við almenning með vísan til öryggis ríkisins. Af þeirri ástæðu hafi ekki komið til skoðunar að veita aðgang að hluta skýrslunnar á grundvelli 3. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

1.

Í máli þessu óskaði kærandi eftir aðgangi að mann­afla­áætlun lög­regl­unnar. Af gögnum málsins verður ráðið að deilt sé um aðgang kæranda að skýrslunni „Mann­afla­grein­ing lög­regl­unnar fram til 2035“. Skýrslan er 87 blaðsíður að lengd og skiptist í níu kafla, auk forsíðu, efn­is­yf­ir­lits og samantektar. Í fyrstu tveimur köflum hennar er fjallað almennt um forsendur grein­ing­ar­innar, aukna lög­gæslu­þörf og breytt umhverfi löggæslu. Í 3. og 4. kafla er gerð grein fyrir skipulagi lögreglu og staðháttum, stað­setn­ingu stöðva, vaktkerfum, við­bún­að­ar­skipu­lagi og mati á öryggis- og þjón­ustu­stigi. Í 5. kafla er fjallað um fjölda lög­reglu­manna frá 2007 til 2024, nýliðun og starfs­mann­aveltu, og í 6. kafla er fjallað um almenn viðmið við greiningu á mann­afla­þörf, fyrri greiningar og erlendan samanburð. Í 7. og 8. kafla er loks fjallað um niður­stöður grein­ing­ar­innar, tillögur rík­is­lög­reglu­stjóra og lág­marks­liðsafla hjá lands­deildum og í hverju lög­reglu­um­dæmi fyrir sig, áður en komið er að lokaorðum í 9. kafla.

Beiðni kæranda er lögð fram á grundvelli 5. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, en þar segir í 1. málsl. 1. mgr. að stjórn­völdum sé skylt að veita almenningi aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum um tiltekin mál með þeim takmörkum sem greini í 6.–10. gr. laganna.

Synjun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins var studd við 10. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, en af rök­stuðn­ingnum verður ráðið að átt sé við 1. tölul. ákvæðisins. Þar segir að heimilt sé að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almanna­hags­munir krefjast, enda hafi þau að geyma upp­lýs­ingar um öryggi ríkisins eða varnarmál.

2.

Ákvæði 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga felur í sér und­an­tekn­ingu frá þeirri meginreglu sem fram kemur í 5. gr. laganna, um rétt almennings til aðgangs að gögnum. Í athuga­semdum með frumvarpi því sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, kemur fram að skýra beri ákvæðið tiltölulega rúmt. Er vísað til þess að ákvæðinu sé ætlað að vernda mjög þýð­ing­ar­mikla hags­muni og berist upp­lýs­ingar þeim tengdar út geti það haft afdrifa­ríkar afleiðingar. Þá kemur fram í athuga­semd­unum að með öryggi ríkisins í skilningi 1. töluliðar 10. gr. upp­lýs­inga­laga sé meðal annars vísað til þess hlutverks rík­is­valds­ins að tryggja öryggi ríkisins inn á við og að skipulag löggæslu kunni að falla þar undir.

Við mat á því hvort upp­lýs­ingar um skipulag löggæslu falli undir 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga hefur verið litið til þess hvort aðgangur almennings myndi valda því að aðgerðir lögreglu gætu orðið þýð­ing­ar­lausar eða ekki skilað tilætluðum árangri, yrðu þær á almanna­vit­orði, sbr. til að mynda úrskurði úrskurð­ar­nefnd­ar­innar nr. A-151/2002, A-529/2014, 601/2015 og 1202/2024. Þá hefur nefndin lagt til grundvallar að upp­lýs­ingar um alllöngu liðna atburði eða almennar lýsingar sem ekki afhjúpa virkt skipulag eða viðbragð falli almennt ekki undir ákvæðið, sbr. úrskurð nr. 541/2014.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur kynnt sér efni skýrslunnar í heild sinni. Að mati nefnd­ar­innar hafa kaflar 3.5 og 3.6, svo og 4., 7. og 8. kafli hennar, að geyma upp­lýs­ingar sem falla undir 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga. Í þeim köflum er fjallað ítarlega um mönnun lög­reglu­stöðva, vaktkerfi, við­bún­að­ar­skipu­lag, við­bragðs­tíma í neyð­ar­þjón­ustu, tillögur um for­gangs­röðun og lág­marks­liðsafla í einstökum umdæmum. Að mati nefnd­ar­innar verður að telja að upp­lýs­ingar af þessu tagi gefi beina innsýn í mögulegt viðbragð lög­regl­unnar sem kynnu að nýtast þeim sem hafa í hyggju að raska öryggi ríkisins eða fremja afbrot. Er því óhjá­kvæmi­legt að fallast á með dóms­mála­ráðu­neyt­inu að mikilvægir almanna­hags­munir krefjist þess að takmarka aðgang að þessum hlutum skýrslunnar samkvæmt 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga.

3.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur metið hvort unnt sé að veita aðgang að öðrum hlutum skýrslunnar á grundvelli 3. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga, þar sem fram kemur að ef ákvæði 6.–10. gr. um takmarkanir á upp­lýs­inga­rétti eigi aðeins við um hluta gagns skuli veita aðgang að öðrum hlutum þess. Um ákvæðið segir í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012:

Í [reglunni] felst að veita á aðgang að hluta gagns ef fært telst að skilja þær upp­lýs­ingar sem falla undir und­an­tekn­ingar frá þeim upp­lýs­ingum sem veita má aðgang að með tiltölulega einföldum hætti. Skiptir í því sambandi máli hversu víða þær upp­lýs­ingar koma fram sem óheimilt er að veita aðgang að og hversu stór hluti gagnsins verður þá ekki afhentur. Má hér almennt miða við að ef þær upp­lýs­ingar sem halda ber eftir koma fram í meira en helmingi skjals þurfi ekki að veita aðgang að öðrum hlutum þess.

Af hálfu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur verið byggt á því að skýrslan myndi eina sjálfstæða heild þar sem einstakir kaflar hafi að geyma upp­lýs­ingar sem rétt sé að fari leynt með vísan til öryggis ríkisins. Úrskurð­ar­nefndin telur hins vegar að þar sem skýrslunni er skipt í vel afmarkaða kafla og undirkafla sé fært að aðgreina þá hluta hennar sem varða öryggi ríkisins frá öðrum köflum með tiltölulega einföldum hætti.

Að mati nefnd­ar­innar hafa forsíða, efn­is­yf­ir­lit og samantekt, kaflar 1 til 3, að und­an­skildum köflum 3.5 og 3.6, og kaflar 5, 6 og 9, ekki að geyma upp­lýs­ingar sem falla undir takmarkanir 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga. Í 1. og 2. kafla, sem og í köflum 3.1 til 3.4, er að mestu leyti fjallað um almennar forsendur, almennt umhverfi löggæslu, lög­reglu­um­dæmin, almennar samgöngur og íbúafjölda. Í 5. kafla er að finna sögulega tölfræði um fjölda lög­reglu­manna á árunum 2007 til 2024, nýliðun og starfs­mann­aveltu, en í 6. kafla er fjallað um almenn viðmið við greiningu á mann­afla­þörf, erlendan samanburð og efni áfanga­skýrslu sem þegar hefur verið lögð fyrir Alþingi. Í þessum hlutum skýrslunnar er hvorki að finna upp­lýs­ingar um skipulag löggæslu sem gætu valdið því að ráðstafanir hennar yrðu þýð­ing­ar­lausar eða skiluðu ekki tilætluðum árangri, yrðu þær á almanna­vit­orði, né upp­lýs­ingar sem nýst gætu þeim sem hafa í hyggju að fremja afbrot eða raska öryggi ríkisins. Þá eru þeir ekki svo samofnir öðrum köflum að ekki sé fært að skilja þá frá með tiltölulega einföldum hætti í skilningi 3. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga.

Með vísan til fram­an­greinds ber dóms­mála­ráðu­neyt­inu að veita kæranda aðgang að skýrslunni að und­an­skildum köflum 3.5, 3.6, 4, 7 og 8. Ákvörðun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er að öðru leyti staðfest.

Úrskurð­ar­orð

Dóms­mála­ráðu­neyt­inu er skylt að afhenda fréttastofu Rík­is­út­varps­ins afrit af skýrslunni „Mann­afla­grein­ing lög­regl­unnar fram til 2035“ að und­an­skildum köflum 3.5, 3.6, 4, 7 og 8. Synjun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, dags. 17. desember 2025, á beiðni kæranda er að öðru leyti staðfest.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir

Var efnið hjálplegt?