1400/2026. Úrskurður frá 18. nóvember 2026
Hinn 18. nóvember 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1400/2026 í máli ÚNU 26050001.
Kæra og málsatvik
Hinn 4. maí 2026 kærði […], blaðamaður, ákvörðun utanríkisráðuneytisins að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi til utanríkisráðuneytisins, dags. 15. apríl 2026, óskaði kærandi eftir öllum upplýsingum um fund ríkja NB8-samstarfsins með Tony Blair sem fram hafi farið 25. febrúar sama ár.
Utanríkisráðuneytið afmarkaði beiðni kæranda við tölvupóst, dags. 26. febrúar 2026, frá sendiráði Íslands í London til utanríkisráðherra, skrifstofustjóra skrifstofu alþjóðapólitískra málefna og þriggja starfsmanna ráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið synjaði beiðni kæranda 30. apríl 2026 með vísan til þess að tölvupósturinn væri vinnugagn auk þess sem hann innihéldi upplýsingar um samskipti Íslands við önnur ríki sem rétt væri að takmarka aðgang að vegna mikilvægra almannahagsmuna.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt utanríkisráðuneytinu 5. maí 2026 og ráðuneytinu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að ráðuneytið afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn utanríkisráðuneytisins barst úrskurðarnefndinni 18. maí 2026. Umsögninni fylgdi tölvupóstur, dags. 26. febrúar 2026, sem ber yfirskriftina „Tony Blair og Friðarráð“ frá sendiráði Íslands í London til utanríkisráðherra, skrifstofustjóra skrifstofu alþjóðapólitískra málefna og þriggja starfsmanna utanríkisráðuneytisins. Í umsögninni kemur fram að það sé mat ráðuneytisins að umrætt gagn sé vinnugagn í skilningi 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Auk þess hafi tölvupósturinn að geyma upplýsingar um samskipti Íslands við erlend ríki sem heimilt væri að takmarka aðgang að vegna mikilvægra almannahagsmuna, sbr. 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Í honum komi fram upplýsingar um efni fundar NB8-ríkjanna og Tony Blair þar sem umfjöllunarefnið sé í eðli sínu viðkvæmt „ekki síst út frá sjónarhóli hins erlenda stjórnvalds“ og efni fundarins gæti einnig reynst viðkvæmt fyrir önnur ríki sem sátu fundinn og afstaða einstakra ríkja til umfjöllunarefnisins sé enn í mótun. NB8-samstarfið skipti Ísland miklu máli og mikilvægt sé að traust ríki um það sem fram fari á fundum þeirra. Þá kemur fram í umsögninni að ráðuneytið telji ekki forsendur fyrir því að veita aukinn aðgang að gagninu samkvæmt 2. mgr. 11. gr. upplýsingalaga. Matið byggi á því að afhending gagnsins myndi grafa undan trausti í samskiptum Íslands við önnur ríki.
Umsögn utanríkisráðuneytisins var kynnt kæranda með erindi, dags. 18. maí 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust nefndinni sama dag. Í þeim tekur kærandi fram að Friðarráð sé ekki viðurkennd alþjóðastofnun og að Tony Blair sé ekki embættismaður heldur einkaaðili.
Með erindi, dags. 14. október 2026, óskaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál eftir frekari skýringum frá utanríkisráðuneytinu um hvernig efni tölvupóstsins sem deilt er um í málinu sé viðkvæmt fyrir önnur ríki sem sátu fundinn sem pósturinn fjallar um. Jafnframt var óskað eftir nánari upplýsingum um formlegan grundvöll NB8-samstarfsins og hvort þjóðréttarsamningur liggi því til grundvallar.
Í svari utanríkisráðuneytisins, dags. 6. nóvember 2026, kemur fram að samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, Nordic-Baltic-Eight eða NB8, sé óformlegur svæðisbundinn samstarfsvettvangur Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litáens. Meginmarkmið samstarfsins sé að efla samvinnu og skapa vettvang til samstarfs og samráðs ríkjanna á sviði utanríkismála. Þá kemur fram í svari ráðuneytisins að afstaða þess í málinu grundvallist á því markmiði 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga að standa vörð um almannahagsmuni með því að tryggja góð samskipti og gagnkvæmt traust við önnur ríki. Þótt ákvæðið geri ekki beinlínis ráð fyrir að íslensk stjórnvöld leggi efnislegt mat á eða geti sér til um afstöðu eða pólitíska viðkvæmni annarra ríkja, leiði það af eðli ákvæðisins að leggja verði mat á hvernig upplýsingarnar horfi við öðrum ríkjum. Þar sem ekki sé leitað eftir formlegri afstöðu erlendra stjórnvalda við meðferð upplýsingabeiðna þá sé það hlutverk ráðuneytisins að leggja mat á upplýsingarnar út frá diplómatísku sjónarhorni og ráða af eðli og samhengi samskiptanna hvort upplýsingarnar séu þess eðlis að birting þeirra geti skaðað gagnkvæmt traust eða mikilvæga hagsmuni í samskiptum ríkja. Geti erlend ríki ekki treyst því að trúnaði sé haldið um það sem fram fari á lokuðum fundum eða í samtölum fulltrúa á milli, muni það grafa undan trausti til íslenskra stjórnvalda, sem sé forsenda árangursríkra alþjóðasamskipta. Þá kom fram í svari ráðuneytisins að á fundinum sem fjallað er um í umræddum tölvupósti hafi umræðuefnið verið svonefnt Friðarráð sem og friðarumleitanir fyrir botni Miðjarðarhafs.
Niðurstaða
1.
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að tölvupósti í vörslu utanríkisráðuneytisins, dags. 26. febrúar 2026, frá sendiráði Íslands í London til utanríkisráðherra, skrifstofustjóra alþjóðapólitískra málefna og þriggja starfsmanna utanríkisráðuneytisins. Tölvupósturinn ber yfirskriftina „Tony Blair og Friðarráð“ og inniheldur upplýsingar frá fundi NB8-ríkjanna og Tony Blair sem fór fram 25. febrúar 2026. Synjun ráðuneytisins á beiðni kæranda byggði meðal annars á því að um vinnugögn væri að ræða samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 6. gr., sbr. 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 6. gr. upplýsingalaga tekur réttur almennings til aðgangs að gögnum samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laganna ekki til vinnugagna. Hugtakið vinnugagn er skilgreint í 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga sem þau gögn sem stjórnvöld hafa ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Þá er tekið fram að gögn teljist ekki lengur til vinnugagna hafi þau verið afhent öðrum, nema afhending hafi verið til eftirlitsaðila á grundvelli lagaskyldu. Ákvæði 5. tölul. 1. mgr. 6. gr., sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna, felur í sér undantekningu frá meginreglunni um rétt almennings til aðgangs að gögnum sem skýra ber þröngt.
Í athugasemdum við 8. gr. kemur enn fremur fram að til þess að skjal teljist vinnugagn þurfi þremur skilyrðum að vera fullnægt. Gagn þurfi að vera undirbúningsgagn í reynd, það skuli útbúið eða ritað af starfsmönnum stjórnvaldsins sjálfs og það megi ekki hafa verið afhent öðrum. Í þriðja skilyrðinu, þ.e. að gagn hafi ekki verið afhent öðrum, felist það m.a. að hafi skjal verið afhent einkaaðila eða stjórnvaldi t.d. með tölvupósti eða öðrum hætti, teljist það almennt ekki lengur til vinnugagna.
Af ákvæði 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga leiðir að meta þarf heildstætt á grundvelli framangreindra sjónarmiða hvort umbeðin gögn uppfylli það skilyrði að teljast í reynd vinnugögn. Teljist þau til vinnugagna að hluta eða öllu leyti þarf síðan að taka afstöðu til þess hvort veita beri aðgang að þeim á grundvelli 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga.
2.
Úrskurðarnefndin hefur yfirfarið tölvupóstinn sem deilt er um í málinu með hliðsjón af framangreindu. Af gögnum málsins er ljóst að umræddur tölvupóstur var ritaður af sendiherra Íslands í London og hefur ekki verið afhentur öðrum.
Með vísan til laga nr. 39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands verður ekki litið á sendiráð Íslands og utanríkisráðuneytið sem aðskilin stjórnvöld í skilningi upplýsingalaga. Verður því ekki talið að umræddur tölvupóstur hafi verið afhentur öðrum eða ritaður af öðrum en stjórnvaldinu sjálfu í skilningi 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga af þeirri einu ástæðu að hann hafi farið á milli starfsmanna utanríkisráðuneytisins og sendiráðs Íslands í London og verið ritaður af sendiherra Íslands í London.
Tölvupósturinn sem deilt er um aðgang að í máli þessu inniheldur punkta um það sem fram kom af hálfu Tony Blair á fundi hans og sendiherra NB8-ríkjanna 25. febrúar 2026. Þótt gagnið geti nýst við ákvarðanatöku í framtíðinni nægir það að mati nefndarinnar ekki til þess að gagn teljist vinnugagn. Til þess að gagn teljist vinnugagn verður það að vera undirbúningsgagn í reynd. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál ber umbeðinn tölvupóstur ekki með sér að vera hluti af undirbúningi ákvörðunar eða annarra málalykta, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga. Í gagninu kemur fram lýsing á meginatriðum í máli Tony Blair á fundinum. Þar er ekki að finna upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar utanríkisráðuneytisins á verkefnum, athugasemdir ráðuneytisins eða annað sem gæti talist fela í sér undirbúning ákvörðunar, samnings eða annarra lykta máls.
Að mati úrskurðarnefndarinnar er umræddur tölvupóstur því ekki vinnugagn og verður hann ekki undanþeginn upplýsingarétti almennings á grundvelli 5. tölul. 1. mgr. 6. gr. upplýsingalaga.
3.
Til skoðunar kemur hvort heimilt sé að takmarka aðgang að tölvupóstinum á grundvelli 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Utanríkisráðuneytið hefur vísað til þess að afhending gagnsins geti grafið undan gagnkvæmu trausti í samskiptum Íslands við önnur ríki á vettvangi NB8-samstarfsins.
Áður en vikið er að því álitaefni er rétt að taka fram að samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga gilda lögin ekki um upplýsingar sem trúnaður skal ríkja um samkvæmt þjóðréttarsamningum sem Ísland á aðild að. Í skýringum utanríkisráðuneytisins kemur fram að NB8 sé óformlegur samstarfsvettvangur Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Ráðuneytið hefur ekki vísað til þjóðréttarsamnings sem leggur trúnaðarskyldu á þær upplýsingar sem deilt er um í málinu. Þar af leiðandi verður ekki byggt á því að upplýsingarnar falli utan upplýsingaréttar samkvæmt upplýsingalögum á þeim grundvelli.
Samkvæmt 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast, enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Í athugasemdum við ákvæðið í greinargerð með frumvarpi því er varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að þeir hagsmunir sem ákvæðinu er ætlað að vernda séu tvíþættir. Annars vegar sé markmið þess að vernda stöðu íslenskra stjórnvalda við gerð samninga eða sambærilegra ráðstafana gagnvart erlendum aðilum. Hins vegar sé tilgangur ákvæðisins sá að tryggja gagnkvæmt traust í samskiptum við ríki, fyrirsvarsmenn þeirra og fjölþjóðastofnanir, sem og traust í samskiptum innan fjölþjóðastofnana sem Ísland kunni að eiga aðild að. Ákvæðið heimili undanþágu frá meginreglunni um upplýsingarétt almennings þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjist þess.
Í úrskurðarframkvæmd úrskurðarnefndar um upplýsingamál hefur, við mat á því hvort heimilt sé að takmarka aðgang að gögnum á grundvelli 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, verið litið til þess hvort upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir snúi að viðkvæmum málefnum, samskiptaleiðum sem hætta er á að lokist ef upplýsingar sem þaðan berast yrðu á almannavitorði, eða öðrum atriðum sem þykja raunverulega geta leitt til þess að traust erlendra stjórnvalda eða alþjóðastofnana á íslenskum stjórnvöldum glatist. Þá er enn fremur rétt að hafa í huga þau sjónarmið sem vitnað er til í athugasemdum við ákvæðið um að gæta beri varfærni við skýringu á ákvæðinu í ljósi þess hversu oft sé um veigamikla hagsmuni að ræða. Ákvæðið verður hins vegar ekki túlkað svo rúmt að stjórnvöld geti, með vísan til mikilvægis trúnaðar, takmarkað aðgang að öllum gögnum er varða samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir án atviksbundins mats, sbr. t.d. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 1212/2024 og þá úrskurði sem þar er vísað til.
4.
Tölvupósturinn sem deilt er um í máli þessu innheldur frásögn sendiherra Íslands í London af fundi sendiherra NB8-ríkjanna með Tony Blair.
Fallast má á það með kæranda að Tony Blair komi ekki fram fyrir hönd erlends ríkis á þeim fundi sem tölvupósturinn fjallar um og að hvorki Friðarráð né The Tony Blair Institute séu fjölþjóðastofnanir í skilningi 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Engu að síður verður hér að líta til þess að gagnið geymir upplýsingar um það sem fór fram á lokuðum fundi Íslands og sjö annarra ríkja, sem þáttur í alþjóðlegu samstarfi þeirra. Skilyrði ákvæðisins um að gagnið geymi upplýsingar um samskipti Íslands við erlend ríki eru því fyrir hendi. Upplýsingarnar sem fram koma í tölvupóstinum varða alþjóðleg samskipti og eðli frásagnarinnar er þannig að fallast verður á það með utanríkisráðuneytinu að það myndi almennt geta grafið undan trausti í samskiptum þeirra ríkja sem stóðu að fundinum ef gagnið yrði afhent á grundvelli reglna um upplýsingarétt almennings. Skiptir þar einnig máli að um er að ræða frásögn af fundi sem fram fór í febrúar árið 2026 og varðar þannig m.a. viðfangsefni sem enn eru til meðferðar. Með hliðsjón af þessu fellst úrskurðarnefndin á að utanríkisráðuneytinu hafi verið heimilt, með vísan til 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, að hafna því að afhenda tölvupóstinn.
Úrskurðarorð
Staðfest er ákvörðun utanríkisráðuneytisins, dags. 30. apríl 2026, um að synja beiðni kæranda, […], dags. 15. apríl 2026, um aðgang að gögnum.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir