1383/2026. Úrskurður frá 1. september 2026
Hinn 1. september 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1383/2026 í máli ÚNU 26060005.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 5. júní 2026, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun embættis landlæknis að synja beiðni hennar um aðgang að gögnum.
Kærandi óskaði hinn 28. maí 2026 eftir að fá afrit af öllum þeim gögnum sem heimilt væri að veita á grundvelli upplýsingaréttar um mál sem vörðuðu „raunfærnimat sjúkraliða“. Landlæknir svaraði daginn eftir og tjáði kæranda að óskað væri frekari upplýsinga um þau gögn sem óskað væri eftir og hvort kærandi hefði í huga tiltekið mál hjá embættinu. Kærandi brást við samdægurs og sagði að málið sem vísað væri til væri aðkoma stjórnvalda að ákvörðun um framkvæmd og fyrirkomulag raunfærnimats sjúkraliða, bæði í upphafi þegar það hefði verið sett á stofn, og eins þegar það hefði verið endurskoðað fyrir um tveimur árum og áföngum bætt inn í matið. Kærandi óskaði sérstaklega eftir umsögnum sem hefðu farið á milli heilbrigðisráðuneytis, menntamálaráðuneytis, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Sjúkraliðafélags Íslands og fagkennara sem hefðu átt sæti í samráðs- og stýrihópum um þetta mál, en einnig minnisblöðum og skýrslum sem tengdust ákvörðunum um útfærslu, framkvæmd og fyrirkomulag raunfærnimats fyrir sjúkraliða. Einnig væri óskað eftir málaskráryfirliti um raunfærnimat sjúkraliða.
Landlæknir svaraði kæranda tveimur dögum síðar, 1. júní 2026. Í svarinu kom fram að við leit í málaskrá embættisins yrði ekki séð að þar væri að finna þau gögn sem óskað væri eftir. Ef til vill gæti Sjúkraliðafélag Íslands haft aðgang að gögnunum. Kærandi brást við daginn eftir og minnti á að óskað hefði verið eftir málaskráryfirliti. Þótt landlæknir ætti ekki mikið af gögnum um þetta væri sú beiðni ítrekuð. Hinn 4. júní 2026 tjáði landlæknir kæranda að embættið teldi sér ekki heimilt að afhenda alla málaskrá embættisins, m.a. með vísan til persónuverndarsjónarmiða. Þá yrði ekki séð að það samræmdist upplýsingalögum að leggja í þá vinnu að útvega heildarmálaskrá embættisins og afmá upplýsingar um þriðju aðila í málaskránni til að verða við beiðninni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Beiðni kæranda væri því vísað frá.
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar, dags. 5. júní 2026, kemur fram að það sem kærandi leiti sérstaklega eftir séu umsagnir hagaðila í tengslum við mótun raunfærnimats en samkvæmt 13. gr. reglugerðar um framhaldsfræðslu, nr. 1163/2011, hafi stjórnvöldum borið að koma á laggirnar sérstökum stýrihópi sérfróðra aðila fyrir hverja námsgrein, námsleið, starfsgrein eða starfsgreinaflokk. Landlæknir hafi ekki leiðbeint kæranda við að afmarka beiðni sína nánar. Þá orki tvímælis að fullyrða að engin gögn liggi fyrir en á sama tíma að málaskráryfirlitið um málið sé svo umfangsmikið að ekki sé hægt að afhenda það. Kærandi þurfi að fá málaskráryfirlitið til að geta afmarkað beiðni sína nánar.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt embætti landlæknis með erindi, dags. 8. júní 2026, og embættinu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að embættið afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn landlæknis barst úrskurðarnefndinni hinn 29. júní 2026. Í umsögninni kemur fram að embættið telji að kæranda hafi verið veittar fullnægjandi leiðbeiningar með erindi embættisins, dags. 29. maí 2026, þar sem óskað sé nánari upplýsinga um gögnin sem beiðnin lúti að. Í framhaldinu hafi kærandi afmarkað beiðni sína með skýrum hætti. Gögnin sem óskað sé eftir virðist einfaldlega ekki vera til í málaskrá embættisins. Engin mál finnist sem varði framkvæmd og fyrirkomulag raunfærnimats sjúkraliða fram til ársins 2024, sbr. beiðni kæranda.
Varðandi beiðni kæranda um aðgang að málaskráryfirliti sé ljóst að leit skjalateymis embættisins að gögnum sem heyri undir beiðni kæranda hafi verið árangurslaus. Landlæknir telji beiðni kæranda um málaskráryfirlit lúta að því að fá afhent yfirlit yfir öll mál embættisins. Þeirri beiðni hafi verið hafnað með vísan til umfangs beiðninnar, sbr. 1. tölulið 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga.
Umsögn embættis landlæknis var kynnt kæranda með erindi, dags. 2. júlí 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir frá kæranda bárust ekki.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um afgreiðslu embættis landlæknis á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem varða raunfærnimat sjúkraliða. Kærandi óskaði líka eftir yfirliti úr málaskrá embættisins og samkvæmt gögnum málsins var það gert í því skyni að hann gæti afmarkað beiðni sína nánar.
Landlæknir fullyrðir að í vörslu embættisins liggi ekki fyrir gögn sem falli undir beiðni kæranda. Þá leggur embættið þann skilning í beiðni um málaskráryfirlit að kærandi óski eftir málaskrá embættisins í heild sinni, eða eftir atvikum yfirliti yfir öll mál embættisins; með vísan til umfangs slíkrar beiðni teljist embættinu heimilt að láta hjá líða að afgreiða hana, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin leggur ekki sama skilning í þann hluta beiðninnar og telur kæranda hafa átt við yfirlit úr málaskrá yfir mál sem tengist raunfærnimati sjúkraliða. Af þeim sökum er í úrskurði þessum ekki tekin afstaða til þess hvort ákvörðun landlæknis hafi að þessu leyti getað byggst á 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga.
Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og tilteknum fyrirliggjandi gögnum, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. laganna. Ekki er þó skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna.
Í 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga er mælt fyrir um að sá sem fer fram á aðgang að gögnum skuli tilgreina þau eða efni þess máls sem þau tilheyra með nægjanlega skýrum hætti til að unnt sé, án verulegrar fyrirhafnar, að afmarka beiðnina við tiltekin gögn eða tiltekið mál. Samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar má vísa beiðni frá ef ekki er talið mögulegt á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga að afmarka hana með þeim hætti. Áður en til þess kemur ber að veita beiðanda leiðbeiningar og færi á að afmarka beiðni sína nánar. Eftir atvikum ber jafnframt að afhenda honum lista yfir mál sem ætla má að beiðnin geti beinst að.
Í athugasemdum um 15. gr. með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að beiðni verði að vera fram sett með nægilega nákvæmum hætti til að stjórnvald geti, t.d. með einfaldri orða- eða efnisatriðaleit í málaskrá sinni, fundið þau mál sem lúta að því málefni sem aðili óskar að fá upplýsingar um. Um afhendingu lista yfir mál segir að orðalagið „eftir atvikum“ vísi m.a. til þess að beiðni þurfi að vera nægilega skýr til þess að stjórnvald geti yfirleitt afmarkað hana við tiltekin gögn eða tiltekinn lista mála.
Upphafleg beiðni kæranda til embættis landlæknis frá 28. maí 2026 var um mál sem vörðuðu raunfærnimat sjúkraliða. Í kjölfar þess að embættið óskaði frekari upplýsinga um beiðnina lagði kærandi fram beiðni þar sem tilgreindar voru tegundir gagna sem óskað væri eftir, aðilar sem gögn gætu stafað frá og á hvaða tímabili. Úrskurðarnefndin telur að beiðnin hafi verið nægilega skýr og að hún hafi uppfyllt þær kröfur um tilgreiningu gagna sem leiða má af 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga.
Kærandi byggir á því að embætti landlæknis hafi átt að leiðbeina um nánari afmörkun beiðninnar með afhendingu lista yfir mál sem beiðnin gæti tekið til. Af 3. mgr. 15. gr. upplýsingalaga leiðir að afhending slíks lista er úrræði sem ætlað er að greiða úr þeirri stöðu að beiðni um gögn teljist ekki vera nægjanlega tilgreind. Það á einkum við þegar beiðni er nógu skýr til að hægt sé að finna þau mál sem beiðni kunni að lúta að, en þó ekki þannig að unnt sé að afmarka beiðnina við tiltekin gögn eða mál. Teljist beiðni hins vegar þegar vera nægilega skýr reynir ekki á skyldu til að afhenda lista yfir mál sem beiðni kunni að beinast að.
Þá er til þess að líta að listi sem afhentur er á grundvelli 3. mgr. 15. gr. upplýsingalaga getur ekki orðið til nema að undangenginni leit í skjalasafni að þeim málum sem beiðni kunni að taka til. Slík leit fór fram í máli þessu og leiddi ekki í ljós nein mál sem vörðuðu raunfærnimat sjúkraliða. Því voru ekki nein mál sem unnt hefði verið að tilgreina á slíkum lista. Að þessu virtu telur úrskurðarnefndin ekki ástæðu til að gera athugasemd við meðferð málsins hjá landlækni að þessu leyti.
Í erindi embættis landlæknis til kæranda hinn 1. júní 2026 kom fram að við leit í málaskrá embættisins yrði ekki séð að þar væri að finna þau gögn sem óskað var eftir. Í umsögn embættisins til úrskurðarnefndarinnar er áréttað að leit að gögnum sem heyrt gætu undir beiðni kæranda hafi verið árangurslaus og að engin mál hafi fundist sem varði framkvæmd og fyrirkomulag raunfærnimats sjúkraliða. Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga þessar staðhæfingar í efa.
Kærandi vísar til þess að samkvæmt 13. gr. reglugerðar um framhaldsfræðslu, nr. 1163/2011, hafi borið að koma á laggirnar sérstökum stýrihópi sérfróðra aðila fyrir hverja námsgrein, námsleið, starfsgrein eða starfsgreinaflokk. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins hvílir sú skylda á viðurkenndum fræðsluaðilum sem annast raunfærnimat. Verður ekki ráðið af ákvæðinu að gögn um störf slíkra stýrihópa hljóti að liggja fyrir hjá embætti landlæknis.
Samkvæmt framangreindu verður lagt til grundvallar að hjá embætti landlæknis liggi ekki fyrir gögn sem heyri undir beiðni kæranda. Verður hin kærða ákvörðun því staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun embættis landlæknis, dags. 4. júní 2026, um afgreiðslu beiðni kæranda, […], dags. 28. maí 2026, er staðfest.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir