1377/2026. Úrskurður frá 11. ágúst 2026
Hinn 11. ágúst 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1377/2026 í máli ÚNU 26050023.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 27. maí 2026, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Útlendingastofnunar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi til Útlendingastofnunar, dags. 22. mars 2026, óskaði kærandi eftir upplýsingum um fjölda mála þar sem svokölluð „forviðtöl“ eða „fyrsta viðtal“ hefði verið tekin við umsækjendur um alþjóðlega vernd án þess að þeim hafi verið skipaður talsmaður. Fram kom í beiðninni að kærandi gerði ekki kröfu um viðtölin sem slík heldur einfaldlega lista yfir þau mál þar sem framangreindar aðstæður væru uppi svo unnt væri að glöggva sig á fjölda þeirra.
Útlendingastofnun svaraði erindinu 4. maí 2026. Í svarinu kom fram að stofnunin héldi ekki utan um lista eða sérstaka skráningu yfir þá sem færu í forviðtal eða fyrsta viðtal. Gagnið væri því ekki fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og samkvæmt lögunum væri stofnuninni ekki skylt að útbúa ný gögn í tilefni af beiðni um upplýsingar.
Kærandi byggir á því að nefndin hafi í úrskurðarframkvæmd sinni lagt til grundvallar að upplýsingar, sem varðveittar séu í gagnagrunnum, geti talist fyrirliggjandi enda krefjist afhending þeirra óverulegrar fyrirhafnar svo sem útdráttar eða vistunar gagna í þeirri mynd sem þau liggja fyrir í gagnagrunninum. Þá vísar kærandi til þess að í þeim tugum mála sem hann hafi rekið fyrir hönd skjólstæðinga sinni hafi Dyflinnar- og efnisviðtöl nánast undantekningarlaust borið heitin „undirritað dublinviðtal“ og „undirritað efnisviðtal“ ásamt viðeigandi málsnúmeri. Eina „forviðtal“ eða „fyrsta viðtal“ sem kærandi kannist við hafi hins vegar verið vistað undir heitinu „Fyrsta vidtal ENS 2024-36414“ sem beri með sér kerfisbundna skráningu á þessum forviðtölum.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Útlendingastofnun 2. júní 2026 og stofnuninni gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Útlendingastofnun afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Útlendingastofnunar barst úrskurðarnefndinni 19. júní 2026. Í henni kemur fram að hjá stofnuninni sé ekki til skrá, tölfræðileg samantekt eða yfirlit yfir þau mál þar sem svokölluð forviðtöl eða fyrstu viðtöl hafi verið tekin áður en umsækjanda sé skipaður talsmaður. Beiðni kæranda hafi því ekki lotið að aðgangi að fyrirliggjandi gagni heldur að gerð nýrrar samantektar sem ekki sé til hjá stofnuninni. Þá segir í umsögn stofnunarinnar að sú staðreynd, að upplýsingar kunni að vera varðveittar í einstökum málum eða skjölum undir tilteknu heiti, leiði ekki til þess að fyrirliggjandi sé listi eða yfirlit sem svari upplýsingabeiðninni. Til þess að verða við beiðninni þyrfti að fara handvirkt yfir allar þær 7.848 umsóknir um alþjóðlega vernd sem borist hafi á árunum 2023, 2024 og 2025. Kanna þyrfti í hverju máli fyrir sig hvort svokallað fyrsta viðtal hefði farið fram, hvort það hefði verið tekið áður en talsmaður var skipaður og hvort málið uppfyllti þau skilyrði sem kærandi hafi tilgreint í beiðni sinni. Slík vinna fæli að mati stofnunarinnar í sér sjálfstæða rannsókn, gagnaöflun og mat á efni einstakra mála í því skyni að útbúa nýtt yfirlit sem ekki liggi fyrir hjá stofnuninni. Því yrði um að ræða nýtt gagn sem yrði til við úrvinnslu stjórnvaldsins en ekki afhendingu fyrirliggjandi upplýsinga í skilningi upplýsingalaga. Þar sem upplýsingarnar séu ekki skráðar sem sérstakur gagnaflokkur sé ekki unnt að kalla þær fram með einföldum útdrætti úr gagnagrunni og verði slík skylda til að útbúa nýja samantekt ekki leidd af lögunum.
Umsögn Útlendingastofnunar var kynnt kæranda þann. 19. júní 2026 og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda þann 2. júlí 2026. Í athugasemdum kæranda kemur fram að hann telji úrskurðarnefndinni ekki stætt á öðru í ljósi rannsóknarskyldu sinnar en að kalla eftir upplýsingum um gagnagrunn Útlendingastofnunar. Telur hann ríkt erindi til þess þar sem kerfisbundnar nafngiftir gagna beri með sér að tiltölulega auðvelt ætti að vera að kalla þau fram. Telur kærandi þetta leiða af 10. gr. stjórnsýslulaga og að varhugavert væri að leggja lýsingar Útlendingastofnunar til grundvallar. Mætti í versta falli afmarka beiðnina frekar sé hún of umfangsmikil svo sem við skemmri tíma og mál er snúi að 36. gr. útlendingalaga. Þá áréttar kærandi að svokölluð forviðtöl hljóti að teljast mjög umdeilanlegar embættisfærslur í ljósi ákvæða útlendingalaga um rétt til talsmanns og telur hann að nefndinni sé ekki stætt á öðru en að ljá upplýsingarétti aukið vægi þegar hann sé veginn á móti þeirri vinnu sem kunni að falla á stofnunina.
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
Mál þetta varðar beiðni kæranda til Útlendingastofnunar um lista með upplýsingum um fjölda svokallaðra forviðtala hjá stofnuninni sem fram hafa farið án þess að umsækjanda um alþjóðlega vernd hafi verið skipaður talsmaður. Útlendingastofnun kveður að ekki liggi fyrir gagn með þessum upplýsingum og að ekki sé hægt að kalla það fram með einföldum útdrætti úr gagnagrunni stofnunarinnar heldur myndi það útheimta töluverða handvirka yfirferð, gagnaöflun og mat á efni einstakra mála að útbúa gagnið í þeirri mynd sem kærandi óski eftir.
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að upplýsingaréttur almennings nái til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. er ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna þar sem mælt er fyrir um að ef ákvæði 6.–10. gr. laganna eigi aðeins við um hluta gagns skuli veita aðgang að öðrum hlutum þess. Í athugasemdum við 5. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að skilyrði þess að gagn sé undirorpið upplýsingarétti sé að það liggi fyrir hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Þá segir enn fremur að réttur til aðgangs að gögnum nái þannig aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma.
Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að gagn með umbeðnum upplýsingum liggi ekki fyrir í vörslu stofnunarinnar. Fram kemur í umsögn stofnunarinnar að upplýsingar um þær aðstæður sem um ræðir sé að finna í skjölum hvers máls. Þannig sé stofnuninni ekki unnt að kalla fram umræddan lista með einföldum aðgerðum í málaskrárkerfi stofnunarinnar heldur þyrfti að fara ítarlega yfir og greina fjölda mála yfir umrædd ár. Að framangreindu virtu og með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga telur úrskurðarnefndin að Útlendingastofnun sé, samkvæmt upplýsingalögum, ekki skylt að verða við beiðni kæranda.
Samkvæmt framangreindu verður lagt til grundvallar að umbeðið gagn sé ekki fyrirliggjandi hjá Útlendingastofnun í skilningi upplýsingalaga. Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga er heimilt að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Hið sama gildir um synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Því liggur ekki fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga og verður því staðfest hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar.
Úrskurðarorð
Staðfest er afgreiðsla Útlendingastofnunar, dags. 4. maí 2026, á beiðni kæranda, […], um aðgang að upplýsingum um fjölda forviðtala við umsækjendur um alþjóðlega vernd án skipaðs talsmanns.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir