1391/2026. Úrskurður frá 29. september 2026

Hinn 29. september 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1391/2026 í máli ÚNU 26090003.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 8. september 2026, kærði […], ritstjóri Eyjafrétta, til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.

Hinn 1. september 2026 óskaði kærandi eftir tölvupósti, dags. 4. mars 2025, frá lögmanni til fram­kvæmda­stjóra stjórn­sýslu- og fjár­mála­svið Vest­manna­eyja­bæjar sem tengdist mögulegum starfs­lokum tiltekins starfs­manns sveit­ar­fé­lag­sins.

Hinn 8. september 2026 synjaði Vest­manna­eyja­bær beiðni kæranda með vísan til þess að tölvu­póst­ur­inn væri undanþegin upp­lýs­inga­rétti almennings þar sem hann tengdist máli tiltekins starfs­manns, auk þess næði réttur til aðgangs að gögnum ekki til bréfaskipta stjórnvalda við sérfróða aðila í tengslum við rétt­ará­grein­ing.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt Vest­manna­eyjabæ með erindi, dags. 8. september 2026, og sveit­ar­fé­lag­inu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að sveit­ar­fé­lagið afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn Vest­manna­eyja­bæjar barst úrskurð­ar­nefnd­inni 21. september 2026. Í umsögninni kemur fram að synjun sveit­ar­fé­lag­sins á beiðni kæranda hafi byggt á 1. mgr. 7. gr., sbr. 4. tölul. 6. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012 um aðgang að gögnum um málefni starfs­manna. Þá taldi sveit­ar­fé­lagið 3. tölul. 6. gr. upp­lýs­inga­laga um bréfaskipti stjórnvalds við sérfróða aðila einnig takmarka aðgang að umbeðnu gagni þar sem tölvu­póst­ur­inn fól í sér ráðgjöf vegna meðferðar starfs­mann­amáls.

Umsögn Vest­manna­eyja­bæjar var kynnt kæranda með erindi, dags. 21. september 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Athuga­semdir kæranda bárust nefndinni sama dag.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

Mál þetta varðar ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar að hafna beiðni kæranda um aðgang að tölvupósti lögmanns til sveit­ar­fé­lag­sins og tengist mögulegum starfs­lokum tiltekins starfs­manns hjá sveit­ar­fé­lag­inu og aðdrag­anda þess máls.

Meginregla um upp­lýs­inga­rétt almennings er í 1. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga þar sem segir að skylt sé að veita almenningi aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum sem varða tiltekið mál, sé þess óskað, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. laganna. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyr­ir­liggj­andi gögnum.

Sú takmörkun á meginreglu 5. gr. upp­lýs­inga­laga um upp­lýs­inga­rétt almennings sem kemur til skoðunar í máli þessu er 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna. Þar segir að réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfs­manna sem starfa hjá aðilum sem lögin taka til samkvæmt 2. gr. taki ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfs­sam­bandið að öðru leyti. Í athuga­semdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að gildandi upp­lýs­inga­lögum segir:

Með gögnum í málum sem varða starfs­sam­bandið að öðru leyti […] er átt við gögn í málum þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfs­manna. Þau rök búa hér að baki að rétt sé veita starfs­manni ákveðið öryggi í starfi og varðveita trúnað í vinnu­sam­band­inu sem ella væri hætta á að brysti ef veittur yrði aðgangur að gögnum í slíkum málum. Af þessu leiðir enn fremur að opin­berir aðilar ættu síður möguleika á því að laða til sín og halda hjá sér hæfu starfsfólki. Til mála er varða starfs­sam­bandið teljast t.d. mál þar starfsmaður hefur þurft að sæta frádrætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigj­an­legan vinnutíma og um aukastörf, sbr. IV. kafla laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins, og enn fremur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfs­lokum.

Úrskurð­ar­nefndin telur ljóst að fyr­ir­liggj­andi gagn, sem Vest­manna­eyja­bær hefur afhent nefndinni og fellur undir beiðni kæranda, telst til gagna í máli sem lýtur að starfs­sam­bandi tiltekins starfs­manns og sveit­ar­fé­lag­sins, í skilningi tak­mörk­un­ar­ákvæðis 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga.

Í 3. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga kemur fram að heimilt sé að veita upp­lýs­ingar um viðurlög í starfi sem æðstu stjórnendur hafa sætt, þar á meðal vegna áminninga og brottvísana, enda séu ekki liðin meira en fjögur ár frá þeirri ákvörðun sem um ræðir. Um mat á því hvort starfsmaður sé æðsti stjórnandi í skilningi ákvæðisins segir eft­ir­far­andi í athuga­semdum við það í frumvarpi til upp­lýs­inga­laga:

[…]. Hvað varðar æðstu stjórnendur sveit­ar­fé­lags þykir almennt mega hafa hliðsjón af fyrirmælum VI. kafla sveit­ar­stjórn­ar­laga, nr. 138/2011, sem tóku gildi 1. janúar 2012, er fjallar um fram­kvæmda­stjóra og aðra starfsmenn sveit­ar­fé­laga. Er þá átt við fram­kvæmda­stjóra sveit­ar­fé­lag­sins, eða oddvita þar sem ekki er starfandi fram­kvæmda­stjóri, og þá starfsmenn sem sveit­ar­stjórn ræður í helstu stjórn­un­ar­stöður, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 56. sveit­ar­stjórn­ar­laga. Heimild til að veita upp­lýs­ingar skv. 3. mgr. er bundin við það að ekki séu liðin fjögur ár frá því að ákvörðun um viðurlög eða önnur viðbrögð var tekin.

Úrskurð­ar­nefndin hefur yfirfarið gögn málsins og telur ljóst að það gagn sem kærandi hefur óskað aðgangs að varði ekki starfs­mann sem fellur undir 3. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga í fram­an­greindum skilningi.

Samkvæmt þessu verður staðfest sú ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar að synja beiðni kæranda um aðgang að tölvupósti lögmanns til sveit­ar­fé­lag­sins, dags. 4. mars 2025, sem tengist mögulegum starfs­lokum tiltekins starfs­manns sveit­ar­fé­lag­sins.

Úrskurð­ar­orð

Ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar, dags. 8. september 2026, um að synja kæranda, […], ritstjóra Eyjafrétta, um aðgang að gögnum er staðfest.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir