1397/2026. Úrskurður frá 3. nóvember 2026

Hinn 3. nóvember 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1397/2026 í máli ÚNU 25040001.

Kæra og máls­atvik

Hinn 28. mars 2025 kærði […] fréttamaður á fréttastofu Rík­is­út­varps­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar frá 21. mars 2025 að synja beiðni um aðgang að gögnum. Með erindi til nefnd­ar­innar 9. apríl 2026 tilkynnti kærandi úrskurð­ar­nefnd­inni að úrskurð í málinu skyldi senda á frétta­stjóra hjá fréttastofu Rík­is­út­varps­ins.

Í beiðni til Reykja­vík­ur­borgar, dags. 14. febrúar 2025, óskaði kærandi eftir að fá afhent öll gögn og samskipti skóla- og frí­stunda­sviðs og skóla­stjórn­enda Breið­holts­skóla síðastliðin þrjú ár og erindi sem hefðu borist frá starfsfólki skólans í tengslum við ástand sem lýst hefði verið í fjölmiðlum. Í beiðninni var vísað til fréttar þann sama dag um yfirlýsingu frá starfsfólki Breið­holts­skóla þar sem harmað væri úrræðaleysi stjórnvalda vegna ástands sem myndast hefði í einum árgangi skólans.

Beiðnin var afgreidd með erindi, dags. 21. mars 2025. Í svari borgarinnar kom fram að vegna gagna­beiðn­innar hefðu u.þ.b. 68 skjöl verið rýnd með tilliti til þess hvort þau féllu undir gagna­beiðn­ina og þá hvort um væri að ræða gögn sem almenningur ætti rétt til aðgangs að á grundvelli upp­lýs­inga­laga. Að lokinni yfirferð væri það niður­staðan að umbeðin gögn væru undanþegin þeim rétti þar sem um væri að ræða vinnu­gögn, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 6. gr. upp­lýs­inga­laga. Þá væri hluti gagna undanþeginn upp­lýs­inga­rétti bæði vegna þess að þau teldust vinnu­gögn og vegna þess að þau vörðuðu einka­mál­efni sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu, sbr. 9. gr. upp­lýs­inga­laga.

Sama dag og beiðninni var hafnað sendi kærandi spurningar um þau 68 skjöl sem nefnd voru í ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar. Kærandi óskaði eftir upp­lýs­ingum um hve mörg skjalanna væru:

1. kvartanir eða ábendingar frá kennara vegna atviks eða uppákomu sem tengdist nemanda eða nemendum skólans,

2. ábendingar frá skólastjóra eða öðrum stjórnanda Breið­holts­skóla vegna atviks eða uppákomu sem tengdist nemanda eða nemendum skólans,

3. óskir um aðstoð skóla- og frí­stunda­sviðs frá annaðhvort kennara eða skóla­stjórn­endum við Breið­holts­skóla.

Spurn­ing­unum var svarað 28. mars 2025. Í svörum Reykja­vík­ur­borgar kom fram að skjölin 68 væru tölvu­póst­keðjur sem innihéldu samskipti tveggja eða fleiri og hefðu oft þann tilgang að upplýsa um stöðu eða gang mála. Samskiptin bæru þess að jafnaði ekki merki að verið væri að tilkynna um einstakt atvik eða uppákomu.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt Reykja­vík­ur­borg með erindi, dags. 1. apríl 2025, og borginni gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Þá var þess óskað að borgin afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn Reykja­vík­ur­borgar, dags. 11. apríl 2025, sem rituð er af skóla- og frí­stunda­sviði borgarinnar, barst úrskurð­ar­nefnd­inni hinn 14. apríl 2025. Í umsögninni segir m.a. svo:

Við afgreiðslu upp­lýs­inga­beiðni kæranda voru fundin til gögn sem lágu fyrir og féllu undir beiðni kæranda eins og hún var sett fram. Þau skjöl sem voru yfirfarin voru 68 talsins en um er að ræða tölvu­póst­keðjur með samskiptum tveggja eða fleiri aðila. Hluti þeirra gagna sem voru yfirfarin teljast falla utan gagnabeiðni kæranda að mati sviðsins.

Við mat SFS í tengslum við afgreiðslu málsins var talið, líkt og áður hefur komið fram, að gögnin beri öll merki þess að vera vinnu­gögn í skilningi 8. gr. upp­lýs­inga­laga. Í gögnunum er ekki að finna mikilvægar upp­lýs­ingar sem ekki koma annars staðar fram, heldur almennar upp­lýs­ingar vegna mats eða ráðgjafar um vinnslu málsins auk utanumhalds og almenns stuðnings við grunn­skól­ann. Þá er almennt ekki um að ræða upp­lýs­ingar sem skylt er að skrá samkvæmt fyrirmælum 27. gr. upp­lýs­inga­laga.

Í umsögninni kemur enn fremur fram að nauðsynlegt sé að geta skipst á skoðunum eða mótað hugmyndir um viðbrögð vegna fyr­ir­liggj­andi mála. Þau tilvik sem nefnd séu í 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, eigi ekki við um gögnin.

Umsögnin var kynnt kæranda með erindi, dags. 16. apríl 2025, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Kærandi tjáði nefndinni samdægurs að frekari athuga­semdir yrðu ekki gerðar.

Niður­staða

1.

Mál þetta varðar ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar um afgreiðslu á beiðni kæranda um aðgang að gögnum og samskiptum skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og stjórnenda Breið­holts­skóla, auk erinda sem borist hefðu frá starfsfólki skólans. Beiðnin var sett fram í tengslum við opin­bera yfirlýsingu starfsfólks skólans um vaxandi hegðunar-, tilfinninga- og félagslegan vanda nemenda, ógnandi og ofbeld­is­fulla hegðun, skort á viðeigandi úrræðum og að viðeigandi aðilar, þ.m.t. skóla- og frí­stunda­svið, öxluðu að mati starfs­fólks­ins ekki nægjanlega ábyrgð á því ástandi sem hefði myndast.

Með ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar, dags. 21. mars 2025, var beiðninni hafnað, að meginstefnu með vísan til þess að þau gögn sem féllu undir beiðnina væru vinnu­gögn samkvæmt upp­lýs­inga­lögum og að hluti gagnanna innihéldi upp­lýs­ingar um einka­mál­efni ein­stak­linga sem óheimilt væri að afhenda samkvæmt lögunum.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál leggur til grundvallar að beiðni kæranda hafi beinst að gögnum og samskiptum milli skóla- og frí­stunda­sviðs og skóla­stjórn­enda Breið­holts­skóla vegna fram­an­greinds ástands, svo og erindum sem Reykja­vík­ur­borg hefði borist frá starfsfólki skólans, þar á meðal kennurum og skóla­stjórn­endum, í tengslum við sama ástand. Með öðrum orðum þá hafi beiðnin verið afmörkuð við gögn sem tengdust því ástandi sem vísað var til í beiðninni, en ekki lotið að öllum gögnum og samskiptum skóla- og frí­stunda­sviðs annars vegar og stjórnenda eða starfsfólks Breið­holts­skóla hins vegar.

Þar sem ekki var tilgreint í síðari hluta beiðninnar að erindi þyrftu að hafa borist skóla- og frí­stunda­sviði sérstaklega geta undir þann hluta hennar einnig fallið erindi sem starfsfólk skólans beindi til annarra starfsein­inga Reykja­vík­ur­borgar, enda hafi þau efnisleg tengsl við það ástand sem beiðnin tók til. Þær spurningar sem kærandi beindi til Reykja­vík­ur­borgar daginn sem beiðni hans var synjað og fram koma í máls­at­vik­akafla hér að framan styðja við þennan skilning.

2.

Eins og rakið hefur verið að framan lýsti Reykja­vík­ur­borg því í upphaflegri afgreiðslu á beiðni kæranda að við afgreiðslu málsins hefði borgin rýnt u.þ.b. 68 skjöl með tilliti til þess hvort þau féllu undir gagna­beiðn­ina. Í þeirri afgreiðslu kom ekki nánar fram hversu mörg þeirra hefðu verið talin falla undir beiðnina og hver ekki.

Við meðferð þessa máls lét Reykja­vík­ur­borg úrskurð­ar­nefnd­inni í té afrit af þeim gögnum sem fundin hefðu verið til við afgreiðslu beiðni kæranda. Gögnin voru afhent í fjórum PDF-skjölum, sem samtals telja 473 bls. Gögnunum sem um ræðir er skipt niður í hluta sem eru númeraðir 1–68. Hluta nr. 20 vantar þannig að samtals eru hlutarnir 67 talsins.

Þegar gögnin voru afhent úrskurð­ar­nefnd­inni fylgdi einnig yfirlit yfir hlutana. Á yfirlitinu eru 67 færslur, ein fyrir hvern hluta, sem eru númeraðar 1–68 (færslu nr. 20 vantar). Af þeim eru 34 færslur sérstaklega merktar þannig að þær teljist ekki falla undir beiðni kæranda.

Nefndin hefur yfirfarið sérstaklega þann hluta af gögnunum sem Reykja­vík­ur­borg telur samkvæmt þessari afmörkun að falli utan við gagna­beiðn­ina. Að mati nefnd­ar­innar eiga þessi gögn öll það sam­eig­in­legt að þau teljast hvorki vera gögn og samskipti milli skóla- og frí­stunda­sviðs og skóla­stjórn­enda Breið­holts­skóla né erindi sem borginni hafa borist frá starfsfólki Breið­holts­skóla. Verður því fallist á afmörkun og afgreiðslu borgarinnar á beiðni kæranda að þessu leyti.

3.

Nefndin dregur þá ályktun af yfirlitinu að þær 33 færslur sem eftir standa, og ekki hefur verið merkt við af hálfu Reykja­vík­ur­borgar að falli utan við beiðni kæranda, hafi þá að líkindum fallið undir beiðnina að mati Reykja­vík­ur­borgar.

Með hliðsjón af því að úrskurð­ar­nefndin hefur fallist á að hinar 34 færslurnar (hlutar gagnanna) falli í reynd utan við beiðni kæranda afmarkast úrskurður þessi við það hvort Reykja­vík­ur­borg hafi afgreitt beiðni um aðgang að 33 færslum eða hlutum gagnanna með réttum hætti, í samræmi við upp­lýs­inga­lög.

Flestar af þessum 33 færslum eru tölvu­pósts­þræðir, sem hver um sig hefur að geyma fleiri en einn tölvupóst, og eru jafnan merktir þannig í yfirliti borgarinnar yfir gögn málsins að ekki eigi að afhenda þá því þeir séu vinnu­gögn. Nokkrir þráðanna eru einnig merktir þannig að einka­hags­munir komi í veg fyrir afhendingu þeirra. Í nokkrum tilvikum er um mögulega afhendingu skráð „já“ eða „kannski“. Þar sem kæranda voru hins vegar ekki afhent nein gögn með hinni kærðu ákvörðun er ljóst að þær upp­lýs­ingar sem fram koma á yfirlitinu lýsa ekki að öllu leyti endanlegri afstöðu Reykja­vík­ur­borgar til upp­lýs­inga­réttar kæranda. Þrátt fyrir það telur úrskurð­ar­nefndin unnt að leggja til grundvallar að yfirlitið gefi, í samhengi við rökstuðning Reykja­vík­ur­borgar í málinu, nægjanlega skýra mynd af niður­stöðu borgarinnar í málinu og varpi í grund­vall­ar­at­riðum ljósi á það með hvaða hætti borgin leitaðist við að leggja mat á rétt kæranda til aðgangs að gögnunum.

4.

Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, mæla upp­lýs­inga­lög fyrir um rétt til aðgangs að fyr­ir­liggj­andi gögnum. Hugtakið gagn er ekki nánar útskýrt í laga­text­anum, en í athuga­semdum um 5. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, segir svo:

Hugtakið gagn hefur sömu merkingu í þessu frumvarpi og í gildandi upp­lýs­inga­lögum. Hér er um að ræða hefðbundin skrifleg skjöl, svo sem umsóknir, bréf, minnisblöð, þar á meðal minnisblöð sem rituð eru um máls­atvik, fund­ar­gerðir, erindi frá öðrum stjórn­völdum o.fl. en einnig annars konar gögn, svo sem myndir, teikningar, filmur, hljóð­upp­tökur, myndupp­tökur o.s.frv. Gagn telst vera fyr­ir­liggj­andi ef það er til þegar beiðni um það kemur fram. Hugtakið gagn er í þessu sambandi tæknilega hlutlaust. Það hvað getur talist gagn í máli getur því tekið breytingum í samræmi við tækniþróun. Vafalaust verður þannig að telja að efni sem geymt er á ýmsu tölvutæku formi teljist til gagna í skilningi laganna, a.m.k. að því leyti sem það kemur í stað annarra hefð­bund­inna málsgagna.

Hugtakið gagn er samkvæmt fram­an­greindu tæknilega hlutlaust. Telja verður að sömu merkingu beri að leggja í hugtakið skjal, eins og það hugtak er notað í lögum um opin­ber skjala­söfn, nr. 77/2014, sbr. 2. tölul. 2. gr. laganna. Þar er mælt fyrir um að til skjala teljist hvers konar gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, er hafa að geyma upp­lýs­ingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi á vegum stofnunar eða ein­stak­lings. Í athuga­semdum um 2. gr. með frumvarpinu sem varð að lögum nr. 77/2014 er tilgreint að skil­grein­ing skjals sé sett fram með sama hætti og sé að finna í þágildandi lögum um Þjóð­skjala­safn Íslands. Þá segir að skil­grein­ingin rúmi bæði öll papp­írs­skjöl og allar gerðir rafrænna skjala.

Úrskurð­ar­nefndin hefur talið að almennt beri að leggja til grundvallar að hver tölvupóstur, og hvert viðhengi við tölvupóst, séu sérstök gögn í skilningi upp­lýs­inga­laga, sbr. úrskurð nr. 1273/2025. Þetta á við óháð því hvernig stjórnvald hefur valið að varðveita einstaka tölvupósta, þ.e. hvort þeir séu varðveittir einir og sér eða sem hluti af tölvu­pósts­þræði. Þau gögn sem heyra undir beiðni kæranda eru í þessum skilningi mun fleiri en 33 talsins, enda eru gjarnan fleiri gögn, þar með talið fleiri tölvupóstar, undir hverjum hluta fyrir sig. Úrskurð­ar­nefndin bendir sérstaklega á fram­an­greint því af samskiptum borgarinnar við kæranda, umsögn til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar og yfirliti yfir innihald skjalanna sem afhent var nefndinni, verður ekki ráðið með vissu hvort og þá hvernig Reykja­vík­ur­borg lagði mat á rétt kæranda til aðgangs að hverjum og einum tölvupósti sem mynduðu hvern tölvu­pósts­þráð, sbr. fram­an­greinda umfjöllun. Fremur virðist af yfirliti yfir skjölin sem Reykja­vík­ur­borg hafi litið svo á að um væri að ræða 33 sérstök gögn og afgreitt beiðni kæranda í samræmi við það.

5.

Ein af meg­in­rök­semdum Reykja­vík­ur­borgar í málinu er að umbeðin gögn teljist vinnu­gögn í skilningi upp­lýs­inga­laga.

Samkvæmt 5. tölul. 6. gr. upp­lýs­inga­laga tekur réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til vinnugagna. Hugtakið vinnugagn er skilgreint í 1. mgr. 8. gr. laganna en samkvæmt máls­grein­inni eru vinnu­gögn þau gögn sem stjórn­völd eða aðrir aðilar samkvæmt I. kafla laganna hafa ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Í síðari málslið máls­grein­ar­innar er tekið fram að gögn teljist ekki lengur til vinnugagna hafi þau verið afhent öðrum, nema afhending hafi verið til eft­ir­lits­að­ila á grundvelli laga­skyldu.

Í athuga­semdum um 8. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, segir eft­ir­far­andi:

Stjórn­völdum er að lögum falið að taka ýmsar matskenndar ákvarðanir og móta tillögur um áætlanir eða aðrar aðgerðir. Þá getur verið að stjórn­völd þurfi að undirbúa ýmsar aðrar ákvarðanir, svo sem um samninga við einkaaðila. Oft geyma lög ekki að öllu leyti þau skilyrði sem þarf að fullnægja svo slíkar ákvarðanir verði teknar, eða þau sjónarmið eða markmið sem að skal stefnt. Þegar stjórn­völd standa frammi fyrir slíkum verkefnum verða þau iðulega að vega og meta ólík sjónarmið og velja svo á hvaða grundvelli úr máli skuli leyst. Af því leiðir að það tekur einatt einhvern tíma að móta afstöðu til fyr­ir­liggj­andi mála og á því tímabili kunna ólík sjónarmið að hafa mismunandi vægi og breytast, t.d. ef fram koma nýjar upp­lýs­ingar. Gögn sem til verða í slíku ferli þurfa ekki að endurspegla réttilega að hvaða niður­stöðu er stefnt. Eðlilegt er því að stjórn­völdum sé heimilt að hafna aðgangi að þeim þótt stjórn­völdum sé einnig á grundvelli reglunnar um aukinn aðgang að gögnum heimilt að afhenda slík gögn, standi reglur um þagn­ar­skyldu því ekki í vegi.

Í athuga­semdum um 8. gr. kemur enn fremur fram að til þess að skjal teljist vinnugagn þurfi þremur skilyrðum að vera fullnægt. Gagn þurfi að vera und­ir­bún­ings­gagn í reynd, það skuli hafa verið útbúið eða ritað af starfs­mönnum stjórn­valds­ins sjálfs og það megi ekki hafa verið afhent öðrum.

Almennt ber að líta á Reykja­vík­ur­borg sem eitt stjórnvald í skilningi upp­lýs­inga­laga. Breið­holts­skóli og skóla- og frí­stunda­svið borgarinnar teljast hluti stjórn­valds­ins Reykja­vík­ur­borgar, enda fer stjórnsýsla sveit­ar­fé­laga að jafnaði fram á einu stjórn­sýslu­stigi samkvæmt 1. mgr. 8. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, nr. 138/2011. Með hliðsjón af því geta samskipti á milli þessara tveggja eininga og eftir atvikum annarra eininga innan borgarinnar, að öðrum skilyrðum uppfylltum, talist vera vinnu­gögn í skilningi upp­lýs­inga­laga.

Skýringar borgarinnar um mat á því hvenær laga­skil­yrði voru fyrir hendi samkvæmt 8. gr. upp­lýs­inga­laga til að hafna aðgangi að tilteknum gögnum eru á hinn bóginn ekki glöggar.

Í sumum tölvu­pósts­þráð­anna sem beiðni kæranda var afmörkuð við og merktir voru sem „vinnu­gögn“ á yfirliti yfir skjölin eru inn á milli tölvupóstar eða önnur gögn sem ljóslega teljast ekki vera vinnu­gögn. Þar eru t.d. tölvupóstar frá foreldrum barna í Breið­holts­skóla og öðrum utan­að­kom­andi aðilum. Slíkir tölvupóstar geta almennt ekki uppfyllt það skilyrði sem sett er fram í 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga að hafa verið ritaðir eða útbúnir af Reykja­vík­ur­borg til eigin nota. Rétt er að taka fram að slíkir tölvupóstar geta á hinn bóginn, eftir atvikum, annaðhvort fallið utan við beiðni kæranda, enda hafði hann ekki óskað aðgangs að tölvupóstum frá foreldrum, eða innihaldið upp­lýs­ingar um einka­mál­efni sem leynt eiga að fara samkvæmt upp­lýs­inga­lögum. Þá eru einnig dæmi um að í gögnunum séu minnisblöð en ekki er ljóst af fram­setn­ingu þeirra hvort um sé að ræða und­ir­bún­ings­gögn, gögn sem send eru milli starfs­manna við undirbúning ákvarð­ana­töku eða gögn sem fyrir liggja í endanlegri mynd.

Í svari Reykja­vík­ur­borgar sem sent var kæranda eftir að kæra í málinu barst úrskurð­ar­nefnd­inni, dags. 28. mars 2025, kom fram að tölvu­pósts­þræðir í málinu hefðu oft haft þann tilgang að upplýsa um stöðu eða gang mála og að þeir bæru þess að jafnaði ekki merki að hafa að geyma til­kynn­ingar um einstakt atvik eða uppákomu. Í umsögn Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að samskiptin hafi að geyma upp­lýs­ingar vegna mats eða ráðgjafar um vinnslu mála og að mikilvægt sé að starfsmenn geti skipst á skoðunum og mótað hugmyndir um viðbrögð. Úrskurð­ar­nefndin hefur farið yfir gögnin sem Reykja­vík­ur­borg álítur að séu vinnu­gögn og stafa ekki frá utan­að­kom­andi aðilum með tilliti til þessarar röksemdar. Ljóst er að gögnin tengjast að stærstum hluta ástandi sem mun hafa ríkt í tilteknum árgangi í Breið­holts­skóla um árabil og viðleitni skólans í samráði við borgina að greina ástandið og leita lausna á því. Á þeim grundvelli má fallast á það að skýringar Reykja­vík­ur­borgar á gögnunum sem um ræðir geta átt við um hluta þeirra. Þetta á þó ekki við um öll þessi gögn. Af hinni kærðu ákvörðun, skýringum Reykja­vík­ur­borgar og yfirliti yfir gögnin verður heldur ekki ráðið hvaða þættir hafi verið lagðir til grundvallar við mat á því hvaða gögn teldust vera und­ir­bún­ings­gögn. Úrskurð­ar­nefndin tekur fram að það telst ekki full­nægj­andi af hálfu stjórnvalds sem hafnar aðgangi að gögnum að vísað sé með almennum hætti til þess að samskipti í gögnunum hafi varðað stöðu eða gang mála, mat eða ráðgjöf og mótun hugmynda um viðbrögð, svo skilyrði 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga verði talin uppfyllt.

Nefndin tekur fram að í fram­an­greindu felst ekki að Reykja­vík­ur­borg hefði þurft að færa fram sjálfstæðan rökstuðning fyrir synjun aðgangs að hverjum og einum tölvupósti, eða hverju og einu gagni sem fellur undir málið, heldur fremur að rök­stuðn­ingur borgarinnar bæri með skýrari hætti með sér þá greiningu sem fram hefði farið á efni sam­skipt­anna og þeim sjónarmiðum sem ráðið hefðu för við matið á því hvaða gögn teldust vinnu­gögn og af hverju.

6.

Sá annmarki sem rakinn hefur verið hér að framan, um skort á nákvæmari afmörkun á því hvaða gögn málsins teljist vinnu­gögn og af hverju, er að hluta til einnig fyrir hendi um mat borgarinnar á því hvaða gögn málsins innihalda upp­lýs­ingar sem eiga að fara leynt vegna einka­hags­muna, sbr. 9. gr. upp­lýs­inga­laga. Af hálfu borgarinnar hefur verið vísað til þessa sjónarmiðs með almennum hætti, án þess að fyrir liggi t.d. hvort um sé að ræða einka­hags­muni barna í skólanum, foreldra þeirra, starfs­manna eða annarra.

Þá telur nefndin óhjá­kvæmi­legt annað en að horfa til þess að inni í þeim 33 þráðum eða hlutum af gögnum málsins er oft og tíðum nokkur fjöldi gagna. Verður ekki annað séð en að hluti af þeim gögnum, s.s. tilteknir tölvupóstar, hafi í reynd fallið utan við gagna­beiðn­ina m.a. þar sem um er að ræða tölvupósta frá foreldrum barna í Breið­holts­skóla til skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

7.

Í máli þessu liggur fyrir hvaða gögn borgin felldi undir gagnabeiðni kæranda. Ekki verður annað ráðið en að sú afmörkun borgarinnar að fella hluta gagnanna, sem tekin voru til nánari greiningar, utan við gagna­beiðn­ina hafi byggst á full­nægj­andi rannsókn á fyr­ir­liggj­andi gögnum og málaskrám af hálfu borgarinnar.

Í máli þessu liggur einnig fyrir sú afstaða Reykja­vík­ur­borgar að það hafi verið heimilt eða rétt að hafna aðgangi að gögnunum með vísan til þess að um væri að ræða vinnu­gögn í skilningi 8. gr. upp­lýs­inga­laga annars vegar eða gögn sem geymi upp­lýs­ingar um viðkvæm einka­mál­efni í skilningi 9. gr. upp­lýs­inga­laga hins vegar. Að þessu leyti er ljóst á hvaða laga­grund­velli borgin byggði afgreiðslu sína.

Úrskurð­ar­nefndin dregur einnig þá ályktun af yfirlitum borgarinnar yfir hin fyr­ir­liggj­andi gögn, merkingar á þeim gögnum sem úrskurð­ar­nefnd­inni voru látin í té og af skýringum borgarinnar í málinu, að úrlausn málsins hafi í reynd byggst á nokkuð umfangs­mik­illi yfirferð fyr­ir­liggj­andi gagna.

Þeir annmarkar eru hins vegar fyrir hendi á afgreiðslu borgarinnar í málinu að ekki er hægt að ráða af fyr­ir­liggj­andi afgreiðslu og rök­stuðn­ingi í ákvörðun til kæranda eða skýringum til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar hvernig afstaða var tekin um hvert og eitt gagn eða á hvaða laga­grund­velli synjun um aðgang að afmörkuðum gögnum var byggð. Þann annmarka virðist að hluta til mega rekja til þess að Reykja­vík­ur­borg hafi ekki afmarkað með réttum hætti hvað teljist gögn í skilningi 5. gr. upp­lýs­inga­laga.

Sem fyrr segir verður sú skylda ekki lögð á stjórn­völd í öllum tilvikum að setja fram ítarlegan skriflegan og afmarkaðan rökstuðning eða mat um hvert og eitt gagn. Á hinn bóginn þurfa laga­sjón­ar­mið og röksemdir sem byggt er á engu að síður að vera nægjanlega skýrlega fram sett svo hægt sé að heimfæra þau til þeirra gagna sem fyrir liggja. Á þetta skortir í fyr­ir­liggj­andi máli. Fyr­ir­liggj­andi annmarkar á afgreiðslu Reykja­vík­ur­borgar sem raktir hafa verið hér að framan varða bæði það við hvaða gögn beiðni kæranda var afmörkuð og beitingu þeirra lagaákvæða sem hin kærða ákvörðun byggðist á.

Eins og mál þetta er vaxið telur úrskurð­ar­nefndin ekki rétt að taka nýja ákvörðun um rétt kæranda til aðgangs að þeim gögnum sem málið varðar. Verður því beiðni kæranda vísað til nýrrar meðferðar og afgreiðslu hjá Reykja­vík­ur­borg.

Við nýja meðferð ber Reykja­vík­ur­borg að afmarka beiðni kæranda með réttum hætti með hliðsjón af sjónarmiðum sem eiga við um tölvupósta samkvæmt upp­lýs­inga­lögum og taka afstöðu til réttar kæranda til aðgangs að þeim gögnum sem afmörkunin skilar á grundvelli upp­lýs­inga­laga.

Úrskurð­ar­orð

Beiðni kæranda, sem telst lögð fram fyrir hönd fréttastofu Rík­is­út­varps­ins ohf., dags. 14. febrúar 2025, til Reykja­vík­ur­borgar um gögn í tengslum við Breið­holts­skóla, er vísað til borgarinnar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir

Var efnið hjálplegt?