1384/2026. Úrskurður frá 15. september 2026
Hinn 15. september 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1384/2026 í máli ÚNU 25120009.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 16. desember 2025, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Landspítala að synja beiðni hennar um upplýsingar.
Í frétt Ríkisútvarpsins, dags. 9. desember 2025, var fjallað um ung börn sem hefðu þurft að leggjast inn á Landspítala vegna inflúensu. Í fréttinni kom meðal annars fram að börnin sem þurft hefðu á innlögn að halda væru fleiri og yngri en áður og að þau hefðu ekki verið bólusett gegn inflúensu.
Með tölvupósti til Landspítala, dags. 10. desember 2025, óskaði kærandi eftir upplýsingum um hvort eitthvert þeirra inniliggjandi barna sem vísað væri til í fréttinni hefði fengið lyfið Beyfortus við RS-veiru frá því að byrjað var að gefa það og ef svo væri, hversu mörg þeirra.
Í svari Landspítala, dags. 11. desember 2025, kom fram að spítalanum væri ekki heimilt að veita upplýsingarnar. Degi síðar óskaði kærandi eftir rökstuðningi og lagagrundvelli synjunarinnar og tók fram að ekki væri óskað eftir persónugreinanlegum upplýsingum, heldur sams konar upplýsingum og veittar væru um bólusetningarstöðu við inflúensu í frétt Ríkisútvarpsins. Kærandi ítrekaði erindið 15. desember og staðfesti Landspítali synjunina 16. desember 2025.
Í kæru kemur fram að haustið 2025 hafi verið byrjað að gefa ungabörnum nýtt lyf, Beyfortus, við RS-veiru. Lyfinu gætu fylgt aukaverkanir, meðal annars einkenni lík flensu.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Landspítala með erindi, dags. 17. desember 2025, og spítalanum gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Þá var þess óskað að Landspítali afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar. Frestur til að skila umsögn var að beiðni spítalans framlengdur til 21. janúar 2026.
Umsögn Landspítala barst úrskurðarnefndinni hinn 21. janúar 2026. Þar kom fram að spítalinn hefði afmarkað beiðnina við þau börn sem legið hefðu inni vegna inflúensu þegar frétt Ríkisútvarpsins birtist hinn 9. desember 2025. Þann dag hefðu fimm börn legið inni með ICD-kóðann J10: Inflúensa – árstíðabundin staðfest eða J11: Inflúensa, veira ekki tilgreind. Upplýsingar um hvort barn hefði fengið lyfið Beyfortus væru varðveittar í sjúkraskrám þeirra. Landspítali teldi að um rétt til aðgangs að slíkum upplýsingum færi samkvæmt lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009, en ekki upplýsingalögum. Til vara væri byggt á því að upplýsingarnar féllu undir 9. gr. upplýsingalaga. Þá kom fram að ekki lægi fyrir hjá spítalanum gagn sem innihéldi þær upplýsingar sem óskað væri eftir; til að verða við beiðninni þyrfti Landspítali að yfirfara sjúkraskrár barnanna og útbúa nýtt skjal með umbeðinni tölfræði. Samkvæmt upplýsingalögum væri spítalanum ekki skylt að gera það.
Umsögn Landspítala var kynnt kæranda með erindi, dags. 23. janúar 2026, og kæranda gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust hinn 28. janúar 2026. Þar lýsti kærandi upphaflegri beiðni sinni til Landspítalans þannig að óskað hefði verið eftir upplýsingum á hópastigi um hvort og þá hversu mörg börn hefðu fengið lyfið Beyfortus frá því byrjað hefði verið að gefa börnum lyfið. Beiðnin hefði ekki lotið að persónugreinanlegum upplýsingum um einstök börn, aðgangi að sjúkraskrám þeirra eða inniliggjandi börnum á einum tilteknum degi. Kærandi vísaði jafnframt til þess að upplýsingar um gjöf lyfsins séu skráðar í miðlægan grunn og að embætti landlæknis hefði veitt heildartölur um notkun þess.
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um afgreiðslu Landspítala á upplýsingabeiðni kæranda um hvort einhver þeirra barna sem fjallað var um í frétt Ríkisútvarpsins hinn 9. desember 2025 og höfðu verið lögð inn vegna inflúensu hefðu fengið lyfið Beyfortus og, ef svo væri, hversu mörg þeirra.
Kærandi hefur gert athugasemd við það hvernig Landspítali afmarkaði beiðnina sem kærða ákvörðunin varðar. Í beiðni kæranda frá 10. desember 2025 var beinlínis vísað til þeirra barna sem lægju inni á spítalanum og fjallað væri um í frétt Ríkisútvarpsins. Nefndin telur rétt að skilja beiðnina þannig að óskað hafi verið upplýsinga um hvort þau tilteknu börn hefðu fengið Beyfortus, frá því byrjað hefði verið að gefa lyfið, en ekki upplýsinga um fjölda barna sem hefðu fengið Beyfortus og þurft að leggjast inn á spítalann vegna inflúensu frá október 2025 fram til þess dags sem beiðnin var lögð fram. Úrskurðarnefndin telur því ekki ástæðu til að gera athugasemdir við hvernig spítalinn afmarkaði beiðni kæranda og tekur úrskurður þessi mið af þeirri afmörkun.
Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, taka lögin til allrar starfsemi stjórnvalda. Landspítali fellur undir gildissvið laganna. Í 4. mgr. 14. gr. upplýsingalaga er tekið fram að um aðgang sjúklings að sjúkraskrá fari eftir ákvæðum laga um sjúkraskrár. Samkvæmt 12. gr. laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, er aðgangur að sjúkraskrám óheimill nema til hans standi lagaheimild samkvæmt þeim lögum eða öðrum lögum. Í lögunum er sérstaklega mælt fyrir um aðgang sjúklings og umboðsmanns hans, aðgang náinna aðstandenda látins sjúklings og aðgang vegna vísindarannsókna.
Í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1227/2024 var lagt til grundvallar að lög um sjúkraskrár væru sérlög gagnvart upplýsingalögum að því leyti sem þar væri mælt fyrir um rétt tiltekinna aðila til aðgangs að sjúkraskrám. Um rétt annarra til aðgangs að upplýsingum úr sjúkraskrá færi á hinn bóginn almennt samkvæmt upplýsingalögum.
Aðgangur kæranda að upplýsingum úr sjúkraskrá byggist ekki á þeim sérstöku aðgangsheimildum sem mælt er fyrir um í lögum um sjúkraskrár. Um rétt kæranda fer því samkvæmt upplýsingalögum og er kærunni réttilega beint til úrskurðarnefndarinnar.
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga segir:
Sé þess óskað er skylt að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Ekki er þó skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr.
Í athugasemdum um 5. gr. með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að upplýsingaréttur nái aðeins til gagna sem til séu og liggi fyrir þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau séu á þeim tíma.
Samkvæmt skýringum Landspítala liggur ekki fyrir í vörslum spítalans gagn með þeim upplýsingum sem óskað var eftir, þ.e. hvort og þá hve mörg börn sem lágu inni á spítalanum vegna inflúensu hefðu fengið lyfið Beyfortus. Úrskurðarnefndin telur ekki ástæðu til að draga þær skýringar í efa og telur að upplýsingar sem kunni að vera aðgengilegar annars staðar en hjá Landspítala og varði beiðni kæranda gefi ekki ástæðu til að ætla að hjá spítalanum liggi fyrir gagn sem svari beiðninni.
Landspítali hefur enn fremur skýrt frá því að til að verða við beiðninni þyrfti að yfirfara sjúkraskrá hvers barns í þeim afmarkaða hópi sem frétt Ríkisútvarpsins varðaði til að kanna hvort þar væri skráð gjöf lyfsins Beyfortus og útbúa síðan nýja samantekt. Þá er og ljóst að jafnframt þyrfti að leggja mat á hvort fyrri málsliður 9. gr. upplýsingalaga leiddi til þess að óheimilt væri að afhenda upplýsingarnar, þótt þær teldust til fyrirliggjandi gagns í vörslu spítalans. Að þessu virtu verður lagt til grundvallar að Landspítala sé óskylt að verða við beiðni kæranda, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Ákvörðun Landspítala verður því staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Landspítala, dags. 16. desember 2025, að synja upplýsingabeiðni kæranda, […], dags. 10. desember 2025, er staðfest.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir