1382/2026. Úrskurður frá 1. september 2026

Hinn 1. september 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1382/2026 í máli ÚNU 26030007.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 11. mars 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun [stofnunar] um að synja beiðni hans um að afhenda gögn.

Sam­starfs­menn kæranda hjá [stofnun] lögðu fram tilkynningu […] um að kærandi hefði verið lagður í einelti af hálfu yfirmanns hans. Í kjölfarið mun [stofnun] hafa falið fyrirtækinu […] að rannsaka hið ætlaða einelti og annaðist […], sam­starfs­fyr­ir­tæki […], rannsóknina. Skýrsla […] um samantekt og niður­stöðu rann­sókn­ar­innar mun hafa verið kynnt fyrir forstjóra, mannauðs­stjóra og mannauðs­full­trúa [stofnunar] á fundi […].

Niður­staða skýrslunnar mun hafa verið kynnt fyrir kæranda á fundi […] en með tölvupósti degi síðar óskaði kærandi eftir að [stofnun] afhenti honum skýrsluna með tölvupósti. Með svari […] synjaði [stofnun] beiðni kæranda með vísan til þess að skýrslan hefði að geyma upp­lýs­ingar um viðkvæm persónuleg málefni annarra ein­stak­linga. Stofnunin væri á hinn bóginn reiðubúin að veita kæranda aðgang að tilteknum hlutum skýrslunnar með þeim fyrirvara að afmáðar yrðu upp­lýs­ingar um persónuleg málefni annarra sem ættu að fara leynt. Í því skyni yrði kæranda gert kleift að mæta á skrifstofu [stofnunar] til að kynna sér efni skýrslunnar á staðnum.

Með tölvupósti […] ítrekaði kærandi kröfu sína um afhendingu skýrslunnar með vísan til 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012. Þá óskaði kærandi jafnframt eftir að fá afhent öll samskipti [stofnunar] við […] og önnur ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki sem haft hefði verið samband við í tengslum við rannsóknina auk fund­ar­gerðar fundar þar sem niður­staða skýrslunnar var kynnt stjórnendum stofn­un­ar­innar. [Stofnun] svaraði pósti kæranda […] og ítrekaði boð sitt um að kærandi kæmi og fengi lesaðgang að skýrslunni að und­an­skildum þeim hluta hennar sem yrði afmáður vegna einka­mál­efna annarra. Þá hafnaði [stofnun] kröfu kæranda um aðgang að öðrum gögnum.

Í framhaldi af frekari samskiptum milli kæranda og [stofnunar] sendi kærandi tölvupóst til stofn­un­ar­innar […] og hafnaði boði hennar um lesaðgang að skýrslunni þar sem kærandi taldi sig eiga rétt á að fá skýrsluna senda auk þess sem hann ítrekaði kröfu sína um aðgang að öðrum gögnum. Þá óskaði kærandi jafnframt eftir því að fá afhent gögn varðandi afstöðu annarra aðila málsins, svo sem vitna eða gerenda, hefðu þeir lagst gegn afhendingu upp­lýs­inga um þeirra þátt í málinu. Loks óskaði kærandi eftir formlegri stjórn­valds­ákvörðun þar sem honum yrði leiðbeint um kæruleiðir.

Kærandi og [stofnun] áttu í frekari samskiptum sem lyktaði með því að stofnunin sendi honum tölvupóst […]. Þar vísaði stofnunin til þess að um rétt kæranda til aðgangs að skýrslunni færi eftir III. kafla upp­lýs­inga­laga og áréttaði fyrri afstöðu um að stofnunin teldi sér heimilt að veita kæranda aðgang að skýrslunni með þeim fyrirvara að tilteknar upp­lýs­ingar yrðu afmáðar vegna per­sónu­legra málefna annarra. Þá kom fram í póstinum að kæranda stæði enn til boða að koma á skrifstofu stofn­un­ar­innar til að kynna sér skýrsluna. Loks kom fram í tölvu­póst­inum að [stofnun] myndi senda kæranda samskipti sín við fyrrnefnt ráð­gjafa­fyr­ir­tæki og önnur fyrirtæki með þeim fyrirvara að upp­lýs­ingar sem vörðuðu persónulega málefni annarra gætu verið afmáðar.

Í kæru kemur fram að kærandi geri kröfu um að [stofnun] sendi honum í tölvupósti öll gögn er tengist ein­elt­is­máli því sem hann hafi verið aðili að hjá stofnuninni. Jafnframt sé krafist að [stofnun] sendi honum með sama hætti öll samskipti stofn­un­ar­innar við fyrirtæki sem boðið hafi verið að taka verkefnið að sér og fundargerð af fundi þar sem skýrslan úr ein­elt­is­mál­inu hafi verið kunngerð stjórnendum [stofnunar]. Að lokum krefst kærandi þess að [stofnun] sendi honum í tölvupósti stað­fest­ingu á afstöðu annarra ein­stak­linga hafi þeir synjað að veita samþykki sitt fyrir afhendingu gagna í málinu.

Kærandi byggir á að um rétt hans til aðgangs að skýrslu ein­elt­is­máls­ins fari eftir 14. gr. upp­lýs­inga­laga. Kærandi sé meðvitaður um að [stofnun] sé heimilt, fyrir afhendingu skýrslunnar til hans, að afmá hugsanlegar upp­lýs­ingar um einka­mál­efni annarra hafi þeir ekki veitt samþykki sitt fyrir afhendingu gagnanna, sbr. 3. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga. Kærandi fari á hinn bóginn fram á að [stofnun] verði gert að afhenda honum afrit eða stað­fest­ingu á að viðkomandi aðilar vilji ekki veita samþykki fyrir slíkri afhendingu, nánar tiltekið að til þeirra hafi verið leitað og að fyrir liggi skrifleg staðfesting á að þeir hafi ekki gefið samþykki sitt fyrir afhendingu gagnanna.

Kærandi vísar til 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga og tiltekur að hann hafi óskað eftir afhendingu umbeðinna gagna á rafrænu formi. Slíkt sé í samræmi við athuga­semdir í greinargerð í frumvarpi því sem varð að upp­lýs­inga­lögum enda komi þar fram að almennt ætti að vera til hagræðis fyrir þann sem hafi beiðni til afgreiðslu að geta afhent upp­lýs­ingar á rafrænu formi. Loks tiltekur kærandi að [stofnun] hafi ekki tekið formlega stjórn­valds­ákvörðun með viðeigandi leið­bein­ingum um kæruleiðir samkvæmt stjórn­sýslu­lögum, nr. 37/1993.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt [stofnun] með erindi, dags. 12. mars 2026, og stofnuninni veittur kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Jafnframt var þess óskað að stofnunin léti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál í té afrit af þeim gögnum sem kæran lyti að. Umsögn [stofnunar] barst úrskurð­ar­nefnd­inni 26. sama mánaðar og með­fylgj­andi henni var skjal sem stofnunin taldi að kæran lyti að.

[Stofnun] tekur fram að beiðni kæranda lúti í reynd að því að fá afrit skýrslu […] afhent á rafrænu formi. Niður­staða skýrslunnar hafi verið sú að ekki hafi verið um einelti að ræða og að ekki hafi verið tilefni til að hefja stjórn­sýslu­með­ferð sem leitt gæti til stjórn­valds­ákvörð­unar í skilningi stjórn­sýslu­laga.

Óumdeilt sé að skýrslan hafi að geyma upp­lýs­ingar um kæranda í skilningi 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga en réttur hans til aðgangs takmarkist af 3. mgr. sama ákvæðis. Um sé að ræða viðkvæmt starfs­mann­amál þar sem fjallað sé ítarlega um samskipti, upplifanir og hegðun tiltekinn starfs­manna. Slíkar upp­lýs­ingar lúti að friðhelgi einkalífs og njóti sérstakrar verndar samkvæmt upp­lýs­inga­lögum. Við mat á afhendingu gagna beri stjórn­völdum að gæta þess að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar um þriðja aðila berist óviðkomandi. Að undangengnu heildstæðu mati [stofnunar] á skýrslunni hafi stofnunin einungis talið tilefni til þess að afmá afar lítinn hluta hennar.

[Stofnun] hafi ítrekað boðið kæranda að koma á starfsstöð stofn­un­ar­innar til að kynna sér efni skýrslunnar og framkvæmd rann­sókn­ar­innar. Hann hafi á hinn bóginn ekki fallist á það fyr­ir­komu­lag. Við mat sitt hafi [stofnun] lagt sérstaka áherslu á þá raunhæfu áhættu sem fylgi því að afhenda skýrsluna á rafrænu formi enda missi stjórnvald þá í reynd alla stjórn á frekari dreifingu hennar.

Í ljósi eðlis málsins, stöðu aðila og þeirra aðstæðna sem uppi séu á vinnu­staðnum hafi verið talið að slík dreifing gæti haft verulega neikvæð áhrif. Nánar tiltekið geti afhending skýrslunnar aukið enn frekar á ágrein­ing og truflun í starfsemi stofn­un­ar­innar, haft hugsanleg áhrif á meðferð annarra sam­bæri­legra mála sem nú séu til meðferðar hjá stofnuninni og rýrt starfs­um­hverfi og starfs­skil­yrði þeirra ein­stak­linga sem málið varði. Við þessar aðstæður telji stofnunin að slíkir hags­munir vegi þyngra en hags­munir kæranda af því að fá skýrsluna afhenta á rafrænu formi.

Með hliðjón af með­al­hóf­sreglu stjórn­sýslu­réttar hafi á hinn bóginn verið talið unnt að tryggja aðgang kæranda að skýrslunni með aðgangi á starfsstöð stofn­un­ar­innar en með slíku fyr­ir­komu­lagi sé jafnframt hægt að tryggja að viðkvæmar upp­lýs­ingar um aðra aðilar verði ekki afhentar eða dreift frekar.

Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga sé ekki kveðið á um for­taks­lausan rétt til afhendingar gagna eða afritunar þeirra á tilteknu formi. Hvernig aðgangi sé háttað ráðist af aðstæðum í hverju máli að teknu tilliti til eðlis upp­lýs­ing­anna og þeirra hags­muna sem að baki liggja. Að mati stofn­un­ar­innar feli sú leið, að veita aðgang að skýrslunni á starfsstöð að svo stöddu, í sér að réttur kæranda sé tryggður með full­nægj­andi hætti auk þess sem sú leiði tryggi vernd þeirra hags­muna sem mæli með takmörkun á miðlun upp­lýs­ing­anna.

Fram­an­greindur skilningur á hugtakinu „aðgangur“ að gögnum hafi einnig verið fyrir hendi í tíð eldri upp­lýs­inga­laga nr. 50/1996 en þar sé beinlínis tekið fram að stjórn­völd taki ákvörðun um hvort gögn, sem heimilt sé að veita aðgang að, skuli sýnd eða veitt af þeim ljósrit eða afrit. Ekki verði ráðið af upp­lýs­inga­lögum nr. 140/2012 eða frumvarpi með lögunum að ætlunin hafi verið að hverfa frá þeim skilningi á hugtakinu, heldur þvert á móti.

[Stofnun] rekur efni athugasemda um 18. gr. upp­lýs­inga­laga í frumvarpi því sem varð að upp­lýs­inga­lögum og að þar sé sérstaklega gert ráð fyrir að heimilað sé að kynna gögn á starfsstöð viðkomandi en þar ráðist af aðstæðum að hvaða marki sú leiði eigi við. Þannig sé gert ráð fyrir því í frumvarpi laganna að slíkar aðstæður kunni að vera uppi, þegar um sé að ræða gögn sem falla undir 14. gr. laganna, að tryggja þurfi viðeigandi öryggi þeirra gagnvart óviðkomandi. [Stofnun] telji að slíkar aðstæður vera uppi í þessu máli og hafi af þeim sökum veitt lesaðgang að skýrslunni á starfsstöð stofn­un­ar­innar.

Þá fjallar stofnunin um athuga­semd­irnar að öðru leyti og tekur fram að þau sjónarmið sem búi að baki 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga eigi ekki við um umbeðna skýrslu enda hvorki um að ræða gagn sem almenningur eigi rétt til aðgangs að né geti notkun skýrslunnar talist vera í þágu nýsköpunar og til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Í ljósi atvika málsins standi 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga í öllu falli ekki í vegi fyrir því að heimilt sé að veita aðgang að skýrslunni með þeim hætti að aðilum sé boðinn lesaðgangur að henni á starfsstöð stofn­un­ar­innar í stað þess að hún verði afhent aðilum málsins úr húsi. Telji stofnunin jafnframt að með veitingu aðgangs að skýrslunni með þessum hætti sé fyllilega tryggður réttur kæranda samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga.

Í samhengi við beiðni kæranda um afhendingu á samskiptum við ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki og fundargerð tiltekins fundar bendir [stofnun] að kærandi hafi þegar fengið öll samskipti við fyrirtækin afhent með ábyrgð­ar­pósti 13. mars 2026 og að engin fundargerð hafi verið haldin vegna fundar […] þar sem niður­staða skýrslunnar hafi verið kynnt fyrir forstjóra, mannauðs­stjóra og mannauðs­full­trúa.

Í samhengi við beiðni kæranda um afhendingu á gögnum sem sýni fram á að einhver máls­aðili hafi ekki veitt samþykki sitt fyrir afhendingu gagna í málinu bendir [stofnun] á að ákvörðun hennar um að veita lesaðgang að skýrslunni, að svo stöddu, hafi byggst á sjálfstæðu og lögbundnu mati stofn­un­ar­innar á grundvelli upp­lýs­inga­laga og hafi ekki stoð í því hvort aðilar máls hafi veitt eða synjað um samþykki fyrir afhendingu gagna enda liggi slíkt samþykki ekki fyrir.

Með erindi 27. mars 2026 kynnti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál umsögn [stofnunar] fyrir kæranda og gaf honum kost á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Kærandi svaraði 30. sama mánaðar og ítrekaði kröfur samkvæmt kæru.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

Mál þetta varðar afgreiðslu [stofnunar] á beiðni kæranda um aðgang að gögnum. [Stofnun] hefur afhent úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál afrit af skjali sem stofnunin afmarkaði beiðni kæranda við. Um er að ræða skýrslu […] um samantekt og niður­stöður rannsóknar sem var unnin í tilefni af tilkynningu sam­starfs­manna kæranda hjá [stofnun] um að yfirmaður kæranda hefði lagt hann í einelti.

Svo sem er rakið hér að framan krefst kærandi einnig aðgangs að samskiptum [stofnunar] við þau fyrirtæki sem boðið var að taka rannsóknina að sér, afrit af fundargerð fundar þar sem niður­staða skýrslunnar var kynnt stjórnendum stofn­un­ar­innar auk upp­lýs­inga um hvort einhver af viðkomandi ein­stak­lingum hefði ekki veitt samþykki sitt fyrir afhendingu gagna í málinu.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, er heimilt að bera synjun á beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál sem úrskurðar um ágrein­ing­inn. Hið sama gildir um synjun á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Þá leiðir af 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga að réttur almennings og aðila til aðgangs að gögnum á grundvelli ákvæða laganna nær til fyr­ir­liggj­andi gagna.

Með ákvörðun [stofnunar] […] samþykkti stofnunin að veita kæranda aðgang að samskiptum hennar við […] og önnur fyrirtæki sem stofnunin hafði leitað til varðandi rannsóknina þó með þeim fyrirvara að upp­lýs­ingar sem vörðuðu persónuleg málefni annarra gætu verið afmáðar. Í umsögn sinni til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál fullyrti [stofnun] að stofnunin hefði þegar afhent kæranda öll umbeðin samskipti og lagði fram skjal um send­ing­ar­sögu gagnanna. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur ekki ástæðu til að draga þessa fullyrðingu í efa. Í ljósi þessa verður að telja að þessi hluti af kæruefni málsins falli fyrir utan úrskurð­ar­vald úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, sbr. 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga og til hliðsjónar úrskurð nefnd­ar­innar nr. 1369/2026.

Í samhengi við beiðni kæranda um afhendingu fyrr­greindrar fund­ar­gerðar og upp­lýs­inga um afstöðu annarra ein­stak­linga til afhendingar gagna þykir rétt að benda á að ekki verður séð að [stofnun] hafi tekið afstöðu til beiðni kæranda að þessu leyti við töku fyrr­greindrar ákvörðunar. Eins og atvikum er hér háttað og í ljósi þess að [stofnun] hefur komið á framfæri sjónarmiðum sínum varðandi afhendingu umræddra gagna við meðferð þessa máls þykir þó rétt að taka afstöðu til réttar kæranda til aðgangs að þessum gögnum.

[Stofnun] hefur fullyrt að engin fundargerð hafi verið rituð vegna fyrrgreinds fundar með stjórnendum stofn­un­ar­innar. Þá leggur úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þann skilning í mála­til­búnað stofn­un­ar­innar að hún hafi ekki óskað eftir afstöðu annarra ein­stak­linga til afhendingar gagna við meðferð málsins. Að þessu gættu verður að leggja til grundvallar að umbeðin gögn séu ekki fyr­ir­liggj­andi hjá [stofnun] í skilningi upp­lýs­inga­laga. Þar af leiðandi liggja ekki fyrir gögn sem réttur kæranda að þessu leyti gæti náð til samkvæmt 1. mgr. 5. gr. eða 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga.

Samkvæmt fram­an­greindu verður að vísa kæru kæranda frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál að því marki sem hún varðar önnur gögn en fyrrgreinda skýrslu […], sbr. nánar það sem greinir í úrskurð­ar­orði.

Að fram­an­greindu frágengnu þarf að leysa úr lögmæti ákvörðunar [stofnunar] varðandi aðgang kæranda að fyrr­greindri skýrslu […]. Svo sem er rakið í máls­at­vik­akafl­anum hér að framan óskaði kærandi eftir að [stofnun] afhenti honum skýrsluna á rafrænu formi. Stofnunin synjaði þeirri beiðni með ákvörðun […] en bauð kæranda að skoða skýrsluna á starfsstöð stofn­un­ar­innar. Þá verður ráðið af ákvörð­un­inni að [stofnun] hafi talið sér skylt að afmá upp­lýs­ingar úr skýrslunni á grundvelli 3. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga fyrir skoðun kæranda.

Í 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga segir að eftir því sem við verði komið skuli veita aðgang að gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum sem þau eru varðveitt á nema þau séu þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna. Þegar gögn séu eingöngu varðveitt á rafrænu formi geti aðili valið á milli þess að fá þau á því formi eða útprentuð á pappír.

Í málinu liggur fyrir að umbeðin skýrsla er til á rafrænu formi og átti kærandi því rétt á að óska eftir afhendingu skýrslunnar á því formi eftir 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga. Þá hefur verið lagt til grundvallar í úrskurð­ar­fram­kvæmd úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál að engin heimild sé í upp­lýs­inga­lögum til þess að veita aðgang að gögnum með þeim hætti að aðeins megi kynna sér efni þeirra á starfsstöð þess sem hefur beiðnina til afgreiðslu, sbr. úrskurð nefnd­ar­innar í máli nr. 883/2020 og þá úrskurði sem þar er vísað til.

Að fram­an­greindu gættu verður að leggja til grundvallar að ákvörðun [stofnunar], um að synja beiðni kæranda um afhendingu skýrslunnar á rafrænu formi, hafi ekki verið í samræmi við ákvæði upp­lýs­inga­laga.

Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga er skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum ef þau hafa að geyma upp­lýs­ingar um hann sjálfan. Í athuga­semdum við 14. gr. sem fylgdu frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum segir um 1. mgr. að með orðalaginu að gagn skuli geyma „upp­lýs­ingar um hann sjálfan“ sé vísað til þess að upp­lýs­ingar þurfi að varða viðkomandi aðila sérstaklega og verulega umfram aðra.

Úrskurð­ar­nefndin hefur kynnt sér efni umbeðinnar skýrslu. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um samskipti kæranda við yfirmann sinn og frásögn kæranda af vinnu­að­stæðum og líðan sinni. Gögnin urðu sem fyrr segir til í tengslum við rannsókn […] á tilkynningu sam­starfs­manna kæranda um að hann hefði verið lagður í einelti af hálfu yfirmanns hans. Með hliðsjón af þessu telur úrskurð­ar­nefndin ljóst að umrædd gögn geymi upp­lýs­ingar um kæranda í skilningi 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga. Fer því um rétt hans til aðgangs að gögnunum eftir III. kafla laganna.

Samkvæmt 3. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga er heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upp­lýs­ingar um einka­mál­efni annarra, enda vegi þeir hags­munir sem mæla með því að upp­lýs­ingum sé haldið leyndum þyngra en hags­munir þess sem fer fram á aðgang að gögnum.

Í athuga­semdum við 3. mgr. 14. gr. í frumvarpi til upp­lýs­inga­laga kemur fram að í aðstæðum líkt og þeim sem uppi eru í máli þessu sé líklegt að reyni á andstæða hags­muni, annars vegar þess sem upp­lýs­inga óskar og hins vegar annarra þeirra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga réttmæta hags­muni af því að tilteknum atriðum er þá varða sé haldið leyndum. Kjarni reglunnar í 3. mgr. felist í því að vega skuli og meta þessa gagnstæðu hags­muni, en síðarnefndu hags­mun­irnir séu að meginstefnu hinir sömu og liggi að baki 9. gr. upp­lýs­inga­laga. Þá segir í athuga­semd­unum:

Aðgangur að gögnum verður því aðeins takmarkaður ef talin er hætta á því að einka­hags­munir skaðist ef aðila yrði veittur aðgangur að upp­lýs­ing­unum. Aðila verður því ekki synjað um aðgang að gögnum á grundvelli hugleiðinga um að aðgangur að tiltekinni tegund upp­lýs­inga sé almennt til þess fallinn að valda einhverju tjóni, heldur verður að leggja mat á aðstæður í hverju máli fyrir sig. Regla 3. mgr. byggist á því að við hags­mun­amatið sé ljóst hverjir vernd­ar­hags­mun­irnir eru. Oft verður því að leita álits þess sem á andstæðra hags­muna að gæta, en yfirlýsing hans um að hann vilji ekki að upp­lýs­ing­arnar séu veittar er þó ein og sér ekki nægjanleg ástæða til að synja beiðni um upp­lýs­ingar.

Á grundvelli upp­lýs­inga­laga bar [stofnun] að taka afstöðu til réttar kæranda til aðgangs að umbeðinni skýrslu á rafrænu formi með rökstuddri ákvörðun. Þessi skylda nær til þess að framkvæma mat á ólíkum hags­munum sem vega þarf saman við beitingu 3. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga og eftir atvikum meta rétt kæranda til aðgangs að hluta skýrslunnar, sbr. 3. mgr. 5. gr. og 14. gr. upp­lýs­inga­laga.

Svo sem fyrr segir synjaði [stofnun] beiðni kæranda um afhendingu skýrslunnar á rafrænu formi með ákvörðun […] og er ljóst af ákvörð­un­inni að [stofnun] taldi sér skylt að afmá upp­lýs­ingar úr skýrslunnar á grundvelli 3. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga. Á hinn bóginn verður hvorki ráðið af ákvörð­un­inni né umsögn [stofnunar] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál hvaða upp­lýs­ingar í skýrslunni stofnunin telur að falli undir umrætt ákvæði.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál bendir á að meg­in­mark­miðið með kæruheimild til nefnd­ar­innar er að treysta réttar­ör­yggi borgaranna með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórn­sýslu­stigum. Hafi mál ekki hlotið efnislega umfjöllun á lægra stjórn­sýslu­stigi, eða það afgreitt á röngum laga­grund­velli, getur stjórnvaldi á kærustigi því verið nauðugur sá kostur að vísa málinu heim til lögmætrar máls­með­ferðar í stað þess að leitast við að bæta sjálft úr annmörkunum. Að öðrum kosti fengi stjórn­sýslu­málið ekki umfjöllun á tveimur stjórn­sýslu­stigum eins og stefnt er að með kæruheimild.

Að mati úrskurð­ar­nefnd­ar­innar verður að telja að máls­með­ferð [stofnunar] hafi ekki verið full­nægj­andi hvað varðar synjun á beiðni kæranda um aðgang að umbeðinni skýrslu enda var ákvörðunin í öllum aðalatriðum reist á því að kærandi ætti aðeins rétt á að kynna sér efni skýrslunnar á starfsstöð stofn­un­ar­innar. Að mati úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál skortir þannig á að tekin hafi verið rökstudd afstaða til beiðni kæranda, líkt og upp­lýs­inga­lög gera ráð fyrir, og hefur nefndin takmarkaðri forsendur en ella til að taka afstöðu til þess fyrst á kærustigi hvort og þá hvaða upp­lýs­ingar í skýrslunni kunni að falla undir 3. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga. Þar af leiðandi verður að telja að beiðni kæranda hafi ekki fengið þá efnislegu meðferð á lægra stjórn­sýslu­stigi sem úrskurð­ar­nefnd­inni sé fært að endurskoða.

Samkvæmt fram­an­greindu verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun að hluta til úr gildi og leggja fyrir [stofnun] að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar hvað varðar umrædda skýrslu, þar sem tekið verður tillit til fram­an­greindra sjónarmiða.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þykir rétt að benda á að í hinni kærðu ákvörðun var kæranda hvorki leiðbeint um kæruheimild til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál samkvæmt 20. gr. upp­lýs­inga­laga né um kæru­frest samkvæmt 1. mgr. 22. gr. laganna. Var ákvörðunin að þessu leyti ekki í samræmi við 19. gr. upp­lýs­inga­laga og 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin beinir því til [stofnunar] að gæta framvegis að þessu atriði.

Úrskurð­ar­orð

Ákvörðun [stofnunar] […], um að synja beiðni kæranda, […], um aðgang að skýrslu […] á rafrænu formi, er felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka beiðni kæranda að þessu leyti til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Að öðru leyti er kæru kæranda vísað frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir